Beint á leiđarkerfi vefsins

Nýjustu fréttir

Nýjustu fréttir - RSS

30.9.2009 | Handbolti

A-stigs dómaranámskeiđ HSÍ verđa haldin í haust

HSI_logoDómaranefnd HSÍ mun bjóða aðildarfélögum HSÍ uppá A-stigs námskeið nú í haust líkt og gert var í vor. Námskeiðið munu fara fram hjá félögunum og á mánudagskvöldum. Miðað er við að hefja námskeiðið kl.19.00 og það sé búið um 22.00. Gert er ráð fyrir kaffipásu og verða félögin að útvega veitingar. Þátttakendur verða vera á eldra ári 4. flokks eða eldri. Lámarks fjöldi er 20 manns.

30.9.2009 | Knattspyrna

Stefán Ragnar og Gummi Tóta í u-19 ára landsliđinu

KSI_logoGuðmundur Þórarinsson og Stefán Ragnar Guðlaugsson voru valdir í u-19 ára landsliðið Íslands. Landsliðið tekur þátt í Evrópukeppni u-19 sem fram í Bosníu dagana 7. til 12. október næstkomandi. Gummi og Stefán Ragnar unnu sér báðir fast sæti í meistaraflokksliði Selfoss sem vann 1. deildina á dögunum.

30.9.2009 | Knattspyrna

Bikarráđstefnuhelgi KSÍ og KŢÍ 3. - 4. október

VISA bikarinn lógóUm næstu helgi (3. og 4. október) standa Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands og Knattspyrnusamband Íslands sameiginlega að ráðstefnum í tengslum við bikarúrslitaleiki karla og kvenna. Fram og Breiðablik leika til úrslita í VISA-bikar karla laugardaginn 3. október kl. 14:00 og Valur og Breiðablik leika til úrslita í VISA-bikar kvenna sunnudaginn 4. október kl. 14:00. Dagskrá má sjá hér...

29.9.2009 | Handboltaakademía

Áfall fyrir meistarflokk og 2. flokk

Hörður "Sjóli" Másson er handarbrotinn og verður í gifsi a.m.k. næstu 2 vikurnar. Hann meiddist í leik Selfoss og Vals á Ragnarsmótinu þegar varnarmaður Vals hrinti honum í uppstökki með þeim afleiðingum að hann féll illa á hendina. Í fyrstu var talið að um slæma tognun væri að..

29.9.2009 | Knattspyrna

Badminton - badminton - badminton....

Þá hefjast að nýju badmintontímar fyrir Selfyssinga og nærsveitarfólk. Við höfum fengið lausa tíma í IÐU íþróttahúsi á miðvikudagskvöldum kl. 22.00-23.00. S.l. tvo vetur hefur áhugafólk um badminton komið saman og spilað 1 x í viku.

 

29.9.2009 | Fimleikar

Fimleikastelpur í ketilbjölluţjálfun

Stelpurnar í fimleikaakademíunni fóru í styrktarþjálfun með svokölluðum ketilbjöllum nú á dögunum. Ketilbjöllur líkjast fallbyssukúlum með handfangi og eru til í mismunandi stærðum og þyngdum.   Val á bjöllum fer eftir æfingum og færni hvers og eins. Þetta eru mjög sérhæfðar æfingar sem þarf að framkvæma með mikilli tækni og var fenginn lærður ketilbjölluþjálfari, Heiðar Ingi Heiðarsson, til að kenna stelpunum undirstöðuatriðin. Æfingarnar auka bæði snerpu, styrk og þol og eru engu síðri en ólympískar lyftingar enda margar æfingar mjög svipaðar og í þeim lyftingum.Tíminn fór fram í Lifandi húsi en þar eru til svona bjöllur. Er skemmst frá því að segja að stelpurnar voru fljótar að læra og tóku hraustlega á í tímanum.

29.9.2009 | Fimleikar

Fimleika- og knattspyrnuakademíur á fyrirlestri

Mánudaginn 28.sept. sóttu nemendur fimleika- og knattspyrnuakademíurnar fyrirlestur hjá Hauki Inga Guðnasyni íþróttasálfræðingi.  Haukur Ingi kynnti fyrir nemendunum niðurstöður úr lokaritgerð sinni og ítrekaði fyrir krökkunum mikilvægi hugrænnar þjálfunar.  Það sem fram kom í fyrirlestrinum var hægt að tengja inná allar íþróttagreinar og könnuðust krakkarnir við margar aðstæður sem hann tók til dæmis.  Áhugi á íþróttasálfræði og viðurkenning á henni hefur verið að aukast jafnt og þétt og koma íþróttasálfræðingar oftar og oftar inní þjálfun afreksliða á undirbúningstímabili. 

29.9.2009 | Fimleikar

Ţjálfarar frá Fimleikadeild Selfoss á leiđ á ţjálfaranámskeiđ hjá FSÍ

Um helgina heldur Fimleikasamband Íslands þjálfaranámskeið 1C.  Menntun FSÍ skiptist upp í Sérgreinanámskeið 1 A,B og C og 2 A,B og C.  Þrír þjálfarar frá deildinni sækja námskeiðið um helgina en dagskráin er þétt bæði laugardag og sunnudag.  Um 60 þátttakendur eru skráðir á námskeiðið um helgina og nýlega luku 60 þjálfarar námskeiði 1A.  Þess ber að geta að allir þjálfarar Fimleikadeildar Umf.Selfoss hafa lokið námskeiði 1A og hafa langflestir tvö eða fleiri námskeið hjá fimleikasambandinu.

29.9.2009 | Knattspyrna

Tvö KSÍ I ţjálfaranámskeiđ verđa haldin í október

KSI_logoKnattspyrnusamband Íslands mun á næstu vikum halda tvö 1. stigs þjálfaranámskeið. Annars vegar er um að ræða námskeið sem haldið verður helgina 9.-11. október og hins vegar námskeið sem haldið verður helgina 16.-18. október. Bókleg kennsla fer fram í fræðslusetri KSÍ og verkleg kennsla í knattspyrnuhúsinu Kórnum í Kópavogi. Enn eru örfá sæti laus á fyrra námskeiðið (9.-11. október) og nóg af lausum sætum á seinna námskeiðið (16.-18. október).

28.9.2009 | Handbolti

4. flokkur kvenna spilar í 1. deild í vetur

A-lið 4. flokks kvenna spilaði í forkeppni um sæti í 1. deild um síðustu helgi og var keppt í Vallaskóla. Fram vann Fylki sannfærandi í fyrsta leik 22-9 eftir að hafa verið yfir 4-14 í hálfleik. Selfoss vann Fylki örugglega 27-15. Í síðasta leiknum unnu síðan Selfoss-stelpur Fram 18-16 og tryggðu sér þar með sæti í 1. deild í vetur.

25.9.2009 | Handbolti

Leikjaplan 1. deildar í handbolta komiđ

HSI_logoHSÍ hefur sent frá sér endanlegt leikjaplan í 1. deild karla í handbolta. Selfyssingar leika í 1. deild í vetur ásamt Aftureldingu, ÍR, Víkingi, ÍBV, Fjölni og Þrótti. Fyrsti leikur Selfoss er útileikur við Fjölni föstudaginn 9. október. Síðan koma tveir heimaleikir, fyrst gegn Víkingi 23. okt. og svo gegn Þrótti 6. nóv. Annars lítur leikjaplanið eftirfarandi út:

24.9.2009 | Knattspyrna

Stefán Ragnar og Gummi Tóta ćfa međ u-19 landsliđinu um helgina

Selfyssingarnir Guðmundur Þórarinsson og Stefán Ragnar Guðlaugsson voru valdir á æfingar með u-19 ára landsliði Íslands. Æfingarnar fara fram um helgina. Þeir félagar fóru með þessu sama landsliði til Skotlands í sumar og kepptu tvo landsleiki við Skota. 

24.9.2009 | Knattspyrna

Ţjálfaranámskeiđ á vegum KSÍ - 1. stig

KSÍ_merkiKnattspyrnusamband Íslands mun á næstu vikum halda tvö 1. stigs þjálfaranámskeið. Annars vegar er um að ræða námskeið sem haldið verður helgina 9.-11. október og hins vegar námskeið sem haldið verður helgina 16.-18. október. Bókleg kennsla fer fram í fræðslusetri KSÍ og verkleg kennsla í knattspyrnuhúsinu Kórnum í Kópavogi. Þátttökugjald er kr. 15.000,- Sjá nánar hér...

24.9.2009 | Frálsíţróttir

Nýtt frćđslukerfi í frjálsum íţróttum í undirbúningi

FRÍ er með í undirbúningi að taka upp nýtt fræðslukerfi fyrir frjálsíþróttaþjálfara sem IAAF eða Alþjóða frjálsíþróttasambandið hefur innleitt. Þetta verkefni hefur verið í undirbúningi frá því á vordögum 2008. CECS er fimm þrepa fræðslukerfi þjálfara sem nefnist á ensku: IAAF Coaches Education Certified System eða CECS. Fyrsta skrefið við að innleiða þetta fræðslukerfi hér á landi er námskeið fyrir leiðbeinendur á 1. stigi, sem haldið verður 1.-6. október næstkomandi í Laugardal í Reykjavík. Stefnt er að því að halda fleiri námskeið hérlendis og að senda þátttakendur á námskeið erlendis í framtíðinni.

22.9.2009 | Taekwondó

Taekwondo á Stokkseyri

Taekwondodeild Umf. Selfoss Selfoss hefur hafið samstarf við Ungmennafélag Stokkseyrar um taekwondokennslu. Æfingar verða í íþróttahúsinu Stokkseyri og eru öllum opnar frá 1. bekk grunnskóla og upp í 99 ára. Taekwondo er 1000 ára gömul íþrótt sem byggir á mikilli brennslu, þolæfingum, teygjum og að sjálfsögðu sjálfsvörn. Taekwondo hentar báðum kynjum. Æfingar hefjast mánudaginn 28. september kl.17:00. Allir eru velkomnir í prufutíma í stuttbuxum og bol. Yfirkennari er Daníel Jens Pétursson 1. dan og meistari er Sigursteinn Snorrason 5. dan. Nánari upplýsingar  veita Heiða s. 896 8440 og Pétur s. 861 9010.

21.9.2009 | Knattspyrna

Verđlaunahafar á uppskeruhátíđinni

Lokahátíð knattspyrnumann fór fram í Hvíta húsinu á Selfossi s.l. laugardagskvöld. Hátíðin tókst mjög vel, húsið hið glæsilegasta eftir endurbætur, maturinn virkilega góður svo og þjónustan. Hilmar Hólmgeirsson stóð sig frábærlega sem veislustjóri og náði að takmarka ræðutíma allra, nema formannsins. Eins voru skemmtiatriðin frábær. Þar fór Dóri Björns fremstur með sitt árlega vídeó. Það sem öllu máli skipti voru auðvitað verðlaunahafar á uppskeruhátíðinni. Hér að neðan eru nöfn allra þeirra sem unnu til verðlauna á hátíðinni.

20.9.2009 | Handbolti

4. flokkur spilar í 1. deild í vetur

Hand_boltiA-lið 4. flokks karla í handbolta lék í forkeppni um helgina, en þar var spilað um hvort liðið myndi leika í efri eða neðri deild á Íslandsmótinu í vetur. Það er skemmst frá því að segja að Selfoss vann 3 leiki mjög sannfærandi, gegn Þrótti, Fjölni og Haukum, en tapaði svo nokkuð illa fyrir Fram. Með því tryggði liðið sér sæti í efri deildinni í vetur og markmiði helgarinnar því náð. Liðið lék á köflum mjög fínan bolta en þessir fjórir leikir gefa strákunum nokkurn lærdóm.

20.9.2009 | Knattspyrna

Selfoss 1. deildarmeistarar 2009

selfoss-ía-028Selfoss vann í gær góðan 4:2 sigur á Skagamönnum á Selfossi. Með sigrinum kórónuðu Selfyssingar frábært sumar og enduðu sem sigurvegarar í 1. deild karla. Formaður og framkvæmdastjóri KSÍ afhentu þeim verðlaun í leikslok. Þegar tvær umferðir voru eftir hafði Selfoss tryggt sér sæti í úrvalsdeild í fyrsta skipti í sögu félagsins. Að auki tryggði Sævar Þór Gíslason sér titilinn markakóngur 1. deildar annað árið í röð.

19.9.2009 | Knattspyrna

14 af 16 hafa fariđ í gegnum yngri flokka starfiđ á Selfossi

Athygli hefur vakið hve margir heimamenn leika með knattspyrnuliði Selfoss sem er á leið upp í efstu deild. Af þeim 16 leikmönnum sem er á skýrslu í lokaleiknum við ÍA í dag eru 14 leikmenn sem farið hafa í gegnum yngri flokka starfið á Selfossi.

18.9.2009 | Knattspyrna

Heiđursfélagar styrkja knattspyrnudeildina

Hafsteinn_fótbolti_3Heiðursfélagarnir Kristján S. Jónsson og Hafsteinn Þorvaldsson hafa styrkt knattspyrnudeild Umf. Selfoss um 100.000 kr. hvor í tilefni frábærs árangur meistaraflokks karla í sumar. Selfoss náði þeim glæsilega árangri að vinna sig upp í úrvalsdeild þegar tvær umferðir voru eftir af deildinni. Þeim félögum eru færðar bestu þakkir fyrir höfðinglega styrki.

18.9.2009 | Knattspyrna

Selfosskökur í Vilbergsbakaríi

SelfosskakaStulli bakari hjá Vilbergsbakaríi mun um helgina baka Selfoss-súkkulaðikökur sem hann ætlar að selja í bakaríi sínu. Tertunar sem eru hreinasta lostæti eru með Umf. Selfoss lógói ofan á. Af hverri seldri köku munu 1.000 kr. renna til knattspyrnudeildarinnar. Gott framtak hjá Stulla bakara.

 

17.9.2009 | Knattspyrna

Selfoss mćtir ÍA laugardaginn 19. sept kl. 14.00

ÍA_merkiLógó SelfossEftir stórfurðulega viku í fótboltanum getur Selfoss tryggt sér sigur í deildinni með sigri á ÍA, hvernig hljómar það? Liðin eigast við í síðustu umferð deildarinnar á Selfossvelli laugardaginn 19. september kl. 14.00. Reyndar þurfa Selfyssingar ekki endilega að sigra, stig er nóg. Selfyssingar eru 3 stigum á undan Haukum og með 10 mörk í plús. Í síðustu umferð gerðu ÍA og HK jafntefli á meðan Selfyssingar í rússi, töpuðu fyrir Haukum 3-2 og urðu þau úrslit þess valdandi að Haukar fylgja Selfossi upp í efstu deild.  

15.9.2009 | Handboltaakademía

Gamla myndin

Hin vinsæli dagskrárliður gamla myndin hefur nún göngu sína að nýju eftir sumarfrí. Myndin að þessu sinni er af meistaraflokki keppnistímabilið 1995-96, þegar liðið lék undir stjórn Valdimars Grímssonar. Þetta lið fór í undanúrslitin í bikarkeppninni og féll út í 8-liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Takið sérstaklega eftir hátísku upphitunargöllunum frá ABM-sport.

15.9.2009 | Fimleikar

Íţróttaskóli barnanna og fimleikabúningar

Íþróttaskóli barnanna hefst laugardaginn 19. september í Baulu, íþróttahúsi Sunnulækjarskóla. Kennt verður í tveimur hópum, börn fædd 2007 og júlí-des. 2006 mæta kl.10-10:50 en börn fædd jan-júlí 2006 og börn fædd 2005 mæta frá 11:00-11:50. Skráning verður í Baulu fimmtudaginn 17. sept. frá kl. 17-19 og laugardaginn 19. sept. á sama stað frá kl. 9:30-11:30. Tíu skipta námskeið kostar 7.000 kr.ónur og greiðist við skráningu.

14.9.2009 | Knattspyrna

Yfirlýsing frá Gunnlaugi Jónssyni og knattspyrnudeild Selfoss

Stjórn og meistaraflokksráð knattspyrnudeildar Umf. Selfoss og Gunnlaugur Jónsson hafa komist að samkomulagi um að hann láti af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla frá og með deginum í dag að telja.

14.9.2009 | Knattspyrna

Stelpunar í 4. flokki töpuđu síđasta leik gegn Haukum

Stelpurnar í 4. flokki í knattspyrnu töpuðu síðasta leik sínum á Íslandsmótinu fyrir toppliði Hauka 5-3. Það var Eva Lind Elíasdóttir sem skoraði öll mörk Selfossliðsins. Þær enduðu því í 4. sæti deildarinnar með 19 stig. Athygli vakt frábær markatala hjá þeim 61-19, sú besta í deildinni. Þær eiga greinilega ekki í vandræðum með að skora mörkin  

14.9.2009 | Knattspyrna

Strákarnir í 3. flokki enduđu sumariđ vel

Sameiginlegt lið Selfoss/KFR í 3. flokki A hefur tekið miklum framförum seinni hluta sumars. Strákarnir unnu sinn síðasta leik 4-1 gegn Breiðabliki 2 og enduðu í 3. sæti með 27 stig, unnu 9 leiki, gerðu ekkert jafntefli og töpuðu 5 leikjum. Í síðasta leiknum voru það þeir Helgi Axelsson og Daníel Ingi sem skoruð tvö mörk hvor.

14.9.2009 | Handboltaakademía

Verđlaun fyrir einstaklingsafrek á Ragnarsmótinu

Eins og áður hefur komið fram þá unnu FH bikarinn til varðveislu í 1 ár sem sigurvegarar á 20. Ragnarsmótinu og munu því verja titilinn að ári. Hér í nánar má svo sjá hvaða leikmenn voru valdir bestu leikmenn mótsins. Það voru starfsmenn Sport-TV sem skipuðu dómnefndina að þessu sinni enda viðstaddir alla leiki mótsins.

14.9.2009 | Handboltaakademía

Úrslit og markaskor á lokadegi Ragnarsmótsins

Á laugardaginn var spilað um sæti á mótinu. Í leik um 5. sætið mættust Stjarnan og Grótta, í leik um 3. sætið spiluðu heimamenn á Selfossi við Val og loks léku FH og Akureyri til úrslita á mótinu. Sjá meira í nánar..

12.9.2009 | Knattspyrna

Uppskeruhátíđ yngri flokka í knattspyrnu

fótboltateikning5Uppskeruhátíð yngri flokka knattspyrnudeildar Umf. Selfoss verður haldin sunnudaginn 13. september kl. 14:00 í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands. Þar verður m.a. farið yfir árangur sumarsins og veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur. Á eftir eru kaffiveitingar. Iðkendur og foreldrar eru eindregið hvattir til að mæta.

11.9.2009 | Handbolti

Leikir laugardagsins á Ragnarsmótinu

hand-boltamynd2Við hvetjum alla til þess að koma í Vallaskóla á morgun laugardag og fylgjast með leikjum dagsins. Frítt er á alla leikina. Sérstaklega bendum við Selfyssingum á að koma og styðja við bakið á sínum mönnum en þeir spila við Bikarmeistara Vals kl. 18:00 um 3. sætið í mótinu.

 

11.9.2009 | Handbolti

Úrslit föstudags og markaskor á Ragnarsmótinu

hand-boltamynd2Í dag var á dagskrá fyrst leikur Stjörnunnar og Akureyrar og svo leikur Vals og Gróttu. Að sjálfsögðu voru leikirnir í beinni á Sport-TV. Í dag réðust einnig úrslitin í riðlakeppninni. Sjá meira í nánar...

11.9.2009 | Knattspyrna

Skemmtilegur styrkur - beint frá bónda

Lárus BragasonÁ dögunum kom aðstoðarskólameistar FSU, Þórarinn Ingólfsson, með umslag sem hann átti að færa knattspyrnudeildinni. Í umslaginu reyndust 30.000 krónur sem samkennari Tóta, Lárus Ágúst Bragason frá Miðhúsum í Hvolhreppi, hafði heitið á knattspyrnudeildina ef liðið færi upp. Lárus nefndi það í vor við Tóta að ef liðið færi upp þá fengi deildin andvirði eins lambsskrokks. Gaman er þegar menn sýna stuðning sinn í verki. Það sem er kannski sérstak við þessa sögu er að Lárus er ekki beint knattspyrnuunnandi og hefur ekki komið á Selfossvöll í sumar. Líklega verður breyting á því á næsta ári.

11.9.2009 | Knattspyrna

Frábćr stemning gegn Aftureldingu

self_aft_044Á síðasta heimaleik Selfoss sem var gegn Aftureldingu 4. september síðastliðinn var gríðarleg stemning. Úrslitin gátu ekki verið betri því með stórsigri tryggði Selfoss sér sæti í úrvalsdeild á næsta tímabili þó tveir leikir séu eftir. Hér eru nokkrar myndir frá stemningunni...

10.9.2009 | Handbolti

Úrslit fimmtudags og markaskor á Ragnarsmótinu

hand-boltamynd2Leikir dagsins voru FH - Valur og Selfoss - Akureyri. Leikirnir voru afar ólíkir en báðir skemmtilegir fyrir áhorfendur. Fyrri leikurinn var mjög hraður og mikið skorað, en í þeim síðari bar meira á góðum varnarleik og markvörslu. Sjá meira í nánar...

10.9.2009 | Knattspyrna

Stefán Ragnar og Gummi stóđu sig aftur vel međ U-19 landsliđinu

KSÍ_merkiStefán Ragnar Guðlaugsson og Guðmundur Þórarinsson léku báðir með íslenska landsliðinu skipað leikmönnum undir 19 ára þegar það vann seinni æfingaleikinn gegn Skotum. Stefán Ragnar var í byrjunarliðinu og lék aftur allan leikinn. Gummi Tóta kom inná í byrjun seinni hálfleiks, en báðir stóðu þeir sig mjög vel í leiknum sem Íslendingar unnu 1-3.

10.9.2009 | Knattspyrna

Haukar-Selfoss laugardaginn 12.09 kl. 14.00

Lógó SelfossHaukar_merkiSelfyssingar tryggðu sér sæti í úrvalsdeildinni í knattspyrnu með 6-1 stórsigri á Aftureldingu um síðustu helgi. Í sömu umferð unnu Haukar góðan sigur á HK 0-2 og fóru með sigrinum í 38 stig. Þeir eru því með þremur stigum meira en HK í keppni þeirra um að fylgja Selfossi upp. Haukar fá einmitt Selfoss í heimsókn á Ásvelli laugardaginn 12. september kl. 14.00.   

10.9.2009 | Knattspyrna

Gumma skorađi aftur međ u-17 landsliđinu

KSÍ_merkiGuðmunda Brynja Óladóttir heldur áfram að standa sig vel með landsliði Íslands skipað stelpum undir 17 ára aldri. Í kvöld unnu þær Ísrael í síðasta leik sínum í undankeppni Evrópumótsins. Guðmunda opnaði markareikning Íslands á 28. mínútu og fylgdu svo 6 mörk á eftir hjá landsliðinu.

10.9.2009 | Knattspyrna

Strákarnir í 2. flokki Selfoss/KFR unnu Víking R. 1-0

Strákarnir í 2. flokki Selfoss/KFR léku sinn næstsíðasta leik á Íslandsmótinu gegn Víkingi Reykjavík. Leikurinn fór fram á Hvolsvelli og sigruðu okkar menn 1-0 með marki frá Mumma. Í fyrri leik liðanna hafði Selfoss/KFR 1-2 forystu allt þar til þrjár mínútur voru eftir, en töpuðu 3-2. Þetta var því extra sætur sigur hjá strákunum.

9.9.2009 | Handbolti

Úrslit miđvikudags og markaskor á Ragnarsmótinu

hand-boltamynd2Fyrri leikur dagsins var leikur Selfoss á móti Stjörnunni. Síðari leikurinn var viðureign Gróttu og FH. Báðir leikirnir voru jafnir fram að hálfleik, en í síðari hálfleik náði annað liðið yfirhöndinni í báðum leikjunum. Úrslit og markaskor má sjá hér í meira..

8.9.2009 | Knattspyrna

Stefán Ragnar og Gummi Tóta voru í sigurliđ Íslands

KSÍ_merkiStefán Ragnar Guðlaugsson og Guðmundur Þórarinsson, meistaraflokksleikmenn Selfoss í knattspyrnu, spiluðu báðir með landsliði Íslands skipað leikmönnum undir 19 ára í gær. Íslendingar unnu Skota 0-2 í fyrri leik liðanna í Cumbernauld í Skotlandi. Seinni leikurinn fer fram á morgun miðvikudag í bænum Stirling. Stefán Ragnar lék allan leikinn sem miðvörður og Gummi Tóta kom inná á 54. mínútu. Það var Fylkisstrákurinn Pape sem skoraði bæði mörk Íslands.

7.9.2009 | Handbolti

Ragnarsmótiđ í beinni á netinu

raggi baldurRagnarsmótið í handknattleik hefst á miðvikudaginn kl. 18:30 með leik Selfoss og Stjörnunnar í A riðli og síðan leik FH og Gróttu í B riðli kl. 20:00. Leikirnir á mótinu verða sýndir beint á sporttv.is. Einnig verða tekin viðtöl meðan á mótinu stendur. Frábært framtak sem gerir þetta tuttugasta Ragnarsmót bara glæsilegra fyrir vikið.

6.9.2009 | Knattspyrna

Gumma skorađi mark Íslands í 1-2 tapi gegn Frökkum

Guðmunda Brynja Óladóttir hefur staðið sig virkilega vel með u-17 ára landsliði Íslands í knattspyrnu, sem er þessa dagana að leika í riðlakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu. Riðlakeppnin fer fram á Íslandi. Stelpurnar gerðu mjög óvænt 0-0 jafntefli við Þjóðverja í fyrsta leik. Á sunnudaginn kepptu stelpurnar við Frakka. Eftir að Frakkar höfðu leitt 0-1 í hálfleik jafnaði Gumma leikinn með flottu marki. Frakkar skoruðu svo sigurmarkið á lokasekúndum leiksins og 1-2 sigur þeirra því staðreynd.

6.9.2009 | Knattspyrna

Strákarnir í 4. flokki međ stórsigur

Strákarnir í 4. flokki enduðu Íslandsmótið með góðum 11-1 sigri á Álftanesi. Mörk Selfoss í leiknum skoruðu þeir Björn Ingi 4, Ísak Eldjárn 2, Birkir Víðis 2 og þeir Haukur Ingi, Sindri Pálma og Gauti Halldórsson eitt mark hver. Tveimur dögum áður unnu þeir Breiðabli2 5-4 með mörkum frá Hauki Inga 2, Birki Péturs 2 og Ísak Eldjárn 1 mark.

6.9.2009 | Knattspyrna

Stelpunar í 3. flokki enduđu í 3. sćti

Stelpurnar í 3. flokki kvenna kláruðu síðustu leiki sína á Íslandsmótinu fyrir helgi. A-liðið lék á við Víking Reykjavík og unnu sannfærandi sigur 3-0. Mörk Selfoss í leiknum skoruðu þær Guðmunda Brynja, Jóna Guðrún og Karítas. Stelpurnar enduðu í 3. sæti, en ljóst var strax í byrjun móts að þrjú lið myndu stinga af í riðlinum. Stelpurnar léku 12 leiki, unnu 9 og töpuðu 3 leikjum. Markatalan var 49-23 Selfossi í vil. Staða efstu liða varð því eftirfarandi: 1. HK, 2. Afturelding, 3. Selfoss, 4. ÍR, 5. ÍBV.

4.9.2009 | Knattspyrna

Selfoss í úrvalsdeildina

Lógó SelfossSelfyssingar unnu stórsigur á Aftureldingu á Selfossi í kvöld og tryggðu sér sæti í úrvalsdeildinni næsta keppnistímabil. Er þetta í fyrsta skipti sem Selfoss vinnur sig upp í efstu deild karla. Afturelding komst yfir á 22. mín, en Hjörtur Hjartarson jafnaði fyrir Selfoss á 31. mín. Sævar Þór kom svo Selfossi í 2:1 á 33. mín. og þannig var staðan í hálfleik. Selfyssingar bætu fjórum mörkum við í seinni hálfleik og gulltryggðu sæti sitt með 6:1 sigri. Hjörtur skoraði 3. og 4. markið, Sævar Þór það 5. og Arelíus það 6. Mikil fagnaðarlæti brutust út í leikslok á meðal leikmanna og stuðningsmanna Selfoss. Langþráður draumur knattspyrnumann á Selfossi er orðinn að veruleika. Til hamingju strákar!!!

4.9.2009 | Handboltaakademía

Raggi í hrikalegu formi

Ragnar_wideStórskyttan Ragnar Jóhannsson hefur verið í séræfingum hjá margföldum íslands- og norðurlandameistara í karate, Ingólfi Snorrasyni sem hefur einnig getið sér gott orð sem einkaþjálfari. Ragnar hefur bætt sig mjög mikið undanfarið og er í hrikalegu formi þessa dagana og mætir sterkur í komandi keppnistímabil í 1.deildinni með Selfoss og unglingalandsliðinu. Myndband af einni af æfingum þeirra félaga má sjá hér... http://www.youtube.com/watch?v=jG0mv3Uelzw&feature=channel_page

3.9.2009 | Knattspyrna

Getraunastarfiđ í Tíbrá komiđ af stađ

getraunalógóGetraunastarf Umf. Selfoss er nú að fara af stað. Opið er í Tíbrá alla laugardaga milli kl. 11 og 13. Þar geta menn og konur spáð í seðil helgarinnar og í leiðinni farið yfir málefni líðandi stundar í góðum hópi. Alltaf er heitt á könnunni og ilmandi bakkelsi frá Guðnabakaríi. Allir eru velkomnir.

3.9.2009 | Knattspyrna

Selfoss mćtir Aftureldingu á föstudag k.l 18.30

Afturelding_merkiLógó SelfossSelfyssingar taka á móti Aftureldingu í athyglisverðum leik á Selfossvelli föstudaginn 4. september kl. 18.30. Ef Selfoss sigrar eða gerir jafntefli, tryggja þeir sér sæti í efstu deild í fyrsta sinn í sögunni. Jafnframt fellur Afturelding ef Selfoss sigrar í leiknum. Selfyssingar unnu glæsilegan 0-4 sigur á Fjarðabyggð í síðasta leik, en Afturelding tapaði 1-3 fyrir HK í sömu umferð.

2.9.2009 | Sund

Sundćfingar hófust í gćr

Keflavik2008-5Í gær, þriðjudaginn 1. september, hófust æfingar hjá Sunddeildinni. Æft er alla daga en æfingahópar æfa 2-5 sinnum í viku eftir aldri og getu. Hjá deildinni eru nú 36 iðkendur auk þeirra sem eru á sundnámskeiðum sem eru fyrir börn sem eru að stíga sín fyrstu skref í sundíþróttinni. Nýjum iðkendum er velkomið að mæta á æfingu og prófa en fyrstu tveir tímarnir eru frítt.

1.9.2009 | Knattspyrna

Guđmunda Brynja í u-17 ára landsliđi Íslands á EM

KSÍ_merkiGuðmunda Brynja Óladóttir, leikmaður meistaraflokks Selfoss, hefur verið valin í u-17 ára landsliðshóp Íslands í knattspyrnu. Gumma lék flesta leiki meistaraflokks Selfoss á þessu ári, auk þess sem hún leikur með 3. flokki. Æfingar standa yfir þessa dagana hjá stelpunum. Þær eru að fara að keppa í riðlakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu sem fram fer á Íslandi dagana 4. - 9. september. Í riðli með íslensku stelpunum eru Þjóðverjar, Frakkar og Ísraelar.

1.9.2009 | Knattspyrna

Stefán Ragnar og Gummi Tóta valdir í u-19 ára landsliđiđ

KSÍ_merkiStefán Ragnar Guðlaugsson og Guðmundur Þórarinsson, leikmenn meistaraflokks Selfoss, voru báðir valdir í u-19 ára landslið Íslands sem leikur tvo landsleiki við Skotland ytra 7. og 9. september. Er þetta mikill heiður fyrir strákana sem hafa spilað flesta leiki Selfoss í sumar. Þeir félagar halda til liðs við landsliðið laugardaginn 5. september og degi seinna heldur svo landsliðið út til Skotlands. Landsliðið kemur til baka fimmtudaginn 10. september.

1.9.2009 | Knattspyrna

Arilíus leikmađur 19. umferđar 1. deildar

Arilíus Marteinsson leikmaður Selfoss var valinn leikmaður 19. umferðar í 1. deild karla á fotbolti.net. Alli er vel að þessari tilnefningu kominn. Hann sýndi frábæran leik fyrir austan er Selfyssingar unnu Fjarðabyggð 0-4, skoraði eitt mark og annað sem var dæmt af. Arilíus er 25 ára á þessu ári og hefur ávalt leikið með Selfossi í deildarkeppni á Íslandi. Hér að neðan er hægt að klikka á viðtal við Arilíus sem fotbolti.net tók við hann.

1.9.2009 | Frálsíţróttir

Ţórhildur Helga ţrefaldur Íslandsmeistari

Thorhildur_2009Meistaramót Íslands 15-22 ára fór fram í Kópavogi helgina 29-30  ágúst sl. Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss sendi vaskt lið til keppni sem stóð sig mjög vel og var afrakstur helgarinnar 4 gullverðlaun, 4 silfurverðlaun og 5 bronsverðlaun auk 10 persónulegra meta og HSK-mets í stúlknaflokki.

1.9.2009 | Knattspyrna

Hresst upp á stuđningsmannalagiđ - Til sóknar

Selfossdiskur_lagFlest lið eiga sitt stuðningslag sem stuðningsmenn syngja gjarnan þegar þeir koma saman. Nokkur undanfarin ár hefur Selfoss notast við lagið „Go west" sem Pet Shop Boys sungu. Mörg stærstu knattspyrnuliðin í Englandi og á meginlandi Evrópu nota þetta lag, enda laglínan lipur til söngs. Nú hefur verið hresst enn frekar upp á lagið og bætt við það erindi.

Á nćstunni

18.5.2012 | Knattspyrna
22.5.2012 | Knattspyrna
24.5.2012 | Knattspyrna
31.5.2012 | Knattspyrna
2.6.2012 | Frjálsíţróttir
4.6.2012 | Knattspyrna


Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta