Beint á leiđarkerfi vefsins

Nýjustu fréttir

Nýjustu fréttir - RSS

29.12.2010 | Handbolti

Selfoss í úrslit a Norden Cup!

Strákarnir á Norden Cup (1997 liðið) er komið í úrslitaleikinn á mótinu. Í dag unnu þeir bæði leikina í 8-liða úrslitum og í undanúrslitum.

29.12.2010 | Nýjustu fréttir

Ragnar og Guđmunda Brynja íţróttakarl og íţróttakona Árborgar 2010

arborg_1010Uppskeruhátið ÍTÁ var haldin í hátíðasal FSu í gærkvöldi. Þar voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur á árinu, afhentir styrkir úr afrekssjóðum og að lokum tilkynnt um val á íþróttakarli og íþróttakonu Árborgar 2010. Þau Ragnar Jóhannsson handknattleiksmaður og Guðmunda Brynja Óladóttir knattspyrnukona, bæði úr Umf. Selfoss, urðu fyrir valinu að þessu sinni.

29.12.2010 | Nýjustu fréttir

Íţróttamenn ársins hjá taekwondodeild

Val á íþróttamanni Árborgar fór fram í sal Fjölbrautarskóla Suðurlands þriðjudaginn 28. desember. Jafnframt var tilkynnt um val á taekwondomanni og -konu ársins. Íþróttamenn deildarinnar í ár eru Hekla Þöll Stefánsdóttir og Daníel Jens Pétursson, en þau þykja hafa staðið sig einstaklega vel á árinu eins og segir í rökstuðningi valnefndar.

28.12.2010 | Handbolti

Selfoss i 8-liđa úrslit á Norden Cup!

Selfoss liðið á Norden Cup (1997 liðið) komst í dag í 8-liða úrslit á mótinu sem liðið tekur þátt í þessa dagana. Liðið vann tvo sigra í dag. Fyrst gegn norska liðinu Fjellhammer 28-21 og svo gegn sænska liðinu Skövde 21-17 eftir ótrúlegan leik. Leikurinn gegn Skövde er líklega með betri leikjum sem liðið hefur spilað og liðið vel að því komið að komast i 8-liða úrslitin.

28.12.2010 | Nýjustu fréttir

Uppskeruhátíđ ÍTÁ - Íţróttakarl og kona Árborgar 2010

Uppskeruhátíð íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar, ÍTÁ, verður haldin í kvöld þriðjudaginn 28. desember kl.20:00 við hátíðlega athöfn í hátíðarsal Fjölbrautaskóla Suðurlands. Hátíðin er eins og nafnið ber til kynna uppgjör íþróttafólks í Árborg á árinu 2010 en þar verður afreksíþróttafólk ársins heiðrað......

28.12.2010 | Frálsíţróttir

Flugeldabingó frjálsíţróttadeildar

Hið árlega flugeldabingó Frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss, verður haldið miðvikudaginn 29. desember kl. 19:30 í íþróttahúsinu IÐU.  Fjöldinn allur af flugeldum, af öllum stærðum og gerðum í vinninga. Veitingasala á staðnum.

27.12.2010 | Handbolti

Sér síđa fyrir Selfoss a Norden Cup

Strákarnir sem eru á Norden Cup eru með sér heimasíððu fyrir ferðina þar sem sagt er frá því helsta sem gerist. Bæði dagbók fyrir daginn og umfjöllun um leikina á mótinu.
Slóðin á síðuna er www.selfossnorden.wordpress.com

23.12.2010 | Handbolti

97 liđiđ á Norden Cup

97-nordenÞann 26. desember mun eldra árið í 5. flokki Selfoss (1997 árgangur) halda til Gautaborgar í Svíþjóð. Þar munu þeir taka þátt á Norðurlandamóti félgasliða - Norden Cup - í yngri aldursflokkum. Á mótinu keppa etja kappi bestu félagsliðin á Norðurlöndunum í hverjum árgangi. Selfoss strákarnir hafa lagt mikið á sig fyrir ferðina, m.a. staðið í fjáröflunum frá því í mars auk þess að leggja gríðarlega hart af sér við æfngar. Það er aðalsmerki þessa hóps hve mikinn metnað hann leggur í handboltann og hversu tilbúnir þeir eru að læra nýja hluti. Þetta lið er efst á Íslandsmótinu eftir 2 mót af 5.

22.12.2010 | Knattspyrna

Styttist í skötuveislu knattspyrnudeildar og Hótel Selfoss

Skötuveisla_2010Nú styttist óðum í skötuveislu Hótel Selfoss og knattspyrnudeildar Selfoss, en hún verður haldin í hádeginu á Þorláksmessu á hótelinu. Þar verður á borðum skata í öllum styrkleikum, saltfiskur og plokkari eins og hver getur í sig látið. Verð fyrir manninn er aðeins 3.200 kr. Þar af renna 600 kr. til knattspyrnudeildarinnar. Pantið tímanlega, borðapantanir í síma 480 2500.

21.12.2010 | Handbolti

Gísli og Janus í U-17

Gísli og JanusEnn er að bætast við landsliðsmenn Selfoss í yngri landsliðum HSÍ. Gísli Þór Axelsson og Janus Daði Smárason hafa nú verið valdir í U-17 hópinn. Þeir tveir eru enn í 4. flokki og því á yngra ári í þessu landsliði. Gísli og Janus hafa verið að spila stór hlutverk bæði með 4. flokki og 3. flokki hjá Selfossi í vetur.

21.12.2010 | Handbolti

Einar valinn í landsliđ Íslands u-19

Einar SverValið hefur verið u-19 ára landslið karla sem fer til Þýskalands á milli jóla og nýárs. Liðið tekur þar þátt í Victors Cup ásamt landsliðum Egyptalands, Finnlands, Póllands, Sviss, Slóvakíu og Þýskalands en þar að auki tekur úrvalslið Saar héraðs þátt.

21.12.2010 | Frálsíţróttir

Eva Lind stórbćtti HSK-metiđ í kúluvarpi í meyjaflokki

Sex keppendur úr keppnisliði HSK/Selfoss tóku þátt í 2. jólamóti ÍR sem haldið var í frjálsíþróttahöllinni þann 20. des sl. Eva Lind Elíasdóttir, 15 ára efnileg stelpa úr Þorlákshöfn, bætti sitt eigið HSK-met í kúluvarpi í meyjaflokki um 1,77 m er hún kastaði kúlunni 14,17 m og sigraði með yfirburðum. Þetta er annar besti árangur á Íslandi frá upphafi í hennar aldursflokki, aðeins Íslandsmet Helgu Margrétar Þorsteinsdóttir sem er 15,06 m er lengra, en Eva Lind hefur allt næsta ár til að reyna að ná Íslandsmetinu af Helgu Margréti.

21.12.2010 | Handbolti

Ragnar markahćstur gegn Noregi

handbolti_U21_201210gkRagnar Jóhannsson skoraði sjö mörk og var markahæsti leikmaður U21 árs liðs Íslands í handbolta sem tapaði fyrir Noregi á Selfossi í gærkvöldi, 32-35. Fjórir Selfyssingar eru í landsliði Íslands; Ragnar, Guðmundur Árni Ólafsson og Bjarki Már Elísson auk þjálfarans Einars Guðmundssonar. Bjarki Már skoraði 2 mörk í leiknum og Guðmundur 1.

21.12.2010 | Handbolti

Sigur og tap í 4. flokki

Á sunnudag léku A- og B-lið í 4. flokki karla. A-liðið mætti Fram á útivelli og tapaði þar 25-26 í slökum leik. B-liðið aftur á móti vann sannfærandi sigur á Fylki á heimavelli 28-20. Liðin eru nú komin í jólafrí en hefja leik snemma á nýju ári.

20.12.2010 | Handbolti

Landsleikur á Selfossi í kvöld

U21 árs lið Íslands og Noregs í handbolta mætast í íþróttahúsi Vallaskóla á Selfossi kl. 19:30 í kvöld. Þetta er síðasti leikur liðanna í þriggja leikja æfingaleikjatörn en liðin léku í Hafnarfirði í gær og í fyrradag. Ísland vann fyrsta leikinn 29-27 en í gær gerðu þau jafntefli, 25-25. Í liði Íslands eru Selfyssingarnir Ragnar Jóhannsson, Guðmundur Árni Ólafsson og Bjarki Már Elísson. Fjórði Selfyssingurinn, Einar  Guðmundsson, er annar þjálfara liðsins. Bæði lið eru að búa sig úr fyrir undankeppni heimsmeistaramótsins sem fram fer 7. - 9. janúar víðsvegar um Evrópu.

20.12.2010 | Handboltaakademía

22 leikmenn frá Selfossi hafa veriđ valdir í ungmennalandsliđ á ţessu ári

Átta ungmenni frá Selfossi voru valin í landsliðshópa skipað leikmönnum 15 ára og yngri sem æfa af kappi um jólin. Þær Thelma Björk Einarsdóttir, Þuríður Guðjónsdóttir, Harpa Sólveig Brynjarsdóttir, Katrín Magnúsdóttir og Dagmar Öder Einarsdóttir voru valdar í stúlknalandsliðið og þeir Ómar Ingi Magnússon, Hergeir Grímsson og Guðjón Ágústsson voru valdir í piltalandsliðið. Alls hafa 22 leikmenn frá Selfossi verið valdir í ungmennalandslið á þessu ári og hafa aldrei verið fleiri.

20.12.2010 | Knattspyrna

Vinningar í jólahappdrćtti knattspyrnudeildar

Dregið hefur verið í jólahappdrætti knattspyrnudeildar Umf. Selfoss. Vinningar eru eftirfarandi...

20.12.2010 | Taekwondó

Taekwondodeild komin međ ţrjá svartbeltunga

taekwondo_053Föstudaginn 17. des var haldið beltapróf fyrir þá sem áttu möguleika á að taka svarta beltið. Beltaprófið fór fram í taekwondoakademíunni Ármúla 1. Selfyssingar áttu þar tvo iðkendur sem reyndu sig við belti, þá Brynjólf Ingvarsson og Davíð Arnar Pétursson. Skemmst er frá því að segja að þeir stóðust prófið með glans.

17.12.2010 | Knattspyrna

Lokahóf og jólamatur Selfoss getrauna

jÓlabjallaSelfoss - Getraunir bjóða tippurum og fjölskyldum þeirra á lokahóf og jólamat haustleiks 2010. Lokahófið verður haldið í Tíbrá laugardaginn 18. desember. Matur verður borinn fram kl. 11:30 og stendur á borðum allt til kl. 13:00. Veittar verða viðurkenningar fyrir árangur vetrarins og dregið í happadrætti unglingaráðs, auk annarra skemmtilegra uppákoma.

17.12.2010 | Júdó

HSK-mótiđ í júdó var haldiđ ţann 14. desember

judomot_4357HSK-mótið í jódó var haldið 14. desember sl. í júdósalnum í Gagnheið 3 í umsjón jódódeildar UMFS. Mótið hófst á keppni yngstu keppenda sem voru flestir mættir með foreldrum sem hvöttu þá dyggilega. Áhugvert var að fylgjast með hversu vel margir þessara ungu iðkenda hafa tileinkað sér grunntækni júdóíþróttarinnar.

17.12.2010 | Handbolti

Selfoss-sigur í 4. flokki

Selfoss lék við Gróttu í A-liðum 4. flokks karla í gær. Um hörkuleik var að ræða enda Grótta skammt á eftir Selfossi í deildinni. Selfyssingar voru alltaf með góð tök á leiknum og alltaf einu til tveimur skrefum á undan. Selfoss vann að lokum 31-27 sigur.

16.12.2010 | Fimleikar

Barnapössun, leikir og fjör

Laugardaginn 18.desember býður meistarahópur HM2 í fimleikum uppá barnapössun, leiki og fjör í íþróttahúsi Baulu við Sunnulækjarskóla.  Börn fædd 2006 og eldri hjartanlega velkomin gegn vægu gjaldi.  Stelpurnar munu vera með leiki, þrautabrautir og æfingastöðvar fyrir krakkana milli klukkan 10 og 16.  Við hvetjum foreldra til að koma með börnin sín og leyfa þeim að leika sér burtu frá jólastressinu.  Verðskrá fyrir pössunina er eftirfarandi:

 

16.12.2010 | Handboltaakademía

3.flokkur úr leik í bikarnum

Strákarnir í 3. flokki léku í vikunni gegn Stjörnunni og urðu þeir að játa sig sigraða með minnsta mun, 33-32 eftir hörkuleik. Selfyssingar höfðu yfir í hálfleik 16-13 eftir góðan varnarleik.

16.12.2010 | Knattspyrna

Vantar notuđ húsgögn

Knattspyrnudeild Umf. Selfoss óskar eftir húsgögnum og leirtaui sem fólk er hætt að nota. Það vantar allt og það má vera mikið notað. Best er að hringja í Sveinbjörn í síma 897-7697 eða Tómas í síma 699-0660 og allt verður sótt um hæl. Endilega verum vakandi ef ættingjar og vinir eru að taka til í geymslu fyrir jólin eða ef einhverjir eru að fara skipta út húsgögnum og á leið með eitthvað nýtilegt á haugana.Með fyrirfram þökk,
meistaraflokksráð.

14.12.2010 | Handbolti

B-liđiđ vann í 4. flokki

Á sunnudag mætti Selfoss liði Gróttu á heimavelli í B-liðum 4. flokks karla. Selfoss var mun sterkara í leiknum og vann 24-14 sigur þrátt fyrir að margir leikmenn ættu mikið inni og hefðu ekki verið að leika sinn besta leik. Varnarleikurinn var þó sterkur og hafði mikið að segja.

14.12.2010 | Handbolti

Landsleikur í Vallaskóla á mánudagskvöld

em- raggiMánudaginn 20. desember leikur unglingalandslið Íslands í handknattleik skipað leikmönnum 20 ára og yngri landsleik við Norðmenn í íþróttahúsi Vallaskóla og hefst leikurinn kl 19:30. Þetta er þriðji leikur landanna á þessari helgi. Hinir tveir leikirnir fara fram í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði laugardaginn 18. des og sunnudaginn 19. des. Með íslenska liðinu leika Selfyssingarnir Ragnar Jóhannsson og Guðmundur Árni Ólafsson. Þjálfari liðsins er Einar Guðmundsson.

14.12.2010 | Handboltaakademía

Ćvintýralegt jafntefli hjá Selfossi-2 í 2. flokki

Í gærkvöld sóttu Mosfellingar okkur Selfyssinga heim í toppslag 2. deildar í 2. flokki. Léku okkar drengir afar illa í leiknum og stefndi lengi vel í stórt tap þeirra. Vörnin sem hefur verið góð það sem af er tímabilinu var úti á túni og markvarslan enn verri. Leiddu gestirnir 15-22 í leikhléi og í síðari hálfleik virtist fátt ætla að breytast. En með ævintýranlegum endaspretti tókst okkar drengjum að jafna 35-35 eftir mikinn darraðardans.

13.12.2010 | Frálsíţróttir

Jólamót frjálsíţróttadeildar verđur fimmtudaginn 16. des

Fimmtudaginn 16. desember verður haldin síðasta æfingin í frjálsum hjá yngstu krökkunum fyrir jólafrí og ætlum við að enda árið hjá þeim með Jólamóti frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss fyrir krakka 10 ára og yngri. Mótið verður haldið í íþróttahúsinu við Iðu og mun standa frá kl. 16:00-18:00. Keppnisgreinar eru 30 m spretthlaup, langstökk án atrennu, skutlukast og kúluvarp. Keppt verður í aldursflokkum 8 ára og yngri og svo 9-10 ára. Allir þátttakendur fá viðurkenningaskjal með skráðum árangri fyrir þátttöku.

13.12.2010 | Knattspyrna

Jólatrukkar Coca-Cola á leiđinni á Selfoss

Jólatrukkar Coca-Cola, sem eru tveir stórglæsilegir og ríkulega búnir trukkar, eru væntanlegir á Selfoss seinni partinn í dag. Jólatrukkarnir eru fluttir inn frá Bandaríkjunum. Eru þeir ríkulega útbúnir og skreyttir að utan auk þess sem aftan á þeim er Vífilfell búið að koma fyrir sannkölluðu ævintýralandi með það að markmiði að skapa jólastemningu og skemmta landsmönnum. Knattspyrnudeild Umf. Selfoss hvetur alla unga sem aldna að kíkja á trukkana og upplifa jólastemninguna. Jólatrukkarnir verða á Selfossi kl. 16:00-18:00.

13.12.2010 | Fimleikar

Húsfylli á jólasýningum fimleikadeildar á laugardaginn

Fullt var út úr dyrum á öllum jólasýningum fimleikadeildar s.l. laugardag. Í ár var þema sýningarinnar Fríða og Dýrið. Sýnt var þrisvar sama daginn en yngstu þátttakendunum var skipt niður á sýningar og sýndu bara einu sinni á meðan að eldri iðkendurnir sýndu á öllum sýningunum þremur. Í ár var sýningin mjög fjölbreytt, en skemmtileg viðbót frá fyrra ári voru parkour-krakkar, eldri strákahópur og svo hópur iðkenda í fullorðinsfimleikum.  

12.12.2010 | Nýjustu fréttir

Taekwondo beltapróf

Beltapróf voru haldin í íþróttahúsinu Iðu helgina 11.-12. desember. Um 80 manns , börn og fullorðnir, reyndu sig við ný belti og rendur á beltin sín. Allir sem tóku próf náðu beltum og röndum og óskum við þeim til hamingju með áfangann.

12.12.2010 | Handbolti

Sigur hjá 4. flokki á Akureyri og ferđasaga

4. flokkur karla hélt norður á Akureyri um helgina ar sem A-liðið lék einn leik gegn KA. Ákveðið var að fara á föstudegi og búa til skemmtilega ferð en leikurinn við KA var svo á laugardag. Það reyndist mikið gæfuspor því leikurinn gegn KA vannst sannfærandi 21-35 og leikmenn bjuggu til góða ferð þar sem þeir skemmtu sér mikið saman.

11.12.2010 | Handboltaakademía

94 vann Ţrótt heima

Selfoss-2 í 3.flokki vann í vikunni Þrótt á heimavelli 36-35 eftir að hafa leitt í hálfleik 19-17. Jóhann Erlingsson skoraði sigurmarkið rétt fyrir leikslok.

11.12.2010 | Handboltaakademía

91-vann ÍR á útivelli

2.flokkur-1 vann ÍR á þriðjudagskvöldið nokkuð örugglega, leikið var í Austurbergi og voru lokatölur 36-25 eftir að okkar menn leiddu 17-11 í hálfleik.

11.12.2010 | Handboltaakademía

Sigur hjá 93 gegn HK

Strákarnir í Selfoss-1 í 3.flokki unnu HK sannfærandi fyrir stuttu á útivelli. Lokatölur 36-28 og höfðu Selfyssingar yfir í hálfleik 19-17.

10.12.2010 | Handboltaakademía

93-liđiđ tapađi gegn Stjörnunni

Um síðustu helgi léku strákarnir í 3.fl-1 við Stjörnuna á útivelli. Heimamenn hafa á góðu liði að skipa og hafa afar góðan þjálfara. Um var að ræða hörkuleik sem gat farið á hvorn veginn sem var en fór þó svo að heimamenn gerðu tvö síðustu mörkin og unnu 26-24. Í hálfleik stóð 15-15.

8.12.2010 | Fimleikar

Jólasýning fimleikadeildar Selfoss á laugardaginn

Hin árlega jólasýning Fimleikadeildar Selfoss er á laugardaginn kemur. Mikil hefð hefur skapast í kringum þessa sýningu og er hún stórkostleg skemmtun fyrir unga sem aldna.  Undanfarin ár hafa iðkendur og þjálfarar deildarinnar sett upp hin ýmsu leikrit eða söngleiki.  Í ár varð fyrir valinu "Fríða og Dýrið"  sem er ekki í jólabúning þetta árið en sýningin er eftir hinni hefðbundnu sögu.  Undirbúningur er í hámarki og hefur mikið verið lagt í búninga og aðra leikmynd með hjálp Öldu í Alvörubúðinni.  Í heild taka rúmlega 400 iðkendur og þjálfarar þátt í sýningunni en yngstu iðkendunum er skipt á milli sýninga.  Sýningarnar eru þrjár sú fyrsta klukkan 10:00 næsta kl. 12:00 og svo síðasta klukkan 13:30.  Kaffihúsastemming verður í anddyri Vallaskóla á milli sýninga en eins má finna skemmtilegan söluvarning inná milli.  Forsala aðgöngumiða er föstudaginn 10.des í íþróttahúsi Vallaskóla milli kl.16 og 19.  Aðgangseyrir er krónur 500 fyrir 16 ára og eldri.  Sögumaður verður að þessu sinni Hjörtur Benediktsson Hvergerðingur.  Hlökkum til að sjá ykkur! Fyrir hönd fimleikadeildar Fríða og Dýrið.

7.12.2010 | Handbolti

Jólatréssala 5. flokks í handbolta

5. flokkur karla í handbolta verður með jólatréssölu í Jólagarðinum fimmtudagana 9. og 16. des kl. 18-21 og tvær síðustu helgarnar fyrir jól kl. 13-18. Jólatrén eru frá Skógrækt ríkisins. Þetta eru falleg, íslensk tré sem eru ræktuð  án allra eiturefna. Jólatréssalan er liður í fjáröflun strákanna fyrir Gautaborgarferð milli jóla- og nýárs, á Norden Cup, sem haldin er þar ár hvert með þátttöku allra sterkustu félagsliða Norðurlanda í yngri flokkunum. Hvetjum við alla Ungmennafélagsmenn og aðra velunnara að koma og versla sér tré.

7.12.2010 | Nýjustu fréttir

Kveđja frá Ungmennafélagi Selfoss

Fallinn er frá, Kolbeinn Ingi Kristinsson, heiðursfélagi Ungmennafélags Selfoss og frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss. Kolbeinn var einn þeirra íþróttamanna sem bar hróður Ungmennafélags Selfoss hvað hæst á árunum, um og eftir seinna stríð. Hann keppti í frjálsum íþróttum fyrir Selfoss á árunum 1942 til 1954 og var á þessum árum landsþekktur hástökkvari og stangarstökkvari.

6.12.2010 | Handbolti

Sigur og tap hjá 4. flokki

Bæði liðin í 4. flokki karla léku um helgina. A-liðið lék gegn FH á laugardag og tapaði 25-23 eftir að hafa verið mun betri framan af leik. B-liðið aftur á móti vann stóran sigur á ÍR 13-29. Báðir leikir voru á útivelli.

1.12.2010 | Handbolti

Tvćr Selfoss-stelpur ćfđu me U17 hópnum

Þær stöllur Díana Kristín Sigmarsdóttir og Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir voru valdar til að æfa með U17 ára landsliði Íslands, en æfingarnar fóru fram um helgina. Þar stóðu þær sig báðar mjög vel. Þremur stúlkum úr U17 hópnum voru boðaðar á æfingar með U19 ára landsliðinu og var Díana ein þeirra. Sannarlega efnilegar handboltastúlkur þar á ferð sem eiga framtíðina fyrir sér í handboltanum.

30.11.2010 | Handboltaakademía

Glćsilegt framtak!

Síðuritari fékk þær fréttir að eftir leik Selfoss og Víkinga í 3.flokki um síðastliðna helgi hefði foreldrar Víkinga boðið okkar drengjum í kaffi eftir leik. Gæddu drengirnir þar sér á ýmsu góðgæti og drukku djúsa af ýmsum tegnundum.

Finnst síðuritara sem og öllum sem að liðinu koma þetta frábært framtak og til eftirbreytni. Þökkum við Víkingum afar mikið og vel fyrir og vonum að þeim komi til með að ganga sem best í vetur.

29.11.2010 | Handbolti

4. flokkur B međ annan sigur

B-lið 4. flokks karla spilaði fyrsta heimaleik sinn í vetur á sunnudag. Leikurinn var gegn HK sem hefur að skipa liði með marga fína leikmenn. Selfoss náði strax góðu forskoti og leiddi 15-10 í hálfleik. Sóknarleikur liðsins hafði þá verið mjög vel útfærður og varnarleikurinn góður einnig. Í síðari hálfleik var Selfoss alltaf með leikinn og vann að lokum 28-23.

29.11.2010 | Knattspyrna

Ályktun ađalfundar knattspyrnudeildar

Aðalfundur knattspyrnudeildar Umf. Selfoss var haldinn í Tíbrá 24. nóvember s.l. Þar var lögð fram skýrsla stjórnar og farið yfir síðasta sumar. Einnig var lagt fram uppgjör fyrir fyrstu 10 mánuði ársins. Fram kom að velta knattspyrnudeildar hefur aldrei verið meiri enda félagið í fyrsta skipti með lið í efstu deild. Rekstrarniðurstaða fyrir fyrstu 10 mánuði ársins var jákvæð, sem og unglingaráðs deildarinnar.

29.11.2010 | Handboltaakademía

92-liđiđ vann HK á útivelli

Selfoss-2 í 2. flokki (92-liðið) vann HK á útivelli 30-27, en í hálfleik stóð 17-15 fyrir heimamenn. Strákarnir léku sterka og góða vörn í síðari hálfleik og áttu heimamenn litla möguleika á löngum kafla. Lið sem leika vörn og fá markvörslu eiga alltaf möguleika á sigri.

29.11.2010 | Handboltaakademía

2. flokkur tapađi heima fyrir AHF

Leikur A-liðs 2. flokks hefur verið afar kaflaskiptur það sem af er tímabilinu. Sem dæmi hefur liðið unnið þrjá af fjórum útileikjum en ekki enn unnið heimaleik en tapað þar öllum þremur. Það sem áður þótti óvinnandi vígi er nú leikur einn fyrir gestina. Augljóst er að hugarfarsbreyting þarf að vera í þeim efnum. Akureyri vann okkar menn í fyrradag 32-27 eftir að þeir leiddu 13-11.

29.11.2010 | Handboltaakademía

93-gengiđ vann Víking á útivelli

Okkar menn sóttu Víkinga heim á laugardaginn og höfðu sigur 34-13 eftir að hafa leitt í hálfleik 16-8. Léku okkar menn góða vörn í leiknum og var markvarslan einnig til fyrirmyndar. Mikil stemning var í liðinu og samheldni mikil.

28.11.2010 | Sund

Selfoss sigrađi á unglingamóti HSK

Selfoss sigraði stigakeppni félaga á unglingamóti HSK sem fram fór í Sundhöll Selfoss í gær, laugardaginn 27. nóvember. Selfoss hlaut 78 stig en Hamar varð í öðru sæti með 62 stig. Dímon hafnaði svo í þriðja sæti með 21 stig. Þetta er þriðja árið í röð sem Selfoss sigrar unglingamótið. Ásgeir Nemesio Halldórsson hlaut bætingabikarinn sem veittur er fyrir mesta bætingu milli ára. Hann hlaut hann fyrir 50m baksund þar sem hann bætti tíma sinn um nærri 25 sek. Engin smáræðis bæting það.

26.11.2010 | Knattspyrna

Hólmfríđur Magnúsdóttir í heimsókn hjá 5., 4. og 3. flokki kvenna í knattspyrnu

Hólmfríður Magnúsdóttir, knattspyrnukona, sem leikur með Philadelphia Independence og íslenska landsliðinu, kom í heimsókn í gær til stelpnanna í 5., 4. og 3.fl. Hólmfríður byrjaði á því að ræða við stelpurnar í 4. og 3. fl. og þær voru mjög áhugasamar um hvernig og hvað hún æfir til að ná svona góðum árangri, næringu, hugarfar o.fl. Síðan fóru stelpurnar út á völl á æfingu þar sem Hólmfríður hrósaði stelpunum fyrir það sem þær gerðu vel og kom með ábendingar um það sem mætti gera betur. Eftir æfinguna hjá flokkunum þá ræddi Hólmfríður við stelpurnar í 5. fl. og þar voru spurningarnar af öðru tagi, t.d. af hverju hún væri svona brún og hvað metið hennar væri að halda á lofti. En stelpurnar í 5. fl. eru duglegar að æfa sig í að halda á lofti því þær taka test einu sinni í mánuði og þá reyna allar að bæta metið sitt.

26.11.2010 | Handboltaakademía

Selfoss-sokkar í jólapakkann

Sokkar-4fl.Strákarnir í 4. flokki eru á fullu í fjáröflun vegna ferðar á Partille Cup í Svíþjóð næsta sumar. Þeir hafa látið búa til sokka með merki Umf. Selfoss sem þeir bjóða til sölu. Sokkarnir eru í stærðunum 30-32, 33-35, 36-39, 40-43 og 44-47 og kostar hvert par 1.000 krónur. Hægt er að fá 3 pör fyrir 2.500 kr. Sokkarnir verða seldir á öllum heimaleikjum meistaraflokks Selfoss og ungmennaliðs Selfoss í vetur. Einnig eru þeir til sölu hjá Baldvini og Þorvaldi gegn staðgreiðslu. Sokkarnir eru tilvaldir í jólapakkann handa íþróttafólki.

25.11.2010 | Handbolti

4. flokkur B međ sigur og tap

B-liðið í 4. flokki karla hefur leikið tvo leiki undanfarna daga. Á sunnudaginn léku þeir gegn Fjölni úti og töpuðu með fjórum mörkum 22-26. Í gær vann liðið svo KR einnig úti, 25-24, og er þá komið með 2 sigra í fyrstu 3 leikjunum sem allir hafa verið á útivelli.

25.11.2010 | Handboltaakademía

93-liđiđ tapađi gegn Val

Valsmenn úr Reykjavík sóttu 93-lið okkar Selfyssinga heim í gærkvöld. Unnu gestirnir 26-23 en í hálfleik stóð 16-10 fyrir Valsmenn. Því miður léku okkar menn undir getu í gær og því fór sem fór.

25.11.2010 | Handboltaakademía

Góđur sigur 2. flokks í Heimaey

Okkar menn í 2. fl A lið (91-liðinu) sóttu Eyjamenn heim um síðustu helgi. Höfðu Selfyssingar sigur 27-19 eftir að hafa verið yfir 14-9 í hálfleik. Loksins lék liðið almennilega vörn og af þeirri getu sem ætlast er til af liðinu. Gott veganesti fyrir leikinn gegn Akureyri sem er næstkomandi laugardag kl. 16 á heimavelli. Akureyri telja flestir að hafi besta lið landsins.

25.11.2010 | Nýjustu fréttir

Allir velkomnir á fund hjá taekwondo í Tíbrá mánudaginn 29. nóv. kl. 20:00

Foreldrafélag tae kwon do mun halda fund í Tíbrá mánudaginn 29. nóvember kl. 20,00. Stjórn Foreldrafélagsins langar að hvetja alla foreldra og nýliða til að mæta.

25.11.2010 | Taekwondó

Íslandsmótiđ í Poomsae í Hrafnagili

hrafnagil_1Íslandsmótið í Poomsae ( formum ) var haldið í Íþróttahúsinu í Hrafnagili helgina 20.-21. nóvember sl. Umf. Selfoss sendi 10 keppendur til leiks og er hægt að segja að þeir hafi staðið sig með miklum ágætum á mótinu. Keppt var í barnaflokkum, miniorflokkum og fullorðinsflokkum og áttu Selfyssingar fulltrúa í öllum flokkum. Einnig var keppt í para poomsae og hópa poomsae og þar áttu Selfyssingar líka fulltrúa í báðum hópum.

24.11.2010 | Knattspyrna

Ađalfundur knattspyrnudeildar í kvöld

Aðalfundur knattspyrnudeildar Umf. Selfoss verður haldinn í Tíbrá í kvöld kl. 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Lögð verður fram ársskýrsla deildarinnar ásamt rekstraryfirliti yfir fyrstu tíu mánuði ársins. Allir eru velkomnir.

24.11.2010 | Frálsíţróttir

12 gullverđlaun og 2 HSK-met á Silfurleikum ÍR

frjalsar_silfur_1057Iðkendur frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss gerðu mjög góða ferð á Silfurleika ÍR laugardaginn 16. nóvember s.l. Um 20 keppendur kepptu í þrautabraut og tóku þátt í 10 mismunandi þrautum þar sem allir fengu jafna viðurkenningu. Sautján keppendur 11 ára og eldri tóku síðan þátt í mismunandi greinum.

23.11.2010 | Handbolti

Selfoss fékk Val heima í bikarnum

eimskipsbikarinnSíðastliðinn mánudag var dregið í 8-liða úrslitum Eimskipsbikars karla. Selfoss fékk þar heimaleik á móti Val. Ljóst er að um hörku leik verður að ræða. Liðin mættust í Vallaskóla í byrjun október og þá vann Selfoss 32:30. Í hinum viðureignunum eigast við Víkingur og Akureyri í Víkinni, Fram og Haukar í Safamýri og svo ÍR og FH í Seljaskóla. Leikirnir fara fram 5. og 6. desember.

23.11.2010 | Handbolti

Stelpurnar í 4. flokki í toppbaráttu á Íslandsmótinu

4kv-self-grotta-hannaÁfram halda stelpurnar í 4. flokki að standa sig vel. Fimmtudaginn 11. nóv. kepptu þær við Stjörnuna í 32-liða úrslitum bikarsins og unnu leikinn með 8 mörkum. Laugardaginn 13. nóv. léku bæði liðin við Fylki. A-liðið gerði jafntefli 22:22, en B-liðið sigraði 8:15. Um helgina unnu stelpurnar svo báða leikina sína.

22.11.2010 | Handboltaakademía

B-liđ 2. flokks vann A-liđ Gróttu

Okkar menn í Selfoss-2 í 2. flokki gerðu góða ferð á Seltjarnarnes í gærkvöld er þeri unnu sannfærandi sigur 30-27. Í hálfleik stóð jafnt 13-13. Afar góð og sterk vörn okkar mann skóp sigurinn og þá ekki síst frábær markvarsla Brynjars í markinu.

21.11.2010 | Handboltaakademía

94 - vann ÍBV

Vestmannaeyingar komu í heimsókn á laugardagsmorgunn og léku við yngra árs lið 3.flokks. Svo fór að okkar menn unnu 26-20 eftir að hafa leitt í hálfleik 11-10.

21.11.2010 | Knattspyrna

Svavar Berg ćfir međ u-17 ára landsliđinu

Svavar Berg Jóhannsson sem skrifaði á föstudag undir samning við Selfoss mun æfa með landsliði Íslands um helgina. Svavar sem er 15 ára er alinn er upp hjá Ægi í Þorlákshöfn. Heimasíða Selfoss óskar Svavari til hamingju með þennan áfanga og óskar honum góðs gengis á landsliðsæfingum.

21.11.2010 | Knattspyrna

Selfoss sigrađi KR 4-3

Selfyssingar spiluðu í gær laugardag fyrsta leik liðsins undir stjórn Loga Ólafssonar. Þar mættu þeir fyrrverandi lærisveinum þjálfarans, KR og að sjálfsögðu unnu strákarnir leikinn. Eftir að staðan hafði verið 2-2 í hálfleik voru Selfyssingar ákveðnari og unnu leikinn 4-3. Mörk Selfoss skoruð þeir Jón Daði Böðvarsson 2 og Ingi Rafn Ingibergsson 2.

18.11.2010 | Taekwondó

Ćfingar falla niđur í taekwondo föstudaginn 19. nóvember

Allar taekwondoæfingar falla niður föstudaginn 19. nóvember vegna Íslandsmóts í formi sem haldið verður á Akureyri. Áfram Selfoss!!

18.11.2010 | Taekwondó

Beltapróf hjá taekwondodeild

Þann 11. desember 2010 verður haldið beltapróf hjá taekwondodeild fyrir öll lægri belti þ.e. þeir sem eru að fara að taka gula rönd upp í blátt belti. Prófið verður haldið í íþróttahúsinu Iðu Selfossi.

17.11.2010 | Knattspyrna

Konukvöld Selfoss verđur í Tryggvaskála föstudaginn 19. nóvember

Nú er komið að því! Hið margumtalaða konukvöld Selfoss kvenna verður haldið föstudaginn 19. nóvember næstkomandi í Tryggvaskála! Á staðnum verður fordrykkur í boði Íslandsbanka og svo verða léttar veitingar í boði Krónunnar. Miðaverð er aðeins 2.500 kr. !!! Á dagskránni er meðal annars tískusýning, söngatriði, danskennsla og happdrætti svo eitthvað sé nefnt! Happdrættisvinningarnir eru sko ekki af verri endanum!Veislustjórinn er svo engin önnur en Svava Svavarsdóttir. Húsið opnar kl. 20.00 og dagskrá hefst á slaginu kl. 20.30!

16.11.2010 | Handbolti

Meistaraflokkur kvenna lék viđ Val

Stelpurnar í meistaraflokki kvenna mættu liði Vals á sunnudaginn. Í hálfleik voru þær átta mörkum undir en með mikilli baráttu tókst þeim að vinna síðari hálfleik með þremur mörkum og töpuðu því leiknum (33-28). Þess má geta að í lið Vals léku þrjár stelpur sem voru í landsliði Íslands fyrir þremur árum. Stelpurnar eru ákveðnar að standa sig vel í vetur og bæta sig í hverjum leik sem þær spila. Verður áhugavert að fylgjast með þeim í vetur.

16.11.2010 | Handbolti

Stelpurnar í 4. flokki áfram í bikarnum

Áfram halda stelpurnar í 4. flokki kvenna í handbolta að standa sig vel. Fimmtudaginn 11. nóv. kepptu þær við Stjörnuna í 32-liða úrslitum bikarsins og unnu leikinn með 8 mörkum. Um helgina gerði A-liðið jafntefli við Fylki og eru þær nú í 2. sæti í 1. deild en eiga leik til góða. Með sigri í þeim leik þá verða þær efstar því þær eru með betri markatölu en liðið í öðru sæti. Þá sigraði B-liðið Fylkisstelpur um helgina með 7 mörkum og eru nú í efsta sæti í 1. deild. Sannarlega frábær árangur hjá stelpunum sem ætla sér að halda áfram á sömu braut í vetur.

16.11.2010 | Handboltaakademía

94-liđiđ vann Völsung

Um síðustu helgi komu Völsungar frá Húsavík og léku við B lið 3. flokks. Gladdist Arnar þjálfari að geta loksins talað við fólk með svipaðan hreim. Okkar menn unnu 33-19 og höfðu yfir í hálfleik 17-9. Það sem stóð upp úr var markarsla Hemma og þolanlegur varnarleikur. Því miður fylgir ekki markaskor þessari frétt þar sem síðuritari náði ekki í Arnar. Aftur á móti verður tölfræðin birt við fyrsta tækifæri. Þetta sama lið leikur heima við ÍBV á laugardagsmorgunn kl. 10.30.

15.11.2010 | Nýjustu fréttir

Margfaldur heimsmeistari ráđinn til taekwondodeildar UMFS

Taekwondodeild UMFS hefur ráðið til sín Meisam Rafiei, frá Íran, margfaldann heimsmeistara í taekwondo.

15.11.2010 | Handbolti

Sigur hjá 4. flokki A gegn Aftureldingu úti

Í gær fór A-lið 4. flokks karla og lék gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ. Liðið lék mun betri varnarleik í þessum leik en að undanförnu og skilaði það sannfærandi sigri. Lokatölur urðu 17-23 sigur okkar manna og er þessi leikur klárlega eitthvað sem liðið getur byggt á fyrir næstu verkefni.

15.11.2010 | Handboltaakademía

2.flokkur tapađi fyrir Stjörnunni

Okkar menn í 91-liðinu töpuðu heima í gærkvöld fyrir Stjörnunni í afar slökum leik. 30-36 urðu lokatölur en í hálfleik stóð 14-15 fyrir gestina.

14.11.2010 | Handboltaakademía

2.flokkur leikur í kvöld viđ Stjörnuna

Í kvöld kl 20 leika okkar menn í 2.flokki (91-liðinu) gegn Stjörnunni. Leikurinn fer að venju fram í Vallaskóla og verður eflaust um hörkuleik að ræða. Leikur liðsins hefur lagast jafnt og þétt og vænta menn þess að sú framþróun haldi áfram. Mikill hugur er í þessum strákum og ætla þeir sér einhverja hluti í vetur. Hvetur síðuritari sem og heimasíðan alla til að mæta og berja leikmenn framtíðarinnar augum.

13.11.2010 | Handbolti

5. flokks dagur í handboltanum (myndir)

Í seinustu viku var haldinn svokallaður 5. flokks dagur þar sem bæði drengja og stúlknaflokkarnir í 5. flokki skemmtu sér saman. Byrjað var á sameiginlegri æfingu þar sem var farið í leiki auk þess að spila, næst var farið í kjallara Vallaskóla þar sem var bíósýning og að lokum fór allur hópurinn saman í sund. Hátt í 50 iðkenndur í 5. flokki tóku þátt í deginum og skemmtu sér mikið. Meðfylgjandi eru myndir frá deginum sem heimasíðan fékk í hendurnar.

12.11.2010 | Handboltaakademía

3.flokkur á ferđinni í kvöld

Í kvöld koma Húsvíkingar í heimsókn á Selfoss og leika við okkar menn í 94-liðinu. Strákarnir hafa farið vel af stað í haust og unnið þrjá leik af fjórum. Það er síðuritara mikið fagnaðarefni að Völsungar séu komnir með lið í 3.flokki til að leika á Íslandsmóti. Frá Húsavík koma margir frábærir íþróttamenn og væri það okkur á Selfossi sannkallað gleðiefni tækist Húsvíkingum að koma upp meistaraflokks liði til keppni í deild elstu flokka.

Hefst leikurinn kl 21 eða strax á eftir leik meistaraflokks í bikarnum við Hamra frá Akureyri.

11.11.2010 | Handboltaakademía

Góđur sigur 3. flokks á Haukum í gćr

Haukar frá Hafnarfirði sóttu okkar menn í 93-liðinu heim í gærkvöld. Reiknað var með hörkuleik og varð það svo sannarlega raunin. Haukar urðu meistarar í þessum aldursflokki fyrir tveimur árum og eru með gott lið. Fór það svo að lokum að okkar menn unnu 33-32 eftir að hafa haft yfir 19-16 í hálfleik.

11.11.2010 | Knattspyrna

Markmannsćfingar í fótbolta byrja aftur

fót_boltiMarkmannsæfingar hjá yngri flokkum í knattspyrnudeild byrja nú aftur á laugardaginn. Verða þær í vetur á laugardögum kl. 9:00-10:30. Æfingarnar eru fyrir alla markmenn í 4., 5. og 6. flokki bæði stráka og stelpur. Mikilvægt er að klæða sig eftir veðri og muna að mæta með markmannshanska, legghlífar og takkaskó. Æfingarnar verða fjölbreyttar og skemmtilegar. Aðal áhersla verður lögð á tækni, snerpu, staðsetningar og að markmaður taki virkan þátt í leik.

8.11.2010 | Handboltaakademía

Góđur sigur hjá 2. flokki

Okkar menn í A-liði Selfoss sóttu Hauka heim í gærkvöld. Þar höfðu Selfyssingar sigur 33-27, en okkar menn höfðu yfir 16-13 í hálfleik.

8.11.2010 | Handboltaakademía

Sigur og tap hjá 93-liđinu

Selfoss A í 3. flokki (93) vann fyrir stuttu ÍR2 í bikarnum örugglega 43-16, en hafði yfir 24-7 í hálfleik. Ekki var mikil mótspyrna frá andstæðingunum sem var eðlilegt þar sem A-lið Selfoss lék gegn B-liði ÍR. Breiðhyltingar stóðu sig engu að síðu vel í leiknum.

7.11.2010 | Handbolti

Bćđi liđin í 4. flokki unnu međ einu marki

4. flokkur karla spilaði við Hauka á Ásvöllum í dag. Bæði A- og B-lið unnu leiki sína með einu marki eftir mikinn darraðardans, A-liðið vann 35-34 sigur og B-liðið 20-19. A-liðið hefur því unnið alla þrjá leiki sína í deildinni til þessa, en þetta var fyrsti leikur B-liðsins.

7.11.2010 | Nýjustu fréttir

Fjölmennasta sundmót í Sundhöll Selfoss í seinni tíđ

Árlegt Þórðarmót Sunddeildar Umf. Selfoss var haldið sunnudaginn 7. nóvember í Sundhöll Selfoss. Þórðarmótið er haldið til minningar um Þórð Gunnarsson þjálfara og sundkennara sem starfaði lengi á Selfossi. Að þessu sinni voru 99 keppendur skráðir á mótið en þeir komu frá Selfossi, Hveragerði, Hvolsvelli og Grindavík. 49 börn 10 ára og yngri fengu afhent þáttökuverðlaun en yngstu keppendur mótsins voru 5 ára og komu frá Grindavík. Mjög margir keppenda voru að taka þátt í sínu fyrsta móti enda mörg hver einungis búin að æfa í nokkrar vikur. Á mótinu var m.a. keppt í mjög óhefðbundnum greinum t.d. fótatökum og rennsli.

4.11.2010 | Sund

Metţátttaka í Ţórđarmótinu í sundi

Þórðarmótið í sundi fer fram n.k. sunnudag í Sundhöll Selfoss. Keppt verður í 13 greinum og til leiks er skráður metfjöldi þátttakenda eða 99 sundgarpar, þarf 65 10 ára og yngri. Auk sundmanna frá Selfossi keppa sundmenn frá Dímon á Hvolsvelli, Hamri í Hveragerði og UMFG í Grindavík.

 

4.11.2010 | Sund

Sex iđkendur kepptu á Fjölnismótinu um helgina

Sex krakkar frá Selfossi tóku þátt í Fjölnismótinu sem fram fór um sl. helgi. Hannes Höskuldsson vann silfur í 100m skriðsundi í sveinaflokki og bætti sig um 5 sekúndur. Í 100m fjórsundi vann hann bronsverðlaun og var við sinn besta tíma. Í 50 metra greinunum bætti hann sig verulega eða um heilar sextán sekúndur í 50m skriðsundi, tvær í 50m bringusundi en í síðustu greininni var hann orðinn svolítið þreyttur en var samt við besta tímann sinn.
Ólöf Eir Hoffritz bætti tíma sinn í 50m skriðsundi um 2 sek., flugsundið um 1 sek. og 50m baksundið synti hún á sínum besta tíma. Ólöf æfir mest allra í deildinni og keppti alveg óhvíld. Það er því frábær árangur að geta bætt tímana sína þrátt fyrir strangar æfingar.

4.11.2010 | Fimleikar

Haustmót í Hópfimleikum á Selfossi 13. og 14.nóvember

Selfoss heldur haustmót Fimleikasambandsins í hópfimleikum 13. og 14.nóvember í íþróttahúsi Vallaskóla. Mótið er mjög fjölmennt og taka átta hópar frá Fimleikadeild Selfoss þátt.  Mótið er fyrsta í röðinni í deildarkeppni úrvals- og 1.deildar. Keppt er í 5 flokkum í tveimur deildum og má búast við fjörugri helgi. Meðfylgjandi er skipulag mótsins.

3.11.2010 | Knattspyrna

Ráđstefna um ţjálfun barna

KSI_logoKSÍ mun halda ráðstefnu um þjálfun barna föstudaginn 12. nóvember næstkomandi. Markmið ráðstefnunnar er að skapa vettvang fyrir umræður og nýjungar í knattspyrnuþjálfun barna. Aðalfyrirlesari verður Ian Bateman tækniþjálfari frá enska knattspyrnusambandinu. Ian mun verða með bóklegan fyrirlestur og verklegar æfingar. Sigurður Ragnar Eyjólfsson fræðslustjóri KSÍ mun kynna nýjan DVD disk sem KSÍ hefur tekið upp og er að vinna í að gefa út og snýr að tækniþjálfun barna og á að hvetja börn í að vera dugleg að æfa sig sjálf.

2.11.2010 | Handbolti

Breyttur leiktími á leik Hauka og Selfoss í N1 deildinni

Leikur Hauka og Selfoss í N1 deildinni sem átti að vera 4. nóv á Ásvöllum hefur verið færður aftur til laugardagsins 6. nóvember. Leikurinn verður í beinni útsendingu í Sjónvarpinu og hefst kl. 15:45. Boðið verður upp á rútuferðir frá Selfossi á leikinn á laugardaginn og er fragjaldið 500 kr. fram og til baka. Lagt verður af stað frá Kaffi Krús kl. 13.30. Nú er um að gera að drífa sig með og láta ljós sitt skína og hvetja strákana duglega.

1.11.2010 | Handbolti

Janus Dađi fyrirliđi U-17 landsliđsins

Eins og kom fram á heimasíðunni voru 10 Selfoss drengir valdir í yngri landslið Íslands sem höfðu verkefni um helgina. Einn þeirra Janus Daði Smárason fór með liði sínu, U-17 landsliðinu, til Noregs þar sem Ísland lék þrjá leiki við heimamenn. Janus var fyrirliði íslenska liðsins og lék meiri hluta leikjanna sem leikstjórnandi.

1.11.2010 | Kraftlyftingar

Íslandsmót í réttstöđulyftu verđur haldiđ á Selfossi 4. desember

Íslandsmeistaramótið í réttstöðulyftu verður haldið á Selfossi af kraftlyftingadeild Umf. Selfoss. Mótið verður í íþróttahúsinu Iðu laugardaginn 4. desember og hefst kl. 13:00.

29.10.2010 | Handbolti

Selfoss fékk Hamrana í 16-liđa úrslitum Eimskipsbikarsins

eimskipsbikarinnÍ hádeginu í dag var dregið í 16-liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Selfyssingar drógust á móti liði Hamranna frá Akureyri sem leikur í utandeildinni. Einu N1 deildar liðin sem lentu saman voru Akureyri og Afturelding. Af öðrum viðureignum má nefna að 1. deildar liðin ÍR og Stjarnan drógust saman og Valur 2 og Valur eigast við. Leikirnir fara fram 14.-15. nóvember nk. Sjá leiki hér.

26.10.2010 | Handboltaakademía

2. flokkur vann Fram í skrautlegum leik

Okkar menn í A liði 2. flokks sóttu í gær Framara heim. Var leikurinn skrautlegur og verður ekki farið nánar út í það. Sigur hafðist á lokasekúndum leiksins er Andri Halls fékk boltann frá Árna Steini og skoraði rétt áður en tíminn rann út. Lokatölur 34-35 fyrir Selfoss, en heimamenn leiddu í hálfleik 18-17.

26.10.2010 | Knattspyrna

Strákarnir töpuđu gegn Tyrkjum

Strákarnir í u-19 ára landsliði Íslands í knattspyrnu töpuðu fyrir Tyrkjum í gær, 2-1, í lokaleik riðlakeppni Evrópumótsins sem fram fór í Wales. Selfyssingarnir Guðmundur Þórarinsson og Jón Daði Böðvarsson voru að sjálfsögðu í byrjunarliði Íslands í leiknum.

26.10.2010 | Handbolti

Meistaraflokkur kvenna vann í fyrsta leik sínum í 2. deild

Fyrir nokkru var meistaraflokkur kvenna í handknattleik endurvakinn. Guðrún Valgerður Ásgeirsdóttir var ráðin sem þjálfari og æfingar hófust. Liðið tekur þátt í Íslandsmóti kvenna í 2. deild í vetur. Stelpurnar léku fyrsta leik sinn við ÍR þriðjudaginn 12. okt. sl. á Selfossi. Þar vann Selfoss góðan 9 marka sigur 30:21. Þess má geta í liðinu léku mæðgur, þær Edda Björk Eggertsdóttir og dóttir hennar Alexandra Bía Sumarliðadóttir. Lið Selfoss er ungt að árum og er stefnt að því að byggja upp lið til framtíðar.

26.10.2010 | Handboltaakademía

Góđ helgi hjá 3.flokki

Um helgina léku bæði lið 3. flokks við bæði lið ÍR í sama flokki. Okkar menn höfðu sigur í báðum leikjunum, 32-24. Skemmtileg tilviljun, en í leik A liðsins var jafnt í hálfleik 13-13, en B liðið hafði yfir 15-9.

25.10.2010 | Knattspyrna

Ţrjár ćfa međ u-17 ára landsliđinu

Þorlákur Árnason valdi í dag æfingahóp u-17 ára landsliðsins í knattspyrnu stúlkna. Í hópnum eru þrjár stelpur úr Íslandsmeistaraliði Selfoss, en þetta eru þær Guðmunda Brynja Óladóttir, Eva Lind Elíasdóttir og Guðrún Arnardóttir. Æfingar hjá stelpunum eru í Kórnum og í Egilshöll um næstu helgi. Heimasíða umfs.is óskar þessum efnilegu stelpum til hamingju með þennan áfanga.

25.10.2010 | Nýjustu fréttir

Daníel Jens Pétursson međ 2. Dan

DanniLaugardaginn 23. október sl. þreytti Daníel Jens Pétursson, yfirkennari taekwondodeildar UMFS, gráðupróf í taekwondo. Daníel var að taka 2. Dan gráðu fyrir svart belti og stóðst hann prófið með glans, enda í toppformi. Prófið fór fram í Combat-Gym í Ármúlanum. Prófdómarar voru Master Sigursteinn Snorrason, 5. Dan, og Arnar Bragason, 2. Dan, formaður Taekwondosambands Íslands.

25.10.2010 | Knattspyrna

Gummi Tóta skorađi aftur í landsleik.

Guðmundur Þórarinsson og Jón Daði Böðvarsson byrjuðu báðir inn á í öðrum landsleik u-19 ára landsliðsins í riðlakeppni Evrópumótsins. Eftir sigur í fyrsta leik sínum þurftu Íslendingar að játa sig sigraða gegn landsliði Walse. Gummi Tóta kom íslendingum yfir með marki úr víti í fyrri hálfleik, en Walseverjar skoruðu svo tvö mörk í seinni hálfleik og unnu þar með leikinn.

25.10.2010 | Handbolti

Tíu Selfoss-strákar í fjórum unglingalandsliđshópum

u20_handboltastrákar_2010Um næstu helgi er æfingahelgi hjá unglingalandsliðum Íslands í handknattleik. Selfoss á 10 drengi í fjórum unglingalandsliðum. Þeir Ragnar Jóhannson, Árni Steinn Steinþórsson, Einar Héðinsson og Helgi Hlynsson eru í U20 hópnum, en hann fer til Makedóníu í byrjun janúar 2011. Einar Sverrisson er í U18 hópnum og Janus Daði Smárason í U16 hópnum. Þeir Ómar Ingi Magnússon, Hergeir Grímsson, Sævar Ingi Eiðsson og Árni Guðmundsson eru í U14 hópnum. Janus Daði er á leið til Noregs með sínu landsliði í lok mánaðarins.

24.10.2010 | Handbolti

4. flokkur međ sigur

A-lið 4. flokks karla mætti FH2 í gær í Vallaskóla. Selfoss var yfir allan leikinn og vann að lokum 9 marka sigur, 31-22 eftir að hafa leitt 17-13 í hálfleik. Þetta er annar sigurleikur liðsins í jafn mörgum leikjum í vetur.

23.10.2010 | Handboltaakademía

Myndir af leik Selfoss og Aftureldingar

Selfoss tapaði fyrir Aftureldingu 24-26  s.l. fimmtudagskvöld í hörku leik. Yfir 500 áhorfendur voru á leiknum og mikil stemming á pöllunum. Fjölmennur hópur stuðningmanna Aftureldingar fylgdi sínum mönnum. Hér fyrir neðan eru myndir sem Hermann Snorri tók á leiknum. http://www.flickr.com/photos/hermann-e-520/

22.10.2010 | Fimleikar

Fimleikastelpurnar keppa í dag í Malmö

Fimleikastelpurnar sem keppa á EM í dag vöknuðu eldsnemma til að gera sig klárar fyrir keppnina.  Þær byrja keppnina klukkan 11:17 að íslenskum tíma en hægt er að fylgjast með keppninni í beinni útsendingu á netinu á slóðinni www.teamgym2010.se.  Meðfylgjandi mynd var tekin af stelpunum á hótelinu áður en þær fóru í keppnishöllina í dag. 
Hrafnhildur Hanna og Eva kepptu í gær með unglingalandsiðinu og komst liði í úrslit en þau fara fram á morgun.  Stelpurnar stóðu sig vel en liðið gerði mistök á dýnu sem kostaði mikið og því má búast við enn betra móti hjá þeim á morgun.

 

21.10.2010 | Handbolti

Heimaleikur viđ Aftureldingu í N1 deildinni í kvöld

Lógó SelfossSelfyssingar fá Aftureldingu í heimsókn í kvöld í N1 deildinni. Án efa verður um hörku leik að ræða. Bæði lið komu upp úr 1. deild í vor og ætla sér að vera á meðal þeirra bestu. Eftir þrjá leiki er Selfoss með 2 stig, en Mosfellingar eru án stiga. Leikurinn er í íþróttahúsi Vallaskóla og hefst kl. 19.30. Búast má við miklu fjöri á pöllunum því Afturelding á kröftugan stuðningsmannahóp. Mjaltavélin, stuðningsmannaklúbbur Selfoss, mun líka mæta og láta vel í sér heyra. Nú er um að gera að mæta og láta Áfram Selfoss! hljóma ærlega. Ungmennaliðið leikur svo við Stjörnuna í 1. deildinni í Vallaskóla á morgun föstudag kl. 19.30.

21.10.2010 | Handboltaakademía

94-liđiđ lék gegn Gróttu

Sl. þriðjudag lék 94-liðið gegn GRóttu á Seltjarnarnesi. Okkar menn byrjuðu vel og komust ó 10-6, en eftir það seig all verulega á ógæfu hliðina. Grótta gekk á lagið og áttu Selfosspiltar aldrei möguleika. Í hálfleik stóð 12-15 og lokatölur 26-36. Selfyssingar léku afar dapran sóknarleik og misstu marga bolta sem leiddu til hraðaupphlaupa og ódýrra marka heimamanna.

21.10.2010 | Knattspyrna

Gummi Tóta og Jón Dađi byrjuđu báđir

KSÍ_merkiGummi og Jón Daði voru báðir í byrjunarliði Íslands í stórsigri u-19 ára landsliðsins gegn Kazakhstan. Leikurinn endaði 4-0 og skoraði Gummi Tóta þriðja mark Íslands úr víti. Má reikna með að strákurinn hafi verið ískaldur á punktinum eins og vanalega.

18.10.2010 | Handboltaakademía

Selfoss međ besta liđiđ bćđi hjá strákum og stelpum

vetm3Selfosskrakkarnir á eldra ári í 5. flokki unnu bæði í stelpu- og strákaflokki í fyrstu umferð á Íslandsmótinu um helgina, en mótið fór fram í Vestmannaeyjum. Strákarnir unnu örugga sigra í efstu deild gegn KR, Haukum, Val, Víkingi og ÍBV. En stelpurnar unnu einng efstu deild eftir harða keppni við HK, Fram, Fylki, FH og ÍR. B-liðin stóðu sig einnig vel stelpurnar unnu til að mynda 3. deildina með yfirburðum. Alls fóru 34 krakkar frá Selfossi í þess ferð og skemmtu sér mjög vel. Auk leikjanna voru kvöldvökur og sundlaugarferðir o.fl. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir úr ferðinni. 

18.10.2010 | Handboltaakademía

2. flokkur lék tvo leiki viđ Val í gćr

Bæði lið 2. flokks léku í gær við Valsmenn í Vallaskóla og var niðurstaðan ekki eins og við hefðum viljað hafa. A liðið tapaði í lélegum leik 30-35 eftir að hafa leitt í hálfleik 18-15. B liðið (að mestu skipað leikmönnum úr 3. flokki) vann svo sinn leik 28-22, en þeir leiddu 13-9 í hálfleik.

17.10.2010 | Handboltaakademía

94-liđiđ vann FH

3. flokkur B eða 94-liðið vann FH á föstudaginn á Selfossi. Selfoss vann nokkuð örugglega 33-27eftir að hafa leitt 20-12  í hálfleik. Samstaða og barátta einkenndi þennan leik hjá liðinu og dreifðist markaskor nokkuð jafnt. Þetta lið á leik næst gegn Gróttu á útivelli á þriðjudaginn.

15.10.2010 | Fimleikar

Á lokasprettinum fyrir EM

Stelpurnar í fimleikadeild Umf. Selfoss (HM 1) eru á lokasprettinum í undirbúningi fyrir keppni á Evrópumótinu í hópfimleikum, en mótið fram fer í Svíþjóð 21.-23. október nk. Æfingum hefur verið fjölgað og áhersla lögð jöfnum höndum á tæknileg atriði og uppbyggingu liðsanda. Laugardaginn 2. október sl. tóku þær þátt í „keyrslumóti“ í Garðabæ ásamt öðrum keppendum frá Íslandi. HM 1 stóðu sig með prýði og var auðséð að markviss og þrotlaus undirbúningur hefur skilað sér hjá liðinu. Liðið er sterkt og framfarir frá síðasta Evrópumóti (2008) eru miklar. Liðið mætir nú til keppni með mun erfiðari stökk en 2008 og uppbygging gólfæfinga (dansins) er með því besta sem gerist.
Á sunnudaginn 17. október hafa þær opna æfingu eða lokakeyrslu fyrir mótið. Sýningin verður í Baulu og hefst kl. 17:30 (tekur um 30–40 mín). Þá gefst fólki kostur á að koma og kíkja á þær á öllum áhöldum og óska þeim góðs gengis. Hópurinn vonast eftir fullu húsi af fólki.

15.10.2010 | Knattspyrna

Dóri Björns ráđinn ţjálfari 2. flokks karla

DóriHalldór Björnsson hefur verið ráðinn þjálfari 2. flokks karla í knattspyrnu. Dóri hefur þjálfað á Selfossi í mörg ár bæði karla- og kvennalið félagsins. Einnig hefur hann þjálfað yngri og eldri flokka. Í sumar var hann markmannsþjálfari hjá meistaraflokki karla. Þess má einnig geta að Dóri þjálfaði meistaraflokk kvenna 2009. Við bjóðum Dóra velkominn til starfa.

14.10.2010 | Handbolti

FH - Selfoss í beinni á Sporttv.is

Tvö af skemmtilegustu handboltaliðum landsins, FH og Selfoss, eigast við í beinni útsendingu hér á SportTv.is á fimmtudaginn klukkan 19:30 í þriðju umferð N1 deildar karla. FH hefur byrjað mótið frábærlega með tveimur stórum sigrum, á Aftureldingu og nágrönum sínum í Haukum. Selfoss sýndi styrk sinn í annarri umferð með frábærum sigri á Val í æsispennandi leik.

14.10.2010 | Handboltaakademía

2.flokkur hefur leikiđ tvo leiki

A lið 2.flokks tapaði í vikunni gegn FH í fremur slökum leik þar sem okkar menn sáu aldrei til sólar. Mikið var um forföll í liði Selfoss í leiknum vegna meiðsla og annarra mála. Hálfleikstölur 14-10 fyrir heimamenn og lokatölur 28-23.

B liðið vann svo Fjölni á útivelli 31-26 eftir að Fjölnismenn leiddu 14-13 í hálfleik en okkar menn snéru dæminu við og unnu að lokum 31-26 eftir að hafa mest náð 9 marka forskoti. Athygli vakti góð frammistaða Brynjars í markinu en hann varði 24 skot og þar af 2 vítaköst. Gaman að fá hann svona ferskan inn. Bæði þessi lið spila svo á sunnudaginn heima gegn Val. Leikirnir eru kl 13.30 og 15.00.

14.10.2010 | Handboltaakademía

3.flokkur kominn í gang

Um síðustu helgi lék B lið 3.flokks gegn HKR-ingum í Keflavík. Þar hafðist sigur 42-11 en í hálfleik stóð 19-3. Í gær lék svo A liðið við Fram en tapaði í fremur slökum leik 23-29 eftir að í hálfleik hafi staðið 11-11.

13.10.2010 | Knattspyrna

Logi Ólafsson ráđinn ţjálfari meistaraflokks karla

Undirritun_LogiKnattspyrnudeild Umf. Selfoss tilkynnti á blaðamannafundi í dag að Logi Ólafsson hefði verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla. Skrifað var undir samning til tveggja ára. Logi lét af störfum sem þjálfari KR seinnipart sumars eftir þriggja ára dvöl í Vesturbænum. Logi á langa reynsu að baki sem þjálfari. Hann hefur m.a. stýrt karla- og kvennalandsliðum Íslands, auk þess sem hann þjálfaði Víking, ÍA og FH. Tvö fyrr nefndu félögin gerði hann að Íslandsmeisturum.

13.10.2010 | Handbolti

4. flokkur međ sigur í fyrsta leik

4. flokkur karla lék sinn fyrsta leik um helgina. Leikurinn var í Vallaskóla gegn Stjörnunni en Selfoss gerði jafntefli við sama lið í forkeppninni vetrarins sem var haldin á dögunum. Selfyssingar voru smá stund í gang en voru mun betri aðilinn eftir því sem á leið. Staðan var 10-10 í hálfleik og unnu okkar menn svo 23-21 sigur að lokum.

13.10.2010 | Knattspyrna

Nýr ţjálfari meistaraflokks karla kynntur í hádeginu í dag

Lógó SelfossKnattspyrnudeild Umf. Selfoss hefur boðað til blaðamannafundar í dag miðvikudaginn 13. október kl. 13.00. Fundurinn verður haldinn í Set hf. Eyravegi 41, Selfossi. Á fundinum verður tilkynnt hver verður næsti þjálfari Selfoss og spurningum blaðamanna svarað. Að sjálfsögðu verða einnig léttar veitingar í boði. Nánari upplýsingar gefur Tómas í síma 699-0660.

12.10.2010 | Knattspyrna

Björn Kristinn ráđinn ţjálfari meistaraflokks kvenna

undirritun_kvenna_2010Meistaraflokksráð kvenna gekk sl. laugardag frá ráðningu nýs þjálfara er skrifað var undir samning við Björn Kristinn Björnsson. Björn Kristinn hefur mikla reynsu af þjálfun. Hann þjálfaði úrvalsdeildarlið Fylkis í fjögur ár en hætti með liðið í haust þegar samningur hans við félagið rann út. Áður hafði hann verið aðstoðarþjálfari hjá Breiðabliki í tvö ár. Þar áður starfaði hann á Akureyri og þjálfaði flesta flokka KA. Hann var m.a. yfirþjálfari yngri flokka. Vonandi nýtist reynsla Björns Kristins til að koma liði Selfoss í efstu deild. Undanfarin tvö ár höfum við verið hársbreidd frá því að fara upp.

11.10.2010 | Handbolti

Myndir af fyrsta heimaleiknum

Selfoss sigraði Val í fyrsta heimaleik liðsins í N1-deildinni að viðstöddum um 500 áhorfendum. Hermann Snorri Hoffritz ungur og efnilegur ljósmyndari tók myndir af þessum fyrsta heimaleik Selfoss s.l. fimtudag. Myndirnar má nálgast á heimasíðu Hermanns http://www.flickr.com/photos/hermann-e-520/

11.10.2010 | Júdó

Júdódeild Umf. Selfoss útnefnd fyrirmyndardeild

judo_fyrirmyndardeildJúdódeild Umf. Selfoss fékk afhenta viðurkenningu sem fyrirmyndardeild ÍSÍ sl. laugardag. Þórdís Rakel Hansen, formaður deildarinnar, tók við viðurkenningunni frá Sigríði Jónsdóttur, formanni fræðslusviðs ÍSÍ. Júdódeildin er sjöunda deildin innan Ungmennafélags Selfoss sem hlýtur þessa viðurkenningu.

8.10.2010 | Nýjustu fréttir

Ţjálfarastig 1 og 2 - almennur hluti í fjarnámi

Skráning stendur nú yfir í fjarnám 1. stigs almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ. Skráningin er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 og stendur hún yfir til 8. október, en námið hefst þann 11. október. Námið er öllum opið, 16 ára og eldri og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Þetta fjarnám hefur verið afar vinsælt til langs tíma og hafa nemendur verið búsettir vítt og breytt um landið. Námið er allt í fjarnámi, það eru engar staðbundnar lotur. Nemendur leysa verkefni og taka krossapróf á vefsvæði námsins sem vistað er hjá Keili í Reykjanesbæ.

8.10.2010 | Handbolti

Selfoss fékk Víking 2 í 32-liđa úrslitum Eimskipsbikarsins

eimskipsbikarinnÍ hádeginu í dag var dregið í 32-liða úrslit í Eimskipsbikarnum. Selfyssingar fengu Víking 2 og fara því í Víkina 17. eða 18. októmer n.k. Tvö úrvalsdeildarlið drógust saman, en það voru HK og Akureyri. Haukar og Valur sitja hjá. Annars var drátturinn eftirfarandi.

7.10.2010 | Nýjustu fréttir

Mikil gróska í starfi taekwondodeildar Umf. Selfoss

Taekwondomot_019Mikil gróska er í starfi taekwondodeildarinnar á Selfossi. Svo mikil gróska er í starfinu að nýliðun í deildinni er orðin að vandamáli. Núverandi húsnæði deildarinnar í Gagnheiði er bæði orðið of lítið og einnig er ekki hægt að vera með réttar dýnur á gólfinu, sem kemur sér afar illa fyrir iðkendur, þar sem húsnæðið er samnýtt með júdódeild Umf. Selfoss, sem notar þykkari dýnur. Einnig er aðstaðan algerlega óviðunnandi m.a. vegna þess að fjöldi þeirra sem æfa á Selfossi orðinn svo mikill og því mjög þröngt er um fólk. Þá er búningaaðstaða óviðunnandi. T.d. er bara ein heimilissturta í kvennaklefa.

7.10.2010 | Handbolti

Mjaltavélin dćlir á fullu í kvöld

hand-boltamynd2Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni er verið að starta Mjaltavélinni, stuðningsmannaklúbbi handboltans, um þessar mundir. Hægt er að ganga í klúbbinn hjá Gylfa í Flügger búðinni eða í anddyri Vallaskóla fyrir leikinn í kvöld, ef fólk er tímanlega á ferðinni. Við undirritun fær fólk félagsskírteini sem gildir á alla heimaleiki. Svo má að sjálfsögðu ekki gleyma því að fyrsti heimaleikur Selfoss í N1 deildinni er í kvöld kl. 19:30 gegn Val.

7.10.2010 | Knattspyrna

Sindri Rúnarsson kominn í u-17 ára landsliđshóp

Sindri Rúnarsson var á dögunum valinn til æfinga með u-17 ára landsliði Íslands. Sindri sem er miðjumaður og spilar með 3. flokki Selfoss er vel að valinu kominn, enda stóð hann sig frábærlega á úrtaksæfingum í haust. Æfingar verða í Kórnum n.k. laugardag og sunnudag. Þjálfari hjá u-17 ára landsliðinu er Gunnar Guðmundsson.

7.10.2010 | Knattspyrna

Jón Dađi og Gummi ćfa međ u-19 ára landsliđinu

Þeir Jón Daði Böðvarsson og Guðmundur Þórarinsson æfa þessa dagana með u-19 ára landsliði Íslands í knattspyrnu. Flestar æfingarnar fara fram í Kórnum í Kópavogi, en landsliðið er að undirbúa sig fyrir undanriðil Evrópumótsins í knattspyrnu sem fram fer seinna í mánuðinum. Báðir Selfyssingarnir spiluðu æfingaleiki gegn N-Írum í síðasta mánuði sem var hluti af undirbúningnum nú. Þjálfari strákanna hjá landsliðinu er Kristinn Rúnar Jónsson.

6.10.2010 | Júdó

Haustmót JSÍ verđur á laugardaginn í Iđu

Haustmót JSÍ verður haldið í íþróttahúsinu Iðu laugardaginn 9. október. Mótið er fyrir fullorðna,15 ára og eldri (f. 1995 og fyrr). Mótið hefst kl. 11:00. Nánari tímasetningar verða tilkynntar að loknum skráningarfresti. Vigtun verður á mótsstað á keppnisdegi frá kl. 9:00-9:30. Nánari upplýsingar um mótið eru á heimasíðu Júdósambandsins http://www.jsi.is/.

6.10.2010 | Nýjustu fréttir

Fjarnám 1. stigs ţjálfaramenntunar ÍSÍ

ÍSÍ_merkiSkráning í fjarnám 1. stigs almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ stendur nú yfir en skráningunni lýkur nk. föstudag, 8. okt. og hefst námið mánudaginn 11. okt.  Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000.  Fjarnám 1. stigs samsvarar ÍÞF 1024 og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.  Þátttaka er öllum heimil 16 ára og eldri.  Allar frekari uppl. gefur sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is

5.10.2010 | Knattspyrna

Tvö KSÍ II ţjálfaranámskeiđ á nćstu vikum

KSÍ_merkiKnattspyrnusamband Íslands mun á næstu vikum halda tvö KSÍ II þjálfaranámskeið á höfuðborgarsvæðinu. Annars vegar er um að ræða námskeið sem haldið verður helgina 15.-17. október og hins vegar 22.-24. október. Þátttökurétt hafa allir þeir sem hafa 1. stigs þjálfararéttindi. Námskeiðin eru haldin í Fræðslusetri KSÍ í Laugardal (bóklegir tímar) og í knattspyrnuhúsinu Kórnum í Kópavogi (verklegir tímar).

5.10.2010 | Handbolti

Samfélag í nýjan búning

samfelag_buning_2010_3Samfélag í nýjan búning er yfirskrift nýrrar stefnu sem Landsbankinn hefur sett sér um stuðning bankans við íþróttafélög. Landsbankinn styrkir íþróttafélög um land allt og markmiðið er að tengja saman stuðning bankans við íþróttir og mannúðarmál. Í vikunni kynnti bankinn samstarfsaðila sína en á meðal þeirra er handknattleiksdeild Umf. Selfoss. Landsbankinn og handknattleiksdeildin styðja saman Einstök börn og keppnisbúningar Selfoss verða merktir málefninu.

4.10.2010 | Fimleikar

Eva og Hrafnhildur keppa međ unglingalandsliđi Íslands í hópfimleikum á EM 2010

eva_og_hrafnhildur_oktÞær Eva Grímsdóttir og Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir voru valdar úr hópi 50 stúlkna á aldrinum 13 til 17 ára til að keppa með fyrsta landsliði Íslendinga í hópfimleikum í yngri flokki á 8. Evrópumótinu í hópfimleikum en mótið verður haldið í Malmö í Svíþjóð 21.- 23. október nk. Eva og Hrafnhildur Hanna, sem eru nemendur í 10. bekk Sunnulækjarskóla á Selfossi, hafa verið í unglingaflokki fimleikadeildar Umf. Selfoss, HM2, og verið lykilmenn með sínu liði.

30.9.2010 | Handbolti

Kökubasar 5. flokks karla í Kjarnanum á morgun föstudag

Lógó SelfossStrákarnir á eldra ári í 5. flokki í handbolta verða með kökubasar í Kjarnanum á morgun föstudag 1. október frá kl. 13:00. Strákarnir eru að safna vegna ferðar til Vestmannaeyja um miðjan mánuðinn. Nú er um að gera að drífa sig og kaupa eitthvað gott bakkelsi og styrkja strákana í leiðinni.

30.9.2010 | Frálsíţróttir

Fjórtán unglingar úr keppnisliđi HSK/Selfoss í úrvalshópi FRÍ

Fjórtán  ungmenni úr keppnisliði HSK/Selfoss náðu þeim frábæra árangri að ná lágmörkum í úrvalshóp Frjálsíþróttasambands Íslands. Frjálsíþróttasambandið gefur út ákveðin lágmörk sem ungmennin þurfa að ná til að vera valin í hópinn. Næsta verkefni verða æfingabúðir í október.

30.9.2010 | Knattspyrna

Strákar og stelpur fá sömu tćkifćri á Selfossi

selfoss-3-395Umræður um jafnrétti kynjanna eru stöðugt í gangi í þjóðfélaginu og er það vel. Um daginn var frétt í Ríkissjónvarpinu um æfingatíma drengja og stúlkna í 5. flokki í knattspyrnu. Þar var látið í veðri vaka að stelpur fengju ekki sömu tækifæri og strákar, færri æfingatíma og lakari þjálfara. Þessar fullyrðingar eiga engan veginn við um knattspyrnudeild Umf. Selfoss.

29.9.2010 | Handbolti

Magnađ ađ verđa Íslandsmeistari 2006

Björgvin Þór BjörgvinssonÁ morgun byrjar Íslandsmótið í N1 deildinni handboltanum hjá strákunum þegar þeir mæta Fram á útivelli. Í tilefni af því ákvað heimasíðan að taka viðtal við Björgvin Þór Björgvinsson aðstoðarþjálfara liðsins. Björgvin átti mjög farsælan feril sem leikmaður með Breiðabliki, KA, Fram og íslenska landsliðinu. Hann spilaði með Sebatian í 5 ár hjá Fram og þekkjast þeir því mjög vel.

28.9.2010 | Fimleikar

Sýning landsliđa Íslands í fimleikum á laugardag

Keyrslumót fyrir Evrópumótið í hópfimleikum 2010 og heimsmeistaramótið í áhaldafimleikum 2010 fer fram í Ásgarði á laugardaginn.  Veislan hefst klukkan 17:30.  Liðin fjögur sem eru á leiðinni á EM í Malmö eftir þrjár vikur keyra æfingar sínar í gegn en einnig munu stelpur í landsliði Íslands í áhaldafimleikum keyra sínar æfingar á áhöldum. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta og hvetja okkar frábæra fimleikafólk.

 

27.9.2010 | Nýjustu fréttir

Sögunámskeiđ á 100 ára afmćlisári HSK

HSK_merkiFræðslunet Suðurlands í samvinnu við HSK mun halda námskeið um ungmennafélagshreyfinguna á Suðurlandi í 100 ár á átta kvöldum í október og nóvember í Iðu á Selfossi. Námskeiðið fer fram á mánudagskvöldum kl. 19:30 - 21:40.

27.9.2010 | Knattspyrna

Glćsilegur 5:2 sigur á Grindvíkingum í lokaleiknum

Pepsi-deild hvítt landSelfoss og Grindavík áttust við í lokaleik Pepsi-deildrinnar s.l. laugardag á Selfossi í roki og ringningu. Leikurinn skipti litlu máli því Selfoss var fallið og Grindavík uppi. Selfyssingar buðu að þessu sinni upp á öflugan sóknarleik og unnu glæsilegan 5:2 sigur.

24.9.2010 | Knattspyrna

Selfoss - Grindavík á laugardag kl. 14.00

Pepsi-deild blátt landNæsti leikur Selfyssinga í efstu deild er gegn Grindavík og hefst hann kl. 14.00 laugardaginn 25. september. Þetta er síðasti leikur liðanna í Pepsídeildinni og jafnframt síðasti leikur Selfyssinga í efstu deild í bili. Tímabilið fór ekki eins og menn vonuðu, en fór þó kannski eins og einhverjir höfðu varað við. Það skiptir samt ekki öllu máli eins og flestir gera sér grein fyrir. Hér á Selfossi er ekki tjaldað til einnar nætur, heldur til frambúðar og er raunhæft markmið næstu 15-20 árin að hoppa á milli tveggja efstu deilda. Nokkur mjög sterk lið á landsvísu eru enn í þeim flokki og ágætt að benda þeim sem héldu að Selfyssingar færu ekki niður aftur á það að tvö bestu lið landsins Breiðablik og FH urðu 1. deildarmeistarar 2000 og 2005, en eru nú loksins komin með þannig lið, að langt er í að þau falli aftur eftir að þau hafa verið á rokki á milli deilda í áratugi.

23.9.2010 | Knattspyrna

Fjölmenn uppskeruhátíđ yngri flokka Selfoss

Uppskeruhátíð yngri flokka knattspyrnudeildar Umf. Selfoss var haldin í Iðu s.l. laugardag. Þar var farið yfir sumarstarfið og veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur í öllum flokkum. Yngstu krakkarnir í 7. og 8. flokki fengu auk þess gefins Selfossbol. Á eftir voru veglegar kaffiveitingar.

23.9.2010 | Nýjustu fréttir

Hćgt ađ skođa bókanir í Tíbrá á heimasíđunni

Nú hefur verið settur upp tengill á heimasíðu Selfoss þar sem má sjá bókanir á sölum í félagsheimillinu Tíbrá. Tengillinn er á forsíðunni neðst í efnisyfirlitinu vinstra megin undir heitinu Tíbrá bókanir. Þeir sem vilja bóka salinn eru beðnir að senda póst á Örn framkvæmdastjóra (umfs@umfs.is) eða slá á þráðinn í síma 482 2477. Dagbókin verður áfram í anddyri Tíbrár, a.m.k. fyrst um sinn, og hægt að skrá sig þar líka. 

22.9.2010 | Knattspyrna

Gumma međ tvćr ţrennur í tveimur landsleikjum

Guðmunda_Brynja_2010Guðmunda Brynja Óladóttir hefur verið að standa sig mjög vel með u-17 ára landsliði Íslands sem nú keppir í undankeppni fyrir Evrópumótið í knattspyrnu 2011. Keppnin er haldin í Búlgaríu og eru íslensku stelpurnar í riðli með Litháen, Búlgaríu og Ítalíu. Gumma hefur farið á kostum og má lesa um það hér að neðan.

22.9.2010 | Knattspyrna

Ţjálfaranámskeiđ hjá KSÍ

KSÍ_merkiKnattspyrnusamband Íslands mun á næstu vikum halda tvö 1. stigs þjálfaranámskeið. Annars vegar er um að ræða námskeið sem haldið verður helgina 1.-3. október og hins vegar námskeið sem haldið verður helgina 8.-10. október. Bókleg kennsla fer fram í fræðslusetri KSÍ og verkleg kennsla í knattspyrnuhúsinu Kórnum í Kópavogi. Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á dagur@ksi.is eða með því að hringja í síma 510-2977.

21.9.2010 | Knattspyrna

Knattspyrnuslúttiđ á laugardaginn í Hvíta húsinu

Lógó SelfossLokahóf meistaraflokks og 2. flokks karla og kvenna verður haldið í Hvíta húsinu laugardagskvöldið 25. september. Allir knattspyrnuáhugamenn eru hvattir til að mæta og enda einstakt fótboltasumar saman. Forsala miða er í Blómavali Selfossi. Sjá nánar.

20.9.2010 | Handbolti

4. flokkur spilar í 1. deild í vetur (međ mynd)

4. flokkur karla tryggði sér um helgina sæti í 1. deild (efri deild) á Íslandsmótinu í vetur þegar liðið vann þrjá leiki og gerði eitt jafntefli í fjórum leikjum í svokallaðri forkeppni fyrir veturinn. Selfoss vann því þennan riðil forkeppninnar.

18.9.2010 | Knattspyrna

Breiđablik - Selfoss kl. 17.00 á sunnudag

Selfoss mætir Breiðabliki í 21. umferð Pepsí-deildarinnar í knattspyrnu sunnudaginn 19. sept kl. 17.00 á Kópavogsvelli. Stöð 2 sport sýnir að sjálfsögðu þennan leik í beinni útsendingu að ósk áskrifenda og er þetta því þriðja beina útsendingin í röð frá leikjum Selfoss. Það er þó engin afsökun fyrir Selfyssinga að mæta ekki á völlinn, heldur er þetta einungis auka þjónusta fyrir þá sem vilja greina leikinn í ró og næði yfir endursýningu seinna um kvöldið.

18.9.2010 | Taekwondó

Chloe og Grace Bruce koma til Íslands

Systurnar Grace og Chloe Bruce, sem eru heimsklassa bardagalistakonur, verða með æfingabúðir og sýningar á Selfossi og í Reykjavík í september. Systurnar eru meðlimir Team Fusion og margfaldir meistarar í formkeppni ásamt því að vera áhættuleikarar í Hollywood.

18.9.2010 | Handbolti

Forkeppni hjá 4. flokki

4. flokkur karla hefur leik um helgina en þá leikur liðið í forkeppni um í hvaða deild Selfoss verður í þennan veturinn. Mikið hefur verið í gangi hjá flokknum hingað til og nokkuð síðan æfingar hófust, en flokkurinn fór t.d. í æfingaferð til Vestmannaeyja fyrir skömmu.

15.9.2010 | Knattspyrna

Selfoss - ÍBV kl. 17.15 á fimmtudag

Pepsi-deild blátt landNæsti leikur Selfyssinga er alvöru derbyleikur, en þá mæta Selfyssingar ÍBV á aðalvellinum á Selfossi. Leikurinn er á fimmtudag og hefst kl. 17.15. Bæði lið þurfa þrjú stig. Hvort sem Eyjamenn koma í gegnum Bakkafjöru eða Þorlákshöfn er ljóst þeir verða teknir föstum tökum. Leikurinn verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu. Áhorfendur Stöðvar 2 sport einfaldlega krefjast þess að fá að sjá leiki Selfoss í hverri viku.

15.9.2010 | Knattspyrna

Uppskeruhátíđ yngri flokka í knattspyrnu verđur á laugardaginn

Uppskeruhátíð yngri flokka knattspyrnudeildar Umf. Selfoss verður haldin laugardaginn 18. september næstkomandi kl. 14:00 í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands. Þar verður m.a. farið yfir árangur sumarsins og veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur. Á eftir verða kaffiveitingar. Iðkendur og foreldrar eru eindregið hvattir til að mæta.

15.9.2010 | Handbolti

Mjaltavélin endurrćst

hand-boltamynd2Margir muna eftir "Mjaltavélinni", stuðningsmannaklúbbi meistaraflokks, sem var svo öflug á árum áður. Nú hefur verið ákveðið að endurræsa hana og gera hana enn þá afkastarmeiri og flottari í samræmi við stöðu liðsins í íslenskum handknattleik.

14.9.2010 | Knattspyrna

Selfoss Íslandsmeistari í 3. flokki kvenna

selfoss-3-524Selfyssingar urðu um helgina Íslandsmeistarar í 3. flokki kvenna í knattspyrnu. Þær unnu Val í úrslitaleiknum 2-0, en leikurinn fór fram á aðalvellinum á Selfossi. Fyrir leikinn var ljóst að um tvö bestu lið landsins væri að ræða, þar sem Selfyssingar hafa ekki tapað leik í sumar og Valsstúlkur ekki tapað leik í 2 ár, eða síðan 2008. Mörk Selfoss í leiknum skoruðu þær Kristín Elísabet Skúladóttir og Bríet Mörk Ómarsdóttir.

14.9.2010 | Fimleikar

Brenniboltamót í Baulu á laugardaginn eftir hádegi

Brenniboltamót meistarahóps Selfoss í fimleikum verður í Baulu laugardaginn 18. sept. Keppt er í sjö manna liðum og eru þátttökugjöld 1.000 kr. á mann. Sigurvegarar keppa við Evrópumótsfara í hópfimleikum. Skráning er í fullum gangi á siggaosk@visir.is. Mikil stemming myndaðist á síðustu brenniboltakeppni, en heyrst hefur að sigurvegarar þess móts þori ekki aftur til leiks. Brennibolti hentar öllum og er skemmtilegt að smala í lið já vinahópum og vinnustöðum. 

13.9.2010 | Fimleikar

Kökubasar í Kjarnanum á föstudag

Kökubasar verður í Kjarnanum föstudaginn 17. september nk. frá kl. 16. Allur ágóði rennur til Evrópumótsfara frá fimleikadeild Umf. Selfoss.

12.9.2010 | Taekwondó

Taekwondoćfingar á Stokkseyri

Æfingar á vegum taekwondodeildar Umf. Selfoss eru hafnar á Stokkseyri. Æfingarnar eru á miðvikudögum kl. 19:00, fimmtudögum kl. 17:00 og sunnudögum kl. 17:00. Allir velkomnir.

11.9.2010 | Knattspyrna

FH-Selfoss á sunnudag kl 17.30

Það er eins og flestir vita brött  brekka framundan hjá Selfyssingum, því í næstu þrem leikjum eiga þeir að spila við þrjú efstu liðin. En það skiptir ekki öllu máli, því eins og allir vita, þá gefast Selfyssingar aldrei upp!! Það hafa þeir sýnt og munu sýna. Næsti leikur er gegn núverandi  Íslands- og bikarmeisturum FH og fer fram sunnudaginn 12. september kl 17.30 í Hafnarfirði. Leikurinn verður sýndur beint á stöð 2 sport og væntanlega endursýndur seinna um kvöldið fyrir þá sem fara á leikinn.

10.9.2010 | Knattspyrna

Guđmunda Brynja međ U17 landsliđinu í Búlgaríu

KSI_logoGuðmunda Brynja Óladóttir hefur verið valin í 18 manna í landsliðshóp KSÍ sem tekur þátt í forkeppni EM U17 2011. Riðill Íslands verður leikinn í september í Búlgaríu og verða mótherjarnir, auk Búlgaríu, Litháen og Ítalía. Fyrsti leikur Íslands er mánudaginn 20. september gegn Litháen.

10.9.2010 | Knattspyrna

Stelpurnar í 3. flokki komust í úrslitaleikinn á Íslandsmótinu

Það er ekki bara meistaraflokkur kvenna sem hefur verið að gera mjög góða hluti í sumar. Gaman er að geta þess að 3. flokkur kvenna er hreinlega kominn í úrslit á Íslandsmótinu eftir flottan 3-1 sigur á Stjörnunni í undanúrslitum. Úrslitaleikurinn er á laugardaginn kl. 12:00 á hlutlausum velli í höfuðborginni. Andstæðingarnir eru auðvitað Valsmenn sem rétt mörðu andstæðinga sína frá Grindavík 12-0 í hinum undanúrslitaleiknum!

10.9.2010 | Knattspyrna

Selfoss og KR skyldu jöfn í ćfingaleik á Selfossi

Selfyssingar spiluðu æfingaleik við KR-inga s.l. miðvikudag og endaði sá leikur með nokkuð sanngjörnu jafntefli 2-2. Leikurinn var ágætlega leikinn og voru Selfyssingar ekki síðri í leiknum. Oft á tíðum sást skemmtilegt spil hjá þeim. Hér að neðan er stutt umfjöllun um leikinn.

9.9.2010 | Knattspyrna

Stelpurnar í 7. flokki unnu á Fossvogsmótinu

fotb_7kv_136Stelpurnar í 7. flokki kvenna gerðu sér lítið fyrir og unnu árlegt Fossvogsmót sem haldið er af HK í Kópavogi. Stelpurnar sem eru 8 ára gamlar hafa margar æft knattspyrnu lengi og sýna orðið flotta takta og gott spil og því var sigurinn sanngjarnt hjá þessum ungu knattpyrnukonum. Yfir 20 stelpur hafa verið að æfa fótbolta í sumar.

9.9.2010 | Knattspyrna

Fínn árangur hjá stelpunum í 6. flokki í sumar

fotb_hk_mot_7kvStelpurnar í 6. flokki B náðu þeim fína árangri á dögunum að lenda í öðru sæti á Íslandsmótinu. Þær byrjuðu á því að vinna sinn riðill sem spilaður var fyrr í sumar. Eftir það lá leiðin í úrslit og þar gekk þeim mjög vel. Þær unnu alla sína leiki nema sjálfan úrslitaleikinn, en þá spiluðu þær við stelpurnar í Grindavík og töpuðu naumlega 2-1 í skemmtilegum leik. Flottur árangur hjá þessum efnilegu stelpum sem allar voru á yngra ári í 6. flokki í sumar.

8.9.2010 | Frálsíţróttir

Landsbankinn styrkir frjálsar og Brúarhlaup Selfoss

Undirskrift frjálsar Landsbankinn 2010Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss, eigandi og framkvæmdaraðili Brúarhlaups Selfoss, og Landsbankinn, undirrituðu nýverið samstarfssamning í tengslum við Brúarhlaup Selfoss. Í samstarfinu felst m.a. að Landsbankinn verður aðal styrktar- og stuðningsaðili hlaupsins. Að sögn Helga S. Haraldssonar, formanns frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss, skiptir þessi samningur miklu máli fyrir Brúarhlaup Selfoss og framkvæmd þess og styrkir frjálsíþróttadeildina við undirbúning og framkvæmd hlaupsins. 

7.9.2010 | Nýjustu fréttir

Heiđursáskriftarsöfnun vegna útgáfu á 100 ára sögu HSK stendur yfir

Héraðssambandið Skarphéðinn fagnar 100 ára afmæli í ár og í haust mun koma út glæsileg 500 blaðsíðna bók um sögu sambandsins. Ákveðið hefur verið að hafa lista í bókinni yfir einstaklinga og fyrirtæki sem kaupa bókina í svokallaðri heiðursáskrift og hafa þegar um 200 einstaklingar ákveðið að kaupa bókina í heiðursáskrift. Áhugasamir geta haft samband við Engilbert á skrifstofu HSK í síma 482 1189 eða sent tölvupóst á hsk@hsk.is

6.9.2010 | Frálsíţróttir

Yfir 500 manns tóku ţátt í Brúarhlaupinu

Brúarhlaup Selfoss fór fram í 20. skipti s.l. laugardag. Þátttaka var mjög góð, en 510 einstaklingar skiluðu sér í mark. Björn Margeirsson sigraði í hálfmaraþoni á 1:14:31 klst., Tómas Zoëga Geirsson í 10 km hlaupi á 35:03 mín., Reynir Zoëga Geirsson, í 5 km hlaupi á 19:25 mín. og Jökull Hermannsson í 2,5 km hlaupi á 9:45 mín. Victor Gunnarsson sigraði í 5 km hjólreiðum á 8:19 mín. Önnur úrslit eru hér á síðunni.

6.9.2010 | Handboltaakademía

Leikmannakynning: Guđjón Finnur Drengsson

Guðjón DrengssonÍ tilefni af því að fyrsta æfingamóti tímabilsins er lokið ákvað heimasíðan að rekja garnirnar úr "nýliðanum" í Selfossliðinu Guðjóni Finni Drengssyni. Guðjón stóð sig feykivel í sínum fyrstu leikjum með liðinu og endaði sem markahæsti leikmaður liðsins á mótinu með 23 mörk.

6.9.2010 | Handboltaakademía

Verđlaunaafhending Ragnarsmótisns

Lokastaðan í mótinu varð sú að Selfoss varð í 1. sæti, Haukar í 2. sæti, HK í 3. sæti, Fram í 4. sæti, FH í 5. sæti og Valur rak lestina í 6. sæti. Þá voru í mótslok veitt verðlaun fyrir einstaklingsframtak í mótinu og voru það SportTv menn sem skipuðu dómnefndina annað árið í röð. Niðurstaðan var eftirfarandi..

6.9.2010 | Handboltaakademía

Úrslit á Ragnarsmótinu

21. Ragnarsmótinu lauk á laugardaginn með þremur leikjum. FH vann Val í leik um 5. sætið. HK vann Fram í leik um 3. sætið og Selfoss vann Hauka í leik um 1. sætið. Að úrlsitaleiknum loknum var verðlaunaafhending liða og einstakra leikmanna. Þetta er aðeins í annað skipti sem Selfoss vinnur mótið, en það gerðist síðast 1990.

6.9.2010 | Handboltaakademía

Einar Guđmunds međ fyrirlestur fyrir Norđmenn

eg_fyrirlesturÍ tengslum við landsleik Íslands og Noregs í knattspyrnu, sem fram fór í síðustu viku, voru staddir hér á landi forráðamenn Norsk toppfotballsenter. Þeir leituðu til Handknattleikssambands Íslands og vildu fá að kynna sér þjálfunaraðferðir okkar í handbolta. Voru þeir mjög áhugasamir um að vita hvernir stæði á því að þessi litla þjóð gæti verið í fremstu röð í heiminum í handbolta, bæði í A-landsliði og unglingalandsliðum. Leitað var til Einars Guðmundssonar, unglingalandsliðsþjálfari, og hélt hann tveggja tíma fyrirlestur fyrir norðmennina með umræðum á eftir. Í fyrirlestrinum fór Einar yfir það hvers vegna Íslendingar framleiddu svona góða handboltamenn ár eftir ár og hvernig hann sæi þetta sem unglingalandsliðsþjálfari.

5.9.2010 | Knattspyrna

Ćfingar yngri flokka í fótbolta hefjast 6. september

Flokkaskipti hafa átt sér stað hjá knattspyrnudeild þar sem eldri árgangar færast upp um flokk. Æfingar hefjast af fullum krafti mánudaginn 6. september. Hér að neðan eru upplýsingar um þjálfara og æfingatíma allra yngri flokka.

3.9.2010 | Handboltaakademía

Úrslit í riđlunum og leikir um sćti á morgun

Í kvöld lauk riðlakeppninni á Ragnarsmótinu með leikjum Selfoss og FH og svo leik Vals og Fram. Það er ljóst eftir kvöldið að Selfoss spilar á morgun til úrslita við Hauka kl. 16:00. HK og Fram mætast kl. 14:00 í leik um 3 sætið og kl. 12:00 spila FH og Valur um 5 sætið. Við hvetjum alla til þess að líta við á morgun. Úrslit kvöldsins voru..

3.9.2010 | Handboltaakademía

Mikilvćg leiđrétting

hand-boltamynd2Í sumum miðlum hefur dagskrá laugardagsins á Ragnarsmótinu verið birt þannig að leikirnir um sæti séu kl. 12, 16 og 18 sem er því miður ekki rétt. Hið RÉTTA er að leikurinn um 5. sætið er kl. 12:00. Leikurinn um 3. sætið er kl. 14:00 og úrslitaleikurinn er kl. 16:00. Beðist er velvirðingar á því ef að þessi miskilningur hefur valdið vandræðum.

3.9.2010 | Handboltaakademía

Úrslit á öđrum degi Ragnarsmótsins

Lógó SelfossÍ gær áttust við HK og Selfoss annars vegar og Haukar og Valur hins vegar. Selfoss vann nauman 1 marks sigur í spennandi leik og Haukar unnu þægilegan sigur annan leikinn í röð og ljóst að þeir spila til úrslita á morgun. Það sem af er mótsins þá virka Haukarnir bestir og verða greinilega ógnarsterkir í vetur.

3.9.2010 | Taekwondó

Chloe Bruce sýnir bardagalistir í Iđu 18. september

Chloe Bruce myndÞann 18. september kemur á Selfoss þekkt bandarísk kona, Chloe Bruce að nafni, og verður með sýningu í Iðu ásamt systur sinni í ýmsum bardagalistum. Hún verður m.a. með teygjuæfingar, sýningu, parkour, tricking, fimleika og freestyle. Chloe kemur hingað í tengslum við taekwondodeild Umf. Selfoss. Hér má lesa meira um Chloe.

2.9.2010 | Frálsíţróttir

Sumarmót frjálsíţróttadeildar Selfoss

Sumarmót_2010Sumarmót Umf. Selfoss í frjálsum fyrir 11 ára og yngri fór fram í Þorlákshöfn fimmtudaginn 12. ágúst. Iðkendur frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss, sem koma víðs vegar af Suðurlandi, mættu fíldjarfir til leiks ásamt nokkrum krökkum frá Þorlákshöfn enda var mótið opið öllum. Mótið var það síðasta í sumar hjá þessum aldursflokkum og ríkti góð stemming á meðal keppenda. Rúmlega 20 krakkar mættu til leiks og stóðu sig með mikilli prýði.

2.9.2010 | Handboltaakademía

Úrslit á Ragnarsmótinu í gćr

Tveir leikir fóru fram í gærkvöldi á Ragnarsmótinu. Fyrst mættust FH og HK og strax á eftir mættust Haukar og Fram. Úrslit og markaskorarar í meira..

2.9.2010 | Sund

Sundnámskeiđ ađ hefjast

Sundskoli_2008Sundæfingar og sundnámskeið hefjast núna í byrjun september. Þeir foreldrar sem vilja að börnin festi sundkunnáttu sína fyrir lífstíð býðst að koma með börnin í hóp á mánudögum og miðvikudögum kl.15:45. Kennslan er beint framhald af námskeiðunum sem haldin hafa verið.

1.9.2010 | Fimleikar

Íţróttaskólinn hjá fimleikadeild hefst á laugardaginn

Útifimleikar_2010Íþróttaskóli fimleikadeildar Selfoss hefst á laugardaginn 4. september. Íþróttaskólinn er fyrir börn fædd 2006-2008. Um er að ræða 10 skipta námskeið og eru yngri börnin, þ.e.  börn fædd 2008 og seinni hluta árs 2007, kl. 10:00-10:50, en eldri börnin, þ.e. börn sem eru fædd fyrri hluta 2007 og 2006, í seinni tímanum sem er kl. 11:00-11:50. 

1.9.2010 | Fimleikar

Hrafnhildur Hanna og Eva í unglingalandsliđ í hópfimleikum

LAndsliðskonur HAnna og EVaÞær stöllur Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Eva Grímsdóttir voru í síðustu viku valdar inn í lokahóp landsliðs Íslands í hópfimleikum 13-17 ára. Upphaflega fór átta manna hópur frá Selfossi á úrtaksæfingu í maí.  Eftir hana var valinn 23 manna hópur til æfinga í sumar og voru þrjár stelpur úr fimleikadeild Umf. Selfoss í þeim hópi sem verður að teljast glæsilegur árangur. Eftir síðustu landsliðsæfingu í ágúst var svo endanlegur hópur valinn, fjórtán stelpur. Stelpurnar sem eru 15 ára hafa staðið í ströngu til að ná þetta langt og nú taka við þrotlausar æfingar um hverja helgi þar til þær halda utan 19. október til Malmö þar sem Evrópumótið í hópfimleikum fer fram. 

 

1.9.2010 | Handboltaakademía

Ragnarsmótiđ byrjar í dag

Lógó SelfossÍ dag hefst 21. Ragnarsmótið í Vallaskóla kl. 18:30 en þá eigast við HK og FH í A riðli og strax á eftir kl. 20:00 spila Haukar og Fram. Á morgun kl. 18:30 spilar Selfoss svo sinn fyrsta opinbera leik tímabilsins gegn HK. Við hvetjum alla til þess að kíkja á mótið enda frítt er á alla leiki mótsins. VÍS styrkir mótið eins og undanfarin ár.  Það eru Selfyssingar eða leikmenn sem hafa spilað með Selfossi í öllum liðunum...

1.9.2010 | Handbolti

SportTV sýnir beint frá Ragnarsmótinu í kvöld

Nú er rétt um mánuður í að N1 deildir karla og kvenna fari af stað og líkt og í fyrra ætlar SportTV að fylgjast vel með undirbúningsmótum fyrir Íslandsmótið. Fyrsta stóra æfingamótið verður Ragnarsmótið á Selfossi en það hefst á miðvikudagskvöld og lýkur á laugardaginn. SportTV mun sýna alla leiki mótsins líkt og í fyrra þegar SportTV hóf útsendingar sýnar frá þessu sama móti.

1.9.2010 | Frálsíţróttir

Powerade íţróttadrykkur Brúarhlaupsins

Poweraid_styrkurFrjálsíþróttadeild Umf. Selfoss, eigandi og framkvæmdaaðili Brúarhlaups Selfoss, og Vífilfell, söluaðili Powerade íþróttadrykkjarins, hafa undirritað samstarfssamning til þriggja ára. Í samstarfinu felst m.a. að Powerade íþróittadrykkurinn verður íþróttadrykkur Brúarhlaupsins næstu þrjú árin. Þessi samningur skiptir miklu máli fyrir Brúarhlaup Selfoss og framkvæmd þess og styrkir frjálsíþróttadeildina við undirbúning og framkvæmd hlaupsins, að sögn Helga S. Haraldssonar, formanns frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss.

1.9.2010 | Knattspyrna

B-liđ 6. flokks Íslandsmeistari

6_flokkur_B_2010Strákarnir í b-liði 6. flokks Selfoss tóku þátt í úrslitakeppni Pollamóts KSÍ í Reykjaneshölinni í Keflavík sunnudaginn 22. ágúst s.l. Í riðlakeppninni spiluðu þeir þrjá leiki. Þeir byrjuðu á því að gera 0:0 jafntefli við Breiðablik 3, en unnu svo Reyni S. 11:0 og Fjölni 5:0. Í úrslitaleiknum léku þeir við Snæfellsnes og unnu 4:2. Þar með urðu þeir Íslandsmeistarar SV (Suðvesturland) í flokki b-liða.

31.8.2010 | Knattspyrna

Ćfingar yngri flokka í fótbolta hefjast 6. september

Flokkaskipti hafa átt sér stað hjá knattspyrnudeild þar sem eldri árgangar færast upp um flokk. Æfingar hefjast af fullum krafti mánudaginn 6. september. Æfingatímar allra flokka munu koma inn á heimasíðuna á næstunni. Hér að neðan eru æfingatímar 5., 6. og 7. fl. karla og 6. fl. kvenna.

30.8.2010 | Frálsíţróttir

Ćfingar í frjálsum hefjast mánudaginn 30. ágúst

Æfingar hjá frjálsíþróttadeild hefjast mánudaginn 30. ágúst skv. meðfylgjandi æfingatöflu. Nýir iðkendur eru boðnir velkomnir. Skráning fer fram á staðnum.

30.8.2010 | Sund

Sundćfingar hefjast miđvikudaginn 1. sept. nk.

BringusundSundæfingar hjá Sunddeildinni hefjast næst komandi miðvikudag 1. september. Iðkendum hefur þegar verið sendur tölvupóstur með æfingatöflum en þær hafa einnig verið uppfærðar hér á heimasíðunni. Æfingatöflur Sunddeildar UMFS. Nánari upplýsingar gefur Bryndís Ólafsdóttir, yfirþjálfari.

29.8.2010 | Frálsíţróttir

Thelma Björk og Jóhann bikarmeistarar

Bikarakeppni 16 ára og yngri var haldin að Laugum í Þingeyjarsýslu, sunnudaginn 22. ágúst sl. HSK sendi harðsnúið lið til keppni sem samanstóð af unglingum frá 13-16 ára. Alls tóku 10 lið þátt í mótinu. Ágætur árangur náðist í mörgum greinum þrátt fyrir töluvert votviðri. Jóhann Erlingsson frá Laugarvatni varð bikarmeistari bæði í kúluvarpi, með 14,36 m og kringlukasti með 43,52 m. Þá varð Thelma Björk Einarsdóttir frá Selfossi bikarmeistari í kúluvarpi með 11,62 m auk þess sem hún vann brons í kringlukasti.

27.8.2010 | Knattspyrna

Selfoss - Valur á mánudag kl. 18.00

Pepsi-deild blátt landÞá er komið að því að bjóða Gulla Jóns í heimsókn með lærisveina sína frá Hlíðarenda. Eins og flestir vita kom Gulli liði Selfoss upp í efstu deild í fyrra en hvarf síðan á braut og tók við Val. Þetta er því fyrsta heimsókn Gulla á Selfossvöll. Leikurinn er klukkan 18.00 mánudaginn 30. ágúst. Fyrir leik eða kl. 17.30 munu þjálfarar liðanna, þeir Guðmundur Benediktsson og Gunnlaugur Jónsson, ræða við stuðningsmenn Selfyssinga í Selinu.

25.8.2010 | Fimleikar

Fimleikar hefjast mánudaginn 30. ágúst

Fimleikar hefjast samkvæmt nýrri stundaskrá vetrarins mánudaginn 30. ágúst. Verið er að vinna úr skráningum og koma börnunum fyrir. Þeir sem eru að skrá núna í vikunni eftir að skráningarfresti lauk fara á biðlista þar sem mikil aðsókn er í deildina og plássið af skornum skammti. Póstur verður sendur á forráðamenn með æfingatímum í lok vikunnar.

24.8.2010 | Taekwondó

Ćfingar hjá taekwondodeild Selfoss hefjast föstudaginn 27. ágúst

Æfingar hjá taekwondodeild Selfoss hefjast næstkomandi föstudag 27. ágúst í íþróttahúsinu í Gagnheiði 3. Athygli er vakin á því að æfingar hefjast klukkutíma fyrr en vanalega þ.e. kl. 16:00.

24.8.2010 | Júdó

Júdóćfingar hefjast ţriđjudaginn 31. ágúst

Æfingar hjá júdódeild Umf. Selfoss hefjast samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 31. ágúst. Æfingahópar eru 6-10 ára, 11-14 ára og 15 ára og eldri. Æfingar fara fram í æfingahúsnæðinu í Gagnheiði 3. Nýir iðkendur eru alltaf velkomnir. Nánari upplýsingar veitir Bergur Pálsson yfirþjálfari í síma 862 0858. Æfingar verða sem hér segir:

23.8.2010 | Mótokross

Flottur árangur eftir sumariđ

Bolalda_2010Fimmta umferðin á Íslandsmótinu í mótokrossi fór fram í Bolöldu, rétt hjá Litlu kaffistofunni, s.l. laugardag. Rúmlega 80 keppendur voru skráðir til leiks í þessari síðustu keppni sumarsins (innan Íslandsmótsins). Nokkuð blés á keppendur og voru brautarstarfsmenn duglegir við að bleyta í brautinni til að sporna við ryki. Fjórir keppendur frá UMFS tóku þátt og gekk þeim vel þrátt fyrir ýmis óhöpp.

22.8.2010 | Handboltaakademía

Handboltaćfingar hefjast 23. ágúst

Handboltaæfingar yngri flokka hefjast í mánudaginn 23. ágúst samkvæmt töflu. Æfingataflan einnig verður hengd upp í skólum og auglýst í Dagskránni í næstu viku. Foreldrafundur verða í byrjun september og er mikilvægt að við fáum sem flesta foreldra á þann fund til að kynna starfið.

Yngriflokkaráð hefur samið við sjö aðalþjálfara sem allir hafa mikla reynslu og hafa annaðhvort íþróttakennaramenntun eða kennaramenntun. Ásamt þeim eru sex aðstoðarþjálfarar þar sem margir flokkar eru mjög fjölmennir. Þetta sem skiptir miklu máli til að halda úti hinu öfluga starfi sem verið hefur hjá deildinni undanfarin ár. Yngriflokkastarf handknattleiksdeildar hefur verið  í fremstu röð á landinu undanfarin ár og ekki er ætlunin að slaka neitt á í þeim efnum. Handknattleiksdeildin mun dagana 1.-3. apríl verða með stórt handboltamót í 7. flokki drengja og stúlkna.

Æfingatíma verða eftirfarandi :

22.8.2010 | Knattspyrna

Fram-Selfoss kl 18.00 á mánudag

Á mánudag mæta Selfyssingar í Laugardalinn og þar taka á móti þeim, á sjálfum þjóðarleikvanginum,Framarar. Fram tapaði fyrir KR í síðustu umferð á meðan Selfyssingar kenndu landsmönnum hvernig á að vígja nýja velli og unnu Keflavík 3-2 eftir að hafa verið 0-2 undir í hálfleik. Eftir þennan sigur eru Selfyssingar í 11. sæti Pepsideildar með 14 stig, en Fram er í því 8. með 20 stig. Heimasíða Selfoss vill sérstaklega benda á breyttan leiktíma vegna birtuskilyrða á norðurhveli jarðar, en nú og í næstu leikjum munu leikir hefjast kl 18.00.

19.8.2010 | Mótokross

Fjórđa umferđin í mótokrossi var á Akureyri

Fjórða umferð Íslandsmeistaramótsins í motokrossi fór fram 7. ágúst s.l. á braut KKA á Akureyri. Keppt var á einni flottustu braut Íslands og var umgjörðin í kringum keppnina alveg til fyrirmyndar. Hátt í 100 keppendur voru skráðir til leiks og átti UMFS fjóra af þeim.

19.8.2010 | Frálsíţróttir

Fjóla Signý náđi lágmarki á Norđurlandameistaramótiđ 20-22 ára

bikar_2010_337Fjóla Signý Hannesdóttir Umf. Selfoss náði þeim frábæra árangri í Bikarkeppni FRÍ að hlaupa 400m grindahlaup á tímanum 62,25 sek. Með þessum árangri náði Fjóla Signý keppnisrétti á Norðurlandameistaramót unglinga 20-22 ára sem fram fer í Svíþjóð 4.-5. September. Fjóla Signý bætti sig um rúma sekúndu í hlaupinu og fór vel undir lágmarkið sem var 63 sekúndur. Fjóla Signý stefnir að því að slá HSK-met Þuríðar Ingvarsdóttur á mótinu en til þess þarf hún að hlaupa á skemmri tíma en 61,35 sek. 

19.8.2010 | Frálsíţróttir

Ţrír keppendur HSK/Selfoss valdir í unglingalandsliđ í frjálsum

Dagur_Fannar_sleggja_10Þrír drengir úr keppnisliði HSK/Selfoss voru á dögunum valdir í unglingalandslið Íslands í frjálsum íþróttum skipað keppendum 19 ára og yngri. Þetta eru þeir Dagur Fannar Magnússon, sem var valinn í sleggjukast, Bjarni Már Ólafsson, í þrístökk, og Hreinn Heiðar Jóhannsson, sem var valinn í hástökk. Þeir munu keppa á Norðurlandameistaramótinu 19 ára og yngri sem að þessu sinni fer fram á Akureyri helgina 28.-29.ágúst.

18.8.2010 | Knattspyrna

Fréttir af fótboltapćjum í 6. og 7. flokki

Símamót_2010_076Um 50 stelpur úr 6. og 7. flokki kvenna, alls 5 lið, tóku þátt á árlegu Símamóti í júlí og stóðu sig mjög vel. Á Hnátumóti KSÍ sem haldið var í sumar unnu B liðs stelpurnar í 6. flokki sinn riðil og munu þær keppa til úrslita um helgina. Einnig fara stelpurnar í 6. og 7. flokki á HK-mótið um helgina, en mótið er haldið ár hvert, þannig að það er nóg að gera hjá fótboltastelpunum í sumar og margar stelpur að æfa.

17.8.2010 | Knattspyrna

Einhverjir klárir í smá verkefni?

Nú er verið að leggja lokahönd á frágang á nýjum keppnisvelli Selfyssinga. Stúkan er fullfrágengin eins og fyrsti áfangi gerir ráð fyrir, komin vínrauð sæti og því allt að verða klárt. Grasið er grænt sem aldrei fyrr og mun Jói merkja völlinn á morgun. Það eina sem eftir er því að finna nokkra skemmtilega gaura til að festa auglýsingaskiltinn á girðinguna umhverfis völlinn. Ekki er verra ef einhverjir eiga borvelar, en auðvitað er það ekki nauðsynlegt. Mæting er um klukkan 20.00 og verða menn enga stund að þessu ef allir úreikningar standast.

17.8.2010 | Frálsíţróttir

Glćsilegur árangur HSK-liđsins í bikarkeppni FRÍ

bikar_2010_393Frjálsíþróttlið HSK gerði frábæra ferð norður á Sauðárkrók þar sem bikarkeppni Frjálsíþróttasambandsins fór fram um liðna helgi. Miklar framfarir hafa orðið síðan í fyrra og sést það meðal annars á því að 19 persónulegar bætingar litu dagsins ljós. Eitt HSK-met var sett en það var Dagur Fannar Magnússon Selfossi sem bætti eigið sleggjukastsmet í drengjaflokki með kast upp á 41,29 m. Þá náði Fjóla Signý Hannesdóttir Selfossi lágmarki á Norðurlandamót Unglinga í 400m grindahlaupi er hún bætti sig um eina og hálfa sekúndu og kom þriðja í mark á 62,25 sek.

16.8.2010 | Fimleikar

Skráning í fimleika haust 2010

Seinni skráningardagurinn í fimleikana og Parkour fyrir haustið er fimmtudagurinn 19. ágúst. Skráning fer fram kl. 17-20 í Baulu íþróttahúsi Sunnulækjarskóla. Mikilvægt er að forráðamaður mæti með til skráningar. Einnig er hægt að staðfesta áframhaldandi iðkun á netfangið olgu@simnet.is  og munið að taka fram greiðslufyrirkomulag. Starfið hefst svo formlega mánudaginn 30.ágúst. 

16.8.2010 | Knattspyrna

Nýr ađalvöllur vígđur gegn Keflavík á fimmtudag

Pepsi-deild blátt landSelfyssingar taka á móti Keflavík í 16. umferð Íslandsmótsins á fimmtudaginn. Þetta er risa leikur fyrir Selfyssinga, því nýr og fullkominn aðalvöllur ásamt glæsilegri 750 manna áhorfendastúku verður tekinn í notkun. Er þetta fyrsti áfangi stúkubyggingarinnar. Ekki nóg með þetta allt, heldur verður þetta einnig fyrsti sjónvarpsleikur Selfyssinga. Það verður því dúndrandi partý á Selfossvell fimmtudaginn 19. ágúst og mun dómari leiksins flauta leikinn á kl 19.15.

13.8.2010 | Knattspyrna

Björn Ingi, Haukur Ingi og Sindri Rúnars valir á úrtökućfingar KSÍ

Þrír strákar úr 3. flokki Selfoss hafa verið valdir til að taka þátt í úrtökuæfingum KSÍ. Þetta eru þeir Björn Ingi Harðarson, Haukur Ingi Gunnarsson og Sindri Rúnarsson. Þeir félagar eru allir fæddir 1995 og spila því með 3. flokki. Sá flokkur hefur einungis tapað tveimur leikjum á þessu ári. Þeir unnu alla æfingaleiki og leikina í Faxaflóamótinu og eru enn ósigraðir á Íslandsmótinu. Þeir duttu síðan út í 16 liða úrslitum á Gothiacup í Svíþjóð og í bikarkeppninni eftir 0-1 tap gegn Fjölni. Æfingar fara fram á Laugarvatni dagana 20.-22. ágúst. UMFS.is óskar þeim þremenningum til hamingju með þennan árangur og óskar þeim áframhaldandi frama á knattspyrnuvellinum.

13.8.2010 | Knattspyrna

Eva Lind og Guđrún Arnardóttir valdar á úrtaksćfingar KSÍ

Þær Eva Lind Elíasdóttir og Guðrún Arnardóttir voru valdar til að taka þátt í úrtaksæfingum KSÍ. Þær eru báðar í 3. flokki Selfoss og eru fæddar 1995. Sá flokkur hefur staðið sig mjög vel í sumar og eru langefstar í sínum riðli á Íslandsmótinu með 24 stig eftir 8 leiki og markatöluna 48-5. Eins unnu þær sinn riðil á Faxaflóamótinu. Eini leikurinn sem þær hafa tapað er gegn HK í bikarnum og fór hann 4-3. Æfingar fara fram á Laugarvatni dagana 13.-15. ágúst. UMFS.is óskar þeim stöllum til hamingju með þennan árangur og óskar þeim áframhaldandi frama á knattspyrnuvellinum. 

13.8.2010 | Knattspyrna

Stelpurnar spila viđ Fjölni í kvöld

Selfoss-stelpur fá Fjölni í heimsókn í kvöld í 1. deild kvenna. Selfoss er í efsta sæti A-riðils með 36 stig eftir 12 leiki. Síðast unnu þær Sindra 1:0 á Höfn, en þar áður Fram 6:1 á Selfossi. Stelpurnar eru öruggar í úrslitakeppni 1. deildar. Fjölnir er í þriðja sæti riðilsins með 22 stig. Vonandi fáum við að sjá Olgu Færseth í Selfossbúningnum í kvöld, en hún gekk til liðs við félagið fyrir skömmu. Leikurinn í kvöld hefst kl. 19:00.

13.8.2010 | Frálsíţróttir

Selfoss vann Unglingamót HSK örugglega

HSK_merkiMánudaginn 26. júlí sl. fór fram Unglingamót HSK í  frjálsum íþróttum. Mótið var haldið á Laugarvatni í góðu veðri. Frekar fámennt var eða um 25 keppendur frá 6 félögum. Ástæðan er kannski sú að mótið er haldið í lok júlí þar sem sumarfrí eru í hámarki. Engu að síður náðist ágætur árangur í mörgum greinum eins og sést í upptalningunni hér á eftir. Selfoss sigraði stigakeppnina örugglega með 135 stigum

10.8.2010 | Mótokross

Góđur árangur Selfoss í 3. umferđ Íslandsmótsins í mótokrossi

Mótokross_6659Þriðja umferðin á Íslandsmótinu í mótokrossi var haldin 24. júlí s.l. í Sólbrekku á Suðurnesjum. Keppnin var haldin í blíðskaparveðri. Sól og vindur olli því að brautin þornaði fljótt og varð rykið svo mikið að ökumenn sáu varla fram fyrir sig. Fimm keppendur frá mótokrossdeild UMFS tóku þátt og gerðu góða hluti.

9.8.2010 | Handbolti

Ţrjár Selfoss-stelpur í u-16 ára landsliđshópi í handbolta

HSI_logoÞrjár stelpur frá Selfossi, þær Birta R. Antonsdóttir, Díana Sigmarsdóttir og Kristrún Steinþórsdóttir, voru valdar á æfingar með u-16 ára landsliði kvenna í handbolta. Liðið mun æfa fimmtudaginn 12. ágúst og leika svo tvo æfingarleiki 13. og 14. ágúst gegn Lier IL frá Noregi. Verkefnastjórar eru Hilmar Guðlaugsson og Sigurgeir Jónsson.

9.8.2010 | Knattspyrna

Knattspyrnućfingar hefjast aftur eftir stutt frí

Æfingar hjá yngri flokkum knattspyrnudeildar Selfoss hefjast aftur í dag mánudag. Hefðbundið KSÍ frí stendur alltaf yfir í um tvær vikur um mánaðarmótin júlí- ágúst. Æfingar hefjast því aftur mánudaginn 9. ágúst samkvæmt auglýstri stundaskrá. Iðkenndur geta einnig fengið frekari upplýsingar hjá sínum þjálfurum.

8.8.2010 | Knattspyrna

Olísmótinu lokiđ og tókst ţađ mjög vel

Olísmótið-logoOlísmótinu í 5. flokki drengja lauk í dag sunnudag með verðlaunahátíð. Eftirtalin félög unnu til flestra verðlauna á mótinu KR tók 3 dollur, Þór Ak. tók 2 dollur og voru reyndar einu marki frá þeirri þriðju. Keflavík, Víkingur, ÍBV, ÍR og Þróttur fengu svo eina dollu hvert. KA frá Akureyri fékk háttvísisverðlaun KSÍ. Tæplega 600 strákar kepptu á Olísmótinu í 60 liðum frá 14 félögum. Því miður var ekki hægt að taka á móti öllu liðum þetta árið, en ljóst að mótið verður stækkað upp í 72 lið árið 2011. Félögin sem komust inn í ár eru Þór Ak., KA, Grindavík, KR, Þróttur R., Keflavík, Fram, Grótta, Álftanes, ÍA, Víkingur R., ÍBV, ÍR og Selfoss.

7.8.2010 | Knattspyrna

Selfoss mćtir Stjörnunni á sunnudag kl 19.15

Það er aldeilis stutt á milli leikja núna, því aðeins þremur dögum eftir glæsilegan karaktersigur á Haukum heimsækja Selfyssingar nágrana þeirra úr Garðabæ, Stjörnuna heim. Leikurinn fer fram sunnudaginn 8. ágúst kl 19.15. Eins og áður hefur komið fram unnu Selfyssingar Hauka 2-3 í síðustu umferð á meðan Stjarnan tapaði fyrir KR í Frostaskjóli, hvernig sem það er nú hægt. Stjarnan er í 8. sæti með 17 stig á meðan Selfoss er í 11. sæti með 11 stig.

7.8.2010 | Knattspyrna

Olísmótiđ fer vel af stađ

Olísmótið-logoOlísmót 5. flokks stráka í fótbolta hófst á Selfossvelli í gær. Mótið er nú haldið í 6. sinn og keppa alls 60 lið á mótinu, en undanfarin ár hafa verið 48 lið sem spila á Olísmótinu. Nú er leikið á 10 völlum, en í fyrra voru einungis 6 vellir í gangi. Því miður var samt ekki hægt að taka á móti öllum liðum sem vildu vera með, en á næsta ári verður fjölgað í 72 lið. Uppselt hefur verið á mótið undanfarin ár.

6.8.2010 | Knattspyrna

Olísmótiđ hefst í dag kl. 14:00

Olísmótið-logoOlísmótið hjá 5. flokki stráka hefst á Selfossi í dag. Fyrstu leikirnir í hraðmóti dagsins hefjast kl. 14:00. Alls eru 60 lið skráð til leiks í a, b, c, d og e liðum, og hafa þau aldrei verið fleiri. Búist er við fjölda manns á Selfoss um helgina en þar fer einnig fram bæjarhátíðin Sumar á Selfossi. Á Olísmótinu er leikið í 7 manna liðum á völlum sem bera kunnugleg heiti úr fótboltaheiminum. Má þar nefna Wembley, Emirates, Stanford Bridge, Anfield, Nou Camp, Old Trafford, White Hart Lane, Bernabéu, San Siro og Selfossvöll, svo nokkur séu nefnd. Mótinu lýkur með úrslitaleikjum á sunnudag. Dagskrá mótsins má sjá hér.

5.8.2010 | Knattspyrna

Selfyssingar sćkja Hauka heim á Vodafonevöllinn í kvöld

Pepsi-deild blátt landÍ kvöld fimmtudaginn 5. ágúst fer fram einn mikilvægasti leikur sumarsins, er Selfyssingar sækja Hauka heim. Leikurinn fer fram á heimavelli systurfélags Hauka, Vals, og er þetta því annar leikur okkar á hinum stórglæsilega Vodafonevelli. Selfoss og Haukar standa þétt saman í 11. og 12. sæti Pepsi-deildarinnar, Selfoss með 8 stig, en Haukar með 7 stig.

5.8.2010 | Fimleikar

Fimleikanámskeiđ 9.-20. ágúst

Síðasta námskeið sumarsins hjá Fimleikadeildinni hefst mánudaginn 9. ágúst og stendur til 20. ágúst.  Námskeiðið er ætlað börnum fæddum 2004-2001 og er alla virka daga kl. 13:00-15:00. Kennarar eru Linda Ósk Þorvaldsdóttir og Sigríður Ósk Harðardóttir ásamt aðstoðarþjálfurum. Skráning fer fram á olgu@simnet.is

4.8.2010 | Nýjustu fréttir

Unglingalandsmót UMFÍ verđur á Selfossi 2012

Við setningu 13. Unglingalandsmóts UMFÍ í Borgarnesi s.l. föstudag tilkynnti Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, að HSK hefð verið valið sem mótshaldari fyrir 15. Unglingalandsmót UMFÍ 2012 með mótsstað á Selfossi. Auk HSK sóttu UMSE/UFA, með Akureyri sem mótsstað, og USÚ með Hornarfjörð sem mótsstað, um að fá að halda umrætt mót. Næsta Unglingalandsmót sem er hið 14. í röðinni verður haldið á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina 2011.

4.8.2010 | Knattspyrna

Olísmótiđ og Sumar á Selfossi um helgina

Olísmótið-logoMikið verður um að vera á Selfossi um helgina. Þá fer fram Olísmótið hjá 5. flokki stráka í knattspyrnu og auk þess verður bæjarhátíðin Sumar á Selfossi. Mikill fjöldi liða er skráður á Olísmótið og hafa þau aldrei verið fleiri eða 60 talsins. Mótið hefst með hraðmóti á föstudag kl. 14.

3.8.2010 | Frálsíţróttir

Fimmtán gull og tvö mótsmet í frjálsum á Unglingalandsmótinu í Borgarnesi

HSK/Selfoss sendi fjölmennt lið til keppni á Unglingalandsmót UMFÍ sem fram fór í Borgarnesi um helgina. Krakkarnir stóðu sig frábærlega og unnu til fjölda verðlauna. Alls kom liðið heim með 15 Unglingalandsmótstitla og af þeim voru tvö mótsmet. Hreinn Heiðar Jóhannsson bætti Unglingalandsmótsmetið í hástökki pilta 17-18 ára um 2 cm er hann stökk 1,94. Þá bætti Guðrún Heiða Bjarnadóttir metið í langstökki telpna 14 ára um 8 cm er hún stökk 5,20. Verðlaunahafar HSK/Selfoss voru eftirfarandi:

29.7.2010 | Frálsíţróttir

Góđ ţátttaka í Frjálsíţróttaskóla UMFÍ á Laugarvatni

Frjálsíþrskóli_UMFÍ_88Það voru 24 þátttakendur sem mættu í frjálsíþróttaskóla UMFÍ á Laugarvatni vikuna 19. - 23. júlí s.l. en skóli þessi er starfræktur á 5 stöðum á landinu. Ólafur Guðmundsson og Fjóla Signý Hannesdóttir voru þjálfarar í skólanum.

28.7.2010 | Knattspyrna

Yngstu flokkarnir byrja sumarfríiđ í dag

Eins og undanfarin sumur hefur KSÍ verið með frí í leikjum sínum á Íslandsmótinu hjá yngri flokkum vikuna fyrir verslunarmannahelgi og vikuna eftir verslunarmannahelgi. Þetta hefur mælst vel fyrir og knattspyrnufjölskyldur farnar að miða sumarfríið við þennan tíma. Fríið hjá knattspyrnukrökkum byrjar í dag miðvikudaginn 28. júlí og hefjast æfingar aftur mánudaginn 9. ágúst.

27.7.2010 | Frálsíţróttir

Ellefu gullverđlaun og eitt HSK-met á Akureyrarmótinu í frjálsum

Dagur_Fannar_sleggja_10Átta keppendur úr HSK/Selfoss kepptu á Akureyrarmótinu sem fram fór á Akureyri helgina 24.-25. júlí sl.  Uppskeran var svo sannarlega frábær en samtals hlaut hópurinn 11 gullverðlaun, 1 silfurverðlaun og 1 bronsverðlaun, auk þess sem eitt HSK-met féll.

26.7.2010 | Handbolti

Ragnar og Árni Steinn á Evrópumeistaramót U-20

u20_handboltastrákar_2010Þeir Ragnar Jóhannsson og Árni Steinn Steinþórsson eru á leið á Evrópumeistarmótið í handknattleik landsliða skipað leikmönnum 20 ára og yngri. Þjálfari landsliðsins er Selfyssingurinn Einar Guðmundsson, en þetta lið hafnaði í öðru sæti á heimsmeistaramótinu sem haldið var í Túnis í fyrra og í fjórða sæti á Evrópumeistaramótinu sem haldið var í Tékklandi fyrir tveimur árum. Mótið í ár er haldið í Bratislava í Slóvakíu dagana 28. júlí - 8. ágúst. Liðið hefur undirbúið sig af kappi allan júlí mánuð og ættu strákarnir að vera vel undirbúnir undir átökin. Þriðji Selfyssingurinn Guðmundur Árni Ólafsson, núverandi leikmaður Hauka, er einnig leikmaður í þessu landsliði.

26.7.2010 | Knattspyrna

Bagg er bögg – Átaksverkefni gegn munntóbaksnotkun

Bagg er bögg 2010Jafningjafræðsla Hins hússins, Knattspyrnusamband Íslands og Lýðheilsustöð hleyptu af stað átaksverkefninu „Bagg er bögg“ á blaðamannafundi sem að fram fór í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli 14. júlí s.l. Átakinu er ætlað að sporna við aukinni munntóbaksnotkun  hjá ungu fólki, þar sem sérstök áhersla er lögð á unga knattspyrnuiðkendur. Andlit átaksins eru Alfreð Finnbogason landsliðsmaður í knattspyrnu og Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu ásamt jafningjafræðurunum Rúnari Guðbjartssyni og Sigríði Ólafsdóttur, en þau spila einnig knattspyrnu með íslenskum félagsliðum samhliða störfum sínum hjá Jafningjafræðslunni.

Jafningjafræðslan, KSÍ og Lýðheilsustöð frumsýndu á fundinum veggspjöld og bæklinga sem voru hönnuð sérstaklega fyrir átakið. Þessu myndefni verður dreift til íþróttafélaga, skóla og félagsmiðstöðva og Jafningjafræðslan mun einnig halda fræðslufundi um munntóbak fyrir knattspyrnuiðkendur í 2. og 3. flokki í vetur. Hægt er að lesa sig til um munntóbak á heimasíðunum www.lydheilsustod.is/munntobak og www.jafningjafraedslan.is.

26.7.2010 | Frálsíţróttir

Góđur árangur HSK/Selfoss á MÍ 15-22 ára

mi_15-22_2010HSK/Selfoss lið unglinga gerði góða ferð í Hafnarfjörðinn helgina 17.-18. júlí s.l., en þar fór fram Meistarmót Íslands 15 - 22 ára í frjálsíþróttum. Þrjátíu persónulegar bætingar litu dagsins ljós og liðið rakaði saman 11 gullverðlaunum, 9 silfurverðlaunum og 7 bronsverðlaunum auk þessa að verða Íslandsmeistari í ungkvennaflokki.

24.7.2010 | Knattspyrna

3. flokkur á heimleiđ úr vel heppnađri Svíţjóđarferđ.

Þá er síðasta færslan að komin frá 3. flokk í knattspyrnu, sem nú er staddur í Svíþjóð á Gothiacup, og ferðin gengið vonum framar. En nú er komið að leiðarlokum, haldið verður frá Svíaríki til kóngsins Köben í birtingu og stefnan tekin á Ísland er sólin rís hæst á himni. Þannig að allir verða komnir til Keflavíkur kl 14.20. Hér að neðan er það sem hæst bar á tveimur síðustu dögunum.

22.7.2010 | Knattspyrna

U-16 komiđ í 16 liđa úrslit og u-15 datt út í 32 liđa úrslitum

Hér að neðan má lesa um frækna sigra hjá u-16 Selfoss gegn Brasilíska liðinu Inter Club þar sem þeir tryggðu sæti sitt í 16 liða úrslitum. Eins er umfjöllun um sigur U-15 ára liðsins gegn Bodö frá Noregi þar sem strákarnir tryggðu sér sæti í 32 liða úrslitum, en féllu svo úr leik gegn Franska liðinu Montrouge, sem er undir klúbbur efstudeildarliðsins Montpellier. Þannig að í kvöld mun u-16 ára liðið keppa sinn leik gegn Texas Longhorns frá USA í 16 liða úrslitum, en u-15 ára liðið datt út úr 32 liða úrslitum. Frábær árangur hjá frábærum strákum.

21.7.2010 | Knattspyrna

3. flokkur komin í 64. liđa úrslit í Svíţjóđ međ bćđi liđin

Mótið gengur rosalega vel og bæði lið komin í 64 liða úrslit sem er frábært. U-15 ára lið vann tvo leiki og tapaði einu í riðlakeppninni og U-16 ára liðið vann einn leik og gerði tvo jafntefli. Samtals því þrír sigrar, tvö jafntefli og eitt tap. U-16 ára vann því sinn riðil og U-15 ára varð í öðru sæti í sínum riðli og komust því bæði lið í A úrslit.

20.7.2010 | Knattspyrna

Dagbók frá Svíţjóđ- 3. hluti

Allt gengur eins og í sögu hér í Gautaborg hjá strákunum í 3. flokk í knattspyrnu. Netsamband er þó nokkuð óstöðugt, en við notum tækifærið um leið og við komust í samband. Hér að neðan er dagbók yfir síðustu þrjá daga.

17.7.2010 | Knattspyrna

Dagbók frá Svíţjóđ- 2. hluti

Hin árlega blakkeppni 3. flokks í knattspyrnu fór fram í gær. Stjörnulið Gunna Borgþórs mætti til leiks sem sýningarlið og voru tilþrif þeirra oft á tíðum ótrúleg. Eftir skemmtilegar úrslitaviðureignir fór það þó svo að lokum að lið Samba vann, en það lið skipuðu Markús Vernharðsson, Þórður Sindri Ólafsson, Sindri Pálmason og Þorsteinn Daníel Þorsteinsson.

17.7.2010 | Knattspyrna

Selfyssingar heimsćkja Fylki á sunnudag kl 19.15

Þá er komið að 12. umferð í Pepsídeildinni eða fyrstu umferð í seinni hluta mótsins og byrja Selfyssingar að heimsækja Fylkismenn í Árbæinn. Leikurinn fer fram 18. júlí kl 19.15 á Fylkisvelli. Selfyssingar gerðu jafntefli í síðasta leik gegn Grindavík í Grindavík á meðan Fylkismenn sátu hjá í 11. umferð íslandsmótsins og töpuðu sínum leik í Evrópukeppninni. Selfyssingar eru eftir þetta jafntefli með 8 stig í 10 sæti deildarinnar, en Fylkir er með 12. stig í 9. sæti deildarinnar.

15.7.2010 | Knattspyrna

Dagbók frá Svíţjóđ- Fyrsti hluti

Strákarnir í 3. flokk Selfoss í knattspyrnu er þessa dagana í æfingabúðum í Svíþjóð og munu í næstu viku taka þátt í hinu geysisterka Gothia-cup móti sem haldið er í Gautaborg. Vegna fjölda áskorana verða strákarnir með dagbók frá ferðinni og er fyrsta færsla hér að neðan.

14.7.2010 | Handboltaakademía

Nýr leikmađur í handboltaliđi Selfoss

Handknattleiksdeild Umf. Selfoss hefur gert samning við Guðjón Finn Drengsson fyrir komandi keppnistímabil. Guðjón á að baki ein 11 ár í meistaraflokki með Fram og býr því yfir mikilli reynslu. Hann hefur verið þekktur fyrir mikla baráttu, gott keppnisskap og fyrir það að vera góður liðsmaður í velgengni og ennþá betri liðsmaður í mótlæti. 

12.7.2010 | Fimleikar

Fjör hjá fimleikahópnum í Danmörku

Það er mikið fjör hjá fimleikahópnum frá Selfossi sem fór utan til Odense í Danmörku aðfaranótt laugardags 10.júlí.  Stelpurnar eru á Eurogymhátíð ásamt 4500 öðrum þátttakendum frá 24 löndum Evrópu.  Hátíðin hófst formlega í gærkveldi með opnunarhátíð en stelpurnar áttu fyrstu sýningu í dag í Kongens Have og gekk það vel en tímasetningin var akkurat þar sem þrumur og eldingar með mikilli rigningu hófust að atriði loknu. 

12.7.2010 | Knattspyrna

HM námskeiđ hefst mánudaginn 19. júlí

HM-námskeið knattspyrnuklúbbsins hefst mánudaginn 19. júlí og stendur yfir í eina viku. Námskeiðið er frá kl. 9:00-12:00. HM-námskeiðið er vinsælasta námskeið knattspyrnudeildarinnar og er fyrir stráka og stelpur fædd 1998-2003. Spilað er mót milli liða allan daginn í heila viku. Þjálfarar keppa sín á milli og er skipt upp í ný lið fyrir hvern dag. Veitt eru verðlaun fyrir stigahæstu menn, besta markmann, besta sóknarmann, besta miðjumann og besta varnarmann. Þá eru veitt ýmis aukaverðlaun.

Skráning er í fullum gangi og er enn hægt að skrá á netfangið knattspyrnuklubbur@gmail.com

12.7.2010 | Frálsíţróttir

Gautaborgarleikarnir í frjálsum íţróttum

Dagana 2.-4. júlí fóru átta krakkar á aldrinum 12-14 ára og kepptu í frjálsum íþróttum á Ullevi-leikvanginum í Gautaborg. Gautaborgarleikarnir eru opið mót fyrir 12 ára og eldri. Mótið er risastórt þriggja daga mót með 3.200 keppendum víða að úr heiminum og ljóst að krakkarnir koma reynslunni ríkari heim. Okkar krakkar stóðu sig rosalega vel og voru í alla staði til fyrirmyndar. Þrjú Selfoss- og HSK-met voru bætt þessa daga og fimm ný met skráð (ekki verið keppt í greinunum áður í þessum flokkum).

9.7.2010 | Knattspyrna

Stelpurnar spila tvo leiki fyrir austan um helgina

Stelpurnar í meistaraflokki halda austur á Egilsstaði í hádeginu í dag en þær munu spila við Fjarðabyggð/Leikni á Eskifirði í kvöld kl. 20. Á sunnudaginn kl.14: 00 spila þær svo við Hött á Egilsstöðum. Stelpurnar unnu Fjarðabyggð/Leikni 5:1 á Selfossi fyrir skömmu og Hött 8:0 fyrr í sumar.

8.7.2010 | Knattspyrna

Grindavík - Selfoss í dag kl. 19:15

Pepsi-deild blátt landNæsti leikur Selfyssinga í Pepsideildinni er síðasti leikur í fyrri umferð sem þýðir það að mótið er hálfnað. Þessi leikur er sannkallaður 6 stiga leikur því við mætum Grindvíkingum, sem eru stigi fyrir neðan okkur í 11. sæti. Selfyssingar töpuðu fyrir Blikum og Grindavík tapaði fyrir KR í síðustu umferð og er óhætt að segja að bæði lið hafi verið nokkuð óheppinn að fá ekki eitthvað út úr þeim leikjum.

8.7.2010 | Taekwondó

Taekwondo útilegan 16.-18. júlí

Lógó SelfossÞá er komið að því að blása til fyrstu taekwondo-útilegunnar. Útilegan verður að Brautarholti á Skeiðum, á tjaldstæðinu þar. Fyrir þá sem ekki vita hvar Brautarholt er þá stendur það við veginn upp að Flúðum. Þar er fyrirtaks aðstaða fyrir tjöld, tjaldvagna, fellihýsi og húsbíla eins og hentar hverjum og einum. Útilegan er hugsuð fyrir iðkendur og fjölskyldur þeirra og vini. Farið verður í leiki mað krökkunum og haldin keppni milli fullorðinna og barna í hinum ýmsu greinum s.s. pokahlaupi, reyptog...

6.7.2010 | Knattspyrna

Ćvintýriđ er núna!

Lógó SelfossEins og flestir vita hefur karlalið Selfoss mátt þola talsverða ágjöf í síðustu leikjum sínum í Pepsí-deildinni. Eftir tap í sex leikjum í röð fer að reyna nokkuð á taugar og þol leikmanna, aðstandenda og áhorfenda. Hins vegar er þetta staða og veruleiki sem raunhæft var að búast við og vonandi hafa flestir búið sig undir þennan mótbyr. Það er því einmitt núna sem þörf er á að minna sig á að fótboltaævintýrið er samt sem áður hér og nú! Eftir fljúgandi ferð upp úr annarri deild, gegnum þá fyrstu og upp í þá efstu, var ekki að búast við stórum afrekum. Okkur dreymdi um að spila meðal þeirra bestu, heimsækja, og fá til okkar, öll "stóru" liðin, horfa á og njóta - og það þurfum við e.t.v. stundum að minna okkur á!

6.7.2010 | Knattspyrna

Gumma skorađi sigurmarkiđ gegn Finnum

KSÍ_merkiÍslenska u-17 ára landsliðið tekur nú þátt í Norðurlandamótinu í knattspyrnu sem haldið er í Danmörku. Ísland sigraði í gær lið Finnlands 1-0 og var það að sjálfsögðu Selfyssingurinn Guðmunda Brynja Ólafsdóttir sem skoraði sigurmarkið, en það gerði hún á 36. mínútu. Markið skoraði hún með góðu skoti úr vítateig eftir einstaklingsframtak.

5.7.2010 | Knattspyrna

G. Tyrfingsson og knattspyrnudeild međ samstarfssamning

G_Tyrfingsson_undirritunKnattspyrnudeild Umf. Selfoss og Hópferðabílar Guðmundar Tyrfingssonar hafa gert með sér samstarfsamning. G. Tyrfingsson mun ferja knattspyrnumenn- og konur í lengri ferðir og eins mun stuðningsmannasveitin Skjálfti ferðast með G. Tyrfingssyni. Þess má til gaman geta að Skjálftastrákarnir unnu verðlaun á dögunum fyrir að vera skemmtilegasta stuðningsmannasveit landsins. Hópferðabílar Guðmundar Tyrfingssonar er rótgróið fyrirtæki sem hefur haft aðsetur á Selfossi frá upphafi. Þeir eru með yfir 40 ára reynslu og eru þekktir fyrir öryggi í sinni þjónustu, enda allar þeirra rútur með þriggja punkta bílbeltum. Samningurinn er til tveggja ára.

4.7.2010 | Knattspyrna

Ofurnámskeiđ knattspyrnuklúbbs hefst á mánudag

Ofurnámskeið knattspyrnuklúbbsins hefst mánudaginn 5. júlí. Námskeiðið sem er fyrir stráka og stelpur fædd 1997-2003 stendur námskeiðið yfir í 2 vikur frá kl. 9:00-12:00. Áhersla er lögð á slútt, skalla og aukaspyrnur. Allir fá æfingar, þjálfun og áskoranir við hæfi. Námskeiðið er brotið upp með hjólatúrum, ratleikjum og sundlaugarferð. Leikmenn meistaraflokks Selfoss og aðrir góðir gestir koma í heimsókn. Grillveisla í lok námskeiðs. Enn er laust á námskeiðið og skráning er í netfangið knattspyrnuklubbur@gmail.com

3.7.2010 | Knattspyrna

Selfoss-Breiđablik á mánudag kl 19.15

Næsti leikur Selfyssinga í Pepsídeildinni er heimaleikur og er hann gegn Breiðablik úr Kópavogi. Dómari leiksins flautar leikinn á kl 19.15 mánudaginn 05.07. Blikar fengu KR í matinn í síðustu umferð, eins og þeir sungu eftir leik við Knattspyrnufélag Reykjavíkur, við lítinn fögnuð þeirra röndóttu. Selfyssingar töpuð aftur á móti í nágranaslag gegn ÍBV. Breiðablik er á run-i, en Selfyssingar eru það ekki, samt sem áður má búast við hörku viðureign, því deildin er jöfn sem aldrei fyrr.

2.7.2010 | Knattspyrna

3. flokkur kvenna langefstar í sínum riđli

Stelpurnar í 3. flokki kvenna eru langefstar í sínum riðli á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Í síðasta leik sínum unnu þær ÍBV 6-0 og hafa þar með unnið 5 leiki og eru með markatöluna 31-2. Eins unnu stelpurnar báða sína leiki á Faxaflóamótinu stórt. Næsti leikur hjá stelpunum er gegn HK í bikarkeppni KSÍ og fer sá leikur fram Fagralundi í Kópavogi þriðjudaginn 6. júlí kl. 20.00.

1.7.2010 | Knattspyrna

100 ára saga Íslandsmótsins í knattspyrnu - myndir óskast

Opnuð hefur verið á Facebook síða sem kallar eftir ýmsum upplýsingum og myndum úr Sögu Íslandsmótsins í knattspyrnu. Slóðin á síðuna er: http://www.facebook.com/pages/100-ara-saga-Islandsmotsins-i-knattspyrnu/140325259318152

1.7.2010 | Fimleikar

Mikil ađsókn á fimleikanámsekiđ

Fimleikar_4621Nú stendur yfir annað fimleikanámskeiðið af fjórum hjá fimleikadeild Selfoss fyrir börn fædd 2001-2004. Mikil aðsókn er á námskeiðin hjá deildinni en námskeiðin eru 2 vikur í senn frá kl. 13 - 15 alla virka daga. Á meðfylgjandi myndum má sjá krakkana á fimleikanámskeiðinu sýna listir sýnar á bökkum Ölfusár síðastliðinn fimmtudag en stefnan er að hafa eina útiæfingu/sýningu á hverju námskeiði. Útiæfingin vakti mikla eftirtekt í góða veðrinu og voru krakkarnir ánægðir með vel heppnaðan dag.

1.7.2010 | Knattspyrna

Strákarnir í 3. flokki enn taplausir á árinu

Strákarnir í 3. flokki Selfoss eru enn taplausir á árinu. Þeir fóru vel af stað í Faxaflóamótinu með því að vinna alla sína leiki og voru með markatöluna 23-1. Eins hefur gengið vel á Íslandsmótinu, en þar hafa þeir unnið Þrótt Reykjavík, Leikni Reykjavík, Skallagríms/Snæfell og BÍ frá Ísafirði og Bolungarvík. Eitt jafntefli hefur verið hjá strákunum á Íslandsmótinu, en það var gegn Breiðabliki.

28.6.2010 | Knattspyrna

Stelpurnar á yngra ári í 6. flokki í úrslit KSÍ

KSÍ_merkiFótboltastelpurnar í 6. flokki, yngra ár, unnu hnátumót KSÍ á dögunum og eru komnar í úrslitakeppni KSÍ. Riðillinn var leikinn á Bessastaðavelli þann 15. júní s.ol. og sigruðu Selfossstelpurnar alla sína leiki og var markatalan hjá þeim 13-2. Selfyssingar voru í riðli með Breiðablik, Álftanesi og Leikni Reykjavík. Virkilega vel gert hjá þessum efnilegu stelpum og verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni.

28.6.2010 | Knattspyrna

Selfoss međ háttvísisverđlaun KSÍ í Eyjum

Strákarnir í 6. flokki karla sem á dögunum tryggðu sér sæti í úrslitakeppni KSÍ gerðu ágætis ferð til Vestmannaeyja þar sem þeir kepptu á Shellmótinu. Eftir hvern leik velja dómarar prúðara liðið og er svo upplýsingum safnað saman. Í ár voru það HK og Selfoss sem voru með hæstu einkunn og fengu því háttvísisverðlaun KSÍ. Selfoss sendi í ár fimm lið til þátttöku og stóðu strákarnir sig heilt yfir mjög vel og unnust leikir og töpuðust nokkuð jafnt. Anton Breki Viktorsson var svo valinn til að spila fyrir Pressuliðið í leik gegn Landsliði mótsins. Það var Þór frá Akureyri sem stóð uppi sem sigurvegarar á mótinu.

28.6.2010 | Knattspyrna

Strákarnir í 7. flokki komu heim međ tvo bikara

fót_boltiKnattspyrnustrákarnir í 7. flokki karla gerðu góða ferð á Norðurálsmótið á dögunum, en Norðurálsmótið hefur verið haldið á Akranesi síðan 1984. Strákarnir komu heim með tvo bikara, annan fyrir sigur í keppni B-liða og hinn fyrir sigur í keppni F-liða. A-liðið lenti svo í 3. sæti og D-liðið í 2. sæti. Þetta er glæsilegur árangur hjá strákunum og greinilegt að efniviðurinn á Selfossi er mjög góður og ekki þarf að kvíða framtíðinni ef þessir strákar halda áfram að æfa af sama krafti og þeir hafa gert.

28.6.2010 | Frálsíţróttir

Nýtt met öldunga í kringlukasti á Hérađsmóti HSK

HSK_merkiHinn 79 ára Árni Einarsson er enn að bæta sig í kringlu, en hann setti nýtt met í flokki 75-79 ára á Héraðsmóti HSK í síðustu viku. Árni kastaði 2 kg kringlu 18,11 m. Fyrra metið var 17,85 m en það átti Marteinn Guðjónsson, sett árið 2001. Mikill hugur er í Árna því hann ásamt fimm öðrum Íslendingum hyggja á þátttöku á EM öldunga sem fram fer í Ungverjalandi í næsta mánuði. Góð þátttaka var á héraðsmótinu, alls 70 keppendur frá níu félögum, og ágætis árangur, sem endurspeglar vaxandi starf innan HSK. Selfoss sigraði stigakeppnina nokkuð örugglega, en Laugdælingar urði í 2. sæti. Í þriðja sæti var síðan Umf. Vaka. Úrslit mótsins, sem fram fór á Laugarvatni má sjá hér.

25.6.2010 | Knattspyrna

ÍBV - Selfoss í beinni á Suđurland FM

Suðurland FM963Fyrir þá sem komast ekki til Vestmannaeyja verður leikur ÍBV - Selfoss í beinni útsendingu á Suðurland FM og byrjar útsending kl. 19.45. Fyrir þá sem fara á leikinn er einnig tilvalið að hafa gamla góða vasadiskóið eða símann með og hlusta útsendinguna á vellinum. Hægt er að hlusta á útsendinguna á FM 96,3 eða á netinu http://www.963.is/. Áfram Selfoss!

23.6.2010 | Knattspyrna

Ferđir frá Bakkafjöru til Eyja

Eftir ítarlega rannsóknarvinnu hvernig best er að herja á Vestmannaeyjar hefur eftirfarandi komið í ljós. Skjálftagaurarnar ætla frá Þorlákshöfn til Eyja á föstudag, slá upp tjaldbúðum og vera fram á laugardag. Einhver slatti er kominn í einkaflugvélar og fara þeir flestir frá Selfossi. Nú er komin ný leið, en það er með litlum bát frá Bakkafjöru til Eyja og heim strax eftir leik. Ferðin fram og til baka kostar 6.000-7.000kr og fer það eftir fjölda sem skráir sig, en 10 manns komast í bátinn í einu. Farið verður á heilatímanum. Best er að skrá sig hjá Tómasi í síma 699-0660.

23.6.2010 | Knattspyrna

Nágrannaslagur í Eyjum á föstudag k.l 20.00

Pepsi-deild blátt landNæsti leikur Selfyssinga er sannkallaður Derby-slagur, en þá mætum við hinu suðurlandsliðinu, ÍBV. Leikurinn fer fram í Eyjum föstudaginn 25. júní kl. 20.00 sléttu ári eftir að Michael Jackson féll frá með sviplegum hætti. ÍBV voru klaufar að taka ekki stig gegn KR í síðustu umferð er þeir töpuðu 1-0 í Frostaskjóli. Á meðan voru Selfyssingar slakir gegn besta liði deildarinnar FH og töpuðu 0-2. Selfyssingar eru því í 10. sæti með 7 stig, en ÍBV í 5. sæti með 14 stig. Bæði lið hafa skorað 11 mörk, en Selfoss fengið á sig 14 mörk á móti 8 mörkum Eyjamanna.

19.6.2010 | Knattspyrna

Upphitun međ ţjálfurum á mánudag

Pepsi-deild blátt landFyrir leik Selfoss og FH sem fram fer mánudaginn 21. júní munu þjálfarar liðanna, þeir Guðmundur Benediktsson og Heimir Guðjónsson, hitta stuðningsmannaklúbb Selfoss og fara yfir komandi leik. Þetta er eingöngu fyrir þá sem standa skil á árgjaldi stuðningsmannaklúbbsins og verður farið fram á klúbbskírteini við dyrnar í Tíbrá. Dagskráin byrjar kl. 18.30 og munu þjálfararnir halda stutt erindi og svara 2-3 spurningum frá stuðningsmönnum Selfoss.

18.6.2010 | Knattspyrna

Búningarnir komnir

Þá eru nýju búningarnir fyrir yngri flokka Selfoss í knattspyrnu komnir. Unglingaráð afhentir búningana kl. 13-16 í dag föstudag og kl. 13-15 á mánudag. Allir sem hafa pantað búninga geta því komið í Tíbrá og sótt þá á áðurgreindum tíma.

18.6.2010 | Frálsíţróttir

Glćsilegur árangur HSK/SELFOSS á MÍ 11 - 14 ára

Meistaramót Íslands 11 -14 ára fór fram á Kópavogsvelli helgina 12.-13.júní  sl. HSK/SELFOSS  sendi 40 keppendur til leiks í sameiginlegu liði og stóðu krakkarnir sig mjög vel. Þau lentu í 2. sæti í heildarstigakeppni mótsins með 522,7 stig, aðeins 17,6 stigum frá ÍR sem sigraði með 540,3 stig.

18.6.2010 | Knattspyrna

6. flokkur yngra ár er komiđ í KSÍ úrslit

Strákarnir í 6. flokki yngra árs eru komnir í úrslitakeppni KSÍ, en þeir unnu sinn riðil sem fram fór á Árbæjarvelli á þriðjudag. Selfyssingar voru í riðli með Fjölni, FH, Fylki og HK. Strákarnir byrjuðu á því að vinna FH 1-0 og næst tóku þeir Fylki 4-2. Í þriðja leik unnu strákarnir HK 5-2 og í síðasta leik mótsins gerðu þeir jafntefli við Fjölni 2-2, en Fjölnir endaði í 2. sæti. Selfyssingar unnu því mótið, enduðu með 10 stig, markatöluna 12-6 og töpuðu ekki leik. Mjög góður árangur hjá strákunum og verður gaman að fylgjast með þeim í úrslitakeppninni.  

18.6.2010 | Knattspyrna

Knattspyrnunámskeiđ nr. 2 ađ hefjast á mánudag

Annað knattspyrnunámskeiðið sumarsins byrjar mánudaginn 21. júní og er það sérnámskeið fyrir stráka og stelpur fædd 1997 – 2003. Veittur er 10% afsláttur fyrir þá krakka sem voru á fyrsta námskeiðinu. Fullt var á fyrsta námskeiðið sumarsins enda knattspyrnuáhugi á Selfossi örugglega aldrei verið meiri.

18.6.2010 | Knattspyrna

Selfoss - FH á mánudag kl. 19.15

Pepsi-deild blátt landNæsti leikur Selfoss er gegn Íslandsmeisturum FH og verður hann að öllum líkindum leikinn mánudaginn 21. júní kl 19.15 á Selfossvelli. Íslandsmeistararnir unnu KR í stórskemmtilegum leik í síðustu umferð á meðan Selfoss tapaði fyrir Val í tíðindalitlum leik. Ljóst er að FH hraðlestin er komin í gang og nú er það Selfyssinga að hægja á henni. FH er nú í 6. sæti með 11 stig á meðan Selfoss er í 9. sæti með 7 stig eftir þrjú 2-1 töp í röð, þar sem Selfyssingar hafa komist yfir. Reyndar er þetta fjórði 2-1 tapleikur okkar í röð ef tekin er með bikarleikurinn gegn ÍA.

18.6.2010 | Knattspyrna

Stelpurnar unnu Sindra 5:2 á Selfossi

Selfoss-stelpur tóku á móti Sindra miðvikudaginn 16. júní. Leikurinn var nokkuð jafn en Selfoss náði þó að klára 5-2. Staðan í hálfleik var 2:1. Tværi breytingar voru gerðar á byrjunarliðinu síðan síðast. Dagný H. kom inn á vinsri kant fyrir Önnu Maríu og Þóra Margrét kom í miðvörðinn fyrir Bríeti og var þetta fyrsti leikurinn hennar í sumar.

16.6.2010 | Frálsíţróttir

Kvennahlaup ÍSÍ á Selfossi 19. júní

21. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ á Selfossi fer fram á Kvennréttindadaginn 19. júní. Í ár er yfirskrift hlaupsins “ Konur eru konum bestar” og er unnið í samstarfi við Kvenfélagasamband Íslands sem fagnar 80 ára afmæli sínu á árinu. Hlaupið hefst hjá Byko í Langholti kl. 13:00. Vegalengdir í boði eru: 2,2 km - 4,8 km og 5,7 km. Forsala bola verður í Krónunni Austurvegi 3-5 16. júní kl. 14-18, 18. júní kl. 14-18 og í Byko á hlaupadaginn kl. 10-13.  Frítt verður í sund í Sundhöll Selfoss í boði Árborgar. Einnig verða grillaðar pylsur í boði BYKO eftir hlaup.

16.6.2010 | Frálsíţróttir

Nú mćta allar frjálsíţróttakempur - ungar sem aldnar - á Laugarvatn

HSK_merkiNú líður að Héraðsmóti HSK fullorðinna í frjálsum, en það verður haldið á Laugarvatni þriðjudaginn 22. og miðvikudaginn 23. júní n.k. eins og flestir ættu nú að vita. Þetta er 100 ára afmælismót HSK og þar af leiðandi mjög merkur áfangi. Gamlir keppendur HSK eru sérstaklega hvattir til að mæta og fagna þessum tímamótum.

16.6.2010 | Sund

Hrólfur og Ólöf Eir stigahćst á Hérađsmóti HSK í sundi

Héraðsmót HSK í sundi fór fram mánudaginn 14. júní s.l. í Hveragerði. Sunddeild Umf. Selfoss sendi að þessu sinni fremur fáliðaða sveit enda flestir okkar sundmenn komnir í sumarfrí. Leikar fóru því þannig að Hamar sigraði mótið með nokkrum yfirburðum eða 128 stigum, Selfoss endaði í öðru sæti með 67 stig og Dímon rak lestina með 25 stig en frá þeim komu tveir keppendur.

16.6.2010 | Knattspyrna

Ţriđja 2:1 tapiđ í röđ í Pepsi-deildinni

Pepsi-deild blátt landSelfyssingar léku við Valsmenn í Pepsi-deildinni á Vodafonevellinum mánudaginn 14. júní s.l. Selfoss byrjaði betur og voru sterkari fyrstu tuttugu mínúturnar þó ekki hefðu skapast mörg hættuleg færi. Þá tóku Valsmenn við sér, en annars var hálfleikurinn tíðindalítill. Þrjú mörk komu í síðari hálfleik og urðu úrslitin 2:1 fyrir Val.

14.6.2010 | Sund

Frábćr árangur hjá Ólöfu og Hrólfi á SH International

Um síðustu helgi kepptu Ólöf Eir Hoffritz og Hrólfur Laugdal Árnason á SH-Actavis international mótinu sem fram fór í Hafnafirði. Alls tóku 6 smáþjóðir þátt í mótinu eða: Lúxemborg, San Maríno, Andorra, Danmörk, Færeyjar  og Ísland.
Okkur til mikillar gleði náði Ólöf lágmörkum inná AMÍ (Aldursflokkamót Íslands) í 100m skriðsundi og hefur því tryggt sér rétt til að keppa í 3 greinum á því móti. Hana vantar aðeins 0,3  og 1,2 sekúndur í tveim öðrum sundum.

13.6.2010 | Fimleikar

Góđ ađsókn ađ fimleikaklúbbnum og sumarćfingum í fimleikum

Mikil og góð aðsókn hefur verið að fimleikaklúbbnum og sumaræfingum í fimleikum.  Fimleikaklúbburinn notaði góða veðrið á föstudaginn og tók þátt í hátíðarstemmingu helgarinnar og sýndu æfingar á ýmsum áhöldum á grasflötinni á Austurveginum fyrir framan Grænumörkina.  Þetta setti skemmtilegan svip á bæinn og stoppuðu gestir og gangandi til að fylgjast með krökkunum sem stóðu sig vel og kunnu vel að meta þessa uppákomu.
Næsta námskeið hefst mánudaginn 21.júní og er til 2.júlí. Skráning er á netfangið olgu@simnet.is Nánari upplýsingar má finna á vef umfs.is

11.6.2010 | Knattspyrna

Valur - Selfoss á mánudag kl. 19.15

Pepsi-deild blátt landNæsti leikur Selfoss í Pepsi-deildinni er gegn Val á Hlíðarenda. Selfyssingar spiluðu nokkuð vel í síðasta leik gegn Fram, en voru óheppnir að tapa 1-2. Á meðan unnu Valsmenn flottan 1-2 sigur á KR í Frostaskjóli og eru því Selfoss og Valur einu liðin sem unnið hafa KR á tímabilinu. Eins og flestir vita var Gunnlaugur Jónsson þjálfari Selfyssinga á síðasta ári og kom liðinu upp í efstu deild. Hann mætir því fyrrverandi lærisveinum sínum á mánudag kl. 19.15.

11.6.2010 | Frálsíţróttir

Dagur Fannar međ HSK met á Vormóti ÍR

Sex iðkendur meistaraflokks frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss kepptu á Vormóti ÍR sem haldið var á Laugardalsvelli þann 9. júní s.l. Dagur Fannar Magnússon Umf. Selfoss bætti  32 ára gamalt HSK- og Selfossmet Óskars Reykdals í drengjaflokki í sleggjukasti um 9,41 m þegar hann kastaði karlasleggjunni 37,53m og lenti í 4. sæti. Þetta var í fyrsta sinn sem Dagur Fannar keppir með karlasleggjunni og því frábær árangur hjá honum.

10.6.2010 | Knattspyrna

Selfoss-stelpur unnu Fram 7:1 á útivelli

Selfoss-stelpur unnu góðan 7:1 sigur á Fram í Safamýrinni á þriðjudaginn. Staðan í hálfleik var 2:1. Stelpurnar áttu frábæran seinni hálfleik og dældu inn mörkunum. Selfoss er nú með 9 stig eftir þrjá leiki í 1. deildinni.

9.6.2010 | Frálsíţróttir

Anna međ Selfossmet í Spjótkasti á Júnímóti FH

Anna í spjótkasti 2010Anna Pálsdóttir Umf. Selfoss bætti nokkurra daga Selfossmet sitt í spjótkasti um 1,42 m á Júnímóti FH sem haldið var þann 4. júní s.l. Anna kastaði spjótinu 40,86 m og sigraði með yfirburðum. Þessi árangur er HSK-met í aldursflokknum 19-20 ára auk þess að vera Selfoss-met í kvennaflokki og flokki 19-20 ára.

9.6.2010 | Knattspyrna

Viltu taka ţátt í skemmtilegu félagsstarfi?

Knattspyrnudeild Umf. Selfoss óskar eftir sjálfboðaliðum í skemmtilegt félagsstarf. Deildin stækkar ár frá ári og fullt af góðum verkefnum koma til okkar. T.a.m. verður knattspyrnudeildin með sjoppu- og veitingasölu á Kótelettunni, fjölskyldu- og tónlistarhátíð á Selfossi um helgina. Þar af leiðandi vantar um helgina nokkra aðila til að taka þátt í sjoppu- og veitingasölu með meistaraflokkum karla og kvenna. Eins vantar einhverja með meirapróf til að keyra rútu/bekkjarbíl. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í skemmtilegu verkefni og í framhaldi af því að vera þátttakandi í frábæru félagsstarfi hafið samband við Tómas í síma 699-0660 eða Auði í síma 669-7604.

8.6.2010 | Knattspyrna

Fullt á fyrsta knattspyrnunámskeiđi sumarsins

Fyrsti fótboltaskóli sumars fer virkilega vel af stað og er metþátttaka, eða alls 86 krakkar. Námskeiðið er fyrir krakka fædd 1997-2003. Yfirþjálfari er Gunnar Borgþórsson, en með daglega yfirumsjón sjá systkinin Stefán Ragnar og Aníta Guðlaugsbörn. Þeim til aðstoðar eru 10 ungir og efnilegir þjálfarar. Næsta námskeið byrjar mánudaginn 21. júní og er skrásetning hafin. Allar upplýsingar gefur Aníta í síma 865-9256.

8.6.2010 | Mótokross

Fyrsta mótokrosskeppni sumarsins

Andri_2010Fyrsta mótokrosskeppni sumarsins var haldin í Ólafsfirði laugardaginn 5. júní s.l. Þrír meðlimir mótokrossdeildar Umf. Selfoss tóku þátt í henni. Þorsteinn Helgi Sigurðsson keppti í 85 cc flokknum. Hann barðist bæði motoin um fyrsta sætið, vann fyrra motoið en lenti í öðru í því seinna og hafnaði þ.a.l. í öðru sæti. Andri Orri Hreiðarsson tók þátt í sinni fyrstu keppni, en hann keppti einnig í 85 cc flokknum. Eftir að hafa verið í 5.-6. sæti eftir 5 hringi í seinna motoinu datt hann í þungum sandinum og endaði í 11. sæti eftir daginn. Hákon Andrason tók þátt í Mx unglingaflokki og lenti þar í 3. sæti. Í þeim flokki keppa afar efnilegir ökumenn svo það er greinilegt að Hákon er í fantaformi.

8.6.2010 | Nýjustu fréttir

Vatnsbrúsar í sumargjöf frá Umf. Selfoss

VatnsbrúsagjöfMikil ánægja var hjá krökkunum í 1.-4. bekk í Sunnulækjarskóla er þau fengu vatnsbrúsa merktan Ungmennafélagi Selfoss í sumargjöf í síðustu viku. Örn Guðnason, framkvæmdastjóri Umf. Selfoss, afhenti krökkunum gjöfina í síðustu viku. Krakkarnir í Vallaskóla fengu einnig sams konar gjöf fyrir skömmu. Það var Sigurplast sem gaf félaginu vatnsbrúsana en þetta er hluti af enn stærri gjöf. Fyrirtækið er staðsett í Mosfellsbæ og verður 50 ára á næsta ári. Framkvæmdastjóri Sigurplasts er Sigurður L. Sævarsson.

6.6.2010 | Nýjustu fréttir

Mjög góđur árangur á Akranesleikunum

Sunddeildin fór um helgina á Akranes og tók þátt í Akranesleikunum sem stóðu yfir í þrjá daga. Alls fóru fimm sundmenn frá Sunddeildinni á leikana. Ólöf Eir Hoffritz vann tvö gull og eitt brons. Hannes Höskuldsson vann sér inn eitt brons ásamt því að vera í 5., 6. og 7. sæti í hinum greinunum sínum. Alls var keppt í 12 greinum. Allir keppendurnir bættu sig.

5.6.2010 | Knattspyrna

Selfoss tekur á móti Fram kl 19.15 á sunnudag

Selfyssingar taka á móti Fram í 6. umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu. Í 5. umferð töpuðu Selfyssingar gegn toppliði Keflavík 2-1, en Fram leikur sinn leik í 5. umferð við KR þann 10.júní. Selfyssingar eru í 6 sæti með 7 stig eftir 5 leiki, en Fram er í 2. sæti deildarinnar með 8 stig eftir 4 leiki. Framarar eru enn taplausir í Pepsideildinni í ár, en ljóst að svoleiðis fara þeir ekki í gegnum tímabilið.

4.6.2010 | Handbolti

Viđurkenning frá Landsbankanum á Selfossi

Í tilefni af frábærum árangri meistarflokks karla í handbolta afhenti Landsbankinn á Selfossi handknattleiksdeildinni 100.000 kr. en árangurstenging er einn liður í samstarfssamningi sem hefur verið í gildi milli Landsbankans á Selfossi og Handknattleiksdeildar Umf. Selfoss um nokkurra ára skeið.

4.6.2010 | Taekwondó

HSK-mót í taekwondo í Iđu sunnudaginn 6. júní

Lógó SelfossHSK-mót í taekwondo verður haldið í Iðu sunnudaginn 6. júní og hefst mótið stundvíslega klukkan 9.00. Skráning fer fram á heimasíðu taekwondodeildar á slóðinni : http://www.tkd-selfoss.is/skraningar. Skráningu lýr laugardaginn 5. júní. Húsið opnar kl. 8:30. Allar nánari upplýsingar gefur Ófeigur í síma 849 3845.

4.6.2010 | Knattspyrna

Fyrsta knattspyrnunámskeiđiđ byrjar á mánudag

Hin árlegu námskeið knattspyrnuklúbbs Umf. Selfoss byrja mánudaginn 7. júní. Fyrsta námskeiðið er Dúndurnámskeið, en það er fyrir stráka og stelpur fædd 1997 – 2003. Krökkunum er skipt í hópa eftir aldri og getu og því fá allir æfingar, þjálfun og áskoranir við hæfi. Gunnar Borgþórsson yfirþjálfari hefur umsjón með skipulagningu námskeiðanna. Aðalþjálfarar verða systkinin Aníta og Stefán Ragnar Guðlaugsbörn. Námskeiðið er brotið upp með hjólatúrum, ratleikjum og sundlaugaferð svo eitthvað sé nefnt.

3.6.2010 | Nýjustu fréttir

Sumarnámskeiđin hefjast mánudaginn 7. júní

Sumarnámskeið á vegum Umf. Selfoss hefjast mánudaginn 7. júní í íþrótta- og útivistarklúbbnum, fimleikaklúbbnum og knattspyrnuklúbbnum. Mæting á námskeið í íþrótta- og útivistarklúbbnum og knattspyrnuklúbbnum er í félagheimilinu Tíbrá við Engjaveg á mánudagsmorgun. Skráning hefst kl. 8:30. Fimleikaklúbburinn hefst kl. 13:00 í íþróttahúsi Sunnulækjarskóla. Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá með því að fara inn á síðuna Sumarnámskeið 2010 í efnisyfirlitinu hér vinstra megin á síðunni.

3.6.2010 | Knattspyrna

Stelpurnar unnu ÍR 5:2

Stelpurnar unnu topplið ÍR-inga sannfærandi á ÍR velli í 1. deildinni í gærkvöldi. Lokatölur leiksins urðu 5-2 eftir að staðan í hálfleik var 2:0 fyrir Selfoss.

2.6.2010 | Handboltaakademía

Ragnarsmótiđ 2010 ţegar orđiđ fullt

Það er ljóst að Ragnarsmótið er orðið vinsælasta undirbúningsmót landsins í handboltanum sem er enn ein rósin í hnappagatið fyrir uppbyggingarstarf handboltans hér á Selfossi. Það hefur aldrei áður verið jafn mikil ásókn í mótið og núna enda varð fullbókað á það núna strax í lok maí. Leikjafyrirkomulagið o.fl má sjá hér að neðan..

2.6.2010 | Kraftlyftingar

Bryndís međ Íslandsmet í réttstöđulyftu

Bryndís_apríl_2010Sunnumótið, sem er kvennakeppni í kraftlyftingum, var haldið fyrir nokkrum vikum á Akureyri. Mótið er svokallað "kjötmót" þar sem keppendur mega aðeins nota belti fyrir bakið og vafninga fyrir hnén. Bryndís Ólafsdóttir, kraftlyftingardeild Umf. Selfoss, tók  þátt í mótinu. Hún gerði sér lítið fyrir og setti Íslandsmet í réttstöðulyftu í flokknum 75-82,5 kg með því að lyfta 127,5 kg.

1.6.2010 | Knattspyrna

Bikarleikur á Skipaskaga kl. 19:15 á fimmtudag

VISA bikarinn lógóNæsti leikur Selfoss er í bikarkeppninni. Þá halda strákarnir upp á Skaga og spila þar við heimamenn í ÍA. Akurnesingar hafa ekki farið vel af stað í sumar frekar en síðasta sumar. Þeir sitja í 11. sæti 1. deildar með 1 stig úr fjórum leikjum. Selfyssingar hafa aftur á móti farið ágætlega af stað og eru í 6. sæti Pepsideildar með 7 stig. Liðin áttust við tvívegis í fyrra og unnu Selfyssingar báða leikina. Það er þó marg sannað að staða liða í deild hefur ekkert með bikarkeppni að gera og ljóst að um hörkuleik verður að ræða á Akranesi á fimmtudag kl. 19:15.

1.6.2010 | Handbolti

Björgvin Ţór Björgvinsson ráđinn ađstođarţjálfari Selfoss

Björgvin Þór BjörgvinssonBjörgvin Þór Björgvinsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla í handknattleik og verður því hægri hönd Sebastians Alexanderssonar þjálfara. Björgvin Þór var aðstoðarþjálfari Fram 2005-2006 þegar liðið varð Íslandsmeistari undir stjórn Guðmundar Þ. Guðmundssonar. Björgvin lék 48 landsleiki sem leikmaður með KA og Fram á árunum 1995-2001,

1.6.2010 | Frálsíţróttir

Fjóla Signý međ brons í sjöţraut á MÍ

Fjóla Signý í grindFjóla Signý Hannesdóttir Umf. Selfoss bætti sinn besta árangur í sjöþraut um 46 stig og hlaut bronsverðlaun að launum á Meistaramóti Íslands í sjöþraut sem fram fór í Kópavogi helgina 29.-30. maí sl. 

1.6.2010 | Frálsíţróttir

Ţrenn gullverđlaun á Vormóti FH

Þrír iðkendur sem æfa með meistaraflokki frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss kepptu á Vormóti FH sem fram fór í Hafnarfirði þann 27. maí sl. þau stóðu sig vel og unnu m.a. þrenn gullverðlaun.

30.5.2010 | Handbolti

Handboltaskóli í sumar

Handknattleiksdeild Umf. Selfoss verður með handboltaskóla fyrir börn á aldrinum 9-13 ára (4.-7. bekkur) í sumar. Fyrra tímabilið verður dagana 7.-25. júní og það síðara 9.-20. ágúst. Æfingar verða í Íþróttahúsi Vallaskóla alla virka daga kl. 10:00-12:00. Þjálfari verður Sigrún Arna Brynjarsdóttir íþróttakennaranemi.

30.5.2010 | Knattspyrna

Keflavík- Selfoss á mánudag kl. 19.15

Pepsi-deild blátt landSelfoss tekur á móti Keflavík í 5. umferð Pepsi-deildarinnar í knattspyrnu. Leikurinn fer fram mánudaginn 31. maí kl. 19.15 á Njarðtaksvelli í Reykjanesbæ. Leikurinn átti að fara fram sunnudaginn 30. maí, en þar sem fyrirliði Keflavíkinga, Haraldur Freyr Guðmundsson, var valinn í Íslenska landsliðið sem lék gegn Andorra, var leiknum frestað um einn dag.

28.5.2010 | Knattspyrna

Knattspyrnudeildinni vantar búslóđ ađ láni eđa gefins

Knattspyrnudeild Selfoss auglýsir eftir c.a einni búslóð sem væri hægt að fá lánaða í sumar. Að sjálfsögðu má þetta allt vera úr sitt hvorri áttinni þ.e ef einhver á ísskáp, örbylgjuofn, eldhúsborð, rúm ofl endilega hringið í Tómas 699-0660 eða Ómar 695-5300. Knattspyrnudeildin þarf þetta eingöngu í sumar, þannig að hægt er að skila dótinu aftur í haust og eins getur knattspyrnudeildin tekið dótið alveg yfir.

28.5.2010 | Knattspyrna

Búiđ ađ fresta leik Keflavíkur og Selfoss fram á mánudag

Pepsi-deild blátt landLeik Keflavíkur og Selfoss hefur verið fresta fram á mánudaginn 31. maí. Leikurinn átti að vera á sunnudag, en frestast vegna þess að fyrirliði Keflavíkur, Haraldur Freyr Guðmundsson var óvænt valinn í landsliðið sem leikur gegn Andorra á laugardag. Leikurinn verður því mánudaginn 31. maí kl. 19.15 á Njarðtaksvelli í Reykjanesbæ.

28.5.2010 | Kraftlyftingar

Ný stjórn í kraftlyftingum

Í gærkvöldi var haldinn fundur í Tíbrá með áhugafólki um kraftlyftingar. Á fundinn mættu m.a. fulltrúar frá stjórn Kraftlyftingasambands Íslands. Þar var kosin ný stjórn kraftlyftingadeildar Selfoss, en hana skipa Bryndís Ólafsdóttir formaður, Sigríður Júlía Wium Hallsdóttir gjaldkeri, Díana Rós Magnúsdóttir ritari og Einar Guðnason og Arnar Már Ólafsson meðstjórnendur.

27.5.2010 | Fimleikar

Selfoss á ţrjá fulltrúa í landsliđsvali hópfimleika fyrir EM í haust

Nú í maímánuði hefur tækninefnd hópfimleika staðið fyrir tveimur opnum landsliðsæfingum unglinga með það að markmiði að velja úrvalshóp fyrir keppni á Evrópumótinu sem fram fer í haust. Um 50 stúlkur mættu á æfingarnar og ljóst að margar efnilegar hópfimleikastúlkur æfa á Íslandi. Stúlkunum, þjálfurum þeirra og félögum er öllum þökkuð þátttakan. Nú hefur THF og þjálfarateymi EM 2010 valið saman 23 stúlkur sem fá tækifæri að æfa í hópnum í sumar og keppa um að komast í fyrsta unglingalandslið Íslands í hópfimleikum.
Selfoss á þrjár stúlkur í hópnum og óskum við þeim innilega til hamingju. Þetta eru þær Eva Grímsdóttir, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Hugrún Hlín Gunnarsdóttir. 

26.5.2010 | Frálsíţróttir

Fjóla Signý međ tvö gull og Anna međ Selfossmet

Anna og ÁsdísFrjálsíþróttadeild Selfoss sendi fjóra keppendur til leiks á JJ-mót Ármanns sem haldið var á Laugardalsvelli þann 25. maí. Anna Pálsdóttir bætti Selfossmetið í spjótkasti enn frekar er hún kastaði til bronsverðlauna með 39,44 m sem er bæting um 52 cm frá fyrra meti hennar. 

26.5.2010 | Frálsíţróttir

Fjóla Signý međ fern verđlaun á Afmćlismóti Breiđabliks

Fjóla Signý Hannesdóttir Umf. Selfoss keppti á Afmælismóti Breiðabliks sem haldið var þann 17. maí s.l. á Kópavogsvelli. Fjóla Signý sigraði í langstökki þegar hún stökk 5,30 m í löglegum vindi og bætti sinn besta árangur um 19 cm. Hún hlaut silfurverðlaun í 100 m hlaupi á tímanum 13,64 sek. Hún hlaut einnig silfurverðlaun fyrir að hlaupa 300 m á tímanum 44,62 sek og setti persónulegt meti. Að lokum kastaði hún kúlunni 8,88 m og hlaut silfurverðlaun að launum.

26.5.2010 | Frálsíţróttir

Anna međ Selfossmet í spjókasti á Vormóti HSK

Anna í spjótkasti 2010Vormót HSK var haldið í Þorlákshöfn miðvikudaginn 19. maí sl. Anna Pálsdóttir sigraði spjótkast með 38,92 m og bætti Selfossmet Ágústu Tryggvadóttur um tæpa 2 metra. Hún kastaði að auki til silfurverðlauna í kringlukasti með 27,43 m.

25.5.2010 | Knattspyrna

Forsala á leikinn í kvöld

Forsala á leik Selfoss og Stjörnunnar verður í Tíbrá á Selfossvelli frá kl. 12.00-17.00 í dag, þriðjudag. Þeir sem kaupa miða í forsölu sleppa auðvitað við biðröðina sem alltaf skapast 10 mínútum fyrir leik. Eins er Selfyssingum bent á að sjálf miðasalan fer fram á tveimur stöðum, þ.e. við Selið norðan megin við völlinn og eins við Fjölbrautaskóla Suðurlands sem er þá við suð-vestur horn vallarins. Það er því góð hugmynd fyrir þá sem þurfa að koma á bíl, að leggja við Fjölbrautaskólann og fara þeim megin inn.

23.5.2010 | Knattspyrna

Selfoss tekur á móti Stjörnunni á ţriđjudaginn kl. 19.15

Pepsi-deild blátt landSelfoss tekur á móti Stjörnunni í 4. umferð Pepsí-deildarinnar þriðjudaginn 25. maí kl. 19.15 á Selfossvelli. Liðin hafa farið vel af stað, Selfoss byrjaði reyndar á því að tapa fyrir Fylki 3-1, en unnu svo KR 1-2 og Hauka 3-0. Stjarnan tapaði líka fyrir Fylki 3-1, en unnu Grindavík og gerðu jafntefli við KR. Liðin eru því bæði í efri hluta töflunnar, Selfoss með 6 stig í 4. sæti og Stjarnan með 4 stig í 5. sæti. Styrkleikar Stjörnunnar hafa verið gervigrasið í Garðabænum svo þeir ættu ekki að vera í vandræðum að fóta sig á gervigrasinu á Selfossi.

21.5.2010 | Frálsíţróttir

Verđlaunaafhending í Grýlupottahlaupinu á morgun laugardag kl. 11:00

Verðlaunaafhending í Grýlupottahlaupinu verður í Tíbrá á morgun, laugardaginn 22. maí kl. 11:00. Veitt verða verðlaun fyrir bestan samanlagðan árangur í fjórum hlaupum. Allir velkomnir. Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss.

19.5.2010 | Knattspyrna

Set og knattspyrnudeild framlengja samning

Set_undirskrift_2010Knattspyrnudeild Selfoss og Set Selfossi hafa gert með sér tveggja ára samstarfssamning. Knattspyrnudeildin og Set hafa starfað saman um nokkurra ára skeið og hefur Set tekið þátt í uppbyggingu fótboltans á Selfossi þann tíma. Set mun áfram styðja myndarlega við knattspyrnuna á Selfossi og taka þátt í þeim uppgangi sem þar er. Set er því einn af sex stærstu styrktaraðilum knattspyrnudeildar ásamt Lögmönnum Suðurlandi, JP lögmönnum, Íslandsbanka, Krás og Krónunni.

19.5.2010 | Knattspyrna

Ćfingar 8. flokks verđa utanhúss

Æfingar hjá 8. flokki í knattspyrnu (litla fótboltaskólanum) hafa nú verið færðar og verða í sumar utanhúss. Æfingarnar verða á miðvikudögum kl. 17:15 - 18:00 á gervigrasvellinum. Flokkurinn er ætlaður börnum sem eru fædd 2004 og 2005.

19.5.2010 | Knattspyrna

Forsala, auka inngangur og ný áhorfendastćđi

Pepsi-deild blátt landForsala á leik Selfoss og Hauka á morgun fimmtudag verður frá hádegi á leikdag og fer hún fram í Tíbrá við íþróttavöllinn. Þeir sem kaupa miða í forsölu sleppa auðvitað við biðröðina sem alltaf skapast 10 mínútum fyrir leik. Eins er Selfyssingum bent á að sjálf miðasalan fer fram á tveimur stöðum, þ.e. við Selið norðan megin við völlinn og eins við Fjölbrautaskóla Suðurlands sem er þá við suð-vestur horn vallarins. Það er því góð hugmynd fyrir þá sem þurfa að koma á bíl, að leggja við Fjölbrautaskólann og fara þeim megin inn.

18.5.2010 | Knattspyrna

Selfoss - Haukar fimmtudag kl. 19.15 á Selfossvelli

Pepsi-deild blátt landSelfyssingar gerðu góða ferð í Frostaskjólið í síðustu umferð er þeir lögðu meistaraefnin í KR að velli 1-2. Þetta eru fyrstu stig Selfyssinga í Pepsi-deildinni. Það þarf ekkert að ræða það en allt liðið stóð sig frábærlega og stuðningsmenn voru stórkostlegir undir stjórn Skjálftamanna. Athygli vakti að í byrjunarliði Selfoss voru 10 af 11 leikmönnum sem komu upp úr yngri flokka starfi félagsins. En eftir svona sæta sigra er það siður sannra sigurvegara að koma sér fljótt niður á jörðina og takast á við næsta verkefni.

17.5.2010 | Frálsíţróttir

Úrslit úr 6. Grýlupottahlaupinu

Sjötta og síðasta Grýlupottahlaupið í ár fór fram laugardaginn 15. maí s.l. Úrslit urðu eftirfarandi:

17.5.2010 | Fimleikar

Fimleikastelpur og strákar međ eitt gull og tvö brons í Eyjum

Fimleika_maí_2010_6176Vormót FSÍ fór fram í Vestmannaeyjum helgina 14.-16. maí. Selfyssingar sendu sex lið til keppni í þremur flokkum. Liðin komu heim með ein gullverðlaun og tvenn bronsverðlaun. Ferðin var mikil lífsreynsla fyrir krakkana því þau lentu m.a. í miklu öskufalli og urðu að vera inni nær allan tímann. Þau þurfu að nota grímur utanhúss þegar þau voru keyrð á milli staða.

17.5.2010 | Frálsíţróttir

Vormót HSK í frjálsum verđur í Ţorlákshöfn miđvikudaginn 19. maí

HSK_merkiVormót HSK í frjálsum íþróttum verður haldið á íþróttavellinum í Þorlákshöfn miðvikudaginn 19. maí n.k. Með mótinu hefst sumartímabil frjálsíþróttafólks. Hér fyrir neðan má sjá helstu HSK-mótin í sumar ásamt tímasetningum samæfinga.

16.5.2010 | Handboltaakademía

Lokahóf yngri flokka handknattleiksdeildar

bikarLokahóf yngri flokka handknattleiksdeildar Umf. Selfoss verður fimmtudaginn 20.maí  í sal Vallaskóla kl. 18-19. Á dagskránni er verðlaunafhending, myndataka og grillveisla. Einnig verður sérstakur heiðursgestur. Á staðnum verður líka mátun á nýjum búningum fyrir næsta keppnistímabil. Foreldrar og forráðamenn eru eindregið hvattir til að mæta með krökkunum.

15.5.2010 | Handbolti

97 liđ Selfoss og KR léku ćfingaleik

Í dag fór fram æfingaleikur milli 1997 liða Selfoss og KR (5. flokkur yngra ár). Síðuritari viðurkennir að hafa sinnt yngstu flokkunum ekki nægilega þennan veturinn og skrifað alltof lítið en úr því verður bætt næsta vetur. Selfoss og KR voru tvö bestu liðin í þessum árgangi í vetur og varð KR Íslandsmeistari. Liðin tóku æfingaleik í Vallaskóla í dag þar sem spilaður var 3 x 15 mínútna leikur. Selfoss vann alla leikhlutana og að lokum 27-23 sigur í bráðskemmtilegum leik. 9 leikmenn Selfoss skoruðu í leiknum og var skemmtilegt að sjá góða liðsheild hjá liðinu.

14.5.2010 | Handboltaakademía

Kynningarfundur vegna Handboltaakademíunnar

fsu_logoÞriðjudaginn 18. maí kl. 20:00 verður kynning í Tíbrá fyrir áhugasama krakka og foreldra þeirra um starf Handboltaakademíunnar. Kynningin er fyrir þá sem hyggja á nám næsta vetur í FSu hvort sem það eru strákar, stelpur , nýnemar eða núverandi nemendur. Einnig fást upplýsingar hjá Sebastian í síma 661 0600.

14.5.2010 | Knattspyrna

Grasrótardagur UEFA

KSI_logoÞann 19. maí næstkomandi stendur UEFA (Knattspyrnusamband Evrópu) fyrir sérstökum Grasrótardegi (UEFA Grassroots Day). Dagurinn 19. maí er ekki valinn af tilviljun, heldur er þessi dagur sérstaklega valinn til að tengja verkefnið úrslitaleik Meistaradeildar UEFA, sem fram fer laugardaginn 22. maí. Með Grasrótardeginum er minnt á að afreksknattspyrna á hæsta þrepi getur ekki þrifist án heilbrigðrar grasrótar í knattspyrnuhreyfingunni.

14.5.2010 | Knattspyrna

KR-Selfoss í Frostaskjólinu á sunnudag kl. 19.15

Pepsi-deild blátt landEftir tap gegn Fylki í fyrsta leik Selfyssinga í Pepsideildinni munu strákarnir halda í Frostaskjólið og leika þar við meistaraefnin í Knattspyrnufélagi Reykjavíkur. KR-ingar voru óheppnir í sínum fyrsta leik, því eftir að hafa yfirspilað Hauka í 75 mínútu misstu þeir tveggja marka forystu niður í jafntefli. Frostaskjólið er líklega skemmtilegasti völlurinn fyrir lið að heimsækja. Þangað mæta yfir 2000 manns á alla leiki og þar er saga íslenskrar knattspyrnu meitluð í hvern múrstein.

 

13.5.2010 | Mótokross

Fundur hjá mótokrossdeild miđvikudaginn 19. maí

Félagsfundur verður haldinn hjá Mótokrossdeild Umf. Selfoss, í félagsheimilinu Tíbrá miðvikudaginn 19. maí kl. 20:00. Þar verður m.a. farið yfir starfið framundan. Nánari upplýsingar veitir Magnús s. 695 2058. Allir sem hafa áhuga á mótokross eru velkomnir.

13.5.2010 | Handbolti

Námskeiđ fyrir handboltaţjálfara 8.-10. júní

HSI_logoDagana 8.-10. júní verður fræðslunefnd HSÍ með þjálfaranámskeið í tengslum við landsleiki Íslands og Danmerkur. Meðal fyrirlesara verða Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands, Ulrik Wilbek, landsliðsþjálfari Danmerkur, Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður og Aron Kristjánsson, þjálfari Íslandsmeistara Hauka.

11.5.2010 | Handbolti

Bingó miđvikudaginn 12. maí og kökusala fimmtudaginn 13. maí

Stelpurnar í 4. flokki kvenna í handbolta verða með bingó í Íþróttahúsi Vallaskóla miðvikudaginn 12. maí kl. 20:00. Fjöldinn allur af flottum vinningum verður í boði eins og t.d. símtæki, handboltar, bakpokar, lambalæri, hársnyrtivörur o.fl. o.fl. Spjaldið kostar 500 kr. og sjoppa verður á staðnum. Stelpurnar munu einnig ganga í hús fimmtudaginn 13. maí og selja nýjar eplakökur frá Guðnabakaríi. Þær vonast eftir góðum viðtökum, en þær eru að safna fyrir ferð á Partille Cup í sumar.

11.5.2010 | Handboltaakademía

Ragnar fékk ţrenn verđlaun á lokahófi HSÍ

handbolti_raggiÁ lokahófi HSÍ um helgina hlaut Ragnar Jóhannsson þrenn verðlaun fyrir frammistöðu sína í vetur. Þá var Sebastian einnig valinn þjálfari ársins í 1. deild auk þess sem að hann fékk tilnefningu sem besti markmaður deildarinnar.

11.5.2010 | Frálsíţróttir

Úrslit úr 5. Grýlupottahlaupinu

Fimmta Grýlupottahlaupið fór fram laugardaginn 8. maí. Úrslit urðu eftirfarandi:

11.5.2010 | Fimleikaakademía

Kastljósiđ í heimsókn á ćfingu hjá fimleikadeild Umf. Selfoss

fimleikastelpur_4749Kastljós RUV kom í heimsókn á æfingu hjá meistaraflokki fimleikadeildarinnar um daginn. Sýnt var frá heimsókninni í Kastljósi í grækvöldi. Árangur deildarinnar í vetur hefur vakið athygli og ekki síst það að hópurinn náði inn á Evrópumótið í hópfimleikum sem haldið verður í Svíþjóð næsta haust. Þá vann hópurinn til silfurverðlauna annað árið í röð á Íslandsmótinu í hópfimleikum um daginn með sigri á Stjörnunni.

10.5.2010 | Knattspyrna

Ćfingar knattspyrnudeildar falla niđur og frítt fyrir iđkendur á völlinn

Lógó SelfossAllar æfingar knattspyrnudeildar falla niður á Selfossvelli á morgun þriðjudag frá kl. 15.00. Æfingarnar fall niður vegna fyrsta leiks Selfoss í Pepsi-deildinni sem hefst kl. 19.15. Þar taka Selfyssingar á móti Fylki. Athygli er vakin á því að allir krakkar sem æfa með Selfossi fá frítt á völlinn og er krakkarnir hvattir til að mæta í vínrauðu.

9.5.2010 | Handboltaakademía

Selfoss međ m.fl. kvenna í handboltanum nćsta tímabil

Selfoss mun senda lið til keppni í meistaraflokki kvenna á næsta keppnistímabili, en m.fl. kvenna hefur ekki verið starfræktur á Selfossi síðast liðin áratug. Stofnfundur m.fl. kvenna var haldinn í síðustu viku, þar mættu flölmargir leikmenn og er mikill hugur í stelpunum. Selfoss hefur verið í fremstu röð í yngriflokkum kvenna undanfarin á og stofnum meistaraflokks rökrétt framhald að því. Stefnt er á að vera í 2.deild næstu tvö árin og reyna svo að taka skrefið í úrvalsdeildina eftir tvö tímabil.

9.5.2010 | Knattspyrna

Fylkir í fyrsta leik í Pepsideildinni

Pepsi-deild blátt landÍ fyrsta leik sínum í efstu deild karla, Pepsi-deildinni í fótbolta, mæta Selfyssingar Fylki, nágrönum sínum úr Árbænum. Leikurinn fer fram á gervigrasinu á Selfossi þriðjudaginn 11.maí og hefst kl. 19.15. Nú má enginn sannur knattspyrnuáhugamaður láta þetta fram hjá sér fara.

8.5.2010 | Knattspyrna

Af framkvćmdum á Selfossvelli

Síðla vetrar var tekin fyrsta skóflustunga að nýrri og langþráðri stúkubyggingu við knattspyrnuvöll Selfoss. Skömmu seinna var hafist handa við gröft og fyllingu. Að undangengnu útboði hefur nú verið samið við Smíðanda um byggingu stúkunnar, þ.e.a.s. uppsteypun hennar, og var undirritaður verksamningur þar um þann 3. maí sl. Áætluð verklok eru 22. júní nk. Þá hefur verið gengið frá pöntun á 750 sætum sem tilbúnar verða í tæka tíð. Þess má geta að sætin verða í vínrauðum félagslit!

7.5.2010 | Handboltaakademía

Lokahóf handknattleiksdeildarinnar

slutt_4746Laugardaginn 1. maí var haldið lokahóf meistaraflokks, 2. flokks og 3. flokks karla ásamt handboltaakademíunni. Um 150 manns mættu í Félagslund í tilefni dagsins. Veitingarnarnar voru stórglæsilegar að vanda og þökkum við Lilju og hennar fólki kærlega fyrir þær. Veislustjóri var Gústaf Lilliendahl og óhætt er að segja að hann hafi verið frábær. 

7.5.2010 | Knattspyrna

Fótboltadagur međ léttum verkefnum á laugardaginn

Pepsi-deild blátt landKnattspyrnuáhugamenn á Selfossi ætla að hittast á laugardaginn og gera sér glaðan dag, grilla saman kjöt frá Krás og fræðast aðeins um komandi sumar. Eftir skipulagða dagskrá munu þeir sem vettlingi geta valdið hengja upp nokkur skilti á girðinguna við gervigrasið. Hér að neðan er skipulögð dagskrá og eru allir hvattir til að mæta og eiga saman góðan dag.

5.5.2010 | Sund

Hrólfur međ besta afrekiđ á Aldursflokkamóti HSK

Aldursflokkamót HSK í sundi fór fram í Þorlákshöfn síðastliðinn laugardag, 1. maí 2010. Mótið tókst með miklum ágætum og litu margar góðar bætingar dagsins ljós hjá okkar sundmönnum. Besta afrek mótsins vann Hrólfur Laugdal Árnason er hann synti 100m skriðsund á tímanum 1:00,90. Fyrir það hlaut hann 571 stig samkvæmt stigatöflu Alþjóða sundsambandsins, FINA.

5.5.2010 | Knattspyrna

Gummi gerir samning

Guðmundur Þórarinsson hefur skrifaði undir sinn fyrsta samning við Selfoss. Gummi Tóta eins og hann er alltaf kallaður er nýorðinn 18 ára og hefur alla tíð leikið með Selfossi. Gummi hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið þrjú tímabil í meistaraflokki. Hefur hann spilað 41 leik með meistaraflokki og skorað í þeim 6 mörk. Eins hefur Gummi verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands. Hefur hann spilað þar 13 landsleiki og skorað 1 mark. Umfs.is óskar Gumma til hamingju með samninginn.

5.5.2010 | Knattspyrna

Upphitun fyrir sumariđ í Tíbrá á laugardaginn

getraunalógóSelfoss-Getraunir bjóða öllum stuðningsmönnum Selfoss að hita upp fyrir sumarið í félagsheimilinu Tíbrá við Engjaveg laugardaginn 8. maí milli kl. 11 og 13. Boðið verður upp á grillkjöt frá Krás og pylsur fyrir börnin. Þjálfarar og fyrirliðar meistaraflokka kvenna og karla fara yfir komandi tímabil og undirbúning þess. Sérstakir gestir verða Pétur Hrafn Sigurðsson og Hjörvar Hafliðason frá Íslenskum getraunum. Jafnframt verða veitt verðlaun fyrir vorleik Selfoss-Getrauna sem lauk um seinustu helgi.

4.5.2010 | Knattspyrna

Selfyssingar unnu Gróttu í síđasta leik fyrir átökin í Pepsideildinni

Selfoss tók á móti Gróttu í seinasta æfingaleik sínum fyrir átökin í Pepsideildinni. Selfoss byrjaði frekar illa í leiknum og náði ekki upp spili í fyrri hálfleik. Leikmenn of mikið að gæla við boltann og menn of mikið að leita að síðustu sendingunni. Gummi Ben talaði menn til í hálfleik og flot leiksins varð mikið betra. Flestum leikmönnum liðsins var skipt inná og var gaman að sjá að það hafði engin áhrif á leik liðsins. Eftir að hafa verið 2-1 yfir í hálfleik unnu Selfyssingar leikinn 4-1 með mörkum frá Davíð Birgis, Sævari Þór, Henning Eyþóri og Inga Rafni. Þeir Henning Eyþór Jónasson og Stefán Ragnar Guðlaugsson leku báðir sinn 50 leik fyrir Selfoss í þessum leik og óskum við þeim til hamingju með það.

3.5.2010 | Knattspyrna

Selfoss tekur á móti Gróttu í kvöld kl. 19.00

Selfyssingar taka á móti Gróttu í síðasta æfingaleik sínum og er leikið í dag mánudag kl. 19.00 á gervigrasinu á Selfossi. Þetta er síðasti leikur Selfoss fyrir fyrsta leik í Íslandsmótinu sem byrjar þriðjudaginn 11. maí. Selfyssingum hefur gengið ágætlega á undirbúningstímabilinu og er klárlega stígandi í liðinu. Síðustu tveir leikir hafa endað með stórsigri, fyrst voru ÍBV teknir 5-0 og svo ÍH úr Hafnarfirði 7-0.

3.5.2010 | Frálsíţróttir

4. Grýlupottahlaupiđ - úrslit

Fjórða Grýlupottahlaupið fór fram 1. maí. Úrslit urðu eftirfarandi:

2.5.2010 | Fimleikar

Selfoss međ átta stelpur á fyrstu landsliđsćfingu í hópfimleikum 13-17 ára

Til stendur að senda fyrsta landslið í hópfimleikum á Evrópumótið næsta haust og mun liðið keppa í yngri flokki eða juniora-flokki. Þann 1. maí fóru átta stúlkur, á aldrinum 13-17 ára, frá deildinni á fyrstu landsliðsæfinguna sem tækninefnd í hópfimleikum stóð fyrir í Gerplu. Ákveðin skilyrði þurfti að uppfylla til að mega sækja æfinguna.

2.5.2010 | Fimleikar

Selfoss HL1 í 2. sćti á Stjörnutrompi

Stelpurnar í hópi HL1, sem er landsreglulið okkar í fimleikum í aldursflokknum 15 ára og eldri, gerðu góða ferð í Garðabæinn 25.apríl sl. Þar kepptu þær á opnu fimleikamóti sem heitir Stjörnutromp og kepptu þar við sjö önnur lið.  Þær stóðu sig mjög vel og hömpuðu silfrinu í samanlögðum stigum á gólfi, dýnu og trampólínæfingum.

2.5.2010 | Knattspyrna

Meistaraflokkur kvenna međ góđan 5-0 sigur á HK/Víkingi

Stelpurnar í meistaraflokki kvenna í knattspyrnu spiluðu síðasta leik sinn í Lengjubikarnum á móti HK/Víkingi í frábæru fótboltaveðri í Fagralundi í dag, sunnudaginn 2. maí. Mikill styrkleikamunur var á liðunum og leikurinn endaði með 5-0 sigri Selfoss sem endaði í 2. sæti riðilsins.

30.4.2010 | Nýjustu fréttir

Grímur Hergeirsson nýr formađur Umf. Selfoss

Lógó SelfossAðalfundur Ungmennafélags Selfoss var haldinn í gær í félagsheimilinu Tíbrá. Mjög góð mæting var á fundinum, en alls mættu 48 af 55 kjörnum fulltrúum, tveir heiðursfélagar, auk fleiri gesta. Lögð var fram vönduð ársskýrsla þar sem fram kom yfirlit yfir starf félagsins og deilda innan þess. Starfið 2009 var mjög öflugt og náðust margir frábærir árangrar bæði íþróttalega og félagslega. Rekstur félagsins gekk vel og voru flestar deildir reknar með rekstrarafgangi.

30.4.2010 | Knattspyrna

Lögmenn Suđurlandi og knattspyrnudeild auka samstarfiđ

Lögmenn SuðurlandsKnattspyrnudeild Selfoss og Lögmenn Suðurlands skrifuðu í gær undir áframhaldandi samstarfssamning. Lögmenn Suðurlands munu áfram vera aftan á búningum hjá bæði strákunum og stelpunum. Samstarfið hefur gengið mjög vel á milli þessara aðila og er nýi samningurinn enn umfangsmeiri en verið hefur síðastliðin ár. 

29.4.2010 | Handbolti

Húsavíkurferđ 5. flokks (myndir)

125. flokkur fór á Húsavíkurmótið um seinustu helgi. Bæði stráka og stelpu flokkarnir fóru á mótið. Ferðin var skemmtileg í alla staði og var okkar fólk var til fyrirmyndar. Hér koma nokkrar skemmtilegar myndir frá ferðinni.

29.4.2010 | Knattspyrna

Strákarnir í 4. flokki í sókn

Undirbúningur fyrir Íslandsmótið hefur gengið vel hjá 4. flokki karla. Eiginlegur undirbúningur byrjaði í desember, en þá var Gummi Garðar þjálfari strákana með Jólamót á hverjum föstudegi, þar sem sömu liðin kepptu út mánuðinn. Þar var svo endað með smá slútti og voru happaþrennur í vinning fyrir sigurliðið. Upp frá því hófst svo stífari dagskrá með æfingaleikjum. Strákarnir tóku æfingaleiki við Fram, Ægir og 3. fl kvenna á Selfossi í febrúar. Faxaflóamótið byrjaði svo í mars og hefur flokkurinn leikið 6 leiki þar. Þrír þeirra hafa unnist og þrír hafa tapast, en greinilegur stígandi er í liðinu og bæting leikmanna mikil á milli leikja. Gaman verður því að fylgjast með þeim í sumar. Hluti af þessum strákum náði 2. sæti á N1 mótinu undir stjórn Gumma Garðars síðastliðið sumar.

28.4.2010 | Knattspyrna

Smíđandi fékk stúkuna

Verktakafyrirtækið Smíðandi bauð lægst í gerð stúkunnar við knattspyrnuvöllinn á Selfossi, það var sunnlenska.is sem greindi frá þessu. Tilboð Smíðanda hljóðaði upp á um 70% af kostnaðaráætlun og hefjast framkvæmdir í þessari viku. Í fyrsta áfanga verður stúkan steypt upp og rúmlega 700 sæti sett í hana. Þetta er eins og almenningur gerir sér grein fyrir enn eitt framfarasporið í þeirri glæsilegu vallaraðstöðu sem er verið að byggja upp við Selfossvöll. umfs.is mun að sjálfsögðu fylgjast með framkvæmdinni og birta myndir þegar við á.

28.4.2010 | Nýjustu fréttir

Ađalfundur Umf. Selfoss verđur fimmtudaginn 29. apríl kl. 20:00

Lógó SelfossAðalfundur Ungmennafélags Selfoss verður haldinn á morgun fimmtudaginn 29. apríl í félagsheimilinu Tíbrá. Fundurinn hefst kl. 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. Einnig verða veittar viðurkenningar til íþróttakarls og íþróttakonu Umf. Selfoss auk viðurkenninga fyrir góð störf í þágu félagsins. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa kjörnir fulltrúar skv. lögum félagsins. Allir félagsmenn og velunnarar eru velkomnir.

28.4.2010 | Handbolti

Silfur og brons á Húsavík

5fl_Húsavík_2010Um síðustu helgi lauk Íslandsmótinu í handknattleik í 5. flokki  kvenna og karla á yngra ári. Síðasta umferðin var leikin á Húsavík og  áttu Selfyssingar þrjú lið á mótinu. Þetta var löng ferð frá  miðvikudegi til sunnudags. Keppt var einhverja leiki alla dagana.

28.4.2010 | Knattspyrna

5. flokkur í knattspyrnu sá stćrsti

5. flokkur karla samanstendur af strákum fæddum 1998 og 1999. Á undirbúningstímabilinu hafa verið tæplega 50 iðkenndur á skrá sem gerir hann að fjölmennasta knattspyrnuflokki sem verið hefur á Selfossi og að sjálfsögðu fjölmennasta flokki innan ungmennafélagsins. Liðið samanstendur af Selfyssingum, Eyrbekkingum, Stokkseyringum og Hvergerðingum. Þessum strákum er síðan skipt upp í A, B, C og D lið þegar keppt er og hafa þeir alltaf náð að manna þessi fjögur lið.

27.4.2010 | Nýjustu fréttir

Íţrótta- og tómstundaskólinn - sumarstarfsmenn

Íþrótta- og útivistarklúbburinn_4Íþrótta- og tómstundaskóli Árborgar og Umf. Selfoss verður starfræktur í sumar eins og verið hefur undanfarin ár. Skólinn er rekinn í samvinnu allra deilda innan UMFS. Stefnt er að því að bjóða upp á fjölbreytt sumarnámskeið fyrir krakka á aldrinum 5-10 ára. Þeir sem hafa áhuga á að starfa við skólann í sumar (f.1994 og eldri) geta sent inn starfsumsókn á umfs@umfs.is. Einnig er hér með auglýst eftir umsjónarmanni skólans. Nánari upplýsingar má fá á skrifstofu félagsins í síma 482 2477. 

27.4.2010 | Taekwondó

Frábćr árangur Selfoss á BS bikarmóti III í Iđu um liđna helgi

Taekwondodeild UMFS náði frábærum árangiri á BS bikarmóti III sem haldið var í Iðu um liðna helgi. Keppendur frá Selfossi og Stokkseyri sópuðu að sér verðlaunum. Þetta mót færði Selfossi í 3. sæti í stigakeppni félaganna. Stefnt er að því að gera enn betur á næsta ári. Úrslitin frá mótinu má nálgast á  http://tkd-selfoss.is

27.4.2010 | Frálsíţróttir

Ţriđja Grýlupottahlaupi fór fram 24. apríl

Þriðja Grýlupottahlaupið fór fram 24. apríl. Úrslit urðu eftirfarandi:

27.4.2010 | Handbolti

Lokahóf handboltans og útskrift úr akademíu

Lokahóf meistaraflokks og handboltaakademíu Selfoss verður haldið laugardaginn 1. maí í Félagslundi í Gaulverjabæ. Á hófinu verða veittar viðurkenningar fyrir árangur vetrarins og jafnframt verður útskrift úr handboltaakademíunni. Húsið opnar kl. 18:00, en borðhald hefst kl. 19:00. Hægt er að kaupa miða við innganginn og kostar hann 2.500 kr.

27.4.2010 | Knattspyrna

Selfoss vann ÍH stórt

Selfyssingar tóku á móti hálf vængbrotnu liði ÍH á gervigrasinu á Selfossi í gær. ÍH byrjaði mun betur og komust í upphafi í tvö góð færi, en eftir það var aldrei spurning hvar sigurinn endaði og þegar Brynjar Elvarsson góður dómari leiksins flautaði til leiksloka höfðu Selfyssingar skoraði sjö mörk gegn engu.

26.4.2010 | Knattspyrna

Sjálfbođaliđa vantar í skemmtilegt og gefandi félagsstarf

Nokkra sjálfboðaliða vantar í skemmtileg verkefni fyrir heimaleiki í sumar. Þeir sem vilja vera með í gefandi starfi í kringum meistaraflokk Selfoss og taka þátt í þeim merkisviðburði er Selfoss spilar í fyrsta sinn meðal þeirra bestu er bent á að hafa samband við Tómas 699-0660. Athugið að verkefnin eru ekki íþyngjandi og verða löguð að hverjum og einum með hans óskum í forgrunni.

26.4.2010 | Knattspyrna

Stelpurnar í 5. flokki í mikilli sókn

Stelpurnar í 5. flokki kvenna hafa verið á 3 æfingum í viku í vetur og hafa 2 æfingar verið á gervigrasinu og 1 í Iðu. Eftir áramót var svo bætt við einni æfingu, 1-2 sinnum í mánuði, þar sem hefur verið t.d. útihlaup eða spilað, m.a. ungar-gamlar, og endað æfinguna á því að allar fái sér smá nesti og síðan farið saman í sund. Stelpurnar hafa verið í kringum 20 að æfa í allan vetur en nú er aðeins að fjölga í hópnum fyrir sumarið. Stelpurnar hafa verið að mæta vel á æfingar og sýna framfarir, bæði sem einstaklingar og lið.

26.4.2010 | Handboltaakademía

Frábćr frammistađa hjá 3. flokki

Á laugardag mættust í úrslitakeppni 3. flokki karla Selfoss og Stjarnan. Þar sem Stjarnan varð deildarmeistari afar verðskuldað áttu þeir heimaleik og  fór því leikurinn fram í Mýrinni. Þessi tvö lið höfðu mæst tvisvar fyrr í vetur og hafði þá Stjarnan betur í bæði skiptin í hörkuleikjum þar sem úrslit réðust ekki fyrr en á lokamínútum.

25.4.2010 | Knattspyrna

3. flokkur á góđu skriđi í fótboltanum

Strákarnir í 3. flokk Selfoss unnu í dag Njarðvík 3-1 og tryggðu sér þar með sigur í sínum riðli í Faxaflóamótinu. Mörk Selfoss skoruðu þeir Ísak Eldjárn Tómasson 2 mörk og Reynir Óskarsson 1 mark. Selfyssingar hafa spilað góða bolta á undirbúningstímabilinu og er markatalan í Faxaflóamótinu 16-1, en auk þess unnu þeir Valsmenn 7-0 í æfingaleik. Ljóst er að Gunni Borgþórs þjálfari strákana er að gera góða hluti, en liðið er mjög jafnt að getu og er virkilega gaman að sjá þá spila þar sem allir vinna fyrir hvern annan. Þessi flokkur fer til Gautaborgar í sumar og keppir það á Gothia-cup ásamt því að leika á Íslandsmótinu.

25.4.2010 | Knattspyrna

Góđur 3-1 sigur á ÍA

Stelpurnar í meistaraflokki Selfoss tóku á móti ÍA í fjórða leik sínum í Lengjubikarnum. Selfoss vann leikinn 3-1 með mörkum frá Guðmundu Brynju Ólafsdóttur sem skoraði tvö og Írisi Sverrisdóttur sem skoraði eitt mark.

24.4.2010 | Knattspyrna

Selfoss tekur á móti ÍH á mánudag kl 18.00

Meistaraflokkur Selfoss tekur á móti ÍH í næsta æfingaleik sínum, en hann fer fram mánudaginn 26. apríl kl 18.00. Selfyssingar sem unnu ÍBV í síðasta leik sínum 5-0 eru að endurheimta þá Einar Ottó og Henning úr meiðslum og því nauðsynlegt fyrir þá að spila. Eftir þann leik, eða kl 20.00 munu strákarnir í 2. flokk Selfoss spila við Laugvetninga, en það eru nemendur ÍKÍ.

24.4.2010 | Knattspyrna

Stelpunar taka á móti ÍA á sunnudag kl 15.00

Stelpurnar í meistaraflokki kvenna spila gegn ÍA sunnudaginn 25. apríl og hefst hann kl 15.00, en leikið er á gervigrasinu á Selfossi. Stelpurnar hafa leikið þrjá leiki í Deildarbikarnum, hafa unnið tvo leiki 5-0 og tapað einum 5-4. Þær eru því með 6 stig eftir þrjá leiki, en ÍA er með 7 stig. Því má búast við hörku leik, en bæði liðin eru mjög ung og efnileg.

24.4.2010 | Fimleikar

Selfossstelpur tryggđu sér sćti á EM í Malmö í haust

Seinni hluti Íslandsmótsins í hópfimleikum fór fram í Ásgarði í kvöld fyrir fullu húsi af áhorfendum.  Mikið var í húfi því lið Selfyssinga og Stjörnunnar börðust um lausa sætið á EM í haust en áður hafði lið Gerplu tryggt sér sæti með sigrum á tveimur síðustu mótum.  

23.4.2010 | Handboltaakademía

3.flokkur leikur í 8-liđa úrslitum á morgun

Strákarnir í 92-liðinu leika við heimamenn í Stjörnunni á morgun kl 16.00. Leikstaður er Mýrin í Garðabæ og verður eflaust um hörkuleik að ræða.

23.4.2010 | Knattspyrna

Fyrsti leikur Einars Ottó í góđum sigri.

Selfyssingar unnu í dag ÍBV 5-0 á gervigrasinu á Selfossi þar sem Einar Ottó spilaði sinn fyrsta leik á þessu ári og skoraði að sjálfsögðu mark í tilefni dagsins. Sigur Selfyssinga var öruggur allan tíman, en mörkin skoruðu þeir Ingi Rafn, Gummi Tóta, Arilíus, Jón Daði og Einar Ottó. Nokkra leikmenn vantaði í leikinn, en þeir Sævar Þór og Davíð Birgis voru lítillega meiddir, Stefán er enn í Monakó, Gunni Borgþórs var að stýra yngri flokkum til sigurs, Jón Guðbrands var víðs fjarri, en mætti þó og gaf eiginhandaráritanir eftir leik og Jón Sveins var að láta skíra son sinn því fallega nafni Sveinn Atli.

22.4.2010 | Fimleikar

Íslandsmótiđ í hópfimleikum seinni hluti á föstudag 23.april

Selfossstelpurnar verða í eldlínunni í Ásgarði í Garðabæ á morgun föstudag þar sem þær berjast um sæti á EM í Svíþjóð í haust.  Keppnin er á milli heimamanna í Garðabæ og Selfyssinga en lið Gerplu hefur þegar tryggt sér sæti á mótinu.  Keppnin hefst klukkan 19:10 og eru áætluð mótslok klukkan 20:30.  Þetta verður sannkölluð fimleikaveisla þar sem sterkustu liði landsins keyra æfingar sínar. Stelpurnar í liði Selfoss þurfa allan þann stuðning og hvatningu sem í boði er til að klára dæmið en þær mæta án eva ákveðnar og einbeittar til leiks. Við hvetjum alla til að fjölmenna í Ásgarð, ÁFRAM SELFOSS!

21.4.2010 | Knattspyrna

Stefán Ragnar leikur annan leik međ varaliđi Monako

Stefán Ragnar Guðlaugsson 19 ára unglingalandsliðsmaður og leikmaður meistaraflokks Selfoss í knattspyrnu, sem æfir með Monako þessa dagana, hefur fengið beiðni um að framlengja dvöl sína hjá félaginu. Þetta kemur fram á mbl.is og sunnlenska.is. Guðmundur Benediktsson þjálfari Selfyssinga sagði í samtalið við sunnlenska.is að Stefán Ragnar væri að heilla Frakkana, en hér má sjá stutt viðtal við hann Guðmund um dvöl þeirra í Frakklandi.

21.4.2010 | Knattspyrna

Fyrirlestur um uppbyggingu efnilegra leikmanna

KSÍ_merkiKnattspyrnuþjálfararfélag Íslands og Knattspyrnusamband Íslands halda fyrirlestur í höfuðstöðvum KSÍ fimmtudaginn 29. apríl kl. 17:00-18:30. Fyrirlesari er Steen Gleie en hann er starfsmaður danska knattspyrnusambandsins. Steen Gleie hefur umsjón með uppsetningu afreksþjálfunar efnilegra leikmanna í Danmörku. Danska sambandið og félögin í Danmörku vinna náið saman að uppbyggingu efnilegra leikmanna og Steen mun útskýra hvernig samstarfinu er háttað og hvaða áhersluatriði unnið er með.

21.4.2010 | Frálsíţróttir

Annađ Grýlupottahlaupiđ fór fram 17. apríl

Annað Grýlupottahlaupið fór fram laugardaginn 17. apríl. Úrslit urður eftirfarandi:

20.4.2010 | Knattspyrna

Knattspyrnudeildin og Krónan gera međ sér samstarfssamning

Krónan_lógó1Knattspyrnudeild Selfoss og Krónan skrifuðu í gær undir samstarfssamning til tveggja ára. Krónan mun vera framan á búningum hjá stelpunum og á brjósti á búningum strákanna. Krónan er nú að láta gera plaköt með meistaraflokkum karla og kvenna á Selfossi og munu leikmenn árita plakötin í Krónunni Selfossi á sumardaginn fyrsta. Þar munu leikmenn liðanna einnig grilla ofan í gesti og gangandi og eins verður hoppukastali og ís fyrir börnin.

19.4.2010 | Fimleikar

Keppnisliđin frá Ísland komust ekki á Norđurlandamótiđ í hópfimleikum

Vegna eldgossins í Eyjafallajökli var öllu flugi til Helsinki aflýst um helgina og því komust lið fimleikadeilda Umf. Selfoss og Gerplu ekki til keppni á Norðurlandamótinu í hópfimleikum sem fram fór laugardaginn 17. apríl í Finnlandi. Þetta var að sjálfsögðu mikil vonbrigði hjá hópnum, þjálfurum, aðstandendum og öllum þeim fjölda sem stendur að fimleikadeild Umf. Selfoss.

18.4.2010 | Knattspyrna

Sigur á Víkingum í síđasta leik í Lengjubikar

Lengjubikarinn_logoSelfyssingar heimsóttu Víkinga í síðasta leik liðanna í Lengjubikarnum. Fyrir leikinn voru liðin jöfn í 4.-5. sæti með 9 stig. Selfyssingar komust yfir í leiknum með marki frá Jóni Guðbrands, en Víkingar jöfnuðu fyrir hlé. Það var svo Henning Eyþór Jónasson sem skoraði sigurmarkið undir lok leiksins. Eitthvað var um forföll í Selfossliðinu, Einar Ottó er enn að jafna sig, Stefán Ragnar er til reynslu hjá Monakó, Sævar Þór var slappur, Ingþór lítillega meiddur og Gummi þjálfari er að nema í Frakklandi.

17.4.2010 | Knattspyrna

Meistaraflokkur kvenna međ sannfćrandi sigur á Fjölni

Stelpurnar í meistaraflokki Selfoss í knattspyrnu sigruðu Fjölni 5-0 í leik sem fór fram í Egilshöll í dag. Þetta var þriðji leikur liðsins í Lengjubikarnum. Sigur liðsins var aldrei í hættu þó að Fjölnir hafi átt sín tækifæri til að minnka muninn.

14.4.2010 | Handbolti

4. flokkur úr leik

A-lið 4. flokks karla lék gegn Fram í gærkvöldi í 8-liða úrslitum Íslandsmót. Selfyssingar náðu sér aldrei á strik og töpuðu 27-21 en áttu þrátt fyrir það fínan möguleika mestan hluta leiksins.

14.4.2010 | Handbolti

Selfoss á ţrjá fulltrúa í 20 ára landsliđinu

u20 handboltastrákarÞessa dagana æfir íslenska landsliðið í handbolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri af miklum móð. Einar Guðmundsson þjálfar liðið og stýrir af festu. Eiga Selfyssingar tvo leikmenn í liðinu, þá Ragnar Jóhannsson sem er örvhent skytta og Árna Stein Steinþórsson, sem er örvhentur hornamaður.

14.4.2010 | Knattspyrna

Selfoss mćtir Víkingi á föstudag

Lengjubikarinn_logoSelfyssingar mæta Víkingi frá Reykjavík í síðasta leik liðanna í Lengjubikarnum í ár. Leikurinn fer fram á gervigrasinu í Víkinni föstudaginn 16. april kl. 19.00. Selfoss og Víkingur eru jöfn í 4.-5. sæti riðilsins með 9 stig. Fyrir ofan þau eru úrvalsdeildarliðin FH, Fram og Valur, en fyrir neðan eru 1. deildarfélögin Leiknir, Fjölnir og KA.

14.4.2010 | Knattspyrna

Stelpunar töpuđu fyrir Ţrótti

Lengjubikarinn_logoStelpurnar í meistaraflokki Selfoss í knattspyrnu töpuðu í kvöld 5-4 fyrir Þrótti frá Reykjavík. Þetta var annar leikur Selfoss í Lengjubikarnum, en Selfyssingar unnu fyrsta leik sinn 5-0. Eftir að Þróttarar höfðu leitt leikinn og verið sterkari framan af komu Selfyssingar meira inn í leikinn og voru þær óheppnar að ná ekki stigi í lokin.

13.4.2010 | Fimleikar

Byrjendamót í hópfimleikum

fimleikar_aprí_3759Að morgni sunnudagsins 11. apríl sl. mættu rúmlega 100 krakkar víðsvegar af landinu í Iðu til að taka þátt í byrjendamóti í hópfimleikum á vegum fimleikadeildar Umf. Selfoss. Keppt var eftir landsreglum og mættu tíu lið til keppni, þar af fimm lið frá Selfossi.

12.4.2010 | Sund

Fínn árangur á vormóti Ármanns

Anna_2010Sundmót Ármanns var haldið í Laugardalslauginni þann 10.-11. apríl s.l. Fjórir keppendur sáu sér fært að keppa og kepptu þau í 10 greinum alls á þremur klukkustundum.  Það bættu sig allir í sundunum þó svo æfingaálagið hafi haldist stöðugt.  Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá Ólöf Eir er farin að bæta sig aftur eftir frekar viðburðalítinn vetur. Allir sundmenn staðna í einhvern tíma á unglingsárunum. Hvenær þessi stöðnun kemur eða hve lengi hún varir er ekki hægt að segja til um enda eru unglingarnir að taka út miklar líkamlegar breytingar, á mismunandi tímum.
Anna Edit Dalmay náði silfrinu í 200m bringusundi í 18 ára og eldri en bætti ekki tíma sinn. Hins vegar bætti hún 200m fjórsundið um 16 sek.

12.4.2010 | Fimleikar

Glćsilegt Íslandsmót á Selfossi

fimleikar_apríl-3746Fyrri hluti Íslandsmóts FSÍ í hópfimleikum fór fram í Iðu á Selfossi laugardaginn 10. apríl sl. Mótshaldari var fimleikadeild Umf. Selfoss. Sigurvegari mótsins var Gerpla en félagið hreppti 6 Íslandsmeistaratitla samanlagt í kvenna og karlaflokki í úrvalsdeild.  það var á gólfi, dýnu og trampólíni báðir flokkar.  Athygli vakti árangur kvennaliðs Selfoss í úrvalsflokki sem átti mjög góðan dag og veitti Gerplu harða keppni á dýnu með glæsilegum æfingum sem gaf liðinu 15,9 í einkunn, aðeins 0,20 stigum lægri en lið Gerplu.

12.4.2010 | Frálsíţróttir

Fyrsta Grýlupottahlaupiđ 2010 var á laugardaginn

Fyrsta grýlupottahlaupið fór fram laugardaginn 10. apríl. Úrslit urðu eftirfarandi:

11.4.2010 | Knattspyrna

Dagar 5 og 6 á Spáni.

Síðasta færslan hér frá Canela á Spáni og strákarnir því alveg að detta heim.

11.4.2010 | Handboltaakademía

3. flokkur kominn í 8-liđa úrslit

Í gær mættust í Víkinni okkar menn í 3. flokki og HK-ingar. Selfyssingar unnu 34-29 eftir að hafa leitt 17-12 í hálfleik. Selfyssingar voru alltaf sterkari og ávallt með forustu í leiknum ef undanskildar eru fyrstu tíu mínútur leiksins.

10.4.2010 | Handbolti

B-liđ 4. flokks hefur lokiđ leik

B-lið 4. flokks karla í handbolta spilaði í umspili á föstudag gegn KA um að komast í úrslitakeppni. Selfoss drengir unnu þar sannfærandi sigur 21-16 og léku þ.a.l. í 8-liða úrslitum í dag gegn deildarmeisturum Stjörnunnar. Þar sýndu strákarnir að þeir eru með hörku lið en Selfoss var yfir nær allan tímann. Framlengja þurfti leikinn eftir mikinn darraðardans og unnu Stjörnumenn að lokum eftir framlenginguna.

10.4.2010 | Knattspyrna

Dagar 3 og 4 á Spáni

Þá heldur áfram ferðasaga knattspyrnumanna frá Selfossi á Spáni. Síðasti hlutinn dettur vonandi inn á mánudagsmorgun.

8.4.2010 | Handboltaakademía

Selfoss komiđ í úrvalsdeild

Loksins, loksins er Selfoss komið aftur í hóp þeirra bestu á Íslandi í handboltanum. Eftir magnaðan leik fyrir framan troðfullt hús af frábærum stuðningsmönnum vann liðið 1. deildina með því að sigra UMFA 27-24 eftir að staðan i hálfleik hafði verið 14-14.

8.4.2010 | Knattspyrna

Námskeiđinu međ Craig Dean frestađ

cd

Upp er komið það vandamál að Craig Dean kemst ekki til landsins til að þjálfa á fótboltanámskeiðinu sem fyrirhugað var á næstu dögum. Ástæðan fyrir því er sú að unglingalið sem Craig er að þjálfa hjá Newcastle er fara að keppa úrslitaleik við unglingalið Chelsea sem ekki stemmdi í að hans lið kæmist í en gott gengi síðustu daga var til þess að liðið er að fara að keppa þennan leik.

8.4.2010 | Fimleikar

Stórmót í Iđu - bestu hópfimleikaliđ landsins keppa

Næstkomandi laugardag, 10. apríl, verður ÍSLANDSMÓTIÐ Í HÓPFIMLEIKUM haldið í Iðu, íþróttahúsi Fjölbrautaskóla Suðurlands. Fyrri hluti móts hefst kl. 10 .30, en þá er keppt til úrslita í landsreglum 1. deild og í 2. flokki Teamgym. Eftir hádegi kl. 14.00 hefst keppni í úrvaldsdeild 1.fl. og mfl. Þar keppa bestu lið landsins í elsta aldursflokki, þrjú kvennalið (Selfoss, Gerpla og Stjarnan) ásamt karlaliði frá Gerplu.

7.4.2010 | Knattspyrna

Dagur 1 og 2 á Canela

Ferðalagið til Canela gekk vonum framar. Helmingur hópsins fór til Faro í Portúgal og keyrðu þaðan yfir til Spánar. Yngri helmingurinn flaug til Sevilla og tóku rútu til Canela. Ferðahugurinn, fulltrúi yngri kynslóðarinnar, fór í fyrsta sinn í gegnum Sevilla og í tilefni þess kvað Hemmi Gunn: Madrid, Köln, Kulusukk, Sevilla.....býður þar mín klamedía.

7.4.2010 | Handbolti

Selfoss - UMFA í kvöld í mfl.

Í kvöld fer fram síðasti leikur Selfyssinga í deildinni. Það eru Mosfellingar er sækja okkar menn heim og úrslit leiksins í kvöld ráða því hvort liðið fer upp í efstu deild næsta tímabil.

7.4.2010 | Frálsíţróttir

Ađalfundur Frjálsíţróttaráđs HSK

HSK_merkiAðalfundar Frjálsíþróttaráðs HSK verður haldinn í Tíbrá, félgsheimili Umf. Selfoss á íþróttavellinum á Selfossi miðvikudaginn 14. apríl nk. kl. 20:00.  Til aðalfundar er boðið fulltrúum frá aðildarfélögum Frjálsíþróttaráðs HSK og stjórn HSK. Sautján aðildarfélög ráðsins eiga samtals rétt á að senda 41 fulltrúa á aðalfundinn. Dagskrá fundarins er hefðbundin, auk þess sem verkefnisstjóri átaksverkefnis ráðsins, Ólafur Guðmundsson mun kynna verkefnið.

6.4.2010 | Knattspyrna

Síđasti mátunardagur unglingaráđs knattspyrnudeildar

Lógó SelfossSíðasti mátunardagur unglingaráðs knattspyrnudeildar vegna búninga fyrir sumarið verður á morgun miðvikudaginn 7. apríl kl: 16:30 - 19:00 í Tíbrá. Gott væri ef að þeir sem að eiga eftir að greiða fyrir búningana gætu komið og gert upp (annars fyrir 10. maí). Það verður að vera búið að greiða búningana áður en þeir verða sendir í merkingu.

6.4.2010 | Handboltaakademía

Nóg um ađ vera í handboltanum

Það var hvergi slegið slöku við í handboltanum um páskana. Nóg var um að vera í handboltanum, margar æfingar sem og leikir. Á Skírdag lék 2. flokkur gegn ÍR í úrslitakeppninni.

4.4.2010 | Knattspyrna

Meistaraflokkur karla heldur til Canela

Spánski_fáninnMeistaraflokkur karla heldur til Spánar í æfingaferð á morgun mánudag þar sem liðið æfir við topp aðstæður á Isla Canela. Um helmingur af hópnum mun lenda í Faro í Portúgal og keyra yfir til Spánar, en hinn helmingurinn mun lenda í Sevilla og fara í rútu til Canela.

4.4.2010 | Knattspyrna

Gumma stóđ sig vel í Rússlandi

Stelpurnar í u-19 ára landsliði Íslands hafa lokið keppni í milliriðli Evrópumótsins í knattspyrnu. Með landsliðinu leikur Guðmunda Brynja Óladóttir, en hún er einungis 15 ára á meðan aðrar stelpur í landsliðunum eru flestar 18 ára.

4.4.2010 | Knattspyrna

Stórsigur hjá stelpunum í fyrsta leik

Lengjubikarinn_logoStelpurnar í meistaraflokki Selfoss í knattspyrnu fóru vel af stað í Lengjubikarnum. Þær léku við Álftanes í fyrsta leik og unnu öruggan sigur 5-0. Selfoss hafði mikla yfirburði í leiknum og hefðu auðveldlega getað skorað fleiri mörk. Þess má geta að aðal markaskorar Selfossliðsins, þær Gumma og Katrín Ýr, voru ekki með.

4.4.2010 | Handboltaakademía

Fyrsti leikurinn í Blakkmann í dag!

Í dag fer fram fyrsti opinberi leikurinn í Íslandsmótinu í blakkmann. Ekki verður selt inn né vænt þess að áhorfendur mæti (nema fólk biðji fallega) en leikurinn verður að öllum líkindum tekinn upp og er aldrei að vita nema síðuritari auglýsi hann til sölu síðar.

31.3.2010 | Handboltaakademía

Sigur gegn Ţrótti

gamla1M.fl. vann Þrótt á útivelli í gær í næst síðustu umferð 1. deildarinnar 23-31. Staðan í hálfleik var 16-15 fyrir Þrótti. Það er því ljóst að um hreinan úrslitaleik gegn UMFA verður að ræða á Selfossi þann 7. apríl um laust sæti í úrvalsdeildinni.

31.3.2010 | Nýjustu fréttir

Ball i Zelsíus fyrir 4.-6 bekk og einnig unglinga 94-97

Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss ætlar að halda böll fyrir börn í 4.-6. bekk og unglinga fædda 94-97 í Zelsíus föstudaginn 9. apríl. Ballið fyrir 4.-6 bekk verður kl. 17:00-19:00. Meðlimir frjálsíþróttadeildar munu halda uppi fjörinu, en það kostar 500 kr. inn. Unglingaballið verður kl. 20:00-23:00. D.J. Óli Geir mun skemmta þeim og þar kostar 1.000 kr. inn. Sjoppa verður á staðnum.

30.3.2010 | Knattspyrna

KSÍ V ţjálfaranámskeiđ haldiđ 23.-25. apríl

KSÍ_merkiHelgina 23.-25. apríl mun Knattspyrnusamband Íslands standa fyrir 5. stigs þjálfaranámskeiði í höfuðstöðvum KSÍ. Þátttökurétt á námskeiðið hafa allir þeir þjálfarar sem eru með KSÍ B þjálfaragráðu og fengu a.m.k. 70 stig í KSÍ B prófinu (UEFA B prófinu). Námskeiðið er upphafið af KSÍ A (UEFA A) þjálfaragráðu.

30.3.2010 | Fimleikar

Gróska í fimleikum á HSK-svćđinu á 100 ára afmćlisári

HSK10 HL5Héraðsmótið í hópfimleikum fór fram í íþróttahúsi Vallaskóla 27. mars 2010. Mótið var fjölmennt að vanda og tókst vel í alla staði. Afmælisbragur var á mótinu í tilefni 100 ára afmæli sambandsins og gaf HSK öllum þátttakendum afmælispenna. Einnig gæddu dómarar, þjálfarar og aðrir starfsmenn mótsins sér á afmælistertu sem bökuð var í Guðnabakarí og vakti það mikla lukku.

30.3.2010 | Knattspyrna

Selfoss tapađi fyrir FH

Lengjubikarinn_logoSelfyssingar tóku á móti FH í Kórnum á sunnudag og var þessi leikur í Lengjubikarnum. Fimleikafélagið vann nokkuð öruggan 0-3 sigur. Íslandsmeistarar í efstu deild sýndu því íslandsmeisturunum í 1. deild um hvað máið snýst.

29.3.2010 | Handboltaakademía

Selfoss-92 í umspil gegn HK

Selfyssingar í 3. flokki A léku síðasta deildarleik sinn sl. laugardag. Stjarnan sótti okkar menn heim og úr varð hörkuleikur. Selfoss leiddi lengi vel og var yfir í hálfleik 17-16. Í síðari hálfleik náðu þeir tveggja marka forustu. Gestirnir reyndust þó sterkari á lokakaflanum og unnu 35-37.

27.3.2010 | Handboltaakademía

Tap í Eyjum

Meistaraflokkur tapaði fyrr í dag fyrir ÍBV í Vestmannaeyjum 32-28. Tapið þýðir að UMFA er komið á toppinn. Síðuritari komst ekki til Eyja með hátt í 20 stuðningsmönnum Selfossliðsins en náði tali af Sebastian Alexanderssyni þjálfara liðsins nú um kvöldmatarleitið...

26.3.2010 | Handboltaakademía

Sigur hjá B-liđi 3. flokks í lokaleiknum

Í gærkvöldi spiluðu strákarnir í 3. flokki B lokaleik sinn í 2. deild gegn Þrótti og unnu þeir  leikinn 26-28. Liðið mun því enda í 4.-5. sæti af 10 liðum með 10 sigra, 1 jafntefli og 7 tapleiki. Þess má geta að 6 lið af 10 í deildinni eru A-lið sinna félaga. Framfarir okkar stráka hafa verið gríðarlegar og lærdómurinn af leikjum vetrarins mikill.

24.3.2010 | Fimleikar

Hérađsmót í fimleikum laugardaginn 27. mars

Héraðsmótið í fimleikum fer fram í íþróttahúsi Vallaskóla laugardaginn 27. mars. Alls eru 26 lið skráð til leiks frá fjórum félögum. Keppnin fer fram í tveimur hlutum. Um morguninn verður keppt í flokki byrjenda og í 5. flokki landsreglna. Innmars er kl. 10:05 og er áætluð keppnislok um kl. 12:30. Eftir hádegi er svo seinni hlutinn, en innmars er kl. 14:30 og eru áætluð mótslok rétt fyrir kl. 16. Í seinni hlutanum keppa 4. og 3. flokkur landsreglna og lið í Teamgymflokki. Á þessu móti munu einnig lið Selfoss og Gerplu keyra æfingar sínar fyrir Norðurlandamótið sem fram fer í Finnlandi 17. apríl. Þetta verður fjölmennt og skemmtilegt mót og hvetjum við sem flesta að koma og horfa á landslið Íslands í hópfimleikum 13-18 ára sýna glæsileg stökk, sem og efnilega fimleikaiðkendur af Suðurlandi sýna listir sínar.   

24.3.2010 | Fimleikar

Ćfingar falla niđur í Baulu (fimleikum) fimmtudaginn 25.mars

Árshátíð Sunnulækjarskóla fer fram í íþróttahúsinu Baulu fimmtudaginn 25.mars.  Þess vegna falla allar fimleikaæfingar niður fimmtudaginn 25.mars. 

24.3.2010 | Handboltaakademía

Tap gegn Val í 3. flokki

Selfoss í 3. flokki (92-liðið) tapaði í gær fyrir Valsmönnum. Leikurin fór fram í Reykjavík og endaði 32-27 og leiddu heimamenn 16-14 í hálfleik. Okkar menn byrjuðu mun betur og komust í 4-1 og höfðu yfir 11-10 en þá komu Valsmenn með fimm mörk í röð. Selfyssingar náðu mest að minnka muninn í tvö mörk en komust ekki nær. Slæmt tap því síðuritari telur að Selfoss eigi að vinna Val að öllu jöfnu. Þetta tap þýðir að möguleikar liðsins á sæti í úrslitakeppni eru orðnir nokkuð litlir.

24.3.2010 | Knattspyrna

Gunni Borgţórs kominn í ţjálfarateymi Selfoss

Selfyssingar gengu á dögunum frá ráðningarsamning við Gunnar Borgþórsson sem þjálfara Selfossliðsins í knattspyrnu. Gunnar mun þjálfa liðið með Guðmundi Benediktssyni og þeim til aðstoðar verður áfram Ómar Valdimarsson. Gunnar hefur verið yfirþjálfari yngri flokka félagsins undanfarin ár og hefur yfirumsjón með Knattspyrnuakademíu Íslands á Selfossi. Við sama tilefni var undirritaður samningur við þá Halldór Björnsson markmannsþjálfara og Kjartan Kárason þrekþjálfara, en þeir hafa báðir starfað með Selfyssingum frá áramótum.

23.3.2010 | Júdó

Fimm Íslandsmeistarar í júdó

judo_mars_1710Íslandsmeistaramótið í júdó fyrir aldurshópinn 11-15 ára (U-13 og U-15) var haldið laugardaginn 13. mars í KA heimilinu á  Akureyri. Tólf keppendur frá UMFS kepptu á mótinu og stóðu þeir sig allir mjög vel. Komu þeir heim með fjölda verðlauna.

23.3.2010 | Handboltaakademía

Örn međ slitiđ krossband

Örn Þrastarson okkar efnilegi miðjumaður meiddist illa í leik gegn UMFA fyrir stuttu. Nú er komið í ljós að um slitið krossband er að ræða sem og fótbrot. Örn er afar harður af sér og var greinilegt er hann lá þjáður á vellinum að eitthvað væri að fyrst hann kveinkaði sér. Hann fer í aðgerð í maí og vonandi verður hann klár sem fyrst næsta tímabil.

22.3.2010 | Frálsíţróttir

Öflugt starf frjálsíţróttadeildar

Aðalfundur frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss var haldinn í gærkvöldi. Í vandaðri ársskýrslu sem var lögð fram á fundinum kom fram að starfið hefur verið mjög öflugt á síðasta ári. Fleiri börn og unglingar æfa nú frjálsar á Selfossi en verið hefur í mörg ár og greinilegt að þjálfarar deildarinnar eru að vinna gott starf. Fjárhagsleg staða deildarinnar er góð og skilaði hún jákvæðri niðurstöðu.

22.3.2010 | Handboltaakademía

Selfoss-stelpur bestar á landinu

5.kvE5Stelpurnar í 5. flokki eldra ár sigruðu í efstu deild 4. umferðar Íslandsmótsins sem fram fór á Selfossi um helgina. Selfoss-stelpurnar unnu alla sína leiki sannfærandi og eru klárlega með besta lið landsins þessa dagana í sínum aldursflokki. Helgina áður höfðu stöllur þeirra á yngra árinu einnig unnið efstu deildina í sínum aldursflokki. Frábær árangur hjá þessum sigursælum stelpum. Systurnar Inga Fríða og Guðfinna Tryggvadætur eru þjálfarar beggja liðanna og hafa gert frábæra hluti með þessar stelpur í vetur.

22.3.2010 | Handboltaakademía

Sigur gegn Val/Ţrótti í 2 flokki

Í gær spilaði A-lið 2. flokks sinn síðasta deildarleik gegn Val/Þrótti og hafði sigur 29-20. Staðan í hálfleik var 15-8 fyrir Selfoss. Það þýðir að liðið endar í 2. sæti í deildinni annað árið í röð aðeins 1 stigi frá deildarmeistaratitlinum þar sem ólíklegt verður að teljast að Akureyri tapi á heimavelli í sínum síðasta leik.

22.3.2010 | Sund

Hrólfur Laugdal sundmađur HSK 2009

Sundnefnd HSK valdi Hrólf Laugdal Árnason úr röðum Sunddeildar Selfoss, sundmann ársins 2009. Hrólfur er vel að þessum titli kominn en val íþróttamanna ársins í einstökum greinum hjá HSK var tilkynnt á héraðsþingi þess í Þingborg 13. mars s.l.

22.3.2010 | Handboltaakademía

93-strákarnir međ góđan leik gegn Gróttu

Strákarnir í Selfoss-2 í 3. flokki unnu í gær gesti sína í Gróttu 35-30, en í hálfleik leiddu gestirnir 15-17. Gróttumenn voru mun sterkari en heimamenn í fyrri hálfleik og hefðu með réttu átt að vera fleiri mörkum en tveimur yfir í hálfleiik. Það var hins vegar annar bragur á okkur drengjum eftir hlé og náðu þeir fljótlega forustu sem þeir létu ekki af hendi.

22.3.2010 | Handboltaakademía

Selfoss-2 í 2.flokki lék nógu vel til ađ vinna en....

B- lið 2. flokks tapaði á laugardaginn fyrir Gróttu 29-30 eftir að staðan hafi verið í hálfleik 16-16. Okkar menn voru alltaf sterkari í leiknum en náðu aldrei meira forskoti en þremur mörkum.

20.3.2010 | Handbolti

4. flokkur spilađi seinustu leiki sína í deild

Bæði liðin í 4. flokki karla léku seinasta leik sinn í deild í dag. B-liðið mætti Fjölni og vann þar sinn annan leik í vetur. Lokatölur urðu 19-15 sigur í ansi furðulegum leik. A-liðið mætti Aftureldingu en tapaði eftir hörkuleik 28-23. Báðir leikir voru á útivelli.

19.3.2010 | Knattspyrna

Skóflustunga fyrir nýrri áhorfendastúku

Lógó SelfossFyrsta skóflustungan að nýrri áhorfendastúkunni við íþróttavöllinn á Selfossi verður tekin sunnudaginn 21. mars kl. 16.00. Við hvetjum alla knattspyrnuáhugamenn sem vettlingi geta valdið til að mæta. Er þar átt við alla iðkendur, yngri sem eldri, ásamt stuðningsmönnum og stjórnarfólki. Nú er tækifæri til að sýna hversu öflug og fjölmenn íþróttahreyfingin er. Við vonumst til að stjórnmálafólkið sem býður sig fram í komandi sveitarstjórnarkosningum og ætlar að láta eitthvað að sér kveða mæti á svæðið.

19.3.2010 | Handboltaakademía

Sigur á ÍR í 1. deildinni

Selfoss er aftur komið á toppinn í deildinni eftir sigur í gærkvöldi gegn ÍR 30-21. Staðan í hálfleik var 17-10 fyrir okkar menn. Sigurinn var fyrirhafnarlítill og hefði vel getað verið miklu stærri.

18.3.2010 | Knattspyrna

Mátunardagar hjá knattspyrnudeild

Lógó SelfossMátunardagar keppnisbúninga yngri flokka knattspyrnudeildar verða þriðjudaginn 23. og miðvikudaginn 24. febrúar. Nýtt fyrirkomulag deildarinnar er þannig að yngstu iðkendurnir þ.e. í 5., 6. og 7. flokki þurfa nú að kaupa keppnisbúninga sína sjálfir. Börnin verða því að eiga sinn keppnibúning sjálf. Gömlu búningarnir verða ekki notaðir í framtíðinni. Deildin skaffar áfram búninga hjá 3. og 4. flokki, en iðkendur þeirra flokka geta jafnframt keypt sér búninga ef þeir vilja. Búningamátunin fer fram kl. 16:30-19:00 áðurnefnda daga.

18.3.2010 | Handboltaakademía

Ćfingar hjá U16 kvenna í handbolta

Búið er að velja úrtakshóp U-16 ára landsliðs kvenna og karla í handbolta og munu hóparnir æfa dagana 29.-31. mars í íþróttahúsinu Kórnum í Kópavogi. Í kvenna-hópnum eru fjórar stelpur frá Selfossi þær Kristrún Steinþórsdóttir, Birta Antonsdóttir, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Díana Sigmarsdóttir. Hjá stráknum eru það þeir Gísli Axelsson, Janus Daði Smárason og Gísli Örn Þórisson sem eru í landsliðshópnum.

18.3.2010 | Handboltaakademía

Andri Már í ađgerđ

Andri Már Sveinsson einn af okkar efnilegu leikmönnum fór í aðgerð á hné vegna krossbandsslits nú í vikunni og var aðgerðin vel heppnuð að sögn. Andri hefur því ekki verið alveg aðgerðarlaus þessa vikuna. Vonandi nær Andri sér sem fyrst en það getur tekið um hálft ár að ná sér af svona meiðslum.

18.3.2010 | Knattspyrna

Selfoss mćtir Val á föstudag

Selfoss tekur á móti Val frá Reykjavík á föstudaginn kl. 19.00 og verður spilað í Egilshöll. Þessi leikur er í Lengjubikarnum og er þetta 5. leikur Selfoss í keppninni. Þeir byrjuðu á því að tapa fyrir Fram og unnu svo KA, Fjölni og Leikni og eru því með níu stig. Valur er í 5. sæti riðilsins með 4 stig eftir þrjá leiki. Allir Selfyssingar eru hvattir til að mæta á leikinn. Þess má þó geta að hann verður í beinni útsendingu á sporttv.is fyrir þá sem ekki komast.

16.3.2010 | Knattspyrna

Selfoss vann Leikni í Lengjubikar

Lengjubikarinn_logoSelfyssingar unnu sinn þriðja sigur í röð í Lengjubikarnum og eru nú í 2. sæti síns riðils með níu stig. Að þessu sinni unnu þeir Leikni úr Breiðholti 2-1 með mörkum frá Andra Frey og Jóni Guðbrands. Sigurinn var nokkuð öruggur, þó svo að Selfyssingar hafi hleypt Leiknismönnum óþarflega mikið inn í leikinn í restina.

15.3.2010 | Frálsíţróttir

12 Íslandsmeistaratitlar á MÍ 14 ára og yngri

MÍ 11-14 mars 2010 182Meistaramót Íslands 11 -14 ára fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardalnum helgina 13.-14. mars sl. HSK-Selfoss sendi 62 keppendur til leiks í sameiginlegu liði og stóðu krakkarnir sig mjög vel og lentu í 2. sæti í heildarstigakeppni mótsins með 427 stig. ÍR sigraði með 571 stig og FH lenti í 3. sæti með 289 stig. Lið HSK-Selfoss sigraði stigakeppnina í flokkum 14 ára telpna og 11 ára stelpna, lenti í 2. sæti hjá 13 ára telpum og 11 ára strákum og að lokum lenti lið 13 ára pilta í 3. sæti.

15.3.2010 | Handbolti

Góđur árangur hjá 5. flokki kvenna

5.fl.kvenna mars 2010Stelpurnar í 5. fl. kvenna A-liða unnu 4 leiki um helgina, gerðu eitt jafntefli og enduðu með gullið. Liðið hefur verið mjög stígandi í vetur og sýndu þær um helgina hvað þeim hefur farið gríðarlega fram. Varnarleikurinn sem þær spiluðu var líkt við meistaraflokkstakta og bakvið vörnina var frábær markvarsla.

15.3.2010 | Handboltaakademía

Sigur á móti ÍR í 2. flokki

Í gær vann Selfoss ÍR í 1. deild 2. flokki á heimavelli 48-33, en staðan í hálfleik var 23-18 fyrir okkar menn. Enn einn stórsigurinn á heimavelli í vetur. Eftir 3 góða útisigra undanfarið þar sem góð vörn og slök sókn var einkennandi þá sprakk liðið út sóknarlega að þessu sinni.

15.3.2010 | Handboltaakademía

93-gengiđ vann Hörđ

Á laugardaginn unnu okkar menn í Selfoss-2 í 3.flokki Harðarmenn frá Ísafirði 46-30 eftir að hafa leitt í hálfleik 25-15.

15.3.2010 | Handboltaakademía

Öruggur sigur 91 drengjanna gegn UMFA

Selfoss-2 í 2. flokki mætti UMFA-1 í gær á Selfossi og hafði sigur 42-27, en heldur illa gekk hjá okkar mönnum að slíta sig frá gestunum. Í hálfleik stóð 19-15.

14.3.2010 | Handbolti

4. flokkur vann ÍR

A-lið 4. flokks karla lék sinn seinasta heimaleik í deild á laugardaginn er liðið fékk ÍR í heimsókn. Selfoss var mun öflugara í leiknum og vann 32-24 sigur en heimamenn leiddu 18-12 í hálfleik. Selfoss vann því alla 8 heimaleiki sína í vetur í deild og tókst ætlunarverk sitt á því sviðinu.

14.3.2010 | Fimleikar

Góđur árangur á Bikarmóti FSÍ

Bikarmót FSÍ var haldið sl. laugardag í Garðabæ. Selfoss gerði góða ferð á mótið. HM2 sigraði í 1. flokki með 41,800 stig. Í 2. flokki varð HM3 í 2. sæti með 38,833 stig. Glæsilegur árangur hjá yngri stelpunum í deildinni. Í meistaraflokki var HM1 í 3. sæti með 43,467 stig. Nánar verður fjallið um mótið á síðu Umf. Selfoss í Dagskránni næstkomandi fimmtudag.

12.3.2010 | Handboltaakademía

Tap hjá 3 fl. B fyrir HK á útivelli

Í gærkvöldið tapaði B-liðið, 34-24, fyrir A liði HK í 2. deildinni í 3 flokki. A lið HK og Hauka eru afgerandi sterkust í 2 deild og því var fyrirfram ljóst að um erfiðan leik yrði að ræða.

12.3.2010 | Knattspyrna

Fjörugt fótboltastarf hjá yngstu krökkunum

Öskudagur 8.flÖflugt starf hefur verið í kringum yngstu krakkana í 8. flokki í fótbolta, en sá flokkur er starfræktur allt árið. Gunnar Borgþórsson er aðalþjálfari flokksins ,en með honum eru að öllu jöfnu 4 til 8 aðstoðarmenn og -konur.  Í flokknum eru bæði strákar og stelpur sem æfa ýmist saman eða aðskilin. Yfir vetrartímana er ein æfing í viku, en á sumrin æfa krakkarnir tvisvar í viku.

12.3.2010 | Knattspyrna

Endanlega búiđ ađ samţykkja stúkubyggingu

Í gær var samþykkt í bæjarráði að hefja framkvæmdir við nýja stúku við Selfossvöll. Þar með er það orðið öruggt að Selfyssingar fá alvöru 700 manna stúku við aðalvöll sinn sem verður tilbúin í júlí. Áætlað er að ljúka við jarðvegsframkvæmdir þann 25. mars og að stúkan verði tilbúin uppsteypt í júní. Allir þeir sem að einhverju leiti komu nálægt þeirri ákvörðun eiga mikið hrós skilið. Nauðsynlegt er þó að hrósa sérstaklega  bæjarstjórn Árborgar sem hefur unnið í samvinnu við knattspyrnumenn að öllu verkinu og eins Tómasi Ellert Tómassyni sem á hugmyndina og teiknaði stúkuna.

12.3.2010 | Knattspyrna

Selfoss mćtir Leikni í Egilshöll í kvöld

Lengjubikarinn_logoSelfoss tekur á móti Leikni úr Breiðholti föstudaginn 12. mars kl. 19.00 í Egilshöll. Leikurinn er fjórði leikur Selfyssinga í Lengjubikarnum í ár, en þeir eru með sex stig úr þrem leikjum. Sitja í 2.-4. sæti riðilsins ásamt FH og Víkingi frá Reykjavík. En á toppnum sitja Framarar með 10 stig úr fjórum leikjum. Leiknismenn eru enn án stiga eftir tvo leiki, en hafa tapað þeim báðum með einu marki.

12.3.2010 | Knattspyrna

Kjartan Sigurđsson í Selfoss

Varnarmaðurinn Kjartan Sigurðsson frá Birtingarholti gekk í gær til liðs við Selfoss. Kjartan, sem er fæddur 1989 og spilaði með Fram í 3. og 2. flokki lék alla leiki Hamars frá Hveragerði á síðustu leiktíð. Kjartan stóð sig mjög vel hjá Hamri og var lykilleikmaður þar og m.a. fyrirliði liðsins í nokkrum leikjum.

11.3.2010 | Handbolti

Síđasti heimaleikur 4. flokks

4. flokkur karla leikur sinn seinasta heimaleik í deild um helgina er A-liðið mætir ÍR. Leikurinn fer fram á laugardaginn kl. 14:00 í Vallaskóla. Strákarnir í A-liðinu hafa unnið alla 7 heimaleiki sína í vetur og stefna að því að vinna þann áttunda á laugardaginn.

11.3.2010 | Fimleikar

Bikarmótiđ í hópfimleikum um helgina

Meistarahópur_mars_2010Laugardaginn 13. mars nk. verður bikarmót FSÍ haldið í Ásgarði, íþróttahúsi Stjörnunnar í Garðabæ. Mótið er tvískipt. Fyrri hluti mótsins hefst  kl. 10:40 með keppni í 1. og 2. flokk úrvalsdeildar. Keppni í meistaraflokki úrvaldsdeildar hefst kl. 15.00. Fimleikadeild Umf. Selfoss skorar á iðkendur í fimleikadeildinni og fjölskyldur þeirra sem og Sunnlendinga alla að fjölmenna á mótið.

11.3.2010 | Handboltaakademía

92 vann í gćrkvöld

Framarar úr Safamýri renndu austur fyrir fjall í gærkvöld og öttu kappi við okkar menn í 92-liði Selfoss. Gestirnir voru sterkari lengstum og höfðu ávallt frumkvæðið í leiknum.

9.3.2010 | Knattspyrna

Eva og Guđrún valdar á landsliđsćfingar

Þær Eva Lind Elíasdóttir og Guðrún Arnardóttir voru valdar til að æfa með u-16 ára landsliði Íslands. Þetta er í fyrsta sinn sem þær eru valdar og óskum við þeim til hamingju með það. Æfingar eru laugardaginn 13. og sunnudaginn 14. mars í Kórnum og í Egilshöll. Landsliðsþjálfari stelpnanna er Þorlákur Árnason, en það er Guðmundur Sigmarsson sem þjálfar þær á Selfossi.

9.3.2010 | Knattspyrna

Íslandsbanki ađalstyrktarađili knattspyrnudeildar

Undirritun Íslandsbanki mars 2010Í dag var í félagsheimilinu Tíbrá skrifað undir samning þar sem Íslandsbanki verður aðalstyrktaraðili knattspyrnudeildar Umf. Selfoss næstu tvö árin. Samkvæmt honum mun Íslandsbanki styðja knattspyrnudeild Umf. Selfoss í íþróttalegu og uppeldislegu hlutverki sínu á Selfossi. Við sama tækifæri var einnig skrifað undir samning á milli aðalstjórnar Umf. Selfoss og knattspyrnudeildar um rekstur íþróttavallarsvæðisins við Engjvag2010.

8.3.2010 | Handboltaakademía

Góđur leikur hjá 92 en dugđi ţví miđur skammt

Í gær sóttu okkar menn í Selfoss-1 í 3. flokki Stjörnumenn heim í Garðabæinn. Leikurinn var hraður og mjög fjörugur og óhætt að segja að hiti hafi verið í húsinu og þá aðallega heimamönnum sem sættu sig ekki við mótspyrnu gesta sinna. Leikurinn endaði 38-34 fyrir Stjörnuna en okkar menn leiddu 21-18 í hálfleik.

8.3.2010 | Handboltaakademía

93-liđiđ vann Víking heima

Heimamenn í Selfoss-2 í 3. flokki unnu í gær gesti sína úr Fossvoginum örugglega 39-26. Í hálfleik stóð 18-11.

8.3.2010 | Handboltaakademía

Sigur á móti FH í 2 fl. á útivelli

A-lið 2 fl. virðist vera að taka við sér þessa dagana. Þeir unnu sinn 3 útileik í röð á laugardaginn þegar þeir unnu FH 21-23 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 11-11. Liðið er nú tímabundið í efsta sæti deildarinnar en það mun breytast þar sem Haukar og Akureyri eiga inni leiki á Selfoss

8.3.2010 | Júdó

Tveir Íslandsmeistaratitlar í júdó

Íslandsmeistaramótið í Judo U17 og U20 fór fram laugardaginn 6. mars og fóru 5 keppendur frá Umf. Selfoss. Árangur þeirra var mjög góður en alls komum þeir heim með tvö gull, eitt silfur og þrjú brons.

8.3.2010 | Handboltaakademía

Fyrsta tap ársins hjá 91

Strákarnir í Selfoss-2 í 2. flokki þurftu að játa sig sigraða gegn Fram í Safamýri á laugardaginn síðastliðinn. 36-34 endaði leikurinn eftir að staðan var 19-16 í hálfleik fyrir heimamenn.

8.3.2010 | Knattspyrna

Selfoss vann Grindavík 2-1

Selfoss og Grindavík spiluðu æfingaleik í Kórnum í dag. Selfyssingar unnu leikinn 2-1 eftir að hafa lent undir. Þetta er þriðji sigurleikur Selfyssinga í röð og hafa margir góðir punktar komið fram í hverjum leik, sem hægt er að vinna með. Selfoss var heilt yfir sterkara lið í þessum leik, þó svo að leikurinn hafi verið nokkuð kaflaskiptur. Nokkra leikmenn vantaði í bæði lið og gerði Gummi Ben tilraunir með Selfossliðið í þessum leik.

7.3.2010 | Handbolti

Sigur og jafntefli hjá 4. flokki

Bæði liðin í 4. flokki karla léku gegn KA í Vallaskóla í gær. Síðuritari brá sér á völlinn en Selfoss náði í þrjú stig að þessu sinni. A-liðið vann 33-31 sigur eftir að hafa leitt 17-13 í hálfleik. B-liðið gerði jafntefli 26-26 í afar dramatískum leik en þeir voru 10-12 undir í hálfleik.

6.3.2010 | Handboltaakademía

Sigur á Fjölni í 1. deildinni

Í gærkvöldi unnu Selfyssingar Fjölni 34-17 í 1. deildinni og eru því enn efstir í deildinni stigi á undan Aftureldingu sem vann Víking í gær. Staðan í hálfleik var 16-8 fyrir Selfoss.

 

5.3.2010 | Knattspyrna

Knattspyrnumenn ganga til liđs viđ Krabbameinsfélagiđ

Á morgun laugardag munu fótboltastrákarnir í meistaraflokki Selfoss selja yfirvaraskegg til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Þetta átaksverkefni krabbameinsfélagsins er sérstaklega gert til að vekja athygli á krabbameini karlmanna. Knattspyrnumennirnir verða í Bónus, Krónunni og á kjörstað í Vallarskóla og selja þar yfirvaraskeggið. Yfirvaraskeggið kostar 1.500 kr. og að sjálfsögðu rennur allur ágóði til styrktar krabbameinsveikum. Fólk er að eindregið hvatt til að styrkja gott málefni og splæsa í yfirvaraskegg.

5.3.2010 | Knattspyrna

Selfoss mćtir Grindavík í Kórnum á sunnudag

Selfoss mætir Grindavík sunnudaginn 7. mars kl 10.30 í Kórnum Kópavogi. Um æfingaleik er að ræða og má búast við að fleiri leikmenn fái spilatíma heldur en í leikjum Lengjubikarsins.

5.3.2010 | Knattspyrna

Selfoss vann Fjölni 2-1 í Lengjubikarnum

Lengjubikarinn_logoSelfoss tók á móti Fjölni í 3. umferð Lengjubikarins í knattspyrnu í gær. Fyrir leikinn voru bæði lið með þrjú stig eftir tvo leiki. Fjölnismenn féllu niður í 1. deild s.l. sumar, en Selfyssingar fóru upp í úrvalsdeild á sama tíma og því ljóst að stefndi í skemmtilegan leik. Þetta var fyrsti leikur á vegum KSÍ sem leikinn er utandyra á þessu ári og var veðrið vægast sagt frábært, logn, þriggja stiga hiti og úði á köflum.

5.3.2010 | Knattspyrna

Ný 700 manna stúka viđ Selfossvöll

Stúka á SelfossiÍ næstu viku verða hafnar framkvæmdir við 700 sæta stúku við aðalvöllinn við Engjaveg. Nýja stúkan verður um 50 metra löng og með 10 sætaröðum. Í fyrsta áfanga verður stúkan steypt upp og 700 sæti sett í hana, blaðamannaaðstaða verður fullbúin ásamt salernisaðstöðu fyrir áhorfendur.

3.3.2010 | Handboltaakademía

2. fl. vann Víking á útivelli

2. fl. A-lið eða Selfoss 1 eins og þeir heita hjá HSÍ unnu sinn annan útileik í röð í gærkvöldi gegn Víkingi 22-29, en fyrir leikinn voru Víkingar í efsta sæti deildarinnar. Liðið á einn útileik eftir á laugardaginn og vonandi tekst þeim að landa sigri þar líka.

3.3.2010 | Sund

Ađalfundur Sunddeildarinnar: Ţrír nýir stjórnarmenn

Aðalfundur Sunddeildar Umf. Selfoss var haldinn í gærkvöldi. Í skýrslu stjórnar kom fram að starfið hefur verið með ágætum á árinu og árangur iðkenda fer stöðugt batnandi. Rætt var um fjáraflanir, keppnisferðir, þjálfun, foreldra- og félagsstarf, búningamál o.fl. Reikningar deildarinnar voru lagðir fram ásamt fjárhagsáætlun þessa árs. Fram kom að Sunddeild var rekin með tapi síðasta ár eins og áætlanir gerðu ráð fyrir. Staða deildarinnar er góð þrátt fyrir taprekstur síðasta árs en gert er ráð fyrir hagnaði á þessu ári.

2.3.2010 | Knattspyrna

Fyrsti heimaleikur í fótboltanum á fimmtudag

Lengjubikarinn_logoMeistaraflokkur Selfoss mætir Fjölni í Lengjubikarnum á gervigrasinu á Selfossi fimmtudaginn 4. mars í fyrsta heimaleik liðsins á þessu ári. Leikurinn hefst kl. 19.00. Strákarnir hafa leikið tvo leiki í Lengjubikarnum í ár, töpuðu fyrir Fram, en unnu KA. Þessi leikur átti að vera í apríl, en var flýtt um mánuð og er því nauðsynlegt hjá öllum knattspyrnuáhugamönnum að láta vita af þessum leik.

1.3.2010 | Sund

Góđar bćtingar á Selfossmeistaramótinu í sundi 2010

S.l. laugardag stungu 24 sundmenn sér til sunds í Sundhöll Selfoss á Selfossmeistarmótinu í sundi 2010.  Mikið var haft fyrir því að hafa mótið löglegt. Þrír dómarar frá Sundsambandi Íslands komu til að dæma ásamt Selfyssingunum  Ingibjörgu Laugdal og Sigurlínu Garðarsdóttur, en þær eru báðar löggiltir dómarar.  Tímaverðir voru gamlir sundmenn og –konur sem voru svo almennileg að aðstoða Sunddeildina við góða tímatöku.

Keppt er m.a. um veglegan farandsbikar sem veittur er fyrir besta árangur samkv. stigatöflu FINA. Í ár hreppti Hrólfur Laugdal Árnason bikarinn fyrir 100m skriðsund á tímanum 1:00.88 sem gefur 571 stig. Hann hefur bætt sig um 21 stig síðan 2009 þó svo heilt sundár sé eftir. Til samanburðar gefur heimsmet 1.000 stig.

1.3.2010 | Fimleikar

Free Running / Parkour slćr í gegn

Free_Running_2010Í síðustu viku byrjuðu Free Running / Parkour æfingar á vegum fimleikadeildar Selfoss. Tæplega 60 krakkar, aðallega strákar, á aldrinum 11 - 19 ára, mættu á fyrstu æfinguna og sáust mörg góð tilþrif. Vegna þessarar miklu aðsóknar varð að skipta hópnum niður á tvo daga og munu æfingar framvegis vera á miðvikudögum kl. 16:45 - 18:15 fyrir börn fædd 1998 - 1999 og á föstudögum frá 17:45 - 19:15 fyrir þá sem eru fæddir 1997 og fyrr. Bræðurnir Orri og Þór Davíðssynir eru þjálfarar hópanna.

1.3.2010 | Fimleikar

Gull á byrjendamóti í hópfimleikum

Laugardaginn 27. febrúar s.l var haldið byrjendamót í hópfimleikum í Þorlákshöfn. Sextán lið frá níu félögum voru skráð til leiks. Selfoss átti eitt lið á mótinu, Selfoss HB1. Sá hópur samanstendur af 15 stúlkum fæddum árið 2001. Stelpurnar sýndu glæsilegar æfingar á öllum áhöldum og voru sínu félagi til mikils sóma.

1.3.2010 | Knattspyrna

Langţráđur sigur í Lengjubikarnum

Selfyssingar spiluðu sinn annan leik í Lengjubikarnum í ár og unnu KA 1-0 og var það Jón Guðbrandsson sem skoraði markið. Þetta er að mörgu leiti merkilegur sigur því þetta er fyrsti sigurleikur Selfyssinga í Lengjubikarnum í næstum 3 ár, eða síðan að þeir unnu ÍR 1-3 með mörkum frá Einari Ottó, Ingó Tóta og Arilíusi þann 15. april 2007.

26.2.2010 | Knattspyrna

Ćfingar knattspyrnudeildar samkvćmt tímaáćtlun í dag

Allar æfingar hjá knattspyrnudeild UMF Selfoss verða samkvæmt áætlun í dag, föstudag. Gervigrasvöllurinn er ónothæfur en þjálfarar fara með krakkana inn í lyftingarsali og íþróttasali eins og pláss leyfir. Nánari upplýsingar veita þjálfarar og bloggsíður viðkomandi flokka. 

26.2.2010 | Knattspyrna

Selfoss tekur á móti KA í Akraneshöllinni á morgun laugardag

Lengjubikarinn_logoSelfoss leikur sinn annan leik í Lengjubikarnum laugardaginn 27. feb kl. 13.00 og verður leikið í Akraneshöllinni. Eins og undanfarin ár má búast við skemmtilegri viðureign þessara liða. Í síðasta leik voru þeir Sævar Þór, Henning, Einar Ottó, Ingó Tóta og Gummi Ben. ekki með. Ljóst er að Ingó kemur aftur inn, en ólíklegt er að aðrir leiki eitthvað.

25.2.2010 | Fimleikar

Mikil ásókn í Free running

Vegna mikillar aðsóknar í free running verður hópnum skipt upp í tvennt.  Krakkar fæddir 1998 og 1999 verða á miðvikudögum frá 16:45-18:15 en krakkar fæddir 1997 og fyrr (13 ára og eldri) verða á föstudögum frá 17:45-19:15.  Tímarnir eru í Baulu Sunnulækjarskóla og kennarar eru Orri og Þór Davíðssynir. 

25.2.2010 | Knattspyrna

Allar knattspyrnućfingar falla niđur í dag

Allar knattspyrnuæfingar falla niður í dag fimmtudag vegna veðurs og vallaraðstæðna. Staðan verður tekin aftur á morgun föstudag og í framhaldinu koma frekari upplýsingar fyrir hádegi föstudag á vefinn umfs.is.

25.2.2010 | Knattspyrna

Búiđ ađ draga í bikarkeppni KSÍ

Visa-bikarinn-50áraDregið var í bikarkeppni KSÍ í gær. Stelpurnar í meistaraflokki fara suður með sjó og leika við Keflavík í 2. umferð bikarkeppni KSÍ. Selfoss situr hjá í fyrstu og leika því við Keflavík á Sparisjóðsvellinum þann 5. júní. Stelpurnar verða að teljast nokkuð heppnar með dráttinn, þó Keflvíkingar séu verðugir andstæðingar þá er ferðalagið þangað stutt.

22.2.2010 | Handboltaakademía

Selfoss-2 vann ÍBV í 2. flokki

Selfyssingar í 91-liðinu svokallað unnu ÍBV í gær örugglega 31-22 eftir að hafa leitt í hálfleik 17-10. Sigurinn var aldrei í hættu en frekar mikið vantaði upp á leikgleði drengjanna svo ekki sé fastara að orði kveðið.

22.2.2010 | Knattspyrna

Selfoss tapađi fyrir Fram

Selfoss tók á móti Fram í fyrsta leik sínum í Lengjubikarnum. Selfyssingar byrjuðu betur og komust yfir með marki Jóns Daða og voru þeir óheppnir að vera ekki yfir í hálfleik. Framarar voru svo betri í seinni hálfleik og unnu leikinn 3-1.

22.2.2010 | Handboltaakademía

Loksins sigur á útivelli hjá 2 fl. A liđ

Loksins kom útisigur í deildinni hjá 2 fl. A liði síðasta laugardag. Sigur vannst á HK 23-37 en staðan í hálfleik var 12-20. Ragnar og Eyþór voru ekki með og Einar spilaði mjög lítið. Aðrir leikmenn stóðu sig vel. Liðið náði upp í 4-5 sæti með þessum sigri og eygir nú möguleika á úrslitakeppninni ef þeir ná að fylgja þessu eftir.

22.2.2010 | Handboltaakademía

Sigur á Víkingi í 1. deildinni

Þriðja umferðin í 1. deildinni hófst síðasta föstudagskvöld. Selfoss byrjaði hana á útileik á móti Víkingum. Leikurinn vannst 27-33. Í hálfleik hafði staðan verið 11-13 fyrir okkar menn. Sigurinn var mikilvægur enda Víkingar með gott lið.

22.2.2010 | Knattspyrna

Selfoss vann Val 8-0 í 3. flokki

Nú er undirbúningstímabilið í knattspyrnu í fullum gangi og voru nokkrir leikir spilaðir um helgina. Strákarnir í 3. flokki virðast vera í ágætis formi en þeir unnu Val frá Reykjavík 8-0. Eins og tölunar sýna var leikurinn mjög ójafn og er Gunnar Borgþórsson greinilega að gera góða hluti með strákana.

22.2.2010 | Knattspyrna

Strákarnir í 4. flokki unnu Grindavík 14-0

Strákarnir í 4. flokki í knattspyrnu fara mjög vel af stað á þessu ári. Fyrsti leikur þeirra í Faxaflóamótinu var gegn Grindavík og unnu þeir leikinn með 14 mörkum gegn engu. Strákarnir spiluðu mjög vel í leiknum og er ljóst að Guðmundur Garðar Sigfússon þjálfari þeirra er að gera góða hluti með þá.

22.2.2010 | Handboltaakademía

3. flokkur B lék heima gegn Haukum A

Á laugardag tóku heimamenn í 3. flokki B á móti Haukum A úr Hafnarfirði. Liðin leika í sömu deild þó að um B- og A-lið sé að ræða. Ljóst var að róðurinn yrði þungur fyrir okkar menn og sú varð raunin. Aldrei gáfust þó Selfyssingar upp og héldu í við gestina lengi vel. Eftir jafnan fyrri hálfleik þar sem leikar stóðu 14-16 lauk leiknum með öruggum sigri Hafnfirðinga 27-32.

21.2.2010 | Handbolti

4. flokkur međ sigur og jafntefli

Bæði liðin í 4. flokki karla léku um helgina. B-liðið fór í Kaplakrika og náði í 19-19 jafntefli gegn FH eftir að hafa verið í nær vonlausri stöðu stuttu fyrir leikslok. A-liðið vann ÍR í Austurbergi 31-34, en sá leikur var jafn allan tímann.

19.2.2010 | Knattspyrna

Selfoss spilar viđ Fram á sunnudag kl. 13.00

Selfyssingar mæta Fram í fyrsta leik liðanna í Lengjubikarnum á sunnudag. Leikið er í Egilshöll og verður upphafsspyrnan tekin á slaginu 13.00. Leikurinn verður því miður ekki sýndur beint á sporttv.is.

19.2.2010 | Handboltaakademía

Selfoss-92 vann FH í gćr

FH-ingar úr Hafnarfirði mættu á Selfoss í gær og öttu kappi við heimamenn í 3. flokki. Leikurinn var jafn og spennandi og afar skemmtilegur á köflum að mati síðuritara. Selfoss hafði sigur 34-31 eftir mikinn barning. Í hálfleik stóð 17-16 Selfyssingum í vil.

19.2.2010 | Kraftlyftingar

Íslandsmót í kraftlyftingum verđur 13. mars

Íslandsmótið í kraftlyftingum fyrir alla aldursflokka fer fram laugardaginn 13. mars nk. Kraftlyftingafélag Mosfellsbæjar hefur tekið að sér að halda mótið og fer það fram í íþróttahúsinu Varmá í Mosfellsbæ. Skráning er hafin og fer fram á sama hátt og á Íslandsmótinu í bekkpressu. Hvert félag skráir sína keppendur á eyðublað sem er að finna á www.kraft.is.

18.2.2010 | Sund

Átta sundkrakkar kepptu á Gullmóti KR

Helgina 12.-14. febrúar kepptu 8 keppendur á  Gullmóti KR í laugardalslauginni. Mótið er næst stærsta barna- og unglingamótið í sundi. Verðlaunasæti Hannesar Höskuldssonar stóð upp úr árangri Selfyssinganna, en hann vann 200m flugsund sveina (12 ára og yngri) og varð annar í 100m flugsundi sveina.

17.2.2010 | Knattspyrna

Gumma ćfir međ u-19

Guðmunda Brynja Óladóttir æfir alla helgina með u-19 ára landsliði Íslands. Gumma sem verður 16 ára á árinu hefur verið að standa sig vel á æfingum með u-19 ára landsliðinu. Gumma er ein af þeim 16 stelpum sem skrifuðu á dögunum undir samning um að spila fyrir Selfoss næstu tvö árin. En þess má líka geta að hún skoraði 5 mörk í síðasta æfingaleik meistaraflokks. 

17.2.2010 | Knattspyrna

Frí á öskudag

Í dag Öskudag verður gefið frí á æfingum hjá 6. og 7. flokki stráka og stelpna. Þessir yngstu krakkar eru í skólanum fyrir hádegi og því nauðsynlegt að þau fái að klæða sig upp og jafnvel fara í nammileiðangur. Eins verður kötturinn slegin úr tunnunni kl. 13.30 fyrir utan félagsmiðstöðina Zelsíus og mætti búast við minni þátttöku þar ef æfingar væru, því samviskusemi fótboltakrakkana er ótrúleg þegar kemur að æfingasókn. Að lokum eru það svo skilaboð frá þjálfurum til krakkanna að fara varlega í nammið.

17.2.2010 | Handboltaakademía

Jafntefli og tap í 2 flokki

2. flokkur karla A-lið gerði jafntefli gegn Akureyri síðasta föstudag á heimavelli 29-29 og í gærkvöldi datt liðið út úr Bikarkeppninni í undanúrslitum annað árið í röð þegar þeir töpuðu gegn Stjörnunni á útivelli 35-33.

14.2.2010 | Knattspyrna

Blikar sigruđu Selfoss 1-0

Selfoss og Breiðablik léku æfingaleik í Fífunni í Kópavogi í gær laugardag. Leikurinn var hluti af afmælishátíð Blika, en þeir urðu 60 ára þann 12. febrúar og óskum við þeim til hamingju. Blikar voru betri í leiknum og unnu 1-0 sigur.   

12.2.2010 | Handboltaakademía

2.flokkur leikur í kvöld viđ Akureyri

Í kvöld koma norðanpiltar frá Akureyri (AHF) í heimsókn á Selfoss og verður eflaust um hörkuleik að ræða. Leikurinn hefst kl 21.00 í Vallaskóla. AHF eru ríkjandi deildarimeistari og unnu heimamenn á Selfossi í fyrra og ætla okkar menn sér eflaust að láta ekki þá sögu endurtaka sig. Okkar drengir hafa ekki enn tapað heimaleik og vilja eflaust halda því óbreyttu. Aftur á móti hefur liðið leikið afar illa á útivelli og hefur því tímabilið verið einskonar dr. Jekyll and mr. Hyde hvað spilamennsku varðar.

10.2.2010 | Handboltaakademía

Tap fyrir ÍR í 1. deildinni

Meistaraflokkur fékk sannkallaða magalendingu í gærkvöldi þegar þeir töpuðu fyrir ÍR 30-28. Það er óhætt að segja að Selfoss fékk nákvæmlega það úr leiknum sem þeir áttu skilið m.v. spilamennskuna. Þetta var án efa langslakasti leikur liðsins í vetur.

10.2.2010 | Knattspyrna

Selfoss og KR skildu jöfn 2-2

Selfoss-stelpurnar gerðu jafntefli við KR í æfingaleik liðanna á gervigrasinu á Selfossi á mánudag. Leikurinn var nokkuð jafn og úrslitin sanngjörn. Mörk Selfoss skoruð þær Guðmunda Brynja Óladóttir og Guðbjörg Una Hallgrímsdóttir. 

10.2.2010 | Handbolti

Leikjaniđurröđun í umferđ 3 komin

HSI_logoMótanefnd HSÍ hefur nú raðað niður leikjum í umferð 3 á Íslandsmótinu í 1. deild karla. Selfoss á fyrst útileik við Víking föstudaginn 19. febrúar, en síðasti leikurinn er heimaleikur gegn Aftureldingu og fer hann fram miðvikudaginn 7. apríl. Efsta liðið fer beint upp í úrvalsdeild, en liðin í 2.-4 sæti fara í umspil ásamt liðinu í 7. sæti í úrvalsdeild. Leikjaniðurröðun er eftirfarandi:

8.2.2010 | Knattspyrna

Fótboltamaraţon 5. flokks

Fótboltamaraþon_2009Maraþon 5. flokks karla í knattspyrnu fór fram 23. janúar. Maraþonið var liður í fjáröflun fyrir þátttöku á N1-mótinu á Akureyri í sumar. Strákarnir voru duglegir að safna áheitum og vel var tekið á móti þeim. Nokkur fyrirtæki styrktu strákana með brauði, áleggi og drykkjum. Þessi fyrirtæki voru Guðnabakarí, Krás, MS og Vífilfell. Strákarnir stóðu sig vel og kepptu m.a. við nokkra liðsmenn meistaraflokks og foreldra. Öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn til að gera þetta maraþon mögulegt, fyrirtækjum og þeim sem styrktu strákana er þakkað sérstaklega fyrir stuðninginn.

8.2.2010 | Handbolti

4. flokkur međ sigur og tap

A og B lið 4. flokks karla léku á höfuðborgarsvæðinu í gær. B-liðið mætti efsta liði deildarinnar, Stjörnunni, og lék góðan leik lengst af. Það dugði þó ekki og Stjarnan vann 21-18. A-liðið mætti Haukum. Eftir mjög rólega byrjun vannst 22-27 sigur.

8.2.2010 | Frálsíţróttir

Fjóla Signý og Haraldur međ HSK-met

Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum í fullorðinsflokki fór fram helgina 6.-7. febrúar í Laugardalshöllinni í Reykjavík. HSK/Selfoss sendi vaska sveit til leiks sem samanstóð af 16 einstaklingum. Ágætur árangur náðist, m.a. 8 verðlaun, 5 HSK-met og nokkrar persónulegar bætingar.

8.2.2010 | Fimleikar

Góđur árangur á Íslandsmóti unglinga í hópfimleikum

fimleikamót_feb_10_3205Fimleikadeild Umf. Selfoss sendi níu lið, eða um 120 keppendur, á Íslandsmót unglinga sem haldið var um síðustu helgi í Versölum í Kópavogi. Ágætur árangur náðist og varð blandað lið í 4. flokki m.a. Íslandsmeistari.

6.2.2010 | Handbolti

Mikilvćgur sigur á Aftureldingu

Stórleikurinn í gærkvöldi við Aftureldingu endaði með 9 marka sigri okkar manna. Lokatölur 32-23, en í hálfleik höfðu gestirnir 2 marka forystu 13-15. Stórkostleg stemmning var í húsinu sem var nánast fullt. Stuðningsmenn beggja liða háðu einnig sína baráttu á pöllunum þar sem heimamenn höfðu vinninginn alveg eins og inn á vellinum.

5.2.2010 | Knattspyrna

Leikjaniđurröđun klár og stjörnuliđ Hemma Gunn mćtir á svćđiđ

Þá er leikjaniðurröðun fyrir minningarmót um Guðjón Ægir Sigurjónsson tilbúin. Alls eru 21 lið búin að skrá sig til leiks og telja fróðir menn það vera nálægt meti ef ekki met í fyrirtækjakeppni á vegum Selfossliðsins. Fulltrúar liða eru hvött til að mæta kl. 9.30 í Íþróttahúsið Iðu og taka þátt í uppboði á meistaraflokksleikmönnum. Þau lið sem telja sig tilbúin í slaginn, án frekari styrkingu geta mætt 30 mínútum fyrir fyrsta leik, en sjá má leikjaniðurröðun hér að neðan.

5.2.2010 | Knattspyrna

Ingi Rafn kominn heim

Ingi Rafn Ingibergsson skrifaði nýverið undir þriggja ára samning við Selfoss. Ingi Rafn er því aftur komin heim í heiðadalinn eftir að hafa leikið með ÍBV undanfarin fjögur tímabil, en hann byrjaði sinn meistaraflokksferil hjá Selfoss. Ingi Rafn hefur æft með Selfyssingum í vetur og spilað nokkra æfingaleiki með liðinu og staðið sig vel.

5.2.2010 | Knattspyrna

16 stelpur skrifuđu undir samninga viđ Selfoss

Kvennalið Selfoss í knattspyrnu skrifaði í gær undir samninga við 16 leikmenn. Kvennalið Selfoss var endurvakið fyrir ári síðan og komu þær á óvart á sínu fyrsta tímabili í 1. deild, en þær komust í úrslitakeppnina og töpuðu þar fyrir Haukum með marki í viðbótartíma. Í haust tók svo Helena Ólafsdóttir fyrrverandi landsliðsþjálfari við Selfoss-stelpunum. Stelpunar eru flestar á aldrinum 16-19 ára og koma allar úr unglingastarfi Selfoss, nema Anna Þorsteinsdóttir sem kemur úr Þrótti.

5.2.2010 | Handboltaakademía

92-drengir međ sigur á ÍR

Selfyssingar í 92-liði 3. flokks unnu í gærkvöld gesti sína úr Breiðholtinu. Eftir að ÍR-ingar höfðu verið mun sterkari allan fyrri hálfleikinn komust heimamenn yfir undir lok hans og leiddu í hálfleik 15-13. Lokatölur urðu 34-26.

5.2.2010 | Nýjustu fréttir

Hvatagreiđslur vegna íţrótta- og/eđa tómstundastarfs

Árborg_merkiHvert barn á aldrinum 6-18 ára sem á lögheimili í Sveitarfélaginu Árborg á rétt á svonefndum hvatagreisðlum til niðurgreiðslu á skipulögðu íþróttastarfi í Árborg. Þessi upphæð er kr. 10.000 á hvert barn fyrir viðurkennt námskeið eða æfingar sem standa í 10 vikur eða lengur. Mín Árborg er íbúagátt Sveitarfélagsins Árborgar og þar er hægt að sækja um hvatagreiðslurnar rafrænt. Farið er inn á íbúagáttina í gegnum heimasíðu Árborgar www.arborg.is eða ibuagatt.arborg.is. Til að fá aðgang að gáttinni er valin „nýskráning" og verður síðan lykilorð sent í heimabanka viðkomandi eða að náð sé í það í afgreiðslu Ráðhúss Árborgar.

3.2.2010 | Fimleikar

Unglingamót FSÍ um helgina

Fimleikadeild umf.Selfoss sendir 9 lið til þátttöku á unglingamóti Fimleikasambands Íslands helgina 6.-7.febrúar.  Keppt er í landsreglum í 1.deild í öllum flokkum og í Úrvalsdeild í temagym í flokkum 11-15 ára og 13-18 ára.  Selfoss á lið í öllum flokkum og báðum deildum.  Í flokki Teamgym í Úrvalsdeild verða stelpurnar frá Selfossi í harðri baráttu um íslandsmeistaratitil unglinga en stúlkurnar unnu þennan titil á síðasta ári.  Um að gera að fjölmenna í Versali 1 (Gerpluhúsnæðið) og hvetja liðin frá Selfossi áfram.  Nánari dagskrá er að finna hér:

 

2.2.2010 | Frálsíţróttir

8 gull, 9 silfur og 6 bronsverđlaun á MÍ 15-22 ára

MI_jan2010_028Síðastliðna helgi fór fram Meistaramót Íslands í unglingaflokkum. Sameiginlegt lið HSK og Selfoss gerði góða hluti á mótinu. 25 keppendur voru af Suðurlandinu í ár miðað við 20 í fyrra, sem er mjög jákvætt enda frjálsar í sókn á svæðinu. Alls vann lið HSK-SELFOSS 8 gull, 9 silfur og 6 brons og setti 8 HSK-met. Í heildina varð liðið í 3. sæti í stigakeppni milli félaga með 153 stig sem er mun betri árangur en í fyrra. Í einstökum flokkum þá vann HSK-SELFOSS sveinaflokkinn í stigakeppninni og eru því Íslandsmeistarar í sveinaflokki innanhúss 2010.

2.2.2010 | Knattspyrna

Minningarmót og styrktarball

fót_boltiÚrvalsdeildarlið Selfyssinga í knattspyrnu undirbýr sig nú af kappi fyrir átökin í Pepsi-deildinni í sumar. Af því tilefni að liðið leikur nú í fyrsta skipti á meðal þeirra bestu hefur verið ákveðið að efna til firma- og hópakeppni, til minningar um Guðjón Ægi Sigurjónsson. Fyrirtæki og hópar geta skráð sig til leiks í mótið og er það öllum opið. Nánari upplýsingar og skráning eru hjá Sveinbirni, s. 897-7697, Tómasi, s. 699-0660, og Sævari, s. 899-0887.

2.2.2010 | Júdó

Fimmtán verđlaun á afmćlismóti JSÍ

Á afmælismóti Júdósambands Íslands, fyrir 20 ára og yngri, sem haldið var síðastliðinn laugardag, unnu keppendur frá júdódeild Umf. Selfoss til 15 verðlauna. Alls fóru 18 keppendur á mótið og stóðu þeir sig mjög vel. Uppskeran var 7 gull, 2 silfur og 6 brons. Árangur keppenda var eftirfarandi:

2.2.2010 | Sund

Ný byrjenda- og framhaldsnámskeiđ í ungbarnasundi

Ný byrjenda- og framhaldsnámskeið í ungbarnasundi hefjast 18. og 19. mars. Skráning er þegar hafin. Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Bjarnadóttir í síma 848 1626 og 482 2808.

1.2.2010 | Handboltaakademía

Ótrúlegur sigur hjá 91-liđinu

Selfoss-2 í 2. flokki (91-liðið) vann í gærkvöldi gesti sína úr Garðabæ á ótrúlegan hátt. Örn Þrastarson skoraði sigurmarkið hálfu sekúndubroti fyrir leikslok. Sellfoss vann 28-27 eftir að hafa verið undir 12-16 í hálfleik.

1.2.2010 | Handboltaakademía

Sigur á Ţrótti í 1. deild

Selfoss heldur toppsætinu enn um sinn eftir stóran sigur á Þrótti á útivelli síðasta föstudagskvöld. Leikurinn endaði 20-44 en staðan í hálfleik var 9-19. Allir leikmenn liðsins fengu að spreyta sig og stóðu allir fyrir sínu.

1.2.2010 | Knattspyrna

Stefán Ragnar međ nýjan samning viđ Selfoss

Stefán Ragnar undirskrift 2010Stefán Ragnar Guðlaugsson miðvörðurinn efnilegi gerði s.l. laugardag nýjan þriggja ára samning við Selfyssinga. Stefán sem er fæddur 1991 var lykilleikmaður í liði Selfyssinga sem á síðasta ári tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni. Hann var eftir sumarið valinn efnilegasti leikmaður liðsins. Stefán Ragnar var einnig fastamaður í u-19 ára landsliði Íslands allt síðasta ár.

31.1.2010 | Fimleikar

Selfoss HB1 sigrađi ţorramótiđ í hópfimleikum

Þorramót Selfoss í hópfimleikum fór fram í dag í Baulu fyrir vægast sagt fullu húsi.  Mótið var ætlað keppendum sem eru að stíga sín fyrstu spor í keppni og var keppt eftir landsreglum 5.flokks með nokkrum undantekningum.  Alls voru 16 lið mætt til leiks og sýndu þau frábæra takta oft á tíðum.  Þetta er í fyrsta sinn sem hópfimleikamót er haldið í Baulu og var þröngt á þingi og setið á öllum stöðum sem hugsast gat.

31.1.2010 | Handbolti

4. flokkur: Sigur og tap gegn Gróttu

Bæði lið 4. flokks karla léku við Gróttu í gær í Vallaskóla. Báðir leikir voru mjög jafnir og spennandi og fóru leikar svo að í A-liðum vann Selfoss 30-29 en í B-liðum vann Grótta 22-26.

28.1.2010 | Knattspyrna

Dúkarabandiđ gaf allan ágóđa af plötusölu til knattspyrnudeildar

Á Þorrablótinu hans Kjartans Björnssonar, sem haldið var um síðustu helgi, var óvænt skemmtiatriði. Þar steig á svið hljómsveitin Dúkarabandið og flutti nokkur frumsamin lög og hélt í leiðinni útgáfutónleika sína. En á dögunum gáfu þeir út diskinn „Tree little roofer boys“  Á Þorrablótinu gengu svo leikmenn meistaraflokks karla í knattspyrnu um salinn og seldu diskinn fyrir þá félaga og gáfu þeir allan ágóðan, eða 2000 kr. pr. disk til knattspyrnudeildar.

28.1.2010 | Knattspyrna

Meistaraflokk kvenna vantar áhugasamt ađstođarfólk

Lógó SelfossMeistaraflokkur kvenna í knattspyrnu leitar nú að jákvæðu og áhugasömu fólki til þess að starfa í kringum flokkinn. Í því fælist t.d. aðstoð við fjáraflanir, undirbúning heimaleikja og fleira. Meistaraflokkur kvenna á Selfossi er á hraðri uppleið og eru um 20 stelpur að æfa með liðinu. Áhugasamir geta haft samband við Þóru Margréti (s.694-6479, thora89@hotmail.com) eða Auði Ólafsdóttur (auduro@intrum.is).

28.1.2010 | Knattspyrna

Skráning hafin á Olísmótiđ.

Alls hafa 6 lið, auk gestgjafana skráð sig til leiks á fyrsta skráningardegi Olísmótsins í knattspyrnu. Þau lið sem voru fyrst til að skrá sig eru Grindavík, KA, KR, Þróttur, HK og Keflavík. Olísmótið er fyrir 11-12 ára stráka og fer það fram á 6.-8. ágúst á 11 knattspyrnuvöllum á Selfossi. Hér á Olismot.is má sjá allar helstu upplýsingar um mótið, sem er að stimpla sig rækilega inn sem eitt af stóru krakka mótunum á Íslandi.

26.1.2010 | Knattspyrna

Gumma valin í u-19 ára landsliđshóp!

KSI_logoGuðmunda Brynja Ólafsdóttir var fyrir síðustu helgi valin í u-19 ára landslið íslands og æfði hún með liðinu um helgina. Þetta hefur vakið sérstaka athygli því Gumma verður aðeins 16 ára á þessu ári. Hún er fædd árið 1994. Þjálfari u-19 ára kvennalandsliðs Íslands er Ólafur Þór Guðbjartsson og hefur hann eðlilega mikla trú á þessari efnilegu stelpu. Áður hefur Gumma æft og keppt með u-16 og u-19 ára landsliðum Íslands. Auk þess æfir hún og leikur með 3. flokki og meistaraflokki Selfoss. Hér að neðan má sjá hópinn sem valinn var fyrir síðustu helgi.

26.1.2010 | Frálsíţróttir

Andrea Sól og Thelma Björk međ met á Stórmóti ÍR

Stórmót_ÍR_jan10_50Stórmót ÍR fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík helgina 23.-24. janúar sl. Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss skráði 46 keppendur til leiks, þar af voru tvö 10 manna lið sem tóku þátt í þrautabrautinni. Keppendur stóðu sig mjög vel og uppskáru 9 gullverðlaun, 8 silfurverðlaun og 3 bronsverðlaun. Að auki voru sett þrjú Selfossmet og eitt HSK-met.

26.1.2010 | Frálsíţróttir

Ţórhildur Helga og Fjóla Signý međ ţrenn gullverđlaun á Hérađsmót HSK

Héraðsm_HSK_jan10_4x200Héraðsmót HSK í frjálsum íþróttum fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík þriðjudagskvöldin 12. og 19. janúar s.l. Lið Umf. Selfoss sigraði heildarstigakeppnina með 133 stig, en komu Laugdælir fast á hæla þeirra með 123,5 stig.

26.1.2010 | Handboltaakademía

Flottur sigur hjá 91-strákunum

Heimamenn í Selfoss-2 í 2. flokki félagsins lögðu lið Gróttu í gærkvöld örugglega 31-24. Sigurinn var aldrei í hættu og varð munurinn mestur 10 mörk. Í hálfleik stóð 15-10.

26.1.2010 | Frálsíţróttir

Harpa, Teitur Örn og Sigţór međ fern gullverđlaun á Aldursflokkamóti HSK

Aldursfl_HSK_jan10_2Aldursflokkamót HSK, 11-14 ára, í frjálsum íþróttum var haldið sunnudaginn 10. janúar s.l. í Frjálsíþróttahöllinni í Reykjvík. Selfoss sigraði heildarstigakeppnina nokkuð örugglega með 321 stig, en lið Þjótanda (Baldur, Samhygð, Vaka) varð í öðru sæti með 249 stig. Árangur keppenda Umf. Selfoss var eftirfarandi:

25.1.2010 | Knattspyrna

Vorleikur Selfoss-Getrauna fór vel af stađ

getraunalógóVorleikur Selfoss-Getrauna hófst á laugardag. Fjöldi manns lagði leið sína í Tíbrá til að skrá sig til leiks jafnframt því að þiggja kaffi og bakkelsi frá Guðnabakaríi. Aldrei hafa jafn margir skráð sig til leiks og var örtröð á tímabili. Rétt er að benda á að það er aldrei of seint að skrá sig til leiks enda telja átta bestu vikurnar af þeim tíu sem riðlakeppni vorleiksins stendur yfir.

24.1.2010 | Handbolti

4. flokkur tapađi gegn Fram

Bæði lið 4. flokks fóru í Framhúsið í dag að leika. B-liðið lék vel lengst af, en slæmur kafli í byrjun seinni hálfleiks kostaði það að liðið tapaði 30-24. A-liðið mætti aldrei til leiks og tapaði að lokum 34-28.

23.1.2010 | Handboltaakademía

2. flokkur kominn í undanúrslit í Bikarnum

Selfoss vann Víkinga í hörkuleik fyrr í dag í 8-liða úrslitum Bikarkeppninnar 25-33. Leikur var í Víkinni og því kemur það skemmtilega á óvart að liðið hafi unnið jafn sterkan andstæðing á útivelli m.v. frammistöðu þess á útivelli í vetur.

23.1.2010 | Handboltaakademía

Mikilvćgur sigur á ÍBV

Í gær komu frændur okkar frá Eyjum í heimsókn í toppslag í 1. deildinni í handbolta. Selfoss vann leikinn 33-29 eftir að ÍBV hafði leitt í hálfleik 15-16. Með sigrinum náði Selfoss að halda í toppsætið í deildinni aðeins lengur þar sem Afturelding er 3 stigum á eftir okkar mönnum en á þó leik til góða.

22.1.2010 | Handboltaakademía

Góđur gestur á ćfingu hjá Akrinum (Akademíunni)

Elstu strákarnir okkar í Akrinum á Selfossi fengu afar góðan gest til sín á æfingu miðvikudaginn síðastliðinn. Það var enginn annar en Þórir Ólafsson, fyrirliði þýska úrvalsdeildarliðsins Lübecke, er mætti á staðinn.

21.1.2010 | Frálsíţróttir

Ţórhildur Helga međ sigur í 200 m hlaupi og 2 HSK met á Reykjavík International Games

Þórhildur Helga Guðjónsdóttir Umf. Selfoss sigraði í 200m hlaupi á nýju HSK meti á Reykjavík International Games sem fram fóru í Laugardalshöll þann 16. janúar. Hún hljóp vegalengdina á 26,66 sek og bætti HSK met Ágústu Tryggvadóttur um  0,10 sek og sinn besta tíma um 0,26 sek. 

21.1.2010 | Knattspyrna

Vorleikur Selfoss - Getrauna hefst á laugardaginn

getraunalógóVorleikur Selfoss-Getrauna hefst laugardaginn 23. janúar. Við hvetjum alla til að skrá sig til leiks með því að mæta í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, kl. 11 - 13 á laugardaginn. Í Tíbrá hittast stuðningsmenn Selfoss á öllum aldri í skemmtilegu félagsstarfi. Við viljum að sem flestir taki þátt og hvetjum sérstaklega þá sem eru alltaf á leiðinni að slá nú til og mæta.

21.1.2010 | Handbolti

Leikmenn Selfoss stóđust lyfjapróf

Eftir leik Víkings og Selfoss í desember síðastliðnum voru tveir leikmenn Selfoss, þeir Einar Héðinsson og Helgi Héðinsson, teknir í lyfjapróf af lyfjanefnd ÍSÍ. Niðurstaða lyfjaprófsins liggur nú fyrir og kom í ljós að engin efni á bannlista fundust í sýnum leikmanna Selfoss.

18.1.2010 | Handboltaakademía

Enn tap á útivelli hjá 2. flokki

Enn heldur taphrina A liðs 2. flokks áfram á útivelli og í þetta skipti töpuðu þeir fyrir neðsta liðinu í deildinni, ÍR, sem hafði fyrir þennan leik aðeins unnið 1 leik í vetur. Leikurinn tapaðist 26-23en staðan í hálfleik var 12-11 fyrir ÍR. 

18.1.2010 | Handboltaakademía

Sigur hjá 91 liđinu

Strákarnir í Selfoss-2 í 2.flokki (eða 91-drengirnir) unnu í gær Fjölnismenn er sóttu okkur heim. Okkar menn voru sterkari aðilinn allan leikinn en Fjölnismenn aldrei langt undan en Selfoss hélt í síðari hálfleik 4-6 marka forskoti og lét það aldrei af hendi. Sigur 26-18 staðreynd eftir að í leikhléi hafi staðið 15-11 fyrir Selfoss.

16.1.2010 | Fimleikar

Liđ Selfoss vann sćtan sigur á Reykjavíkurleikunum í fimleikum í dag

Stelpurnar í liði Selfoss uppskáru vel í dag á Reykjavíkurleikunum í hópfimleikum þegar þær lögðu Selfoss RIG 2010lið Stjörnunnar og Gerplu að velli.  Keppnin varð jöfn og spennandi eftir að Selfoss klúðraði dýnustökki.  Mótið var jafnframt úrtökumót fyrir NM-juniora sem haldið verður í Finnlandi í vor og hafa stelpurnar nú tryggt sér farseðilinn á það mót fyrir hönd Íslands.  Þær voru yfirburðalið bæði í dansi og á trampólíni.  

16.1.2010 | Sund

Nýtt byrjendanámskeiđ í sundi ađ hefjast

Sundskóli apríl 2009Nýtt byrjendanámskeið fyrir 5 ára og eldri er að hefjast í Sundskóla Sunddeildarinnar. Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum kl. 14:45-16:25. Kennari er Bryndís Ólafsdóttir, íþróttakennari og sjúkraþjálfari.
Námskeiðið kostar kr. 7.000 og tekið er við skráningum í netfangið eisenfee@internet.is.

 

16.1.2010 | Handbolti

Sigur og tap hjá 4. flokki

Bæði lið 4. flokks karla mættu FH í dag í Vallaskóla. A-liðið var að leika þriðja leik sinn á átta dögum og núna gegn liðinu í toppsætinu. Það vantaði þó besta leikmann FH og munaði mikið um það. Selfyssingar voru nokkra stund í gang og leiddu 13-11 í hálfleik. Þeir unnu svo að lokum 10 marka sigur 29-19. B-liðið lék ágætlega lengi vel en inn á milli voru kaflar sem voru ekki nægilega góðir. FH vann leikinn hjá B-liðum 25-26 en Selfoss átti skot í stöng á seinustu sekúndum leiksins þar sem þeir gátu jafnað.

14.1.2010 | Handboltaakademía

2. flokkur byrjađi áriđ međ tapi

2. flokkur mætti Haukum á Ásvöllum seint í gærkvöldi. Selfoss vann fyrri leik liðanna í vetur með 4 marka mun á Selfossi. Í liði Hauka eru 7 leikmenn sem spiluðu með landsliðum Íslands á síðasta ári og liðið því gríðarlega sterkt. Það vantaði hins vegar nokkuð uppá að lið Selfoss væri fullmannað. Leikurinn endaði með 26-24 sigri Hauka.

14.1.2010 | Handbolti

Aftur sigur hjá 4. flokki

A-lið 4. flokks mætti Fram í gærkvöldi, en Framarar eru með eitt besta lið landsins og í 2. sæti deildarinnar. Annað stórt verkefni var því í vændum fyrir liðið. Selfyssingar stóðust aðra áskorun sína á fimm dögum og unnu leikinn 22-21 eftir afar dramadískar lokamínútur þar sem hreinlega allt var undir.

12.1.2010 | Knattspyrna

Gummi Tóta og Jón Dađi í u-19 ára landsliđshópnum

Þeir félagar Guðmundur Þórarinsson og Jón Daði Böðvarsson voru valdir til landsliðsæfinga með undir 19 ára landsliðinu. Æfingar hjá þeim eru um næstu helgi, en þjálfari strákanna er Kristinn Rúnar Jónsson. Gummi og Jón Daði hafa verið fastamenn í þessu landsliði en hér má sjá u-19 ára landsliðshópinn.

12.1.2010 | Fimleikar

Undirbúningur á fullu hjá fimleikastelpum

Undirbun_RIG_2Stelpurnar í meistaraflokki Selfoss í fimleikum eru nú á fullu í undirbúningi fyrir RIG leikana (Reykjavik International Games) sem fara fram í Reykjavík um næstu helgi. Fimleikakeppnin fer fram kl. 14-1 laugardaginn 16. janúar í Laugardalshöllinni. Mótið er annað mótið af þremur sem er úrtökumót fyrir Norðurlandamót Juniora í fimleikum sem fram fer í Finnlandi í vor.

11.1.2010 | Handbolti

Selfyssingar á ćfingum unglingalandsliđa HSÍ

Í lok desember og byrjun janúar voru haldnar æfingar hjá yngri handboltalandsliðum Íslands. Nokkrir Selfyssingar voru valdir á æfingarnar.

11.1.2010 | Taekwondó

Ćfingar byrjađar á fullu

Taekwondo-æfingar eru byrjaðar á fullu á nýju ári. Æfingarnar hófust síðastliðinn föstudag og það var föngulegur hópur eldri iðkenda sem og nýrra sem mætti.

10.1.2010 | Handbolti

4. flokkur A međ frábćran sigur

Í 4. flokki mætti Selfoss liði Aftureldingar í A-liðum. Fyrir leikinn var Afturelding með besta árangur liðanna í 4. flokki. Það var því ljóst að afar erfitt verkefni væri í vændum fyrir Selfyssinga. Þeir voru hins vegar tilbúnir í það verkefni svo um munaði. Með frábærum varnarleik og framúrskarandi hugarfari vann Selfoss 26-23 eftir að hafa leitt 14-12 í hálfleik.

9.1.2010 | Fimleikar

Ţjálfaranámskeiđ FSÍ 1B og 2A í fimleikum um helgina

Nokkrir þjálfarar frá Fimleikadeild Selfoss sitja þjálfaranámskeið á vegum Fimleikasambands Íslands núna um helgina.  Um er að ræða sérgreinanámskeið 1B og 2A.  Þjálfaranámskeiðin eru bæði bókleg og verkleg og eru margir sérhæfðir kennarar sem koma að hverju námskeiði.  Að námskeiði loknu fá þjálfarar viðurkenningu fyrir þátttökuna.

9.1.2010 | Handbolti

4. flokkur: B-liđiđ sigrađi Fjölni

B-lið 4. flokks mætti Fjölni í dag. Strákarnir voru nokkuð lengi í gang og fyrri hálfleikur ekki nægilega góður. Síðari hálfleikurinn var mun betri og vann Selfoss 18-14 sigur í leiknum.

8.1.2010 | Handboltaakademía

B-stigs dómaranámskeiđ í handbolta

domasraflautaHelgina 15.-16. janúar verður haldið B-stigs dómaranámskeið hjá dómaranefnd HSÍ. Gert er ráð fyrir að námskeiðið standi frá 17-21 á föstudeginum og frá 10-14 á laugardeginum. Skráning fer fram á robert@hsi.is og stendur til þriðjudagsins 12. janúar.

8.1.2010 | Handboltaakademía

3. flokkur vann Val

Valsarar úr Reykjavík komu í heimsókn í gær og mættu A lið 3. flokks. Vitað var að um hörkuleik yrði að ræða þar sem Valsarar hafa góðu liði á að skipa, eru skynsamir í sínum leik og agaðir. Þeir hafa í sínum röðum tvo frábæra örvhenta leikmenn sem erfitt er að ráða við. Úr varð svo hörkuleikur þar sem Selfoss hafði betur 31-30 eftir að hafa leitt 17-14 í hálfleik.

8.1.2010 | Knattspyrna

Gunni Borgţórs til Bandaríkjanna á ráđstefnu

Gunnar Borgþórsson yfirþjálfari yngri flokka knattspyrnudeildar Selfoss og yfirmaður Knattspyrnuakademíu Íslands á Selfossi heldur til Bandaríkjanna í næstu viku og sækir þar stærstu þjálfararáðstefnu heims. Með Gunna í för er Freyr Alexandersson þjálfari kvennaliðs Vals.

7.1.2010 | Handbolti

B-liđ 4. flokks lék gegn Fram

B-lið 4. flokks lék gegn Fram í gær en Fram er með öflugri liðum deildarinnar. Strákarnir léku mjög vel á köflum og héldu áfram allan leikinn. Það dugði ekki til að þessu sinni og tap 23-27 niðurstaðan en ljóst er að hægt er að byggja á fjölmörgum jákvæðum hlutum í leiknum.

7.1.2010 | Frálsíţróttir

Ágústa íţróttakona Árborgar 2009

Ágústa íþr.kona Árb. 2009Ágústa Tryggvadóttir var valin íþróttakona Árborgar 2009 á uppskeruhátí ÍTÁ þann 29. desember s.l. Ágústa er vel að þessum titli komin enda verið ein fremsta íþróttakona á Suðurlandi um árabil. Hér á eftir fer smá pistill um afrek Ágústu á árinu.

6.1.2010 | Knattspyrna

Umsögn um Sćvar Ţór íţróttamann Árborgar 2009

Sævar Þór íþr.maður Árb. 2009Sævar Þór Gíslason var á dögunum valinn íþróttamaður Árborgar 2009. Hann er virkilega vel að þessum titli kominn, en hér að neðan fer umsögn um þennan frábæra íþróttamann.

6.1.2010 | Fimleikar

Íţróttaskóli barnanna hefst ađ nýju

Íþróttaskóli barnanna hefst að nýju laugardaginn 16. janúar 2010. Nú geta börn fædd 2008 innritað sig í íþróttaskólann í fyrsta skipti, en börn fædd 2005 eru elsti árgangurinn. Börn fædd 2008 og seinni hluta árs 2007 (júlí-des) mæta kl. 10-10:50, en börn fædd fyrri hluta árs 2007 (jan-jún) og börn fædd 2006 og 2005 mæti frá kl. 11-11:50. Skráning fer fram fimmtudaginn 14. jan frá 17-19 í íþróttahúsi Baulu og laugardaginn 16. jan kl. 9:30-11:30.

4.1.2010 | Fimleikar

Fimleikar fyrir börn fćdd 2005

Vegna mikillar eftirspurnar verður á vorönn bætt við fimleikahópi fyrir börn fædd 2005. Sá hópur verður á fimmtudögum frá kl. 16:15-17:15 í umsjá Steinunnar H. Eggertsdóttur. Skráningar berist á olgu@simnet.is. Fyrsti tíminn verður fimmtudaginn 14. janúar 2010. Fjöldi í hóp miðast við 15 börn.

4.1.2010 | Nýjustu fréttir

Ţrettándagleđi miđvikudaginn 6. janúar

jólasveinarJólin verða kvödd á Selfossi með glæsilegri þrettándagleði miðvikudaginn 6. janúar. Farin verður blysför frá Tryggvaskála að brennustæði við tjaldstæði Gesthúsa þar sem kveikt verður í þrettándabálkesti. Glæsileg flugeldasýnig verður, jólasveinar kveðja og álfar og tröll mæta á svæðið. Gaman væri að sjá sem flesta í trölla-, álfa- eða jólasveinabúningum. Vinsamlegast fylgist með útvarpsfréttum ef veðurútlit er tvísýnd.

4.1.2010 | Júdó

Ćfingar júdódeildar hefjast mánudaginn 4. janúar

Júdóæfingar hefjast af fullum krafti að nýju mánudaginn 4. janúar. Æfingatafla er óbreitt, en æfingar fara fram í æfingasalnum í Gagnheiði 3. Byrjendur á öllum aldri eru sérstaklega boðnir velkomnir.

4.1.2010 | Frálsíţróttir

Námskeiđ á vegum FRÍ - Kids Athletics (Krakkafrjálsar)

Kids Athletics er fyrsta stig af fimm í nýju fræðslukerfi IAAF fyrir þjálfara og Frjálsíþróttasamband Íslands hefur tekið upp á sína arma og heitir á ensku „Coaches Education Cerfification System" (CECS). Fyrsta stigið er einkum ætlað þjálfurum barna og unglinga 12 ára og yngri. Næsta stig er ætlað félagsþjálfurum en hin síðari eru sérhæfðari og ætluð þeim sem lengra eru komin.

2.1.2010 | Fimleikar

Dómaranámskeiđ í fimleikum 4.-6. janúar

Tíu stúlkur frá Selfossi eru skráðar á dómaranámskeið FSÍ sem haldið verður 4.-6. janúar 2010. Námskeiðið er í hinum nýju Evrópureglum (Teamgym), en heilmiklar breytingar hafa orðið í þeim reglum. Við vonumst til að halda okkur á tánum með að senda sem flesta á námskeiðið og eiga alltaf dómara á öllum Team-gym mótum, en það skiptir félagið miklu máli. Námskeið hefst með bóklegu prófi og hafa stelpurnar verið að lesa í jólafríinu sínu. 

 

2.1.2010 | Fimleikar

Fimleikaćfingar hefjast ađ nýju mánudaginn 4. jan 2010

Fimleikaæfingar hefjast að nýju samkvæmt stundaskrá mánudaginn 4. janúar.   Einhverjar breytingar hafa orðið á sumum hópum vegna endurskipulagningar. Fyrsta mótið á nýju ári verður RIG sem er mótið Reykjavík International, en þar mun einn hópur keppa fyrir Selfoss. Það eru stelpurnar í 13-18 ára liðinu okkar sem berjast um að komast á Norðurlandamót í apríl n.k. Þetta er annað mótið af þremur sem telst úrtökumót fyrir NMJ í Finnlandi. Við vonumst til stuðningsmenn fjölmenni í Laugardalshöllina 16. janúar og hvetji þær áfram.

Á nćstunni

18.5.2012 | Knattspyrna
22.5.2012 | Knattspyrna
24.5.2012 | Knattspyrna
31.5.2012 | Knattspyrna
2.6.2012 | Frjálsíţróttir
4.6.2012 | Knattspyrna


Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta