31.1.2009 | Júdó
Afmælismót JSÍ var haldið 25. janúar síðastliðinn. Júdodeild Umf. Selfoss sendi tuttugu keppendur til leiks og varð árangur þeirra góður í það heila. Þó máttu sumir sigursælir keppendur deildarinnar, sem hafa oftast unnið sína aldursflokka, sætta sig við að vera annarstaðar á verðlaunapallinum í þetta skiptið. Úrslit urðu eftirfarandi:
30.1.2009 | Sund

Á morgun fer fram maraþonsund á vegum Sunddeildarinnar til fjáröflunar fyrir elstu iðkendur deildarinnar vegna fyrirhugðrar æfingaferðar til Rosenheim í Þýskalandi. Krakkarnir munu synda í 12 tíma, þ.e. frá kl. 9.00 um morgunin til kl. 21.00 á laugardagskvöldið.
30.1.2009 | Handboltaakademía
Sigur hjá 3.flokki í gćr
91-lið Selfoss í flokki vann Hauka úr Hafnarfirði með 24ja marka mun í gærkvöld, 46-22 eftir að hafa leitt 18-11 í hálfleik. Selfoss lék afar vel á köflum í leiknum og menn sem voru skuldum vafnir eftir leik sama liðs gegn HK á dögunum greiddu aðeins til baka í gærkvöld. Tölfræði kemur eftir eða um helgi en gleðifréttirnar eru þær að Matthías gat leikið aðeins í gær og skoraði nokkur falleg mörk með þrumuskotum og stóð vörnina vel og þá er Andri Halls að braggast sem og Aðalsteinn. Enda hefur þjálfari liðsins fyrir löngu síðan bannað meiðsli og veikindi.
Á morgun leikur 92-liðið heima kl 16 gegn Þrótturum úr Laugardal og á sunnudaginn er aftur leikur hjá 91-drengjum, nú á útivelli gegn Valsmönnum og fer leikurinn fram að Hlíðarenda kl 18.30.
30.1.2009 | Knattspyrna
Búið er að manna öll knattspyrnuráð og nefndir fyrir sumarið 2009. Óhætt er að fullyrða að aldrei hafa jafn margir komið að uppbyggingu knattspyrnunnar á Selfossi og nú í ár. En alls eru þetta 36 manns sem skipa 7 ráð. Við þetta má auðvitað bæta öllum þeim sem koma að einhverjum hætti að leikjum og mótum, en þeir skipa auðvitað tugum og allt of langt mál að telja þá upp. Hér að neðan má sjá nöfn þeirra sem skipa stjórn, ráð og nefndir.
29.1.2009 | Handboltaakademía

Gamla myndin að þessu sinni er tekin þegar Siggi Sveins hellir vatni yfir Einar Þorvarðar í miðju sjónvarpsviðtali við Arnar Björnsson eftir leik keppnistímabilið 1992-1993.
29.1.2009 | Handboltaakademía
Leikur hjá 3.flokki í kvöld
Í kvöld koma Haukar úr Hafnarfirði í heimsókn til 91-liðsins og hefst leikurinn kl 21.00 í Vallaskóla.
Um hörkuleik er að ræða eins og venja er hjá þessum flokki. Mikið er um meiðsli hjá 91-liðinu en Matthías og Aðalsteinn Halldórssynir eru báðir meiddir og ekki með í kvöld og þá hefur Andri Hallsson einnig verið meiddur.
Á laugardaginn kl 16 í Vallaskóla koma svo Þróttarar í heimsókn og leika við 92-liðið.
29.1.2009 | Knattspyrna
Knattspyrnudeild Selfoss og IFK Gautaborg frá Svíþjóð hafa gert með sér gagnvirkan samstarfssamning. Samningurinn felur meðal annars í sér að Selfyssingar hafa aðgang að leikmönnum sem ekki komast í endanlegan leikmannahóp hjá Gautaborg.
Håkan Mild knattspyrnustjóri IFK Gautaborg telur þetta mjög áhugaverðan kost fyrir IFK og telur að þetta geti nýst ungum og efnilegum leikmönnum þeirra að takast á við verðugt verkefni. Þetta sé mikil áskorun fyrir efnilega leikmenn frá þeim og gæti komið þeim á næsta stig. Einnig mun IFK Gautaborg senda þjálfara sína til að halda námskeið fyrir unglingaþjálfara og knattspyrnuskóla fyrir yngri leikmenn Selfoss og nágrennis.
29.1.2009 | Knattspyrna
Selfoss leikur sinn fyrsta æfingaleik á þessu ári, er þeir mæta Hamri frá Hveragerði. Leikið er í Kórnum í Kópavogi, föstudagskvöldið 30. Janúar og verður spilað á Brasilískum tíma, eða kl 22.00. Selfyssingar eiga harma að hefna síðan Hvergerðingar slógu þá út úr bikarnum síðastliðið sumar og má búast við skemmtilegum leik. Það er um að gera að mæta í Kórinn á föstudagskvöldið og sjá hvernig undirbúningur liðsins gengur.
29.1.2009 | Handboltaakademía
Stelpurnar fóru í Garðabæ um helgina og kepptu við Stjörnuna í 3 sinn í vetur. Fyrstu tveir leikirnir voru gríðarlega spennandi og ekki varð breyting á því á sunnudaginn. Fyrsti leikurinn endaði jafntefli, sá næsti í Bikarkeppninni endaði með 1 marks sigri Stjörnunnar og þessi leikur gerði það sömuleiðis. Lokastaðan var 26 - 25 en staðan í hálfleik hafði verið 11 - 16 fyrir Selfoss.
28.1.2009 | Knattspyrna
Knattspyrnuæfingar hjá 7. flokki karla og kvenna voru í fullum gangi í dag
þrátt fyrir mikinn
snjó á vellinum. Krakkarnir mættu vel búin undir snjóin og léku sér ásamt þjálfurum m.a í knattspyrnu og ýmsum öðrum leikjum.
27.1.2009 | Handboltaakademía

Í gærkvöldi mættust Afturelding og Selfoss í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar í 2 flokki í Mosfellsbæ. Selfoss vann leikinn eftir tvær framlengingar með minnsta mun 36 - 37 og allt of stórum skammti af dramatík og spennu. Leikurinn var "ekta" bikarleikur sem bauð upp á allt sem hægt er að hugsa sér í handboltaleik.
27.1.2009 | Frálsíţróttir
Sunnudaginn 18. janúar var alþjóðlegt boðsmót, Reykjavík International, haldið í nýju frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík. Ágústa Tryggvadóttir byrjaði keppnistímabilið með glæsibrag er hún vann ein silfurverðlaun og tvenn bronsverðlaun.
27.1.2009 | Frálsíţróttir
Stórmót ÍR var haldið helgina 17.-18. janúar í frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík. Frá Umf. Selfoss mætti vaskur hópur til leiks og stóð sig mjög vel. Fjóla Signý Hannesdóttir keppti í kvennaflokki og vann til 3 gullverðlauna og fékk að auki eitt silfur og eitt brons. Teitur Örn Einarsson, 11 ára, vann gullverðlaun í 800m hlaupi og kúluvarpi.
26.1.2009 | Fimleikar
Fimleikastelpur í hlaupaţjálfun hjá Alberti Ţór Magnússyni
Stelpurnar í fimleikaakademíu FSU og Meistarahópur Selfoss í fimleikum HM1 eru á leið í hlaupaþjálfun hjá Alberti Þór Magnússyni, yfirþjálfara frjálsíþróttadeildar. Er þetta leinn liður í þjálfun innan akademíunnar, þ.e. að fá sérhæfða kennara til að taka einstaka þætti sem snerta fimleikana. Markmiðið með þessu er að bæta hlaupið á trampólínið.
26.1.2009 | Fimleikar
Fimleikar fyrir fullorđna oldboys/oldgirls
Fimleikar fyrir fullorðna hefjast miðvikudaginn 4.febrúar 2009. Kennt verður 2x í viku á mánudögum og miðvikudögum frá 20:00-21:30 í Baulu. Kennari er Torbjörn Kaape. Gamlir og nýjir velkomnir í góða hreyfingu. Skráning fer fram á netfangið
olgu@simnet.is Hlökkum til að sjá ykkur
Stjórn Fimleikadeildar Umf. Selfoss
26.1.2009 | Handboltaakademía

Það er með ólíkindum hvað leikmenn liðanna tveggja hafa verið óheppnir með meiðsli upp á síðkastið. Alls hafa hvorki né færri en 12 leikmenn úr 20 manna æfingahópi verið eitthvað frá síðustu vikur. Hér fyrir neðan er listinn..
26.1.2009 | Sund

Innanfélagsmót Sunddeildar Selfoss fór fram síðastliðinn laugardag. Þátttakan var góð og árangurinn ánægjulegur, sérstaklega ef tekið er tillit til þess að þetta var innanfélagsmót. Strákar og stelpur kepptu saman svo keppnin væri sem hörðust og alls bættu sig ¾ af sundmönnunum og 30 bætingar litu dagsins ljós í þeim 13 greinum sem syntar voru.
26.1.2009 | Handboltaakademía

Á undanfarinni viku spilaði 2 flokkur tvo leiki, báða á heimavelli, á móti Stjörnunni og Fjölni. Báðir leikirnir unnust sannfæarandi og er 2 flokkur kominn á smá skrið, loksins segja sumir. Fyrri leikurinn á móti Stjörnunni fór 35 - 25 og sá síðari á móti Fjölni 35 - 23.
26.1.2009 | Handbolti

Á laugardaginn unnu strákarnir okkar gríðarlega mikilvægan sigur á Haukum á útivelli. Lokatölur urðu 21 - 29 en í hálfleik var 10 - 18. Það vantaði talsvert í lið Selfoss vegna meiðsla en með góðri vörn og frábærum hraðaupphlaupum í fyrri hálfleik vannst sigur á erfiðum útivelli þar sem bestu lið deildarinnar hafa öll tapað eða þá unnið nauma sigra.
25.1.2009 | Sund
Sunddeild Umf. Selfoss stóð fyrir innanfélagsmóti s.l. laugardag 24. janúar. Alls var keppt í 13 greinum og eru úrslitin komin á úrslitasíðu Sunddeildarinnar sem skoða má með því að
smella hér.
23.1.2009 | Knattspyrna

Þrír af lykilleikmönnum Selfoss framlengdu samning sínum við félagið í gær. Selfyssingar eru nú að framlengja samninga við þá sem voru með lausa samninga og er búnið að semja við níu leikmenn.
23.1.2009 | Handboltaakademía
Svipuð staða er uppi í 2. deild 3. flokks karla. Þar hafa okkar menn staðið sig vel og hér er einnig ómögulegt að spá fyrir um lokastöðu. Ekki síst þar sem tvö bestu liðin FH og við á Selfossi munum væntanlega færa bestu leikmenn B-liða sinna í A-liðin áður en tímabilið er úti. Selfoss er búið að fara á afar erfiða útivelli gegn Þrótti og UMFA og sótt þar sigur í báðum leikjum. Sem og er liðið búið að leika gegn Gróttu á útivelli eins og frægt er og tapaði þar, óverðskuldað.
23.1.2009 | Handboltaakademía
Keppni í 1. deild í 3. flokki karla er mjög jöfn og spennandi. Selfoss er búið að fara á afar erfiða útivelli þar sem Haukar og ÍR spila og sóttu þar fjögur stig. Einnig er liðið búið að fara norður en tapaði þar báðum leikjum fyrir stuttu. Sennilega ræðst það ekki fyrr en í lok tímabilsins hvar liðin enda og ómögulegt að segja hvernig það allt saman fer.
23.1.2009 | Sund

Á morgun, laugardaginn 23. janúar, verður innanfélagsmót í sundi í Sundhöll Selfoss. Mótið hefst kl. 10.30. Við minnum þá iðkendur sem ekki hafa enn skráð sig í greinar að gera það sem allra fyrst hjá yfirþjálfara í síma 695 1960 eða á netfangið
eisenfee@hotmail.com.
23.1.2009 | Knattspyrna
Annar flokkur kvenna og karla, Selfoss-Getraunir og Guðnabakarí bjóða þér í kaffi og meðlæti í Tíbrá alla laugardaga kl. 11.00. Selfoss-Getraunir eru með öflugt félagsstarf og opið hús alla laugardaga í vetur milli kl. 11 og 13. Þangað getur þú komið í kaffi, hitt gamla félaga og kynnst nýjum úr okkar skemmtilega hópi.
23.1.2009 | Knattspyrna
Þrír þjálfarar Selfoss eru að ljúka 6. stigi þjálfunar á vegum KSÍ. Þetta eru þeir Gunnlaugur Jónsson, Gunnar Borgþórsson og Antoine van Kasteren, en þeir hafa dvalið í Englandi í viku við akademísk fræði. Meðal þjálfara á námskeiðinu eru John Peacock, yfirmaður enska pro licence þjálfunarnámskeiðsins, Dick Bate og Andy Cale, doktor í íþróttasálfræði. Er þetta lokastig sem kennt er í gegnum KSÍ og gefur stig rétt til að þjálfa í efstu deild.
22.1.2009 | Júdó
Nýtt fréttabréf júdódeildar komiđ á vefinn
Foreldraráð Júdodeildar hefur gefið út sitt fyrsta fréttabréf og sent rafrænt á félagsmenn. Fréttabréfið er einnig að finna hér á netinu.
Fréttabréf janúar 2009
22.1.2009 | Taekwondó
NM í Taekwondo fer fram um helgina í íþróttahúsi Fram við Safamýri. Keppni hefst á laugardagsmorgun kl. 9:00, en viktun og skráning er á föstudag kl. 18:00. Dagskrá mótsins má sjá hér...
22.1.2009 | Handboltaakademía
Selfyssingar í 91-liðinu sóttu HK menn heim í gærkvöld, ljóst var að um hörkuleik væri að ræða þar sem HK-ingar eru með gott lið og afar færan þjálfara. Það varð svo raunin og eftir mikinn barning og þrautagöngu unnu okkar menn með einu marki, 30-29.
21.1.2009 | Knattspyrna
Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum, 15. janúar, aukinn fjárhagslegan stuðning við aðildarfélög sambandsins. KSÍ tekur yfir ferða- og uppihaldskostnað dómara fyrir árið 2009 í öllum deildum beggja kynja og í leikjum VISA bikarsins. Öll gjöld í jöfnunarsjóð meistaraflokka falla því niður á þessu ári. Framlag til þeirra 24 félaga sem undirgangast leyfiskerfi KSÍ í Landsbankadeild karla og 1. deild karla hækkar úr 250 þúsund krónum í 500 þúsund krónur á hvert félag. Þá skila nýir samningar við Sportfive, vegna sjónvarps – og markaðsréttinda efstu deildar karla og bikarkeppni KSÍ í meistaraflokki karla, auknum tekjum til aðildarfélaga.
20.1.2009 | Frálsíţróttir
Héraðsmót HSK í fullorðinsflokki í frjálsum íþróttum fer fram í íþróttahúsinu á Hvolsvelli fimmtudaginn 22. janúar og hefst kl. 19:00. Keppt verður í karla- og kvennaflokk í eftirtöldun greinum: Langstökk án atrennu, þrístökk án atrennu, hástökk með atrennu, hástökk án atrennu, kúluvarp og stangarstökk. Engar hömlur eru settar á fjölda þátttökugreina einstaklinga á héraðsmótum innanhúss. Á héraðsmóti HSK er 15 ára og eldri heimilt að keppa í karla- og kvennaflokkum.
20.1.2009 | Fimleikar
Nýr Selfossfimleikabolur á stráka og stelpur
Mátun og pöntun á nýjum Selfossfimleikabol fyrir stráka og stelpur fer fram í Baulu laugardaginn 24. janúar á milli kl. 10:00 og 12:00. Nú þegar hafa margir lagt inn pöntun sem farin er af stað en þetta er tækifæri fyrir þá sem misstu af fyrri pöntun.
Stjórn Fimleikadeildar Umf. Selfoss
20.1.2009 | Handboltaakademía
Um síðustu helgi lék 92-lið okkar á Selfossi gegn Gróttu á Seltjarnarnesi. Sá leikur tapaðist 26-27 í mikilli sirkussýningu. Selfoss byrjaði mun betur og komst í 11-6 en heimamenn náði að minnka muninn í 12-11 fyrir leikhlé.
20.1.2009 | Taekwondó
Daníel Jens Pétursson, yfirþjálfari Taekwondodeildar Umf. Selfoss keppir fyrir Íslands hönd á Norðurlandamótinu sem haldið verður í Fram-heimilinu Safamýri, laugardaginn 24. janúar. Mótið hefst kl. 9:00.
19.1.2009 | Sund
Þeim sem hugsanlega gætu haft áhuga á að afla sér dómararéttinda í sundi er bent á að dómaranámskeið verður haldið 27. og 29. janúar. Bóklegi hlutinn verður þriðjudaginn 27. janúar og fimmtudaginn 29. janúar í fundaraðstöðu ÍSÍ, Laugardal. Verkleg kennsla fer fram á Reykjavíkurmeistaramóti 31. janúar og 1. febrúar. Nokkur skortur er á dómurum innan sundíþróttarinnar og því viljum við hvetja fólk til þess að sækja námskeiðið.
19.1.2009 | Knattspyrna
Stefán Ragnar Guðlaugsson og Guðmundur Þórarinsson knattspyrnumenn hjá Selfoss voru í dag valdir í æfingahóp fyrir u-19 ára landslið Íslands. Æfingar verða í Egilshöll og Kórnum, helgina 24. og 25. janúar. Stefán Ragnar hefur áður æft með u-19 ára liði Íslands, en Guðmundur, sem er 17 ára er að mæta á sínar fyrstu æfingar um helgina. Báðir hafa þeir kappar leikið með u-17 ára landsliði íslands.
19.1.2009 | Knattspyrna
Fimm leikmenn Selfyssinga skrifuðu undir tveggja ára leikmannasamning um helgina. Á næstu dögum mun Selfoss skrifa undir samninga við fleirri leikmenn. Hér að neðan má sjá hverjir skrifuðu undir og eins smá fróðleiksmolar um hvern leikmann.
19.1.2009 | Handboltaakademía

Hið meiðslum hrjáða lið 2. flokks þjappaði sér saman og spilaði góðan leik á móti sterku liði ÍR sem var í 3. sæti fyrir þennan leik. ÍR vann fyrri leik liðanna á Selfossi og því var mikilvægt að ná sigri í Reykjavík. 2. flokkur virðist vera að ná áttum nú um áramót og nóg er eftir af mótinu þannig að enn má stefna á að ná í úrslit. Leikurinn endaði 32 - 38 en í hálfleik var staðan 13 - 17.
19.1.2009 | Handboltaakademía

Síðasta föstudagskvöld mættu Fjölnismenn á Selfoss. Leikurinn endaði 32 - 22 fyrir Selfoss en staðan í hálfleik var 11 - 10 fyrir okkar menn og máttu þeir teljast heppnir að vera ekki undir í hálfleik. Marga leikmenn vantar í Selfossliðið um þessar mundir en það er enginn afsökun. Okkar menn spiluðu betur í síðari hálfleik og unnu. Þrír leikmenn úr 3 flokki spiluðu sinn fyrsta leik fyrir hönd félagisns og stóðu sig allir vel.
18.1.2009 | Knattspyrna
Strákannir í 2. flokk Selfoss léku í dag sinn fyrsta leik á þessu ári. Þeir kepptu við sameiginlegt lið Stjörnunnar og Álftanes og töpuðu 1-2. Staðan í hálfleik var 1-1 og voru Selfyssingar óheppnir að hafa ekki sigur í leiknum. Byrjunarlið Selfoss var skipað eftirtöldum leikmönnum: Aron, varnarmenn: Brynjar Elvars, Óskar Guðjóns, Hörður Jó og Svenni, miðja: Stefán Ragnar, Siggi Eyberg og Gummi Tóta. Ingvi Rafn og Jón Daði á köntum og Hartmann frammi. Mark Selfoss skoraði Hartmann.
18.1.2009 | Knattspyrna
Staðfest hefur verið leikjaplan í Lengjubikarnum fyrir meistaraflokk kvenna í knattspyrnu. Selfoss er í 1. riðli í C-deild og leika þar gegn FH, Haukum , ÍA, Sindra og Þrótt Reykjavík. Fyrsti leikur hjá þeim er gegn Sindra 28. mars á Selfossvelli.
18.1.2009 | Knattspyrna
Leikjaniðurröðun fyrir lengjubikar KSÍ er nú staðfest. Selfoss er í A-deild og riðli 2 með Fram, Grindavík, HK, ÍR og Keflavík. Fyrsti leikurinn er sunnudagurinn 22. febrúar við HK í Kórnum. Allir leikir verða leiknir inni í knatthöllum í Reykjavík og í Reykjanesbæ, nema síðasti leikurinn, hann er gegn Fram og verður spilaður á Selfossvelli föstudaginn 17. apríl.
18.1.2009 | Fimleikar
Selfoss HM2 í ţriđja sćti á Reykjavík International
Reykjavíkurleikarnir voru haldnir í um helgina og var keppt í hópfimleikum í annað sinn. Eitt erlent lið mætti til keppni en það var lið STG sem kom sá og sigraði. Selfoss HM2 lenti í þriðja sæti með samtals 18,7 stig en liðið í 2. sæti var með 18,9 stig. Stelpurnar voru kátar með keppnina og var þetta liður í undirbúning fyrir Íslandsmót unglinga sem haldið verður á Selfossi 21.febrúar næstkomandi.
15.1.2009 | Knattspyrna
Allar ćfingar hjá knattspyrnudeild falla niđur föstudaginn 16. janúar
Vegna jarðarfarar Guðjóns Ægis Sigurjónssonar, stjórnarmanns knattspyrnudeildar, verða allar æfingar knattspyrnudeildar Umf. Selfoss felldar niður föstudaginn 16. janúar.
Stjórn knattspyrnudeildar
14.1.2009 | Sund

Sundskóli Sunddeildarinnar hefst þriðjudaginn 20. janúar n.k. Sundskólinn er fyrir ósynd börn, 5 ára og eldri. Æfingar verða tvisvar í viku í innilauginni, á þriðjudögum og miðvikudögum frá kl. 14.30-16.00. Hver hópur er 45 mín. í senn.
14.1.2009 | Taekwondó
Næstkomandi sunnudag, 18. janúar, verða taekwondo æfingabúðir með master Cesar Rodriguez í íþróttahúsinu Gagnheiði 3. Æfingarnar eru iðkendum að kostnaðarlausu og eru sem flestir hvattir til að nýta sér þær.
14.1.2009 | Nýjustu fréttir

Miðvikudaginn 21. janúar næstkomandi verður haldið félagsmálanámskeið í Tíbrá sem ber yfirskriftina "Sýndu hvað í þér býr". Farið verður í ýmsa þætti er tengjast ræðumennsku, fundahöldum og félagsmálastörfum. Námskeiðið er einungis ein kvöldstund þ.e. frá kl. 18:00-22:00. Framkvæmdastjórn Umf. Selfoss hefur ákveðið að bjóða öllum félögum í Umf. Selfoss frítt á námsekiðið. Sjá nánar...
13.1.2009 | Fimleikar
Nýr Selfoss-fimleikabolur fyrir stelpur og stráka
Nýr Selfoss-fimleikabolur fyrir stelpur og stráka verður til sýnis og pöntunar fimmtudaginn 15. janúar á milli kl. 16 og 18 í íþróttahúsi Baulu sem og laugardaginn 17. janúar frá kl. 9:30-12.
Stúlknabolurinn kostar 5.900 kr., en strákabúningurinn sem er heilgalli og stuttbuxur kostar 7.200 kr.
13.1.2009 | Knattspyrna
Guðmunda Brynja Óladóttir og Bríet Mörk Ómarsdóttir hafa verið valdar í æfingahóp u-17 ára landsliðs Íslands. Æfingar eru næstkomandi helgi í Kórnum, Kópavogi og í Egilshöll. Þjálfari landsliðsins er Þorlákur Árnason. Athyggli vekur að báðar stelpunar verða 15 ára á þessu ári og því virkilega góður árangur að komast á æfingar hjá u-17 ára liðinu.
12.1.2009 | Handboltaakademía

Á sunnudaginn komu 2. flokkur Víkings í heimsókn en þeir hafa 3 landsliðsmenn úr U-20 innanborðs. Leikurinn endaði 31 - 31, en í hálfleik var einnig jafnt 16 - 16. Í lið Selfoss vantaði Baldur, Gumma og Eyþór vegna meiðsla og þá gat Óskar Kúld lítið sem ekkert beitt sér, líka vegna meiðsla.
12.1.2009 | Handboltaakademía
Besta lið deildarinnar, ÍR, kom í heimsókn á laugardaginn en þær hafa ekki tapað leik í vetur. Okkar stelpur spiluðu líklega sinn besta handbolta í vetur síðustu 40 mín. leiksins en slæm byrjun varð þeim að falli að þessu sinni. Leikurinn endaði 23 - 28 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 13 - 16. Þær voru komnar 8 - 16 undir eftir 20 mín. en eftir það var baráttan og viljinn til fyrirmyndar og voru þær betri en toppliðið það sem eftir lifði leiks.
10.1.2009 | Handbolti

Á fimmtudagskvöldið komu Eyjamenn í heimsókn og léku við Selfoss í 1. deildinni. Í bæði lið vantaði mikilvæga leikmenn vegna meiðsla og annarra fjarvista. Ljóst var strax í upphafi í hvað stefndi því okkar menn tóku öll völd á vellinum og héldu þeim til loka leiksins. Hálfleikstölur voru 19:6 og lokatölur 35:18. Tölfræði og nánari umfjöllun...
9.1.2009 | Nýjustu fréttir
Vegna efnahagsástandsins hefur stjórn taekwondodeildar UMFS ákveðið að lækka æfingagjöld iðkenda um 10% á vorönn. Gjaldið var áður 16.500 kr., en verður nú 15.000 kr. Systkinaafsláttur er áfram 20%, foreldri fær 50% afslátt og ef 2 börn æfa fær annað foreldri frítt. (3.000 kr á mánuði fyrir 3 æfingar í viku).
9.1.2009 | Sund

Laugardaginn 10.janúar verður Sundhöll Selfoss lokuð vegna þrifa og frágangs eftir viðgerðir sem hafa átt sér stað síðastliðinn mánuð. Opnað verður aftur sunnudaginn 11. janúar kl. 9:00 og þá verður innilaugin aftur opin eftir viðgerðirnar.
9.1.2009 | Knattspyrna
Stelpunar í meistaraflokki Selfoss í knattspyrnu taka nú þátt í Íslandsmótinu í Futsal í fyrsta sinn, en Futsal er innanhúsfótbolti. Stelpunar byrjuðu mjög vel og komust í undanúrslit Íslandsmótsins og keppa á morgun við sameinað lið Víkings og HK um það hvort liðið fer í úrslitaleikinn. Undanúrslitaleikurinn hjá stelpunum fer fram í íþróttahúsinu við Austurberg í Breiðholti og hefst kl. 14.30 laugardaginn 10. janúar.
8.1.2009 | Júdó
Myndir af HSK-mótinu í júdó komnar á Netiđ
Nú eru 60 myndir af HSK-mótinu í júdó komnar á Netið á slóðinni: http://picasaweb.google.com/Judodeild.umfs . Þar má sjá mörg brosandi andlit og skemmtileg tilþrif.
8.1.2009 | Handbolti

Keppni í 1. deild karla hefst að nýju í kvöld með leik Selfoss og ÍBV í Vallaskóla og hefst leikurinn kl. 19:30. Selfyssingar eru í 2.-3 sæti ásamt ÍR-ingum með 16 stig að loknum 11 umferðum. Grótta er tveimur stigum ofar og því efst í deildinni. Eyjamenn eru í 6. sæti með 8 stig. Selfoss vann fyrri leik liðanna í Eyjum í miklum markaleik 34:42.
7.1.2009 | Knattspyrna
Steinar valinn á úrtaksćfingar U16
Steinar Sigurjónsson hefur verið valinn á úrtaksæfingar U16 landsliðs KSÍ. Í hópnum eru 36 strákar frá 22 félögum. Æfinarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll dagana 10. og 11. janúar næstkomandi undir stjórn Freys Sverrissonar landsliðsþjálfara U16 landsliðs Íslands.
6.1.2009 | Knattspyrna
Elskulegur félagi okkar, Guðjón Ægir Sigurjónsson, hæstaréttarlögmaður og stjórnarmaður í knattspyrnudeild Umf. Selfoss lést af slysförum mánudaginn 5. janúar s.l. Guðjón var 38 ára gamall, fæddur á Selfossi þann 4. janúar 1971. Eiginkona Guðjóns er Þórdís Þórðardóttir og eiga þau tvö börn, Hjört Leó Guðjónsson og Hörpu Hlíf Guðjónsdóttir.
6.1.2009 | Taekwondó
Starfið á vorönn er nú komið á fullt hjá taekwondo-deildinni. Æfingatímar eru þeir sömu og áður (sjá æfingatöflu). http://umfs.is/taekwondo/aefingatimar-taekwondo/ Sjáumst öll hress á nýju ári. Nýir iðkendur velkomnir og munið að það kostar ekkert að prufa. Nóg er að mæta með stuttbuxur og bol.
5.1.2009 | Fimleikar
Íþróttaskóli fimleikadeildar UMFS hefst að nýju laugardaginn 17. janúar. Kennarar verða sem fyrr Steinunn H. Eggertsdóttir og Guðrún Hrafnhildur Klemenzdóttir. Námskeiðið eru 10 skipti og kostar 7.000 kr. Námskeiðsgjald greiðist við skráningu. Íþróttaskólinn er fyrir börn fædd 2007-2004. Börn fædd 2006 og 2007 frá 10:00-10:50
Börn fædd 2005 og 2004 frá 11:00-11:50. Skráning fer fram í Baulu (íþróttahús Sunnulækjarskóla) fimmtudaginn 15. janúar kl. 16-18 og laugardaginn 17. janúar kl. 9:30-12:00. Einnig verður tekið á móti pöntunum á nýja Selfossfimleikabolnum bæði fyrir stráka og stelpur.
5.1.2009 | Sund
Innritun er hafin í Sundskóla sunddeildar Umf. Selfoss. Skólinn er fyrir 5 ára og eldri, bæði byrjendur og lengra komna. Skráning í síma 695-1960 eða netfangið eisenfee@hotmail.com
Óvíst er hvenær hægt er að byrja í janúar vegna lokunar innilaugarinnar.
5.1.2009 | Knattspyrna
Ćfingar hjá knattspyrnudeild hefjast á ţriđjudag
Á morgun þriðjudaginn 6. janúar hefjast æfingar hjá yngri flokkum knattspyrnudeildarinnar. Æfingaáætlanir og upplýsingar um flokka má sjá hér á síðu deildarinnar. Kveðja, þjálfarar.
4.1.2009 | Fimleikar
Fimleikaćfingar hefjast aftur ţriđjudaginn 6. janúar
Fimleikar hefjast aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 6. janúar.
4.1.2009 | Sund

Sundæfingar hefjast að loknu jólafríi mánudaginn 5. janúar n.k. skv. æfingatöflu. Allar æfingar fara fram í útilaug meðan á viðgerðum á innilaug stendur. Nýir iðkendur velkomnir.
2.1.2009 | Knattspyrna
Guðmunda Brynja Óladóttir hefur verið valin í u-17 ára landsliðsæfingahóp KSÍ. Æfingarnar verða í Egilshöll og Kórnum nú um helgina. Athygli vekur að Gumma skuli vera valin í u-17 ára landslið, en hún verður 15 ára á þessu ári. Er þetta val góður vitnisburður um þá hæfileika sem Gumma hefur sem knattspyrnukona. Þjálfari u-17 landsliðs kvenna er Þorlákur Árnason.
2.1.2009 | Frálsíţróttir
Áramótamót Umf.Selfoss var haldið í íþróttahúsi Vallaskóla þann 30. des sl. Ágústa Tryggvadóttir Umf. Selfoss sigraði allar 5 greinarnar í kvennaflokki og náði besta afreki ársins í langstökki án atrennu þegar hún stökk 2,57 m og bætti sinn besta árangur um 2 cm. Ólafur Guðmundsson UMSS sigraði einnig allar greinarnar í karlaflokki. Í hástökki deildi hann að vísu efsta sætinu með Bjarna Má Ólafssyni, Dímoni.