Bæði lið 4. flokks karla léku við Gróttu í gær í Vallaskóla. Báðir leikir voru mjög jafnir og spennandi og fóru leikar svo að í A-liðum vann Selfoss 30-29 en í B-liðum vann Grótta 22-26.
Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu leitar nú að jákvæðu og áhugasömu fólki til þess að starfa í kringum flokkinn. Í því fælist t.d. aðstoð við fjáraflanir, undirbúning heimaleikja og fleira. Meistaraflokkur kvenna á Selfossi er á hraðri uppleið og eru um 20 stelpur að æfa með liðinu. Áhugasamir geta haft samband við Þóru Margréti (s.694-6479, thora89@hotmail.com) eða Auði Ólafsdóttur (auduro@intrum.is).
Guðmunda Brynja Ólafsdóttir var fyrir síðustu helgi valin í u-19 ára landslið íslands og æfði hún með liðinu um helgina. Þetta hefur vakið sérstaka athygli því Gumma verður aðeins 16 ára á þessu ári. Hún er fædd árið 1994. Þjálfari u-19 ára kvennalandsliðs Íslands er Ólafur Þór Guðbjartsson og hefur hann eðlilega mikla trú á þessari efnilegu stelpu. Áður hefur Gumma æft og keppt með u-16 og u-19 ára landsliðum Íslands. Auk þess æfir hún og leikur með 3. flokki og meistaraflokki Selfoss. Hér að neðan má sjá hópinn sem valinn var fyrir síðustu helgi.
Stórmót ÍR fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík helgina 23.-24. janúar sl. Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss skráði 46 keppendur til leiks, þar af voru tvö 10 manna lið sem tóku þátt í þrautabrautinni. Keppendur stóðu sig mjög vel og uppskáru 9 gullverðlaun, 8 silfurverðlaun og 3 bronsverðlaun. Að auki voru sett þrjú Selfossmet og eitt HSK-met.
Héraðsmót HSK í frjálsum íþróttum fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík þriðjudagskvöldin 12. og 19. janúar s.l. Lið Umf. Selfoss sigraði heildarstigakeppnina með 133 stig, en komu Laugdælir fast á hæla þeirra með 123,5 stig.
Aldursflokkamót HSK, 11-14 ára, í frjálsum íþróttum var haldið sunnudaginn 10. janúar s.l. í Frjálsíþróttahöllinni í Reykjvík. Selfoss sigraði heildarstigakeppnina nokkuð örugglega með 321 stig, en lið Þjótanda (Baldur, Samhygð, Vaka) varð í öðru sæti með 249 stig. Árangur keppenda Umf. Selfoss var eftirfarandi:
Vorleikur Selfoss-Getrauna hófst á laugardag. Fjöldi manns lagði leið sína í Tíbrá til að skrá sig til leiks jafnframt því að þiggja kaffi og bakkelsi frá Guðnabakaríi. Aldrei hafa jafn margir skráð sig til leiks og var örtröð á tímabili. Rétt er að benda á að það er aldrei of seint að skrá sig til leiks enda telja átta bestu vikurnar af þeim tíu sem riðlakeppni vorleiksins stendur yfir.
Bæði lið 4. flokks fóru í Framhúsið í dag að leika. B-liðið lék vel lengst af, en slæmur kafli í byrjun seinni hálfleiks kostaði það að liðið tapaði 30-24. A-liðið mætti aldrei til leiks og tapaði að lokum 34-28.
Elstu strákarnir okkar í Akrinum á Selfossi fengu afar góðan gest til sín á æfingu miðvikudaginn síðastliðinn. Það var enginn annar en Þórir Ólafsson, fyrirliði þýska úrvalsdeildarliðsins Lübecke, er mætti á staðinn.
Vorleikur Selfoss-Getrauna hefst laugardaginn 23. janúar. Við hvetjum alla til að skrá sig til leiks með því að mæta í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, kl. 11 - 13 á laugardaginn. Í Tíbrá hittast stuðningsmenn Selfoss á öllum aldri í skemmtilegu félagsstarfi. Við viljum að sem flestir taki þátt og hvetjum sérstaklega þá sem eru alltaf á leiðinni að slá nú til og mæta.
Strákarnir í Selfoss-2 í 2.flokki (eða 91-drengirnir) unnu í gær Fjölnismenn er sóttu okkur heim. Okkar menn voru sterkari aðilinn allan leikinn en Fjölnismenn aldrei langt undan en Selfoss hélt í síðari hálfleik 4-6 marka forskoti og lét það aldrei af hendi. Sigur 26-18 staðreynd eftir að í leikhléi hafi staðið 15-11 fyrir Selfoss.
Nýtt byrjendanámskeið fyrir 5 ára og eldri er að hefjast í Sundskóla Sunddeildarinnar. Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum kl. 14:45-16:25. Kennari er Bryndís Ólafsdóttir, íþróttakennari og sjúkraþjálfari.
Námskeiðið kostar kr. 7.000 og tekið er við skráningum í netfangið eisenfee@internet.is.
Bæði lið 4. flokks karla mættu FH í dag í Vallaskóla. A-liðið var að leika þriðja leik sinn á átta dögum og núna gegn liðinu í toppsætinu. Það vantaði þó besta leikmann FH og munaði mikið um það. Selfyssingar voru nokkra stund í gang og leiddu 13-11 í hálfleik. Þeir unnu svo að lokum 10 marka sigur 29-19. B-liðið lék ágætlega lengi vel en inn á milli voru kaflar sem voru ekki nægilega góðir. FH vann leikinn hjá B-liðum 25-26 en Selfoss átti skot í stöng á seinustu sekúndum leiksins þar sem þeir gátu jafnað.
A-lið 4. flokks mætti Fram í gærkvöldi, en Framarar eru með eitt besta lið landsins og í 2. sæti deildarinnar. Annað stórt verkefni var því í vændum fyrir liðið. Selfyssingar stóðust aðra áskorun sína á fimm dögum og unnu leikinn 22-21 eftir afar dramadískar lokamínútur þar sem hreinlega allt var undir.
Þeir félagar Guðmundur Þórarinsson og Jón Daði Böðvarsson voru valdir til landsliðsæfinga með undir 19 ára landsliðinu. Æfingar hjá þeim eru um næstu helgi, en þjálfari strákanna er Kristinn Rúnar Jónsson. Gummi og Jón Daði hafa verið fastamenn í þessu landsliði en hér má sjá u-19 ára landsliðshópinn.
Stelpurnar í meistaraflokki Selfoss í fimleikum eru nú á fullu í undirbúningi fyrir RIG leikana (Reykjavik International Games) sem fara fram í Reykjavík um næstu helgi. Fimleikakeppnin fer fram kl. 14-1 laugardaginn 16. janúar í Laugardalshöllinni. Mótið er annað mótið af þremur sem er úrtökumót fyrir Norðurlandamót Juniora í fimleikum sem fram fer í Finnlandi í vor.
Taekwondo-æfingar eru byrjaðar á fullu á nýju ári. Æfingarnar hófust síðastliðinn föstudag og það var föngulegur hópur eldri iðkenda sem og nýrra sem mætti.
Í 4. flokki mætti Selfoss liði Aftureldingar í A-liðum. Fyrir leikinn var Afturelding með besta árangur liðanna í 4. flokki. Það var því ljóst að afar erfitt verkefni væri í vændum fyrir Selfyssinga. Þeir voru hins vegar tilbúnir í það verkefni svo um munaði. Með frábærum varnarleik og framúrskarandi hugarfari vann Selfoss 26-23 eftir að hafa leitt 14-12 í hálfleik.
B-lið 4. flokks mætti Fjölni í dag. Strákarnir voru nokkuð lengi í gang og fyrri hálfleikur ekki nægilega góður. Síðari hálfleikurinn var mun betri og vann Selfoss 18-14 sigur í leiknum.
Helgina 15.-16. janúar verður haldið B-stigs dómaranámskeið hjá dómaranefnd HSÍ. Gert er ráð fyrir að námskeiðið standi frá 17-21 á föstudeginum og frá 10-14 á laugardeginum. Skráning fer fram á robert@hsi.is og stendur til þriðjudagsins 12. janúar.
Gunnar Borgþórsson yfirþjálfari yngri flokka knattspyrnudeildar Selfoss og yfirmaður Knattspyrnuakademíu Íslands á Selfossi heldur til Bandaríkjanna í næstu viku og sækir þar stærstu þjálfararáðstefnu heims. Með Gunna í för er Freyr Alexandersson þjálfari kvennaliðs Vals.
B-lið 4. flokks lék gegn Fram í gær en Fram er með öflugri liðum deildarinnar. Strákarnir léku mjög vel á köflum og héldu áfram allan leikinn. Það dugði ekki til að þessu sinni og tap 23-27 niðurstaðan en ljóst er að hægt er að byggja á fjölmörgum jákvæðum hlutum í leiknum.
Ágústa Tryggvadóttir var valin íþróttakona Árborgar 2009 á uppskeruhátí ÍTÁ þann 29. desember s.l. Ágústa er vel að þessum titli komin enda verið ein fremsta íþróttakona á Suðurlandi um árabil. Hér á eftir fer smá pistill um afrek Ágústu á árinu.
Sævar Þór Gíslason var á dögunum valinn íþróttamaður Árborgar 2009. Hann er virkilega vel að þessum titli kominn, en hér að neðan fer umsögn um þennan frábæra íþróttamann.
Íþróttaskóli barnanna hefst að nýju laugardaginn 16. janúar 2010. Nú geta börn fædd 2008 innritað sig í íþróttaskólann í fyrsta skipti, en börn fædd 2005 eru elsti árgangurinn. Börn fædd 2008 og seinni hluta árs 2007 (júlí-des) mæta kl. 10-10:50, en börn fædd fyrri hluta árs 2007 (jan-jún) og börn fædd 2006 og 2005 mæti frá kl. 11-11:50. Skráning fer fram fimmtudaginn 14. jan frá 17-19 í íþróttahúsi Baulu og laugardaginn 16. jan kl. 9:30-11:30.
Jólin verða kvödd á Selfossi með glæsilegri þrettándagleði miðvikudaginn 6. janúar. Farin verður blysför frá Tryggvaskála að brennustæði við tjaldstæði Gesthúsa þar sem kveikt verður í þrettándabálkesti. Glæsileg flugeldasýnig verður, jólasveinar kveðja og álfar og tröll mæta á svæðið. Gaman væri að sjá sem flesta í trölla-, álfa- eða jólasveinabúningum. Vinsamlegast fylgist með útvarpsfréttum ef veðurútlit er tvísýnd.
Tíu stúlkur frá Selfossi eru skráðar á dómaranámskeið FSÍ sem haldið verður 4.-6. janúar 2010. Námskeiðið er í hinum nýju Evrópureglum (Teamgym), en heilmiklar breytingar hafa orðið í þeim reglum. Við vonumst til að halda okkur á tánum með að senda sem flesta á námskeiðið og eiga alltaf dómara á öllum Team-gym mótum, en það skiptir félagið miklu máli. Námskeið hefst með bóklegu prófi og hafa stelpurnar verið að lesa í jólafríinu sínu.

