Í gær mánudag opnaði flugeldasala knattspyrnudeildar en hún er staðsett er við íþróttavöllinn, Engjavegi 50, Selfossi. Í ár erum við með fullt af nýjum rakettum og tertum sem voru reynsluprófaðar í fyrra og vöktu mikla athygli hjá þeim sem fengu að skjóta. Við þurfum ekki að taka það fram að við ætlum að vera ódýrastir eins og í fyrra. Við viljum sérstaklega taka það fram að boðið verður upp á kaffi og með því, fyrir gesti og gangandi, á meðan flugeldasalan stendur yfir.
Hin árlega uppskeruhátíð Íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar verður haldin í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands þriðjudaginn 29. des. kl. 20:00. Þar verða afhentir styrkir úr Afreks- og styrktarsjóðum Árborgar og íþróttafélaganna, þ.e. Umf Selfoss, Íþf. Suðra og Íþr. FSu. Hvatningarverðlaun verða veitt, afhentir styrkir fyrir afburðaárangur og jafnframt tilkynnt um kjör íþróttakonu og íþróttakarls árborgar 2009. Boðið verður upp á skemmtiatriði og kaffiveitingar. Allir eru velkomnir.
Miðvikudaginn 30. desember verður Áramótamót frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss haldið í íþróttahúsi Vallaskóla og hefst keppnin klukkan 18. Keppt verður í kúluvarpi, langstökki án atrennu, þrístökki án atrennu, hástökki án atrennu og hástökki í flokkum karla og kvenna. Einnig verður keppt í kúluvarpi pilta og telpna. Skráning fer fram á staðnum.
Árum saman hefur Ungmennafélag Selfoss sinnt ákveðnum þjónustustörfum fyrir jólasveinana þrettán sem búa í Ingólfsfjalli. Á aðfangadag hafa jólasveinarnir boðist til að fara með jólapakka heim til krakka á Selfossi. Til að nýta sér þá þjónustu þarf að koma pökkunum í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, Engjavegi 50 (við íþróttavöllinn), á Þorláksmessu 23. des. kl. 18:00 - 21:00. Hver sending kostar kr. 1.000 á fjölskyldu. Sveinarnir koma síðan í heimsókn kl. 10-13 á aðfangadag
Knattspyrnudeild Selfoss ætlar á Þorláksmessu að halda skötuveislu í Tíbrá félagsheimili UMFS við Engjaveg á Selfossi. Í boði verður veglegt skötuhlaðborð: skata, saltfiskur, síld og allt tilheyrandi meðlæti. Verð fyrir hlaðborðið er aðeins 2.200 krónur. Þetta er að sjálfsögðu opið öllum, hvort sem fótboltaáhugi er fyrir hendi eða ekki, en munið að um takmarkað sætaframborð að ræða og því um að gera að panta strax. Húsið opnar kl. 11.15 og verður borinn fram matur til kl. 14.00. Miðapantanir eru í síma: 897-7697 Sveinbjörn og 699-0660 Tómas. Einnig er hægt að senda inn pantanir á netfangið tommi@talnet.is
Selfoss er komið í 8 liða úrslit í Bikarkeppninni í 2. flooks karla með naumum sigri á Fram 29-30 í gær. Andri Már Sveinsson skoraði sigurmarkið 9 sekúndum fyrir leikslok.
Heimasíðan ákvað að taka saman nokkur atriði um stöðuna hjá meistaraflokki nú um áramót. Mótið er nú tæplega hálfnað og hlé er á mótinu til 22. janúar, en þá byrjar fjörið aftur með heimaleik við ÍBV sem er í 3. sæti deildarinnar.
Knattspyrnudeild Umf. Selfoss er um þessar mundir að safna liðsmyndum af öllum flokkum frá nýliðnu sumri. Ef foreldrar eða aðrir eiga myndir af liðum þá má endilega senda þær á netfangið tommi@talnet.is og eins láta fylgja með hvaða lið þetta er t.d „5 fl. karla b-lið“
Nú hefur verið dregið í riðla í Deildarbikar KSÍ 2010. Selfyssingar eru í skemmtilegum riðli með úrvalsdeildarfélögunum FH, Fram og Val og svo 1. deildarfélögunum Fjölni, KA, Leikni og Víkingi Reykjavík.
Íslensk jólatré af Suðurlandi verða til sölu helgina 19. og 20. desember á íþróttavellinum við Engjaveg. Opið laugardag og sunnudag kl. 10-18. Komum og kaupum íslensk tré og styðjum í leiðinni 4. fl. kenna í handbolta, sem er á leið á Partille Cup í Svíþjóð næsta sumar. Veljum íslenskt Stafafura, blágreni og rauðgreni.
Bæði 3. flokks liðin hafa leikið að undanförnu sem og yngra lið 2. flokks. Sigur náðist í tveimur leikjum af þremur. 92 lið Selfoss tapaði gegn Fram, 93 vann lið Þróttar og svo vann 91 (2. fl) lið Aftureldingar.
Selfoss heimsótti Keflavík í dag. Leikið var í Reykjaneshöllinni og endaði leikurinn 2-2, eftir að Selfoss hafði leitt leikinn 0-2. Það voru þeir Arilíus og Árni Páll sem skoruð mörk Selfoss. Átta leikmenn Selfoss voru meiddir í leiknum og voru þeir því aðeins með 14 manna hóp, en eins og flestir vita vann yngra liðið Árborg í gær og því erfiðara að nota þá leikmenn aftur. En þeir þrír sem á bekknum voru spiluðu reyndar allir deginum áður
Í kvöld sóttu okkar menn Víkinga heim og unnu sigur 30-32. Staðan í hálfleik var 14-17 fyrir Selfoss. Sigurinn setur okkar menn á toppinn í jólafríinu og það sem skiptir meira máli er að Selfoss hefur unnið báða leikina við þetta sterka Víkingslið.
Jólasýning Fimleikadeildar Umf. Selfoss verður laugardaginn 12. desember í íþróttahúsi Vallaskóla. Sýningarnar verða tvær eins og undanfarin ár og hefst fyrri sýningin kl. 10:00 og sú seinni klukkan 12:30. Þetta árið ber sýningin nafnið "Jól í Strumpalandi". Á milli sýninga verður kaffihúsastemming í anddyri Vallaskóla þar sem hægt verður að gæða sér á súpu og öðru góðgæti. Undirbúningur er búinn að standa yfir í um það b
il þrjár vikur og er allt að taka á sig rétta mynd. Undanfarin ár hefur stúkan verið full á báðum sýningum og vonum við að svo verði einnig í ár. Aðgangseyrir verður kr. 500 fyrir 16 ára og eldri og gildir miðinn á báðar sýningarnar. Forsala miða verður föstudaginn 11. des í íþróttahúsi Vallaskóla frá kl. 16-19, við bendum á að röð gæti myndast á sjálfan sýningardaginn. Hlökkum til að sjá ykkur!
Fyrir hönd Fimleikadeildar Umf. Selfoss. Æðstistrumpur
Unglingamót HSK í sundi fór fram þann 5. desember í Sundhöll Selfoss. Sunddeild Umf. Selfoss vann mótið annað árið í röð með 160 stigum, en næst kom Sunddeild Hamars með 108 stig. Sunddeildin sendi 13 sundmenn á aldrinum 11-14 ára til leiks, en hver sundmaður má taka þátt í þremur greinum sem geta gefið stig sé hann í einu af 6 fyrstu sætunum. Fyrsta sæti gefur 6 stig, annað sæti 5 stig og þannig koll af kolli.
Íslensk knattspyrna 2009 eftir Víði Sigurðsson íþróttafréttamann er nú komin út. Þetta er 29. bókin í samnefndum bókaflokki sem hóf göngu sína árið 1981. Bókin í ár er sérstaklega eiguleg fyrir Selfyssinga, því eðlilega er mikið fjallað um þá í bókinni. En það er bókaútgáfan Tindur gefur bókina út.
B-lið 4. flokks karla lék gegn Stjörnunni í gær. Stjarnan er með hörkulið og vann m.a. A-lið ÍR í bikarnum. Selfyssingar léku gríðarlega vel lengst af í leiknum og var leikurinn í járnum löngum stundum. Í lokin hins vegar sigu Stjörnumenn nokkuð fram úr og náðu að sigra.
4. flokkur Selfoss mætti Gróttu í bikar í gærkvöldi. Leikurinn var afar sérkennilegur og er óhætt að segja að lítið sem ekkert hafi fallið með Selfossi í leiknum. Eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik vann Grótta 28-21 sigur. Selfyssingar reyndu í leiknum en ólán þeirra var algjört þennan daginn og sem dæmi um það þá átti Selfoss heil 12 skot í annað hvort stöng eða slá í leiknum.
Það var sannkallaður sunnlendingaslagur sem fram fór í knattspyrnuhöllinni á Akranesi á fimmtudaginn. Þar mættust úrvalsdeildarlið Selfoss og ÍBV í nokkuð góðum leik miðað við árstíma og æfingavikuna sem var að líða hjá Selfyssingum. ÍBV vann leikinn 1-0 og var það nokkuð sanngjarnt.
Fimmtudaginn 3. des. hélt handknattleiksdeild Umf. Selfoss jólahlaðborð fyrir iðkendur í 3. flokki og upp úr. Auk þeirra mættu stjórn handknattleiksdeildar ásamt helstu styrktaraðilum handboltaakademíunnar. Alls voru um 75 manns sem gæddu sér að glæsilegum kræsingunum í Tíbrá.
Knattspyrnudeild Umf. Selfoss fékk í gær heiðursverðlaun Tinds –Íslensk knattspyrna sem afhent var í höfuðstöðvum KSÍ í tilefni útgáfu bókarinnar Íslensk knattspyrna 2009. Árið 2008 var það kvennalandsliðið í knattspyrnu sem fékk þessi sömu verðlaun fyrir að tryggja sér þátttöku í lokakeppni Evrópumótsins sem fram fór í Finnlandi. Við sama tilefni fékk Guðmundur Benediktsson, þjálfari Selfoss, einnig sérstök verðlaun.
Þeir Guðmundur Þórarinsson og Jón Daði Böðvarsson munu æfa með U-19 ára landsliði Íslands um helgina, en strákarnir hafa æft með liðinu í haust. Gummi hefur áður keppt með liðinu, en þá var hann á yngra ári. Báðir spiluðu þeir svo með U-18 ára landsliðinu fyrr á árinu. Reynir Óskarsson æfir líka með sínu landsliði um helgina. Hann er í U17 ára landsliðinu, en áður æfði Reynir með U-16 ára landsliðinu.
Í dag þriðjudaginn 1. des mun unglingaráð knattspyrnudeildar taka niður pantanir á Selfoss-göllum, vínrauðir og svartir frá Hummel. Við verðum í Tíbrá frá kl. 16:00-19:00 í dag. Hægt er að máta galla á staðnum og gera pöntun. Gallarnir koma í eftirfarandi stærðum og eru verðin eftir þeim: Barnagallar 4-6-8-10-12-14 kosta 6.990 kr., (7.790 kr. með merkingu). Fullorðinsgallar S-M-L-XL-XXL kosta 8.990 kr., (9.790 kr. með merkingu). Stjórn unglingaráðs knattspyrnudeildar Selfoss
Strákarnir í 4. flokki Selfoss fór í gær ferð til Akureyrar og léku bæði A og B liðin gegn KA. Því miður var þetta ekki ferð til fjár því bæði lið töpuðu í æsispennandi leikjum. Möguleiki var í báðum leikjum að ná í það minnsta jafntefli og jafnvel sigri, en því miður fór ekki svo. B-liðið spilaði sinn besta leik í vetur og er það jákvætt. A-liðið hins vegar var langt frá sínu besta.
Fimm ungir og efnilegir leikmenn skrifuðu um helgina undir KSÍ samning við Selfoss. Selfyssingar hafa verið óhræddir við að gefa sínum ungu og efnilegu strákum möguleika með meistaraflokki og verður þess örugglega ekki langt að bíða að einhverjir af þessum strákum fái sín fyrstu tækifæri þar.
Arilíus Marteinsson framlengdi samning sinn við Selfoss um helgina. Samningur hans var útrunninn og framlengdi Alli til tveggja ára. Arilíus sem er 25 ára hefur leikið allan sinn meistaraflokksferil með Selfossi og í fyrra lék hann alla 22 leiki liðsins í deildinni og skoraði í þeim 5 mörk. Alls hefur Arilíus leikið 174 leiki fyrir Selfoss í deild og bikar og skorað í þeim 54 mörk.
Í gær sunnudag tók A lið 2. flokks á móti FH. Gestirnir mættu frískir en það entist bara fram að hálfleik en þá var staðan 18-14 fyrir Selfoss. Í seinni hálfleik settu okkar með í 5. gír og unnu sanngjarnan sigur 42-25.
Selfosskrakkar gerðu það gott á Íslandsmótinu í almennum fimleikum sem lauk á Selfossi sunnudaginn 29. nóv. Þau hömpuðu sjö Íslandsmeistaratitlum og unnu yfir 50 verðlaunasæti. Á laugardeginum fór fram seinni hluti Íslandsmótsins í almennum fimleikum, en á sunnudeginum var keppt í þrepum 1-6.
Í kvöld tóku okkar menn á móti Fjölni í 1. deildinni í handbolta. Það var ljóst frá upphafi í hvað stefndi því að heimamenn settu strax í fluggírinn og héldu honum allan tímann. Staðan í hálfleik var orðin 18-6 og leikurinn endaði síðan með öruggum 19 marka sigri Selfyssinga, 36-17.
Sunddeild Umf. Selfoss hyggst hefja nýstárlega fjáröflun sem felst í því að safna gömlum fartölvum og GSM símum sem ekki eru lengur í notkun á heimilum og hjá fyrirtækjum á Selfossi. Deildin fær greitt fyrir þau tæki sem safnast en þau eru flutt út í endurnýtingu.
Fyrirtækið Græn framtíð annast flutning á tækjunum til viðurkenndra endurvinnslufyrirtækja erlendis sem tryggja endurnýtingu á þeim með ábyrgum hætti. Heilir símar og fartölvur verða nýttir áfram í þróunarlöndum og íhlutir úr ónýtum tækjum verða nýttir í annan búnað. Þá verður spilliefnum úr þeim eytt með löglegum hætti.
Hádegisfundur ÍSÍ verður haldinn föstudagurinn 27. nóv. Jón Sigfússon framkvæmdastjóri og Álfgeir Logi Kristjánsson rannsóknarstjóri hjá Rannsóknum og Greiningu við HR munu fara yfir rannsóknina Ungt fólk 2009 og rýna í þá þætti sem snúa að íþróttum og/eða íþróttaiðkun. Fyrirlesturinn verður í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal frá kl. 12.00-13.00. Hann er ókeypis og öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.
Liðsmenn meistaraflokks Umf. Selfoss í handbolta ásamt stuðningsmönnum stóðu fyrir gerð auglýsingarskiltis fyrir heimaleiki liðsins í vetur. Verður skiltið notar til að minna á leiki liðsins og verður staðsett á Austurvegi á leikdag. Skiltið var gert með stuðningi BYKO og eru plöturnar með nöfnum keppnisliðanna framleiddar í númeragerð fangelsisins á Litla Hrauni. Fagform skiltagerð á Selfossi annaðist merkingu þess. Vilja liðsmenn meistaraflokks og stuðningsmenn þakka ofangreindum aðilum stuðninginn.
HSK mótið í 4. flokki í handknattleik fór fram í Vallaskóla í dag. Fjögur lið kepptu þar, tvö frá Selfossi auk þess sem Biskupstungur og Dímon frá Hvolsvelli léku á mótinu. Mótið gekk verulega vel og stóð Selfoss 1 að lokum uppi sem sigurvegari með fullt hús stiga (6 stig). Mikil barátta var milli hinna liðanna um sæti. Tveir af þremur leikjum þeirra lauk með jafntefli og náði Selfoss 2 að vinna Dímon með einu marki og tryggja sér þannig 2. sætið með 3 stig. Biskupstungur enduðu í 3. sæti með 2 stig og að lokum varð Dímon í 4. sæti með 1 stig.
Selfyssingar munu taka á móti nágrönnum sínum í Fylki í fyrsta leik liðsins í efstu deild, en dregið var í gær. Í annarri umferð halda Selfyssingar í Vesturbæinn og heimsækja KR. Það má búast við því að það verði gaman fyrir Gumma Ben þjálfara Selfoss að koma í Vesturbæinn, því þar gerði hann garðinn frægan. Lokaleikur Íslandsmótsins verður svo gegn Grindavík á Selfossi.
Reynir Óskarsson var valin til að æfa með U-17 ára landsliði Íslands, en æfingar fara fram um helgina. Reynir hefur æft með KFR frá upphafi, en hafði félagsskipti í Selfoss á dögunum. Hann er fæddur 1994 og lék 14 af 15 leikjum meistaraflokks KFR á síðasta ári og skoraði eitt mrk. Um leið og umfs.is óskar honum til hamingju með að hafa verið valinn til að æfa með landsliðinu, bjóðum við hann hjartalega velkomin í Selfoss.
Selfyssingar tóku á móti Val í Egilshöllinni á fimmtudagskvöld og sigruðu 2-0. Þetta var annar æfingaleikur Gumma Ben með Selfossliðið og var mun betri bragur á liðinu nú, en í síðasta leik. Eins og flestir vita stjórnar Gulli Jóns liði Vals, en þetta var fyrsti leikur þeirra undir hans stjórn. Selfoss og Valur áttust við í æfingaleik fyrir tímabilið í fyrra og unnu Selfyssingar þá líka nokkuð öruggan sigur 1-0.
HSK-mótið í 4. flokki fer fram um helgina. Á mótinu eru bæði lið Selfoss í flokknum auk þess að Dímon og Biskupstungur munu taka þátt. Mótið fer fram á sunnudaginn og er fólk eindregið hvatt að mæta og sjá skemmtilegt handboltamót. Leikjafyrirkomulag er hér fyrir neðan.
Í kvöld unnu okkar menn lið ÍR 32-28. Sigurinn var mun öruggari en tölurnar gefa til kynna, en Selfoss komst mest í 25-12 þegar um 19 mín. voru eftir af leiknum. Staðan í hálfleik var 16-9.
Í kvöld sækja ÍR-ingar Selfyssinga heim í 1. deild karla í handbolta. Þetta verður án efa stórleikur, eins og ávallt þegar þessi lið hafa mæst undanfarin tímabil. Eftir 5 umferðir er Selfoss í 2. sæti deildarinnar með 8 stig, en ÍR-ingar eru í 3.-4. sæti ásamt Víkingum með 6 stig. Selfyssingar hafa bara tapað einum leik með einu marki gegn Aftureldingu sem er efst í deildinni með fullt hús stiga. Nú er um að gera að skella sér í Vallaskóla í kvöld og sjá spennandi viðureign. Leikur Selfoss og ÍR hefst kl. 19:30.
Knattspyrnudeild Umf. Selfoss vill fá að þakka RÚV fyrir góða og vandaða umfjöllun um knattspyrnu á Selfossi síðastliðið sumar. Knattspyrnumönnum finnst ástæða til að árétta að umfjöllun um Selfossliðið síðasta sumar var mjög fagleg og í alla staði til fyrirmyndar hjá öllum þeim fjölmiðlum sem um íþróttir fjalla.
Í gærkvöldi áttust við Þróttur og Selfoss í 16 liða úrslitum Eimskips bikars karla í handbolta. Fór leikurinn fram í Laugardalshöllinni. Margir hafa eflaust beðið spenntir eftir úrslitunum í 10 fréttunum í Sjónvarpinu og að fá að sjá svipmyndir úr leiknum. Í lok fréttatímans var sagt frá leik Hauka og Hauka 2, sem einnig var í 16 liða úrslitunum og sýndar myndir úr þeim leik. Ekki var svo mikið sem minnst einu orði á leik Þróttar og Selfoss, hvað þá að sýndar væru myndir úr leiknum. Með þessu er Sjónvarpið augljóslega að mismuna félögum.
Selfyssingar taka á móti Val í Egilshöll næstkomandi fimmtudag og er þetta annar æfingaleikur Selfyssinga fyrir komandi tímabil. Leikurinn er eins og áður sagði fimmtudaginn 19. nóvember og hefst hann á hefðbundnum brasilískum leiktíma eða kl 21.30. Búast má við hörkuleik, en þjálfari Vals er eins og flestir vita Gunnlaugur Jónsson sem kom Selfyssingum upp í efstu deild síðastliðið sumar.
Rúmlega 100 manns mættu í dögurð (brunch) hjá Selfoss-Getraunum og 2. flokki knattspyrnudeildar í Tíbrá 7. nóvember. Aldrei hafa fleiri mætt á viðburð hjá Selfoss-Getraunum enda mikil gróska í starfinu og sífellt fleiri sem bætast í góðan hóp tippara hér á Selfossi. Við sama tækifæri voru veitt verðlaun fyrir vorleik Selfoss-Getrauna.
A-liðið í 4. flokki fór í Kópavoginn í dag að leika við HK. Um var að ræða hörkuleik sem var jafn lengst af. Selfyssingar voru lengi í gang, en náðu að leiða 14-15 í hálfleik og vinna 25-31 í furðulegum leik. Strákarnir stóðu saman þegar mest á reyndi og héldu áfram þrátt fyrir mótlæti og geta þakkað því að þeir náðu að sigra leikinn.
Fyrr í dag vann Selfoss lið ÍBV á erfiðasta útivelli landsins. Það var frekar sætur sigur því að í lokin stefndi allt í það að Selfoss myndi kasta frá sér sigrinum á sama hátt og gegn Aftureldingu á þriðjudaginn. Í þetta skipti var liðið þó ekki rænt sigrinum heldur má segja að liðið hafi í lokin stolið til baka því sem var búið að tapa niður, þ.e. sigri.
B-lið 4. flokks lék gegn FH í dag í Vallaskóla. Fyrri hálfleikur var jafn lengst af en í síðari hálfleik sigu FH-ingar fram úr og unnu 17-23. Selfoss bætti sig mikið frá seinasta leik þótt enn sé margt sem megi gera betur.
Það er margt að gerast í handboltanum hér á Selfossi um helgina. Á morgun fara fram tveir leikir í Vallaskóla. Kl. 13.00 Selfoss - UMFA í 3. fl. 1. deild. Strax á eftir þeim leik eða kl. 15.15 er leikur í 4. fl. B karla, Selfoss - FH. Á sunnudaginn fara fram þrír leikir. Kl. 12.15 Selfoss - Grótta í 3. fl. kvenna, tveir leikir í 2. fl. karla, kl. 17.00 og 18.45. Selfoss2 - Haukar2 og Selfoss - HK. Góða skemmtun og áfram Selfoss!
Hvað á maður að segja annað en ótrúlegt! Selfoss átti sigurinn algjörlega skilinn í gær en á einhvern ótrúlegan hátt tapaðist leikurinn. Það má segja að það hafi verið margt smátt frekar en eitthvað eitt atriði sem varð til þess að leikurinn tapaðist. Sjá meira..
Strákarnir í B-liði 4. flokks mættu Gróttu í bikarnum um helgina. Selfoss liðið náði sér aldrei á strik í leiknum. Frá fyrstu mínútu voru okkar menn langt frá sinni eðlilegu getu. Í sókninni vantaði alla ákveðni og leikmenn virkuðu smeykir. Varnarlega var liðið afar lengi í gang.
Gamla myndin að þessu sinni er af 3.flokki karla á leið á Partille-cup trúlega sumarið 1992 eða 1993. Þjálfarar voru Einar Gunnar Sigurðsson og Daði Steinn. Þetta eru árgangar 1977 og 1978.Þarna voru kempur eins og Halli Geir, bræðurnir Gísli og Jói, Steindór Tryggva, Óttar, Bent o.fl.
Guðmunda Brynja Óladóttir var valin til að taka þátt í landsliðæfingum U17 ára landsliðs kvenna. Æfingarnar fara fram helgina 14.-15. nóvember. Á laugardeginum er æfing í Kórnum, en á sunnudeginum æfingaleikur við U19 kvenna í Egilshöll. Landsliðsþjálfari U17 kvenna er Þorlákur Árnason.
Alls mættu 110 manns í dögurð (brunch) hjá knattspyrnudeildinni og 1X2 getraunum sem haldin var í gær, laugardag, í Tíbrá. Þetta er að sjálfsögðu metþátttaka og sýnir kannski best þá knattspyrnuvakningu sem nú er á Selfossi. Það voru Guðnabakarí og Kjötvinnslan Krás sem útveguðu hráefnið sem foreldrar krakkanna í 2. flokki elduðu og báru fram.
Fyrsti heimaleikur A-liðs 4. flokks karla fór fram í Vallaskóla í dag. Hátt í 100 manns mættu á leikinn sem var vel leikinn af hálfu Selfoss. Strákarnir höfðu yfirhöndina nær allan leikinn og unnu að lokum góðan 32-25 sigur eftir að hafa verið einu marki yfir í hálfleik. Liðið fer því vel af stað á heimavelli í vetur.
Nú um helgina munu strákarnir í 3. flokki í knattspyrnu hlaupa hús úr húsi á Selfossi og selja bílafána. Fánarnir er merktir með vínrauða ungmennafélagsmerkinu og eru mjög flottir. Strákarnir eru að fara í æfinga- og keppnisferð til Gautaborgar næsta sumar og er þetta liður í fjáröflun fyrir ferðina. Selfyssingar eru hvattir til að taka vel á móti strákunum sem endranær.
Henning Eyþór Jónasson og Andri Freyr Björnsson skrifuðu í dag undir áframhaldandi samning við Selfoss. Þeir komu báðir úr yngri flokka starfi Selfoss. Henning er uppalinn á Stokkseyri og Andri Freyr á Hellu.
4. flokkur karla leikur um helgina fyrstu heimaleiki sína í vetur. Á laugardag mætir A-liðið Haukum kl. 14:00. B-liðið leikur svo við Gróttu í bikar á sunnudag kl. 13:15. Fólk er eindregið hvatt til að mæta á leikina, en strákarnir í 4. flokki eru staðráðnir í að standa sig vel í vetur og vilja fá sem flesta til að koma á leikina í Vallaskóla í vetur.
Sunnudaginn 8. nóvember kl. 14:00 verður ungmennaþing Árborgar haldið í Pakkhúsinu, ungmennahúsi Árborgar að Austurvegi 2b, (fyrir aftan bókasafnið). Þingið er ætlað öllum ungmennum í Árborg á aldrinum 13 - 30 ára. Markmið þingsins er að skoðanir ungmenna úr öllum byggðarkjörnum Árborgar komi fram. Niðurstöður þingsins verða síðan afhent bæjarstjórn Árborgar. Yfirskrift þingsins er: "Ekki sitja heima og röfla, komdu þinni skoðun á framfæri". Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar og Gylfi Þorkelsson, bæjarfulltrúi og formaður íþrótta- og tómstundanefndar munu ávarpa þingið. Boðið verður upp á léttar veitingar. Allir velkomnir
Guðmundur Þórarinsson og Jón Daði Böðvarsson voru í gær valdir til æfinga með u-19 ára landsliði Íslands. Gummi hefur áður leikið með u-19 ára landsliðinu og var þá á yngra ári, en Jón Daði var í síðasta mánuði valinn í fyrsta sinn í þennan landsliðshóp. Áður hafa þeir félagar leikið saman með u-18 ára landsliði Íslands. Æfingar eru hjá þeim um helgina, á laugardag kl 15.00 í Kórnum og á sunnudag kl 09.00 í Egilshöll. Þjálfari strákana er Kristinn Rúnar Jónsson.
Sjöunda herrakvöld knattspyrnudeildar Selfoss sem fram fór í Hvíta húsinu föstudaginn 30. október tókst með eindæmum vel. Uppselt var á herrakvöldið á mánudeginum, en þá var búið að borga fyrir 230 miða, sem er að sjálfsögðu metþátttaka.
Nítján keppendur frá Selfossi tóku þátt í firnasterku bikarmóti í Taekwondo sem haldið var í íþróttahúsinu að Varmá í Mosfellsbæ um helgina. Af þeim fóru 12 á pall í sínum aldurs- og þyngdarflokkum. 4 gull, 5 silfur og 3 brons unnust.
Ragnar Jóhannsson er í viðtali á heimasíðunni í þesari viku. Ragnar er 19 ára unglingalandsliðsmaður. Hann lék með pressuliðinu gegn íslenska A-landsliðinu í siðustu viku og stóð sig mjög vel, skoraði 3 mörk með þrumuskotum og var hvergi banginn við stjörnurnar í landsliðinu. ....
Laugardaginn 7. nóvember bjóða Selfoss - Getraunir öllum tippurum í dögurð/brunch í Tíbrá.
SportTV.is verður með beina útsendingu frá fimleikamóti í 1. og 2. þrepi um helgina en keppt verður á Varmá í Mosfellsbæ. Allt mótið verður í beinni útsendingu og stendur útsending frá 8:30 til 17:20 laugardag og frá 9:20 til 16:10 sunnudag.
Mótið er í fjórum hlutum og keppa börn frá 10 ára aldri. Allt mótið verður í beinni útsendingu og verður grein gerð fyrir útslitum þó ekki verði bein lýsing frá öllum viðburðum mótsins.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem ekki sjá sér fært að mæta í Varmá til að horfa á mótið að fylgjast með og sjá gríðarlegan fjölda bráðefnilegra fimleikakrakka sýna listir sínar.
Fimleikadeild Selfoss á fjöldan allan af ungum keppendum á þessu móti svo um að gera að kíkja inná sporttv.is
Í hálfleik á pressuleiknum sem fram fór í gærkvöld var dregið í 16-liða úrslit karla og kvenna í Eimskips bikarnum. Selfyssingar drógust gegn Þrótti og eiga útileik. Leikið verður í 16-liða úrslitum hjá konunum 10. og 11. nóvember og hjá körlunum 15. og 16. nóvember. Stórleikur þessarar umferðar er án efa leikur Akureyrar og FH á Akureyri. Þá eigast einnig við Stjarnan og Grótta. Bikardráttinn má sjá hér að neðan...
Nú er myndatökumaðurinn okkar hann Matthías Ægisson að framleiða diska með mörkunum úr síðustu sjö leikjum sumarsins. Ásamt öllum mörkunum verða myndir frá fagnaðarlátunum þegar liðið fór upp og eins viðtöl við leikmenn. Samtals eru þetta 22 mörk sem Selfossliðið skoraði í þessum síðustu leikjum. Fagnaðarlætin eru auðvitað ógleymanleg og eins eru viðtölin mjög skemmtileg. Hægt er að panta diskinn með því að senda tölvupóst á netfangið tommi@talnet.is og kostar diskurinn 3.000 kr., en helmingur af andvirði disksins rennur til knattspyrnudeildarinnar.
Gamla myndin var tekin árið 1993 eftir nauman sigur. Ásmundur Jónsson (16), Sigurjón Bjarnason (7), Grímur Hergeirsson(3) og Oliver Pálmason(20), þakka áhorendum stuðninginn. Ungur og efnilegur leikmaður Sævar Þór Gíslason hafði greinilega ekkert fengið að fara inná og var ennþá í flotta Rucanor gallanum eftir leik og ennþá með gleraugun á sér.
Uppselt er á Herrakvöld knattspyrnudeildar sem fram fer í Hvíta húsinu föstudaginn 30. október næstkomandi. Síðasti miðinn var greiddur í hádeginu í gær, mánudag. Alls voru seldir 220 miðar í ár og stefnir því í stærsta Herrakvöld frá upphafi. Það er Hlöðver Örn Rafnsson sem hefur yfirumsjón með Herrakvöldinu. Veislustjóri kvöldsins er Kristinn Kjærnested og ræðumaður kvöldsins er Samúel Örn Erlingsson. Það er svo veitingastaðurinn Menam sem sér um matinn á Herrakvöldinu.
A-liðið í 2. flokki spilaði sannkallaðan stórleik í gær gegn stjörnum prýddu liði Hauka. Byrjunarlið Haukamanna innihélt alls 6 landsliðsmenn og 1 fyrrum landsliðsmann. Við Selfyssingar eigum aðeins 1 slíkan og því var ljóst að þetta yrði erfiður leikur. Með Haukum spilar "okkar" maður Guðmundur Árni Ólafsson og var þetta hans fyrsti leikur á heimaslóðum.
Í gærkvöldið unnu okkar menn Víkinga á heimavelli 22 - 20 eftir að staðan hafði verið 10 - 11 í hálfleik fyrir gestina. Leikurinn var ekki sá besti sem hefur sést í Vallaskóla, en spennandi var hann og skemmtilegur fyrir áhorfendur. Í lið Selfoss vantaði alla þrjá leikstjórnendur liðsins að þessu sinni vegna meiðsla.
Sundskóli Sunddeildar Umf. Selfoss býður nú upp á byrjendanámskeið í sundi fyrir 5 ára börn og eldri. Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum kl. 14:45-16:25. Námskeiðið kostar kr. 7.000.
Það er um að gera að tryggja sér pláss sem fyrst því aðeins er rúm fyrir 8 börn.
Kennari er Bryndís Ólafsdóttir, íþróttakennari og sjúkraþjálfari.
Þeir Jón Daði Böðvarsson og Steinar Sigurjónsson voru valdir til að æfa með landsliðum Íslands. Jón Daði, sem er fæddur árið 1992 mun æfa með u-19 ára landsliðinu, en áður hefur Jón Daði leikið með u-17 ára landsliðinu. Steinar, sem er fæddur árið 1994 hefur áður æft með u-16 ára landsliðinu.
![]()
Frjálsíþróttaráð HSK hélt haustfund sinn í síðustu viku. Farið var yfir helstu málin sem varða framgang frjálsra íþrótta á sambandssvæðinu. Tilkynnt var um áframhaldandi ráðningu Ólafs Guðmundssonar íþróttafræðings sem verkefnisstjóra átaksverkefnis ráðsins. Fundurinn samþykkti einnig framlagða tillögu um sameiningu keppnisliða HSK og Umf. Selfoss á meistaramótum Frjálsíþróttasambands Íslands. Samþykkt var á fundinum að liðið skyldi keppa undir nafninu HSK - Selfoss.
Á laugardaginn síðasta kom KA í heimsókn á Selfoss með liðin sín tvö og léku þau við Selfoss-92 og Selfoss-93. Jafntefli varð í leik 92-liðsins 35-35, en 93-strákarnir unnu sinn leik 33-24.
Knattspyrnusamband Íslands mun á næstu vikum halda tvö KSÍ II þjálfaranámskeið á höfuðborgarsvæðinu. Annars vegar er um að ræða námskeið sem haldið verður helgina 23. - 25. október og hins vegar 30. október - 1. nóvember. Þátttökurétt hafa allir þeir sem hafa KSÍ I þjálfararéttindi.
KSÍ IV þjálfaranámskeið verður haldið helgina 6.-8. nóvember. Dagskrá námskeiðsins er í vinnslu og verður birt síðar. Bóklegi hluti námskeiðsins fer fram í höfuðstöðvum KSÍ og verklegi þátturinn í Kórnum í Kópavogi. Þátttökurétt hafa allir þjálfarar sem setið hafa KSÍ III þjálfaranámskeið og skilað verkefni af því námskeiði. Skráning á KSÍ IV er í fullum gangi og eru áhugasamir beðnir um að skrá sig með því að senda tölvupóst á dagur@ksi.is eða með því að hringja í síma 510-2977.
Old boys æfingar í knattspyrnu eru hafnar að nýju. Gömlu karlarnir hittast á laugardagsmorgnum kl. 11.00 gervigrasvellinum. Eftir æfingu fara menn í Tíbrá og fá sér kaffi og gómsætt vínabrauð frá Guðna bakara og tippa í getraunarleik 1X2. Oft myndast á laugardagsmorgnum í Tíbrá skemmtilegt spjall um fótboltann á Selfossi og ensku deildina. Þar skiptast helstu sérfræðingar samfélagsins á skoðunum um knattspyrnu. Allir eru velkomnir á æfingar, eða bara í létt spjall og kaffi.
Haustannarfjarnám ÍSÍ hefst mánudaginn 2. nóvember næstkomandi. Um er að ræða 1. stig almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ sem gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið tekur 8 vikur og jafngildir íþróttafræði 1024 í framhaldsskólakerfinu. Námið er öllum opið 16 ára og eldri sem áhuga hafa á þjálfun í einhverri íþróttagrein. Hlé verður gert á náminu frá miðjum desember og fram í janúar. Lokaverkefni verður ekki skilað fyrr en á nýju ári.
Fjórar stelpur frá Selfossi voru valdar í u-15 æfingahóp HSÍ, en hópurinn kemur saman um helgina. Þær sem voru valdar eru Birta R. Antonsdóttir, Díana Sigmarsdóttir, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Kristrún Steinþórsdóttir. Þeir Hilmar Guðlaugsson og Sigurgeir Jónsson eru verkefnisstjórar. Fyrsta æfingin er í Digranesi í Kópavogi á föstudaginn.
Þær Guðmunda Brynja Óladóttir og Bríet Mörk Ómarsdóttir voru valdar til að taka þátt í æfingum U-17 landsliðs kvenna. Æfingarnr fara fram um helgina í kórnum og Reykjaneshöllinni. Alls voru 25 stelpur valdar á landsliðsæfingarnar frá 14 félögum. Landsliðsþjálfari er Þorlákur Árnason.
Fimleikahópur frá Odense í Danmörku er í heimsókn hjá fimleikadeild Umf. Selfoss þessa vikuna. Hópurinn sem samanstendur af 41 stúlku á aldrinum 5-19 ára verður með sýningu í íþróttahúsinu Iðu miðvikudagskvöldið 14. okt. kl.20:00. Þetta er góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna og er aðgangur ókeypis.
U-19 ára landslið Íslands með þá Gumma Tóta og Stefán Ragnar innanborðs er nú á heimleið frá Bosníu, eftir að hafa leikið síðasta leik sinn í undankeppni Evrópumótsins. Í síðasta leiknum unnu strákarnir sterkt lið Búlgaríu 3-2 eftir að hafa verið undir 1-2 í hálfleik. Stefán Ragnar spilaði allan leikinn og Gummi Tóta kom inná er tíu mínútur voru eftir. Íslendingar skoruðu sigurmarkið mínútu eftir að hann kom inná.
Strákarnir í 5.flokki drengja yngra ár unnu öruggan sigur í fyrstu umferð Íslandsmótsins í handknattleik en mótið fór fram í Digranesi í Kópavogi. Þessir strákar urðu Íslandsmeistarar í fyrra og byrja þetta keppnistímabil vel. Fyrirkomulag Íslandsmótsins er þannig að öll lið landsins etja kappi í fimm mótum yfir veturinn. Hvert mót telur til stig til Íslandsmeistaratitils. Selfoss-strákarnir unnu alla sína leiki mjög örugglega en unnu síðan gott lið KR í æsispennandi úrslitaleik.
Júdódeild Umf. Selfoss sendi nokkra keppendur á haustmót Júdósambands Íslands sem haldið ver 3. október s.l. Þórdís böðvarsdóttir, sem nú keppir undir merkjum UMFS, náði bestum árangri er hún sigraði glæsilega í sínum flokki. Eftirtaldir náðu verðlaunasætum:
Það þarf nú ekki að taka það fram að árangur Selfyssinga í sumar er sá besti frá upphafi. Selfoss vann deildina með 47 stig, sem þeir fengu úr 22 leikjum og spila því í efstu deild á næsta ári. Hér að neðan eru ýmsar skemmtilegar og mis mikilvægar upplýsingar um sumarið 2009 hjá meistaraflokki karla á Selfossi.
U19 ára landslið Íslands gerði markalaust jafntefli við Norður Írland í undankeppni EM í gær, en leikið var í Bosníu. Stefán Ragnar byrjaði inná og Gummi kom inn þegar 20 mínútur voru eftir. Íslenska liðið var betri aðilinn í leiknum og fékk fjölda góðra tækifæra til að skora. Voru þeir virkilega óheppnir að setja ekki mark og þá sérstaklega í lokin, þegar þeir áttu fjölda færa.
Helena Ólafsdóttir var í gær ráðinn þjálfari kvennaliðs Selfoss í knattspyrnu og mun hún þjálfa liðið næstu tvö árin. Þetta eru frábærar fréttir fyrir stelpurnar, því Helena er einn reynslumesti kvennaþjálfari landsins. Helena þjálfaði síðast lið KR. Hún hætti hjá félaginu síðastliðið haust og hefur ekki komið að þjálfun síðan. Áður hefur hún m.a. annars þjálfað Val og íslenska kvennalandsliðið.
Sundæfingar falla niður í dag, föstudaginn 9. okt., vegna veðurs. Í hvassviðri eins og núna gengur yfir er einfaldlega full erfitt að synda í lauginni til þess einhver ávinningur hljótist af æfingunni. Sjáumst á æfingum á mánudag. Þjálfarar.
Steinar Sigurjónsson hefur verið valinn í æfingahóp hjá u-17 ára landsliði Íslands. Þetta er að sjálfsögðu mikill heiður fyrir strákinn sem hefur tekið miklum framförum síðustu ár. Eins hefur Reynir Óskarsson hjá KFR verið valinn til æfinga með landsliðinu og fer þar einnig mikið efni. Gott opinbert samstarf er á milli félaganna sem á eftir að aukast á næstu árum. Heimasíðan óskar þeim félögum innilega til hamingju með þennan árangur til frekari afreka. Gunnar Guðmundsson er landsliðsþjálfari strákana, en hann er einn af færustu þjálfurum landsins.
Stefán Ragnar og Gummi Tóta léku allan tímann er u-19 ára landslið Íslands sem tapaði 1-0 gegn Bosníu í undankeppni EM í Bosníu. Heimamenn í Bosníu skoruðu eina mark leiksins á 21. mínútu og þar við sat. Á föstudag mætir íslenska liðið Norður-Írum, en þeir gerðu 1-1 jafntefli við Búlgaríu.
Lokahóf félaganna í 1. deild karla fór fram í gær á Hótel Borg. Þar sópuðu Selfyssingar til sín verðlaunum. Sævar Þór Gíslason var bestur og markakóngur, Guðmundur Þórarinsson var efnilegastur og Gunnlaugur Jónsson var valinn besti þjálfarinn. Fjórir leikmenn Selfoss voru í liði ársins og einn á bekknum. Þeir Jón Sveinsson, Agnar Bragi Magnússon, Einar Ottó Antonsson og Sævar Þór Gíslason voru í liði ársins og Ingólfur Þórarinsson var varamaður. Alls voru 12 leikmenn Selfossliðsins tilnefndir í lið ársins.
Frí verður gefið frá sundæfingum í dag vegna æfingabúðanna um helgina. Nú er bara um að gera að taka það rólega og safna kröftum fyrir æfingar næstu daga en mæta samt í Hellisskóg í grill og gaman í kvöld frá kl. 18-20.
Stjórn og þjálfarar Sunddeildar Umf. Selfoss
Á haustin er vani að fara yfir knattspyrnusumarið sem nýliðið er. Fotbolti.net mun á morgun sunnudag kl 16.00 birta lið ársins og veita knattspyrnutengd verðlaun og um að gera fyrir áhugasama að fylgjast með því og sjá hvort Selfyssingar fá einhver verðlaun þar. Selfyssingar taka að sjálfsögðu saman spilaða leiki yfir tímabilið og ætlum við að birta lista yfir þá sem spiluðu flesta leikina. Eins er hér neðst listi yfir flesta leiki spilaða fyrir Selfoss. Eins og flestir vita er það Einar Jónsson faðir Ella markmanns sem leikið hefur flesta leiki, eða alls 386 og í öðru sæti er Anton Hartmannsson faðir Einars Ottó og Hartmanns með 366 leiki.
Frábæru sumri er lokið hjá knattspyrnudeild Selfoss. Óhætt er að fullyrða að aldrei áður hafa lið frá Selfossi náð viðlíka árangri og nú í sumar. Mfl. karla tryggði sér sæti í úrvalsdeild í fyrsta skipti og mfl. kvenna var hársbreidd frá úrvalsdeildarsæti á sínu fyrsta ári. Árangur meistaraflokka okkar byggir á vinnu undanfarinna ára og gífurlega öflugu yngri flokka starfi hér á Selfossi sem önnur knattspyrnu- og bæjarfélög dást að. Selfoss - Getraunir eru einn af helstu bakhjörlum 2. fl. kvenna og karla og mikilvægur hlekkur í starfi knattspyrnudeildar.
Um tíu manna hópur hefur séð um að velja „S“ fyrir góða frammistöðu í leikjum meistaraflokks í sumar. Til að hafa valið sem hlutlausast voru ekki alltaf sömu einstaklingarnir sem völdu. Að jafnaði hafa fimm manns valið menn leiksins eftir hvern leik. Sumir velja einn eftir hvern leik, á meðan aðrir völdu allt upp í fimm leikmenn. Að sjálfsögðu er svona val alltaf persónubundið og ólíklegt að tveir knattspyrnuspekingar sjái leikinn með sömu augum. Það sama má segja um vali á leikmanni ársins hjá t.d. Fréttablaðinu eða þegar gefin eru M hjá Mogganum. Þessi einkunnagjöf á umfs.is hefur verið hluti af því að undirbúa mannskapinn fyrir átökin í efstu deild, þar sem fylgst er með hverri hreyfingu leikmanna. Fyrst og fremst er þó um skemmtilegan leik að ræða og ber að taka svona einkunnargjöfum ekki of alvarlega.
Það þarf engum að koma á óvart að Sævar Þór Gíslason varð markahæstur í liði Selfoss í sumar og varð eins og flestir vita markahæstur í deildinni. Þeim sem ekki horfðu á leiki Selfoss í sumar kemur þó örugglega á óvart að einn af ungu leikmönnum liðsins Guðmundur Þórarinsson var með flestar stoðsendingar í liðinu. Hér að neðan er listi yfir þá sem skoruð mest og eins þá sem áttu flestar stoðsendingar. Allir leikir liðsins í deild og bikar eru með og einnig eru mörk í vítakeppni tekin með, en þau gilda og hefur undirritaður aldrei skilið þá reglu að undanskilja þau.
Jón Daði Böðvarsson leikmaður Selfoss hélt í dag til Gautaborgar og verður þar til reynslu í 10 daga. Jón Daði spilaði sitt fyrsta ár í meistaraflokki í sumar og vann sér sæti í u-17 ára landsliðinu. Hann spilaði 18 leiki með Selfoss í deild og bikar í ár.
Dómaranefnd HSÍ mun bjóða aðildarfélögum HSÍ uppá A-stigs námskeið nú í haust líkt og gert var í vor. Námskeiðið munu fara fram hjá félögunum og á mánudagskvöldum. Miðað er við að hefja námskeiðið kl.19.00 og það sé búið um 22.00. Gert er ráð fyrir kaffipásu og verða félögin að útvega veitingar. Þátttakendur verða vera á eldra ári 4. flokks eða eldri. Lámarks fjöldi er 20 manns.
Guðmundur Þórarinsson og Stefán Ragnar Guðlaugsson voru valdir í u-19 ára landsliðið Íslands. Landsliðið tekur þátt í Evrópukeppni u-19 sem fram í Bosníu dagana 7. til 12. október næstkomandi. Gummi og Stefán Ragnar unnu sér báðir fast sæti í meistaraflokksliði Selfoss sem vann 1. deildina á dögunum.
Þá hefjast að nýju badmintontímar fyrir Selfyssinga og nærsveitarfólk. Við höfum fengið lausa tíma í IÐU íþróttahúsi á miðvikudagskvöldum kl. 22.00-23.00. S.l. tvo vetur hefur áhugafólk um badminton komið saman og spilað 1 x í viku.
Knattspyrnusamband Íslands mun á næstu vikum halda tvö 1. stigs þjálfaranámskeið. Annars vegar er um að ræða námskeið sem haldið verður helgina 9.-11. október og hins vegar námskeið sem haldið verður helgina 16.-18. október. Bókleg kennsla fer fram í fræðslusetri KSÍ og verkleg kennsla í knattspyrnuhúsinu Kórnum í Kópavogi. Enn eru örfá sæti laus á fyrra námskeiðið (9.-11. október) og nóg af lausum sætum á seinna námskeiðið (16.-18. október).
HSÍ hefur sent frá sér endanlegt leikjaplan í 1. deild karla í handbolta. Selfyssingar leika í 1. deild í vetur ásamt Aftureldingu, ÍR, Víkingi, ÍBV, Fjölni og Þrótti. Fyrsti leikur Selfoss er útileikur við Fjölni föstudaginn 9. október. Síðan koma tveir heimaleikir, fyrst gegn Víkingi 23. okt. og svo gegn Þrótti 6. nóv. Annars lítur leikjaplanið eftirfarandi út:
Selfyssingarnir Guðmundur Þórarinsson og Stefán Ragnar Guðlaugsson voru valdir á æfingar með u-19 ára landsliði Íslands. Æfingarnar fara fram um helgina. Þeir félagar fóru með þessu sama landsliði til Skotlands í sumar og kepptu tvo landsleiki við Skota.
Knattspyrnusamband Íslands mun á næstu vikum halda tvö 1. stigs þjálfaranámskeið. Annars vegar er um að ræða námskeið sem haldið verður helgina 9.-11. október og hins vegar námskeið sem haldið verður helgina 16.-18. október. Bókleg kennsla fer fram í fræðslusetri KSÍ og verkleg kennsla í knattspyrnuhúsinu Kórnum í Kópavogi. Þátttökugjald er kr. 15.000,- Sjá nánar hér...
FRÍ er með í undirbúningi að taka upp nýtt fræðslukerfi fyrir frjálsíþróttaþjálfara sem IAAF eða Alþjóða frjálsíþróttasambandið hefur innleitt. Þetta verkefni hefur verið í undirbúningi frá því á vordögum 2008. CECS er fimm þrepa fræðslukerfi þjálfara sem nefnist á ensku: IAAF Coaches Education Certified System eða CECS. Fyrsta skrefið við að innleiða þetta fræðslukerfi hér á landi er námskeið fyrir leiðbeinendur á 1. stigi, sem haldið verður 1.-6. október næstkomandi í Laugardal í Reykjavík. Stefnt er að því að halda fleiri námskeið hérlendis og að senda þátttakendur á námskeið erlendis í framtíðinni.
Lokahátíð knattspyrnumann fór fram í Hvíta húsinu á Selfossi s.l. laugardagskvöld. Hátíðin tókst mjög vel, húsið hið glæsilegasta eftir endurbætur, maturinn virkilega góður svo og þjónustan. Hilmar Hólmgeirsson stóð sig frábærlega sem veislustjóri og náði að takmarka ræðutíma allra, nema formannsins. Eins voru skemmtiatriðin frábær. Þar fór Dóri Björns fremstur með sitt árlega vídeó. Það sem öllu máli skipti voru auðvitað verðlaunahafar á uppskeruhátíðinni. Hér að neðan eru nöfn allra þeirra sem unnu til verðlauna á hátíðinni.
A-lið 4. flokks karla í handbolta lék í forkeppni um helgina, en þar var spilað um hvort liðið myndi leika í efri eða neðri deild á Íslandsmótinu í vetur. Það er skemmst frá því að segja að Selfoss vann 3 leiki mjög sannfærandi, gegn Þrótti, Fjölni og Haukum, en tapaði svo nokkuð illa fyrir Fram. Með því tryggði liðið sér sæti í efri deildinni í vetur og markmiði helgarinnar því náð. Liðið lék á köflum mjög fínan bolta en þessir fjórir leikir gefa strákunum nokkurn lærdóm.
Selfoss vann í gær góðan 4:2 sigur á Skagamönnum á Selfossi. Með sigrinum kórónuðu Selfyssingar frábært sumar og enduðu sem sigurvegarar í 1. deild karla. Formaður og framkvæmdastjóri KSÍ afhentu þeim verðlaun í leikslok. Þegar tvær umferðir voru eftir hafði Selfoss tryggt sér sæti í úrvalsdeild í fyrsta skipti í sögu félagsins. Að auki tryggði Sævar Þór Gíslason sér titilinn markakóngur 1. deildar annað árið í röð.
Heiðursfélagarnir Kristján S. Jónsson og Hafsteinn Þorvaldsson hafa styrkt knattspyrnudeild Umf. Selfoss um 100.000 kr. hvor í tilefni frábærs árangur meistaraflokks karla í sumar. Selfoss náði þeim glæsilega árangri að vinna sig upp í úrvalsdeild þegar tvær umferðir voru eftir af deildinni. Þeim félögum eru færðar bestu þakkir fyrir höfðinglega styrki.
Stulli bakari hjá Vilbergsbakaríi mun um helgina baka Selfoss-súkkulaðikökur sem hann ætlar að selja í bakaríi sínu. Tertunar sem eru hreinasta lostæti eru með Umf. Selfoss lógói ofan á. Af hverri seldri köku munu 1.000 kr. renna til knattspyrnudeildarinnar. Gott framtak hjá Stulla bakara.

Eftir stórfurðulega viku í fótboltanum getur Selfoss tryggt sér sigur í deildinni með sigri á ÍA, hvernig hljómar það? Liðin eigast við í síðustu umferð deildarinnar á Selfossvelli laugardaginn 19. september kl. 14.00. Reyndar þurfa Selfyssingar ekki endilega að sigra, stig er nóg. Selfyssingar eru 3 stigum á undan Haukum og með 10 mörk í plús. Í síðustu umferð gerðu ÍA og HK jafntefli á meðan Selfyssingar í rússi, töpuðu fyrir Haukum 3-2 og urðu þau úrslit þess valdandi að Haukar fylgja Selfossi upp í efstu deild.
Hin vinsæli dagskrárliður gamla myndin hefur nún göngu sína að nýju eftir sumarfrí. Myndin að þessu sinni er af meistaraflokki keppnistímabilið 1995-96, þegar liðið lék undir stjórn Valdimars Grímssonar. Þetta lið fór í undanúrslitin í bikarkeppninni og féll út í 8-liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Takið sérstaklega eftir hátísku upphitunargöllunum frá ABM-sport.
Íþróttaskóli barnanna hefst laugardaginn 19. september í Baulu, íþróttahúsi Sunnulækjarskóla. Kennt verður í tveimur hópum, börn fædd 2007 og júlí-des. 2006 mæta kl.10-10:50 en börn fædd jan-júlí 2006 og börn fædd 2005 mæta frá 11:00-11:50. Skráning verður í Baulu fimmtudaginn 17. sept. frá kl. 17-19 og laugardaginn 19. sept. á sama stað frá kl. 9:30-11:30. Tíu skipta námskeið kostar 7.000 kr.ónur og greiðist við skráningu.
Stjórn og meistaraflokksráð knattspyrnudeildar Umf. Selfoss og Gunnlaugur Jónsson hafa komist að samkomulagi um að hann láti af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla frá og með deginum í dag að telja.
Stelpurnar í 4. flokki í knattspyrnu töpuðu síðasta leik sínum á Íslandsmótinu fyrir toppliði Hauka 5-3. Það var Eva Lind Elíasdóttir sem skoraði öll mörk Selfossliðsins. Þær enduðu því í 4. sæti deildarinnar með 19 stig. Athygli vakt frábær markatala hjá þeim 61-19, sú besta í deildinni. Þær eiga greinilega ekki í vandræðum með að skora mörkin
Sameiginlegt lið Selfoss/KFR í 3. flokki A hefur tekið miklum framförum seinni hluta sumars. Strákarnir unnu sinn síðasta leik 4-1 gegn Breiðabliki 2 og enduðu í 3. sæti með 27 stig, unnu 9 leiki, gerðu ekkert jafntefli og töpuðu 5 leikjum. Í síðasta leiknum voru það þeir Helgi Axelsson og Daníel Ingi sem skoruð tvö mörk hvor.
Á laugardaginn var spilað um sæti á mótinu. Í leik um 5. sætið mættust Stjarnan og Grótta, í leik um 3. sætið spiluðu heimamenn á Selfossi við Val og loks léku FH og Akureyri til úrslita á mótinu. Sjá meira í nánar..
Uppskeruhátíð yngri flokka knattspyrnudeildar Umf. Selfoss verður haldin sunnudaginn 13. september kl. 14:00 í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands. Þar verður m.a. farið yfir árangur sumarsins og veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur. Á eftir eru kaffiveitingar. Iðkendur og foreldrar eru eindregið hvattir til að mæta.
Við hvetjum alla til þess að koma í Vallaskóla á morgun laugardag og fylgjast með leikjum dagsins. Frítt er á alla leikina. Sérstaklega bendum við Selfyssingum á að koma og styðja við bakið á sínum mönnum en þeir spila við Bikarmeistara Vals kl. 18:00 um 3. sætið í mótinu.
Í dag var á dagskrá fyrst leikur Stjörnunnar og Akureyrar og svo leikur Vals og Gróttu. Að sjálfsögðu voru leikirnir í beinni á Sport-TV. Í dag réðust einnig úrslitin í riðlakeppninni. Sjá meira í nánar...
Á dögunum kom aðstoðarskólameistar FSU, Þórarinn Ingólfsson, með umslag sem hann átti að færa knattspyrnudeildinni. Í umslaginu reyndust 30.000 krónur sem samkennari Tóta, Lárus Ágúst Bragason frá Miðhúsum í Hvolhreppi, hafði heitið á knattspyrnudeildina ef liðið færi upp. Lárus nefndi það í vor við Tóta að ef liðið færi upp þá fengi deildin andvirði eins lambsskrokks. Gaman er þegar menn sýna stuðning sinn í verki. Það sem er kannski sérstak við þessa sögu er að Lárus er ekki beint knattspyrnuunnandi og hefur ekki komið á Selfossvöll í sumar. Líklega verður breyting á því á næsta ári.
Á síðasta heimaleik Selfoss sem var gegn Aftureldingu 4. september síðastliðinn var gríðarleg stemning. Úrslitin gátu ekki verið betri því með stórsigri tryggði Selfoss sér sæti í úrvalsdeild á næsta tímabili þó tveir leikir séu eftir. Hér eru nokkrar myndir frá stemningunni...
Leikir dagsins voru FH - Valur og Selfoss - Akureyri. Leikirnir voru afar ólíkir en báðir skemmtilegir fyrir áhorfendur. Fyrri leikurinn var mjög hraður og mikið skorað, en í þeim síðari bar meira á góðum varnarleik og markvörslu. Sjá meira í nánar...
Stefán Ragnar Guðlaugsson og Guðmundur Þórarinsson léku báðir með íslenska landsliðinu skipað leikmönnum undir 19 ára þegar það vann seinni æfingaleikinn gegn Skotum. Stefán Ragnar var í byrjunarliðinu og lék aftur allan leikinn. Gummi Tóta kom inná í byrjun seinni hálfleiks, en báðir stóðu þeir sig mjög vel í leiknum sem Íslendingar unnu 1-3.

Selfyssingar tryggðu sér sæti í úrvalsdeildinni í knattspyrnu með 6-1 stórsigri á Aftureldingu um síðustu helgi. Í sömu umferð unnu Haukar góðan sigur á HK 0-2 og fóru með sigrinum í 38 stig. Þeir eru því með þremur stigum meira en HK í keppni þeirra um að fylgja Selfossi upp. Haukar fá einmitt Selfoss í heimsókn á Ásvelli laugardaginn 12. september kl. 14.00.
Guðmunda Brynja Óladóttir heldur áfram að standa sig vel með landsliði Íslands skipað stelpum undir 17 ára aldri. Í kvöld unnu þær Ísrael í síðasta leik sínum í undankeppni Evrópumótsins. Guðmunda opnaði markareikning Íslands á 28. mínútu og fylgdu svo 6 mörk á eftir hjá landsliðinu.
Strákarnir í 2. flokki Selfoss/KFR léku sinn næstsíðasta leik á Íslandsmótinu gegn Víkingi Reykjavík. Leikurinn fór fram á Hvolsvelli og sigruðu okkar menn 1-0 með marki frá Mumma. Í fyrri leik liðanna hafði Selfoss/KFR 1-2 forystu allt þar til þrjár mínútur voru eftir, en töpuðu 3-2. Þetta var því extra sætur sigur hjá strákunum.
Fyrri leikur dagsins var leikur Selfoss á móti Stjörnunni. Síðari leikurinn var viðureign Gróttu og FH. Báðir leikirnir voru jafnir fram að hálfleik, en í síðari hálfleik náði annað liðið yfirhöndinni í báðum leikjunum. Úrslit og markaskor má sjá hér í meira..
Stefán Ragnar Guðlaugsson og Guðmundur Þórarinsson, meistaraflokksleikmenn Selfoss í knattspyrnu, spiluðu báðir með landsliði Íslands skipað leikmönnum undir 19 ára í gær. Íslendingar unnu Skota 0-2 í fyrri leik liðanna í Cumbernauld í Skotlandi. Seinni leikurinn fer fram á morgun miðvikudag í bænum Stirling. Stefán Ragnar lék allan leikinn sem miðvörður og Gummi Tóta kom inná á 54. mínútu. Það var Fylkisstrákurinn Pape sem skoraði bæði mörk Íslands.
Guðmunda Brynja Óladóttir hefur staðið sig virkilega vel með u-17 ára landsliði Íslands í knattspyrnu, sem er þessa dagana að leika í riðlakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu. Riðlakeppnin fer fram á Íslandi. Stelpurnar gerðu mjög óvænt 0-0 jafntefli við Þjóðverja í fyrsta leik. Á sunnudaginn kepptu stelpurnar við Frakka. Eftir að Frakkar höfðu leitt 0-1 í hálfleik jafnaði Gumma leikinn með flottu marki. Frakkar skoruðu svo sigurmarkið á lokasekúndum leiksins og 1-2 sigur þeirra því staðreynd.
Strákarnir í 4. flokki enduðu Íslandsmótið með góðum 11-1 sigri á Álftanesi. Mörk Selfoss í leiknum skoruðu þeir Björn Ingi 4, Ísak Eldjárn 2, Birkir Víðis 2 og þeir Haukur Ingi, Sindri Pálma og Gauti Halldórsson eitt mark hver. Tveimur dögum áður unnu þeir Breiðabli2 5-4 með mörkum frá Hauki Inga 2, Birki Péturs 2 og Ísak Eldjárn 1 mark.
Stelpurnar í 3. flokki kvenna kláruðu síðustu leiki sína á Íslandsmótinu fyrir helgi. A-liðið lék á við Víking Reykjavík og unnu sannfærandi sigur 3-0. Mörk Selfoss í leiknum skoruðu þær Guðmunda Brynja, Jóna Guðrún og Karítas. Stelpurnar enduðu í 3. sæti, en ljóst var strax í byrjun móts að þrjú lið myndu stinga af í riðlinum. Stelpurnar léku 12 leiki, unnu 9 og töpuðu 3 leikjum. Markatalan var 49-23 Selfossi í vil. Staða efstu liða varð því eftirfarandi: 1. HK, 2. Afturelding, 3. Selfoss, 4. ÍR, 5. ÍBV.
Selfyssingar unnu stórsigur á Aftureldingu á Selfossi í kvöld og tryggðu sér sæti í úrvalsdeildinni næsta keppnistímabil. Er þetta í fyrsta skipti sem Selfoss vinnur sig upp í efstu deild karla. Afturelding komst yfir á 22. mín, en Hjörtur Hjartarson jafnaði fyrir Selfoss á 31. mín. Sævar Þór kom svo Selfossi í 2:1 á 33. mín. og þannig var staðan í hálfleik. Selfyssingar bætu fjórum mörkum við í seinni hálfleik og gulltryggðu sæti sitt með 6:1 sigri. Hjörtur skoraði 3. og 4. markið, Sævar Þór það 5. og Arelíus það 6. Mikil fagnaðarlæti brutust út í leikslok á meðal leikmanna og stuðningsmanna Selfoss. Langþráður draumur knattspyrnumann á Selfossi er orðinn að veruleika. Til hamingju strákar!!!
Stórskyttan Ragnar Jóhannsson hefur verið í séræfingum hjá margföldum íslands- og norðurlandameistara í karate, Ingólfi Snorrasyni sem hefur einnig getið sér gott orð sem einkaþjálfari. Ragnar hefur bætt sig mjög mikið undanfarið og er í hrikalegu formi þessa dagana og mætir sterkur í komandi keppnistímabil í 1.deildinni með Selfoss og unglingalandsliðinu. Myndband af einni af æfingum þeirra félaga má sjá hér... http://www.youtube.com/watch?v=jG0mv3Uelzw&feature=channel_page
Getraunastarf Umf. Selfoss er nú að fara af stað. Opið er í Tíbrá alla laugardaga milli kl. 11 og 13. Þar geta menn og konur spáð í seðil helgarinnar og í leiðinni farið yfir málefni líðandi stundar í góðum hópi. Alltaf er heitt á könnunni og ilmandi bakkelsi frá Guðnabakaríi. Allir eru velkomnir.
Selfyssingar taka á móti Aftureldingu í athyglisverðum leik á Selfossvelli föstudaginn 4. september kl. 18.30. Ef Selfoss sigrar eða gerir jafntefli, tryggja þeir sér sæti í efstu deild í fyrsta sinn í sögunni. Jafnframt fellur Afturelding ef Selfoss sigrar í leiknum. Selfyssingar unnu glæsilegan 0-4 sigur á Fjarðabyggð í síðasta leik, en Afturelding tapaði 1-3 fyrir HK í sömu umferð.
Guðmunda Brynja Óladóttir, leikmaður meistaraflokks Selfoss, hefur verið valin í u-17 ára landsliðshóp Íslands í knattspyrnu. Gumma lék flesta leiki meistaraflokks Selfoss á þessu ári, auk þess sem hún leikur með 3. flokki. Æfingar standa yfir þessa dagana hjá stelpunum. Þær eru að fara að keppa í riðlakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu sem fram fer á Íslandi dagana 4. - 9. september. Í riðli með íslensku stelpunum eru Þjóðverjar, Frakkar og Ísraelar.
Stefán Ragnar Guðlaugsson og Guðmundur Þórarinsson, leikmenn meistaraflokks Selfoss, voru báðir valdir í u-19 ára landslið Íslands sem leikur tvo landsleiki við Skotland ytra 7. og 9. september. Er þetta mikill heiður fyrir strákana sem hafa spilað flesta leiki Selfoss í sumar. Þeir félagar halda til liðs við landsliðið laugardaginn 5. september og degi seinna heldur svo landsliðið út til Skotlands. Landsliðið kemur til baka fimmtudaginn 10. september.
Arilíus Marteinsson leikmaður Selfoss var valinn leikmaður 19. umferðar í 1. deild karla á fotbolti.net. Alli er vel að þessari tilnefningu kominn. Hann sýndi frábæran leik fyrir austan er Selfyssingar unnu Fjarðabyggð 0-4, skoraði eitt mark og annað sem var dæmt af. Arilíus er 25 ára á þessu ári og hefur ávalt leikið með Selfossi í deildarkeppni á Íslandi. Hér að neðan er hægt að klikka á viðtal við Arilíus sem fotbolti.net tók við hann.
Meistaramót Íslands 15-22 ára fór fram í Kópavogi helgina 29-30 ágúst sl. Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss sendi vaskt lið til keppni sem stóð sig mjög vel og var afrakstur helgarinnar 4 gullverðlaun, 4 silfurverðlaun og 5 bronsverðlaun auk 10 persónulegra meta og HSK-mets í stúlknaflokki.
Flest lið eiga sitt stuðningslag sem stuðningsmenn syngja gjarnan þegar þeir koma saman. Nokkur undanfarin ár hefur Selfoss notast við lagið „Go west" sem Pet Shop Boys sungu. Mörg stærstu knattspyrnuliðin í Englandi og á meginlandi Evrópu nota þetta lag, enda laglínan lipur til söngs. Nú hefur verið hresst enn frekar upp á lagið og bætt við það erindi.
Nokkra lykilleikmenn vantaði í lið Selfyssinga sem fór austur á Eskifjörð og vann Fjarðabyggð 0-4 í skemmtilegum leik. Frændurnir Einar Ottó og Jón Guðbrands voru í banni, Hjörtur Júlíus var slakur með kvennalandsliðinu í Finnlandi og 10 mínútum fyrir leik fann Sævar Þór að hann var ekki orðin góður af meiðslum sínum. Þeir sem komu inn í liðið fyrir þessa fjóra stóðu sig gríðarlega vel og átti sinn þátt í að Selfoss rúllaði yfir Fjarðabyggð.

Eftir góðan 3-1 sigur á Leikni í síðustu umferð mætir Selfossliðið nú Fjarðabyggð í sannkölluðum toppslag í 1. deildinni í knattspyrnu. Fjarðabyggð vann góðan sigur um síðustu helgi á HK í Kópavogi. Selfyssingar sitja á toppi deildarinnar með 38 stig og Fjarðabyggð er með 32 stig í 3.-4. sæti deildarinnar. Leikurinn verður leikinn á Eskifjarðarvelli á laugardag og hefst kl. 14.00. Ljóst er að Selfyssingar eiga harma að hefna frá leik liðanna fyrir austan í fyrra.
Verið er að vinna úr skráningu í fimleika fyrir haustið 2009. Sem fyrr er mjög mikil aðsókn í deildina og biðjum við foreldra um að sýna biðlund til að hægt sé að koma stundaskránni saman. Æfingatímar barnanna verða sendir út á netföng foreldra um helgina. Æfingar hefjast samkvæmt stundaskrá mánudaginn 31. ágúst.
Seinskráningar verða teknar fyrir í næstu viku þegar starfið er farið af stað.
Seinni úrslitaleikur Selfoss í keppni um að fara upp í efstu deild kvenna var leikinn að Ásvöllum í Hafnarfirði í dag. Þar mættu stelpurnar frá Selfossi Haukum, en fyrri leikinn unnu Haukar 1-2 á Selfossvelli. Ljóst var að róðurinn yrði þungur fyrir Selfyssinga og að þær yrðu að vinna leikinn 2-3 eða 0-2, því samanlögð markatala gildir og útivallarmörk geta ráðið úrslitum.
Stelpurnar í 5. flokki Selfoss eru á mikilli siglingu þessa dagana. Um helgina tryggði B-liðið sér þátttöku í úrslitakeppni Íslandsmótsins með glæsilegum sigri á KR-stelpum. A-liðið sigraði einnig KR um helgina, en þurfti að leika hreinan úrslitaleik við FH um sæti í úrslitakeppninni. Þar töpuðu þær naumlega.
Um helgina var haldið hið árlega Skallagrímsmót 7. flokks í Borgarnesi. Strákarnir frá Selfossi fóru mikla sigurferð og voru með bestan árangur allra liða. Selfoss sendi þrjú lið til keppni. C-liðið hafnaði í 2. sæti, B-liðið gerði sér lítið fyrir og vann sitt mót og A-liðið gerði slíkt hið sama. Þeir unnu mótið á markatölu eftir að hafa gert jafntefli við ÍA í hreinum úrslitaleik. Þjálfari strákana er Gunnar Borgþórsson.
Stelpurnar í meistaraflokki Selfoss tóku á móti Haukum í fyrri leik liðanna í úrslitakeppni 1. deildar í knattspyrnu. Eftir hörkuleik þar sem Selfyssingar komust yfir náðu Haukar að knýja fram sigur 1-2. Mark Selfoss skoraði Rakel Ýr Gunnlaugsdóttir eftir fallega sókn.
Selfyssingar unnu virkilegan góðan sigur á Leiknismönnum á föstudag. Eftir að Selfyssingar komust í 1-0 náðu Breiðhyltingar að jafna og þannig var staðan í hálfleik. Selfyssingar sýndu svo mjög þroskaðan leik í seinni hálfleik, héldu áfram að láta boltann ganga og að lokum opnaðist vörn gestanna og heimamenn skoruðu tvö mörk.
Æfingatímar handknattleiksdeildar eru klárir og hefjast æfingar mánudaginn 24. ágúst samkvæmt stundaskrá. Eins og áður hefur komið fram fær deildin ekki eins marga tíma í íþróttahúsum bæjarins og hún telur sig þurfa til að geta haldið úti fullri starfsemi. Því þurfa nokkrir flokkar að æfa saman. Yngriflokkaráð vill bjóða nýja þjálfara velkomna til starfa og allir iðkendur síðasta árs ásamt nýjum iðkendum eru jafnframt boðnir velkomnir.
Handboltaæfingar yngri flokka hefjast í næstu viku samkvæmt töflu. Æfingataflan verður hengd upp í skólum á mánudaginn. Einnig verður hún auglýst hér á vefnum og í Dagskránni í næstu viku. Foreldrafundur verða í byrjun september og er mikilvægt að við fáum sem flesta foreldra á þann fund til að kynna starfið.
Næsti leikir Selfoss í 1. deild er gegn Leikni á Selfossvelli föstudaginn 21. ágúst kl. 18.30. Bæði lið töpuðu sínum leikjum 1-0 í síðustu umferð, Selfoss fyrir Þór á Akureyri og Leiknir fyrir HK í Breiðholti. Selfyssingar leiða deildina með 35 stig, en Leiknismenn eru í 6. sæti með 24 stig.
Ragnarsmótið verður haldið daganna 9.-12. september í íþróttahúsi Vallaskóla. Mótið er nú haldið í 20 skipti og má því segja að um stórafmæli sé að ræða. Ragnarsmótið hefur verið besta æfingamót landsins í mörg ár og svo eftirsótt að yfirleitt er mótið fullt um mitt sumar ár hvert. Dagskrá mótsins má sjá hér að neðan.
Selfyssingar töpuð 1:0 fyrir Þór á Akureyri s.l. þriðjudagskvöld. Selfyssingar voru mun meira með boltann, sköpuðu sér fleiri færi, en stundum er það ekki nóg. Þrátt fyrir tapið sitja Selfyssingar enn í efsta sæti deildarinnar, einu stigi á undan Haukum.
Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir á íþróttavallarsvæðinu á Selfossi frá því í vor. Aðalvöllurinn og hluti af æfingasvæðinu voru tekin upp og skipt um undirlag ásamt því að völlurinn á æfingasvæði 1 var lagfærður og settar manir í kringum hann. Í aðalvöllinn voru settar draglagnir, hitakerfi og lagnir fyrir vökvunarkerfi. Ákveðið var að sá í völlinn til að fá þéttara og betra gras. Fengnir voru sérfræðingar í grasafræðum til annast framkvæmdina. Fengið var sérvalið grasfræ, sem hentar vel á knattspyrnuvöllum. Stefnt er að því að völlurinn verður tekin í notkun um mitt næsta sumar og verður hann þá með bestu knattspyrnuvöllum á landsins.
Strákarnir í 6. flokki D-liða urðu á sunnudag Íslandsmeistarar í knattspyrnu á suðvesturlandi. Strákarnir stóðu sig virkilega vel og gerðu sér lítið fyrir og unnu alla sína leiki. Í úrslitakeppninni unnu þeir Stjörnuna 3-2, Hauka 6-4 og Aftureldingu 7-2. Með þessum glæsilega árangri voru þessir yngstu knattspyrnuiðkendur komnir í sjálfan úrslitaleikinn og þar mættu þeir ÍBV og gerðu sér lítið fyrir og unnu eyjapeyja 4-0. Strákarnir skoruðu því alls 20 mörk í úrslitakeppninni og greinilega margir efnilegir gaurar í þessum flokki. Þjálfarar strákanna eru þeir Stefán Ragnar Guðlaugsson og Árni Páll Hafþórsson.

Nú er ljóst hverjir verða mótherjar Selfoss í úrslitakeppni 1. deildar kvenna í knattspyrnu. Eftir 2-0 tap gegn sameinuðu liði HK/Víkings í Kópavogi, lentu stelpurnar í 3. sæti og fá þær lið Hauka í 8-liða úrslitum. Góður árangur Selfoss á sínu fyrsta ári í 1. deild hefur vakið athygli, en þær hafa aðeins tapað gegn efsta liðinu HK/Víkingi.

Eftir 1-6 stórsigur á Víkingi Ólafsvík í síðustu umferð mæta Selfyssingar Þórsurum á Akureyri þriðjudaginn 18. ágúst kl. 18.30 í 17. umferð Íslandsmótsins. Þórsarar töpuðu 3-0 fyrir HK í síðustu umferð eftir að hafa verið á góðu flugi undanfarið. Selfoss er á toppi deildarinnar með 35 stig, en Þór er í 8. sæti með 21 stig.
Selfyssingar fóru vestur á Ólafsvík til að leika sinn leik í 16. umferð 1. deildar í knattspyrnu. Strákarnir voru minnugir þess að hafa tapað þar 4-3 í fyrra í aftakaveðri og ætluðu ekki að láta leikinn endurtaka sig. Sást það strax á fyrstu mínútum leiksins. Veðrið var algjör andstæða þess sem boðið var uppá í fyrra og spiluðu Selfyssingar í takt við það. Þegar dómari leiksins flautaði leikinn af var ljóst að frábær 1-6 sigur Selfyssinga á Víkingi frá Ólafsvík var staðreynd. Sævar Þór skoraði tvö, Hjörtur, Arilíus og Stefán Ragnar sitt markið hver og eitt marka Ólsara var sjálfsmark eftir góða sendingu frá Gumma Tóta.
Fimmtudagskvöldið 13. ágúst var haldið veglegt hóf í Tíbrá, félagsheimili Ungmennafélags Selfoss. Það var Hafsteinn Þorvaldsson, heiðursfélagi Umf. Selfoss, sem stóð fyrir hófinu. Hófið var m.a. haldið til að heiðra minningu eiginkonu hans Ragnhildar Ingvarsdóttur sem hefði orðið 80 ára þennan dag. Auk fjölskyldu Hafsteins mættu í hófið fulltrúar sjö deilda innan Umf. Selfoss, formaður Umf. Biskupstungna, formaður Umf. Vöku og formaður og framkvæmdastjóri HSK. Hafsteinn afhendi þessum aðilum, tíu talsins, peningastyrk að upphæð 100.000 kr. hver.
Yngri flokkaráð handknattleiksdeildar hefur ráðið Stefán Árnason sem þjálfara 4. flokks karla. Stefán er einn fremsti unglingaþjálfari landsins hann hefur þjálfað KA undanfarin ár með topp árangri og hann var aðstoðarþjálfari úrvalsdeildarliðs Akureyrar á s.l. leiktíð. Hann er bróðir Adda þjálfara sem hefur gert frábæra hluti í yngri flokka starfinu á Selfossi og sonur Árna Stefánssonar þjálfara HK í meistaraflokki. Stefán hyggur á nám við íþróttakennaraskólann á Laugarvatni næstu 3 árin og verður því vonandi hjá okkur a.m.k. næstu þrjú árin. Æfingar í 4. flokki karla hefjast í vikunni.
Sjö strákar frá Selfossi komu heim í gær eftir 10 daga dvöl í hinum virta Bobby Charlton knattspyrnuskóla í Englandi. Haldin er knattþrautakeppni á vegum skólans og stóðu Selfyssingarnir sig vel þar. Haukur Ingi Gunnarsson og Ísak Eldjárn Tómasson komust báðir í 8 manna úrslit og gerði Haukur Ingi sér lítið fyrir og vann keppnina. Fyrir 1. sætið var Hauk Inga boðið að koma út til Manchester og taka þátt í lokakeppni þar.
Olísmótinu í 5. flokki drengja lauk á Selfossi á sunnudaginn með verðlaunahátíð. FH, Þróttur, Keflavík, KR og Grótta unnu til flestra verðlauna á mótinu. Um 450 strákar kepptu á Olísmótinu í 48 liðum frá 12 félögum. Því miður var ekki hægt að taka á móti öllu liðum þetta árið vegna vallarframkvæmda á Selfossvelli. Á næsta ári er stefnt að því að stækka mótið og gera það enn flottara.
Mánudaginn 10. ágúst hefjast aftur æfingar hjá yngstu flokkum knattspyrnudeildar eftir stutt sumarfrí. Æfingar verða á hefðbundnum tímum og má sjá æfingatíma flokkanna til hliðar á knattspyrnusíðunni undir Æfingatímar sumar 2009. Sjáumst hress á vellinum. Kv. þjálfarar
Olísmót 5. flokks stráka í fótbolta hófst á Selfossvelli í gær. Eins og undanfarin 3 ár eru 48 lið sem spila á mótinu, en leikið er á 6 völlum. Því miður var ekki hægt að taka á móti öllum liðum sem vildu vera með, því miklar framkvæmdir standa nú yfir á Selfossvelli. En á Olísmótinu 2010 verður spilað á 11 völlum og verður mótið því enn stærra og flottara.
Selfyssingurinn Þórir Ólafsson atvinnumaður í handbolta hjá TUS-N-Lübbecke í þýsku úrvalsdeildinni hefur verið gerður að fyrirliða liðsins. Þórir er að hefja sitt fimmta tímabil hjá liðinu og er reynslumesti leikmaður liðsins. Liðið hefur æft að kappi í 3 vikur og tekur um helgina þátt í móti í Póllandi. Þórir hefur átt fast sæti í landslisðhópi Guðmundar Guðmundssonar síðastliðið ár og hefur sett stefnuna á Heimsmeistaramótið sem haldið verður í Austurríki í janúar n.k.
Fallinn er frá góður félagi, Njáll Skarphéðinsson, langt fyrir aldur fram. Njáll var bráðkvaddur í sumarbústað fjölskyldu sinnar aðeins 49 ára að aldri. Njáll starfaði í stjórn knattspyrnudeildar Selfoss á árunum 1988-1992 eða alls í fimm ár. Þar af var hann formaður deildarinnar í þrjú ár, frá 1990-1992. Á þessum árum var liðið í B-deild og gerði atlögu að efstu deildar sæti.
Nú þegar Íslandsmótið er rúmlega hálfnað er ekki úr vegi að skyggnast aðeins inn í hugarheim þjálfara meistaraflokks Selfoss til þess bæði að fara yfir það sem af er móti og eins rýna í framhaldið. Gunnlaugur Jónsson gaf sér klukkutíma eftir æfingu á dögunum og svaraði vel ígrunduðum spurningum blaðamanns umfs.is vefmiðilsins.
Olísmót knattspyrnudeildar Selfoss verður sett föstudaginn 7. ágúst kl. 14.00 á Selfossvelli. Liðin sem keppa í ár eru 48 talsins og er það óbreyttur fjöldi frá fyrri árum. Því miður var ekki hægt að taka á móti öllum þeim liðum sem vildu koma núna. Árið 2010 verður hægt að stækka mótið umtalsvert, en nú standa yfir framkvæmdir á vallarsvæðinu og verða 6-7 nýjir vellir fyrir 7 manna bolta teknir í notkun á vallarsvæðinu á næsta ári.

Eftir tvo góða sigurleiki í röð leiða Selfyssingar deildina með 7 stiga forystu á næsta lið sem er Haukar. Þar fyrir neðan í 3. sæti er svo lið HK úr Kópavogi 9 stigum á eftir Selfyssingum, en þessi lið mætast á Selfossvelli fimmtudaginn 6. ágúst kl. 19.00. En einn stórleikur Selfyssinga í deildinni, en þeir hafa staðist hverja prófraunina á fætur annarri í ár.
Fyrir nokkru kom upp sú hugmynd að bjóða til sölu Selfoss útifána. Þá gætu menn flaggað heima hjá sér á leikdögum eða þegar eitthvað er um að vera hjá félaginu. Nú höfum við komið hugmyndinni í framkvæmd. Hægt er að kaupa fána (1x1,5m) á skrifstofu félagsins. Hvítir fánar með vínrauðu Selfossmerki kosta 4.500 kr. og vínrauðir fánar með hvítu merki kosta 7.500 kr. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins s. 482 2477 eða hjá framkvæmdastjóra s. 897 6323.
Rúv hefur ákveðið að sýna stórviðburð þann sem úrslitaleikur Íslands og Króatíu er. Útsending hefst á morgun klukkan 19.30 og hvetjum við alla og ekki síst Selfyssinga að horfa á þennan leik.
http://mbl.is/mm/sport/handbolti/2009/07/30/urslitaleikur_islands_og_kroatiu_i_beinni_a_ruv/
Áfram Ísland!
Selfyssingar juku forskot sitt í 7 stig í 1. deildinni í knattspyrnu í gær er þeir unnu Víkinga í Víkinni. Víkingar sem höfðu unnið fjóra leiki í röð er þeir mættu Selfyssingum fundu fáar leiðir framhjá skipulagðri vörn Selfoss. Athyglisvert er að þetta er fjórði sigur Selfyssinga á Víkingum á rúmu ári.
Rétt í þessu var Ísland að vinna heimamenn í Túnis, 33-31 eftir að hafa verið undir í hálfleik 14-15. Þeir mæta Króötum á föstudaginn kemur. Raggi komst ekki á blað og tók aðeins eitt skot í leiknum. Hann á því vonandi eitthvað inni fyrir leikinn á föstudaginn. Áfram Ísland!
Fyrr í dag vann Ísland lið Noregs á heimsmeistaramótinu sem haldið er í Túnis. Ísland hefur unnið til þessa á mótinu, Púertó Ríkó, Frakkland og Brasilíu, en tapaði í hörkuleik gegn Svíum þar sem Ragnar okkar Jóhannsson skoraði 10 mörk. Ísland vann eins og fyrr segir Noreg og voru lokatölur 43-37 eftir að Norðmenn leiddu í hálfleik 21-20.
Eins og undanfarin sumur hefur KSÍ verið með frí á leikjum sínum á Íslandsmótinu hjá yngri flokkum vikuna fyrir verslunarmannahelgi og vikuna eftir verslunarmannahelgi. Þetta hefur mælst vel fyrir og nú eru þessar 2 vikur teknar alveg í frí hjá yngri flokkum knattspyrnudeildar Umf. Selfoss.
Stelpurnar í 3. flokki Selfoss í knattspyrnu gerðu sér lítið fyrir og unnu Denmark Football Festival sem fram fór í vikunni. Stelpurnar unnu fjóra leiki í riðlakeppninni, gerðu eitt jafntefli og komust áfram í fjögrra liða úrslit á markatölu.
Stelpunar í Selfossi unnu Fjarðabyggð/Leikni 6-0 í leik liðanna í 1. deild í dag. Með þessum sigri komust stelpurnar í 2. sæti 1.deildar A. Eins og tölur leiksins gefa til kynna var leikurinn langt frá því að vera jafn og yfirburðir Selfoss miklir. Í gær tryggðu stelpurnar sér sæti í úrslitunum með jafntefli við Hött frá Egilsstöðum og kom þær því heim úr vel heppnaðri austfjarðarferð með 4 stig í poka.
Selfyssingar tóku á móti ÍR-ingum á heimavelli sínum á Selfossi í dag. ÍR byrjaði undan sterkum vindi, en það voru þó Selfyssingar sem voru með undirtökin í fyrri hálfleik. Aðallega voru það hornspyrnur þeirra sem reyndust ÍR-ingum erfiðar. Fyrri hálfleikur var samt heilt yfir ekki opin og bauð ekki upp á mjög mikið. Vörn Selfoss hélt aftur af sóknarmönnum ÍR í rokinu og voru einungis skráð tvö færi í fyrri hálfleik.

Eftir ósigur í síðustu umferð gegn KA norður á Akureyri, taka Selfyssingar á móti Breiðholtsstrákunum í ÍR á heimavelli Selfoss. ÍR vann HK í hörkuleik í síðustu umferð með þremur mörkum gegn einu. Með þessum sigri eru ÍR komnir í 7. sæti með 16 stig, en Selfyssingar sitja á toppi deildarinnar með 26 stig.
Í 3. flokki léku strákar fæddir 1991 og 1992 og saman stendur hann af hópi ungra drengja sem gríðarlega gaman er að þjálfa og þekkja. Metnaður þessa hóps er mikill og hefur sá hann skilað sér hægt og bítandi í gegnum árin. Tvö lið voru að venju skráð til leiks frá Selfossi í þessum aldursflokki, lék annað lið í efri deild og hitt í þeirri neðri. Liðin er að öllu jöfnu kölluð 91 liðið og 92 liðið.
Í lok júnímánaðar fór 4. flokkur karla í handbolta til Gautaborgar til að taka þátt í hinu árlega handboltamóti, Partille Cup. Alls fóru 27 leikmenn, eða þrjú lið, ásamt fjórum fararstjórum og einum þjálfara. Svo vel tókst til í þessari ferð að mynduð var Þjóðstjórn á meðal fararstjóra og þjálfara. Þjóðstjórn þessi fékk nafnið ÞÁS og vakti hún mikla og verðskuldaða athygli.
Selfyssingarnir Guðmundur Þórarinsson og Jón Daði Böðvarsson skoruðu báðir í 3-3 jafntefli u-18 ára landsliðs Íslands sem lék við Svíþjóð í gær. Að þessu sinni var Gummi í byrjunarliðinu, en Jón Daði kom inná og skoraði síðasta mark Íslands. Í síðasta leik voru þeir báðir í byrjunarliði Íslands og ljóst að þjálfari Íslands, Kristinn R. Jónsson, leggur mikið traust á þá félaga.
Sóknarmaðurinn Hjörtur Júlíus Hjartarson gekk í dag í raðir Selfyssinga frá Þrótt í Reykjavík. Mikill fengur er fyrir ungt Selfossliðið að fá þennan reynslubolta í seinni umferð Íslandsmótsins. Þegar mótið er hálfnað, leiða Selfyssingar deildina með 6 stiga forskot. Hjörtur hefur leikið níu leiki með Þrótti á tímabilinu, þar af sex í byrjunarliði og skorað í þeim 2 mörk.
Selfyssingar unnu glæsilegan 1-2 sigur á Skagamönnum í 1. deildinni í knattspyrnu, en leikið var á Akranesi. Fjóra leikmenn vantaði í Selfossliðið, þá Gumma Tóta og Jón Daða sem eru að leika með u-18 ára landsliðinu, Sigga Eyberg sem er í banni og Jón Guðbrands sem var meiddur. Ljóst var að leikurinn yrði erfiður, þar sem Skagamenn hafa aðeins náð í 12 stig á Íslandsmótinu í ár og þeir lögðu leikinn upp sem hálfgerðan úrslitaleik.
Selfyssingar halda upp á Skipaskaga og leika þar við heimamenn í ÍA þriðjudaginn 14. júlí og hefst leikurinn kl. 20.00. Skagamenn töpuðu gegn HK 2-1 í síðustu umferð, en í sömu umferð gerðu Selfyssingar jafntefli við Hauka 2-2 í toppslag 1. deildar. Selfyssingar eru því á toppi deildarinnar með 23 stig, en ÍA er í 8. sæti með 12 stig.
Meistaraflokkur kvenna gerði jafntefli við Sindra frá Hornafirði 1-1 á heimavelli í gær. Stelpurnar voru búnar að vinna austanstelpur tvisvar í ár og því öruggt að um hörkuleik yrði að ræða. Sindrastelpur skoruðu í upphafi leiks, en Selfyssingar jöfnuðu á lokamínútunni. Þetta þýðir að Selfoss er enn í 2. sæti með 13 stig, en Sindri er í 4. sæti með 7 stig.
Uppgjöri toppliðanna Selfoss og Hauka í 1. deild karla lauk með 2-2 jafntefli og eru Selfyssingar því enn á toppnum með þriggja stiga forskot á Hauka. Selfyssingar gerðu þrjár breytingar á liði sínu frá síðasta leik gegn Aftureldingu, en leikið er þétt þessa dagana. Stefán Ragnar kom inn fyrir Gulla, Einar Ottó kom inn fyrir Jón Guðbrands og Gummi Tóta kom inn fyrir Jón Daða.

Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu tekur á móti Sindra frá Hornafirði, laugardaginn 11. júlí kl. 16.00. Eftir tap í síðasta leik reynir nú á stelpurnar og í ljós kemur úr hverju þær eru gerðar. Þrátt fyrir tap í síðasta leik eru stelpurnar í 2. sæti 1. deildar með 12 stig.
Jón Daði Böðvarsson og Guðmundur Þórarinsson voru valdir í u-18 ára landslið Íslands í knattspyrnu. Liðið heldur til Svíþjóðar, mánudaginn 13. júlí og taka strákarnir þátt í æfingamóti þar. Önnur lið sem keppa á æfingamótinu eru Svíþjóð, Noregur og Walse, en mótinu líkur sunnudaginn 19. júlí. Þetta þýðir það að strákarnir munu að öllum líkindum missa af tveimur leikjum hjá meistaraflokki karla á Íslandsmótinu. Hér að neðan má sjá landsliðshópinn sem þjálfari u-18 Kristinn R. Jónsson valdi.

Selfoss tekur á móti Haukum í 1. deild karla í knattspyrnu og fer leikurinn fram fimmtudaginn 9. júlí kl. 20.00 á Selfossvelli. Þetta er sannkallaður toppslagur, því Selfyssingar eru með 22 stig á toppi deildarinnar og Haukar með 19 stig í 2. sæti. Liðin komu saman upp úr 2. deild fyrir tveimur árum og eiga því að þekkjast vel. Selfoss vann Aftureldingu 0-4 í síðasta leik og Haukar unnu HK á Ásvöllum 2-1.
Eftir að hafa leitt 0-2 í hálfleik gegn Víkingum í Víkinni stóð ekki steinn við steini hjá strákunum í 2. flokki Selfoss/KFR í seinni hálfleik og Víkingar unnu leikinn 3-2 með sigurmarki á síðustu mínútu leiksins.
Laugardaginn 27. júní var haldið Aldursflokkamót HSK í frjálsum 11-14 ára á flotta frjálsíþróttavellinum í Þorlákshöfn í frábæru veðri s.s. við toppaðstæður. Krakkarnir frá Selfossi stóðu sig rosalega vel á mótinu, þau enduðu í öðru sæti í heildarstigakeppninni en það vantaði nokkra keppendur frá okkur sem munaði mikið um. Árangur einstakra keppenda var sem hér segir:
Selfoss og Breiðablik áttust við í úrslitaleik N1 mótsins í knattspyrnu sem fram fór á KA velli á Akureyri fyrir framan 1000 manns, nú rétt í þessu. Fyrir leik var spilaður íslenski þjóðsöngurinn, en það hefur verið hefð fyrir því í nokkur ár. Eftir að Selfyssingar komust yfir 1-0 í leiknum og virtust vera sterkari, þá náðu Blikar að jafna fljótlega í seinni hálfleik og þeir skoruðu svo sigurmarkið seint í seinni hálfleik.
Strákarnir í A-liði 5. flokks í knattspyrnu eru að gera góða hluti á N1 mótinu í knattspyrnu, en það er sterkasta knattspyrnumótið sem haldið er fyrir þennan aldursflokk. Strákarnir sem eru fæddir 1997 og 1998 unnu riðilinn sinni fyrr í vikunni og urðu Breiðabliksstrákarnir í 2. sæti í riðlinum. Þessi tvö lið komust því í átta liða úrslit, en HK, Þór Akureyri, Keflavík og ÍBV sátu eftir.
Sævar Þór Gíslason skoraði sitt 100. mark í deildarkeppni fyrir Selfoss er hann skoraði þriðja mark sitt í kvöld gegn Aftureldingu og fjórða mark hans varð því mark númer 101 fyrir Selfoss í deild.
Selfyssingar skelltu sér aftur á topp 1. deildar í knattspyrnu með öruggum sigri á Aftureldingu. Með þessum sigri eru Selfyssingar áfram í efsta sæti með 22 stig. Haukar fylgja í humátt á eftir með 19 stig. Það var markahrókurinn Sævar Þór Gíslason sem skoraði öll mörk Selfoss í 0-4 sigri þeirra í kvöld. Sævar Þór er þar með komin á toppinn í keppni um markakóngstitilinn með 9 mörk. Það var ekki að sjá á liðinu að þeir Stefán Ragnar og Einar Ottó hafi verið í banni, en þeir tveir hafa spilað frábærlega í sumar. Gulli og Ómar þjálfarar Selfoss sýndu enn og aftur kjark er þeir gáfu einum af ungu leikmönnum Selfoss tækifæri í byrjunarliðinu. En Jón Daði Böðvarsson sem skoraði 4 mörk og lagði upp 1 í sigurleik gegn Stjörnunni í 2. flokki fyrr í vikunni stóð svo sannarlega undir væntingum með spilamennsku sinni í kvöld.
Knattspyrnunámskeið fyrir börn fædd 1995-1998, hefst mánudaginn 6. júlí. Námsskeiðið stendur yfir í tvær vikur og er frá kl. 9.00-12.00 virka daga. Áhersla verður á sendingar og skot. Hægt verður að kaupa eina viku á námsskeiðið og skiptir ekki máli hvor vikan er valin. Námsskeiðið kostar: 9.000 kr. fyrir 2 vikur og 5.000 kr. fyrir 1 viku. Glaðningur er fyrir þá sem eru 2 vikur.
Strákarnir í 5. flokki eru að gera góða hluti á N1 mótinu í knattspyrnu sem fram fer á Akureyri þessa dagana. A-liðið vann A-riðilinn með góðum sigri á Keflavík í morgun. Strákarnir urðu þar með í efsta sæti með 12 stig. Í 2. sæti varð Breiðablik, í 3. sæti HK, í 4. sæti Þór Akureyri, í 5. sæti ÍBV og í 6. sæti varð Keflavík.
Stelpurnar í meistaraflokki kvenna töpuðu sínum fyrsta leik á Íslandsmótinu í gær er þær fengu sameinað lið HK og Víkings í heimsókn. Leikurinn endaði 0-4 fyrir gestina og áttu Selfyssingar ekki mikið í leiknum eins og tölurnar gefa til kynna. HK/Víkingur er því með fullt hús stiga eftir fyrri umferð. Selfyssingar unnu alla aðra leiki í fyrstu umferð sem er frábært á þeirra fyrsta ári í meistaraflokki.
Kvennalandslið stelpna u-17 ára með Selfyssinginn Guðmundu Brynju Óladóttur innanborðs tapaði öllum þrem leikjum sínum á Norðurlandamótinu í knattspyrnu sem fram fór í Svíþjóð. Stelpurnar töpuðu fyrir Norðmönnum, Þjóðverjum og gær fyrir Hollendingum. Nokkrar stelpur í liðinu eru eins og Gumma aðeins 15 ára og er þetta því dýrmæt reynsla fyrir þær. Hér að neðan má sjá umfjöllun um síðasta leikinn í riðlinum, en þær voru mjög óheppnar að tapa honum. Eins er mynd af byrjunarliðinu og er Gumma númer 9 í íslenska liðinu.
Strákarnir í 4. flokki Selfoss í knattspyrnu eru enn taplausir í B-riðli Íslandsmótsins eftir góðan 4-0 sigur á Víkingi frá Reykjavík í dag. Það voru þeir Haukur Ingi 3 og Birkir Péturs 1 sem skoruðu mörk Selfoss og var sigurinn síst of stór.

Selfyssingar leggja leið sína í Mosfellsbæ á föstudaginn og spila þar við Aftureldingu. Leikurinn hefst kl. 20.00 og verður þetta lokaleikur í 9. umferðar 1. deildar. Selfyssingar sitja á toppi deildarinnar með þriggja stiga forskot á Hauka. Afturelding er í næst neðsta lið deildarinnar, en þeir eru með 6 stig ásamt Þór Akureyri og Víkingi Ólafsvík.


Selfyssingar taka á móti sameinuðu liði HK og Víkings í uppgjöri efstu liðanna í 1. deild kvenna í knattspyrnu. Liðin eru efst og jöfn með 12 stig og hafa bæði lið unnið 4 leiki. Leikurinn fer fram á Selfossvelli fimmtudaginn 2. júlí og hefst kl. 20.00.
Starfsemi íþrótta-og útivistarklúbbsins í sumar hefur gengið mjög vel. Námskeiðin sem eru fjölbreitt hafa verið mjög vel sótt og fá börnin að prófa hinar ýmsu greinar undir leiðsögn góðra þjálfara. Farið er í handbolta, frjálsar, júdó, fimleika, fullt af leikjum, í sund og svo er alltaf skemmtielg lokaferð í seinni vikunni. Hvert námskeið stendur í tvær vikur en einnig er hægt að hafa börnin í eina viku í senn. Meðfylgjandi myndir eru úr síðustu lokaferð.
Strákarnir í 2. flokki Selfoss/KFR tóku á móti toppliði Stjörnunnar/Álftaness á Selfossvelli í gær. Strákarnir gerðu sér lítið fyrir og unnu 5-3, eftir að hafa komist í 5-1. Jón Daði Böðvarsson var í ham í leiknum og skoraði 4 mörk og það var Ingvi Rafn Óskarsson sem skoraði 1 mark fyrir Selfoss. Annars spiluðu allir strákarnir mjög vel í leiknum og var virkilega gaman að sjá nokkrar mjög góðar sóknir í leiknum og eins baráttuandann í liðinu.
Um helgina fóru 30 strákar fæddir 1999 og 2000 á Shell-mót 6. flokks í Vestmannaeyjum. Mótið tókst í alla staði vel. Þetta var stíf dagskrá frá miðvikudeigi til sunnudags. Selfoss var með þrjú lið á mótinu og spiluðu strákarnir 10 leiki við hin ýmsu félög ásamt því að fara í rútuferð um eyjuna og sigla inn í sönghellir. Þar var hlustað var á saxafón leik. Einnig var farið í sprang, sund og á fiskasafnið. Gabríel Werner Guðmundsson (markmaður) var valinn í landsliðið og tók þátt í skemtilegum leik á milli pressuliðsins og landsliðsins sem að landsliðið vann.
Selfyssingar unnu frábæran karaktersigur á Fjarðabyggð á laugardaginn. Eftir að Stefán Ragnar hafði fengið óverðskuldað rautt spjald og Fjarðabyggð komist yfir í kjölfarið náðu Selfyssingar að jafna fyrir hlé. Heimamenn mættu svo mun ákveðnari til leiks í síðari hálfleik og Sævar Þór tryggði Selfoss sigur með öðru marki sínu í leiknum.
Aldursflokkameistaramót Íslands (AMÍ) fór fram á Akureyri helgina 25.-28. júní. Mótið er stærsta barna- og unglingamót á Íslandi og er þekkt fyrir skemmtilegt yfirbragð, mikinn fjölda keppenda, harða keppni og mikla upplifun fyrir unga sundmenn. Gist er í skólum og er sundlaugin alltaf skammt undan. Lágmörk mótsins eru frekar ströng þannig að aðeins vanir sundmenn eiga tök á að ná þeim.
Ágústa Tryggvadóttir keppti á sterku alþjóðlegu fjölþrautarmóti í Kaldo í Tékklandi dagana 23. og 24. júní. Alls kepptu 12 stúlkur í kvennaflokki og lenti Ágústa í 10. sæti með 4.848 stig sem er besti árangur sem hún hefur nokkru sinni náð og bæting um 181 stig.

Selfyssingar taka á móti Fjarðabyggð laugardaginn 27. júní kl. 14.00 á Selfossvelli. Selfyssingar eru einir á toppi deildarinnar, þrátt fyrir sitt fyrsta tap í síðasta leik. Fjarðarbyggð eru í 2.-3. sæti ásamt Haukum og eru liðin þremur stigum á eftir Selfossi. Drengirnir að austan eru á mikilli siglingu þessa dagana. Eftir að tap í fyrstu tveimur leikjum sínum, hafa þeir ekki tapað leik í deild og bikar.
Eijlert Björkman aðalþjálfari unglingaakademíu Gautaborgar verður á Selfossi næstu tvær vikurnar og mun bæði vera með knattspyrnuskóla og eins námskeið fyrir þjálfara Selfoss og þjálfara nágrannafélaganna. Eftir heimsókn Selfyssinga til Gautaborgar í vor, var ákveðið að Eijlert Björkman kæmi til landsins, en félögin eru með vinarsamstarf sín á milli. Er hann annar starfsmaður IFK Gautaborgar sem kemur hingað í sumar.
Ágústa Tryggvadóttir stóð sig mjög vel í Evrópubikarkeppni landsliða, 3. deild, sem haldin var í Sarajevo helgina 20.- 21. júní sl. Hún stökk 1,68 m í hástökki í fyrstu tilraun og krækti sér í bronsverðlaun ásamt stúlku frá Lúxemborg sem stökk sömu hæð. Stúlka frá Ísrael stökk hæst allra þegar hún vippaði sér yfir 1,82 m, en alls kepptu 12 stúlkur í hástökkinu.
Þeir félagar Guðmundur Þórarinsson og Jón Daði Böðvarsson voru valdir til að taka þátt í úrtaksæfingum U-18 ára liðs karla. Æfingarnar sem eru undir stjórn Kristins Rúnars Jónssonar þjálfara U-18 ára landsliðs Íslands fara fram helgina 27. - 28. júní á Tungubökkumí Mosfellsbæ. Alls voru 28 strákar valdir á þessar æfingar.
Meistaraflokkur karla og kvenna í knattspyrnu sitja nú báðir á toppi 1. deildar í knattspyrnu. Meistaraflokkur kvenna er með þriggja stiga forskot á HK/Víking og Þrótt Reykjavík eftir leiki helgarinnar. Meistaraflokkur karla er einnig með þriggja stiga forskot á Hauka og Fjarðarbyggð eftir leik helgarinnar.
Elías Örn Einarsson, markmaðurinn knái, er kominn aftur á Selfoss, eftir að hafa verið í láni hjá Ægi í Þorlákshöfn það sem af er sumri. Jóhann Ólafur markmaður er í banni í leiknum gegn Leikni á morgun sunnudag og mun Elli taka stöðu hans. fotbolti.net skýrði frá þessu í dag og má lesa frétt þeirra hér að neðan.
Selfyssingar halda í sína þriðju ferð í Breiðholtið á rúmum mánuði. Nú fara þeir á Leiknisvöll og leika við heimamenn, en leikurinn fer fram sunnudaginn 21. júní kl 17.00. Selfyssingar eru efstir 1. deild með 16 stig, en Leiknir er í neðsta sæti með 3 stig. En eins og flestir urðu varir við á þjóðhátíðardaginn þá skiptir engu máli hvar lið eru stödd í deild, eða í hvaða deild þau eru. Þetta snýst fyrst og fremst um hugarfar og löngun í að vinna leikinn. Eins má benda á að Leiknir hefur fengið sín 3 stig eftir jafntefli við ÍA, HK og KA, en það eru liðin sem var spáð 1. 2. og 4. sæti deildarinnar.
Námskeið nr. 2 hefst mánudag 22. júní. Þá eiga foreldrar/ forráðamenn að mæta með börnum sínum í Vallaskóla þar sem við erum með aðstöðu. Innangengt frá Sólvöllum - hjá litla gervigrasinu. Börnin mæta á þeim tíma sem óskað hefur verið eftir og fer fyrsti dagurinn í að kynnast, farið verður leiki og o.fl. skemmtilegt verður á döfinni.
Höttur frá Egilsstöðum stöðvaði sigurgöngu Selfyssinga á heimavelli með sigri í vítaspyrnukeppni í bikarleik liðana á þjóðhátíðardaginn. Fyrir leikinn höfðu Selfyssingar ekki tapað heima síðan 9. september 2007, er þeir töpuðu fyrir Haukum 0-2.
Selfyssingar töpuðu fyrir Hetti í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar á Selfossi í dag og féllu þar með úr leik. Eftir að Selfoss hafði komist yfir 2-0 og verið með leikinn í hendi sér tók dómarinn Erlendur Eiríksson dramatíska ákvörðun, er hann rak markmann Selfoss út af og dæmdi víti á Selfoss. Sævar Þór fór í markið og gat lítið gert við tveimur mörkum sem hann fékk á sig þannig að jafnt var því leikslok. Siggi Eyberg varð svo 3. markmaður Selfoss í leiknum þegar Sævar Þór var settur fram. Hattarmenn unnu vítaspyrnukeppnina eftir að Selfyssingar höfðu verið mun hættulegri í framlengjunni.
Selfyssingar unnu sinn þriðja leik í 1. deild kvenna í kvöld, er þær lögðu Þrótt R. á útivelli 2-3. Mörk Selfoss í leiknum skoruðu Aníta, Katrín Ýr og Rakel. Með þessum sigri tylltu stelpurnar sér á topp deildarinnar og sitja þar ásamt HK/Víkingi.
Selfoss/KFR unnu skemmtilegan sigur á Haukum/ÍH í 2. flokki karla í gær á grasvellinum á Hvolsvelli. Mörk Selfoss skoruðu þeir Narfi og Höddi Jó úr víti. Leikurinn var vægast sagt furðulegur og úrslitin kannski heilt yfir sanngjörn.
Fimmtudaginn 18. júní verður haldið fótboltafjör sem er sameiginleg æfing fyrir alla yngri flokka kvenna innan knattspyrnudeildar Umf. Selfoss. Æfingin hefst kl. 17:00. Leikmenn meistarflokks og 2. flokks kvenna munu æfa og spila með yngri stelpunum. Öllum yngri flokkum kvenna verður síðan boðið á leik Selfoss gegn Hetti í 1. deild kvenna á Selfossvelli sunnudaginn 21. júní kl. 14:00.
Selfyssingar taka á móti Hetti frá Egilsstöðum í 32. liða úrslitum Visa-bikarsins. Leikurinn verður á þjóðhátíðardaginn 17. júní og hefst kl. 14.30, eða strax á eftir skrúðgöngunni. Í annarri umferð bikarsins unnu Selfyssingar Leikni 7-4 í mögnuðum leik, á meðan Höttur vann Sindra auðveldlega 8-1 í sömu umferð.

Stelpurnar í meistaraflokki kvenna leika í dag sinn þriðja leik í 1. deild í knattspyrnu er þær mæta Þrótti Reykjavík. Leikurinn fer fram á Vallbjarnarvelli og hefst kl. 20.00. Selfyssingar eru í 2. sæti 1. deildar A með 6 stig eftir tvo leiki. Þróttarar eru í 3. sæti, einnig með 6 stig, en lakara markahlutfall.
Selfyssingar fengu í dag undanþágu frá KSÍ til að versla markmann í kvennaboltanum. Eftir langa leit má segja að stelpurnar hafi dottið í lukkupottinn, er þær fengu reynslumikinn markmann frá Breiðablik sem heitir Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir. Sigrún er 27 ára gömul og hefur leikið með Breiðabliki, FH, Haukum og KR. Hún hefur leikið 67 leiki í efstu deild og 8 leiki í bikarnum. Sigrún mun leika sinn fyrsta leik með Selfossi í kvöld gegn Þrótti á Valbjarnarvelli.
Fjóla Signý Hannesdóttir Umf. Selfoss keppti fyrir hönd Íslands á Norðurlandamóti Unglinga í fjölþrautum sem haldið var á Kópavogsvelli 13.-14.júní. Fjóla Signý stóð sig mjög vel í þrautinni og náði að bæta sinn besta árangur í fimm greinum af sjö greinum þrautarinnar. Alls náði hún 4236 stigum í þrautinni sem er persónulegt met og bæting um 323 stig.
Ágústa Tryggvadóttir var valin til að keppa fyrir hönd Íslands á Evrópubikarkeppni félagsliða í frjálsum íþróttum sem haldin verður í Sarajevo helgina 20.-21. júní. Ágústa keppir þar í hástökki, en hún hefur verið í stöðugri framför í hástökki síðustu vikurnar. Hún bætti sinn persónulega árangur á Smáþjóðaleikunum þegar hún stökk yfir 1,72 m. Ágústa heldur síðan til Tékklands og keppir þar í sjöþraut á sterku alþjóðlegu móti sem haldið verður dagana 23.-24. júní. Þar stefnir hún að bætingu í sjöþraut, en hún á best 4667 stig sem hún náði 2006. Að lokum keppir hún í þrístökki á Gautaborgarleikunum í Svíþjóð þann 28. júní.
Íþrótta- og útivistarklúbbur barnanna, sem byrjaði í Tíbrá í síðustu viku, hefur nú fengið aðsetur í Vallaskóla eins og til stóð. þar verður klúbburinn með höfuðstöðvar í sumar.
Selfyssingar fóru á topp 1. deildar í knattspyrnu í dag með sannfærandi 1-0 sigri á Þór frá Akureyri. Sævar Þór skoraði mark Selfoss eftir vægast sagt frábæra sókn sem Ingó Tóta, Gummi Tóta, Ásgeir Örn og Arilíus voru höfundar af og endaði með flugskalla og glæsilegu marki frá Sævari Þór. Sigur Selfyssinga var aldrei í hættu, þó svo að þeir hafi ekki náð upp sínum besta leik.
Sumaræfingarnar byrjuðu með hvelli í kvöld þar sem 24 iðkendur mættu á fyrstu æfinguna, sem er frábært. Þeir sem æfa í sumar og greiða æfingagjöld, fá 50% afslátt á sumanámskeiði hjá master Sigursteini, sem hefjast í næstu viku.
Knattspyrnudeild Umf. Selfoss og Olís framlengdu samstarfssamning sinn á dögunum. Meistaradeild Olís, sem er knattspyrnumót fyrir 5. flokk stráka, er samstarfsverkefni deildarinnar og Olís. Mótið verður haldið í 5. sinn í sumar og verður alltaf flottara með hverju árinu.

Selfoss fær Þór frá Akureyri í heimsókn á laugardaginn kl. 14.00. Þetta er 4. heimaleikur Selfoss í 1. deild og sá fyrsti sem er á alvöru grasi. Leikið verður í pott-orma-gryfjunni, sem er nýuppgerður fótboltavöllur, staðsettur fyrir sunnan gervigrasvöllinn. Virkilega skemmtilegur völlur, þar sem áhorfendur verða gjörsamlega ofan í leiknum. Selfyssingar eru á ágætis siglingu í deildinni. Um síðustu helgi unnu þeir Víkinga frá Ólafsvík 3-0, en á sama tíma töpuðu Þórsarar fyrir HK á Akureyri 2-3.
Nú hafa allir flokkar knattspyrnudeildar Selfoss aukið og lengt æfingar sínar. Mikið líf og fjör verður á vellinum í sumar og verða knattspyrnunámskeið fyrir hádegi og almennar æfingar eftir hádegi.
Sævar Þór Gíslason framherji Selfoss í knattspyrnu var í gær valinn leikmaður 5. umferðar í 1. deildar karla. Sævar Þór er vel að þessu kominn, en hann skoraði tvö mörk og fiskaði víti gegn Víkingi Ó. sem vítabaninn Einar Hjörleifs varði frá honum. Eins var Sævar Þór mjög ógnandi í framlínu Selfoss og skapaði mikið fyrir samherja sína. Hér að neðan má sjá viðtal sem fotbolti.net tók við strákinn í gær.
Sævar Þór Gíslason, framherjinn knái hjá Selfossi, skoraði sitt 200. meistaraflokksmark er hann skoraði seina markið í 3-0 sigri á Víkingi Ólafsvík um helgina. Þessi 200 mörk eru skráð mörk í leikjum á vegum KSÍ. Um leið og hann skoraði mark nr. 200, skoraði hann einnig sitt 150. mark í deildarkeppni á Íslandi. Sævar Þór er þar með 6. leikmaðurinn sem nær að skora 150 mörk í deild frá upphafi.
Héraðsmót HSK fór fram í síðustu viku í blíðskapar veðri í sundlauginni í Laugarskarði í Hveragerði. Sundmenn kepptu í einum flokki til einstaklingsverðlauna svo og í liðakeppni. Liðakeppnin stóð á milli Sunddeildanna á Selfossi, Hveragerði og Hvolsvelli. Sunddeild Selfoss vann stigakeppnina eftir spennandi og jafna keppni með 184 stigum. Hamar fékk 181 stig og Dímon 23 stig, en þau sendu ekki marga sundmenn til þátttöku í þetta skiptið.
Sunddeild Umf. Selfoss sendi fimm krakka, Njál Laugdal, Kristínu Ingu, Árný Oddbjörgu, Ólöfu Eir og Hrólf Laugdal, á Sjóarann síkáta , sundmót sem fram fór í Grindavík á sjómannadaginn. Krakkarnir náðu frábærum árangri og unnu til verðlauna í öllum sínum greinum. Kristín Inga sigraði í sínum aldursflokki í 100m baksundi og Árný Oddbjörg Oddsdóttir náði lágmarki í 200m bringusundi fyrir AMÍ.
Fyrsta námskeið af 5 námskeiðum sumarsins byrjar nú á mánudaginn. Íþrótta- og útivistarklúbbur Umf. Selfoss er samvinnuverkefni allra deilda innan ungmennafélagsins, en sveitarfélagið Árborg kemur einnig að starfi klúbbsins. Þeir sem hafa áhuga á að vera með, en eiga eftir að skrá - ættu að drífa í því í dag. Nokkur pláss eru laus. Allar upplýsingar má að finna hér á heimasíðunni okkar, merkt Íþrótta- og útivistarklúbburinn.
Umf. Selfoss sýndi gott fordæmi á þessum miklu krepputímum er félagar í knattspyrnudeild tóku að sér að leggja hita- og vatnsbúnað undir fyrirhugaðan framtíðar knattspyrnuvöll Selfoss. Þetta er allt saman gert í sjálfboðavinnu og er gaman að sjá þann einhug sem ríkir hjá knattspyrnuáhugafólki á Selfossi. Sveinn Jónsson fyrrverandi leikmaður Selfoss fer fyrir vöskum hóp sjálfboðaliða við þetta verkefni.
Stelpurnar í meistaraflokki Selfoss taka á móti Fjarðabyggð/Leikni á Eyrabakkavelli, en það er fyrrverandi aðalvöllur þjálfara Selfoss, Halldórs Björnssonar. Annars er þessi staðsetning á fyrsta heimaleik stelpnanna táknræn fyrir þær sakir að hvar sem þær leika í Árborg, þá er það alltaf heimavöllur liðsins.
Næsti leikur Selfyssinga í 1. deild er við Víking Ólafsvík, en Ólsarar sitja í 6. sæti deildarinnar með 6 stig á meðan Selfoss er í 1.-2. sæti með 10 stig. Bæði liðin komust áfram í bikarnum fyrr í vikunni, Víkingur eftir að hafa unnið Siglingafélagið Ými úr Kópavogi 5-6 í framlengdum leik og Selfoss eftir að hafa unnið Leikni úr Breiðholti 4-7 eftir framlengingu og vítaspyrnu keppni. Leikurinn fer fram á Selfossvelli í kvöld föstudaginn 5. júní kl. 20.00.
Átta ungmenni frá Selfossi voru valin í Handboltaskóla HSÍ, en í hann eru valin krakkar úr 8. bekk. Handboltaskóli HSÍ hefur verið starfræktur undanfarin 16 ár með góðum árangri. Í ár verður hann helgina 12. til 14. júní og gert er ráð fyrir yfir 100 krökkum sem æfa undir stjórn landsliðsþjálfara HSÍ.
Miðvikudaginn 4. júní sl. var nýja æfingasvæðið við Langholt tekið í notkun þegar a, b, c, og d-lið 5. flokks karla léku við lið Aftureldingar í bíðskaparveðri. Svæðið sem slíkt er ákaflega skemmtilegt, umlukið gróðri á alla vegu og góð viðbót á þessu flotta svæði. Völlurinn sjálfur er þó enn nokkuð grófur og ósléttur en reiknað er með að það jafni sig fljótlega.
Selfyssingar sóttu Leikni heim í Breiðholtið í 2. umferð Visa-bikarsins í knattspyrnu. Fyrir leikinn var ljóst að um stórleik 2. umferðar var að ræða, þar sem bæði lið leika í 1. deild. Selfyssingar hvíldu nokkra af „gömlu mönnunum“ enda er prógrammið stíft þessa dagana, 3 leikir á 6 dögum. Sævar Þór og Jón Sveins voru hvíldir og eins voru þeir Arilíus og Einar Ottó settir á bekkinn. Svo fór að Selfyssingar unnu leikinn og sýndu mikinn karakter.
Mikið er um að vera hjá krökkunum í sunddeildinni þessa dagana. Í dag verður héraðsmót HSK í sundi haldið í Hveragerði, en þangað sendir Selfoss vaska sveit þar sem reyna á að vinna sigur í liðakeppninni. Á morgun verður síðan lokahóf sunddeildarinnar, þ.e. grillferð í Þrastarskóg, þar sem mæting er kl. 17.30. Á laugardaginn fara svo 5 keppendur frá sunddeildinni á Sundmót sjóarans í Grindavík, sem er lokatilraun til þess að bæta tímana eða ná lágmörkum fyrir AMÍ.
Sunnudaginn 7. júní mun KSÍ standa fyrir Grasrótarnámskeiði fyrir þjálfara. Námskeiðið er opið öllum þjálfurum, en hentar mjög vel þjálfurum yngri flokka og kennurum og aðstoðarmönnum í knattspyrnuskólum félaga. Því eru félög sem starfrækja knattspyrnuskóla í sumar eindregið hvött til að senda kennarana og aðstoðarmenn þeirra á þetta námskeið og jafnframt aðra sem koma að starfi í knattspyrnuskólum.
Stórleikur 2. umferðar Visa bikarkeppnirnar er viðureign Leiknis og Selfoss, enda einu lið 1. deildar sem mætast innbyrðis. Leikurinn fer fram í efra Breiðholti, nánar tiltekið á Leiknisvelli á í kvöld þriðjudaginn 5. júní kl. 20.00. Liðin áttust við í bikarkeppninni fyrir þremur árum. Þá vann Leikir 3-1, svo það ætti að vera orðið tímabært að kvitta fyrir það.
Selfyssingar léku í gær gegn HK á Kópavogsvelli. Þetta var sannkallaður toppslagur, því fyrir 4. umferðina voru liðin í 1. og 2. sæti 1. deildar með 7 stig ásamt Haukum sem voru þá í 3. sæti. Selfyssingar unnu leikinn 1-2 með mörkum frá þeim Einari Ottó Antonssyni og Guðmundi Þórarinssyni. Selfyssingar eru því enn í 2. sæti, en nú með 10 stig, eða jafn mörg og Haukar sem eru fyrir ofan Selfoss með betri markatölu.
Stelpurnar í meistaraflokki Selfoss í knattspyrnu léku sinn fyrsta deildarleik í 10 ár er þær mættu Sindra á Hornafirði í fyrstu umferð 1. deildar A. Selfyssingar unnu leikinn 0-3 með mörkum frá Guðmundu Brynju Óladóttir, Rakel Ýr Gunnlaugsdóttir og Hafdísi Jónu Guðmundsdóttir.
Fimmtudaginn 28. maí s.l. var haldinn í Tíbrá stofnfundur kraftlyftingadeildar Umf. Selfoss. Verður hún jafnframt níunda deildin sem starfar innan félagsins. Á fundnum var kosin ný stjórn deildarinnar, en hana skipa Bjarni Kristinsson formaður, Sigríður Júlía Wíum Hansdóttir gjaldkeri, Díana Rós Magnúsdóttir ritari og Einar Guðnason og Ísleifur Ástþórsson meðstjórnendur. Í varastjórn eru Daníel Geir Einarsson og Sæmundur Guðmundsson. Stofnfélagar deildarinnar eru 23 talsins. Á stofnfundinn mættu þrír fulltrúar úr kraftlyftinganefnd ÍSÍ, þeir Guðjón Hafliðason, Sigurjón Pétursson og Auðunn Jónsson. Innan ÍSÍ er unnið að stofnun Kraftlyftingasambands Íslands.
Selfyssingar halda í Kópavoginn á laugardag, 30. maí, og leika þar við HK í einvígi toppliðanna í 1. deild. Leikurinn hefst kl 17.00 og er síðasti leikur í 4. umferð. Í síðustu umferð unnu Selfyssingar góðan sigur á Víkingum frá Reykjavík 1-0 og á sama tíma unnu HK Víkinga frá Ólafsvík 4-1. Bæði lið eru með 7 stig, eftir tvo sigra og eitt jafntefli. Selfyssingar unnu ÍR 5-2 og Víking R. 1-0 og gerðu jafntefli við KA 1-1, en HK vann Víking Ó. 4-1 og ÍR 3-1 og gerði jafntefli við Víking R. 1-1.
Til að setja smá krydd í tilveruna tökum við aftur upp hinn sívinsæla dagskrárlið, „Hin hliðin“ á þeim sem tengjast Knattspyrnudeild Selfoss með það að leiðarljósi að kynnast þeim betur. Hin hliðin er að þessu sinni í umsjón Babu sem hefur tilnefnt manninn á bakvið tjöldin, sem lætur þetta allt saman gerast hjá meistaraflokknum, Tómas Þóroddsson, liðsstjóra, kokk og tæknitröll með meiru til að sína á sér hina hliðina fyrstur.
Strákarnir í 2. flokki Selfoss/KFR í knattspyrnu unnu stórsigur á Leikni/KB fyrr í kvöld. Selfyssingar unnu 9-2 eftir að staðan hafði verið 4-1 í hálfleik. Þetta var nauðsynlegur sigur fyrir strákana, eftir slæmt tap gegn HK/Ýmir í síðasta leik. Mörk Selfoss/KFR skoruðu þeir Tommi Steindórs 4, Ingvi Rafn Óskarsson 2 og þeir Óskar Guðjóns, Jón Daði og Hörður Jó 1 mark hver.
Stelpurnar í 2. flokki Selfoss töpuðu fyrir Haukum 0-2 á Eyrabakkavelli fyrr í kvöld. Leikurinn var í járnum lengst af, en svo fór að Haukar unnu sanngjarnan sigur 0-2. Þetta var fyrsti leikur 2. flokks í Íslandsmótinu, en þær hafa staðið sig vel í Faxaflóamótinu og er ekki nokkur spurning að þær eiga líka eftir að fara á flug í Íslandsmótinu.
Meistaramót Íslands í fjölþrautum var haldið í Þorlákshöfn helgina 23. - 24. maí sl. Ágústa Tryggvadóttir Umf. Selfoss varð Íslandsmeistari í sjöþraut kvenna með 4480 stig og sigraði með miklum yfirburðum. Fjóla Signý Hannesdóttir náði silfurverðlaunum naumlega en eingöngu munaði tveimur stigum á henni og þriðja sætinu.
Sundnefnd HSK vill minna sundiðkendur á Unglingalandsmót UMFÍ sem fer fram á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina nánar tiltekið 31. úlí - 2. ágúst. Unglingalandsmótið er frábær og einstök fjölskylduskemmtun sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Á Unglingalandsmóti þarf hver keppandi að greiða fyrir sig keppnisgjald en eins og á stóra Landsmótinu er ekkert greitt fyrir tjaldstæði.
Sundnefnd HSK auglýsir eftir sundmönnum 12 ára og eldri, sem áhuga hafa á að keppa á Landsmóti UMFÍ sem fer fram á Akureyri helgina 9.-12. júlí í sumar. Keppnisgjald er kr. 6.000,- sem Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK) greiðir fyrir hvern keppanda. Athugið að ekki þarf að greiða fyrir tjaldstæði meðan á mótinu stendur.
Vormót Breiðabliks fór fram um síðustu helgi í nýrri 25m laug í Salarhverfinu í Kópavogi. Þrír keppendur frá sunddeild Umf. Selfoss tóku þátt í einum mótsdegi. Anna Edit Dalmay synti 50 og 200m bringusund og bætti sig um hálfa sek. í 50 metrunum og um 3 sekúndur í 200 metrunum sem er frábær árangur. Anna er í gullhóp sunddeildarinnar eins og hinir keppendurnir og þarf að berjast fyrir hverri bætingu. Hún hefur mætt mjög vel í vetur og er að uppskera erfiðið.
Selfyssingar féllu út úr Visa-bikarkeppninni eftir hörkuleik við stelpurnar í ÍA uppi á Skaga, en Skagastelpurnar unnu leikinn 2-1. Selfossliðið barðist mjög vel og gaf allt sem það átti til að jafna leikinn. Munur var sá að Skaginn nýtti sín færi, en Selfyssingar nýttu ekki öll þau góðu færi sem þær fengu.
Selfyssingar eru komnir í 2. sæt 1. deildar eftir góðan vinnusigur á Víkingi Reykjavík 1-0. Selfyssingar voru heilt yfir betri í leiknum, áttu fleiri góðar sóknir og fleiri marktilraunir. Samkvæmt tölfræði markmannsþjálfara liðsins, Halldórs Björnssonar, varði markmaður Selfoss Jóhann Ólafur Sigurðsson ekki bolta í leiknum. Segir það heilmikið um varnarleik alls liðsins. Aftur á móti tók Jóhann Ólafur nokkra krossa og hornspyrnur og kom þannig í veg fyrir færi hjá Víkingum.
Heimir Ríkarðsson, landsliðsþjálfari u-21 landsliðs karla, hefur valið 25 manna æfingahóp sem kemur saman um helgina. Í hópnum, sem í eru 25 leikmenn, eru þrír Selfyssingar, þeir Birkir Bragason (markmaður), Guðmundur Árni Ólafsson og Ragnar Jóhannsson. Þá hafa einnig þrír ungir Selfyssingar verið valdir í æfingahóp u-15 ára landsliðs, þeir Gísli Þór Axelsson, Gísli Örn Þórisson og Janus Daði Smárason. Gísli og Janus eru báðir 14 ára þ.e. fæddir 95. Hópurinn saman stendur af 30 strákum og kemur saman til æfinga helgina 29.-31. maí.
HSK-mótið í 5. flokki stráka og stelpna var haldið í annað skipti í Iðu fimmtudaginn 21. maí s.l. Sjö strákalið og tvö stelpulið tóku þátt í mótinu. Af þeim voru fjögur gestalið frá Haukum. Svo fór að Selfoss 1 sigraði bæði í stráka og stelpna flokki. Í lok móts voru afhent verðlaun og lið mótsins valið. Mótið var hraðmót þar sem leiktími var 1x15 mín. Úrslit urðu eftirfarandi:
Gunnlaugur Jónsson þjálfari Selfoss verður með stutta tölu í Selinu 45 mínútum fyrir leik gegn Víkingum í kvöld. Þar verður einnig tekið á móti nýjum félögum og eins höfum við heyrt að einhverjir eldri félagar séu dottnir af skrá og eiga þeir að mæta og endurnýja kortin sín.
Þrír keppendur frá Umf. Selfoss tóku þátt í fyrsta frjálsíþróttamóti sumarisins, JJ-móti Ármanns, sem haldið var á Laugardalsvelli þann 16. mai. Ágústa Tryggvadóttir setti nýtt Selfossmet í spjótkasti þegar hún kastaði spjótinu 37,20 m og bætti eigið met um tæpan metra og náði þriðja sæti.
Stelpurnar í meistaraflokki kvenna léku í gær sinn síðasta æfingaleik fyrir Íslandsmótið sem hefst laugardaginn 30. maí. Í gær fóru þær í Hafnarfjörðinn og gerðu jafntefli við FH 2-2 í skemmtilegum leik.
Eins og fram hefur komið í einhverjum af fjölmiðlum landsins urðu einhver ósætti á milli stuðningsmanna ÍR og Selfoss en þeir voru að spila í 1. deild karla föstudaginn 15. maí sl. á ÍR-velli. Þar hafa stuðningshópar liðanna átt í einhverjum útistöðum og hefur einhver afmarkaður hópur ÍR-inga átt að hafa veist af stuðningsmannaliði Selfoss.
Selfyssingar taka á móti Reykjavíkur Víkingum föstudaginn 22. maí á Íslandsmótinu 1. deild og hefst leikurinn kl. 20.00. Þetta er þriðji leikur Selfyssinga á Íslandsmótinu í ár. Í fyrstu umferð gerðu þeir jafntefli við KA 1-1 og í síðasta leik unnu þeir ÍR 2-5 á útivelli. Víkingar hafa leikið tvo fyrstu leiki sína á heimavelli, fyrst töpuðu þeir óvænt fyrir Víkingi Ó. og í síðustu umferð gerðu þeir jafntefli við HK.
Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi knattspyrnudómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara. Héraðsdómaranámskeið verður haldið í Iðu íþróttahúsi FSu á Selfossi föstudaginn 22. maí og hefst kl. 17:00. Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara. Um er að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur.
Skráning gengur vel á sumarnámskeið ungmennafélagsins. Námskeiðin eru ætluð börnum sem fædd eru árin 1999-2004
Haldin verða 5 námskeið í sumar og verða þau öll í 2 vikur í senn...
Stelpurnar í meistarahóp HM1 í fimleikadeild Selfoss ætla að vera með fimleikadag fyrir börn, stelpur og stráka fædd 2000-2003. Fimleikadagurinn verður í Baulu íþróttahúsi Sunnulækjarskóla fimmtudaginn 21.maí 2009. Börn fædd 2003 og 2002 mæti klukkan 10:00-12:00 en tíminn fyrir 2001 og 2000 verður klukkan 12:30-14:30. Þær lofa miklu fjöri og skemmtilegum æfingum. Æfingadagurinn er jafnframt fjáröflun fyrir æfingaferð stelpnanna sem þær stefna á í haust sem undirbúning fyrir stórmót næsta vetrar. Gjaldið er 1000kr. á barn sem greiðist á staðnum. Allir að fjölmenna og eiga skemmtilega æfingu með stelpunum og styrkja um leið gott málefni.
Selfyssingar lánuðu nokkra leikmenn fyrir lok félagsskiptagluggans í gær. Alls voru það fimm leikmenn sem fóru til nágrannaliðanna. Þann 15. júní opnar glugginn aftur og verður þá hægt að fá þá aftur heim.
Selfyssingar fengu g+oðan liðsstyrk á síðustu metrum félagsskiptagluggans er Birkir Hlynsson kom að láni frá ÍBV. Birkir er 20 ára Eyjamaður sem getur leyst margar stöður á vellinum. Hann lék nokkra leiki með ÍBV á síðasta ári þ.á m. leik ÍBV og Selfoss á Hásteinsvelli, en þar var hann aftastur á miðjunni. ÍBV hafa verið duglegir að styrkja sig fyrir átökin í efstu deild og eru nú sex erlendir leikmenn sem leika með þeim og hefur Birkir því ekki fengið eins mörg tækifæri og vonir stóðu til.
Selfyssingar unnu sanngjarnan 2-5 sigur á ÍR fyrr í kvöld. Mörk Selfoss skoruðu Arilíus Marteinsson 2, Jón Guðbrandsson 2 og Ingólfur Þórarinsson eitt. Staðan í hálfleik var 2-4 fyrir Selfoss. Selfoss var mun betra lið í fyrrihálfleik og voru þeir klaufar að fá á sig tvö mörk. Í síðari hálfleik lokuðu Selfyssingar fyrir allar sóknaraðgerðir ÍR-inga. Fimmta mark Selfoss kom á 62. mínútu.
Selfyssingar sækja ÍR úr Breiðholtinu heim föstudaginn 15. maí og hefst leikurinn kl 20.00. Selfyssingar gerðu jafntefli í fyrsta leik sínum í deildinni, en ÍR tapaði fyrir HK í sínum fyrsta leik. ÍR liðinu er spáð 8. sæti af þjálfurum og fyrirliðum liðana í deildinni. Þeir eru nýliðar í deildinni, en þeir fóru næstum því taplausir í gegnum 2. deildina í fyrra. Töpuðu aðeins síðasta leiknum og unnu deildina með nokkrum yfirburðum. ÍR settu á dögunum upp 300 manna stúku við leikvang sinn og var það Sport-tæki úr Hveragerði sem sá um framkvæmdina. Leikur Selfoss og ÍR er að öllum líkindum fyrsti alvöru leikurinn sem áhorfendur fá stúkunar notið.
Selfyssingar fengu í gær til sín að láni Ásgeir Örn Ólafsson leikmann frá KR. Ásgeir Örn er miðjumaður, sem getur líka leikið í vörn. Ásgeir fékk óvænt tækifæri í byrjunarliði meistaraflokks KR árið 2007, þegar Teitur þjálfaði þá, en Ásgeir var fyrirliði 2. flokks liðsins þegar honum var hent út í djúpu laugina í efstu deild.
Föstudaginn 8. maí var haldið stórglæsilegt lokahóf elstu flokka handknattleiksdeildar Selfoss. Hófið var haldið í Þingborg og mættu um 100 manns á það. Það var hin eina sanna "Lilja okkar" sem sá um matinn á hófinu. Fjölmargir góðir gestir heiðruðu okkur með því að mæta og eyddu þessari kvöldstund með okkur. Kunnum við þeim mestu þakkir fyrir.
Um síðast liðna helgi fór 6.flokkur drengja í handbolta til Vestmannaeyja og urðu tvöfaldir Íslandsmeistarar. Ferðin gekk í alla staði vel 24 strákar fóru, en nokkrir komust ekki vegna veikinda og ferminga. Um 25 foreldrar komu með í ferðina. gist var í Hamarsskóla í þrjár nætur, gott var í sjóinn báðar leiðir og skemmtu strákarnir sér hið besta alla helgina. Þegar ekki var verið að keppa var margt til gamans gert m.a. farið í skoðunarferð um Eyjuna og sprangað. Nokkur fyrirtæki studdu strákana til ferðarinnar, Guðnabakarí, HP kökugerð, MS og Krás og vill yngriflokkaráð koma til skila sérstöku þakklæti til þessa fyrirtækja. Hér fyrir neðan er nokkar myndir úr ferðinni.
Í sumar ætlar ungmennafélagið að bjóða upp á nokkur skemmtilegt íþróttanámskeið.
Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 5-10 ára og verða þau fjölbreytt og ættu öll börn á þessum aldri að finna eitthvað við sitt hæfi.
Aldursflokkamót HSK í sundi fór fram á Hvolsvelli laugardaginn 3. maí s.l. Þrjú félög sendu lið til keppni, þ.e. Umf. Selfoss, Hamar og Dímon. Eftir hörkuspennandi keppni varð Hamar stigahæsta félagið með 159 stig eða aðeins fjórum stigum fyrir ofan Umf. Selfoss sem varð í öðru sæti. Góður árangur það og greinilegt að Hamar á sigurinn ekki vísan á komandi HSK mótum eins og nokkur undanfarin ár.
Í maí og júní verða haldin framhaldsnámskeið, byrjendanámskeið og námskeið fyrir börn sem eiga erfitt uppdráttar í skólasundi. Kennari verður Bryndís Ólafsdóttir ásamt aðstoðarmanni. Eftirtalin námskeið verða í boði:
Strákarnir í 6. flokki urðu nú um helgina tvöfaldir Íslandsmeistarar í handknattleik. Lokamótið fór fram í Vestmannaeyjum og tryggðu Selfoss-strákarnir sér öruggan sigur bæði á eldra ári og yngra ári. Í flokki eldra árs (fæddir 1997) fékk Selfoss 28 stig, Valur varð í öðru sæti með 20 og KR í því þriðja með 20. Í flokki yngra árs (fæddir 1998) fékk Selfoss 26 stig Fram varð í öðru sæti með 22 og HK í því þriðja með 18. Strákarnir eru vel að þessu komnir, hafa æft vel og samviskusamlega í allan vetur. Þeir hafa sinnt félagslega þættinum vel og kringum þennan flokk er mjög öflugt foreldrasamstarf.
Góð mæting var á aðalfundi Ungmennafélags Selfoss sem haldinn var í Tíbrá á fimmtudagskvöldið. Á fundinum fékk frjálsíþróttadeild UMFS afhenta viðurkenningu sem fyrirmyndardeild ÍSÍ. Er hún sjötta deildin innan félagsins sem fær þessa viðurkenningu. Viðurkenninguna afhenti Sigríður Jónsdóttir, stjórnarmaður ÍSÍ. Bæjarstjóri Árborgar, Ragnheiður Hergeirsdóttir, afhenti deildinni, ásamt taekwondodeild, sem fékk útnefningu í febrúar, veglegan fjárstuðning frá sveitarfélaginu.
Nú eru aðeins 9 dagar í fyrsta leik á Íslandsmótinu. Selfyssingar eiga fyrsta leik gegn KA á heimavelli sunnudaginn 10. maí kl. 15.00. Það er því alveg tímabært að rifja upp undirbúningstímabilið sem byrjaði í janúar og þá æfingaleiki sem búnir eru. Hér kemur einfaldur listi yfir leikina og hvernig þeir fóru.
Selfyssingar unnu Val 1-0 á grasvellinum í Þorlákshöfn í kvöld. Frábærar aðstæður voru til að spila fótbolta á góðum grasvelli í "Höfninni". Selfyssingar byrjuðu leikinn betur og voru ýfið sterkari í fyrri hálfleik. Skoraði Sævar Þór í honum og eins átti Arilíus gott skot í slá. Í seinni hálfleik komu Valsmenn betur inn í leikinn, án þess þá að skapa sér umtalsverð færi.
Ragnar Jóhannsson sem er 18 ára og átti 1 ár eftir af samningi sínum við Selfoss gerði nýjan 3 ára samning við félagið sem gildir til vors 2012. Önnur félög voru að reyna að fá hann til sín og sum án þess að fara rétta boðleið, þrátt fyrir að hann væri samningsbundinn. Með þessum nýja samningi er verið að senda skýr skilaboð um það að framtíð Ragnars er á Selfossi enn um sinn.
Grunnskólamót Árborgar í frjálsum íþróttum fór fram í Iðu þann 2. apríl s.l. Grunnskólamótið var nú haldið í 11. sinn. Keppendur voru 178 og komu þeir frá Sunnulækjarskóla, Vallaskóla og Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri. Sjá nánar...
Selfoss sigraði Stjörnuna 5-2 í leik liðana í 2. flokki kvenna í gær. Leikið var á gervigrasinu á Selfossi við góðar aðstæður, logn og aðeins úða. Byrjunarlið Selfoss var skipað eftirtöldum leikmönnum: Dagný Páls, Íris Gísla (Unnur), Dagný Hróbjarts, Erna Krisín, Elsie, Thelma Sif (Anna) Rakel (Brynja), Katrín Ýr(Karítas) Anita, Edda, Hanna.
Selfyssingar taka á móti Val fimmtudaginn 30. apríl á grasvellinum í Þorlákshöfn. Leikurinn hefst kl. 19.00 og er um æfingaleik að ræða. Flestir leikmenn Selfoss ættu að geta tekið þátt í leiknum, nema að Agnar Bragi varð fyrir örlitlu hnjaski í leiknum gegn KR. Liðin léku leik í Lengjubikarnum síðastliðið vor...
Stelpurnar í 4. flokki kvenna yngra ár urðu í gær Íslandsmeistarar eftir sigur á Fylki í úrslitaleik 18-14 í Vodafone Höllinni. Staðan í hálfleik var 10-6 fyrir Selfoss. Áður höfðu stelpurnar unnið Stjörnuna 28-18 í 8-liða úrslitum og FH 16-14 í undanúrslitum. Þessar stelpur urðu einnig á dögunum deildarmeistarar. Árangur stelpnanna er mjög athyglisverður í ljósi þessa, en flestar af þeim eru enn í 5. flokki. Þær urðu einmitt líka Íslandsmeistarar í sínum flokki á dögunum.
4. flokkur kvenna eru komnar í undanúrslit eftir góðan sigur á Stjörnunni í 8-liða úrslitum. Leikurinn endaði 28-18 og Selfoss því komnar í undanúrslit og mæta þar FH.
Meistaraflokkur karla tekur á móti KR á grasvellinum á Hvolsvelli á morgun laugardag 25. apríl. Leikurinn hefst kl. 14.00 að staðartíma. Þetta er æfingaleikur og sennilega fyrsti grasleikurinn á Íslandi í ár.
Stelpunnar í meistaraflokki Selfoss taka á móti FH í Lengjubikarnum í dag föstudaginn 24. apríl kl. 20.00 á gervigrasinu á Selfossi. Þetta er fjórði leikur beggja liða. Selfyssingar hafa unnið þá þrjá leiki sem þær eru búnar með. Stelpurnar eru því í efsta sæti með 9 stig, en FH í 2.-3. sæti með 7 stig ásamt Haukum. Því er um mjög mikilvægan leik að ræða fyrir bæði lið, en tvö lið komast áfram í úrslitakeppnina.
Selfyssingar tóku á móti Ægir úr Þorlákshöfn á sumardaginn fyrsta. Leikið var á gervigrasinu á Selfossi og var um æfingaleik að ræða. Selfyssingar unnu leikinn 6-0 og skoruðu þeir Ingþór 2, Arilíus, Jón Daði, Jón Guðbrands og Árni Páll.
Í kvöld kl. 21.00 leika í úrslitakeppni HSÍ 3.flokki heimamenn á Selfossi og FH úr Hafnarfirði. Að vanda leika Selfossliðin sína heimaleiki í Vallaskóla og hvetur heimasíðan Selfyssinga að mæta og horfa á og auðvitað hvetja leikmenn framtíðarinnar áfram. Áfram Selfoss!
Fyrstu formlegu skrefin á samstarfi Selfoss og IFK Gautaborg verða tekin í þessari viku þegar Stefán Ragnar Guðlaugsson og Guðmundur Þórarinnsson munu æfa með unglingaliði IFK Gautaborg. Þar munu þjálfarar Svíanna fylgjast með þessum tveimur af efnilegustu leikmönnum Selfoss. En Gummi sem er fæddur ‘92 og Stefán sem er fæddur ‘91 hafa báðir verið að æfa með u-19 ára landsliði Íslands í vetur, ásamt því að æfa með Selfoss og akademíu Íslands.
Sjálfsvarnar námskeið taekwondodeilda, sem eingöngu var ætluð stelpum á öllum aldri, heppnaðist gríðarlega vel. Alls tóku 25 stelpur þátt þar sem farið var yfir grunnþætti sjálfsvarnarlistarinnar taekwondo.
Öðrum leik Selfoss og Aftureldingar í úrslitakeppninni um laust sæti í efstu deild karla í handknattleik, veður lýst beint á útvarpi Suðurland á fm 96,3. Leikurinn fer fram í Mosfellsbæ, Það verða þeir Gísli Felix Bjarnason og Einar Guðmundsson sem lýsa leiknum eins og þeir gerðu í fyrsta leiknum s.l. föstudag. Einnig hægt að hlusta í gegnum netið á www.963.is . Útsending er í boði Lögmanna Suðurlandi og hefst kl 16:30 í dag. Boðið verður uppá fría rútuferð fyrir stuðningmenn Selfoss-liðsins frá Vallaskóla meðan pláss leyfir. Lagt verður af stað kl. 14:30.
Selfoss varð í dag Íslandsmeistarar 5.flokks kvenna - eldra árs í handknattleik þegar lokamótinu í vetur lauk hjá FH. Selfoss-stelpurnar enduðu veturinn með 26 stig af 30 mögulegum, Afturelding varð í öðru sæti með 24 stig og Grótta í því þriðja með 22 stig. Stelpurnar voru öruggar með sigur fyrir mótið og þær fengu Íslandsmeistaratitilinn afhentar eftir mótið við mikin fögnuð.
Utandeildarlið Selfoss í handbolta sigraði lið Jumboys frá Mosfellsbæ í örðum úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitill í keppni utandeildarliða 32-27. Jumboys vann fyrri leik liðanna í Mosfellsbæ 30-23 og varð því Íslandsmeistari þetta árið. Liðið skipa gamlar kempur úr Aftureldingu með Bjarka Sigurðsson fyrrverandi landsliðsmann fremstan í flokki. Selfoss liðið lék vel í dag og átti um tíma möguleika á að vinna upp sjö marka forustu Mosfellinga. Það hafðist ekki en góður sigur á meisturunum engu að síður. Þeir Sævar Gíslason og Ívar Grétarsson voru bestu menn Selfoss, einnig átti Bergsveinn Magnússon góða spretti.
Afturelding vann góðan útisigur á Selfossi í fyrsta umspilsleik liðanna um sæti í efstu deild karla í handknattleik í kvöld, 31:24. Þarf liðið því aðeins einn sigur enn til að tryggja sér sæti í úrslitaleikjunum um sæti í efstu deild. Markahæstir Selfyssinga voru Guðmundur Árni Ólafsson með sex mörk og Helgi Héðinsson með fimm. Hjá gestunum gerði Bjarni Aron Þórðarson átta mörk en Jóhann Jóhannsson gerði sex.
Þrjú lið frá Selfossi tóku þátt í Garpamóti Gerplu sem fram fór að Versölum í gær. Selfoss HL5 varð í öðru sæti í samanlögðum stigum og hópur HL9 sem er blandaður hópur stúlkna og drengja varð í þriðja sæti. Hópur HL7 varð svo í 4.sæti. Mjög glæsilegur árangur hjá krökkunum. Mótið var mjög flott og áttu krakkarnir skemmtilegan dag í Kópavogi. Hér fyrir neðan má sjá mynd af liðunum þremur sem tóku þátt
Leik Selfoss og Aftureldingar í úrslitakeppninni um laust sæti í efstu deild karla í handknattleik, veður lýst beint á útvarpi Suðurland á fm 96,3. Það verða þeir Gísli Felix Bjarnason og Einar Guðmundsson sem lýsa leiknum og það er einnig hægt að hlusta í gegnum netið á www.963.is . Útsending er í boði Lögmanna Suðurlandi og hefst kl 19:30.
Það verður skemmtileg keppni á laugardaginn þegar undanúrslit Íslandsmótsins í hópfimleikum fara fram í íþróttahúsi Gerplu í Kópavogi. Óhætt er að segja að um loftfimleikasýningu verði að ræða þar sem öll bestu lið landsins verða mætt til keppni. Selfoss á tvö lið af tólf sem keppa á mótinu og verður spennandi að fylgjast með þeim. Selfoss HM1 stefnir á að ná inná Norðurlandamót 16 ára og eldri sem fram fer í Finnlandi í haust en þetta mót mun gefa okkur vísbendingu um þá möguleika. Úrtökumótið fyrir það mót fer fram á Selfossi föstudaginn 1. maí í íþróttahúsinu Iðu, en þá þurfa stelpurnar fulla stúku og mikinn stuðning. Mótið 1. maí er jafnframt úrslitakeppni á einstökum áhöldum á íslandsmótinu en úrslitin í fjölþraut fara fram 2.maí einnig á Selfossi. Allir að stilla á RUV laugardaginn 18. apríl kl. 16:20 - ÁFRAM SELFOSS!
Tvö lið frá Selfossi verða í eldlínunni þegar úrslitakeppni Íslandsmótsins í hópfimleikum fer fram í íþróttahúsi Gerplu í dag föstudaginn 17. apríl. Lið Selfoss HL3 sem er skipað stúlkum á aldrinum 13-15 ára og lið Selfoss HL4 sem er skipað 12 ára stelpum hafa unnið sér inn þátttökurétt í úrslitum, en aðeins 6 stigahæstu lið vetrarins óháð aldri etja kappi um Íslandsmeistaratitla. Alls hafa 54 lið keppt um þessi sex sæti í vetur og getum við verið mjög stolt af okkar stelpum að hafa náð inn í úrslit. Keppt er um Íslandsmeistaratitla á einstökum áhöldum og í samanlögðum stigum.
Selfyssingar léku á dögunum æfingaleik við Hamar frá Hveragerði. Leikurinn endaði 6-0 og skoruðu þeir Sævar Þór Gíslason 2, Jón Guðbrandsson, Árni Páll Hafþórsson, Jón Daði Böðvarsson og Arnar Freyr Óskarsson mörk Selfoss. En þetta var jafnframt fyrsta mark Arnars fyrir meistaraflokk.
Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson hefur verið ráðin þjálfari kvennalandsliðs heims- og ólympíumeistara Noregs í handknattleik. Þetta kemur fram í norskum fjölmiðlum í dag. Þórir tekur við af Marit Brevik en hann hefur verið aðstoðarþjálfari hennar í 12 ár. Þórir er borinn og barnfæddur Selfyssingur og þjálfaði á Selfossi áður en hann fluttist til Noregs 1986. Þórir er bróðir Ragnheiðar bæjarstjóra og Guðrúnar formanns unglingaráðs handknattleiksdeildar. Yngri bróðir hans Grímur lék einnig lengi með Selfoss í efstu deild.
Þátttakendur á framhaldsnámskeiðinu náðu allir þrepamarkmiði 7 ára grunnskólabarna þrátt fyrir að sum börnin séu aðeins 5 ára. Markmið Bryndísar sundkennara var að börnin myndu ná það mikilli færni á tveimur námskeiðum að þau þyrftu enga frekari utanaðkomandi hjálp til að ganga vel í skólasundi. Auk þess halda alltaf einhverjir áfram og skrá sig í Sunddeild Selfoss. Sunddeildin býður upp á beint framhald í svokölluðum koparhópi sem er tvískiptur með kennara/þjálfara ofaní lauginni.
Feðgarnir Snorri Hjaltason, heiðursformaður Taekwondosambands Íslands og Sigursteinn Snorrason, landsliðsþjálfari í sparring , fengu viðurkenningu frá samtökunum Frægðarhöll taekwondo íþróttarinnar (THE OFFICIAL TAEKWONDO HALL OF FAME®) á föstudaginn langa og voru þá teknir inní frægðarhöll taekwondo íþróttarinnar. Þeir eru fyrstu Norðurlandabúarnir og einir af fáum Evrópubúum sem hafa hlotið þessa miklu viðurkenningu fyrir störf sín.
Þess má geta að Master Sigursteinn Snorrason hefur umsjón með þjálfun taekwondodeildar Selfoss og félag hans Ssangyoung er móðurfélag deildarinnar.Einnig er haldin mótaröð sem kallast TSH sem stendur fyrir Trésmiðja Snorra Hjaltasonar, sem er aðalstyrktaraðili taekwondo á Íslandi.
2. flokkur karla tryggði sér annað sætið í 1. deild með öruggum sigri á Víkingi í Víkinni í gærkvöldi. Þessi úrslita þýða að strákarnir fá heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni en þar mætir liðið FH. Í hinum undanúrslitaleiknum leika Akureyri og Víkingur. Ljósmyndari handbolti.is var á staðnum og smellti af eftirfarandi myndum. http://www.handbolti.is/?p=300&gal=78473
Gamla myndin að þessu sinni var tekin þegar 4. flokkur kvenna varð Íslandsmeistari 1988. Berglind Sigurðardóttir fyrirliði tekur við hamingjuóskum af Birni Gíslasyni formanni Ungmennafélags Selfoss. Kvennaboltinn á Selfossi er á mikilli upppleið þessa dagana og hugsanlegt að Íslandsmeistaratitill vinnist aftur eftir margra ára hlé.
Stelpurnar í meistaraflokki Selfoss spiluðu við ÍA á heimavelli í öðrum leik sínum í Lengjubikarnum í gærkvöldi. Leikurinn endaði með 2-0 sigri Selfoss. Bæði mörk leiksins voru skoruð í fyrri hálfleik. Markaskorararnir voru Rakel Ýr og Díana. Selfoss-stelpur áttu fullt af marktækifærum og hefði leikurinn geta endað með stærri sigri. ÍA stelpur áttu ekki mörg færi í leiknum.
Grýlupottahlaup Selfoss 2009 hefst laugardaginn 18. apríl næstkomandi. Er þetta jafnframt í fertugasta skipti sem hlaupið er haldið. Grýlupottahlaupið er 850 metra langt. Tveir og tveir hlaupa saman og er ræst með 10 sekúndna millibili. Þátttakendur eru á öllum aldri og er aðalatriðið að vera með. Hlaupið fer fram sex laugardaga í röð. Fyrsta hlaupið er 18. apríl, síðan 25. apríl, 2. maí, 9. maí, 16. maí og 23. maí. Skráning hefst kl. 10:30 í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, á íþróttavellinum. Hlaupið hefst svo kl. 11:00.
Helgina 18.-19. apríl munu Knattspyrnusamband Íslands og Alþjóðaknattspyrnusambandið (FIFA) standa saman að námskeiði í þjálfun barna á aldrinum 6-12 ára. Laugardaginn 18. apríl verður námskeiðið haldið í Kórnum í Kópavogi en 19. apríl verður námskeiðið haldið á Akureyri. Námskeiðið er sérstaklega ætlað þjálfurum barna á aldrinum 6-12 ára en námskeiðið er þó öllum opið. Aðgangur er ókeypis. Sjá nánar...
Helgina 24.-26. apríl mun Knattspyrnusamband Íslands standa fyrir 5. stigs þjálfaranámskeiði í höfuðstöðvum KSÍ. Þátttökurétt á námskeiðið hafa allir þeir þjálfarar sem eru með KSÍ B þjálfaragráðu og fengu a.m.k. 70 af 100 í KSÍ B prófinu (UEFA B prófinu). Námskeiðið er upphafið af KSÍ A (UEFA A) þjálfaragráðu. Sjá nánar...
Í dag er mikið um að vera á Selfossvelli þar sem 4 leikir fara fram. Kl. 14:00 spilar 3. flokkur karla æfingarleik við ÍBV og kl 16:00 spila síðan Eyjamenn við Ægi í Faxaflóamótinu. K. 18:00 spilar meistaraflokkur karla æfingarleik við Hamar og kl 20:00 mun meistaraflokkur kvenna spila vi ÍA í Faxaflóamótinu. Er það annar leikur þeirra í mótinu, en þær unnu Sindra frá Höfn í sínum fyrsta leik.
Sigurganga 2. flokks karla heldur áfram. Nú vann liðið Aftureldingu 18-24 á afar erfiðum útivelli. Mörg lið hafa lent í vandræðum í Mosfellsbænum í vetur. Með sigrinum er Selfoss komið í 2. sætið og getur haldið því ef þeir ná sigri í síðasta leik deildarkeppninnar gegn Víkingum.
Heimir Ríkarðsson, landsliðsþjálfari u-21 árs landsliðs karla, valdi 17 manna hóp til undirbúnings fyrir forkeppni HM sem fram fer um páskana í Hollandi. Í hópnum eru tveir Selfyssingar, þeir Birkir Bragason markmaður og Guðmundur Árni Ólafsson hornamaður. Fyrsti leikurinn er gegn Hollandi 10. apríl. Síðan er leikið gegn Ungverjum og loks Bretum.
Gamla myndin er af 3. flokki karla árið 1986. Þetta eru piltar fæddir 1970 og 1971. Sítt að aftan greinilega í tísku. Þrír af þessu drengjum áttu eftir að leika með A-landsliði Ísland, þeir Magnús Sigurðsson, Einar Gunnar Sigurðsson og Gústaf Bjarnason. Þjálfari var Steindór Gunnarsson sem einnig þjálfaði meistaraflokk í þrjú keppnistímabil.
Landsbankamót Ármanns í sundi verður haldið um helgina 18.-19. apríl n.k. í Laugardalslauginni. Upplýsingar um mótið eru komnar á vef Sunddeildarinnar undir "Viðburðir". Þeir sem hafa áhuga á að keppa á mótinu hafi samband við Bryndísi yfirþjálfara (eisenfee@hotmail.com, GSM 695 1960)sem fyrst en skráningarfrestur rennur út þriðjudaginn 14. apríl n.k.
Knattspyrnudeild Umf. Selfoss hefur gert nýjan styrktarsamning við nýja Íslandsbanka sem áður hét Glitnir. Þetta þýðir að allir búningar félagsins verða endurnýjaðir enda ekki hægt að vera með lógó gamla bankans þegar keppt verður í sumar. Þessi nýji samningur er sá stærsti sem deildin hefur gert og er hann rökrétt framhald á góðum árangri liðsins í fyrra. Gömlu búningarnir verða gefnir í Tíbrá frá kl 11.00 í dag. Eins og áður sagði er því miður er gamla Glitnismerkið framan á búningum, en þeir eru til í öllum stærðum og munið að þeir sem fyrstir koma geta valið um númer. Búast má við að 10 hans Sævars Þórs verði eftirsótt í öllum stærðum.
3. flokkur kvenna hefur haft nóg að gera að undanförnu og spiluðu þrjá leiki á 11 dögum og spila aftur í kvöld gegn sterku liði ÍR í Austurbergi. Mikil meiðsli hafa verið í liðinu. Í dag eru 4 leikmenn meiddir og munar um minna í 12 manna hópi.
Selfoss hefur unnið þrjá deildarmeistaratitla í kvennaflokkum á einni viku ! Um síðustu helgi unnu stelpurnar í 5.flokki kvenna eldra ár deildarmeistaratitilinn og nú um helgina unnu stöllur þeirra í 5.flokki kvenna yngra ár deildarmeistaratitilinn. Síðan fékk 4.flokkur kvenna yngra ár deildarmeistaratitilinn afhentan eftir glæsilegan sigur á Fram í æsispennandi leik að viðstöddum fjölmörgum áhofendum í íþróttahúsi Vallaskóla á sunnudagskvöldið.
KA menn sóttu okkur Selfyssinga heim á laugardaginn. Fyrirfram var búist við hörkuleik enda KA með marga góða einstaklinga innan sinna raða. Sú varð þó ekki raunin því norðanmenn áttu ekki möguleika gegn heimamönnum sem leiddu í hálfleik 17-11.
Selfoss og Grindavík áttust við í skemmtilegum leik í Lengjubikarnum í dag. Grindvíkingar unnu leikinn 4-3 eftir að liðin höfðu spilað í 45 mínútur án þess að skora. Leikurinn fór fram í Reykjaneshöllinni og var m.a. annar hluti af verkefni hjá Gulla Jóns þjálfara, en hann er nú að taka 7. stigið í þjálfun hjá KSÍ.
Meistaraflokkur Selfoss lék sinn fyrsta opinbera leik í gær þegar þær tóku á móti Sindra frá Hornafirði. Leikurinn var í Deildarbikarnum og gerðu stelpurnar sér lítið fyrir og unnu Sindra 4-1. Byrjunarliðið var eftirfarandi: Dagný, Edda B, Sif, Aníta, Arnheiður, Thelma Sif, Bára Sif, Rakel Ýr, Þóra, Katrín Ýr og Díana.
Stelpurnar í meistaraflokki kvenna leika sinn fyrsta opinbera leik í 10 ár á laugardaginn. Stelpurnar mæta þá Sindra frá Hornafirði í fyrstu umferð deildarbikarsins og fer leikurinn fram á Selfossvelli og hefst kl. 15.00. Bæði þessi lið munu leika í 1. deild Íslandsmótsins í sumar og eru saman í A-riðli.
Selfyssingar töpuð 3-2 fyrir ÍR-ingum eftir að hafa lent 3-0 undir eftir tæplega 30 mínútna leik. Leikurinn var í Lengjubikarnum og fór fram á ÍR-vellinum í dag. ÍR liðið var mun betra í fyrri hálfleik, en Selfoss átti seinni hálfleikinn.
Páskafrí frá sundæfingum verður sem hér segir: Koparhópur 4.-13. apríl. Bronshópur 4.-13. apríl. Silfurhópur 4.-13. apríl. Gullhópur: 9.-13. apríl. Sundæfingar hjá öllum byrja aftur þriðjudaginn 14. apríl. Sjá nánar hér...
Gamla myndi er af meistaraflokki kvenna 1991. Þetta var öflugur hópur sem lék undir stjórn Kristjönu Aradóttur en hún og Þorgeir Ingi Njálsson eiginmaður hennar sem var formaður deildarinnar á þessum tíma unnu mikið starfs fyrir deildina.
Knattspyrnudeild Selfoss hefur á undanförnum árum staðið fyrir öflugu grasrótarstarfi. Árið 2007 hófust reglulegar æfingar fyrir börn á leikskólaaldri. Æfingarnar hafa gengið vonum framar og eru æfingatímar þessara barna með þeim fjölmennustu og skemmtilegustu hjá deildinni. Að jafnaði eru hátt í hundrað manns á æfingum þegar foreldrar eru taldir með.
Selfyssingar leika sinn þriðja leik í Lengjubikarnum í kvöld fimmtudag gegn ÍR úr Breiðholti. Leikurinn verður á ÍR velli og hefst kl. 18.00. Selfoss og ÍR hafa bæði leikið tvo leiki í Lengjubikarnum og hafa tapað þeim báðum, Selfoss gegn Keflavík og HK, en ÍR gegn Keflavík og Grindavík. Liðin sitja því saman í neðsta sæti riðilsins og má því búast við hörku leik í kvöld.
5. flokkur kvenna spilaði á sínu öðru deildarmóti um helgina, en mótið fór fram í Austurbergi og var í umsjá ÍR. Selfoss-1 vann m.a. Gróttu, Val og Aftureldingu og stóð uppi sem sigurvegari mótsins. Stelpurnar tryggðu sér fyrsta sætið annað deildarmótið í röð og eru í mjög vænlegri stöðu fyrir seinasta mótið. Stelpurnar í Selfoss-2 stóðu sig einnig vel og hafa sýnt miklar framfarir í vetur.
Unglingadómaranámskeið í knattspyrnu verður haldið í Iðu á Selfossi miðvikudaginn 1. apríl kl. 20. Farið verður yfir námsefni og má reikna með að það taki ca. tvo tíma. Viku síðar eða þriðjudaginn 7. apríl kl. 20 verður létt próf á sama stað. Námskeiðið er haldið í samvinnu við KSÍ og mun fulltrúi á þeirra vegum sjá um kennslu og koma með námskeiðsgögn.
Knattspyrnudeild Selfoss hóf í gær markvissa þjálfun fyrir yngri markmenn deildarinnar. Flokkur skipaður markmönnum úr 4. og 3. flokki karla og kvenna munu æfa undir stjórn Elíasar Arnar Einarssonar markmanns meistaraflokks Selfoss fyrir utan æfingar með sínum flokkum.
Vinsælasti fotboltafréttavefur landsins tók um helgina viðtal við fyrirliða meistaraflokk Selfoss í knattspyrnu. Hér að néðan má sjá viðtalið:
Grunnskólamót Árborgar í frjálsum íþróttum verður haldið í 11. sinn fimmtudaginn 2. apríl næstkomandi. Keppnin fer fram í Iðu (íþróttahúsi Fjölbrautaskóla Suðurlands). Keppni hefst kl. 16.30 í 1.-4. bekk og kl. 18.00 í 5.-10. bekk. Keppt er í eftirfarandi flokkum og greinum hjá stelpum og strákum...
Föstudaginn 27. mars bjóða Selfoss-Getraunir og 2. fl. kvenna og karla til glæsilegs hátíðarkvöldverðar í Tíbrá. Við viljum biðja þig að gera félaginu okkar þann heiður að mæta í Tíbrá milli kl. 20:00 og 22:00 og eiga með okkur skemmtilega kvöldstund. Við mælumst til þess að þú takir fjölskylduna með þér og gerir samkomuna þannig enn skemmtilegri fyrir okkur öll.
Þegar ein umferð er eftir af Íslandsmeistaramótinu í yngri flokknum í handbolta, er Selfoss með mjög góða stöðu í 6. flokki drengja og 5. flokki stúlkna, eldra ári. Í þessum flokkum er Selfoss með nokkuð örugga forustu. Í 5. flokki pilta eldra ár er Selfoss komið upp í 4. sæti eftir góða frammistöðu um helgina og 6. flokka stelpurnar hafa einnig staðið sig vel. Strákar og stelpur í 5. flokki yngra ár keppa síðan um næstu helgi og eru líka bæði í toppbaráttu. Hér fyrir neðan má sjá stöðuna í þessum flokkum.. .
Landsbankamótið í 5. flokki pilta (fæddir 1995) fór fram á Selfossi um helgina. Alls voru 30 lið skráð til leiks og leiknir 120 leikir í íþróttahúsi Vallaskóla og íþróttahúsinu Iðu. Mótafyrirkomulag var þannig að leikið var í sex deildum, 1. deild, 2. deild A og B, 3. deild A og B og 4. deild. Þetta er sjöunda árið í röð sem Landsbankamótið er haldið á Selfossi. Mikil hefð er komin á mótahaldið og gekk skipulagið mjög vel fyrir sig.
7.flokkur kvenna keppti í gær á litlu vinamóti í Kórnum í Kópavogi. Þær voru í feiknarstuði og spiluðu andstæðinga sína hreinlega upp úr skónum. Þær spiluðu nokkra leiki en auk Selfoss-stelpna voru lið Breiðabliks, HK og Grindavíks mætt til leiks. MYNDIR
7 af 8 keppendum á verlaunapall á Íslandsmeistaramóti í Taekwondo sem fram fór í Iðu um síðustu helgi.
Gunnlaugur Jónsson hefur þekkst boð frá John Peacock og enska knattspyrnusambandinu um að fylgjast með æfingum hjá u-17 ára landsliði þeirra, en æfingarnar verða helgina 20.-22. mars. Þetta verður væntanlega mikill skóli fyrir Gulla, en hann er að taka sín fyrstu spor sem þjálfari og gerði tveggja ára samning við Selfoss síðastliðið haust.
Stelpurnar í 2. flokki halda áfram að gera góða hluti í Faxaflóamótinu. Í kvöld tóku þær á móti Haukum í Hafnarfirði og unnu 1-2 í miklum baráttuleik. Byrjunarlið Selfoss var skipað eftirfarandi leikmönnum: Dagný, Edda B., Bára Sif, Sif Sigurðar, Íris Gísla, Thelma Sif, Rakel Ýr, Íris Sverris, Elsie Kristins, Aníta Kristjáns og Katrín Ýr. Varamenn: Unnur Borgþórs, Herdís Rúts, Guðrún Ásta, Hanna Einars og Erna Kristín.
Nýverið var undirritaður styrktarsamningur á milli handknattleiksdeildar Umf. Selfoss og Olís. Með samningnum er staðfestur stuðningur olís við handboltastarfið á Selfossi. Á meðfylgjandi mynd handsala Ingvar Guðmundsson, Olís og Jón Ragnar Ólafsson frá handknattleiksdeildinni samninginn.
Í gær vann 2. flokkur lið HK á heimavelli 40-30. Sigurinn var aldrei í hættu því að heimamenn réðu ferðinni frá upphafi. Liðið spilaði vel og allir liðsmenn að skiluðu sínu hlutverki vel. Liðið virkar þétt og öruggt í sínu spili enda veitir ekki af þar sem framundan eru leikir við þrjú af bestu liðinum í deildinni.
Alls þreyttu 43 einstaklingar beltapróf í Iðu um helgina og stóðust allir prófið með glans. Þeir iðkendur sem eldri eru fengu óvænt en skemmtilegt próf því hluti prófsins fór fram utandyra þar sem fólk gerði form skó og sokkalaust í snjónum. Einnig brutu hærribeltingarnir spítur utandyra og allar armbeygjur voru gerðar úti. Þetta átti að sýna að við getum ekki alltaf átt von á árás við bestu aðstæður, heldur einnig illa klædd.
Á 57. Sundþingi sem fram fór dagana 27. – 28. febrúar síðastliðinn var stjórn SSÍ falið að skipa áhugafólk í sundknattleiksnefnd til að vinna að frekari uppbyggingu sundknattleiksíþróttarinnar á íslandi. Stjórn SSí hefur nú auglýst eftir áhugasömum aðilum til að koma í sundknattleiksnefnd og/eða eftir tillögum frá varðandi útbreiðslu sundknattleiks. Ef einhverjir innan Umf. Selfoss hafa áhuga eða hugmyndir/tillögur er um að ger að senda póst á sundsamband@sundsamband.is
Í kvöld kl. 20.45 leikur 92-lið okkar á Selfossi gegn UMFA úr Mosfellsbæ. Gestir okkar hafa fínu liði á að skipa og eru þjálfaðir af Karli Erlingssyni, en hann er afar fær þjálfari og hefur gert marga góða hluti fyrir íslenskan handbolta. Fyrri leik liðanna lauk með öruggum sigri okkar manna að Varmá í Mosfellsbæ. Lið Selfoss hefur breyst talsvert síðan þá og er því spurning hvað verður í kvöld.
Alls eru 96 keppendur skráðir á Íslandsmeistaramót TKÍ í sparring sem fer fram í Iðu 14. mars. Keppendurnir koma frá 9 félögum víðs vegar af landinu. Keppt verður í +30 ára flokki í fyrsta sinn og hafa nokkrir keppendur skráð sig í þann flokk, bæði konur og karlar. Einnig verður beltapróf á sunnudeginum þar sem 46 iðkendur frá Selfossi þreyta próf.
Fyrir skömmu hófst skráning á Olísmótið sem haldið verður á Selfossi 7.-9. ágúst í sumar. Fyrstu félögin til að skrá lið í mótið voru Álftanes, Grótta og KR. Þátttaka takmarkast við 40 lið og má því búast við að mótið fyllist miðað við áhuga sem félög hafa sýnt. Olísmótið er nú haldið í fimmta skipti og er orðið að árvissum viðburði á Selfossi. Dagskrá verður með svipuðu sniði og í fyrra.
Mátun og pantanir á nýjum Selfoss-fimleikabolum fyrir stráka og stelpur verður í Baulu miðvikudaginn 18.mars frá 16:30-18 og mánudaginn 23.mars frá 15:00-16:30.
Stjórn fimleikadeildar Umf.Selfoss
Selfoss og FH léku á Selfossvelli í 2. flokki kvenna í kvöld. FH-ingar unnu leikinn 2-3 með tveimur mörkum í restina, eftir að Selfyssingar höfðu leitt mest allan leikinn. Í byrjunarliði Selfoss voru: Dagný, Edda, Íris Gísla, Bára, Unnur, Thelma Sif, Rakel, Íris Sverris (3.fl) Guðrún, Elsí og Erna Kristín. Varamenn: KatrínÝr,Hanna, Jóna, Anna (3.fl.) og Bríet (3.fl.).
Í gær, sunnudag, unnu strákarnir í 2. flokki Fram 27 - 35 á útivelli. Í lið Selfoss vantaði Baldur, Hemma og Gumma vegna meiðsla og Sjóli var veikur. Þá spilaði Helgi bara 5 mín. en hann missteig sig illa á föstudaginn í leiknum við ÍR. Leikurinn var jafn til að byrja með en svo skildu leiðir.
Síðast liðið föstudagskvöld vann M.fl. lið ÍR 29 - 26 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 16 -13 fyrir okkar menn. Sigurinn var mikilvægur í baráttunni um 2 sætið í deildinni. Selfoss hefur nú 4 stiga forskot á ÍR og UMFA þegar 3 umferðir eru eftir af deildinni.
Lesendur síðunar hafa sent inn spurningar fyrir Gunnlaug Jónsson þjálfara karlaliðs Selfoss í knattspyrnu. Margar athygglisverðar spurningar hafa borist og fékk Gulli þær fyrir helgi og er nú búinn að svara þeim. Hér að neðan eru spurningarnar sem Gulli fékk og svörin við þeim.
Selfyssingar tóku á móti Keflavík í gær sunnudag í öðrum leik liðanna í Lengjubikarnum. Keflvíkingar voru betri í fyrri hálfleik og hélt Jói markmaður Selfyssingum inn í leiknum, eða allt þar til á 39. minútu. Þá skoruðu Keflvíkingar þrjú mörk á fjórum mínútum og gerðu nánast út um leikinn. Selfyssingar tók sig á í seinni hálfleik og endaði leikurinn 4-2 fyrir Keflavík.
Fjölþrautarkonan Ágústa Tryggvadóttir Umf. Selfoss er í miklum ham þessa dagana. Hún keppti í 200m hlaupi á 5. Coca cola móti FH þann 26. febrúar sl og bætti 5 daga HSK-met Fjólu Signýjar Hannesdóttir um 12 sekúndubrot þegar hún hljóp á tímanum 26,76s. Fjórum dögum síðar eða þann 2. mars keppti hún sem gestur á Reykjavíkurmeistaramótinu í frjálsum íþróttum og sló ársgamalt HSK-met Agnesar Erlingsdóttir um rúmar 2 sekúndur er hún hljóp 400m á tímanum 62,75s. Innanhúskeppnistímabilinu er nú lokið hjá Ágústu og stífar æfingar framundan og meðal annars æfingabúðir í Portúgal um páskana.
Byrjenda- og framhaldsnámskeið fyrir börn frá 2ja mánaða til 5 ára hefjast 19., 20. og 21. mars n.k. Skráning og upplýsingar eru í síma 482 2808 og 848 1626. Guðbjörg H. Bjarnadóttir, íþróttakennari, Sunddeild Umf. Selfoss sér um námskeiðin.
Aðalfundur Sunddeildar Umf. Selfoss verður haldinn mánudaginn 9. mars n.k. í Tíbrá. Fundurinn hefst kl. 20:00. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.
Katrín Ösp Jónasdóttir fimleikakona úr Umf. Selfoss var kosin Íþróttamaður HSK árið 2008, en kjörið var kunngjört á Hótel Hvolsvelli s.l. laugardag.
Gamla myndin að þessu sinni er af 4. flokki kvenna sem varð íslandsmeistari einhvern tíma á níunda áratug síðustu aldar. Þessi hópur var undir stjórn Gríms Hergeirssonar og þrjár af stelpunum, þær Hulda Bjarnadóttir, Auður Hermannsdóttir og Inga Fríða Tryggadóttir, áttu síðar eftir að leika með A-landsliði Íslands.
Gunnlaugur Jónsson mun halda opinn fund með sponsorum, stuðningsmönnum og stjórnarmönnum Selfossliðsins í knattspyrnu. Fundurinn verður haldinn í Tíbrá þriðjudaginn 3. mars kl. 20.00. Gunnlaugur mun meta stöðu liðsins í dag og fara yfir hvernig hann sér sumarið fyrir sér. Eins verður opið fyrir spurningar úr sal og eru allir þeir sem láta sér annt um fótboltann á Selfossi hvattir til að mæta.
Strákarnir í meistaraflokki leika fyrsta æfingaleik sinn á Selfossvelli nú á mánudag. Leikurinn verður á gervigrasinu og hefst kl 19.00. Þá kemur í heimsókn nýsameinað lið ÍH-Hamrana-Vina sem leika í 2. deild í sumar. Þetta lið á rætur í Hafnafjörð og á Akureyri. Þjálfari ÍH-Hamranir-Vinir er Mikael Nikulásson, en hann lék með liði Selfossi í kringum aldamótin síðustu.
Ingvi Rafn Óskarsson hefur verið valinn til að æfa með u-17 ára landsliði Íslands. Ingvi Rafn er miðjumaður hjá 3. og 2. flokki Selfoss. Hann spilaði einnig sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir Selfoss er liðið tapaði fyrir HK í æfingaleik fyrir áramót. Æfingar u-17 ára liðsins fara fram í Kórnum og í Egilshöll nú um helgina.
87. héraðsþing Héraðssambandsins Skarphéðins verður haldið í grunnskólanum á Hvolsvelli á laugardag og hefst kl. 10:00. Afhending þinggagna er frá kl. 9:30. Umf. Selfoss mun mæta með fullmannaða sveit sem eru 13 fulltrúar. Á þinginu kemur út ríkulega myndskreytt ársskýrsla um starfsemi HSK á liðnu ári. Auk hefðbundinna þingstarfa verður Íþróttamaður HSK 2008 kjörinn á þinginu. Fimm manna valnefnd sá um að velja íþróttamann líkt og undanfarin ár, en alls voru 18 íþróttamenn í jafn mörgum greinum tilnefndir. Hafa þeir allir verið boðaðir á verðlaunahátíð HSK sem haldin verður á Hótel Hvolsvelli við Hlíðarveg kl. 15:15 á laugardag.
91-lið okkar Selfyssinga sótti Valsmenn heim að Hlíðarenda í gærkvöld en þar eru heimamenn ávallt erfiðir viðureignar. Heimamenn byrjuðu mun betur í leiknum og komust fljótlega í 5-1 og virtust okkar drengir ekki ætla að byrja þenna leik. Í stöðunni 7-5 fyrir Valsmenn breyttu okkar menn stöðunni í 7-9 sér í hag, en Valsmenn svöruðu með þremur mörkum og komust yfir á ný. Okkar drengir svöruðu með þremur mörkum til baka og leiddu svo í hálfleik 12-14.
Selfyssingar unnu Keflavík 3-4 í mfl. kvenna í Reykjaneshöllinni í æfingaleik liðanna í dag. Stelpurnar spiluðu mjög vel í leiknum. Rétt er að geta þess að Keflavík spilar í efstu deild. Byrjunarlið Selfoss var skipað eftirtöldum leikmönnum: Dagný, Arnheiður, Anita, Sif, Hafdís Jóna, Telma, Bára, Rakel G, Þóra, Katrín og Rakel Páls. Varamenn: Sunna, Þóra G, Erna Kristín, Díana og Unnur.
Sundæfingar falla niður miðvikudaginn 25. febrúar n.k. en þá er öskudagurinn.
Góða skemmtun. Bryndís og Hrafnhildur, þjálfarar
Selfyssingar sóttu HK heim í Kórnum í Kópavogi í fyrsta leik liðana í Lengjubikarnum. HK vann leikinn 2-1 og voru Selfyssingar óheppnir að taka ekki alla vega annað stigið. Byrjunarlið Selfoss var skipað eftirtöldum leikmönnum: Elli, Siggi Eyberg, Gulli Jóns, Stefán Ragnar, Ólafur Tryggvi, Jón Daði Ingó, Agnar Bragi, Ingþór, Einar Ottó og Jón Guðbrands. Leikkerfið 4-5-1 var notað.
Jóhann Ólafur Sigurðsson gekk í dag í raðir Selfyssinga frá Fylki. Jóhann Ólafur spilaði með Selfoss upp alla yngri flokkana, en fór í Fylki árið 2004 og hefur spilað nokkra leiki með þeim í efstu deild. Í fyrra var hann lánaður hluta af keppnistímabilinu til Selfoss og spilaði 12 leiki.
Sævar Þór Gíslason tók í dag fram takkaskóna á nýjan leik. Sævar hugðist hætta eftir síðasta tímabil en hefur nú, eftir mikinn þrýsting ákveðið að taka fram skóna á nýjan leik. Þetta er mikið ánægjuefni fyrir Selfyssinga og skiptir miklu máli fyrir sumarið. Sævar verður þó ekki með í fyrsta leik Selfyssinga í Lengjubikarnum sem fram fer í dag, sunnudag kl. 16.00 í Kórnum. Hér að neðan má lesa viðtal við Sævar Þór sem birtist á fotbolti.net í gær. Við þetta sama tilefni skrifaði einn okkar efnilegasti knattspyrnumaður undir samning, en það er sóknarmaðurinn Jón Daði Böðvarsson. En Jón Daði skoraði sitt fyrsta mark fyrir meistaraflokk í æfingaleik á dögunum.
Stelpurnar í 2. flokki Selfoss byrjuðu vel í Faxaflóamótinu. Eftir góðan sigur á Stjörnunni í síðustu viku, unnu þær HK-Víking 1-5 í dag. Byrjunarlið Selfoss var skipað eftirtöldum leikmönnum: Dagný, Edda, Herdís, Sif, Íris G, Rakel G, Thelma, Bára, Erna, Katrín og Elsie. Varamenn: Unnur, Aníta, Guðrún og Brynja.
Selfoss vann Þrótt í gærkvöldið 49 - 25 en staðan í hálfleik var 25 - 11. Sannfærandi sigur þar sem liðið slakaði ekkert á nema þá helst síðustu mínútur leiksins. Marga fastamenn vantaði í liðið og allir fengu mikið að spila. Ekki munaði miklu að liðið næði 50 mörkunum en skot Guðmundar á lokasekúndunum for í stöngina. Það hefði þá orðið 20 mark hans í leiknum hefði hann skorað.
Hið eiginlega keppnistímabil Selfossliðsins hefst um helgina, en þá er fyrsti leikur þeirra í Lengjubikarnum. Sá leikur er gegn HK og fer fram í Kórnum í Kópavogi og hefst kl. 16.00 á sunnudag. Strákarnir lofa hörku leik og er allir hvattir til að mæta.
Íslandsmótið í fjölþrautum fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardalnum 14.-15. febrúar síðastliðinn. Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss sendi þrjár stúlkur til leiks sem allar stóðu sig frábærlega vel. Ágústa Tryggvadóttir varð hlutskörpust kvenna í greinunum fimm og varð Íslandsmeistari. Hún bætti sinn fyrri árangur um 253 stig er hún náði 3809 stigum og setti um leið glæsilegt HSK og Selfossmet. Fjóla Signý Hannesdóttir keppti við Ágústu í kvennaflokki og varð í öðru sæti. Franziska Jóney Pálsdóttir, 14 ára, keppti í meyjaflokki. Þetta var hennar fyrsta þraut og uppskar hún 2540 stig sem er Selfossmet í meyjaflokki.
Nú er Lengjubikarinn að byrja, fyrsti leikur er gegn HK í Kórnum á sunnudag kl. 16.00. Ljóst er að stuðningsmenn Selfossliðsins bíða spenntir eftir að sjá liðið og hvernig það kemur undan vetri. Gunnlaugur Jónsson þjálfari Selfyssinga ætlar að leyfa mönnum að skyggnast inní klefann og mun svara spurningum lesenda umfs-síðunar.
Strákarnir í meistaraflokki Selfoss léku um helgina æfingarleik við Aftureldingu og unnu öruggan 1-3 sigur. Byrjunarlið Selfoss var skipað eftirtöldum leikmönnum: Elli, jón Sveins, Gulli, Stefán Ragnar, Ólafur Tryggvi, Agnar Bragi, Einar Ottó, Ingó Tóta, Gummi Tóta, Jón Daði og Jón Guðbrands.
Stelpunar í 2. flokki Selfoss fara vel af stað í Faxaflóamótinu í ár. Um helgina mættu þær Stjörnunni, sem fyrirfram er talið með eitt af öflugustu liðum landsins. Selfyssingar gerðu sér lítið fyrir og unnu leikinn 1-2 eftir mikla baráttu.
Strákarnir í 2. fl. hafa heldur betur snúið við blaðinu og eru nú komnir í 3. sæti í deildinni. Um helgina unnu þeir UMFA 33-23 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 13-12 fyrir heimamenn. Þrátt fyrir að vera í 3. sætinu eru ekki nema 2 stig í 10. sætið, þannig að þeir verða að vera á tánum í næstu deildarleikjum.
Íslandsmót unglinga í hópfimleikum verður haldið 21. og 22. febrúar á Selfossi í umsjón fimleikadeildar UMFS. 51 lið eru skráð til keppni sem gerir mótið að því fjölmennasta hjá Fimleikasambandinu. Fimleikadeild Selfoss á keppnislið í öllum flokkum keppninnar, samtals 11 lið. Keppt er eftir landsreglum í þremur flokkum og eftir Teamgym-reglum (Evrópureglum) í tveimur flokkum. Krýndir verða Íslandsmeistarar unglinga í síðasta hluta mótsins (team-gym) sem er eftir hádegi á sunnudeginum 22. febrúar og hefst kl. 16:10. Selfoss á tvö lið sem keppast um þann titil ásamt öðrum liðum. Í flokki landsreglna munu sex efstu lið óháð aldri komast áfram á íslandsmót í landsreglum sem haldið verður 18.apríl í Versölum Kópavogi. Nánari tímaáætlun:
Gamla myndin í dag er af meistaraflokki karla í handbolta veturinn 1988-1989. Þjálfari á þessum tíma var Guðmundur Magnússon (Dadú). Þarna eru kappar eins og Magnús Sigurðsson, Einar Gunnar Sigurðsson, Sigurður Þórðarson, Grímur Hergeirsson o.fl.
Guðmundur Þórarinsson hefur verið valin í U-19 ára landsliðshóp, en 20 strákar voru valdir í hópinn. Athugli vekur að Gummi er ennþá 16 ára, en hann verður 17 ára þann 15. april og getur þá tekið bílprófið. Æfingar hjá strákunum verða í Kórnum og Egilshöll um helgina. Þjálfari strákanna er Kristinn Rúnar Jónsson.
Stelpunar í meistaraflokki Selfoss kepptu í gær við ÍA uppi á Akranesi og endaði leikurinn 1-1 eftir að Selfyssingar höfðu komist yfir. Þetta var fyrsti leikur hjá nýjum þjálfara Selfoss, Halldóri Björnssyni. Byrjunarlið Selfoss var skipað eftirtöldum stelpum: Dagný, Edda, Aníta, Sif, Rakel Gunnlaugs, Jóna, Telma, Bára, Katrín, Þóra, Rakel Páls. Notaðir varamenn:DÍANA Arnheiður, Íris, Erna Kristín, Unnur og Elsí. Fyrirliði Selfyssinga var Aníta Guðlaugsdóttir.
Sænski netmiðillinn fotbollsverige.se birti frétt um samstarf Selfoss og Gautaborgar í gær. Þar var rætt við Håkan Mild hjá IFK Gautaborg og fór hann í grófum dráttum yfir samstarfið milli liðanna. Þar segist hann m.a. eiga von á Selfyssingum út til sín í apríl og eins að þetta samsarfsverkefni falli ekki inn í "Secrets of soccer" verkefnið sem þeir eru með í Afríku. Selfyssingum hlakkar mikið til að eiga samstarf við Svíana og munu frekari fréttir af samstarfinu birtast hér um leið og næstu skref verða ákveðin. Með því að klikka á hér: fotbollsverige.se má sjá fréttina í heild sinni.
Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum var haldið helgina 7.-8. febrúar í Frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík. Umf. Selfoss sendi 7 keppendur til leiks og stóðu þeir sig framúrskarandi vel. Afrakstur helgarinnar voru 6 verðlaun, 2 HSK-met og 7 persónuleg met. Lið Selfoss varð í 3. sæti í stigakeppni kvenna og í 6. sæti í heildarstigakeppni mótsins.
Í vetur hefur lítill hópur fólks á Selfossi komið saman í íþróttahúsinu Iðu á mánudögum og spilað bandminton. Hafa lausir tímar eldri flokka verið notaðir. Ekki þarf að fara mörgum orðum um það að badminton er flott hreyfing sem m.a. losar um streitu og gerir lífið einfaldlega skemmtilegra. Í tímunum er frjálst spil og eru allir velkomnir. Frítt er í tímana sem verða á mánudögum kl. 21:30-22:30. Miðað er við 16 ára og eldri. Nánari upplýsingar veitir Laufey í síma 820 1913.
Selfyssingar tóku á móti Íslandsmeisturum FH í Kórnum í Kópavogi í dag, sunnudag. Selfoss spilaði 4-5-1 eða 4-3-3 leikkerfi. Byrjunarlið var skipað eftirtöldum leikmönnum: Elli, Siggi Eyberg, Stefán Ragnar, Gulli Jóns, Jón Sveins. Á miðjunni voru Einar Ottó, Agnar Bragi og Ingó Tóta. Á köntum voru Andri Freyr og Jón Daði og efstur var Alli.
Klukkan 1930 í kvöld hefst leikur Selfoss og Gróttu í undanúrslitum Eimskipsbikar HSÍ. Forsala á miðum hefur gengið vel fyrir leikinn og er fólk hvatt til að koma tímanlega fyrir leik og ræða margir um að vera mættir 1830. Það er líklega best að vera mættur klukkustund fyrir leik til að ná góðu sæti.
Enn er hægt að verða sér út um miða, bara mæta í Vallaskóla klst fyrir leik og tryggja sér miða. Nú mætum við sunnlendingar og stöndum saman.
Áfram Selfoss!
Síðuritari hafði samband við Arnar Gunnarsson, aðstoðarmann Sebastíans Alexandersonar, vegna leiks Selfoss gegn Gróttu annað kvöld í bikarkeppni HSÍ. Arnar eða Addi eins og flestir þekkja hann á Selfossi tók vel í það að svara nokkrum laufléttum spurningum.
Markmaðurinn okkar ungi og skemmtilegi Birkir Fannar Bragason, sem sumir kjósa að kalla Bikk Van Quick, tók vel í það að svara nokkrum spurningum varðandi leik Selfoss gegn Gróttu. Sá leikur er í undanúrslitum bikarkeppni HSÍ og fer fram á morgun, föstudaginn 6. feb. kl. 19:30.
Síðastliðinn laugardag, 31. janúar, syntu krakkarnir í Sunddeildinni maraþonsund til fjáröflunar fyrir æfingaferð til Þýskalands sem fara á í júní n.k. Ferðin er fyrir elstu krakkana en að sjálfsögðu lögðust allir á eitt og tóku því flestir iðkendur þátt í sundinu auk þess sem nokkrir foreldrar og gestir sundlaugarinnar tóku líka þátt. Synt var í 12 tíma, frá kl. 9.00 til kl. 21.00.
Alls voru syntir 25.658 metrar á þessum 12 tímum eða 2.138 m/klst. að meðaltali.
Selfoss-strákarnir í 6. flokki A-liða urðu deildarbikarmeistarar um síðastliðna helgi, en mótið fór fram í Digranesi í Kópavogi. Öll lið landsins voru þar mætt til leiks á sjálfstæðu móti þar sem keppt er um einn titil. B-liðið varði í þriðja sæti og C-liðið vann til silfurverðlauna.
Á fimmtudaginn síðastliðinn unnu 91-strákarnir Hauka 46-22, en í leikhléi stóð 18-11. Þetta lið átti að leika gegn Val í gær í Reykjavík en var frestað sökum þess að Valsmenn ná ekki í lið sökum meiðsla. Líklega fer sá leikur fram laugardaginn næsta.
Afmælismót JSÍ var haldið 25. janúar síðastliðinn. Júdodeild Umf. Selfoss sendi tuttugu keppendur til leiks og varð árangur þeirra góður í það heila. Þó máttu sumir sigursælir keppendur deildarinnar, sem hafa oftast unnið sína aldursflokka, sætta sig við að vera annarstaðar á verðlaunapallinum í þetta skiptið. Úrslit urðu eftirfarandi:
91-lið Selfoss í flokki vann Hauka úr Hafnarfirði með 24ja marka mun í gærkvöld, 46-22 eftir að hafa leitt 18-11 í hálfleik. Selfoss lék afar vel á köflum í leiknum og menn sem voru skuldum vafnir eftir leik sama liðs gegn HK á dögunum greiddu aðeins til baka í gærkvöld. Tölfræði kemur eftir eða um helgi en gleðifréttirnar eru þær að Matthías gat leikið aðeins í gær og skoraði nokkur falleg mörk með þrumuskotum og stóð vörnina vel og þá er Andri Halls að braggast sem og Aðalsteinn. Enda hefur þjálfari liðsins fyrir löngu síðan bannað meiðsli og veikindi.
Á morgun leikur 92-liðið heima kl 16 gegn Þrótturum úr Laugardal og á sunnudaginn er aftur leikur hjá 91-drengjum, nú á útivelli gegn Valsmönnum og fer leikurinn fram að Hlíðarenda kl 18.30.
Gamla myndin að þessu sinni er tekin þegar Siggi Sveins hellir vatni yfir Einar Þorvarðar í miðju sjónvarpsviðtali við Arnar Björnsson eftir leik keppnistímabilið 1992-1993.
Í kvöld koma Haukar úr Hafnarfirði í heimsókn til 91-liðsins og hefst leikurinn kl 21.00 í Vallaskóla.
Um hörkuleik er að ræða eins og venja er hjá þessum flokki. Mikið er um meiðsli hjá 91-liðinu en Matthías og Aðalsteinn Halldórssynir eru báðir meiddir og ekki með í kvöld og þá hefur Andri Hallsson einnig verið meiddur.
Á laugardaginn kl 16 í Vallaskóla koma svo Þróttarar í heimsókn og leika við 92-liðið.
Knattspyrnudeild Selfoss og IFK Gautaborg frá Svíþjóð hafa gert með sér gagnvirkan samstarfssamning. Samningurinn felur meðal annars í sér að Selfyssingar hafa aðgang að leikmönnum sem ekki komast í endanlegan leikmannahóp hjá Gautaborg.
Håkan Mild knattspyrnustjóri IFK Gautaborg telur þetta mjög áhugaverðan kost fyrir IFK og telur að þetta geti nýst ungum og efnilegum leikmönnum þeirra að takast á við verðugt verkefni. Þetta sé mikil áskorun fyrir efnilega leikmenn frá þeim og gæti komið þeim á næsta stig. Einnig mun IFK Gautaborg senda þjálfara sína til að halda námskeið fyrir unglingaþjálfara og knattspyrnuskóla fyrir yngri leikmenn Selfoss og nágrennis.
Selfoss leikur sinn fyrsta æfingaleik á þessu ári, er þeir mæta Hamri frá Hveragerði. Leikið er í Kórnum í Kópavogi, föstudagskvöldið 30. Janúar og verður spilað á Brasilískum tíma, eða kl 22.00. Selfyssingar eiga harma að hefna síðan Hvergerðingar slógu þá út úr bikarnum síðastliðið sumar og má búast við skemmtilegum leik. Það er um að gera að mæta í Kórinn á föstudagskvöldið og sjá hvernig undirbúningur liðsins gengur.
Knattspyrnuæfingar hjá 7. flokki karla og kvenna voru í fullum gangi í dag þrátt fyrir mikinn
snjó á vellinum. Krakkarnir mættu vel búin undir snjóin og léku sér ásamt þjálfurum m.a í knattspyrnu og ýmsum öðrum leikjum.
Í gærkvöldi mættust Afturelding og Selfoss í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar í 2 flokki í Mosfellsbæ. Selfoss vann leikinn eftir tvær framlengingar með minnsta mun 36 - 37 og allt of stórum skammti af dramatík og spennu. Leikurinn var "ekta" bikarleikur sem bauð upp á allt sem hægt er að hugsa sér í handboltaleik.
Sunnudaginn 18. janúar var alþjóðlegt boðsmót, Reykjavík International, haldið í nýju frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík. Ágústa Tryggvadóttir byrjaði keppnistímabilið með glæsibrag er hún vann ein silfurverðlaun og tvenn bronsverðlaun.
Stórmót ÍR var haldið helgina 17.-18. janúar í frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík. Frá Umf. Selfoss mætti vaskur hópur til leiks og stóð sig mjög vel. Fjóla Signý Hannesdóttir keppti í kvennaflokki og vann til 3 gullverðlauna og fékk að auki eitt silfur og eitt brons. Teitur Örn Einarsson, 11 ára, vann gullverðlaun í 800m hlaupi og kúluvarpi.
Keppni í 1. deild í 3. flokki karla er mjög jöfn og spennandi. Selfoss er búið að fara á afar erfiða útivelli þar sem Haukar og ÍR spila og sóttu þar fjögur stig. Einnig er liðið búið að fara norður en tapaði þar báðum leikjum fyrir stuttu. Sennilega ræðst það ekki fyrr en í lok tímabilsins hvar liðin enda og ómögulegt að segja hvernig það allt saman fer.
Annar flokkur kvenna og karla, Selfoss-Getraunir og Guðnabakarí bjóða þér í kaffi og meðlæti í Tíbrá alla laugardaga kl. 11.00. Selfoss-Getraunir eru með öflugt félagsstarf og opið hús alla laugardaga í vetur milli kl. 11 og 13. Þangað getur þú komið í kaffi, hitt gamla félaga og kynnst nýjum úr okkar skemmtilega hópi.
Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum, 15. janúar, aukinn fjárhagslegan stuðning við aðildarfélög sambandsins. KSÍ tekur yfir ferða- og uppihaldskostnað dómara fyrir árið 2009 í öllum deildum beggja kynja og í leikjum VISA bikarsins. Öll gjöld í jöfnunarsjóð meistaraflokka falla því niður á þessu ári. Framlag til þeirra 24 félaga sem undirgangast leyfiskerfi KSÍ í Landsbankadeild karla og 1. deild karla hækkar úr 250 þúsund krónum í 500 þúsund krónur á hvert félag. Þá skila nýir samningar við Sportfive, vegna sjónvarps – og markaðsréttinda efstu deildar karla og bikarkeppni KSÍ í meistaraflokki karla, auknum tekjum til aðildarfélaga.
Héraðsmót HSK í fullorðinsflokki í frjálsum íþróttum fer fram í íþróttahúsinu á Hvolsvelli fimmtudaginn 22. janúar og hefst kl. 19:00. Keppt verður í karla- og kvennaflokk í eftirtöldun greinum: Langstökk án atrennu, þrístökk án atrennu, hástökk með atrennu, hástökk án atrennu, kúluvarp og stangarstökk. Engar hömlur eru settar á fjölda þátttökugreina einstaklinga á héraðsmótum innanhúss. Á héraðsmóti HSK er 15 ára og eldri heimilt að keppa í karla- og kvennaflokkum.
Mátun og pöntun á nýjum Selfossfimleikabol fyrir stráka og stelpur fer fram í Baulu laugardaginn 24. janúar á milli kl. 10:00 og 12:00. Nú þegar hafa margir lagt inn pöntun sem farin er af stað en þetta er tækifæri fyrir þá sem misstu af fyrri pöntun.
Stjórn Fimleikadeildar Umf. Selfoss
Þeim sem hugsanlega gætu haft áhuga á að afla sér dómararéttinda í sundi er bent á að dómaranámskeið verður haldið 27. og 29. janúar. Bóklegi hlutinn verður þriðjudaginn 27. janúar og fimmtudaginn 29. janúar í fundaraðstöðu ÍSÍ, Laugardal. Verkleg kennsla fer fram á Reykjavíkurmeistaramóti 31. janúar og 1. febrúar. Nokkur skortur er á dómurum innan sundíþróttarinnar og því viljum við hvetja fólk til þess að sækja námskeiðið.
Hið meiðslum hrjáða lið 2. flokks þjappaði sér saman og spilaði góðan leik á móti sterku liði ÍR sem var í 3. sæti fyrir þennan leik. ÍR vann fyrri leik liðanna á Selfossi og því var mikilvægt að ná sigri í Reykjavík. 2. flokkur virðist vera að ná áttum nú um áramót og nóg er eftir af mótinu þannig að enn má stefna á að ná í úrslit. Leikurinn endaði 32 - 38 en í hálfleik var staðan 13 - 17.
Sundskóli Sunddeildarinnar hefst þriðjudaginn 20. janúar n.k. Sundskólinn er fyrir ósynd börn, 5 ára og eldri. Æfingar verða tvisvar í viku í innilauginni, á þriðjudögum og miðvikudögum frá kl. 14.30-16.00. Hver hópur er 45 mín. í senn.
Miðvikudaginn 21. janúar næstkomandi verður haldið félagsmálanámskeið í Tíbrá sem ber yfirskriftina "Sýndu hvað í þér býr". Farið verður í ýmsa þætti er tengjast ræðumennsku, fundahöldum og félagsmálastörfum. Námskeiðið er einungis ein kvöldstund þ.e. frá kl. 18:00-22:00. Framkvæmdastjórn Umf. Selfoss hefur ákveðið að bjóða öllum félögum í Umf. Selfoss frítt á námsekiðið. Sjá nánar...
Laugardaginn 10.janúar verður Sundhöll Selfoss lokuð vegna þrifa og frágangs eftir viðgerðir sem hafa átt sér stað síðastliðinn mánuð. Opnað verður aftur sunnudaginn 11. janúar kl. 9:00 og þá verður innilaugin aftur opin eftir viðgerðirnar.Stelpunar í meistaraflokki Selfoss í knattspyrnu taka nú þátt í Íslandsmótinu í Futsal í fyrsta sinn, en Futsal er innanhúsfótbolti. Stelpunar byrjuðu mjög vel og komust í undanúrslit Íslandsmótsins og keppa á morgun við sameinað lið Víkings og HK um það hvort liðið fer í úrslitaleikinn. Undanúrslitaleikurinn hjá stelpunum fer fram í íþróttahúsinu við Austurberg í Breiðholti og hefst kl. 14.30 laugardaginn 10. janúar.
Nú eru 60 myndir af HSK-mótinu í júdó komnar á Netið á slóðinni: http://picasaweb.google.com/Judodeild.umfs . Þar má sjá mörg brosandi andlit og skemmtileg tilþrif.
Keppni í 1. deild karla hefst að nýju í kvöld með leik Selfoss og ÍBV í Vallaskóla og hefst leikurinn kl. 19:30. Selfyssingar eru í 2.-3 sæti ásamt ÍR-ingum með 16 stig að loknum 11 umferðum. Grótta er tveimur stigum ofar og því efst í deildinni. Eyjamenn eru í 6. sæti með 8 stig. Selfoss vann fyrri leik liðanna í Eyjum í miklum markaleik 34:42.
Elskulegur félagi okkar, Guðjón Ægir Sigurjónsson, hæstaréttarlögmaður og stjórnarmaður í knattspyrnudeild Umf. Selfoss lést af slysförum mánudaginn 5. janúar s.l. Guðjón var 38 ára gamall, fæddur á Selfossi þann 4. janúar 1971. Eiginkona Guðjóns er Þórdís Þórðardóttir og eiga þau tvö börn, Hjört Leó Guðjónsson og Hörpu Hlíf Guðjónsdóttir.
Starfið á vorönn er nú komið á fullt hjá taekwondo-deildinni. Æfingatímar eru þeir sömu og áður (sjá æfingatöflu). http://umfs.is/taekwondo/aefingatimar-taekwondo/ Sjáumst öll hress á nýju ári. Nýir iðkendur velkomnir og munið að það kostar ekkert að prufa. Nóg er að mæta með stuttbuxur og bol.
Íþróttaskóli fimleikadeildar UMFS hefst að nýju laugardaginn 17. janúar. Kennarar verða sem fyrr Steinunn H. Eggertsdóttir og Guðrún Hrafnhildur Klemenzdóttir. Námskeiðið eru 10 skipti og kostar 7.000 kr. Námskeiðsgjald greiðist við skráningu. Íþróttaskólinn er fyrir börn fædd 2007-2004. Börn fædd 2006 og 2007 frá 10:00-10:50
Börn fædd 2005 og 2004 frá 11:00-11:50. Skráning fer fram í Baulu (íþróttahús Sunnulækjarskóla) fimmtudaginn 15. janúar kl. 16-18 og laugardaginn 17. janúar kl. 9:30-12:00. Einnig verður tekið á móti pöntunum á nýja Selfossfimleikabolnum bæði fyrir stráka og stelpur.
Innritun er hafin í Sundskóla sunddeildar Umf. Selfoss. Skólinn er fyrir 5 ára og eldri, bæði byrjendur og lengra komna. Skráning í síma 695-1960 eða netfangið eisenfee@hotmail.com
Óvíst er hvenær hægt er að byrja í janúar vegna lokunar innilaugarinnar.
Á morgun þriðjudaginn 6. janúar hefjast æfingar hjá yngri flokkum knattspyrnudeildarinnar. Æfingaáætlanir og upplýsingar um flokka má sjá hér á síðu deildarinnar. Kveðja, þjálfarar.
Guðmunda Brynja Óladóttir hefur verið valin í u-17 ára landsliðsæfingahóp KSÍ. Æfingarnar verða í Egilshöll og Kórnum nú um helgina. Athygli vekur að Gumma skuli vera valin í u-17 ára landslið, en hún verður 15 ára á þessu ári. Er þetta val góður vitnisburður um þá hæfileika sem Gumma hefur sem knattspyrnukona. Þjálfari u-17 landsliðs kvenna er Þorlákur Árnason.

