Knattspyrnumaðurinn Sævar Þór Gíslason var kjörinn íþróttamaður Árborgar 2008 á uppskeruhátíð ÍTÁ og er hann vel af þeim titli kominn. Sævar Þór ólst upp á Selfossi, lék þar upp alla yngri flokka og með meistaraflokki frá 17 - 22 ára aldurs. Þá fór hann í úrvalsdeildina og vakti strax verðskuldaða athygli. Sævar Þór kom svo heim á Selfoss aftur árið 2007, eftir níu ár í Reykjavík. Er á engan hallað þó hann sé talinn lykilmaður í þeirri uppbyggingu sem verið hefur í fótboltanum á Selfossi síðustu tvö ár.
Katrín Ösp Jónasdóttir var kjörin Íþróttakona Árborgar 2008 á uppskeruhátíð ÍTÁ. Katrín Ösp er 16 ára og keppir í hópfimleikum með HM1-liði Selfoss sem er meistarahópur Selfoss í hópfimleikum og saman stendur af 20 stúlkum á aldrinum 15-23 ára. Katrín Ösp er einnig nemandi í Fimleikaakademíu FSU.
Á uppskeruhátíð ÍTÁ sem fram fór í gærkvöldi veitti ÍSÍ handknattleiks- og knattspyrnudeild Umf. Selfoss viðurkenningu fyrir að vera fyrirmyndardeildir. Báðar deildirnar eru vel að þessu komnar, enda hafa þær verið að skila frábæru og vel skipulögðu starfiundanfarin ár. Auk þess hafa þær skilað úr sínu starfi nokkrum unglingalandsliðsmönnum á hverju ári. Við þetta sama tækifæri veitti Sveitarfélagið Árborg og HSK umræddum deildum veglegan peningastyrk. Þess má líka geta að handknattleiksdeild Selfoss fékk fyrr á þessu ári verðlaun frá HSÍ fyrir besta yngri flokka starf á landinu.
Dregið var í 4-liða úrslit Eimskipsbikarsins, í hálfleik í leik Fram og Hauka í deildabikarnum í Laugardalshöll í gær. Segja má að Selfoss hafi dottið í lukkupottinn því liðið fékk heimaleik við Gróttu. Það lið sem sigrar í þeirri viðureign leikur til úrslita í bikarkeppninni við annað hvort Val eða FH. Valsmenn fengu heimaleik gegn FH í hinum undanúrslitaleiknum. Ljóst er að það verða 1. deildarlið og úrvalsdeildarlið sem leika til úrslita. Leikirnir í undanúrslitum fara fram 7. og 8. febrúar.
Hin árlega uppskeruhátíð íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar verður haldin í sal FSu mánudaginn 29. desember kl. 20:00. Þar verða afhentir styrkir úr verkefnasjóði íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar, Afreks- og styrktarsjóði Árborgar og íþróttafélaganna, þ.e. Umf. Selfoss, Umf. Stokkseyrar og Íþf. FSu. Hvatningarverðlaun verða veitt og tilkynnt um kjör íþróttakonu og íþróttakarls Árborgar 2008. Einnig verða afhendt Menningarverðlaun Árborgar fyrir árið 2008. Skemmtiatriði og kaffiveitingar. Hátíðin er öllum opin og allir hjartanlega velkomnir.
Í hálfleik á úrslitaleikjum kvenna og karla í N1 deildarbikarnum verður dregið í 8 liða úrslit kvenna og 4 liða úrslit karla í Eimskipsbikarnum. Kvennaleikurinn hefst kl.13.30 og karlaleikurinn hefst kl.15.50. Liðin sem verða í pottinum hjá kvennaliðunum eru: FH, Fram, Fylkir, Grótta, Haukar, KA/Þór, Stjarnan og Valur. Hjá karla liðunum eru það: FH, Grótta, Selfoss og Valur.
Gamla myndin þessa vikuna er af stuðningsmannasveit Selfossliðsins 1991. Þetta var á þeim tímum þegar íþróttahúsið var fullt á hverjum einasta leik. Þarna má sjá Ævar Österby fremstan í flokki, en hann var aðalmaðurinn í þessu hópi. Þarna má einnig sjá Hilmar í Selós, Bjarka Hilmars, Gunna Gråns o.fl.
Af gefnu tilefni vill aðgerðahópur um forvarnir í Árborg beina því til veitinga- og skemmtistaða í Árborg að fara að lögum og auglýsa aldrei áfengi í tengslum við markaðssetningu dansleikja eða annarra viðburða. Með banni við áfengisauglýsingum samkvæmt áfengislögum er verið að sporna gegn misnotkun áfengis og ekki síst hindra að því sé haldið að börnum og ungmennum með hvers kyns tilkynningum til almennings, í máli sem myndum. Því miður eru dæmi þess að veitinga- og skemmtistaðir í Árborg auglýsa áfengi í tengslum við markaðssetningu sína á dansleikjum og skemmtunum bæði í staðarblöðum og á vefsíðum.
Annar flokkur stráka og stelpna ásamt Selfoss-Getraunum bjóða tippurum og öðrum fótboltaáhugamönnum upp á brunch á morgun laugardaginn 20. des. Maturinn byrjar kl 11.30 og eru allir hvattir til að mæta í lett fótboltaspjall og mat. Það eru kjötvinnslan Krás og Guðnabakarí sem bjóða upp á matinn. Jóla-brunch knattspyrnudeildarinnar er að verða einn af föstu punktunum í jólaundirbúningi knattspyrnuáhugamanna og gaman þegar svona hefðir skapast.
Fyrsta HSK-mótið í júdó var haldið í íþróttasalnum í Gagnheiði 11. desember síðastliðin. Mótið tókst í alla staði vel og tókust menn hart á. Selfoss sigraði stigakeppnina, enda allir keppendur frá Selfossi nema einn sem kom frá Laugarvatni. Úrslit urðu eftirfarandi...
Knattspyrnudeild Selfoss ætlar á Þorláksmessu að halda skötuveislu í Tryggvaskála á Selfossi. Í boði verður veglegt skötuhlaðborð: skata, tindabykkja, saltfiskur, síld og allt tilheyrandi meðlæti. Verð fyrir hlaðborðið er aðeins 2.200 krónur og er um takmarkað sætaframborð að ræða. Húsið opnar kl 11.30 og verður borinn fram matur til kl 14.00. Miðapantanir eru í síma: 897-7697 Sveinbjörn og 699-0660 Tómas. Einnig er hægt að senda inn pantanir á netfangið tommi@talnet.is
Í gær var handinn sérstakur forvaradagur hjá félaginu. Í tilefni þess var farið í heimsókn í Vallaskóla og rætt við nemendur í 5.-10. bekk. Framkvæmdastjóri félagsins, íþróttafólk og þjálfarar úr flestum deildum félagsins mættu í íþróttasal Sandvíkurskóla og áttu góða stund með nemendum. Þar voru kynntar þær íþróttagreinar sem stundaðar eru innan félagsins, íþróttafólkið ræddi um feril sinn og mikilvægi þess að æfa vel og setja markið hátt. Stefnt er að því að þetta verð að árlegum viðburði og fari framvegis fram í upphafi skólaárs.
Gamla myndir að þessu sinni var tekin í leikhléi þegar Valdimar Grímsson var þjálfari Selfossliðsis keppnistímabilið 1995-1996. Þar má sjá þekkta kappa eins og Einar Gunnar Sigurðsson, Erling Richardsson, Hallgrím Jónasson og Erling Klemensson. Valda á vinstri hönd er Gísli Óskarsson sem var aðstoðarþjálfari.
Okkar menn töpuðu gegn FH um helgina, en þetta sama lið varð Íslandsmeistari í 4. flokki A-liða eftir skrautlegan úrslitaleik gegn KA síðastliðið vor. Hafnfirðingar hafa að flestra mati á að skipa langbesta liðinu í deildinni og eru þar leikmenn sem eiga mun meira heima í efri deildar liði þeirra. Því var ljóst að um erfiðan leik yrði að ræða.
4. flokkur karla hefur á að skipa þremur liðum sem öll léku síðastliðinn laugardag og unnu þau öll, á heimavelli. A-liðið vann UMFA örugglega 27:14, B-liðið vann stóveldið FH 27:20 og loks vann B2-liðið UMFA 31:16. Góð helgi hjá 4. flokks strákum og stelpum. Hjá strákunum æfa rúmlega 30 strákar og hafa þeir verið í mikilli sókn í vetur.
4. flokkur kvenna vann Víking frá Reykjavík með 5 mörkum 21:16. Víkingsstúlkur voru betri í fyrri hálfeik og voru yfir 6:10 í háfleik. En okkar stelpur komu mun betur stemmdar í seinni hálfleikinn og sigruðu að lokum með 5 mörkum eins og áður sagði.
Selfoss – Getraunir bjóða öllum tippurum í dögurð (brunch) laugardaginn 20. desember. TÞ rifjar upp gamla takta af vellinum um leið og hann hrærir í pottunum. Dögurðurinn hefst kl. 11:30 í Tíbrá félagsheimili Umf. Selfoss.
Þann 1. desember fjölgaði í framkvæmdastjórn Umf. Selfoss. Þá eignaðist Sandra D. Gunnarsdóttir, ritari framkvæmdastjórnar, myndar strák. Litli kútur var 18,5 merkur og 55 cm. Óskum við Söndru til hamingju með drenginn. Að öllum líkindum er hér fæddur mikill félagsmálamaður eins og svipurinn ber með sér. Hann hefur án efa gott veganesti og ætti að vera vel að sér um málefni framkvæmdastjórnar, enda búinn að sitja flesta framkvæmdarstjórnarfundi með móður sinni á meðgöngunni.
Meistaraflokkur kvenna tekur nú þátt í deildarbikarnum í fyrsta sinn. Dregið var í riðla í dag og verður leikjaniðurröðun kynnt næstu daga. Selfoss leikur í C-deild, en deildirnar eru fjórar. Með Selfoss í riðli eru: ÍA, Þróttur Reykjavík og svo Hafnarfjarðaliðin FH og Haukar.
Búið er að draga í riðla í deildarbikarkeppni KSÍ. Selfyssingar sem leika í a-deild voru dregnir í riðil b og hefst keppnin þar í febrúar. Með Selfyssingum í riðli eru Keflavík, ÍR, HK, Grindavík og Fram. Leikjaniðurröðun verður birt á allra næstu dögum.
Á laugardag spiluðu strákarnir í 2. flokki við FH á útivelli og töpuðu illa. Leikurinn endaði 42 - 27. Staðan í hálfleik var 20 - 15. Það var aðeins í fyrri hálfleik sem strákarnir héldu í við FH. Þetta var 6 leikurinn á 13 dögum hjá þessum hópi og þeir voru hreinlega búnir á því í seinni hálfleik. Í liðið vantaði Halla, Gumma og Birki að þessu sinni og munar um minna.
Meistaraflokkur náði ekki að fylgja eftir góðum sigri á Stjörnunni í Bikarnum á mánudaginn þegar þeir mættu Aftureldingu á föstudagskvöldið. Leikurinn tapaðist 27 - 21 en staðan í hálfleik var 15 - 9. Selfossliðið var algjörlega bensínlaust bæði andlega og líkamlega í leiknum og voru aldrei þátttakendur í leiknum. Afturelding voru einir á vellinum og áttu því ekki erfitt með að landa auðveldum sigri að þessu sinni.
Laugardaginn 13. des var haldið beltapróf í Iðu og þreyttu 53 prófið, allt frá 10. geup og upp í 2. geup og allt þar á milli. Og stóðust allir prófið með sóma. Master Sigursteinn Snorrason gráðaði hópinn og þess má geta að þeir sem þreyttu blátt belti og hærra þurftu að brjóta spýtur og múrstein og voru þeir á aldrinum 10 til 17 ára.
Mikil aðsókn var á jólasýningar fimleikadeildar á laugardaginn. Fullt hús var á báðum sýningum og var mikil stemming í húsinu. Tæplega 400 börn sýndu listir sínar í gervum persóna úr Latabæ, en þema sýningarinnar í ár var "Jól í Latabæ". Þetta féll í góðan jarðveg og fannst krökkunum þetta mjög gaman og sýningin heppnaðist vel. Undanfarin tvö ár hefur deildin verið með þemasýningar og hefur markmiðið alltaf verið að toppa fyrri sýningar. Það er óhætt að segja að það hafi tekist. Eftir fyrri sýninguna var fimleikamaður ársins krýndur en það var að þessu sinni hin 16 ára Katrín Ösp Jónasdóttir.
Í frétt í Morgunblaðinu í dag er athyglisvert viðtal við Wolfgang Gütschow þýskan umboðsmann sem heldur því fram að íslenski skólinn í handbolta sé einn sá besti í heimi og að íslendingar ættu á næstu árum eftir að eignast enn fleiri atvinnumenn í handbolta. Selfoss var í vor verðlaunað fyrir besta barna- og unglingastarfs landsins og Selfoss er í toppbaráttu í nær öllum árgöngum. Selfoss mun því að öllu líkindum eignast þó nokkra atvinnumenn í handbolta á komandi árum.
Fimmtudagskvöldið 11. desember síðastliðinn hélt gamall Selfyssingur, Vésteinn Hafsteinsson, skemmtilegan fyrirlestur í sal FSu. Vésteinn hóf íþróttaferil sinn á Selfossi og lagði þar grunninn að glæstum ferli sem kringlukastari og síðar sem þjálfari. Hann keppti á mörgum Ólympíuleikum, en hefur nú síðari ár starfað em þjálfari og verið að skila hverjum kastaranum á fætur öðrum á verðlaunapall á stórmótum. Toppurinn var í sumar þegar Gerd Kanter, lærisveinn Vésteins, varð Ólýmpíumeistari í kringlukasti í Peking. Í lok fyrirlestrarins afhenti Vésteinn frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss hálfa milljón að gjöf. Umf. Selfoss þakkar honum þennan rausnarlega stuðning og tryggð við uppeldisfélag sitt.
Selfoss og Stjarnan áttust við í 8-liða úrslitum Eimskipsbikarsins í Vallaskóla s.l. mánudagskvöld. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann. Svo fór að Selfoss vann með einu marki 32:31 eftir að Birkir Fannar varði vítaskot á síðustu mínútu framlengingar. Selfoss er þar með komið í 4-liða úrslit bikarkeppninnar þar sem mótherjarnir verða Grótta, FH eða Valur. Frábær árangur.
Gamla myndin í þessari viku er af þeim Grími Hergeirssyni og Ólafi Einarssyni. Myndin var tekin af því tilefni að þeir félaga fengu að fara í heimsókn til þýska úrvalsdeildarliðsins Essen sem var á þeim tíma undir stjórn Jóhanns Inga Gunnarssonar. Alfreð Gíslason núverandi þjálfari Þýskalandsmeistara Kiel var leikmaðaur með Essen á þessum tíma.
Fyrsti leikur meistaraflokks Selfoss í knattspyrnu fór fram í Kórnum í Kópavogi á sunnudag. Þetta var fyrsti leikur Selfoss í nokkur ár, en meistaraflokkur kvenna á Selfossi var endurvakinn nú í haust.
Í kvöld kl. 19:30 mætir Selfoss Stjörnunni í 8-liða úrslitum Eimskipsbikars karla. Búast má við fjörugum og skemmtilegum leik. Þó að Stjarnan eigi að heita sterkari á pappírunum og spili í úrvalsdeild er gott að muna að í bikarleikjum getur allt gerst og ekkert lið getur bókað sigur. FH og Grótta eru komin í 4-liða úrslit eftir sigra á Haukum og Stjörnunni 2 í gær. Fram og Valur eigast einnig við í kvöld. Nú er um að gera að fjölmenna á pallana og láta í sér heyra. Góður stuðningur getur skipt sköpum. Áfram Selfoss!!!
Í gær töpuðu strákarnir í 2. flokki með 1 marki fyrir Akureyri í hörkuleik. Okkar menn höfðu frumkvæðið nánast allan leikinn og lentu ekki undir fyrr en á síðustu mínútunni. Akureyri er með frábært lið og því var svekkjandi að vera ekki fyrstir til vinna þá. Guðmundur Árni meiddist illa á upphafsmínútunum eftir blokkeringu línumanns Akureyrar og munaði gríðarlega um það í svona jöfnum leik. Tölfræði kemur vænatanlega eftir helgi.
Selfyssingar spiluðu æfingaleik við ÍA uppi á Skaga í gær laugardag. Leikið var í Skagahöllinni fyrir framan ca 100 manns. Selfoss stilltu upp 4-3-3 eða 4-5-1 leikkerfi og var byrjunarliðið skipað eftir töldum leikmönnum: Elli, Siggi Eyberg, Gulli Jóns, Agnar Bragi, Ólafur Tryggvi, Einar Ottó, Stefán Ragnar, Ingó Tóta, Ingþór, Jón Daði og Jón Guðbrands á toppnum. Ottó og Stefán Ragnar voru djúpir á miðjunni og Ingó fyrir framan þá. Ingþór og Jón Daði voru svo á sitthvorum kantinum.
HSK mótið verður haldið þann 11. desember í júdósalnum í Gagnheiðinni. Keppni 10 ára og yngri verður frá kl:16-18. Keppni 11 -15 ára verður kl:18:30 - 20. Keppni 16 ára og eldri hefst kl:20. Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum. Beltapróf (gráðun) verða haldin 16. desember á æfingatímum iðkenda.
Selfoss leikur æfingaleik gegn ÍA laugardaginn 6. desember kl. 10.30. Leikurinn fer fram í knattspyrnuhöllinni á Akranesi. Þessi lið munu leika saman í 1. deildinni á næsta keppnistímabili og má því búast við athyglisverðri rimmu. Eins og flestir vita er nýráðinn þjálfari Selfoss, Gunnlaugur Jónsson, fæddur og uppalinn á Akranesi og lék þar lengi framan af sínum ferli.
Guðmundur Þórarinsson, knattspyrnumaðurinn efnilegi frá Selfossi, hefur verið boðaður á æfingar hjá u-19 ára landsliði Íslands. Gummi Tóta, sem er 16 ára á þessu ári, spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik á síðasta tímabili. Annar efnilegur Selfyssingur, Stefán Ragnar Guðlaugsson, hefur einnig æft með u-19 ára landsliði Íslands að undanförnu.
Leik Selfoss og Stjörnunnar í 3. flokki sem fram átti að fara í kvöld hefur verið frestað til miðvikudagsins 10. desember nk. Það er okkur lítt að skapi hér á Selfossi. Á laugardaginn er hins vegar bikarleikur á Akureyri kl. 13.30 gegn Þór og verður þar eflaust hart barist. Þórsarar eru erfiðir heim að sækja og verður þetta því verðugt verkefni fyrir strákana. Þeir hafa nefnilega margt að sanna eftir frekar slakan leik gegn Fram á dögunum.
Laugardaginn síðastliðinn fengu strákarnir í 3. flokki góðan gest í heimsókn. Drengirnir voru búnir að nauða mikið í þjálfara sínum um að fá Venna Páer (Vernharð Þorleifsson) sem gestaþjálfara. Það vildu þeir þó vita að ekki yrði neitt um handbolta á æfingunni sem og vissu menn að þessi æfing yrði ekki auðveld. Sem og raunin varð.
Stelpurnar í 5. flokki kvenna unnu um helgina efstu deild í sínum árgangi og eru því bestar á landinu um þessar mundir. Þær sigruðu alla sína leiki mjög örugglega og það eru þessar stelpur sem verða kjarninn í framtíðarlið Selfoss í kvenna handbolta. Liðið er undir stjórn Halldórs Stefáns Haraldssonar sem hefur gert frábæra hluti með þetta lið. Strákarnir stóðu sig líka vel því þeir unnu 2. deild A og færast því upp í 1. deild.
Á þriðjudögum í vetur ætlum við að vera með gömlu mynd vikunar eins og í fyrra. Örn Grétarsson hjá Prentmet hefur lánað handknattleiksdeildinni fullt af myndum sem nú er búið að setja á tölutækt form. Fyrsta myndin er úr leik Selfoss og Fram í 1.deildinni 1992. Þarna á Einar Gunnar Sigurðsson línusendingu á Jón Þórir Jónsson sem nær til boltans þó stuttur sé. Gústaf Bjarnason fylgist spenntur með. Áhorfendapallanir troðfullir af áhorfendum.
Í gærkvöldi vann 2. flokkur karla góðan sigur á núverandi Íslandsmeisturum HK á útivelli, úrslitin urðu 28 - 37. HK hefur mörgum góðum leikmönnum á að skipa, en í lið þeirra vantaði í gær Ólaf Bjarka og Sveinbjörn, hvoru tveggja landsliðsmenn. Hjá Selfossi vantaði Guðmund Árna, Óskar Kúld og Baldur Þór sem er enn að jafna sig eftir aðgerð í haust.
Á laugardaginn unnu stelpurnar í 3. flokki Val 30 - 19 eftir að hafa leitt í hálfleik 13 - 12. Vörn og markvarsla var góð eins og ávallt og sóknin lagaðist mikið þegar á leikinn leið. Allir leikmenn liðsins náðu að leggja eitthvað framlag til leiksins. Er það mjög jákvætt upp á framhaldið að það séu alltaf fleiri og fleiri leikmenn sem þora að beita sér í leikjum.
Stuðningsmannaklúbbur knattspyrnudeildar Selfoss heldur aðalfund sinn þriðjudaginn 9. desember í Tíbrá kl 19.30. Farið verður yfir stöðuna og framtíðarhorfur ræddar. Allir fyrrverandi, núverandi og framtíðar félagar velkomnir í létt spjall, kaffi og smákökur.
HSK-mótið í meistaraflokki karla í handknattleik fór fram um síðustu helgi. Sex lið mættu til leiks, Selfoss A, Selfoss U, Árborg, Dímon, Baldur Flóahreppi og Gnúpverjar. Spilað var hraðmót 2x10 mín þar sem allir léku við alla. Mótið tókst mjög vel og er gaman að sjá að áhugi á handbolta er að aukast á félagssvæði HSK. Selfoss A stóð uppi sem sigurvegari, en þeir unnu alla sína leiki.
Við viljum benda sundiðkendum okkar á nýjar alþjóðlegar lyfjareglur WADA (World Anti-Doping Code) en samkvæmt þeim þurfa sundiðkendur og ábyrgðarmenn þeirra að senda inn umsókn til SSÍ og ÍSÍ ef iðkandi þarf að fá undanþágu frá listanum. Athygli skal vakin á því að iðkendum ber að sækja um undanþágu burtséð frá því hvort að þeir eru að taka þátt í verkefnum á vegum Sundsambands Íslands eða ekki.
Umsóknin nær til efna af bannlista WADA sem neytt er samkvæmt læknisráði.

