Strákarnir á eldra ári í 5. flokki í handbolta verða með kökubasar í Kjarnanum á morgun föstudag 1. október frá kl. 13:00. Strákarnir eru að safna vegna ferðar til Vestmannaeyja um miðjan mánuðinn. Nú er um að gera að drífa sig og kaupa eitthvað gott bakkelsi og styrkja strákana í leiðinni.
Umræður um jafnrétti kynjanna eru stöðugt í gangi í þjóðfélaginu og er það vel. Um daginn var frétt í Ríkissjónvarpinu um æfingatíma drengja og stúlkna í 5. flokki í knattspyrnu. Þar var látið í veðri vaka að stelpur fengju ekki sömu tækifæri og strákar, færri æfingatíma og lakari þjálfara. Þessar fullyrðingar eiga engan veginn við um knattspyrnudeild Umf. Selfoss.
Keyrslumót fyrir Evrópumótið í hópfimleikum 2010 og heimsmeistaramótið í áhaldafimleikum 2010 fer fram í Ásgarði á laugardaginn. Veislan hefst klukkan 17:30. Liðin fjögur sem eru á leiðinni á EM í Malmö eftir þrjár vikur keyra æfingar sínar í gegn en einnig munu stelpur í landsliði Íslands í áhaldafimleikum keyra sínar æfingar á áhöldum. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta og hvetja okkar frábæra fimleikafólk.
Fræðslunet Suðurlands í samvinnu við HSK mun halda námskeið um ungmennafélagshreyfinguna á Suðurlandi í 100 ár á átta kvöldum í október og nóvember í Iðu á Selfossi. Námskeiðið fer fram á mánudagskvöldum kl. 19:30 - 21:40.
Næsti leikur Selfyssinga í efstu deild er gegn Grindavík og hefst hann kl. 14.00 laugardaginn 25. september. Þetta er síðasti leikur liðanna í Pepsídeildinni og jafnframt síðasti leikur Selfyssinga í efstu deild í bili. Tímabilið fór ekki eins og menn vonuðu, en fór þó kannski eins og einhverjir höfðu varað við. Það skiptir samt ekki öllu máli eins og flestir gera sér grein fyrir. Hér á Selfossi er ekki tjaldað til einnar nætur, heldur til frambúðar og er raunhæft markmið næstu 15-20 árin að hoppa á milli tveggja efstu deilda. Nokkur mjög sterk lið á landsvísu eru enn í þeim flokki og ágætt að benda þeim sem héldu að Selfyssingar færu ekki niður aftur á það að tvö bestu lið landsins Breiðablik og FH urðu 1. deildarmeistarar 2000 og 2005, en eru nú loksins komin með þannig lið, að langt er í að þau falli aftur eftir að þau hafa verið á rokki á milli deilda í áratugi.
Guðmunda Brynja Óladóttir hefur verið að standa sig mjög vel með u-17 ára landsliði Íslands sem nú keppir í undankeppni fyrir Evrópumótið í knattspyrnu 2011. Keppnin er haldin í Búlgaríu og eru íslensku stelpurnar í riðli með Litháen, Búlgaríu og Ítalíu. Gumma hefur farið á kostum og má lesa um það hér að neðan.
Knattspyrnusamband Íslands mun á næstu vikum halda tvö 1. stigs þjálfaranámskeið. Annars vegar er um að ræða námskeið sem haldið verður helgina 1.-3. október og hins vegar námskeið sem haldið verður helgina 8.-10. október. Bókleg kennsla fer fram í fræðslusetri KSÍ og verkleg kennsla í knattspyrnuhúsinu Kórnum í Kópavogi. Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á dagur@ksi.is eða með því að hringja í síma 510-2977.
Lokahóf meistaraflokks og 2. flokks karla og kvenna verður haldið í Hvíta húsinu laugardagskvöldið 25. september. Allir knattspyrnuáhugamenn eru hvattir til að mæta og enda einstakt fótboltasumar saman. Forsala miða er í Blómavali Selfossi. Sjá nánar.
4. flokkur karla tryggði sér um helgina sæti í 1. deild (efri deild) á Íslandsmótinu í vetur þegar liðið vann þrjá leiki og gerði eitt jafntefli í fjórum leikjum í svokallaðri forkeppni fyrir veturinn. Selfoss vann því þennan riðil forkeppninnar.
Selfoss mætir Breiðabliki í 21. umferð Pepsí-deildarinnar í knattspyrnu sunnudaginn 19. sept kl. 17.00 á Kópavogsvelli. Stöð 2 sport sýnir að sjálfsögðu þennan leik í beinni útsendingu að ósk áskrifenda og er þetta því þriðja beina útsendingin í röð frá leikjum Selfoss. Það er þó engin afsökun fyrir Selfyssinga að mæta ekki á völlinn, heldur er þetta einungis auka þjónusta fyrir þá sem vilja greina leikinn í ró og næði yfir endursýningu seinna um kvöldið.
4. flokkur karla hefur leik um helgina en þá leikur liðið í forkeppni um í hvaða deild Selfoss verður í þennan veturinn. Mikið hefur verið í gangi hjá flokknum hingað til og nokkuð síðan æfingar hófust, en flokkurinn fór t.d. í æfingaferð til Vestmannaeyja fyrir skömmu.
Næsti leikur Selfyssinga er alvöru derbyleikur, en þá mæta Selfyssingar ÍBV á aðalvellinum á Selfossi. Leikurinn er á fimmtudag og hefst kl. 17.15. Bæði lið þurfa þrjú stig. Hvort sem Eyjamenn koma í gegnum Bakkafjöru eða Þorlákshöfn er ljóst þeir verða teknir föstum tökum. Leikurinn verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu. Áhorfendur Stöðvar 2 sport einfaldlega krefjast þess að fá að sjá leiki Selfoss í hverri viku.
Margir muna eftir "Mjaltavélinni", stuðningsmannaklúbbi meistaraflokks, sem var svo öflug á árum áður. Nú hefur verið ákveðið að endurræsa hana og gera hana enn þá afkastarmeiri og flottari í samræmi við stöðu liðsins í íslenskum handknattleik.
Æfingar á vegum taekwondodeildar Umf. Selfoss eru hafnar á Stokkseyri. Æfingarnar eru á miðvikudögum kl. 19:00, fimmtudögum kl. 17:00 og sunnudögum kl. 17:00. Allir velkomnir.
Guðmunda Brynja Óladóttir hefur verið valin í 18 manna í landsliðshóp KSÍ sem tekur þátt í forkeppni EM U17 2011. Riðill Íslands verður leikinn í september í Búlgaríu og verða mótherjarnir, auk Búlgaríu, Litháen og Ítalía. Fyrsti leikur Íslands er mánudaginn 20. september gegn Litháen.
Stelpurnar í 7. flokki kvenna gerðu sér lítið fyrir og unnu árlegt Fossvogsmót sem haldið er af HK í Kópavogi. Stelpurnar sem eru 8 ára gamlar hafa margar æft knattspyrnu lengi og sýna orðið flotta takta og gott spil og því var sigurinn sanngjarnt hjá þessum ungu knattpyrnukonum. Yfir 20 stelpur hafa verið að æfa fótbolta í sumar.
Stelpurnar í 6. flokki B náðu þeim fína árangri á dögunum að lenda í öðru sæti á Íslandsmótinu. Þær byrjuðu á því að vinna sinn riðill sem spilaður var fyrr í sumar. Eftir það lá leiðin í úrslit og þar gekk þeim mjög vel. Þær unnu alla sína leiki nema sjálfan úrslitaleikinn, en þá spiluðu þær við stelpurnar í Grindavík og töpuðu naumlega 2-1 í skemmtilegum leik. Flottur árangur hjá þessum efnilegu stelpum sem allar voru á yngra ári í 6. flokki í sumar.
Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss, eigandi og framkvæmdaraðili Brúarhlaups Selfoss, og Landsbankinn, undirrituðu nýverið samstarfssamning í tengslum við Brúarhlaup Selfoss. Í samstarfinu felst m.a. að Landsbankinn verður aðal styrktar- og stuðningsaðili hlaupsins. Að sögn Helga S. Haraldssonar, formanns frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss, skiptir þessi samningur miklu máli fyrir Brúarhlaup Selfoss og framkvæmd þess og styrkir frjálsíþróttadeildina við undirbúning og framkvæmd hlaupsins.
Í tilefni af því að fyrsta æfingamóti tímabilsins er lokið ákvað heimasíðan að rekja garnirnar úr "nýliðanum" í Selfossliðinu Guðjóni Finni Drengssyni. Guðjón stóð sig feykivel í sínum fyrstu leikjum með liðinu og endaði sem markahæsti leikmaður liðsins á mótinu með 23 mörk.
Lokastaðan í mótinu varð sú að Selfoss varð í 1. sæti, Haukar í 2. sæti, HK í 3. sæti, Fram í 4. sæti, FH í 5. sæti og Valur rak lestina í 6. sæti. Þá voru í mótslok veitt verðlaun fyrir einstaklingsframtak í mótinu og voru það SportTv menn sem skipuðu dómnefndina annað árið í röð. Niðurstaðan var eftirfarandi..
21. Ragnarsmótinu lauk á laugardaginn með þremur leikjum. FH vann Val í leik um 5. sætið. HK vann Fram í leik um 3. sætið og Selfoss vann Hauka í leik um 1. sætið. Að úrlsitaleiknum loknum var verðlaunaafhending liða og einstakra leikmanna. Þetta er aðeins í annað skipti sem Selfoss vinnur mótið, en það gerðist síðast 1990.
Í tengslum við landsleik Íslands og Noregs í knattspyrnu, sem fram fór í síðustu viku, voru staddir hér á landi forráðamenn Norsk toppfotballsenter. Þeir leituðu til Handknattleikssambands Íslands og vildu fá að kynna sér þjálfunaraðferðir okkar í handbolta. Voru þeir mjög áhugasamir um að vita hvernir stæði á því að þessi litla þjóð gæti verið í fremstu röð í heiminum í handbolta, bæði í A-landsliði og unglingalandsliðum. Leitað var til Einars Guðmundssonar, unglingalandsliðsþjálfari, og hélt hann tveggja tíma fyrirlestur fyrir norðmennina með umræðum á eftir. Í fyrirlestrinum fór Einar yfir það hvers vegna Íslendingar framleiddu svona góða handboltamenn ár eftir ár og hvernig hann sæi þetta sem unglingalandsliðsþjálfari.
Flokkaskipti hafa átt sér stað hjá knattspyrnudeild þar sem eldri árgangar færast upp um flokk. Æfingar hefjast af fullum krafti mánudaginn 6. september. Hér að neðan eru upplýsingar um þjálfara og æfingatíma allra yngri flokka.
Í kvöld lauk riðlakeppninni á Ragnarsmótinu með leikjum Selfoss og FH og svo leik Vals og Fram. Það er ljóst eftir kvöldið að Selfoss spilar á morgun til úrslita við Hauka kl. 16:00. HK og Fram mætast kl. 14:00 í leik um 3 sætið og kl. 12:00 spila FH og Valur um 5 sætið. Við hvetjum alla til þess að líta við á morgun. Úrslit kvöldsins voru..
Í sumum miðlum hefur dagskrá laugardagsins á Ragnarsmótinu verið birt þannig að leikirnir um sæti séu kl. 12, 16 og 18 sem er því miður ekki rétt. Hið RÉTTA er að leikurinn um 5. sætið er kl. 12:00. Leikurinn um 3. sætið er kl. 14:00 og úrslitaleikurinn er kl. 16:00. Beðist er velvirðingar á því ef að þessi miskilningur hefur valdið vandræðum.
Í gær áttust við HK og Selfoss annars vegar og Haukar og Valur hins vegar. Selfoss vann nauman 1 marks sigur í spennandi leik og Haukar unnu þægilegan sigur annan leikinn í röð og ljóst að þeir spila til úrslita á morgun. Það sem af er mótsins þá virka Haukarnir bestir og verða greinilega ógnarsterkir í vetur.
Þann 18. september kemur á Selfoss þekkt bandarísk kona, Chloe Bruce að nafni, og verður með sýningu í Iðu ásamt systur sinni í ýmsum bardagalistum. Hún verður m.a. með teygjuæfingar, sýningu, parkour, tricking, fimleika og freestyle. Chloe kemur hingað í tengslum við taekwondodeild Umf. Selfoss. Hér má lesa meira um Chloe.
Sumarmót Umf. Selfoss í frjálsum fyrir 11 ára og yngri fór fram í Þorlákshöfn fimmtudaginn 12. ágúst. Iðkendur frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss, sem koma víðs vegar af Suðurlandi, mættu fíldjarfir til leiks ásamt nokkrum krökkum frá Þorlákshöfn enda var mótið opið öllum. Mótið var það síðasta í sumar hjá þessum aldursflokkum og ríkti góð stemming á meðal keppenda. Rúmlega 20 krakkar mættu til leiks og stóðu sig með mikilli prýði.
Tveir leikir fóru fram í gærkvöldi á Ragnarsmótinu. Fyrst mættust FH og HK og strax á eftir mættust Haukar og Fram. Úrslit og markaskorarar í meira..
Sundæfingar og sundnámskeið hefjast núna í byrjun september. Þeir foreldrar sem vilja að börnin festi sundkunnáttu sína fyrir lífstíð býðst að koma með börnin í hóp á mánudögum og miðvikudögum kl.15:45. Kennslan er beint framhald af námskeiðunum sem haldin hafa verið.
Íþróttaskóli fimleikadeildar Selfoss hefst á laugardaginn 4. september. Íþróttaskólinn er fyrir börn fædd 2006-2008. Um er að ræða 10 skipta námskeið og eru yngri börnin, þ.e. börn fædd 2008 og seinni hluta árs 2007, kl. 10:00-10:50, en eldri börnin, þ.e. börn sem eru fædd fyrri hluta 2007 og 2006, í seinni tímanum sem er kl. 11:00-11:50.
Í dag hefst 21. Ragnarsmótið í Vallaskóla kl. 18:30 en þá eigast við HK og FH í A riðli og strax á eftir kl. 20:00 spila Haukar og Fram. Á morgun kl. 18:30 spilar Selfoss svo sinn fyrsta opinbera leik tímabilsins gegn HK. Við hvetjum alla til þess að kíkja á mótið enda frítt er á alla leiki mótsins. VÍS styrkir mótið eins og undanfarin ár. Það eru Selfyssingar eða leikmenn sem hafa spilað með Selfossi í öllum liðunum...
Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss, eigandi og framkvæmdaaðili Brúarhlaups Selfoss, og Vífilfell, söluaðili Powerade íþróttadrykkjarins, hafa undirritað samstarfssamning til þriggja ára. Í samstarfinu felst m.a. að Powerade íþróittadrykkurinn verður íþróttadrykkur Brúarhlaupsins næstu þrjú árin. Þessi samningur skiptir miklu máli fyrir Brúarhlaup Selfoss og framkvæmd þess og styrkir frjálsíþróttadeildina við undirbúning og framkvæmd hlaupsins, að sögn Helga S. Haraldssonar, formanns frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss.
Strákarnir í b-liði 6. flokks Selfoss tóku þátt í úrslitakeppni Pollamóts KSÍ í Reykjaneshölinni í Keflavík sunnudaginn 22. ágúst s.l. Í riðlakeppninni spiluðu þeir þrjá leiki. Þeir byrjuðu á því að gera 0:0 jafntefli við Breiðablik 3, en unnu svo Reyni S. 11:0 og Fjölni 5:0. Í úrslitaleiknum léku þeir við Snæfellsnes og unnu 4:2. Þar með urðu þeir Íslandsmeistarar SV (Suðvesturland) í flokki b-liða.

