Æfingar hjá 2. flokki karla í knattspyrnu hefjast næsta laugardag kl. 10.30. Þjálfarinn Jón Pétur Róbertsson mun fyrir æfingu skrifa formlega undir samning við Selfoss um þjálfun 2. flokks næstu tvö árin og eiga strákarnir að mæta og vera með í myndatöku. Fyrir æfingu mun Jón Pétur fara yfir verkefni vetrarins og því mjög mikilvægt að allir mæti stundvíslega kl. 10.30 og muna að láta félagana vita af þessari fyrstu æfingu.
Í gærkvöldi var dregið í 32 liða úrslitum Eimskips bikarsins. Selfoss sendi tvö lið til leiks og fékk 1. deildar liðið útileik við Hauka 2. Selfoss 2 fékk heimaleik við HK 2. Af öðrum áhugaverðum viðureignum má nefna Valur-HK, Stjarnan-Víkingur, ÍR-Afturelding og ÍBV-Fram. Íslandsmeistarar Hauka sitja hjá í fyrstu umferð.
Sigurður Eyberg Guðlaugsson og Viðar Örn Kjartansson voru valdir til æfinga hjá u-19 ára liði Íslands í knattspyrnu. Æfingar fara fram á Tungubakkavelli í vikunni og um helgina. Framundan er keppni í undankeppni EM og fer riðill Íslands fram í Makedóníu. Áður hafa strákarnir spilað tvo leiki með liðinu, en það var í byrjun september gegn Norður-Írum. Þjálfari strákana er Kristinn R. Jónsson.
Íslenska landsliðið skipað leikmönnum 17 ára og yngri gerði í gær mánudag jafntefli við Noreg í riðlakeppni EM. Íslenska liðið lenti í neðst sæti á mótinu með aðeins eitt stig og skoruðu strákarnir aðeins tvö mörk. Annað markið í keppninni lagði Gummi Tóta upp. Nú eru verkefni u-17 ára landsliðsins búinn að sinni og öruggt að Gummi setur stefnuna á næsta landslið Íslands.
4. flokkur A-lið lék um helgina í milliriðli sínum um að komast áfram í 1. deild í keppni A-liða. Það tókst ekki þar sem liðið gerði jafntefli við Þrótt og tapaði illa fyrir FH. Liðið leikur því í 2. deild í vetur.
Æfingabúðir með Master Sigursteini Snorrasyni 5. dan og Master Cesari Rodriguez L. 5. dan verða haldnar í íþróttasalnum í Gagnheiði 4. og 5. október næstkomandi. Sjá dagskrá og þátttökutilkynningar hér að neðan. Allir velkomnir
Nýlega lauk farsælu keppnistímabili í frjálsum íþróttum hjá Meistaraflokki Umf. Selfoss. Meistaramót Íslands 15-22 ára fór fram í lok síðasta mánaðar á Sauðárkróki þar sem framúrskarandi árangur náðist hjá liðinu sem vakti mikla athygli.
Árangur Selfossliðsins í sumar er tvímælalaust sá besti sem Selfyssingar hafa náð í fótbolta. Segja má að næstum því hvert sem litið er gagnvart fótboltanum, þá voru met slegin og múrar brotnir, lið sem ekki hefur tekist að vinna lengi, voru lögð, aldrei hafa fleiri komið á völlinn en í sumar og aldrei hafa áhorfendur haft jafn hátt.
Íslenska landsliðið skipað leikmönnum yngri en 17 ára tapaði í dag gegn Úkraínu í viðureign þjóðana í undankdeppni EM. Úkraína vann 1-2 eftir að Íslendingar höfðu komist yfir í leiknum. Selfyssingurinn Guðmundur Þórarinsson var í byrjunarliðinu og átti mikinn þátt í eina marki Íslendinga í leiknum. Það kom eftir hörku aukaspyrnu frá Gumma sem markmaður Úkraínu varði ótrúlega. Keflvíkingurinn Sigurbergur Elíasson fylgdi vel á eftir og skoraði.
Guðmundur Þórarinsson er í byrjunarliði u-17 ára landsliðs Íslands sem mætir Ukraínu í dag. Leikurinn hefst kl 16.00 á KR-vellinum í Frostaskjóli. Gummi spilar á mið-miðjunni og er það hans besta staða en Luca þjálfari hefur einnig notað Gumma í bakvarðarstöðuna. Hér má sjá byrjunarlið Íslands.
Lúka Kostic landsliðsþjálfari U17 ára liðs karla valdi á mánudaginn 18 manna hóp sem leikur í undankeppni EM. Í hópnum er Selfyssingurinn knái Guðmundur Þórarinsson. Riðill Íslands verður leikinn hér á landi og er fyrsti leikur strákana er í dag, en þá mæta þeir liði Sviss á Akranesvelli. Leikurinn hefst klukkan 16:00.
Lokahóf fotbolti.net fór fram á veitingastaðnum Silfri á Hótel Borg í kvöld. Selfyssingar komu vel út úr verðlaunaúthlutun fotbolti.net, en sá fjölmiðill er virkasti upplýsingamiðill um knattspyrnu hér á landi. Viðar Örn Kjartansson var valinn efnilegastur í deildinni og Sævar Þór Gíslason var markakóngur deildarinnar. Auk þess voru þeir Henning Eyþór Jónasson, Sævar Þór Gíslason og Dusan Ivkovic allir í liði ársins. Þetta er val þjálfara og fyrirliða allra liða í deildinni og að sjálfsögðu mega þeir ekki velja leikmenn úr sínu liði.
Vefsetur fyrstudeildarfjélagsins hefur gert opinbert val sitt á liði ársins. Selfyssingar eiga þrjá fulltrúa í liði ársins, en það eru þeir Sævar Þór Gíslason, Henning Eyþór Jónasson og Dusan Ivkovic. Vefsetrið hefur fjallað um deild þeirra næst bestu á einlægan og faglegan hátt í allt sumar og er síða þeirra til fyrirmyndar.
Selfyssingar hafa ráðið til sín þjálfarann Jón Pétur Róbertsson fyrir 2. flokk liðsins. Jón Pétur er fæddur og uppalinn á Selfossi og fór þar í gegnum yngri flokka starfið. Hann hefur starfað við þjálfun og knattspyrnutengd verkefni síðan 1993.
Mikil aðsókn hefur verið í fimleikana nú á haustmánuðum og er starfið rétt að byrja að rúlla eins og það á að vera. Æft er í 25 hópum og auk þess tveimur íþróttaskólahópum. Hjá deildinni starfa 32 þjálfarar í vetur. Mikill hugur er í mannskapnum en skemmst er frá því að segja að meistarahópurinn skipaður stúlkum 16 ára og eldri heldur utan til keppni á evrópumóti eftir fjórar vikur. Mótið er haldið í Gehnt í Belgíu dagana 24. og 25. október.
Á haustin er vani að fara yfir knattspyrnusumarið sem nýliðið er. Fotbolti.net mun á morgun kl 17.00 birta lið ársins og veita knattspyrnutengd verðlaun og er um að gera fyrir áhugasama að fylgjast með því og sjá hvort Selfyssingar fá einhver verðlaun þar. Selfyssingar taka að sjálfsögðu saman spilaða leiki yfir tímabilið og ætlum við að birta lista yfir þá sem spiluðu flesta leikina. Eins er hér að neðan listi yfir flesta leiki spilaða fyrir Selfoss.
Lokahóf knattspyrnudeildar Umf. Selfoss var haldið laugardaginn 20. sept eða strax eftir sigurinn á ÍBV. Lokahófið tókst virkilega vel, hátt 300 manns voru í mat og eitthvað af fólk bættist við á ballið með Ingó og veðurguðunum. Mörg mjög góð skemmtiatriði voru á slúttinu og ég held það sé ekki á neinn hallað þegar minnst er sérstaklega á vídeósýningu frá Dóra Bjöss, en hún var frábær eins og hans er von og visa. Á slúttinu eru veitt margvísleg verðlaun og verða þeirra hélstu getið hér að neðan.
Selfyssingar efsta liðinu, ÍBV, í lokaleik 1. deildar í knattspyrnu á laugardaginn. Selfyssingar þurftu að vinna og jafnframt að treysta á að Haukar tækju stig af Stjörnunni. Selfoss vann leikinn sannfærandi 3-1 en því miður voru úrslit úr hinum leiknum ekki hagstæð og leika Selfyssingar því í deild hina næst bestu að ári. Selfyssingar voru mun betri í leiknum, Sævar Þór skoraði tvö mörk og Viðar Örn eitt mark. Allt liðið var að spila vel og er erfit að taka einhverja einstaka leikmenn út.
Selfyssingarnir Birki Fannar Bragason markmaður og Ramunas Mikalonis hægri skytta voru valdir í lið fyrstu umferðar á handbolti.is. Fín viðurkenning fyrir þessa leikmenn sem báðir áttu stórleik í leiknum gegn Gróttu á föstudaginn. Einnig er Sebastían Alexandersson valinn sem þjálfari fyrstu umferðar.
Um helgina fór fram undankeppni 3.flokks fyrir komandi tímabil. 91-liðið lék á Selfossi í riðli með KA, Gróttu, Þrótti og FH-2. 92-liðið lék í Strandgötu gegn Haukum, HK, Þór og Fjölni. 91-liðið vann alla sína leiki örugglega og er því komið í fyrstu deild. 92-liðið tapaði tveimur leikjum, gerði eitt jafntefli og vann einn. Liðið leikur í milliriðlum um næstu helgi.
Þann 15. september s.l. tók gildi vetraropnun í Sundhöll Selfoss. Sundhöllin er nú opin mánudaga – föstudaga 6:45 – 21:15 og laugardaga og sunnudaga 9:00 – 18:00. Athugið: Sölu er hætt 15 mínútum fyrir auglýstan lokunartíma og mælst er til þess að gestir hafi yfirgefið staðinn 15 mínútum eftir auglýstan lokunartíma.
Keppni í 1. deild karla í handknattleik, næst efstu deild, hefst í kvöld með þremur leikjum sem allir hefjast klukkan 19.30. ÍR tekur á móti nýliðum ÍBV í íþróttahúsinu Austurbergi, Afturelding sækir Þrótt heim í Laugardalshöll og Grótta fær Selfoss í heimsókn í íþróttamiðstöðina á Seltjarnarnesi.
Um leið og glæsilegu sumri hjá knattspyrnudeildinni lýkur hefst vetrarstarf Selfoss - Getrauna. Í getraunastarfinu hjá Selfoss sameinast stuðningsmenn í skemmtilegu félagsstarfi. Hvetjum við þig til að ganga til liðs við okkur og taka þátt en getraunastarf er fyrir alla óháð kyni, aldri og búsetu. Hægt er að skrá sig til leiks í félagsheimili okkar í Tíbrá, þar sem við verðum með opið hús frá kl. 11:00 - 13:00 alla laugardaga í vetur. Þar er heitt á könnunni og bakkelsi á boðstólum frá Guðnabakaríi.
Sebastian Alexandersson, þjálfari meistaraflokks handknattleiksdeildar sem spáð er efsta sæti í 1. deild karla, var í athyglisverðu viðtali á handbolti.is um veturinn framundan. Þar var hann meðal annars spurður um möguleika liðsins í vetur, væntingar og framtíðarhorfur.
Strákarnir í 4.flokki karla B-liða fæddir 1994 stóðu sig vel í undankeppninni fyrir deildarskiptingu íslandsmótsins í handbolta. Þeir léku í Hafnarfirði og sigruðu alla sína leiki með yfirburðum og verða í 1.deild í vetur. Drengirnir fæddir 1993 eða 4.flokkur A-lið fóru norður á Akureyri og léku tvo leiki gegn sterkum liðum KA og Gróttu og töpuðu báðum en komast þó í milliriðil og eiga enn möguleika á að verða í 1.deild.
Selfyssingar léku við Fjarðarbyggð á föstudag og fór leikurinn ekki alveg eins og til var ætlast. Selfyssingar töpuð 2-1 í ansi skrautlegum leik, þar sem dómaratríóið var í aðalhlutverki. Þó svo að þeir hafi nú ekki verið ástæða þess að leikurinn tapaðist, þá var það frekar röð atvika sem klikkuðu.
Uppskeruhátíð yngri flokka hjá knattspyrnudeild Umf. Selfoss verður haldin sunnudaginn 14. september kl. 16:00 í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Áralöng hefð er fyrir slúttinu og hefur verið veitt viðurkenning fyrir besta leikmann, framför og ástundun í næstum fjóra áratugi. Í fyrra varð sú nýbreytni að farið var að velja besta varnar-, miðju- og sóknarmann. Ásamt því er veitt verðlaun fyrir framför og ástundun. Þessi breyting fellur vel að stefnu deildarinnar um uppbyggilega og árangurstengd markmið félagsins.
Katrín Ýr Friðgeirsdóttir hefur verið valin í U-19 ára landslið kvenna. Þetta er mikil heiður fyrir þessa duglegu og hæfileikaríku stelpu og örugglega byrjun á einhverju meira fyrir hana. Katrín hefur verið samviskusöm og tekið framförum upp alla yngri flokka og er nú að uppskera. Hún á einnig eftir að verða ein af lykilleikmönnum meistaraflokks Selfoss sem stofnaður var fyrr í vikunni.
Sundsamband Íslands mun standa fyrir nokkrum dómaranámskeiðum nú á haustmánuðum. Námskeiðin verða sem hér segir:
Ísafjörður – Bolungavík 19. til 21. september
Vestmannaeyjar Tímasetning auglýst síðar
Akureyri 26. til 28. september
Reykjavík 8. til 12. október
Hafnarfjörður 12. til 16. nóvember
Landslið Íslands skipað strákum yngri en 19 ára lék annan leik sinn á dögunum gegn Norður Írum. Seinni leikurinn tapaðist, eins og sá fyrri 2-0. Selfyssingarnir Sigurður Eyberg Guðlaugsson og Viðar Kjartansson spiluðu báðir í leiknum.
Þeir Guðmundur Þórarinnsson og Jón Daði Böðvarsson hafa verið valdir til æfinga hjá U-17 ára landsliði Íslands í knattspyrnu. Gummi lék með landslinu á Norðurlandamótinu sem fram fór í sumar. Jón Daði er nýkominn í hópinn eftir miklar framfarir í sumar.
Selfyssingar unnu góðan 3-1 sigur á KS-Leiftri í síðustu umferð og komu sér þar með á sigurbraut á nýjan leik. Dusan, Kristján Óli og Sævar skoruðu mörkin og var þetta fyrsta mark Kristjáns fyrir Selfoss. Næsti leikur er gegn Fjarðabyggð. Átti hann að vera á grasvellinum á Eskifirði, en búið er að færa hann á gervigras á Norðfirði. Margir okkar bestu leikir í sumar hafa verið á gervigrasi og ólíklegt að þetta hafi annað en jákvæð áhrif á leikmenn. Leikurinn er föstudaginn 12. sept og hefst kl. 18.00.
Senn líður að lokahófi meistaraflokks karla, 2. flokks karla og kvenna og öðru knattspyrnuáhugafólki. Hófið verður haldið á Hótel Selfossi laugardaginn 20. sept. Lokahófið hefur verið auglýst í bæjarblöðunum og eins hér á heimasíðu ungmennafélagsins. Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig en frestur rennur út á fimmtudaginn(11.sept.) svo nú er um að gera að drífa sig að skrá sig!
Brúarhlaup Selfoss fór fram í 18. skipti, laugardaginn 6.september sl. Hlaupið fór fram við kjöraðstæður fyrir hlaupara, milt var í veðri en sólarlaust. Aukning var í þátttöku frá fyrra ári og hlupu og hjóluðu 550 manns í ár. Það hefur löngu verið viðurkennt meðal hlaupara sem hlaupa lengri vegalengdir að brautin í Brúarhlaupi Selfoss sé með "hröðustu" brautum landsins, vegna þess hversu flöt hún er.
Rúmlega 40 manns mættu á stofnfund meistaraflokks kvenna í knattspyrnu sem haldinn var í kvöld. Mætingin var framar björtustu vonum stjórnar og undirbúningshóp um eflingu kvennaknattspyrnu á Selfossi.
Viðar Örn Kjartansson og Sigurður Eyberg Guðlaugsson spiluðu í dag með U-19 ára liði Íslands. Leikurinn var við Norður-Íra, ytra. Íslendingar töpuðu 2-0 þrátt fyrir jafnan leik. Liðin spila annan leik við írsku strákana á miðvikudag og ætla strákarnir sér sigur í þeim leik. Fotbolti.net fjallar um leikinn hér og er með skemmtilega mynd af strákunum í vínrauðu ásamt Henning Eyþóri Jónassyni sem er einmitt fyrverandi U-21 árs landsliðsmaður.
Uppskeruhátíð yngri flokka hjá knattspyrnudeild Umf. Selfoss verður haldin sunnudaginn 14. september kl. 16:00 í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands. Áralöng hefð er fyrir slúttinu og hafa verið veitt viðurkenningar fyrir besta leikmann, framför og ástundun í næstum fjóra áratugi. Í fyrra varð sú nýbreytni að farið var að velja besta varnar-, miðju- og sóknarmann. Ásamt því er veitt verðlaun fyrir framför og ástundun. Þessi breyting fellur vel að stefnu deildarinnar um uppbyggilega og árangurstengd markmið félagsins.
Fullt af nýjum myndum síðan í sumar eru komnar inn á heimasíðuna. Þetta var sannkallað fótboltasumar þar sem fullt af börnum skráðu sig á fjölbreytt námskeið deildarinnar. Allt að 300 börn voru með og var sumarið ógleymanlegt, gott veður, spilaður fótbolti, grillpartý voru haldin, leynigestir komu í heimsókn og fleira og fleira. Takk fyrir sumarið krakkar, kveðja frá þjálfurum. Á forsíðu umfs.is er linkur til vinstri sem heitir myndagallarí. Þar má skoða myndir úr fótboltaskólanum. Fleiri myndir eru væntanlegar.
Stelpurnar í 6. flokki kvenna spiluðu á dögunum til úrslita á Hnátumóti KSÍ. Stelpurnar höfnuðu í 4. sæti á mótinu sem er mjög góður árangur. Hnátumótið er einskonar Íslandsmót þar sem flest öll lið senda lið til keppni. Fyrr í sumar unnu stelpurnar sinn riðil en hann var einmitt spilaður hér á Selfossi í blíðskaparveðri.
Æfingar Júdodeildar Umf. Selfoss hófust 2. september. Strax á fyrsta degi kom mikill fjöldi barna sem hafði áhuga á að æfa júdo. Æfingaraðstaðan í Gagnheiðinni varð full út úr dyrum og á næstu æfingum líka. Til að mæta þessum mikla áhuga hefur verið ákveðið að fjölga æfingum hjá yngstu iðkendunum.
Af þessu má ljóst vera að æfingaraðstaðan í Gagnheiði 3 er hamlandi fyrir framgang íþróttarinnar á Selfossi. Sem betur fer stendur það til bóta þegar ný bygging rýs við Sundhöll Selfoss.
Stelpunar í 4. flokk Selfoss í knattspyrnu léku tvo leiki í úrslitakeppni Íslandsmótsins um helgina. Þær unnu annan leikinn, en töpuðu hinum. Það þýðir að þær spila um 1. eða 3. sæti um Íslandsmeistaratitilinn, en verða að bíða fram til kl 16.00 á sunnudag til að fá úr því skorið um hvort sætið þær spila. Þetta er auðvitað frábær árangur hjá stelpunum og þarf ekki að koma neinum á óvart sem fylgst hafa með þeim í sumar.
Strákarnir í 2. flokki karla í knattspyrnu tóku á móti Haukum í næst síðustu umferð Íslandsmótsins í gær á Selfossvelli. Fyrir leikinn voru Haukar í 7 sæti þremur stigum á undan Selfoss og ljóst að með sigri Selfyssinga hefðu liðin sætaskipti. Það gekk eftir og Selfoss sigraði 3-2 í hörku leik.
Æfingar handknattleiksdeildar eru nú komnar í fullan gang, iðkendum hefur fjölgað mikið í haust og er það eflaust góðu gengi íslenska handboltalandsliðsins að þakka. Sannkallað handboltaæði hefur gripið um sig og krakkar leika sér í handbolta um alla ganga í skólunum. Hinsvegar er engin útihandboltavöllur á Selfossi og er það verr. Vel heppnað grunnskólamót var í vikunni og voru þar þó nokkrir sem stigu sín fyrstu spor á handboltavellinum. Handknattleiksdeild hefur reyndar aðeins færri æfingatíma til umráða í vetur vegna mikilla þrengsla í íþróttahúsum bæjarins. Það er nokkuð ljóst að það þarf að byggja nýtt íþróttahús á næstu árum og spurning um hvort það eigi ekki að fara í forgang í uppbyggingu íþróttamannvirkja. Æfingatímar hafa verið auglýstir í staðarblöðum og hanga upp í íþróttahúsinu í Vallaskóla. Æfingatímar eru sem hér segir :
Selfyssingar færðust skrefi nær úrvalsdeildarsæti í gær er þeir unnu KS-Leiftur 3-1. Með þessum sigri sendu þeir KS/Leiftur niður í 2. deild. Selfyssingar náðu sér ekki á strik í fyrri hálfleik og var staðan 1-1 í hálfleik. Í seinni hálfleik stóðu þeir sig betur og skoruðu þá tvö mörk. Nú fara leikmenn að byggja ofan á seinni hálfleik og taka það góða úr honum með sér austur á Eskifjörð, en þar eiga Selfyssingar að leika sinn næst síðasta leik, föstudaginn 12. september kl 18.00. Umfjöllun hér að neðan er birt með góðfúslegu leyfi fotbolti.net, en einkunargjöf leikmanna er vísindaleg samantekt, áhorfenda af handarhófi.
Slúttnefndin mun byrja að selja miða á "slúttið" á leiknum í kvöld. Frábær matseðill, flott skemmtidagskrá og veislustjórinn Einar Bárðarson sér til þess að kvöldið verður ógleymanlegt. Ekki missa af slúttinu - tryggðu þér miða strax í kvöld.
Stelpurnar í 4. flokki Selfoss í knattspyrnu halda áfram sigurgöngu sinni, en þær hafa sigrað alla sína leiki í sumar. Stelpurnar sigruðu HK í kvöld 3-2 og unnu þar með riðil sinn sannfærandi. Gumma skoraði þrennu í leiknum. Annars voru allar stelpurnar að spila vel. Virkilega skapandi og skemmtilegur leikur hjá liðinu.
Næsti leikur Selfoss í 1. deild er gegn KS/Leiftri, en það er sameinað lið Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Leikurinn verður á Selfossvelli og byrjar kl 18.00 miðvikudaginn 3. September. Þetta er næst síðasti leikur Selfoss á heimavelli og er um að gera að fjölmenna og styðja við bakið á liðinu.
Fimmtudaginn 4. september fer fram Grunnskólamót í handbolta. Leikið verður með minni-bolta reglum; þ.e. lítill völlur, mjúkur bolti, færri reglur og allir geta tekið þátt. Allir sem vilja mega koma og taka þátt. Skipt verður í lið á staðnum en reynt að keppa eftir bekkjardeildum. Allir þjálfarar handknattleiksdeildar verða á staðnum og athuga hvort framtíðar landsliðsmenn leynist ekki í hópnum.
Strákarnir í 3. Flokk fóru vestur á Snæfellsnes í gær og leku þar við sameinað lið Víking Ó og Stykkishólm. Strákarnir urðu að vinna leikinn til að tryggja sér í úrslit og eins var það örugglega ekki að skemma fyrir þeim að fá að hefna fyrir tapið hjá meistaraflokk tveimur dögum áður. En Selfyssingar unnu leikinn stórt 1-6 og leku á köflum mjög góða knattspyrnu.
Selfyssingar fóru í Ólafsvík föstudaginn 29. ágúst s.l. ásamt um 80 manna stuðningssveit. Skemmst er frá því að segja að Selfyssingar töpuðu 4-3 við hörmulegar fótboltaaðstæður. Þess má geta að Ólsarar reyndu allan föstudaginn að fá leiknum frestað vegan vallaraðstæðna, en KSÍ leyfði það ekki.
Knattspyrnuslúttið sem er lokahóf meistaraflokks karla, og 2. flokks karla og kvenna verður haldið á Hótel Selfoss laugardaginn 20. september. Í fyrra mættu yfir 220 manns og er búist við álíka mörgum í ár. Slúttið verður glæsilegt og borgar sig að ná sér í miða tímanlega.

