Beint á leiđarkerfi vefsins

Nýjustu fréttir

Nýjustu fréttir - RSS

23.12.2011 | Handbolti

Selfoss á Norden Cup milli jóla og nýárs

Norden 2011 strákarÞann 26. desember munu tvö lið frá Selfossi halda á Norden Cup – Norðurlandamót félagsliða í yngri aldursflokkum – sem fram fer í Gautaborg milli jóla og nýárs. Um er að ræða strákaliðið og stelpuliðið í 1997 árgangi en þeim var boðið á mótið í kjölfarið af því að Selfoss varð Íslandsmeistari í 5. flokki karla og kvenna seinasta keppnistímabil. Á Norden Cup keppa bestu liðin frá öllum Norðurlöndunum og því afar spennandi verkefni fyrir okkar lið í vændum.

22.12.2011 | Taekwondó

Daníel Jens og Ingibjörg Erla taekwondomađur og -kona ársins 2011

Danni_Ingibjorg_MeisamDaníel Jens Pétursson og Ingibjörg Erla Grétarsdóttir, taekwondodeild Umf. Selfoss, hafa verið útnefnd taekwondomaður og taekwondokona ársins 2011 af Taekwondosambandi Íslands. Þetta verður að teljast einstakt afrek hjá taekwondodeild Umf. Selfoss. Þau hafa bæði staðið sig frábærlega á árinu og eru vel að þessu komin.

19.12.2011 | Frálsíţróttir

Frjálsíţróttavertíđin ađ komast á skriđ

frjalsar_jan_2011-070Eftir miklar æfingar í haust er nú að verða komið að því að uppskera hjá frjálsíþróttafólkinu okkar á HSK svæðinu. Innanhúskeppnistímabilið er hægt og bítandi að fara af stað þó svo að hið eiginlega innanhússkeppnistímabil 2012 hefjist ekki formlega fyrr en í byrjun janúar. Mikill hugur er í fólki að taka hressilega á því, bæta sig og að sjálfsögðu að taka titla heim í hérað, enda mikið af ungum og efnilegum frjálsíþróttamönnum, sem og lengra komnum á Suðurlandi.

19.12.2011 | Knattspyrna

Fjör á jólabingói 6. og 7. flokks kvenna

fotbolti_des11Föstudaginn 16. desember sl. var haldið jólabingó í Tíbrá fyrir 6. og 7. flokk kvenna í fótbolta. Full mæting var eða um 35 stelpur. Það var mikið fjör og allar stelpurnar skemmtu sér vel. Að loknu jólabingóinu fóru stelpurnar í jólafrí og munu hittast aftur á nýju ári, 4. janúar á sama tíma og venjulega.

19.12.2011 | Knattspyrna

Vinningar í jólahappdrćtti unglingaráđs knattspyrnudeildar

Á laugardaginn var dregið í jólahappdrætti unglingaráðs knattspyrnudeildar Umf. Selfoss. Vinningsnúmer eru eftirfarandi:

15.12.2011 | Knattspyrna

Lokahóf og jólamatur hjá Getraunum Selfoss

Selfoss getraunir bjóða á lokahóf og jólamat haustleiks 2011. Lokahófið verður haldið í Tíbrá laugardaginn 17. desember. Matur verður borinn fram kl. 11:30 og stendur á borðum allt til kl. 13:00. Veittar verða viðurkenningar fyrir árangur vetrarins, dregið í happadrætti unglingaráðs, auk meiri skemmtunar. Hlökkum til að sjá ykkur.

15.12.2011 | Knattspyrna

Leikir meistaraflokks karla í upphafi nćsta árs

Nú er búið að raða í Lengjubikarinn og eins var á dögunum dregið í Fotbolti.net mótinu. Í Lengjubikarnum erum við í riðli með KR, Breiðabliki, Fram, Haukum, Víkingi Ó., BÍ/Bolungarvík og Þrótti. Síðast vorum við líka með KR og Breiðabliki í riðli, töpuðum 2-1 fyrir KR og unnum Breiðablik 3-0. Í Fotbolti.net mótinu erum við í riðli með Grindavík, ÍBV og Stjörnunni. Hér að neðan kemur leikjadagskrá fyrir alla þessa leiki og ekki vitlaust að setja þá strax inn í dagbókina sína.

15.12.2011 | Frálsíţróttir

Hafsteinsmótiđ í Iđu á sunnudaginn kl. 10:15.

Hafsteinsmótið verður haldið sunnudaginn 18. des. í Iðu, íþróttahúsi FSu á Selfossi. Húsið opnar kl. 10 og keppni hefst stundvíslega kl. 10.15. Fólk þarf að gera ráð fyrir að taka upphitun úti ef það þarf lengri upphitun, því við höfum húsið bara í tvo tíma.

14.12.2011 | Handboltaakademía

3. fl. karla kominn í 8-liđa úrlsit Bikarsins

Í gærkvöldi unnu strákarnir í 3. flokki lið Aftureldingar í hörkuleik með minnsta mun 24-23. Staðan í hálfleik var 12-11 fyrir Selfoss.

14.12.2011 | Júdó

40 keppendur á júdómóti HSK

judo_hsk_3682HSK-mótið í júdó var haldið í nýja júdósalnum í Sandvíkurskóla 8. desember sl. Um 40 keppendur tóku þátt í mótinu. Þeir yngstu voru 6 ára og sá elsti var 46 ára. Mótið gekk vel fyrir sig og sáust þarna margar flottar viðureignir. Gaman var að sjá yngstu keppendurna sem hafa náð að tileinka sé flotta tækni og þekkingu á júdó.

14.12.2011 | Fimleikar

Trođfullt á jólasýningu fimleikadeildar

jolasyning_0124Það var mikil stemning og troðfullt hús á öllum þremur jólasýningum fimleikadeildar Selfoss laugardaginn 10. desember sl. Vel á annað þúsund manns sótti sýninguna sem tókst vel í alla staði. Sýningin, sem um fjögur hundruð börn tóku í, þótti fjölbreytt og fjörug enda litríkir búningar og skemmtileg sviðsmynd.

13.12.2011 | Handboltaakademía

Sigur í 3. flokki kvenna

Stelpurnar unnu lið Fylkis3 í deildinni í gær á útivelli 18-22. Staðan í hálfleik var 9-12 fyrir Selfoss. Fylkir3 sem er efst í 2. deild var þarna að tapa sínum fyrsta leik í deildinni í vetur.

12.12.2011 | Handbolti

Stórleikur í Vallaskóla

Á morgun, þriðjudag, fer fram stórleikur í Vallaskóla þegar 3. flokkur karla mætir liði Aftureldingar í 16-liða úrslitum bikarsins. Leikurinn fer fram klukkan 21:00 og hvetjum við fólk eindregið til þess að mæta á leikinn. Ljóst er að boðið verður upp á hörkuleik annað kvöld en Selfoss er í efsta sæti í 1. deildinni og Afturelding í 3. sæti.

12.12.2011 | Handbolti

Einn leikmađurinn enn sleit krossband!

FH-ingar sóttu ákveðna og grimma okkar menn í 2.flokki heim í gær. Fór svo að okkar menn höfðu sigur 32 - 27 eftir að hafa haft yfir í hálfleik 17 - 15.

11.12.2011 | Handboltaakademía

Sigur hjá 4 fl. kvk.

Í gær fóru stelpurnar í A liðinu í Kaplakrika til að mæta FH. Leikurinn vannst 29-18 en staðan í hálfleik var 15-6.

10.12.2011 | Handbolti

4. flokkur karla í 8-liđa úrslit bikars

Fyrr í dag mætti Selfoss liði Gróttu B í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar í 4. flokki karla. Selfoss sigraði leikinn 16-31 og er liðið því komið í 8-liða úrslit. Lýkur þá fyrri helmingi keppnistímabilsins hjá 4. flokki og við tekur mánaðarhlé frá leikjum. Selfyssingar hafa heilt yfir leikið mjög vel til þessa og verður fróðlegt að sjá hvort liðið bæti sig ekki enn frekar eftir áramót.

8.12.2011 | Handboltaakademía

Enn eitt krossbandaslitiđ í íţróttahúsi Vallaskóla !

Ragna Valdís Sigurjónsdóttir leikmaður meistaraflokks kvenna varð fyrir því óláni að slíta krossband í hné á æfingu á dögunum og verður ekkert meira með á þessu keppnistímabili. Þetta er mikið áfall fyrir Selfoss liðið sem er í harðari toppbaráttu í 2.deild Íslandsmótsins.

8.12.2011 | Handboltaakademía

3 fl. kvk. komst í 8-liđa úrslit Bikarsins

Í gær unnu stelpurnar Fylki3 sem eru efstar og taplausar í 2. deildinni sem Selfoss er einnig þátttakandi í og það á útivelli. Þær létu það ekkert á sig fá slógu toppliðið út og eru komnar í 8-liða úrslit Bikarkeppninnar. Leikurinn endaði 24-31 en staðan í hálfleik var 11-14 fyrir Selfoss.

7.12.2011 | Handbolti

2. flokkur vann í Garđabć

Um síðastliðna helgi sótti 2. flokkur Garðbæinga heim og höfðu okkar menn sigur 27-24 eftir að hafa yfir í leikhléi 15-12.

6.12.2011 | Handbolti

Jólatréssala og Norden Cup 2011

4ka_des_2011Yngra ár 4. flokks karla í handbolta, sem eru strákar fæddir 1997, tekur þátt í hinu geysisterka Norðurlandamóti félagsliða yngri flokka - Norden Cup, sem verður í Gautaborg milli jóla og nýárs eða dagana 26.-31. desember. Strákarnir verða með jólatréssölu fyrir framan Sportbæ við Austurveg, sem lið í fjáröflun vegna ferðarinnar. Salan verður eftirtalda daga í desember:  10., 15., 16., 17., 18. og 21. Seld verða úrvalstré frá Skógrækt ríkisins. Vonast strákarnir til að sjá sem flesta koma í heimsókn og versla sér jólatré.

6.12.2011 | Frálsíţróttir

Nýtt keppnistrampólín í Baulu

fimleikar_tramp_2011Það ríkti mikil gleði hjá fimleikadeild Umf. Selfoss síðastliðinn fimmtudag þegar nýtt trampólín kom í Baulu, æfingaaðstöðu deildarinnar. Í haust var ákveðið að fara af stað með söfnun fyrir trampólíni og tók foreldraráð meistaraflokks að sér það verkefni. Ákveðið var að selja lakkrís og nota ágóðann í trampólínið góða. Þegar Íslandsbanki frétti af söfnuninni varð hann fyrri til og ákvað að styrkja deildina um eitt stykki trampólín. Er fimleikadeildin þeim ævinlega þakklát fyrir það.

5.12.2011 | Kraftlyftingar

Selfoss í öđru sćti í liđakeppni á Íslandsmótinu í réttstöđulyftu

kraft_2011-033Ungmennafélag Selfoss eignaðist sinn fyrsta Íslandsmeistara í kraftlyftingum á Íslandsmeistaramótinu í réttstöðulyftu sem haldið var í Iðu síðastliðinn laugardag er Stefán Blackburn lyfti 290 kg í -105 kg flokki karla. Rósa Birgisdóttir, Selfossi, átti þyngstu lyftuna í kvennaflokki er hún lyfti 188 kg í +84 kg flokki, en það er jafnframt nýtt Íslandsmet.

5.12.2011 | Handboltaakademía

3. fl. kvenna vann Fjölni

Í gær unnu stelpurnar lið Fjölnis 34-21 í Vallaskóla. Staðan í hálfleik var 16-13 fyrir Selfoss. Góður sigur hjá stelpunum að þessu sinni.

4.12.2011 | Handbolti

Tveir leikir í 4. flokki

4. flokkur sótti Gróttu heim fyrr í dag. Um hörkuleiki var að ræða bæði í A og B liðum og fór svo að lokum að heimamenn höfðu sigur í báðum leikjanna.

4.12.2011 | Handboltaakademía

Sigur á Stjörnunni í 3 fl. kk.

Strákarnir í 3 fl. kk. héldu áfram á sigurbrautinni í gær þegar þeir unnu Stjörnuna á útivelli 32-40. Staðan í hálfleik var 18-19 fyrir okkar stráka.

4.12.2011 | Handboltaakademía

Sigur í Mfl. kvenna

Á föstudagskvöldið tóku stelpurnar á móti liði Aftureldingar. Leikurinn vannst 23-19 eftir að staðan hafi verið 11-8 í hálfleik fyrir Selfoss. Frábær vörn og markvarsla skóp þennan sigur í síðasta leik ársins hjá stelpunum í Mfl.

2.12.2011 | Taekwondó

Fjölmennt beltapróf fór fram í Iđu sl. sunnudag

beltaprof-nov11-30Beltapróf taekwondodeildar Umf. Selfoss voru haldin í íþróttahúsinu Iðu sunnudaginn 27. nóvember s.l.  Alls voru 96 iðkendur skráðir til prófs og náðu flestir sínum markmiðum. Mikill fjöldi nýrra iðkenda voru að taka sín fyrstu beltapróf og stóðu sig einstaklega vel. Iðkendur komu víða að af Suðurlandi og má þar nefna, Selfoss, Hveragerði, Þorlákshöfn, Stokkseyri, Eyrarbakka, Hellu og ofan af Skeiðum.

1.12.2011 | Handbolti

Kökubasar í Kjarnanum á föstudag

Föstudaginn 2. desember verður 4. flokkur kvenna í handbolta með kökubasar í Kjarnanum frá kl. 13. Til sölu verða tertur, smákökur, lagkökur o.fl. Kökubasar þessi er liður í fjáröflun stelpnanna fyrir ferð á Norden Cup í handbolta nú um jólin.

30.11.2011 | Handboltaakademía

Mfl. kvenna vann ÍR á útivelli

Stelpurnar í mfl. kvenna komust aftur á sigurbraut í gærkvöldi þegar þær unnu lið ÍR í Austurbergi 25-20. Staðan í hálfleik var 13-12 fyrir Selfoss.

29.11.2011 | Júdó

Gull og brons á júdómóti í Danmörku

judo_nov2011_6701Helgina 26. - 27. nóvember sl. fóru þrír keppendur frá júdódeild Umf. Selfoss til keppni á Hilleröd International í Danmörku ásamt 19 örðum keppendum frá JR og ÍR. Mótið, sem var mjög fjölmennt, var nú haldið í þrítugasta sinn, en það er fyrir keppendur 21 árs og yngri. Keppendur komu flestir frá Norðurlöndunum en einnig víða að úr Evrópu. Þeir Grímur Ívarsson, Úlfur Böðvarsson og Egill Blöndal fóru á mótið.

28.11.2011 | Handboltaakademía

Sigrar í 4 fl. kvenna um helgina

Um helgina spiluðu bæði liðin útileiki. A liðið mætti liði Aftureldingar og B liðið fór á Ásvelli. Báðir leikirnir unnust. A liðið vann 18-10 og B liðið vann 18-15. Góð helgi hjá stelpunum að þessu sinni. 

28.11.2011 | Kraftlyftingar

Íslandsmeistaramótiđ í réttstöđulyftu verđur í Iđu 3. desember

Kraft_logoKraftlyftinganefnd Umf. Selfoss mun sjá um framkvæmd Íslandsmeistaramótsins í réttstöðulyftu sem fram fer í Iðu laugardaginn 3. desember næstkomandi. Kraftlyftingasamband Íslands var ánægt með með góð vinnubrögð á sama móti sem við Sunnlendingar héldum í Iðu í fyrra og veittu okkur þann heiður að halda mótið aftur.

27.11.2011 | Handbolti

Hjarta, vilji og karakter skiluđu sigri í 3. flokki

Selfoss-2 í 3. flokki lék gegn Fram 2 í dag. Leikurinn var magnaður af hálfu Selfoss liðsins sem vann Framara 25-14 eftir að hafa leitt 15-8 í hálfleik. Baráttan og liðsheildin hjá Selfyssingum skilaði þessum sigri en saman eru leikmenn að búa til eitt öflugasta varnarlið sem sést hefur lengi.

27.11.2011 | Handbolti

Sigur og jafntefli í 4. flokki karla

Bæði liðin í 4. flokki karla léku gegn HK í gær. Óhætt er að segja að leikirnir hafi verið mjög ólíkir. A-liðið sigraði 30-17 eftir að hafa leitt 13-8 í hálfleik. B-liðið hins vegar gerði jafntefli 25-25 eftir að hafa lent í nær vonlausri stöðu í fyrri hálfleik þegar gestirnir komust 4-13 yfir. Spilamennskan hjá báðum liðum var góð lengst af og leikirnir lærdómsríkir um hvað sé mögulegt.

26.11.2011 | Handboltaakademía

Enn einn sigurinn í 3 flokki karla

Í dag var leikur gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Fram í Vallaskóla. Þrátt fyrir að það hafi vantað tvo landsliðsmenn í Framliðið þá er það engu að síður mjög vel mannað. Selfoss hafði sigur þrátt fyrir að spila talsvert frá sínu besta 28-25.

25.11.2011 | Knattspyrna

Snjór á gervigrasinu

Vegna bilunar í snjóbræðslukerfi gervigrasvallarins hefur ekki náðst að þýða völlinn. Af þeim sökum er óvíst um æfingar einstakra flokka í dag. Eru iðkendur og foreldrar beðnir um að fylgjast með á bloggsíðum flokka sinna.

25.11.2011 | Handbolti

6 heimaleikir um helgina

Um helgina fara fram 6 handboltaleikir í íþróttahúsi Vallaskóla. Meistaraflokkur ríður á vaðið í kvöld með leik gegn ÍR kl. 19:30. Á laugardag leika 4. flokkur (bæði lið) og 3. flokkur A þrjá leiki í röð en fyrsti leikur þann daginn er kl. 12:15. Á sunnudag leika 3. flokkur B og 2. flokkur.
Tímasetningarnar á leikjunum eru hér fyrir neðan. Hvetjum við fólk að sjálfsögðu til að mæta og styðja við bakið á okkar mönnum.

23.11.2011 | Handboltaakademía

Fyrsta tap mfl. kvenna

Í gærkvöldi mættu stelpurnar í meistaraflokki Víkingi sem er sterkasta liðið í deildinni á útivelli. Reyndar gerði Selfoss sér lítið fyrir og vann Víking í bikarnum fyrir viku. Þetta var samt hörkuleikur sem Víkingar þurftu svo sannarlega að hafa fyrir.

23.11.2011 | Knattspyrna

Skemmtilegt mót hjá 5. flokki kvenna í Keflavík

kef-nov-2011-008Stelpurnar í 5. flokki fóru um síðustu helgi með tvö lið á Keflavíkurmótið og stóðu sig með stakri prýði. B-liðið spilaði í þýsku deildinni og endaði með gull. A-liðið lék í íslensku deildinni og endaði með brons eftir sigur á Breiðabliki.

22.11.2011 | Mótokross

Skemmtikeppni í Bolöldu

Bolalda-motokr-011Laugardaginn 19. nóvember sl. hélt Vélhjólaklúbburinn Vík skemmtikeppni í Bolöldu sem er við Litlu Kaffistofuna. Veðrið lék við bæði keppendur og áhorfendur enda ætti svona braut að vera lokuð á þessum tíma árs og ekki var hægt að kvarta yfir brautunum. Þarna var keppt í motorkrossi, enduro-krossi og krakkakrossi.

22.11.2011 | Handbolti

2. flokkur tapađi

Okkar menn í 2. flokki fóru sneypuför yfir heiðina er þeir sóttu Gróttu heim. Selfoss sá aldrei til sólar í leiknum og tapaði 41-27. Staðan í hálfleik var 22-11 fyrir heimamenn. Grótta var sterkari á öllum sviðum leiksins og eins var barátta, vilji og þor allt þeirra megin. Okkar menn verða vonandi búnir að koma sér í réttan gír fyrir næsta leik sem er heima gegn Fram næsta sunnudag kl. 16.00

21.11.2011 | Frálsíţróttir

Bjarki Ragnarsson međ Íslandsmet í 60m hlaupi á Silfurleikum ÍR

Silfur-Bjakri-TeiturFrjálsíþróttadeild Selfoss sendi vaska sveit ungmenna til keppni á Silfurleika ÍR. Iðkendur 10 ára og yngri kepptu í þrautabraut, þar sem allir fengu þátttökuverðlaun, en þau eldri kepptu til verðlauna. Frábær árangur náðist á þessu fyrsta móti vetrarins. Krakkarnir sópuðu til sín verðlaunum og bætingarnar voru ófáar. Hæst bar Íslandsmet Bjarka Ragnarssonar í 60m hlaupi í flokki 13 ára pilta og árangur Andreu Sólar Marteinsdóttur í kúluvarpi sem kom henni í Afrekshóp FRÍ. Krakkarnir settu að auki 18 HSK-met.

21.11.2011 | Knattspyrna

3:0 sigur á Gróttu í ćfingaleik

Selfyssingar léku æfingaleik við Gróttu í Kórnum á laugardag. Þessi lið léku saman í 1. deild sl. sumar, en leiðir skildu er Selfyssingar unnu sér sæti í efstu deild, en Grótta féll. Í 1. deildinni unnu Selfyssingar leikina 3-0 og 4-0, en áður höfðu liðin gert jafntefli 1-1 í Lengjubikarnum. Selfyssingar voru með nokkurra yfirburði í þessum leik og unnu 3-0. Magnús Ingi Einarsson skoraði tvö mörk og Ingi Rafn Ingibergsson eitt.

21.11.2011 | Handbolti

4. flokkur karla gerđi jafntefli

A-liðið í 4. flokki fór og heimsótti KR í Vesturbæinn í gær. Var þar um hörkuleik sem var nokkuð kaflaskiptur. KR-ingar leiddu 15-14 í fyrri hálfleik en lokatölur urðu 29-29 jafntefli í leik þar sem Selfyssingar náðu sér ekki á strik.

21.11.2011 | Handbolti

Selfoss-2 nálćgt sigri

Selfoss-2 í 3. flokki lék einnig gegn Gróttu á laugardag í miklum baráttuleik þar sem sterkar varnir voru í aðalhlutverki. Til að mynda var einungis 1 mark skorað fyrstu 10 mínútur leiksins. Selfyssingar voru ekki nægilega beittir framan af og misstu Gróttu framúr sér. Mest komust heimamenn í Gróttu fimm mörkum yfir í fyrri hálfleik. Selfoss minnkaði í fjögur fyrir hlé en staðan í hálfleik var 10-6.

20.11.2011 | Handboltaakademía

Enn einn sigur í mfl. kvenna

Í hádeginu í dag mættu stelpurnar liði HK2 í Digranesi. HK liðið er skipað mjög sprækum stelpum í góðu formi sem spila mjög hraðan og skemmtilegan handbolta. Selfoss hafði engu að síður betur að þessu sinni 26-33. Staðan í hálfleik var 10-17 fyrir Selfoss.

20.11.2011 | Handboltaakademía

Sigur á Gróttu á útivelli

Á laugardag (í gær) mættust þau tvö lið í 1. deild 3. flokks karla sem höfðu enn ekki tapað leik þannig að um sannkallaðan toppslag var að ræða. Grótta er með þó nokkra landsliðsmenn og mjög gott lið þannig að það var ljóst að um hörkuleik yrði að ræða.

20.11.2011 | Sund

Selfoss sigrađi á Unglingamóti HSK 2011

Elínborg GuðmundarSelfoss sigraði stigakeppni félaga á unglingamóti HSK sem fram fór í Sundhöll Selfoss sunnudaginn 20. nóvember. Keppt var til stiga í aldursflokki 11-14 ára, 1 stig fyrir 6. sæti og 6 stig fyrir 1. sæti. Einnig var keppt í hnátu og hnokka flokki 8-10 ára, án stiga. Selfoss hlaut 75 stig en Dímon (Hvolsvelli) varð í öðru sæti með 53 stig. Hamar (Hveragerði) var svo í þriðja sæti með 44 stig. Þetta er fjórða árið í röð sem Selfoss sigrar unglingmótið.

19.11.2011 | Handboltaakademía

Góđir sigrar í 4 flokki kvenna

Í gærkvöldi spiluðu bæði A og B lið 4 flokks kvenna í Vallaskóla. A liðið mætti ÍR og B liðið Fram. Báðir leikirnir unnust. A liðið vann 28-16 og B liðið 15-14.

17.11.2011 | Sund

Sund fyrir fullorđna

Sund fyrir fullorðna er ætlað öllum sem vilja bæta sundkunnáttu sína og færni hvort sem er til ánægju eða sem undirbúningur fyrir keppnir. Æfingarnar munu auka úthald, styrk, samhæfingu og sundtækni ásamt því að sundhraði mun aukast. Æfingar verða á fimmtudagsmorgnum kl. 6.00 í útlauginni á Selfossi. Þjálfari er yfirþjálfari sunddeildar UMFS, Ragnar Jónasson. Skráning og allar frekari upplýsingar er hægt að fá á 3s.umfs@gmail.com. Þríþrautaráð sunddeildar, Þórir Erlingsson. 

17.11.2011 | Handbolti

Leikmannakynning í 3. flokki

Búið hefur verið til sérstakt myndband um 3. flokk karla í handboltanum. Það er stórskyttan Egidijus Mikalonis sem á veg og vanda að gerð myndbandsins en þar eru leikmenn Selfoss-2 í 3. flokki kynntir til leiks. Myndbandið er meðal annars frá leik Selfoss og Þróttar á dögunum sem Selfyssingar unnu 43-26. Við hvetjum alla til að horfa á myndbandið og kynnast flokknum en sagan segir að fleiri myndbönd frá handboltanum séu væntanleg!

16.11.2011 | Handboltaakademía

Sigur í Bikarnum hjá mfl. kvenna

Í gærkvöldi þá komst Selfoss í 8-liða úrslit í Bikarkeppninni með því að leggja lið Víkings á útivelli 25-27. Staðan í hálfleik var 16-14 fyrir Víking. Dregið verður í hádeginu í dag (miðvikudag) og nú eru bara lið í N1 deildinni eftir í keppninni þannig að það er öruggt að Selfoss fær heimaleik. 

15.11.2011 | Fimleikaakademía

Helga og Rakel Norđurlandameistarar í hópfimleikum međ liđi Ollerup

nm_fimleikar_2011Norðurlandamótið í hópfimleikum fór fram í Larvik í Noregi laugardaginn 12. nóvember sl. Selfyssingar áttu tvo fulltrúa á þessu móti en þær Helga Hjartardóttir og Rakel Nathalie Kristinsdóttir kepptu með mixliði Ollerup frá Danmörku í keppni blandaðra liða karla og kvenna. Þær stöllur hófu nám við lýðháskólan Ollerup í ágúst síðastliðnum og komust inn í keppnisliðið sem þá hafði tryggt sér þátttökurétt á Norðurlandamótið í hópfimleikum fullorðina.

15.11.2011 | Fimleikar

Ćgir Atlason varđ fjórfaldur Íslandsmeistari í almennum fimleikum

fimleikastrakar_2011Um síðustu helgi fór fram Íslandsmót í almennum fimleikum í íþróttahúsinu í Hveragerði. Tæplega 300 keppendur á aldrinum 9-16 ára mættu til keppni. Fimleikadeild Selfoss átti 9 keppendur á mótinu, stráka á aldrinum 9-13 ára, en keppt var í A og B flokki í hverjum aldursflokki. Ægir Atlason 13 ára gerði sér lítið fyrir og vann öll fjögur áhöldin og varð því fjórfaldur Íslandsmeistari.

14.11.2011 | Handboltaakademía

Góđur sigur á Val í 3. flokki kvenna

Á sunnudag gerðu stelpurnar í 3. flokki sér lítið fyrir og unnu Val sannfærandi á útivelli með 31 marki gegn 23. Valur er með gott lið og því var sigurinn sætur. Staðan í hálfleik var 12-13 fyrir Selfoss.

14.11.2011 | Handbolti

Kynning, sala og afhending á Ullmax vörum í Tíbrá

Stelpur í 4. flokki í handboltanum og foreldrar þeirra eru að selja Ullmax útivistarfatnað sem fjáröflun fyrir keppnisferð á Norden Cup í handbolta sem fer fram í Gautaborg 27.-30 desember. Í tilefni þess verður kynning, sala og afhending á Ullmax vörum í Tíbrá fimmtudaginn 17. nóvember kl. 19-21. Allir eru velkomnir.

14.11.2011 | Handbolti

2. flokkur tapađi heima fyrir Haukum

Selfyssingar í 2. flokki töpuðu í gær 26-28 fyrir Haukum úr Hafnarfirði. Okkar menn leiddu í hálfleik 13-12 og komust yfir 19-15 en þá kom 11-1 kafli Haukum í vil. Selfoss lék af 20% getu í leiknum í gær og þurfa að taka til í sínum ranni. Meira getur síðuritari ekki skrifað um leikinn.

13.11.2011 | Handboltaakademía

3. flokkur karla vann Hauka

Í gær kom 3. flokkur Hauka í heimsókn í Vallaskóla og léku við Selfoss 1. Selfoss vann leikinn 30-25 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 17-14. Haukar eru með fínt lið og þurftu okkar strákar virkilega að hafa fyrir sigrinum að þessu sinni.

13.11.2011 | Handboltaakademía

Sigur hjá meistaraflokki kvenna

Stelpurnar í meistaraflokki kvenna spiluðu á föstudagskvöldið gegn HK 3 og höfðu sigur á heimavelli 36-26 en staðan í hálfleik hafði verið 21-15 fyrir okkar stelpur.

13.11.2011 | Knattspyrna

Tap gegn Aftureldingu

Selfyssingar tóku á móti Aftureldingu í Kórnum Kópavogi í sínum fyrsta æfingaleik fyrir komandi keppnistímabil. Tvær deildir skilja á milli liðanna, en það var ekki að sjá í þessum leik. Selfyssingar voru heilt yfir slakir. Sennilega er um að kenna þungu prógrammi á þessum árstíma og eins léku 2. flokks strákarnir einn hálfleik í 8-2 sigri á ÍBV kvöldinu áður.

13.11.2011 | Knattspyrna

2. flokkur vann ÍBV 8-2

Strákarnir hans Halldórs Björnssonar í 2. flokki halda áfram að gera það gott í Faxaflóamótinu. Á föstudagskvöldið tók A-lið Selfoss á móti A-liði ÍBV og unnu strákarnir stórsigur 8-2. Eins og tölurnar gefa til kynna var sigur strákanna mjög öruggur allan tímann, en staðann í hálfleik var 3-0. Þeir Pálmi Þór Ásbergsson, Ísak Eldjárn Tómasson og Reynir Óskarsson skoruð 2 mörk hver og þeir Sindri Rúnarsson og Markús Vernharðsson skoruð báðir 1 mark.

13.11.2011 | Handbolti

Tveir sigrar á Haukum í 4. flokki karla

Bæði liðin í 4. flokki karla mættu Haukum í Sólvallaskóla á laugardag. Selfoss-liðin áttu góðan dag og sigruðu báða leikina. A-liðið vann 33-24 og B-liðið 22-18. Í A-liðum mætti Selfoss liðið frábærlega undirbúið í leikinn og komst 6-0 yfir. Selfyssingar héldu uppteknum hætti á næstu mínútum eftir það og leiddu 13-4 eftir 17 mínútur.

11.11.2011 | Handbolti

Glćsilegur sigur í 3. flokki

Selfoss 2 vann mjög góðan sigur á Þrótti í gærkvöldi í 3. flokki. Selfoss strákarnir byrjuðu leikinn af krafti og komust strax þremur mörkum yfir. Eftir korters leik var Selfoss komið i 9-3 og aldrei spurning hvort liðið myndi sigra eftir það. Liðið bætti við muninn í fyrri hálfleik og leiddi 21-10 í hálfleik. Í síðari hálfleik bættu Selfyssingar við muninn og unnu að lokum 43-26 sigur.

10.11.2011 | Handbolti

8 leikir á Selfossi á nćstu dögum!

Alls verða átta handboltaleikir á Selfossi frá og með deginum í dag og fram á sunnudag. Selfoss-2 í 3. flokki ríður á vaðið í kvöld. Meistaraflokkarnir báðir leika á föstudagskvöldinu. Á laugardag er heimaleikjadagur þar sem 4. flokkur A og B sem og 3. flokkur spila þrjá leiki í röð. Á sunnudeginum leika svo 4. flokkur kvenna B og 2. flokkur karla.

Tímasetningar eru hér fyrir neðan en tilvalið væri fyrir fólk að mæta á leikina og styðja við bakið á handboltaliðunum okkar. 

10.11.2011 | Fimleikar

Norđurlandamótiđ í hópfimleikum í beinni á netinu

Norðurlandamótið í hópfimleikum fer fram í Larvik í Noregi á laugardaginn. Selfyssingar eiga tvo fulltrúa í keppninni, þær Rakel Nathalie Kristinsdóttur og Helgu Hjartardóttur, sem keppa með mixliði Ollerup. Gerpla keppir í kvennaflokki og sameiginlegt lið Ármanns og Stjörnunar keppir í mixflokki við Ollerup. Hægt er að fylgjast með keppninni í beinni útsendingu á netinu á slóðinni http://www.gymogturn.no/teamgym2011/Sider/teamgym2011forside.aspxen þar er linkur til vinstri sem heitir Web-TV.

9.11.2011 | Fimleikar

Bónus styrkir fimleikadeild Umf. Selfoss

Bónus styrkir fimleikadeildÍ gær afhenti Bónus á Selfofssi fimleikadeild Umf. Selfoss 500 þúsund króna styrk í tilefni af opnun nýju Bónusverslunarinnar á laugardaginn. Bónus hefur haft þann sið þegar nýjar verslanir eru opnaðar að fagna því með því að styrkja íþróttafélög í viðkomandi bæjum.

8.11.2011 | Handboltaakademía

2. flokkur sótti tvö stig í Safamýri

Leikmenn 2. flokks sóttu Fram heim í gærkvöld og höfðu sigur 31-28 eftir að hafa verið undir 14-15 í hálfleik. Okkar menn sýndu styrk sinn þegar mikið reyndi á þá í gær og stóðust álagið. Því fer fjarri að öll lið sæki sigur í Safamýrina og var þetta því afar góður sigur okkar drengja.

8.11.2011 | Knattspyrna

Markmannsnámskeiđ á Selfossi 12. og 13. nóv

Gunnleifur Gunnleifsson landsliðsmarkvörður og markvörður FH verður á Selfossi helgina 12. og 13. nóvember þar sem að hann verður með markmannsnámskeið fyrir allan aldur markmanna á Suðurlandi. Gunnleifur hefur haldið slík námskeið undanfarin ár um allt land og hafa þau ávallt verið vel sótt. Þeir þjálfarar og foreldrar sem hafa fylgst með námskeiðunum hafa verið mjög ánægð.

8.11.2011 | Kraftlyftingar

Bryndís sterkasta kona Íslands 2011

sterkasta_kona_2011Bryndís Ólafsdóttir vann um helgina titilinn Sterkasta kona Íslands, en keppnin fór fram í Hörpunni. Þóra Þorsteinsdóttir varð í öðru sæti og Jóhanna Eivinsdóttir í þriðja. Auk þeirra tóku þær Katrín Jóna Kristinsdóttir og Rósa Birgisdóttir þátt í keppninni. Allar hafa þær æft saman og keppa undir merkjum Umf. Selfoss.

8.11.2011 | Handboltaakademía

3. flokkur kvenna tapađi á Akureyri

Stelpurnar í 3. flokki fóru til Akureyrar á sunnudaginn og spiluðu þar við KA/Þór. Leikurinn tapaðist 26-20 en staðan í hálfleik var 10-11 fyrir Selfoss.

7.11.2011 | Knattspyrna

Jón Dađi leikur međ u-21 árs landsliđinu

Jón Daði Böðvarsson var í vikunni valinn í lokahóp u-21 árs landsliðs Íslands. Jón Daði er fyrsti leikmaður Selfoss sem valinn er til að spila með u-21 árs landsliðinu. Selfyssingar hafa verið valdir áður, en þá verið komnir í önnur lið. Með Jóni Daða í landsliðinu er einnig Selfyssingurinn Guðmundur Þórarinsson. Þeir félagar eru einungis 19 ára og eiga því tvö góð ár eftir í þessu landsliði. Flestir muna eftir frábærum árangri u-21 landsliðsins er þeir komust í lokakeppni Evrópumótsins sl. sumar. Strákarnir halda út til Englands á þriðjudag og leika þar við heimamenn. Leikurinn sjálfur er á fimmtudag. Ekki yrði leiðinlegt að sjá þá félaga á Skysport á fimmtudagskvöld. Heimasíða Selfoss óskar þeim félögum innilega til hamingju með þetta skref í átt að frama.

7.11.2011 | Knattspyrna

Gott jafntefli gegn Íslandsmeisturunum

Stúlkurnar í 2. flokki Selfoss léku á sunnudag sinn fyrsta leik í Faxaflóamótinu. Þær tóku þá á móti Íslandsmeisturum Vals og endaði leikurinn 3-3. Selfyssingar komust 2-0 yfir í leiknum með mörkum frá Evu Lind Elíasdóttur og Írisi Sverrisdóttur, en staðan í hálfleik var 2-1. Valsstúlkur komust svo yfir 2-3 áður en Íris Sverris skoraði sitt annað mark og jafnaði leikinn. Selfyssingar sóttu svo meira undir restina, en náðu ekki að taka öll þrjú stiginn. Næsti leikur hjá stelpunum er gegn FH laugardaginn 19. nóvember á Selfossvelli.  

7.11.2011 | Knattspyrna

Öruggur 5-0 sigur á Breiđabliki hjá 2. flokki

Strákarnir í 2. flokki Selfoss léku á dögunum sína fyrstu leiki í Haustfaxanum. Selfyssingar senda nú í fyrsta sinn tvö lið til leiks og er það virkilega ánægjulegt og sýnir uppgang í knattspyrnunni á Selfossi. Í fyrsta leik sínum vann a-lið Selfoss frábæran 5-0 sigur á jafnöldrum sínum í Breiðabliki. Mörk Selfoss skoruðu þeir Ingvi Rafn Óskarsson 2, Kristján Valur Sigurjónsson, Þorsteinn Daníel Þorsteinsson og Magnús Ingi Einarsson 1 mark hver.

7.11.2011 | Taekwondó

Selfyssingar međ tvö gull og eitt silfur á Scandinavian Open í sparring

Skand_open_2011Helgina 5.-6. nóvember sl. var Scandinavian Open í sparring haldið í Horsens í Danmörku. Þrír keppendur frá taekwondodeild Umf. Selfoss tóku þátt í keppninni. Skemmst er frá því að segja að árangur þeirra var vægast sagt frábær. Daníel Jens Pétursson vann gull í -80 kg karlaflokki og var kosinn keppandi mótsins. Davíð Arnar Pétursson vann silfur í -33 kg kadettflokki og Ingibjörg Erla Grétarsdóttir vann gull í juniorflokki kvenna. Þess má geta að Daníel og Davíð eru bræður.

5.11.2011 | Handboltaakademía

4 flokkur kvenna

Bæði A og B liðin hafa spilað tvo leiki undanfarið. Síðustu helgi og svo aftur í dag. A liðið tapaði úti fyrir Fram og vann ÍBV heima en B liðið tapaði báðum útileikjunum sínum.

3.11.2011 | Handbolti

Íţróttameiđsli og reglugerđ kalla á nýtt gólf í íţróttahús Vallaskóla

Flestum er tengjast handbolta á Selfossi er orðið ljóst að völlurinn í íþróttahúsi Vallaskóla stenst ekki reglugerðir. Í haust veitti stjórn Handknattleikssambands Íslands handknattleiksdeild Umf. Selfoss eins árs undanþágu fyrir völlinn í íþróttahúsi Vallaskóla, en völlurinn er ekki rétt merktur. Einnig er gólfflötur hússins ekki nægjanlega stór. Vallarhelmingarnir eru misstórir og breidd vallarins 55 sm of stutt. Eins er of lítið pláss frá hliðarlínum og að hliðarveggjum hússins. Það gefur því auga leið að húsið verður alltaf ólöglegt til handknattleiksiðkunar þó svo að völlurinn verði settur í rétta stærð.

2.11.2011 | Handbolti

Tap gegn Víkingi í slökum leik

Selfyssingar fengu Víkinga í heimsókn síðastliðinn föstudag. Tapaðist sá leikur en bilið var 5-7 mörk stærstan part leiksins og áttu Selfyssingar lítla möguleika. Varnarleikurinn varð okkur að falli en hann var arfaslakur allan tímann og skoruðu Víkingar alltof mörg auðveld mörk.

2.11.2011 | Júdó

Opin ćfing í nýja júdósalnum í Sandvíkurskóla fimmtudaginn 3. nóv

Júdódeildin er búin að vera að gera æfingaraðstöðuna í Sandvíkurskólanum klára. Fimmtudaginn 3. nóvember kl. 17:45 ætlum við að hafa óformlega opnum á salnum. Við væntum þess að það verði góð mæting á fimmtudagsæfinguna og ætla góðir gestir, meðal annars  Bjarni Friðriksson margfaldur Íslandsmeistari, Norðurlandameistari og Ólympíuverðlaunahafi, að heimsækja okkur þennan dag og vera með okkur eina æfingu.

2.11.2011 | Handbolti

Einar valinn í 20 ára liđiđ

Einar Sverrisson leikmaður Selfoss hefur verið valinn í landslið Íslands skipað leikmönnum fæddum 1992 og 1993. Einar fer til Noregs á morgun ásamt félögum sínum í liðinu og leikur liðið þar þrjá leiki, gegn Noregi, Svíþjóð og Tékklandi.

31.10.2011 | Handbolti

Góđur sigur hjá 2.flokki

Selfyssingar í 2.flokki í handbolta sóttu HK-inga heim í Digranesið síðastliðinn laugardag og sóttu tvö stig eftir öruggan 30-23 sigur. Selfoss leiddi í hálfleik 16-9.

31.10.2011 | Sund

85 keppendur á Ţórđarmótinu í sundi

olof_eir_eyglo_2011Árlegt Þórðarmót sunddeildar Umf. Selfoss var haldið sunnudaginn 30. október í Sundhöll Selfoss. Þórðarmótið er haldið til minningar um Þórð Gunnarsson þjálfara og sundkennara sem starfaði lengi á Selfossi. Að þessu sinni voru 85 keppendur skráðir á mótið en þeir komu fá Selfossi, Hveragerði, Hvolsvelli og Grindavík.

30.10.2011 | Handbolti

4. flokkur í Vestmannaeyjum

4. flokkur karla fór til Vestmannaeyja um helgina og lék þar tvo leiki við heimamenn. Í A-liðum vannst karakters sigur 22-23 þar sem góður varnarleikur skóp sigurinn. Í B-liðum var jafnt í hálfleik en í síðari hálfleik keyrði ÍBV yfir okkar menn og vann 27-20.

29.10.2011 | Handboltaakademía

Sigur á ÍBV í 3 flokki karla

Í gær unnu strákarnir lið ÍBV í Vallaskóla 33-24. Staðan í hálfleik var 17-11 fyrir Selfoss. Þrátt fyrir að liðið hafi ekki spilað sinn besta leik þá vannst samt sigur og það er alltaf gaman að vinna.

27.10.2011 | Handboltaakademía

Breyttur leiktími í 3. flokki karla

Við viljum vekja athygli á því að leikur Selfoss og ÍBV í 3. flokki karla verður á morgun kl. 16:30 en ekki kl. 21:00 eins og upphaflega stóð til. Við biðjum fólk um að koma og styðja strákana í þessum leik og svo meistaraflokkinn í beinu framhaldi, en þeir leika gegn Víkingi í 1. deildinni strax á eftir kl. 19:30. Áfram Selfoss!

27.10.2011 | Frálsíţróttir

Af haustfundi frjálsíţróttaráđs HSK

Frjálsíþróttaráð HSK hélt sinn árlega haustfund þann 11. október síðastliðinn í Tíbrá á Selfossi. Á fundinn mættu aðildarfélög ráðsins með sína fulltrúa og var farið yfir stöðu frjálsíþrótta á sambandssvæðinu, en dagskrá fundarins var í sjö liðum.

26.10.2011 | Handbolti

Tap gegn ÍR í bikarnum

Selfyssingar fengu ÍR-inga í heimsókn seinasta mánudag. Fór svo að leikurinn tapaðist eftir hörkuspennandi lokamínútur. Selfyssingar voru í vænlegri stöðu þegar um 15 mínútur voru eftir af leiknum en töpuðu þeirri forystu niður á klaufalegan hátt og leikurinn endaði 26-28 ÍR-ingum í vil.

25.10.2011 | Fimleikar

Fimleikadeildin safnar fyrir trampólíni

Þessa dagana eru iðkendur  fimleikadeildar Umf. Selfoss á fullu að safna fyrir nýju trampólíni fyrir deildina. Fimleikar eru vinsæl íþrótt og nú eru iðkendur deildarinnar 400.  Trampólínið, sem deildin stefnir á að kaupa, er nýjasta keppnistrampólínið á markaðnum og miðar hönnun þess að auknum gæðum og hærri stökkum.

24.10.2011 | Handbolti

Bikarleikur viđ ÍR í Vallaskóla í kvöld kl. 19:30

HSI_logoSelfoss fær ÍR í heimsókn í kvöld í íþróttahús Vallaskóla þar sem liðin mætast í Eimskips bikar karla. Hefst leikurinn kl. 19:30. Fastlega má búast við hörku leik - eins og bikarleikir eru oft. Liðin áttust við í Seljaskóla í 1. deildinni um daginn og lauk þeim leik með jafntefli 27:27 eftir að Selfoss hafði verið undir 16:12 í hálfleik. Nú er um að gera að mæta í Vallaskóla, upplifa stemninguna á pöllunum og hvetja strákana til sigurs. Áfram Selfoss!

22.10.2011 | Knattspyrna

Herrakvöld knattspyrnudeildar verđur föstudaginn 28. okt

Herrakvöld knattspyrnudeildar Selfoss verður haldið föstudaginn 28. október, en það er nú haldið í Hvíta húsinu í 3. sinn. Áður hafa herrakvöldin verið haldin í Tryggvaskála og í Þingborg, en sprengt bæði húsin utan af sér. Hvíta húsið tekur rúmlega 200 manns í sæti og nú þegar er búið að selja rúmlega 150 miða. Veislustjóri verður útvarpsmaðurinn Freyr Eyjólfsson, ættaður frá Laugardælum í Hraungerðisprestakalli. Ræðumaður kvöldsins verður svo óðalsbóndi úr Gulverjabæjarhreppi, knattspyrnuþjálfarinn Logi Ólafsson.

22.10.2011 | Knattspyrna

Ţrír Selfyssingar ćfa međ u-21 árs landsliđinu

Þeir Eyjólfur Sverrisson og Tómas Ingi Tómasson hafa kallað saman æfingahóp fyrir u-21 árs landslið Íslands. Þrír leikmenn Selfossliðsins sem tryggði sér sæti í efstu deild í haust hafa verið valdir til æfinga. Hópurinn nú er einungis skipaður leikmönnum sem leika á Íslandi. Er það frábær árangur hjá Selfyssingum að hafa þrjá leikmenn í hópnum. Sýnir það gróskuna á Selfossi og eins þau dýrmætu tækifæri sem ungu strákarnir á Selfossi fá með meistaraflokknum.

19.10.2011 | Handboltaakademía

Góđur sigur hjá 3. flokki karla

Strákarnir í 3. flokki mættu Aftureldingu á útivelli í gærkvöldi og unnu þar sætan sigur á mjög öflugu liði heimamanna 24-29. Staðan í hálfleik var 17-14 fyrir heimamenn.

19.10.2011 | Sund

Hefur ţú áhuga á ţríţraut?

Stofnfundur þríþrautarráðs innan sunddeildar Ungmennafélags Selfoss verður haldinn fimmtudagskvöldið 20. október kl. 20:00 í Tíbrá, félagsheimili ungmennafélagsins við Engjaveg á Selfossi. Þríþraut er skemmtileg íþrótt sem hentar flestum en í henni er keppt í sundi, hjólreiðum og hlaupi, yfirleitt í þessari röð. Þríþraut hefur vaxið mjög hratt undanfarin ár en þátttakendur eru á öllum aldri, allt frá þriggja ára börnum upp í hálf níræða unglinga.

18.10.2011 | Knattspyrna

Freyr Sigurjónsson valinn til ćfinga hjá u-16 ára landsliđinu

Freyr Sigurjónsson var í gær valinn til æfinga með u-16 ára landsliði Íslands. Freyr sem er kantmaður hefur verið mjög vaxandi í sínum leik síðastliðin ár og er nú að uppskera fyrir dugnað sinn. Þetta er í fyrsta sinn sem Freyr er valinn á landsliðsæfingar, en áður hefur hann verið valinn í knattspyrnuskóla KSÍ á Laugarvatni. Heimasíða UMFS óskar Frey til hamingju með þennan árangur. Þjálfari u-16 ára landsliðsins er hin virti þjálfari Freyr Sverrisson. 

18.10.2011 | Knattspyrna

Svavar Berg og félagar áfram í Evrópukeppninni

Unglingalandslið stráka í knattspyrnu undir 17 ára með Svavar Berg Jóhannsson innanborðs tryggði sér sæti í milliriðli Evrópumótsins á dögunum. Íslendingar voru í sterkum riðli með Sviss, Grikklandi og Ísrael, en leikið var í Ísrael. Íslendingar sem eru núverandi norðurlandameistarar unnu riðilinn, fengu 6 stig. Frábær árangur hjá Svavari Berg að komast í þetta sterka landslið. En Svavar er einn alefnilegasti knattspyrnumaður Selfoss í dag. Þjálfarar strákana er Gunnar Guðmundsson og ljóst að hann er að gera góða hluti með þessa stráka. 

18.10.2011 | Knattspyrna

Guđrún og Eva Lind stóđu sig vel í Austurríki

Landslið kvenna í knattspyrnu skipað leikmönnum undir u-17 ára tryggði sér sæti í milliriðli á dögunum. Með þessu landsliði leika Selfossstelpurnar Guðrún Arnarsdóttir og Eva Lind Elíasdóttir. Stelpurnar voru í riðli með Skotlandi, Kasekstan og Austurríki, en leikið var í Austurríki. Stelpurnar töpuðu ekki leik og enduðu efstar með 7 stig. Guðrún er lykilmanneskja í vörn í Íslands og stóð sig mjög vel allt mótið. Eva Lind spilaði sinn fyrsta landsleik gegn Kasekstan er hún kom inn á er 15 mínútur voru eftir af leiknum og gerði hún sér lítið fyrir og skoraði mark í sínum fyrsta landsleik. Stelpurnar eru nú komnar í milliriðil og verður dregið í riðla í desember. Þjálfari stúlknanna er Þorlákur Árnason, en hann hefur náð frábærum árangri með u-17 ára landsliðið. Hann fór með síðasta hóp í 4 liða úrslit á Evrópumótinu og er nú búinn að byggja upp nýtt og frábært landslið. 

17.10.2011 | Handboltaakademía

Mfl. kvenna vann aftur

Stelpurnar í Mfl. gerðu sér lítið fyrir og unnu Fylki í síðasta leik gærdagsins. Fylkisliðið er mjög vel spilandi og með frábæran markmann og því er sigurinn mjög sætur.

17.10.2011 | Handboltaakademía

Tvöfaldur sigur í 4 fl. kvk.

Fyrsti leikur A liðsins og annar leikur B liðsins fóru fram i gær í Vallaskóla. Þetta voru tveir fyrstu leikir dagsins af alls 5 leikjum sem fóru fram í húsinu.         

17.10.2011 | Handbolti

Tvöfaldur sigur gegn FH

4. flokkur karla (A og B) lék í gær gegn FH í Vallaskóla á svokölluðum Heimaleikjadegi. Fjölmennt var í húsinu allan daginn og var gaman að sjá hversu vel Selfoss liðin voru studd af áhorfendum. A-liðið reið á vaðið og sigraði FH-inga 26-25 í há dramatískum leik eftir að hafa verið 12-16 undir í hálfleik. B-liðið vann einnig 26-25 en þeir voru 14-11 yfir í hálfleik.

15.10.2011 | Handbolti

Heimaleikjadagur í Vallaskóla

Við minnum á heimaleikjadag í Vallaskóla á morgun, sunnudag, en þá munu fara fram fimm leikir í handboltanum. Fyrst leika 4. flokkur kvenna (bæði lið), þá næst 4. flokkur karla (bæði lið) og í lokin spilar meistaraflokkur kvenna. Fyrsti leikur hefst kl. 13:30 og verða leikirnir hver á eftir öðrum eftir það. Hér eru tímasetningar á öllum leikjunum...

14.10.2011 | Handbolti

Tap í fyrsta leik Selfoss-2

Selfoss-2 í 3. flokki mætti A-liði FH í gær í fyrsta leik tímabilsins. FH-ingar eru með hörkulið og unnu leikinn nokkuð örugglega 17-31 eftir að hafa leitt 7-17 í hálfleik.

14.10.2011 | Handbolti

Frá Helga og Einari Héđinssonum

Vegna orðróms sem uppi hefur verið vegna brotthvarfs okkar bræðra frá handknattleiksdeild Selfoss viljum við koma eftirfarandi á framfæri:

13.10.2011 | Frálsíţróttir

Efnilegir unglingar valdir í úrvalshópa í frjálsum

Í liðinni viku var tilkynnt hvað einstaklingar eru í úrvals- og afrekshópum unglinga hjá Frjálsíþróttasambandi Íslands fyrir tímabilið 2011 - 2012. Valið er endurskoðað af loknu innanhússtímabili 2012.

12.10.2011 | Handboltaakademía

3. fl. kvenna vann sinn fyrsta leik

Í gær var fyrsti leikur 3. flokks kvenna í Vallaskóla gegn FH2. Leikurinn fór 36-21 fyrir Selfoss eftir að staðan í hálfleik hafði verið 15-9. Vörn og markvarsla var mjög góð allan leikinn og mikil barátta í stelpunum. Hraðaupphlaupin gengu betur og betur eftir því sem leið á leikinn. Sóknarleikurinn var ágætur þrátt fyrir að lítið sé búið að vinna í honum enn sem komið er.

10.10.2011 | Handboltaakademía

4. fl. kvenna B-liđ tapađi fyrir Fram

Í gær hófst Íslandsmótið hjá 4. flokki kvenna. B-liðið mætti þá Fram á útivelli. Framliðið var talsvert sterkara að þessu sinni og vann 24-15. Staðan í hálfleik var 10-6 fyrir Fram.

10.10.2011 | Handbolti

Tvöfaldur sigur hjá yngra ári 6.fl.

Selfoss vann tvöfaldan sigur á Akureyrarmótinu um síðustu helgi í 6. flokki drengja og stúkna yngra ár. Mótafyrirkomulagið er þannig að leikin eru fimm fjölliða mót þar sem öll liðin á landinu koma saman og besti samanlagður árangur veitir Íslandsmeistaratitil. 

10.10.2011 | Júdó

Haustmót seniora var í Iđu um helgina

Haustmót seniora var haldið í Iðu á Selfossi um helgina og voru þátttakendur 29 frá fimm félögum. Keppt var í sex þyngdarflokkum og opnum flokki karla. Margar flottar og spennandi glímur sáust en úrslitin voru þó að mestu eftir bókinni. Athygli vakti þátttaka Gísla Jóns Magnússonar, fyrrum landsliðsmanns í þungavigt, sem varð í öðru sæti í +/- 100 kg flokki. Þetta var hans fyrsta keppni eftir margra ára fjarveru og átti hann flotta endurkomu og hefur greinilega engu gleymt. Selfyssingarnir Þór Davíðsson og Egill Blöndal voru meðal keppenda. Þór keppti á móti margföldum Norðulanda- og Íslandsmeistara en tapaði naumlega á síðustu mínútunni. Hann hafnaði svo í þriðja sæti. Egill sem var yngsti keppandinn á mótinu stóð sig vel á móti besti júdómönnum landsins og varð í þriðja sæti.

10.10.2011 | Júdó

Tvö gull á haustmóti JSÍ

Haustmót Júdósambands Íslands fyrir 20 ára og yngri var haldið 24. september sl. Júdódeild Umf. Selfoss sendi tvo keppendur á mótið og komu þeir báðir með gullverðlaun heim. Úlfur Böðvarsson keppti í -60 kg flokki í aldursflokkinum 11-12 ára. Úlfur tók 3 viðureignir og vann þær allar á glæsilegum ippon köstum. Grímur Ívarsson keppti í -66 kg flokki í aldursflokkinum 13-14 ára. Grímur keppti einnig þrisvar og vann síðustu

9.10.2011 | Handboltaakademía

Íslandsmót yngri flokka ađ komast á fullt

Nú eru allir flokkar Selfoss að hefja leik á Íslandsmótinu. Flestir spila sína fyrstu leiki í síðustu eða þessari viku. Selfoss er með öll sín lið í öllum flokkum í efstu deild. Sunnudaginn 16 .október verða 4 leikir hjá liðunum í 4. flokki í Íþróttahúsi Vallaskóla. A og B lið karla og kvenna verða í eldlínunni og að auki verður fyrsti heimaleikur meistaraflokks kvenna um kvöldið.

8.10.2011 | Handboltaakademía

Meistaraflokkur kvenna vann FH á útivelli

Stelpurnar okkar eru ekki í N1 deildinni en þær eru í deildinni fyrir neðan. Þar hófst Íslandsmótið í gærkvöldi með leik FH og Selfoss í Kaplakrika. Stelpurnar stóðu sig með prýði og unnu sigur 26-28 á spræku FH liði.

7.10.2011 | Handboltaakademía

3 fl. karla vann fyrsta leikinn sinn

Í gær hófst Íslandsmótið í 3 flokki karla með leik Selfoss og Fjölnis í Vallaskóla. Selfoss liðið byrjaði mótið vel og vann góðan sigur 39-21. Staðan í hálfleik var 17-8.

6.10.2011 | Nýjustu fréttir

Fyrsti heimaleikur tímabilsins

Í kvöld fer fram fyrsti heimaleikur meistaraflokks Selfoss í 1. deildinni. Leikið verður gegn ÍBV og hefst hann kl. 18:30. Um mikilvægan leik er að ræða enda er ÍBV spáð efsta sætinu í 1. deildinni. Þar sem að einungis eru 6 lið í deildinni og fjórföld umferð leikin þá skipta innbyrgðis viðureignir miklu máli. Hvetjum við alla til að mæta því þetta verður heljarinnar skemmtun eins og vanalega. Á eftir leiknum er annar handboltaleikur þar sem 3. flokkur karla tekur á móti Fjölni. Sá leikur hefst kl. 21.

6.10.2011 | Handbolti

Sigur í fyrsta leik 4. flokks

4. flokkur karla lék í gær sinn fyrsta leik í deildinni í vetur gegn Aftureldingu. Leikurinn fór fram í Vallaskóla og voru þó nokkrir áhorfendur mættir til að horfa á strákana. Þó hefði verið gaman að sjá fleiri mæta enda var leikurinn hin mesta skemmtun fyrir áhorfendur. Selfoss vann 11 marka sigur, 30-19 eftir að hafa leitt 14-8 í hálfleik. Selfyssingar fara því vel af stað í vetur.

5.10.2011 | Knattspyrna

Fyrsta innićfingin hjá 8. flokki í fótbolta er í dag

Fyrsta inniæfing vetrarins hjá 8. flokki í fótbolta verður í dag, 5. október, í íþróttahúsinu Iðu kl. 17.15-18.00. Þjálfari er Hafdís Jóna Guðmundsdóttir. Allir krakkar fæddir 2006 og 2007 velkomnir!

4.10.2011 | Handbolti

Fyrstu leikirnir í yngri flokkunum í handbolta!

Í vikunni leika 4. og 3. flokkur karla sína fyrstu heimaleiki á Íslandsmótinu í handknattleik. Strákarnir í 4. flokki leika gegn Aftureldingu og 3. flokkurinn gegn Fjölni, en báðir leikirnir fara fram í Vallaskóla. Við hvetjum fólk til að mæta og styðja við bakið á okkar drengjum sem ætla sér að leggja sig alla fram í vetur og sýna mikla leikgleði á vellinum. Miðvikudagur 5. október - kl. 20:00 - Selfoss - Afturelding (4. fl. karla). Fimmtudagur 6. október - kl. 21:00 - Selfoss - Fjölnir (3. fl. karla).

4.10.2011 | Knattspyrna

Svavar Berg međ U-17 ára landsliđinu til Ísraels

Svavar Berg Jóhannsson er í lokahópi Íslenska landsliðsins í knattspyrnu skipað leikmönnum undir 17 ára. Þessi efnilegi leikmaður hefur verið lykilleikmaður í 3. og 2. flokki Selfoss í sumar og átti m.a. stóran þátt í góðum árangri 2. flokks í sumar. Landsliðið leikur í undankeppni Evrópumótsins dagana 12.-17. október og fer riðillinn fram í Ísrael. Þetta landslið er gríðarlega sterkt. Í sumar urðu þeir Norðurlandameistarar í sínum aldursflokki og stóð Svavar Berg sig mjög vel þar. Þjálfari strákanna er Gunnar Guðmundsson.

4.10.2011 | Knattspyrna

Eva Lind og Guđrún Arnars í lokahóp U-17 ára landsliđsins

Þær Eva Lind Elíasdóttir og Guðrún Arnarsdóttir hafa verið valdar í U-17 ára landsliðið í knattspyrnu sem leikur á Evrópumótinu í næstu viku. Guðrún var lykilleikmaður í meistaraflokki Selfoss í sumar sem vann sér sæti í efstu deild. Eva Lind sýndi miklar framfarir með 2. og 3. flokki í sumar og vann sér svo sæti í meistaraflokksliðinu. Ísland leikur í riðli með Skotlandi, Austurríki og Kasakstan en leikið verður í Austurríki. Evrópumótið hefst þann 7. október og er síðasti leikurinn þann 12. október. Þjálfari stelpnanna er Þorlákur Árnason þjálfari, Íslandsmeistara Stjörnunnar.

4.10.2011 | Frálsíţróttir

Frjálsíţróttafólk HSK hélt lokahóf í Tíbrá

Loka_frjalsar_006Frjálsíþróttafólk af HSK-svæðinu hélt lokahóf föstudaginn 30. september sl. Um 30 manns mættu á lokahófið sem haldið var í félagsheimilinu Tíbrá á Selfossi þar sem frábært frjálsíþróttatímabil var gert upp.

3.10.2011 | Handbolti

Tap gegn Stjörnunni í fyrsta leik tímabilsins

Selfyssingar fengu erfiða andstæðinga í fyrstu umferð 1. deildarinnar er þeir fóru í Garðabæinn og heimsóttu Stjörnunna. Stjörnunni er af mörgum spá beint upp í N1 deildina því augljóst að um verðugt verkefni var að ræða. Svo kom á daginn að Selfyssingar spiluðu ekki nægilega góðan leik og lágu því þeð 6 marka mun, eða 29-23.

30.9.2011 | Nýjustu fréttir

Systkinaafsláttur á milli deilda og fyrir ţá sem ćfa fleiri en eina grein

Á fundi aðalstjórnar Umf. Selfoss sem haldinn var 7. september 2011 var ákveðið að félagið myndi veita systkinaafslátt á milli deilda fyrir tímabilið september - desember 2011 og janúar - maí 2012. Systkinaafsláttur er 1.000 kr. á mánuði fyrir fyrir 2. og 3. barn og gildir fyrir fjölskyldur þar sem börn æfa ekki öll sömu íþróttagrein. Afslátturinn gildir einnig fyrir börn sem æfa fleiri en eina íþróttagrein. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri á skrifstofu Umf. Selfoss.

30.9.2011 | Handbolti

Fyrsti leikurinn í handboltanum í kvöld í Garđabć

Fyrsti leikur meistaraflokks Selfoss í 1. deild karla í handboltanum verður í kvöld og er hann gegn Stjörnunni í Mýrinni í Garðabæ. Hefst leikurinn kl. 20:00. Auk Selfoss og Stjörnunnar eru í 1. deild karla Fjölnir, ÍBV, ÍR og Víkingur. Þar sem liðin eru aðeins sex verður leikin fjórföld umferð. Fyrsti heimaleikurinn er gegn ÍBV fimmtudaginn 6. okt kl. 18:30. Nú er um að gera að setja sig í rétta gírinn og fylgjast með handboltastrákunum.

30.9.2011 | Knattspyrna

Flokkaskipti og vetrarćfingatímar í fótboltanum

Núna í lok september fara fram flokkaskipti hjá yngri flokkum knattspyrnudeildar. Eldri árgangar færast þá upp um flokk. Nýjar æfingatölfur fyrir vetraræfingar taka einnig gildi. Hér á heimasíðunni, þ.e. í efnisflokkum á knattspyrnusíðunni, má finna æfingatíma allra flokka og upplýsingar um þjálfara. Á forsíðunni eru upplýsingar um æfingagjöld.

27.9.2011 | Sund

Ungbarnasund hefst í lok október

Ný námskeið í Guggusundi eða ungbarnasundi sunddeildar Selfoss hefjast 27., 28. og 29.október næstkomandi. Í boði er ungbarnasund 0-2 árs, barnasund 2-4 árs, sundhópar 3-6 ára og sundskóli fyrir börn fædd 2006 og fyrr. Kennt er seinni partinn á fimmtudögum og föstudögum og á laugardagsmorgnum. Skráning er hafi í síma 848 1626 eða á guggahb@simnet.is. Takmarkaður fjöldi er í hvern hóp. Sjá nánar á sundsíðunni Ungbarnasund.

27.9.2011 | Knattspyrna

Lokahóf yngri flokkanna fór fram á laugardaginn

slutt_11_6628Lokahóf unglingaráðs knattspurnudeildar Umf. Selfoss fór fram síðastliðinn laugardag. Hátíðin fór að þessu sinni fram á íþróttavellinum og tókst með ágætum. Óskar Sigurðsson, formaður knattspyrnudeildar, fór yfir árangur ársins og á eftir voru veittar viðurkenningar í öllum flokkum fyrir góðan árangur. Síðan fengu allir grillaðar pylsur og Svala. Hér að neðan má sjá verðlaunahafa 2011.

26.9.2011 | Knattspyrna

Nýr DVD-diskur međ Íslandsmeisturunum í 3. flokki kvenna 2010

Minjaverndarsjóður knattspyrnudeildarinnar hefur gefið út DVD- mynddisk um stelpurnar í 3. flokki sem urðu Íslandsmeistarar 2010. Myndin er listilega samsett af Gunnari Sigurgeirssyni í Filmsýn og kápan hönnuð af Gerði Óskarsdóttur. Kristinn M. Bárðarson hafði umsjón með gerð myndarinnar. Tónlistina völdu stelpurnar sjálfar. Myndin sem kostar 2.000 kr. er seld í Tíbrá hjá Sveinbirni Mássyni framkvæmdastjóra knattspyrnudeildarinnar og á Rakarastofu Björns og Kjartans.

23.9.2011 | Knattspyrna

Nýr hópleikur hefst á laugardaginn

Nýr hópleikur, haustleikur Selfoss getrauna, hefst laugardaginn 24. september. Hægt er að skrá sig til leiks í félagsheimilinu Tíbrá, Engjavegi 50, þar sem við erum með opið hús frá kl. 11:00-13:00 alla laugardaga í vetur. Einnig er hægt að skrá sig í hópleikinn á slóðinni www.tippleikur.is/selfoss. Eflum félagsandann og mætum í Tíbrá á laugardagsmorgnum. Þar er heitt á könnunni og bakkelsi á boðstólum frá Guðnabakaríi.

22.9.2011 | Knattspyrna

Góđur styrkur frá Sveitarfélaginu

Árborg_merkiÁ lokahófi knattspyrnudeildar Umf. Selfoss sem haldið var sl. laugardag færði Eyþór Arnalds deildinni afreksstyrki að upphæð samtals tvær milljónir króna frá Sveitarfélaginu Árborg í tilefni þess að báðir meistaraflokkar félagsins komust upp í efstu deild. Óskar Sigurðsson, formaður deildarinnar, tók við viðurkenningarskjali um framlagið á lokahófinu og þakkaði góðan stuðning. Styrkirnir eru viðurkenning á mikilvægi afreksíþrótta í Árborg og munu án efa nýtast vel í starfi deildarinnar.

21.9.2011 | Knattspyrna

Guđrún og Eva Lind valdar í U-17 ára landsliđshóp

Þær Guðrún Arnardóttir og Eva Lind Elíasdóttir voru valdar í 22 manna hóp u-17 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu. Stelpurnar æfa nú fyrir undankeppni EM sem fram fer í Austurríki í byrjun október. Guðrún er miðvörður og var lykilleikmaður í meistaraflokksliði Selfoss sem vann sér sæti í efstu deild í haust. Hún var svo valin efnilegust á lokahófi félagsins á dögunum. Eva Lind vann sér sæti í byrjunarliði Selfoss eftir mjög góða frammistöðu með 2. og 3. flokki í sumar. Heimasíðan óskar þeim stöllum góðs gengis á landsliðsæfingum.

20.9.2011 | Knattspyrna

Uppskeruhátíđ yngri flokka í knattspyrnu verđur á íţróttavellinum á laugardag kl. 12

Uppskeruhátíð yngri flokka knattspyrnudeildar Umf. Selfoss verður haldin laugardaginn 24. september. Hátíðin fer fram á íþróttavellinum og hefst kl. 12:00. Þar verður m.a. farið yfir árangur sumarsins og veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur. Á eftir verður boðið upp á grillaðar pylsur og Svala. Unglingaráð knattspyrnudeildar hvetur alla iðkendur og foreldra eindregið til að mæta.

20.9.2011 | Knattspyrna

Gumma skorađi eftir 20 sekúndur í landsleik gegn Kasakstan

Í gær fór fram á Selfossi landsleikur hjá stelpunum í U19 landsliði Íslands. Leikurinn sem var í milliriðli EM var gegn Kasakstan. Lokatölur urðu 3:0 fyrir Ísland og komu öll mörkin í fyrri hálfleik. Fyrsta markið kom eftir aðeins 20 sekúndur, en það gerði Guðmunda Brynja Óladóttir. Hildur Antonsdóttir bætti við öðru marki á 26. mínútu og fyrirliðinn Fjolla Shala skoraði þriðja markð mínútu fyrir leikhlé.

20.9.2011 | Frálsíţróttir

Halla María međ Íslandsmet í sleggjukasti á Haustkastmóti HSK

Haustkastmót HSK fór fram á Selfossvelli dagana 8. og 13. september sl. Fimmtudaginn 8. sept. var keppt í kringlukasti og spjótkasti í öllum flokkum hjá báðum kynjum. Þriðjdaginn 13. september var keppt í sleggjukasti og spjótkasti í öllum flokkum hjá báðum kynjum. Í sleggjukastinu náðist mjög góður árangur. Halla María Magnúsdóttir, Selfossi, gerði sér lítið fyrir og setti Íslandsmet í 12 ára flokki stúlkna er hún þeytti sleggjunni 30,09 metra, en gamla metið var 29,03 m. Þetta er að sjálfsögðu einnig HSK met.

19.9.2011 | Knattspyrna

Góđur 3:2 sigur á Haukum í lokaumferđinni

fotbolti_loka_1769Síðasti leikur strákanna 1. deildinni þetta árið fór fram á Selfossvelli á laugardaginn og var gegn Haukum. Úrslit leiksins skiptu engu máli um stöðu liðanna því Selfyssingar höfðu þegar tryggt sé annað sætið í deildinni og sæti í Pepsideildinni næsta sumar. Svo fór að Selfoss vann góðan 3:2 sigur sem var frábær endapunktur á góðu knattspyrnusumri.

18.9.2011 | Knattspyrna

Guđmunda Brynja skorađi í u-19 ára landsleik og landsleikur á Selfossi

KSI_logoÍslendingar unnu Slóvena 2-1 í fyrsta leik í undankeppni Evrópumótsins kvenna u-19. Gumma kom Íslendingum á bragðið með fallegu marki, er hún stakk sér inn fyrir vörn Slóvena og setti boltann örugglega í netið a´la Gumma. Slóvenar jöfnuðu svo leikinn, en Katrín Gylfadóttir úr Val skoraði sigurmark Íslands.

18.9.2011 | Knattspyrna

Sindri Rúnars, Svavar Berg og Birkir Péturs valdir í u-17 ára landsliđshóp

Þeir Sindri Rúnarsson, Svavar Berg Jóhannsson og Birkir Pétursson voru á dögunum valdir til æfinga með u-17 ára landsliði Íslands. Þessir strákar eru allir fæddir árið 1995. Birkir er nú valinn í hópinn í fyrsta sinn. Sindri hefur áður farið á æfingar, en Svavar hefur spilað nokkra leiki með landsliðinu. Birkir spilar sem hægri bakvörður, en Svavar og Sindri eru miðjumenn. Þetta landslið vann Norðurlandamótið á dögunum nokkuð örugglega og er óhætt að segja að þetta sé með efnilegustu árgöngum sem komið hafa upp á Íslandi. Nú eiga strákarnir fyrir höndum undankeppni Evrópumótsins sem fram fer um miðjan október, en þar er Ísland í riðli með Sviss, Grikklandi og Ísrael. Við óskum þeim að sjálfsögðu góðs gengi og óskum þeim til hamingju með þennan áfanga.

16.9.2011 | Knattspyrna

Strákarnir í 2. flokki komust upp í b-deildina

Strákarnir í liði Selfoss/Árborgar í 2. flokki léku síðari leik sinn í úrslitum c-deildar gegn Haukum á Selfossvelli föstudaginn 16. september sl. Selfyssingar tóku fyrri leik liðanna 4-1 og því var ljóst að þeir voru í nokkuð góðri stöðu. Haukar komu reyndar brjálaðir til leiks og gerðu allt sem þeir gátu til að vinna upp þriggja marka forskot. Svo fór að Haukar unnu leikinn 0-2 en samanlagt vann Selfoss/Árborg 4-3.

16.9.2011 | Knattspyrna

Mćtum á Haukaleikinn á morgun

Selfyssingar taka á móti Haukum í lokaumferð Íslandsmótsins á laugardag. Haukar eru það lið sem hefur veitt okkur hvað mesta eftirför á Íslandsmótinu. N er ljóst að þeir eiga ekki möguleika á að fara upp, þar sem Selfyssingar tryggðu sér Pepsídeildarsæti sl. laugardag með góðum 1-3 sigri á ÍR. Haukar gerðu á sama tíma jafntefli við Þrótt og eru 8 stigum á eftir Selfossi.

16.9.2011 | Handbolti

Hörđur Bjarnarson: Munum leggja okkur 100% fram

Höddi BÞað styttist óðum í að tímabilið hefjist í handboltanum. Undirbúningur Selfyssinga stendur nú sem hæst og menn að koma sér í sitt besta form fyrir veturinn. Heimasíðan tók viðtal við Hörð Bjarnarson fyrirliða Selfoss liðsins og kannaði stöðuna á liðinu. Hörður sagðist vera spenntur fyrir vetrinum og hafði trú á ungu liði Selfyssinga.

14.9.2011 | Knattspyrna

Knattspyrnuslútt Selfoss á laugardaginn

Lokahóf knattspyrnudeildar Umf. Selfoss "Slúttið" verður haldið á Hvíta húsinu laugardagskvöldið 17. september næstkomandi. Þar munu leikmenn meistaraflokkanna og 2. flokks karla og kvenna fagna góðri uppskeru sumarsins. Knattspyrnumenn og aðrir velunnarar eru hvattir til að mæta og enda frábært fótboltasumar saman á einu glæsilegasta slútti til þessa. Enn er hægt að kaupa miða í Blómavali á Selfossi.

14.9.2011 | Frálsíţróttir

Lokamót Umf. Selfoss fyrir 14 ára og yngri

Lokamót_2011_4962Iðkendur yngri flokka frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss komu saman á frjálsíþróttavellinum þriðjudaginn 23. ágúst og spreyttu sig í nokkrum  frjálsíþróttagreinum. Góð mæting var á mótið sem var nokkurs konar endapunktur á sumarstarfinu og stóðu krakkarnir sig með mikilli prýði.

14.9.2011 | Knattspyrna

Strákarnir komnir í Pepsi-deildina ađ nýju

Selfyssingar tryggðu sér sæti í efstu deild karla á nýjan leik eftir öruggan 1-3 sigur á ÍR á laugardaginn. Það voru ekki margir sem höfðu trú á því að Selfyssingar myndu gera eitthvað í 1. deildinni eftir að hafa fallið úr Pepsideild sl. haust og misst í kjölfarið 10 leikmenn. Einhugur var hjá stjórn, leikmönnum og þeim er starfa í kringum liðið um að gefa í og koma liðinu í efstu deild á nýjan leik. Viðar Örn Kjartansson skoraði öll mörk Selfoss og er í ágætis möguleika að tryggja ná í gullskóinn.

12.9.2011 | Frálsíţróttir

Fjóla Signý Íslandsmeistari í sjöţraut

Fjóla Signý í grindÍslandsmeistaramótið í fjölþrautum fór fram á Akureyri um síðustu helgi. Fjóla Signý Hannesdóttir náði þeim glæsilega árangri að verða Íslandsmeistari í sjöþraut með 4689 stig sem er bæting um 407 stig. Fjóla Signý náði að bæta sinn besta árangur í fjórum greinum af sjö þrátt fyrir að hitastigið væri einungis um 5 gráður þessa helgina á Akureyri.

12.9.2011 | Handboltaakademía

4. flokkur kvenna spilar í 1. deild í vetur

Á laugardaginn spilaði 4. flokkur kvenna í forkeppni fyrir Íslandsmótið í Vallaskóla. Andstæðingarnir voru KA/Þór og Fjölnir. Stelpurnar unnu báða leikina og spila því í 1. deild í vetur. KA/Þór fer í milliriðil og Fjölnir spilar í 2. deild.

12.9.2011 | Knattspyrna

Glćsilegur sigur hjá 2. flokki

Á sunnudag kepptu strákarnir í 2. flokki fyrri úrslitaleik sinn við Hauka um sigur í c-deildinni. Selfyssingar stóðu sig frábærlega í leiknum og unnu 1-4. Mörk Selfoss skoruðu þeir Reynir Óskarsson 2 og Sene Abdulha 2 mörk, en samvinna þeirra var til fyrirmyndar.

12.9.2011 | Handbolti

4. flokkur karla í efri deild

4. flokkur karla vann forkeppni sína sannfærandi um helgina. Liðið lék tvo leiki á sunnudag, fyrri gegn KR og sá síðari gegn Val. Gegn KR leiddi Selfoss frá byrjun en náði ekki að hrista KR-inga frá sér fyrr en eftir 15 mínútna leik þá jók liðið muninn úr einu marki í fjögur og leiddi 12-8 í hálfleik

9.9.2011 | Handbolti

Fyrstu leikirnir í 4. flokki

4. flokkur karla og kvenna leika um helgina í forkeppni fyrir veturinn en bæði lið halda sína riðla á Selfossi. Stelpurnar leika á laugardag og strákarnir á sunnudag. Leikir Selfoss liðanna fara fram báða daga klukkan 14 og 15 í Vallaskóla og er um að gera fyrir fólk að kíkja á leikina. Nánara leikjaplan er hér...

9.9.2011 | Handbolti

Sameiginlegur foreldrafundur hjá yngri flokkum í handbolta

JanusSameiginlegur foreldrafundur hjá yngri flokkum í handbolta verður miðvikudaginn 14. september kl. 18:00 í Iðu íþróttahúsi FSu.

9.9.2011 | Knattspyrna

Útileikur viđ ÍR á laugardaginn

Selfyssingar fara í Breiðholtið á laugardaginn kl. 16:00 til að sækja það stig sem vantar uppá til að tryggja sæti í efstu deild að ári. Nú þurfa allri að mæta í bæinn og hvetja strákana.

8.9.2011 | Handbolti

Viđtal viđ Arnar Gunnarsson meistaraflokksţjálfara

035Heimasíðan tók Arnar Gunnarsson nýráðinn meistaraflokksþjálfara í viðtal og spurði hann spjörunum úr. Arnar hefur starfað lengi í kringum handboltann á Selfossi og er nú á sínu fyrsta ári sem aðalþjálfari meistaraflokks. Hann segist m.a. vera stoltur að því að geta stillt upp liði sem einungis er skipað heimamönnum og að þeir muni leggja sig alla fram á komandi tímabili.

7.9.2011 | Fimleikar

Íţróttaskóli Barnanna haust 2011

Íþróttaskóli barnanna hefst að nýju laugardaginn 10.september.  Um er að ræða 10 skipti fyrir börn fædd 2009-2007.  Börn fædd 2009 mæta klukkan 10:00-10:50 en börn fædd 2008 og 2007 mæti klukkan 11:00-11:50.  Skráning fer fram á staðnum frá klukkan 9:30-11:30.  Gjaldið er krónur 7500 og skal það greitt við skráningu.  Með umsjón íþróttaskólans fer Steinunn H. Eggertsdóttir og Heiðrún Jóhanna Heiðarsdóttir.
Á sama tíma á laugardaginn mun fara fram skiptibolamarkaður þar sem fólk getur komið með notaða boli og skipt í stærri/minni boli eða selt á sanngjörnu verði.
Hlökkum til að sjá ykkur, Stjórn fimleikadeildar Selfoss

7.9.2011 | Nýjustu fréttir

Langar ţig á ráđstefnuna Ungt fólk og lýđrćđi?

Ungmennafélag Íslands heldur ungmennaráðstefnu sem ber yfirskriftina „Ungt fólk og lýðræði" á Hótel Örk í Hveragerði dagana 22. - 24. september næstkomandi. Ráðstefnan er ætluð ungu fólki á aldrinum 16-25 ára. Fjöldi þátttakenda verður takmarkaður við áttatíu manns.

6.9.2011 | Handbolti

Góđ ferđ til Noregs

Falk EliteStrákarnir fæddir 1997 í handboltanum sem fóru á Falk Elite Turnering mótið um seinustu helgi enduðu í 2. sæti. Liðið vann alla leiki sína í riðlinum örugglega og svo Norrköping í undanúrslitum 25-19. Í úrslitaleiknum mætti liðið Silwing/Troja sem kemur frá Stokkhólmi en Selfoss hafði unnið það lið áður í mótinu sannfærandi.

6.9.2011 | Knattspyrna

Jón Dađi leikmađur 20. umferđar 1. deildar

Jón Daði Böðvarsson, leikmaður Selfoss, var valinn leikmaður 20. umferðar í 1. deild karla af fótboltasíðunni fotbolti.net. Jón Daði átti frábæran leik er Selfoss vann BÍ/Bolungarvík 4:3 á Selfossi sl. laugardag. Frétt ásamt viðtali við Jón Daða má lesa á erftifarandi link: http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=114307 Þess má geta að fyrr í sumar var Jón Daði valinn leikmaður 6. umferðar.

6.9.2011 | Frálsíţróttir

Teitur Örn međ Íslandsmet í kringlukasti 13 ára

teitur_orn_6430Teitur Örn Einarsson gerði sér lítið fyrir og bætti 8 ára gamalt Íslandsmet í kringlukasti 13 ára drengja á kastmóti fyrir 12-14 ára sem haldið var á Selfossvelli 31. ágúst og 1. september sl. er hann kastaði 39,24 metra. Gamla Íslandsmetið var 38,92 metrar. Á sama móti kastaði Halla María Magnúsdóttir mjög vel í kúluvarpi eða 11,65 m og vantaði einungis um 20 cm upp á að setja einnig Íslandsmet.

5.9.2011 | Frálsíţróttir

Úrslit í Brúarhlaupi Selfoss 2011

Brúarhlaup Selfoss fór fram laugardaginn 3. september síðastliðinn. Úrslit í hlaupinu má sjá hér að neðan.

5.9.2011 | Handboltaakademía

3. flokkur karla spilar í 1. deild í vetur

hsi_logoÍ gær fór fram forkeppni í 3. flokki karla í Vallskóla. Selfoss var í B-riðli og fékk að halda keppnina á heimavelli vegna góðs árangurs í deildarkeppninni í fyrra. Önnur lið í riðlinum voru ÍR og frændur okkar úr ÍBV.

5.9.2011 | Handbolti

HK-ingar unnu Ragnarsmótiđ - Selfoss í 4. sćti

Ragnarsmótinu lauk með úrslitaleikjum á laugardaginn. HK-ingar báru sigurorð af Haukum í úrslitaleiknum 29:21. Fram vann Selfoss 28:24 í leik um 3. sætið og Afturelding vann Gróttu 32:30 í leik um 5. sætið. Úrslit og viðurkenningar á mótinu má sjá hér að neðan.

4.9.2011 | Handbolti

97 liđiđ í úrslit í Noregi!

Selfoss liðið sem leikur í 1997 keppninni á Falk Elite Turnering mótinu í Noregi er komið í úrslit eftir 6 marka sigur, 25-19, á Norrköping í undanúrslitum. Kl. 14:45 að íslenskum tíma mætir liðið Silwing/Troja í úrslitaleik. Selfyssingar unnu sama lið í riðlakeppninni í gær og stefna á sigur á mótinu.
Áfram Selfoss!

2.9.2011 | Handbolti

Sigur í fyrsta leik á Falk Elite Turnering

Strákarnir fæddir 1997 unnu í dag fyrsta leikinn á Falk Elite Turnerning mótinu í Noregi. Lokatölur urðu 22-18 sigur Selfoss. Liðið leikur tvo leiki á morgun í riðlakeppninni,
Á heimasíðu strákanna http://selfossnorden.wordpress.com/ er hægt að lesa nánar um leikina og ferðina almennt. Strax í hálfleik eru hálfleikstölur uppfærðar og eftir lokatölur koma inn um leið og leik líður.

2.9.2011 | Knattspyrna

Strákarnir eiga leik gegn BÍ/Bolungarvík á laugardaginn kl. 14

Selfyssingar taka á móti BÍ/Bolungarvík á Selfossvelli á morgun laugardag kl. 14:00 í 1. deild karla. Ástæða er til að hvetja alla stuðningsmenn Selfoss til að mæta á völlinn og hvetja liðið. Góður stuðningur getur skipt sköpum. Strákarnir eru í hörku baráttu um að fara upp í Pepsi-deildina með Skagamönnum. Selfoss er sem stendur í 2. sæti með 38 stig á meðan Haukar koma í humátt á eftir með 35 stig, en hafa leikið einum leik fleira. MÆTUM Á VÖLLINN OG HVETJUM SELFOSS. 

1.9.2011 | Handbolti

Haukar og HK međ sigra í fyrstu leikjum Ragnarsmótsins

Ragnarsmótið hófst í gær með tveimur leikjum. Í fyrri leiknum unnu Haukar Fram 28:22 og í þeim síðari unnu HK-ingar Aftureldingu 31:24. Í dag fimmtudag 1. sept eigast við HK og Selfoss í fyrri leiknum kl. 18:30 og síðan Haukar og Grótta kl. 20:00. Aðgangur að leikjunum er ókeypis og því um að gera að skella sér í íþróttahús Vallaskóla og sjá skemmtilegan handbolta.

31.8.2011 | Handbolti

Selfoss strákarnir međ vefsíđu í Noregi

Eins og kom fram eru strákarnir fæddir 1997 í handboltanum á leið til Noregs á handboltamót. Liðið er með sér heimasíðu þar sem fréttir munu koma frá ferðinni og verður uppfært hvernig gengur.
Slóðin á síðuna er sú sama og er liðið fór á Norden Cup um seinustu jól:
http://selfossnorden.wordpress.com/

31.8.2011 | Knattspyrna

Selfoss tryggđi sér sćti í Pepsi-deild kvenna

Selfoss-í-Pepsideild-2011-294Selfyssingar tryggðu sér sæti í gærkvöldi sæti í efstu deild kvenna í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir frækin 6-1 sigur á Keflvíkingum. Eftir að hafa tapað fyrri leik liðanna um laust sæti í efstu deild 2:3 áttu flestir von á hörku leik á Selfossvelli. Selfoss-stúlkur voru ekki á því, tóku leikinn fljótlega í sínar hendur og rúlluðu yfir Suðurnesjastúlkur.

30.8.2011 | Handbolti

4. flokkur í ćfingaferđ í Vestmannaeyjum

Um seinustu helgi fór 4. flokkur karla í æfingaferð til Vestmannaeyja. Ferðin var liður í undirbúningi fyrir keppnistímabilið sem er handan við hornið. Í ferðinni æfðu Selfyssingar auk þess að leika tvo æfingaleiki við ÍBV. Æfingarnar voru góðar og árangursríkar en þar var farið í hluti í leik Selfoss liðsins sem lagðir verða upp í vetur. Í leikjunum var skipt í tvö lið og sigruðu Selfyssingar báða leikina gegn heimamönnum.

29.8.2011 | Handbolti

97-liđiđ á sterkt handboltamót í Noregi

97 liðiðStrákarnir fæddir 1997 í handboltanum halda á fimmtudaginn til Noregs á mjög sterkt handboltamót sem haldið er í Horten skammt frá Osló. Mótið, sem nefnist Falk Elite Turnering, fer fram frá föstudegi til sunnudags. Mótið hefur verið haldið árlega fyrir þennan aldur undanfarin ár. Selfoss strákunum var boðið á mótið í kjölfarið af þátttöku sinni á Norden Cup um síðastliðin jól þar sem þetta sama Selfoss lið fékk silfurverðlaun.

29.8.2011 | Knattspyrna

3. flokkur kominn í úrslitakeppni Íslandsmótsins

Strákarnir í 3. flokki hafa verið að gera góða hluti í sumar og eru nú komnir í úrslitakeppni Íslandsmótsins. Strákarnir risu upp í lok tímabils, unnu síðustu þrjá leikina og komust áfram á markatölu. Þar munaði mestu um 9-0 sigur á Þór frá Akureyri. Selfyssingar enduðu í 2. sæti riðilsins með tveimur stigum færra en KA, en skoruðu 14 mörkum meira en Akureyringarnir. Fyrsti leikur í úrslitakeppninni er gegn Þrótt úr Reykjavík og fer hann fram laugardaginn 3. september kl 12.00.

29.8.2011 | Knattspyrna

Strákarnir í 2. flokki komnir í úrslit Íslandsmótsins

Strákarnir í 2. flokki eru heldur betur búnir að standa sig vel í sumar. Þeir eru komnir í úrslitakeppni Íslandsmótsins þrátt fyrir að ein umferð sé eftir í þeirra riðli. Að auki eru þeir taplausir og stefnir allt í að þeir fari í úrslitakeppnina án þess að tapa leik. Mikill viðsnúningur hefur orðið hjá þessum strákum og miklar framfarir verið í vetur og í sumar.

29.8.2011 | Handboltaakademía

3. flokkurinn í súpuveislu!

Súpa1Strákarnir í 3. flokki hafa æft af kappi að undanförnu fyrir komandi keppnistímabil. Strax um næstu helgi mun flokkurinn leika í forkeppni fyrir veturinn en á sunnudag verður riðill þeirra leikinn á Selfossi. Þar munu ÍBV og ÍR leika við okkar menn um sæti í efri deild fyrir veturinn.

29.8.2011 | Taekwondó

Ćfingar komnar á fullt eftir sumarfrí

Æfingar hjá taekwondodeild eru nú komnar á fullt eftir sumarfrí. Æfingatöflu deildarinnar má sjá hér að neðan.

29.8.2011 | Knattspyrna

Ótrúlega sćtur sigur í Ólafsvík

Selfyssingar heimsóttu Víking í Ólafsvík í 19. umferð 1. deildar á laugardag. Selfyssingar sigruðu 0-1 með glæsilegu marki frá Jóni Daða. Sigurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir Selfyssinga, ekki bara það að taka inn þrjú stig heldur var þetta ekki síður mikilvægur andlegur sigur. Fyrir þremur árum voru Selfyssingar í kjörstöðu á að fara upp, en tókst ekki. Þeir voru þá með fimm stiga forystu á liðið í 3. sæti, fjórar umferðir eftir, leikur framundan við Víking Ó. og Arilíus í banni. Allt það sama var uppá teningnum og nú um helgina, en nú höfum við mun betra lið andlega og kláruðum því leikinn með stæl. Veganestið sem menn fá í reynslubankann við svona sigra eru ómetanlegt.

29.8.2011 | Mótokross

Krakkaćfingar í mótokross á sunnudögum

motokross-27ag-01Mótorkrossdeildin var með sína fyrstu krakkaæfingu sunnudaginn 27. ágúst síðastliðinn. Þar voru mætir 5 galvaskir piltar á aldrinum 8-10 ára. Æfingin tókst vel og voru strákarnir ánægðir með daginn. Hákon Andrason sá um æfinguna og mun halda áfram að vera með æfingar á sunnudögum kl. 17:00 nema eitthvað komi uppá. Við ætlum að hafa þetta frítt, bara til að koma þessum krökkum saman og læra undirstöðuatriði og umgengi við umhverfið.

29.8.2011 | Júdó

Júdóćfingar hefjast í íţróttahúsi Sandvíkurskóla 1. sept í nýju ćfingahúsnćđi

Júdóæfingar hefjast fimmtudaginn 1. september nk. í nýju æfingahúsnæði í íþróttahúsi Sandvíkurskóla. Þjálfarar verða Garðar Skaftason 2. Dan, Bergur Pálsson 1. Dan og Þórdís Böðvarsdóttir 1. kyu. Æfingatímar 6-9 ára verða á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16:15-17:15, 10-14 ára á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:15-18:15 og 15 ára og eldri á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum kl. 18:15 -19:45. Nánari upplýsingar veita Bergur Pálsson s. 862-0858 og Guðmundur Tryggvi s. 863-3040. Nýir iðkendur velkomnir.

26.8.2011 | Mótokross

Mótokross-keppni á Selfossi laugardaginn 27. ágúst

mxon_2011-350x202Styrktarkeppni fyrir íslenska landsliðið sem mun keppa á Motocross of Nations í Frakklandi í september verður haldin á Selfossi laugardaginn 27. ágúst kl. 10:00-15:00. Allur ágóði af keppnini rennur beint til íslenska liðsins. Keppt verður í 5 flokkum og verður aðalatriðið að hafa gaman af deginum og sýna strákunum í landsliðinu að við stöndum á bakvið þá.

26.8.2011 | Knattspyrna

Stelpurnar mćta Keflavík á morgun í úrslitakeppni 1. deildar

Undanfarin tvö ár hafa stelpurnar í meistaraflokki kvenna farið eins nálægt því að komast í efstu deild og mögulegt er, en í bæði skiptin misst af tækifærinu með ótrúlega grátlegum hætti. Allt er þegar þrennt er og núna tekst þetta. Fyrri leikurinn verður næsta laugardag kl. 14:00 í Keflavík og síðan á Selfossi þriðjudaginn 30. ágúst á fáránlegum leiktíma 17:30, en þann dag ætlum við samt að slá aðsóknarmet á kvennaliðsleik á Selfossi, er það ekki?

26.8.2011 | Knattspyrna

Selfoss sćkir Víking Ó. heim á laugardag

Fyrir alla þá sem mætt hafa á síðustu tvo leiki Víkings og Selfoss í Ólafsvík er vert að minna á næsta laugardag, því þá ætla liðin að taka upp áframhaldandi dans. Þessir leikir hafa verið með ólíkindum dramatískir og skemmtilegir síðustu ár og komum við nánar að því síðar í pistlinum. Selfyssingar unnu fyrri leik liðanna í sumar 3-1 með mörkum frá Babacar, Endre og Ibrahima. Bæði lið unnu sína leiki í 18. umferð, Selfyssingar tóku KA 1-2 með mörkum frá Jóni Daða og Viðari Erni, á meðan Víkingur Ó. vann Þrótt R. 0-4.

26.8.2011 | Kraftlyftingar

Ćfingar í kraftlyftingum komnar af stađ

Kraftlyftingaæfingar á vegum Kraftlyftinganefndar UMFS eru nú komnar af stað. Þjálfari er sem fyrr Benedikt Magnússon, heimsmeistari og -methafi í réttstöðulyftu 40-44 ára. Æfingarnar fara fram að Baugstjörn 17, mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga kl.16:15-18:15.

25.8.2011 | Frálsíţróttir

Metaregn í frjálsum hjá 11-14 ára í sumar

Árangur hjá iðkendum Selfoss í sumar hefur verið frábær og hafa aldrei fallið jafn mörg met og nú í ár. Hjá krökkum á aldrinum 11-14 ára hafa fallið 27 HSK met sem er bara einstakur árangur og allir hinir sem ekki hafa verið að setja HSK met hafa verið að bæta sinn árangur verulega. Áhugi, dugnaður og bestu hugsanlegu aðstæður til æfinga og keppni eru klárlega að skila sér í góðum árangri. Hér er svo listi yfir þau met sem fallið hafa hjá okkar fólki í sumar. Einnig fylgir með met sem 1 iðkandi í Þór Þorlákshöfn hefur sett en þau eru 6 talsins.

24.8.2011 | Frálsíţróttir

Teitur Örn međ Íslandsmet í spjótkasti 13 ára

Teitur Örn Einarsson 13 ára frá Selfossi gerði sér lítið fyrir og setti íslandsmet í sínum flokki með 600 g spjóti á móti í Þorlákshöfn. Hann kastaði 42,85 m en gamla metið var 39,21 m og bætti því metið um rúma 3 metra.  Teitur er á mikilli siglingu í spjótinu og er búinn að sýna miklar framfarir og bæta sig jafnt og þétt í sumar.  Nokkur mót eru eftir í sumar og spennandi að fylgjast með Teiti á þeim

24.8.2011 | Knattspyrna

Góđur 2:1 sigur á KA á Akureyri

Selfyssingar heimsóttu KA-menn á föstudag í leik liðana í 18 umferð. Leikurinn var ágætur þar sem Selfyssingar voru með tögl og haldir frá upphafi. Jón Daði og Viðar Örn skoruðu mörk Selfyssinga í 1-2 sigri, Akureyringar minnkuðu muninn í lokaspyrnu leiksins.

24.8.2011 | Frálsíţróttir

6 HSK met, 15 gull, 11 silfur og 7 brons á Gaflaranum

Fimm krakkar frá Selfossi, einn úr Baldri og einn úr Þór kepptu á frjálsíþróttamóti í Kaplakrika um síðustu helgi. Krakkarnir gerðu frábæra ferð á mótið, sópuðu að sér verðlaunum og nokkur HSK-met féllu.

24.8.2011 | Frálsíţróttir

Thelma bikarmeistari í kúlu og tvö HSK-met í Bikarkeppni 15 ára og yngri

Bikar15_2702Bikarkeppni 15 ára og yngri (áður 16 ára og yngri) var haldin í Kaplakrika í Hafnarfirði, sunnudaginn 21. ágúst sl. HSK sendi harðsnúið lið sem saman stóð af unglingum 12-15 ára. Alls tóku 10 lið þátt í mótinu. Ágætur árangur náðist í mörgum greinum þrátt fyrri töluvert votviðri. Thelma Björk Einarsdóttir frá Selfossi varð bikarmeistari í kúluvarpi með 11,39 m. Þá voru tvö HSK met voru slegin á mótinu.

22.8.2011 | Handboltaakademía

Handboltaćfingar eru byrjađar

Handboltaæfingar hófust mánudaginn 22. ágúst. Hér fyrir neðan eru æfingatímar yngri flokka.

18.8.2011 | Nýjustu fréttir

Nýr ţjálfari hjá sunddeild Umf. Selfoss

Ragnar Jónasson hefur verið ráðinn yfirþjálfari hjá sundeild Selfoss. Honum er ætlað að sjá um þjálfun elstu hópanna hjá félaginu ásamt því að hafa yfirumsjón með þjálfun yngri hópa deildarinnar.

10.8.2011 | Knattspyrna

Svavar Berg norđurlandameistari í knattspyrnu

Svavar Berg Jóhannsson var á dögunum norðurlandameistari með u-17 ára landsliði íslands í knattspyrnu. Svavar Berg sem verið hefur lykilleikmaður í 2. og 3. flokk hjá Selfoss þótti standa sig mjög vel á mótinu og spilaði alla leiki landsliðsins.  

 

3.8.2011 | Frálsíţróttir

Frábćr árangur HSK fólks í frjálsum á Unglingalandsmóti UMFÍ á Egilsstöđum

ulm_2011-277Skarphéðinsmenn gerðu góða ferð á Egilsstaði á Unglingalandsmóti UMFÍ um verslunarmannahelgina. Krakkarnir sópuðu að sér verðlaunum, mikið var um persónulegar bætingar auk þess sem Landsmótsmet féll. Alls unnu krakkarnir 51 verðlaun þ.e. 18 gull, 20 silfur og 13 brons Til gamans má geta þess að í fyrra komu í hús 43 verðlaunapeningar.

2.8.2011 | Kraftlyftingar

Selfoss međ tvö gull á Sunnumótinu á Akureyri

sunnumotid-2011Hið árlega Sunnumóti í kraftlyftingum fór fram á Akureyri þann 16. júlí s.l. Sunnumótið er kvennamót og kallað „kjötmót" þar sem allur venjulegur öryggisbúnaður sem eykur styrk keppanda er bannaður. Þrjár konur kepptu fyrir hönd Umf. Selfoss, þær Rósa Birgisdóttir, Þóra Þorsteinsdóttir og Katrín Jóna Kristinsdóttir.

27.7.2011 | Fimleikar

Fimleikar HAUST 2011 SKRÁNINGAR

Nú styttist í að fimleikarnar byrji aftur. Spennandi vetur er framundan með fullt af verkefnum. Vinsamlegast staðfestið áframhaldandi þátttöku í fimleikum og/eða parkour eða úrsögn á netfangið fimleikarselfoss@gmail.com fyrir föstudaginn 12. ágúst. Þá hefst úrvinnsla í hópa og ganga þeir fyrir sem þegar hafa staðfest. Ef skráningar/upplýsingar hafa breyst á milli ára þá vinsamlegast fyllið út skráningareyðublað sem má finna hér á heimasíðunni undir umfs/fimleikar og sendið til baka í viðhengi annars dugar að senda fullt nafn/nöfn barnanna sem hyggjast halda áfram ef engin breyting er á skráningu. Nýskráningar fara fram á sama netfang en yngstu börnin sem geta iðkað fimleika eru fædd árið 2007. Stundaskrá hefst mánudaginn 29. ágúst 2011 og verður hún send í tölvupósti á hvern iðkanda. Íþróttaskólinn sem er fyrir börn fædd 2009-2007 hefst laugardaginn 10. september en skráning í hann verður auglýst síðar.   

26.7.2011 | Knattspyrna

Selfoss ÍA upp á Skaga í kvöld

Við skundum á Skipaskaga í kvöld og etjum þar kappi við ÍA í baráttu toppliðanna. Leikurinn hefst stundvíslega klukkan 20:00 og verður í beinni á Suðurland Fm fyrir þá sem ekki nenna í göngin. Hér er smá um viðureignir liðanna.

26.7.2011 | Frálsíţróttir

Fjóla Signý ţrefaldur Íslandsmeistari á MÍ á Selfossi

mi_2011-5Um liðna helgi fór fram aðalhluti Meistaramóts Íslands í frjálsum íþróttum á Selfossvelli. Góð þátttaka var á mótinu, en 185 keppendur voru skráðir til leiks frá 14 félögum og samböndum. FH-ingar unnu heildarstigakeppnina en lið HSK Selfoss varð í þriðja sæti

26.7.2011 | Knattspyrna

Svavar Berg valinn í u-17 ára landsliđiđ

Svavar Berg Jóhannsson hefur verið valinn í u-17 ára landslið Íslands í knattspyrnu. Þessi efnilegi knattspyrnumaður sem er uppalinn í Þorlákshöfn er vel af þessu vali kominn enda hefur hann sýnt góða takta með 2. og 3. flokki Selfoss í sumar. Næsta verkefni u-17 ára landsliðsins er Norðurlandamótið sem stendur yfir dagana 2. -7. ágúst. Keppt verður víðs vegar á Norðurlandi og ætla strákarnir sér stóra hluti þar. Ísland er í riðli með Norðmönnum, Færeyingum og Englandi sem er gestaþjóð. Þjálfarar strákanna eru Gunnar Guðmundsson og Freyr Sverrisson.

26.7.2011 | Knattspyrna

Gumma og Guđrún međ u-17 ára landsliđinu í undanúrslitum á EM

Þær Guðmunda Brynja Óladóttir og Guðrún Arnardóttir eru í 18 manna u-17 ára landsliðshópi Íslands sem keppir í undanúrslitum Evrópumótsins í Sviss. Þessi úrslitakeppni fjögurra þjóða stendur frá 28.-31. júlí. Leikur Ísland gegn Spáni í undanúrslitum fimmtudaginn 28. júlí. Spánverjar eru núverandi handhafar þessa titils og má því búast við hörku leik. Í hinum undanúrslitaleiknum leika Þjóðverjar og Frakkar. Óhætt að segja að þarna spili Íslendingar við þrjár af stærstu knattspyrnuþjóðum Evrópu, en þetta er það lengsta sem íslenskt landslið hefur ná í Evrópukeppni hingað til. Með stolti óskum við stelpunum okkar góðs gengis í Sviss. Þjálfari stelpnanna er Þorlákur Árnason.

26.7.2011 | Knattspyrna

Selfoss-stelpur töpuđu sínum fyrstu stigum

Selfyssingar héldu í Grafarvoginn sl. föstudag og léku þar við Fjölnisstelpur. Heldur fleiri áhorfendur voru á bandi Selfoss en heimaliðsins í blíðunni og frjófjúkinu á Grafarvogsvelli. Allt var undir hjá Fjölni í leiknum og þurftu þær þrjú stig. Það gekk þó ekki eftir og endaði leikurinn 1-1. Þar með töpuðu Selfoss sínum fyrstu stigum í 1. deildinni, en halda að sjálfsögðu efsta sætinu.

24.7.2011 | Handbolti

Ţrír Selfyssingar í handboltaskóla Rhein-Neckar Löwen

Rhein-Neckar LöwenElvar Örn Jónsson, Hergeir Grímsson og Ómar Ingi Magnússon fóru á dögunum í handboltaskóla Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi. Æft var nokkrum sinnum á dag í fimm daga auk þess sem fundir voru utan æfinga og annað í þeim dúr. Þá komu leikmenn frá Rhein-Neckar í heimsókn og voru spurðir spjörunum úr.

21.7.2011 | Knattspyrna

Fjölnir- Selfoss föstudag kl. 18.00 í Grafarvogi

Selfoss stelpur fara í Grafarvoginn á föstudagskvöld og keppa þar við Fjölni kl. 18.00. Þetta er 9. umferðin á Íslandsmótinu og átti leikurinn upphaflega að fara fram mánudaginn 25. júlí. En þar sem Selfoss á 2 flotta fulltrúa í glæsilegu U17 landsliði Íslands sem fer utan í stórverkefni þann 25. nk. var leikurinn færður til föstudags.

20.7.2011 | Handbolti

Ragnarsmótiđ 2011

Búið er að raða niður leikjum fyrir Ragnarsmótið 2011. Mótið verður það 22. í röðinni og fer fram dagana 31. ágúst - 3. september. Heimasíðan mun fylgja þessu móti eftir sem og liðinu okkar á næstu dögum og vikum. Liðin sem taka þátt eru: A-riðill: Fram, Haukar og Grótta, B-riðill: Selfoss, HK og UMFA.

20.7.2011 | Handbolti

Arnar Gunnarsson ráđinn ţjálfari meistarflokks karla

Handknattleiksdeild Umf. Selfoss hefur ráðið Arnar Gunnarsson sem þjálfara fyrir meistaraflokk karla og 2. flokk karla til næstu tveggja ára. Arnar er íþróttafræðingur og kennari. Hann hefur verið þjálfari í yngri flokkum félagsins í mörg ár og hefur einnig þjálfað í Handknattleiksakademíu FSU sem styrkir liðið okkar enn meira.

19.7.2011 | Knattspyrna

Heimaleikur viđ Gróttu á fimmtudag

Selfyssingar taka á móti Gróttu í 13. umferð Íslandsmótsins á Selfossvelli fimmtudaginn 21. júlí kl 20.00. Selfyssingar unnu gríðarlega mikilvægan 0-1 sigur á Fjölni í síðustu umferð á meðan Grótta tapaði 0-1 fyrir Þrótti. Grótta er í 8. sæti með 14 stig, en Selfoss í 2. sæti með 25 stig.

19.7.2011 | Frálsíţróttir

Ađalhluti Meistarmóts Íslands í frjálsum verđur á Selfossi um helgina

stefania_fjola_035Meistaramót aðahluti (fullorðnir) verður haldið á Selfossvelli helgina 23.-24. júlí nk. Búist er við fjölmenni á mótið þar sem allt besta frjálsíþróttafólk landsins leiðir saman hesta sína. HSK- Selfoss sendir öflugt lið til keppni og má búast við að þó nokkrir einstaklingar úr liðinu blandi sér í toppbaráttuna í sínum greinum. Landsliðsfólk HSK-Selfoss, þau Fjóla Signý, Hreinn Heiðar, Halla Einars og Agnes Erlings verða þar í fararbroddi.

18.7.2011 | Frálsíţróttir

Fjóla Signý á góđum tíma í 400m grindahlaupi á Miđsumarsmóti HSK

dagny-Lisa-028Hið svokallaða Miðsumarsmót HSK var haldið á Selfossvelli föstudagskvöldið 8. júní sl. Mótið var liður í undirbúningi frjálsíþróttafólks, og þá ekki síst HSK-Selfoss-liðsins fyrir aðalhluta Meistarmóts Íslands sem haldið verður á Selfossi helgina 23. - 24. júlí n.k. Ágæt þátttaka var á mótinu, en keppt var karla- og kvennaflokki fyrir utan spjótkast, en þar var einnig keppt í flokki pilta 16-17ára. Keppendur voru á aldrinum 12 ára og uppúr og komu frá HSK-Selfoss, Breiðabliki, FH og Ármanni. Ágætur árangur náðist í nokkrum greinum.

15.7.2011 | Handbolti

Selfoss gerđi góđa hluti á Partille Cup

4. flokkur Selfoss hélt fyrir skömmu á Partille Cup mótið í Svíþjóð. Mótið er lang stærsta handboltamót heims og voru tæplega 20.000 þátttakendur þetta árið. Frá Selfoss fóru 18 strákar á mótið og náði 16 ára liðið að komast í 8-liða úrslitum á mótinu eða lengst íslenskra liða í þeim aldursflokki en liðið var einungus hársbreidd frá því að komast enn lengra. 82 lið voru í 16 ára keppninni.

14.7.2011 | Nýjustu fréttir

Unglingalandmót UMFÍ um verslunarmannahelgina

Næsta Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina 2011. Ungmenna og íþróttasamband Austurlands er mótshaldari og stefnt er að því að halda glæsilegt mót við góðar aðstæður. Unglingalandsmótin eru vímuefnalaus íþrótta- og fjölskylduhátíð og frábær kostur fyrir alla þá sem velja heilbrigt og vímuefnalaust umhverfi samhliða því að taka þátt í fjölbreyttri íþróttakeppni. Allir á aldrinum 11-18 ára geta tekið þátt í íþróttakeppni á Unglingalandsmótinu.

14.7.2011 | Knattspyrna

Haukar náđu í stigin ţrjú

Selfyssingar léku á þriðjudaginn við Hauka á gervigrasinu á Ásvöllum í leiðinlegum hliðarvindi og kulda. Leikurinn sjálfur var í anda aðstæðna, hálfgerður vorbrag á öllu og hvorugt liðið að leika neitt sérstaklega. Selfyssingar sköpuðu sér meira, en voru klaufar að nýta ekki færin og var þeim í lokin refsað fyrir það. Eftir að besti maður vallarins Jón Daði Böðvarsson hafði komið Selfyssingum yfir snemma leiks, jafnaði hin efnilegi Björgvin Stefánsson leikinn og það var svo Ásgeir Ingólfsson sem stal þrem stigum fyrir Hauka með marki á loka mínútunum.

14.7.2011 | Knattspyrna

6. flokkur karla stendur sig vel á Íslandsmótinu

Nú er 6. flokkur karla búinn að spila sína riðla á Íslandsmótinu en þar stóðu strákarnir sig frábærlega. A og B liðin spiluð sinn riðil á Selfossi á mánudaginn, en með þeim í riðli voru Njarðvík, Haukar og Fylkir. Bæði liðin unnu alla sína leiki og komust auðveldlega í úrslitin sem fara fram í næsta mánuði. Strákarnir sýndu frábæra takta en A liðið fékk m.a. ekki á sig mark á mótinu.

14.7.2011 | Knattspyrna

Selfoss-stelpur međ öruggan sigur á ÍR

Selfoss-stelpur tóku á móti ÍR í 1. deild kvenna sl. mánudag. Selfoss vann öruggan 4:0 sigur og eru stelpurnar sem fyrr efstar í b-riðli 1. deildar. Staðan í hálfleik var 1:0. Gumma skoraði tvö fyrstu mörkin, en Katrín Ýr skoraði þriðja markið og Thelma Sif það fjórða.

12.7.2011 | Knattspyrna

Fuglfirđingum fćrđar hlýjar baráttukveđjur

KB1Fuglafjörður í Færeyjum er mörgum Selfyssingum að góðu kunnur vegna samskipta og samvinnu á ýmsum sviðum til áratuga. Fuglafjörður hefur verið vinabær Selfoss mjög lengi en samskipti hófust milli knattspyrnufélaga Selfoss og Fuglafjarðar á ofanverðum sjöunda áratug síðustu aldar.

12.7.2011 | Mótokross

Íslandsmeistarmótin í mótokross komin af stađ

Einey-startFyrsta umferð Íslandsmeistarmótsins í mótorkrossi fór fram á Sauðárkróki 4. júní og önnur umferðin fór fram í Álfsnesi 2. júlí. Systkynin Jóhann Smári og Einey Ösp Gunnarsbörn og Ragnar Páll Ragnarsson voru skráð til leiks á Sauðárkróki og stóðu sig ágætlega. Þau kepptu einnig í Álfsnesi en þar voru aðstæður til keppni betri. Jóhann Smári var skráður bæði í mx2 og mx open. Hann lenti í 7. sæti í mx2 og 15. sæti í mx open. Ragnar Páll endaði í 13. sæti eftir daginn í unglingaflokknum. Einey Ösp lenti í mikilli baráttu í kvennaflokki og landaði 5. sætinu.

11.7.2011 | Knattspyrna

Útileikur viđ Hauka á Ásvöllum ţriđjudag kl. 20:00

Eftir sex sigurleiki í röð halda Selfyssingar í Hafnarfjörðinn og leika við Hauka. Haukar töpuðu fyrir Þrótti í síðasta leik, en hafa annars farið ágætlega af stað og eru í 6. sæti 1. deildar, átta stigum á eftir Selfyssingum. Selfoss og Haukar hafa farið upp um tvær deildir og svo niður um eina á fjórum árum. Þetta hafa liðin gert hönd í hönd og því þekkja leikmenn liðanna andstæðinga sína í þessum leik nokkuð vel. Leikurinn verður spilaður á gervigrasinu á Ásvöllum þriðjudaginn 12. júlí kl. 20.00. En með þessum leik líkur fyrri umferð 1. deildar.

11.7.2011 | Knattspyrna

Sumarnámskeiđ í fótbolta

namskeid_juli11-2Sumarnámskeið knattspyrnudeildar standa nú yfir. Seinna Ofurnámskeiðið er nú að byrja en það stendur frá 11.-15. júlí kl. 9:30-11:30. Námskeiðið er fyrir stráka og stelpur fædd 1998-2004. Áhersla er lögð á slútt, skalla og aukaspyrnur. Skipt í hópa eftir aldri og getu. Allir fá æfingar þjálfun og áskoranir við hæfi. Verð 5.000 kr. (Stelpur sem keppa á Símamótinu fá 1.000kr. afslátt af námskeiðinu).

8.7.2011 | Knattspyrna

Flottur 2:1 vinnusigur á ÍR-ingum

Selfyssingar tóku á móti Íþróttafélagi Reykjarvíkur á Selfossvelli á fimmtudaginn. Selfyssingar byrjuðu mun betur í leiknum, voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og komust í 1-0 með frábæru marki frá Viðari Erni Kjartanssyni. En í þeim síðari sýndu ÍR-ingar úr hverju þeir eru gerðir, komu sér inn í leikinn tveimur mínútum eftir að Viðar kom Selfyssingum í 2-0 og hefðu með smá heppni getað jafnað leikinn. En Selfyssingar lönduðu 2-1 baráttusigri. 

8.7.2011 | Frálsíţróttir

Miđsumarsmót HSK á Selfossi í kvöld

Miðsumarsmót HSK verður haldið á Selfossvelli í kvöld föstudaginn 8. júlí. Mótið hefst kl. 19:00.  Keppnisgreinar eru 400m grindahlaup, 100m hlaup, 300m hlaup, 800 eða 1500m hlaup, langstökk, hástökk, spótkast, kúluvarp og 4x100m boðhlaup í lokin ef næg þátttaka fæst. Keppt verður í öllum greinar hjá báðum kynjum. Þátttökugjald er ekkert og er fólk hvatt til að skrá sig þar inn  á mótaforriti FRÍ.

8.7.2011 | Frálsíţróttir

Íţróttahátíđ HSK í frjálsíţróttum fór fram á Selfossi

Laugardaginn 11. júní sl. fóru fram Aldursflokkamót HSK 11 - 14 ára og Héraðsleikar HSK fyrir 10 ára og yngri í frjálsíþróttum, kallað einu nafni Íþróttahátíð HSK. Mótin fóru fram á nýjum og glæsilegum frjálsíþróttavelli á Selfossi í frekar köldu og blautu veðri. Um 85 krakkar frá 9 félögum mættu til keppni og reyndu með sér í langstökki, hástökki, kúluvarpi, spjótkasti,  60m/100m hlaupi, 800m hlaupi, 80m grindahlaupi og 4x100m boðhlaupi. 

8.7.2011 | Handbolti

Riđlakeppninni lokiđ á Partille

Þá er riðlakeppninni lokið og tekur útsláttarkeppnin við, en hún hefst í dag miðvikudag. Eldra liðið tapaði i fyrri leiknum i gær gegn Ystad. Lokatölur urðu 18-12 sigur þeirra. Í seinni leiknum unnu strákarnir svo landslið Singapore 36-5. Eins og úrslitin segja var sá leikur ekki erfiður fyrir okkar menn. Yngra liðið tapaði seinasta leik sínum gegn Brabrand 7-15, en okkar menn voru þungir á sár og náðu sér ekki almennilega á strik.

7.7.2011 | Handbolti

Töp hjá yngra liđinu á Partille í gćr

Yngra liðið spilaði í gær tvo leiki. Leikirnir voru mjög vel spilaðir af okkar hálfu lengst af og spilamennskan hjá liðinu mun betri en fyrsta daginn. I fyrri leiknum lékum við gegn Västerås fra Svíþjóð og svo gegn Kielce frá Póllandi. Baðir leikir töpuðust naumleg en okkar menn lentu i leikjum þar sem munu seint gleymast. Hin fræga "partille domgæsla" lét loksins sjá sig og var það hátið ef okkar menn voru með fullt lið inni a vellinum. Ýmist vorum við einum færri og oft tveimur færri fyrir afar venjuleg brot. Það setti nokkuð strik i reikninginn en eins og áður sagði var spilamennskan góð þann daginn þrátt fyrir úrslitin.

7.7.2011 | Handbolti

95-liđiđ vann stórsigur á Partille í gćr

Eldra liðið (95 strákarnir plús Árni, Nikulás og Sævar) lékk í gær gegn Son HK frá Noregi en það var eini leikur þeirra i gær. Þar unnum við 19 marka sigur 23-4 eftir ad hafa verið 10-1 yfir i hálfleik. Virkilega góður leikur hjá strákunum sem spiluðu á fullu allt til enda. Varnarleikurinn var áfram mjög góður og heldur það vonandi svoleidis áfram. Í sókninni gengur boltinn vel og erum við að spila upp á góð færi.

6.7.2011 | Knattspyrna

Selfoss fćr ÍR í heimsókn á fimmtudag

Selfyssingar taka á móti ÍR-ingum á morgun fimmtudaginn 7. júlí á Selfossvelli og hefst leikurinn kl. 20.00. Selfyssingar unnu BÍ/Bolungarvík í hörkuleik fyrir vestan í síðasta leik þar sem Ibrahima skoraði markið sem skildi liðin að. Selfyssingar styrktu þar með stöðu sína í 2. sæti 1. deildar. Íþróttafélag Reykjarvíkur er hins vegar í 8. sæti, átta stigum á eftir Selfossi.

6.7.2011 | Handbolti

4. flokkur karla á Partille Cup!

Á sunnudag fór 4. flokkur karla a Partille Cup i Gautaborg sem er stærsta handboltamót heims. Selfoss er með tvö lið á mótið, eitt 15 ára lið (1996) og eitt 16 ára lið (1995). Strákarnir eru með sérstaka heimasíðu þar sem haegt er ad fylgjast med gangi mala.
slóðin á síðuna er: http://partille2011.123.is/

4.7.2011 | Frálsíţróttir

Gott gengi hjá félögum í meistarahópi Selfoss á Eyrarsundleikunum í Helsingborg

Fjórir meðlimir í meistarahópi Umf. Selfoss, þau Haraldur Einarsson, Fjóla Signý Hannesdóttir, Dagur Fannar Magnússon og Guðmundur Kristinn Jónsson, eru stödd erlendis um þessar mundir, nánar tiltekið í Svíþjóð í keppnisferð. Um liðna helgi kepptu þau á Eyrarsundsleikunum og stóðu sig mjög vel.

4.7.2011 | Knattspyrna

Strákarnir međ góđan 1:0 sigur fyrir vestan

Selfyssingar héldu til Ísafjarðar sl. fimmtudga og léku við BÍ/Bolungarvík í 1. deild karla. Okkar menn voru mun sterkari í fyrri hálfleik, stýrðu leiknum og sköpuðu sér nokkur góð færi. Fyrsta og eina mark leiksins kom á 38. mínútu. Joe Tillen fór þá með boltann upp vinstri kantinn og sendi lága sendingu inn í teig. Þar var Ibrahima á undan Þórði Ingasyni, markverði BÍ/Bolungarvíkur, í boltann og náði að pota honum yfir marklínuna. Markið fær tæpast fegurðarverðlaun en reyndist afar mikilvægt þegar upp var staðið.

4.7.2011 | Frálsíţróttir

Frjálsíţróttaskóli UMFÍ á Selfossi heppnađist vel

frjalsar-umfi-2Það voru 15 þátttakendur sem mættu í frjálsíþróttaskóla UMFÍ á Selfossi vikuna 20.-24. júní sl., en skólinn var starfræktur á fjórum stöðum á landinu. Tveir þjálfarar kenndu í skólanum, þ.e. Ólafur Guðmundsson og Fjóla Signý Hannesdóttir. Sex frjálsíþróttaæfingar voru á dagskránni og eitt mót sem var nokkurs konar lokapunktur skólans. Þar fengu þátttakendur að reyna sig og um leið nýta sér það sem þeir höfðu lært í skólanum.

30.6.2011 | Frálsíţróttir

Landsbankinn ađalstyrktarađili Brúarhlaups Selfoss

landsbanki_2582Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss, eigandi og framkvæmdaraðili Brúarhlaups Selfoss, og Landsbankinn á Selfossi undirrituðu nýlega samstarfssamning í tengslum við Brúarhlaup Selfoss árið 2011. Í samstarfinu felst m.a. að Landsbankinn verður aðal styrktar- og stuðningsaðili hlaupsins í ár.

28.6.2011 | Knattspyrna

Selfoss fer vestur á firđi á fimmtudaginn

Selfyssingar fara vestur á firði á fimmtudaginn og etja þar kappi við BÍ/Bolungarvík eða "Skástrikið" eins og gárungar kalla liðið. Liðin hafa aldrei att kappi í knattspyrnu en Selfyssingar hafa keppt við BÍ tvisvar sinnum og Bolungarvík einu sinni. Í fyrra skiptið var það bikarleikur á iðagrænum Selfossvelli 23. júní 1992 og við kíkjum aðeins á hann.

28.6.2011 | Handboltaakademía

Handboltaakademían óskar eftir ađ ráđa líkamsţjálfara

Handboltaakademía UMFS og FSu óskar eftir að ráða þjálfara til þess að sjá um líkamsþjálfun iðkenda á aldrinum 16-20 ára. Um er að ræða hlutastarf. Umsækjendur þurfa að hafa íþróttatengda menntun og/eða mikla reynslu af þjálfun. Áhugasamir eru beðnir um að senda umsókn ásamt ferilskrá á netfangið: sebastian@nyherji.is  fyrir 10. júlí.

28.6.2011 | Frálsíţróttir

Halla María og Sigţór lönduđu 8 Íslandsmeistaratitlum á MÍ 11-14 ára

mi_11-14_2011_1Helgina 25. - 26. júní s.l. fór fram Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum í Vík í Mýrdal. HSK-Selfoss sendi vaska sveit til keppni sem taldi 25 manns, ásamt þjálfurum og aðstandendum keppenda. HSK-Selfoss liðinu gekk mjög vel, vann 11 gullverðlaun, 10 silfurverðlaun og 5 bronsverðlaun ásamt því að verða Íslandsmeistarar í flokki stúlkna 12 ára með Höllu Maríu í broddi fylkingar. Fengu þær 139,5 stig meðan næsta lið, ÍR, var með 78 stig. HSK-Selfoss varð svo í öðru sæti hjá 12 ára piltum og 14 ára stúlkum. Í heildarstigakeppninni var HSK-Selfoss í 2. sæti með 465,5 stig en FH sigraði með 680,3 stig. Gott veður var fyrri daginn en afleitt þann seinni, rok og rigning sem háði keppendum verulega.

28.6.2011 | Frálsíţróttir

Fjóla Signý međ glćsilegt HSK-met í 400m grindahlaupi

Fjóla_hlaupandiFjóla Signý Hannesdóttir setti nýtt og glæsilegt HSK-met í kvenna- og ungkvennaflokki í 400m grindahlaupi á alþjóðlegu móti í Finnlandi nú nýverið. Fjóla Signý hljóp 400m grindahlaupið á tímanum 60,76 sek og varð í 4. sæti í hlaupinu rétt á eftir þeim hlaupurum sem urðu í öðru og þriðja sæti. Hún bætti jafnframt 17 ára HSK-met Þuríðar Ingvarsdóttur sem var 61,35 sek. Fjóla Signý átti best áður 62,25 sek. Þessi árangur Fjólu Signýjar er besta afrek íslenskrar konu í 400m grindahlaupi á árinu.

27.6.2011 | Knattspyrna

Öruggur 3:0 sigur hjá stelpunum á Króknum

Selfoss-stelpur léku við Tindastól á Sauðárkróki á sunnudaginn í b-riðli 1. deildar kvenna. Selfoss hafði mikla yfirburði og vann öruggan 3:0 sigur og má segja að um einstefnu hafi verið að ræða. Leikurinn var vel spilaður af Selfyssingum en það þurfti mikla þolinmæði til að brjóta niður varnarmúr norðanstelpna.

26.6.2011 | Knattspyrna

Selfyssingar töpuđ 2-1 fyrir Stjörnunni í úrslitaleiknum

shellmot_0756Nú er á enda Shellmótið í Vestmannaeyjum þar sem Selfyssingar gerðu sér lítið fyrir og spiluðu úrslitaleik mótsins í keppni A-liða. Eftir frábæran úrslitaleik með samba fótbolta þar sem ekkert var gefið eftir vann Stjarnan úr Garðabæ leikinn 2-1. Shellmótið er eitt fjölmennasta íþróttamót landsins og er fyrir níu og tíu ára drengi. Það voru yfir 40 fjörmiklir fulltrúar Umf. Selfoss sem tóku þátt í mótinu og vöktu mikla athygli fyrir dug sinn, dirfsku og leikgleði. Fimm lið frá Selfossi spiluðu á mótinu, en alls voru yfir 150 lið hvaðanæva af landinu sem tóku þátt.  

25.6.2011 | Knattspyrna

A-liđ komiđ í úrslitaleik Shellmótsins

A-lið 6. flokks Selfoss í knattspyrnu er komið í úrslitaleik Shellmótsins í Eyjum. Í úrslitaleiknum leika þeir gegn Stjörnunni úr Garðabæ og hefst leikurinn á Hásteinsvelli kl. 16.30 í dag. Þetta er frábær árangur hjá strákunum og í fyrsta skipti sem Selfoss fer í úrslitaleikinn.

 

24.6.2011 | Knattspyrna

Öruggur 3-1 sigur á Víkingi Ó.

Selfyssingar tóku á móti Víkingi frá Ólafsvík í 8. umferð 1. deildar í knattspyrnu í gær. Bæði lið voru á ágætis skriði og því mátti búast við skemmtilegum leik. Sú varð raunin, spilaður var flottur bolti og virkilega flott mörk skoruð í 3-1 sigri Selfyssinga.

23.6.2011 | Knattspyrna

Strákarnir taka á móti Víkingi Ó. í kvöld

Selfyssingar taka á móti Víking frá Ólafsvík í kvöld fimmtudaginn 23. júní á Selfossvelli og hefst leikurinn kl. 20.00. Selfyssingar unnu KA mjög sannfærandi í síðasta leik á meðan Víkingur vann Þrótt Reykjavík 2-1 í hörkuleik. Viðureignir Selfyssinga og Ólafsvíkinga hafa í gegnum tíðina verið fjörugar og má búast við áframhaldi á því.

22.6.2011 | Frálsíţróttir

Landsliđsfólk HSK-Selfoss stóđ sig vel í Evrópukeppni landsliđa

Um liðna helgi fór fram Evrópukeppni landsliða í frjálsum íþróttum, 3. deild, á Laugardalsvelli í Reykjavík. HSK-Selfoss átti fjóra keppendur í landsliði Íslands og stóðu þau sig á heildina litið mjög vel og voru sér og landsliðinu til mikils sóma.

22.6.2011 | Knattspyrna

Góđur bikarleikur ţrátt fyrir tap

Selfoss-stelpur léku við Pepsi-deildarlið KR á Selfossvelli sl. sunnudag í 16-liða úrslitum Valitor bikarsins. Lið Selfoss sýndi mikla baráttu og úr varð skemmtilegur leikur. KR-stelpur byrjuðu reyndar leikinn betur og komust yfir strax á 6. mínútu. Staðan í hálfleik var 0:2. Selfoss náði að jafna 2:2, en KR komst aftur yfir 2:3 og 2:4. Selfoss minnkaði muninn í 3:4 á lokamínútunum og það urðu jafnframt lokatölur leiksins.

22.6.2011 | Frálsíţróttir

Selfoss vann aldursflokkamót HSK 11-14 ára međ yfirburđum

Aldursflokkamót HSK 11-14 ára var haldið á Selfossvelli laugardaginn 11. júní sl. Frekar var nú kalt og hráslagalegt hjá okkur en þrátt fyrir það stóðu krakkarnir sig rosalega vel. Á mótinu kepptu 20 krakkar frá Selfossi. Þau gerðu sér lítið fyrir og sigruðu mótið með 308 stiga mun, fengu samtals 380 stig. 

21.6.2011 | Sund

Sundţjálfari óskast á Selfossi

Sunddeild Umf. Selfoss  óskar eftir að ráða þjálfara til starfa næsta vetur. Starfssvið þjálfara væri t.d. að sjá um þjálfun á elstu hópum deildarinnar og hafa yfirumsjón með öllum hópum deildarinnar, halda utan um rafrænar skráningar félagsins á sundmót og halda skrár yfir árangur sundmanna félagsins á mótum auk þess að sjá um sundnámskeið í nafni deildarinnar. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af sundþjálfun og menntun á sviði íþróttafræði.  Viðkomandi verður að geta unnið með börnum og unglingum og verið þeim fyrirmynd. Þekking á forritum frá Hy-tek er æskileg. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf berist á netfangið sirry@centrum.is fyrir 10. Júlí 2011.

16.6.2011 | Knattspyrna

Breyting á fótboltanámskeiđum

Ákveðið hefur verið að breyta fyrirkomulaginu á Þrumunámskeiðunum sem fara fram næstu tvær vikur, það fyrra 20. - 24. júní og það seinna 27. júní - 1. júlí. Í staðinn fyrir að hafa námskeiðin skipt eftir kyni þá verða þau blönduð eins og hin námskeiðin. Þar af leiðandi komast allir þeir krakkar sem hefðu misst af báðum námskeiðum m.a. vegna móta á a.m.k. eitt námskeið.

15.6.2011 | Knattspyrna

Selfoss - KA í kvöld kl. 20:00

Selfyssingar taka á móti KA á Selfossvelli í kvöld miðvikudaginn 15. júní kl 20.00. Fyrir leikinn eru Selfyssingar í 2. sæti með 10 stig, en KA í 8. sæti með 7 stig. Þetta sýnir bara hvað deildin er jöfn og því nauðsynlegt að halda stöðugleika til að klifra upp stigatöfluna.

13.6.2011 | Knattspyrna

4. fl. karla spilar viđ Val á ţriđjudaginn

Því miður er bloggsíða 4. flokks karla biluð og því þurfum við að koma eftirfarandi skilaboðum á framfæari. Vinsamlegast látið þetta berast til allra í 4. fl. karla: A- og B-lið eiga leik gegn Val á þriðjudaginn. Farið verður með rútu í bæinn, brottför kl. 15:00 frá Tíbrá (mæting kl. 14:30). Verð í rútu er 1500 kr. Taka með sér utanyfirgalla, takkaskó, legghlífar, vatnsbrúsa og nesti væri líka tilvalið. Þeir sem eiga að mæta eru: Þorkell, Eiríkur, Anton, Alexander, Bjarki Leós, Oliver, Helgi, Hergeir, Freyr, Ómar I, Jökull, Jói, Gunnar, Unnar, Gísli F., Elvar Örn, Elvar G, Arilíus, Gummi, Maggi Ö., Bjarni, Arnkell, Sindri, Aron, Ási, Óðinn, Elías og Ernir.

13.6.2011 | Handbolti

Fimm strákar spiluđu međ U-15 gegn Fćreyjum

Selfyssingarnir Árni Guðmundsson, Hergeir Grímsson, Nikulás Hansen Daðason, Ómar Ingi Magnússon og Sævar Ingi Eiðsson voru valdir í 15 ára landslið Íslands í handknattleik sem lék um helgina. Slegið var upp móti þar sem íslenska hópnum var skipt í þrjú lið auk þess sem 16 ára landslið Færeyja var með og spilaði við íslensku liðin. Strákarnir voru því að leika sinn fyrsta landsleik um helgina.

13.6.2011 | Frálsíţróttir

Úrslit í 6. Grýlupottahlaupinu

Sjötta Grýlupottahlaupið fór fram 4. júní sl. Úrslit urðu eftirfarandi:

12.6.2011 | Nýjustu fréttir

Master Sigursteinn Snorrason međ 6. dan.

Í apríl sl fór master Sigursteinn Snorrason, meistari taekwondodeildar UMF Selfoss, til S-Kóreu.

6.6.2011 | Nýjustu fréttir

Íţrótta- og útivistarklúbbur Umf. Selfoss

- Skemmtileg sumarnámskeið! Íþrótta- og útivistarklúbburinn býður upp á 2 vikna sumarnámskeið fyrir krakka á aldrinum 5-10 ára (fædd 2001-2006). Á námskeiðunum er boðið upp á fjölbreytta dagskrá og hreyfingu. Farið verður í hinar ýmsu íþróttagreinar en meðal þess sem kynnt verður fyrir krökkunum eru boltagreinar, frjálsar íþróttir og fimleikar, auk þess sem mikið er um útiveru og almenna leiki. Einnig verður farið í hjólaferðir og sundferðir á dagskrá. Í lok námskeiðs verða svo mismunandi ferðir og grillveisla.

6.6.2011 | Knattspyrna

Knattspyrnuskóli Selfoss 2011

Knattspyrnudeild Umf. Selfoss býður upp á sumarnámskeið í knattspyrnu sem hafa verið gríðarlega vinsæl hjá stelpum og strákum á öllum aldri. Mikill metnaður er lagður í að bjóða upp á góð námskeið fyrir alla aldurshópa þar sem leikmenn meistaraflokks haf yfirumsjón með þjálfuninni. Upplagt tækifæri til að láta helstu stjörnur meistaraflokks karla og kvenna miðla reynslu sinni.

6.6.2011 | Knattspyrna

Kökubasar 7. flokks karla í Kjarnanum

Strákarnir í 7. flokki í fótbolta verða með kökubasar í Kjarnanum föstudaginn 10. júní frá kl. 15:00.
Strákarnir eru að safna vegna ferðar til Akranes á Norðurálsmótið sem fer fram 17.-19. júni. Hjá okkur getur þú keypt kökurnar í afmæli eða bara með kaffinu þessa helgina og styrkt strákana í leiðinni.

6.6.2011 | Handboltaakademía

Samantekt um 2. flokk

Þetta tímabil hjá 2. flokki verður lengi í minnum haft fyrir æði marga misjafna hluti. Talsvert var um meiðsli leikmanna og sem dæmi léku aðeins tveir leikmanna okkar alla leikina, en það voru markmennirnir tveir. Neyddumst við Selfyssingar að draga B-liðið úr leik þar sem svo margir svo margir leikmenn meiddust í lengri eða skemmri tíma.

6.6.2011 | Handboltaakademía

Samantekt um 3. flokk

Tímabilið 2010-11 hjá 3. flokki karla í handbolta var afar skemmtilegt og óhætt að segja að mikla framfarir hafi orðið hjá leikmönnum flokksins. Flokkurinn samanstóð af gríðarlega skemmtilegum hópi ungra drengja sem tilbúnir eru að leggja mikið á sig til að ná árangri.

2.6.2011 | Nýjustu fréttir

Fjölmenni á íţróttavallarsvćđinu í tilefni 75 ára afmćlis félagsins

Selfoss_75_ara_netFjölmenni var á íþróttavallarsvæðinu við Engjaveg í dag er haldið var upp á 75 ára afmæli Ungmennafélags Selfoss. Dagskráin hófst um kl. 11 með leikjum og ýmsu sprelli. Þar gátu ungir sem aldnir tekið þátt í fótbolta, frjálsum og fimleikum. Einnig sýndu taekwondoiðkendur og þjálfarar ýmsar æfingar og spörk sem hægt var að spreyta sig á. Á eftir var öllum boðið upp á grillaðar pylsur og Kókómjólk. Í gærkvöldi var haldin hátíðasamkoma í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands. Þangað var boðið stjórnum allra deilda félagsins, heiðursfélögum og öðrum velunnurum félagsins.

1.6.2011 | Handboltaakademía

Kynningafundur vegna Handboltaakademíunnar verđur haldinn í Tíbrá ţriđjudaginn 7. júní kl. 18:00

Nú þegar Handboltaakademían hefur verið starfrækt í 5 ár með góðum árangri hefur verið ákveðið að gera breytingar á ýmsum þáttum starfsins. Starfið verður kynnt fyrir áhugasömum og jafnframt verður farið yfir þær breytingar sem fyrirhugaðar eru á fundinum. Við bjóðum öllum sem áhuga hafa að koma og kynna sér starfið og þær breytingar sem fyrirhugaðar eru. Kynningafundurinn verður haldinn í Tíbrá þriðjudaginn 7. júní kl. 18:00.

1.6.2011 | Knattspyrna

Leiknir - Selfoss, fimmtudag kl. 20.00

Selfyssingar heimsækja Leiknir alla leið upp í efra Breiðholt á fimmtudag og hefst leikurinn kl. 20.00. Hvorugt liðanna hefur farið vel af stað miðað við spá þjálfara og fyrirliða liðanna. Selfyssingar eru með 3 stig í 7. sæti og Leiknir með 2 stig í 9. sæti. Það má því búast við hörkuleik þar sem bæði lið sækja í 3 stig.

1.6.2011 | Knattspyrna

Fótboltadagur á Selfossi - DVD diskurinn Tćkniskóli KSÍ afhentur

Knattspyrnudeild Umf. Selfoss í samvinnu við KSÍ ætlar að hafa skemmtilegan fótboltadag á 75 ára afmæli félagsins. Afmælisdagskráin er fimmtudaginn 2. júní og hefst formleg dagskrá kl. 11.00. KSÍ ætlar þá að gefa öllum iðkendum knattspyrnu 16 ára og yngri, DVD disk með tækniæfingum og ráðleggingum frá helstu knattspyrnuhetjum þjóðarinnar. Á Selfossvöll munu mæta landsliðsfólk Íslands í knattspyrnu og afhenda krökkunum DVD diskinn, Tækniskóli KSÍ. Allir krakkar, sem stunda knattspyrnu að einhverju marki, hvort sem er á Selfossi eða í nágreni eru hvattir til að mæta á Selfossvöll og taka við kennsludisk frá KSÍ.

31.5.2011 | Nýjustu fréttir

Afmćlisveisla fyrir alla krakka á íţróttavellinum á fimmtudag

Í tilefni 75 ára afmælis Ungmennafélags Selfoss verður afmælisveisla fyrir alla krakka á íþróttavellinum við Engjaveg fimmtudaginn 2. júní. Veislan hefst með leikjum og sprelli kl. 11:00. Síðan verður pylsuveisla á eftir þ.e. kl. 12:00-13:00. Allir krakkar eru velkomnir. Á afmælisdaginn sjálfan (1. júní) mun aðalstjórn félagsins og stjórnir allra deilda koma saman í hátíðasal FSu.

31.5.2011 | Frálsíţróttir

Úrslit úr 5. Grýlupottahlaupinu

Fimmta Grýlupottahlaupið fór fram laugardaginn 28. maí. Úrslit urðu eftirfarandi.

31.5.2011 | Fimleikar

Fjörug fimleikanámskeiđ í sumar

Fimleikanámskeið fyrir börn fædd 2002-2005/6.  Kennt verður í íþróttahúsi Sunnulækjarskóla alla virka daga frá 13:00-15:00.
1. námskeið 6. júní - 16. júní
2. námskeið 20. júní - 1. júlí
3. námskeið 8. ágúst - 19. ágúst.
Kennarar eru Sigríður Ósk Harðardóttir og Linda Ósk Þorvaldsdóttir ásamt aðstoðarþjálfurum.  
Farið verður út með áhöldin þegar til þess viðrar og slegið verður upp sýningu í miðbænum einu sinni á hverju námskeiði.  Námskeiðsgjald 8.000 kr. 
Skráning fer fram á netfangið: fimleikarselfoss@gmail.com 
 

30.5.2011 | Frálsíţróttir

Sumarćfingatímar í frjálsum byrja í dag

Sumaræfingatímar hjá frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss taka gildi í dag. Æfingar fara fram á nýja frjálsíþróttavellinum. Æfingatíma má sjá hér að neðan.

30.5.2011 | Nýjustu fréttir

HSK-mót í taekwondo á Hellu

Hella-05-2011-003Laugardaginn 28. maí sl var haldið HSK-mót í taekwondo í íþróttahúsinu á Hellu. Mjög margir bardagar voru spennandi og gaman að sjá hvað nýjir iðkendur eru áhugasamir og gefa sig alla í íþróttina. Um 50 keppendur voru skráðir til leiks. Keppt var bæði í sparring og púmse og var keppni mjög spennandi.

28.5.2011 | Knattspyrna

Öruggur 3-0 sigur á Fjölni

Stelpurnar í liði Selfoss tóku á móti Fjölni í fyrsta leik sínum á Íslandsmótinu í dag. Leikið var á aðalvellinum í blíðskaparveðri og sýndu bæði lið ágætis takta miðað við fyrsta leik í móti. Gárungar í stúkunni fóru fram á það að stelpurnar myndu vinna Fjölni og þar með kvitta fyrir tapið hjá strákunum. Að sjálfsögðu gerðu Selfyssingar það og unnu leikinn örugglega 3-0. 

27.5.2011 | Knattspyrna

Selfoss - ÍA, laugardag kl. 14.00

Næsti leikur Selfoss í deild er gegn strákunum af Skipaskaga. Leikurinn verður flautaður á kl. 14.00 laugardaginn 28. maí. Akurnesingar eru í efsta sæti 1. deildar, eftir að hafa unnið fyrstu tvo leiki sína og eru með markatöluna 4-0. Selfoss er í 4. sæti, þrem stigum á eftir ÍA með markatöluna 5-3. Selfyssingar kepptu í vikunni gegn Fjölni í bikar og duttu þar út í ömurlegum leik á meðan ÍA fékk frí, enda stutt síðan Selfyssingar slógu þá út úr bikarkeppninni.

25.5.2011 | Sund

Sundnámskeiđ fyrir 5 og 6 ára börn

Lógó SelfossÁrlegt vornámskeið Sunddeildar Umf. Selfoss verður haldið dagana 1.-16. júní í Sundhöll Selfoss. Námskeiðið er ætlað börnum fæddum 2005 og 2006. Einnig verður hópur fyrir börn sem byrjuð eru í skóla og vilja bæta kunnáttuna. Skráningu lýkur 29.maí. Kennari á námskeiðinu er Guðbjörg H. Bjarnadóttir íþróttakennari. Verð 9.000 kr. fyrir 10 kennslustundir. Skráning á guggahb@simnet.is eða í síma 848-1626.

24.5.2011 | Knattspyrna

Fjölnir - Selfoss miđvikudag kl. 19.15 í Grafarvoginum

Selfyssingar heimsækja Fjölni í Grafarvoginn miðvikudaginn 25. maí og hefst leikurinn kl 19.15. Þessi leikur er í 32-liða úrslitum Valitor bikarsins. Selfyssingar unnu Skagamenn 7-6 á leið sinni þangað þangað á meðan Fjölnir vann Ísbjörninn 10-0. Selfyssingar hafa ekki riðið feitum hesti frá bikarkeppni KSÍ sl áratug eða tvo. Besti árangur Selfyssinga er undanúrslit árið 1969. Fjölnismenn fóru í úrslitaleikinn árin 2007 og 2008 sem er frábært hjá svo ungu félagi. 

23.5.2011 | Frálsíţróttir

Úrslit úr 4. Grýlupottahlaupinu

Fjórða Grýlupottahlaup Selfoss fór fram laugardaginn 21. maí sl. Úrslit urðu eftirfarandi.

23.5.2011 | Knattspyrna

Fótboltaćfingar falla niđur vegna ösku

Allar fótboltaæfingar falla niður í dag, mánudag, vegna öskuryks.

23.5.2011 | Handboltaakademía

Verđlaunahafar á lokahófi handboltans

Yngriflokkaráð handknattleiksdeildar umf. Selfoss fór fram í íþróttahúsi Sólvallaskóla s.l. föstudag. Afhent voru einstaklingsverðlaun fyrir framúrskarandi árangur í vetur, einnig var myndataka af öllum liðum og hátíðinni lauk svo með heljarmikilli grillveislu. Handknattleiksdeildin vill þakka Landbankanum, SS-pylsum, Guðnabakaríi og N1 fyrir að hjálpa til við að gera lokahófið glæsilegt.

18.5.2011 | Knattspyrna

Grótta-Selfoss, fimmtudag kl 20.00

Selfyssingar halda á Seltjarnarnesið til að leika annan leik sinn í 1. deildinni í ár. Þar hitta þeir fyrir Gróttu og hefst leikurinn kl 20.00, fimmtudaginn 19. maí. Eins og flestir vita töpuðu Selfyssingar fyrir Fjölni í fyrsta leik, á meðan Grótta gerði jafntefli við Þrótt. Liðin voru í sama riðli í Lengjubikarnum og enduðu þar saman í 5-6 sæti með 8 stig úr sjö leikjum

18.5.2011 | Nýjustu fréttir

Myndataka fyrir afmćlisblađiđ

Í dag miðvikudag verður myndataka í nýju knattspyrnustúkunni upp á íþróttavelli. Myndin á að prýða forsíðu afmælisblaðs félagsins sem kemur út fljótlega. Eru allir krakkar á aldrinum 5-14 ára sem hafa áhuga á að vera með á myndinni velkomnir. Allir verða að vera í Selfoss-galla, Selfoss-keppnisbúning eða í keppnisbúningi sinnar greinar. Mæting er kl. 15:45 og myndatakan kl. 16:00.

18.5.2011 | Knattspyrna

Útićfingar hjá 8. flokki í fótbolta

Með hækkandi sól er orðið tímabært að færa fótboltaæfingarnar út og er fyrsta útiæfingin í dag. Æfingarnar verða á sama tíma, kl. 17.15 á miðvikudögum og eru þær á gervigrasinu. 8. flokkur er fyrir stráka og stelpur fædd 2005 og 2006. Þjálfari er Hafdís Jóna og fyrir nánari upplýsingar má hafa sambanda á hafdisj@simnet.is Einnig er verið að smala saman fótboltakrökkum í myndatöku fyrir afmælisrit knattspyrnudeildarinnar og þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í því mega gjarnan mæta í nýju fínu stúkuna kl. 15.45 í dag.

18.5.2011 | Handboltaakademía

Lokahóf yngri flokka handknattleiksdeildar

Lokahóf yngri flokka handknattleiksdeildar Umf. Selfoss verður fötudaginn 20.maí  í

íþróttahúsi Sólvallaskóla frá  kl. 17-19. Á dagskránni er verðlaunaafhending, myndataka og grillveisla.

Foreldrar og forráðamenn eru eindregið hvattir til að mæta með krökkunum.

17.5.2011 | Fimleikar

Selfoss tvöfaldir deildarmeistarar í 5.flokki landsreglna í hópfimleikum

Stór hópur frá Selfossi eða áttatíu keppendur héldu á Akureyri helgina 13.-15.maí og tóku þátt í fjölmennansta vormóti Fimleikasambands Íslands til þessa.  Alls voru tæplega 700 keppendur mættir til leiks en keppt var í   1.deild sem er keppni í landsreglum.  Í 5.flokki kvenna sem er flokkur 9-12 ára kepptu 22 lið og áttu Selfyssingar þrjú kvennalið.  Hópur HL4 kom sá og sigraði á þessu móti en það voru glæsilegar æfingar á dýnu sem tryggði þeim gullið. Hópurinn er skipaður 11-12 ára gömlum stelpum.   Þær fengu samtals 21,6 stig en lið Gerplu A varð í 2.sæti með 21,35 stig.

17.5.2011 | Fimleikar

Minningarmótiđ var haldiđ í tuttugasta sinn 8.maí

Hið árlega minningarmót um Magnús Arnar Garðarsson var haldið í tuttugasta sinn sunnudaginn 8.maí s.l.  Alls tóku 16 hópar þátt frá fimleikadeildinni og hafa þeir aldrei verið fleiri.  Mótið fór vel fram og er sá háttur hafður á að allir hópar fá viðurkenningu fyrir sitt sterkasta áhald á mótinu.  Það hefur lukkast vel og er það komið til að vera.  Á minningarmótinu veitir deildin einnig viðurkenningar til einstaklinga sem skarað hafa framúr á einhvern hátt á árinu. 

17.5.2011 | Frálsíţróttir

Úrslit í 3. Grýlupottahlaupinu

Þriðja Grýlupottahlaup Umf. Selfoss fór fram laugardaginn 14. maí. Úrslit urður eftirfarandi.

15.5.2011 | Knattspyrna

Stelpurnar í 4. flokki unnu sinn riđil á Faxaflóamótinu

Þær eru að standa sig vel stelpurnar í 4. flokki og á dögunum tryggðu þær sér sigur á Faxaflóamótinu með því að vinna alla sína leiki. Selfyssingar voru í riðli með Keflavík, Skallagrími, ÍBV, Snæfellsnesi, Grindavík og Haukum. Stelpurnar fengu 18 stig af 18 mögulegum og var markatalan 25-11. Þjálfari stelpnanna er Aníta Guðlaugsdóttir og er hún að gera góða hluti með þær.

15.5.2011 | Knattspyrna

Strákarnir í 3. flokki unnu alla sína leiki á Faxaflóamótinu

3. flokkur karla vann alla sína leiki á Faxaflóamótinu sem lauk á dögunum. Strákarnir voru í riðli með ÍA, Gróttu, Aftureldingu, Grindavík, Njarðvík og sameinuðu liði Skallagríms og Snæfellsness. Eins og áður sagði unnu strákarnir alla leiki sína nokkuð auðveldlega og enduðu með markatöluna 36-5. Gaman verður að fylgjast með þessum strákum í Íslandsmótinu sem hefst á næstu dögum. Þjálfari strákanna er Guðmundur Sigmarsson sem gerði 3. flokk kvenna að Íslandsmeisturum í fyrra og greinilegt að Gummi er á réttri leið með strákana.

15.5.2011 | Knattspyrna

Tap gegn Fjölni í fyrsta leik í deild

Selfyssingar tóku á móti Fjölni í fyrsta leik deildarinnar í ár. Selfyssingum hafði verið spáð 2. sæti og Fjölnir því 4. og því ljóst að stefndi í hörku leik. Selfyssingar stilltu upp sama byrjunarliði og skellti Skagamönnum í bikarkeppninni fjórum dögum áður í maraþon leik. Það dugði þó ekki til gegn frísku Fjölnisliði, sem vann leikinn 2-3, eftir að hafa komist í 0-3.

12.5.2011 | Knattspyrna

Selfoss tekur á móti Fjölni á föstudag kl 20.00

Selfyssingar taka á móti Fjölni í fyrsta leik sínum á Íslandsmótinu í ár. Leikið verður á grasvellinum á Selfossi og hefst leikurinn kl 20.00, föstudaginn 13. maí. Bæði lið kepptu í bikarkeppninni fyrr í vikunni og unnu sína leiki. Selfoss vann ÍA 7-6 og Fjölnir vann Ísbjörninn 10-0, þannig að það ættu nú að verða mörk á Selfossvelli á föstudag. En með þessum sigrum komust liðin áfram í bikar og drógust að sjálfsögðu saman í 32 liða úrslitum

12.5.2011 | Knattspyrna

Guđmunda Brynja Óladóttir valin í A-landsliđ Íslands

Framherjinn Guðmunda Brynja var í gær valin í æfingahóp hjá A-landsliði Íslands fyrir Búlgaríu leikinn sem fram fer fimmtudaginn 19. maí. Þetta er frábær árangur hjá Gummu og gaman að sjá að Siggi Raggi þjálfari A-landsliðsins fylgist með öllum leikmönnum á landinu, en Gumma leikur auðvitað með Selfoss í 1. deildinni. Gumma, sem er aðeins 17 ára gömul á þessu ári er vel að þessu vali komin, en hún hefur verið burðarrás í sóknarleik Selfyssinga frá því að meistaraflokkur var endurvakinn fyrir þrem árum. Gumma var einnig í 3. flokks liði Selfoss sem varð Íslandsmeistarar sl. sumar. Gumma er þar með fyrsti leikmaður sem valin er í A-landslið Íslands, sem leikmaður Selfoss. En og aftur til hamingju Gumma.

11.5.2011 | Knattspyrna

Selfoss Lengjubikarmeistarar eftir 0-1 sigur á Keflavík

Selfossstelpur-Lengubikar2011_1Selfyssingar mættu Keflavíkurstelpum fyrr í kvöld í úrslitaleik Lengjubikarsins c-deild. Selfyssingar unnu Skagastúlkur í 4-liða úrslitum, en Keflavík vann Völsung. Liðin leika bæði í 1. deild Íslandsmótsins í sumar og er þeim spáð góðu gengi. Eftir hörku leik fór það svo að Selfoss vann leikinn 0-1 og sinn fyrsta titil í meistaraflokki kvenna. Guðmunda Brynja Óladóttir skoraði markið úr víti, eftir að á henni hafði verið brotið.

10.5.2011 | Frálsíţróttir

2. Grýlupottahlaup - úrslit

Annað Grýlupottahlaup frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss fór fram laugardaginn 7. maí. Úrslit urðu eftirfarandi:

10.5.2011 | Knattspyrna

Háspennu 7-6 sigur á ÍA og Jói varđi 4 víti

Selfyssingar tóku á móti ÍA í annarri umferð Valitor-bikarkeppnirnar á Selfossvelli í kvöld. Leikurinn var ekta bikarleikur sem hafði upp á allt sem bikarleikir hafa upp á að bjóða: Mörk, rafmagnað andrúmsloft, flottar sóknir, fljúgandi tæklingar, rauð og gul spjöld, vítaspyrnukeppni og að lokum réðust úrslitin í bráðarbana og unnu Selfyssingar 7-6.

9.5.2011 | Knattspyrna

Selfoss-stelpur unnu ÍA 1-0

Selfoss-stelpurnar léku um helgina undanúrslitaleik í Lengjubikarnum við ÍA. Leikið var á gervigrasinu á Selfossi og höfðu Selfyssingar betur 1-0 með marki frá Önnu Maríu Friðgeirsdóttur. Með þessum glæsilega sigri eru stelpurnar komnar í úrslitaleik Lengjubikarsins í c-deild. Selfoss spilar úrslitaleikinn við Keflavík og verður leikið í Reykjaneshöllinni. Ekki hefur verið ákveðið með leiktímann, en að sjálfsögðu mun heimasíða Selfoss upplýsa lesendur um leið og nánari upplýsingar fást

9.5.2011 | Handbolti

Lokahóf handknattleiksdeildar föstudag 13. maí

Lokahóf meistaraflokks, 2. flokks, 3. flokks og Handboltaakademíu handknattleiksdeildar Umf. Selfoss verður haldið í Félagslundi föstudaginn 13. maí. Húsið opnar kl. 18:00 en borðhald hefst kl. 18:30. Verðlaunaafhending og viðurkenningar.

8.5.2011 | Knattspyrna

Selfoss - ÍA í stórleik bikarsins á mánudag kl. 19.00

Fyrsti alvöruleikur Selfyssinga á þessu tímabili er í bikarkeppninni og verður leikið á aðalvellinum á Selfossi mánudaginn 9. maí kl. 19.00. Þá koma Skagamenn í heimsókn og spreyta sig á liði heimamanna, í stórleik 2. umferðar Valitors- bikarkeppninnar. Gaman er að getað byrjað leiktíðina á okkar frábæra heimavelli, en grasið kemur mjög vel undan vetri. 

4.5.2011 | Knattspyrna

Leikmannakynning í Tryggvaskála og Ari Eldjárn mćtir

Selfyssingar halda leikmannakynningu í Tryggvaskála nk. föstudag og hefst þétt dagskrá stundvíslega kl 21.00. Gissur Jónsson getraunastjóri mun veita verðlaun fyrir góðan árangur í tippinu í vetur og svo munu þjálfarar meistaraflokka, þeir Logi Ólafsson, Auðun Helga og Björn Kristinn Björnsson fara yfir komandi sumar.  Ari Eldjárn uppistandari mun svo láta gamminn geysa.

4.5.2011 | Handbolti

2.flokkur úr leik

2.flokkur Selfoss sótti Hauka heim í Hafnarfjörð í gærkvöld. Okkar drengir lögðu sig alla fram og börðust fram í rauðan dauðan en því miður dugði það ekki til að þessu sinni. Haukar með sína fjölmörgu landsliðsmenn höfðu sigur í hörkuleik 29 - 25 en heimamenn leiddu í hálfleik 16 - 11.

4.5.2011 | Knattspyrna

Stelpunar spila viđ ÍA í undanúrslitum

Meistaraflokkur Selfoss leikur gegn ÍA í undanúrslitum Lengjubikarins í C-deild. Selfyssingar unnu sinn riðil örugglega, á meðan ÍA varð í 1.-2. öðru sæti ásamt Keflavík í sínum riðli. ÍA er eins og Selfoss að byggja upp mjög efnilegt lið, þar sem kjarninn eru heimastelpur og má því búast við hörku viðureign. Leikurinn fer fram á gervigrasinu á Selfossi og hefst kl 14.00 laugardaginn 7. maí. Sigurliðið í þessum leik mun spila úrslitaleik við Keflavík eða Völsung þriðjudaginn 10. maí.

4.5.2011 | Frálsíţróttir

Grunnskólamót Árborgar verđur fimmtudaginn 12. maí

Grunnskólamót Árborgar í frjálsum íþróttum verður haldið í 13. sinn fimmtudaginn 12. mai. Keppnin fer fram í Íþróttahúsi Vallaskóla. Klukkan 16.30 hefst keppni í 1.-4. bekk og kl. 18.00 hefst keppni í 5.-10. bekk.

3.5.2011 | Handbolti

Ţrír Íslandsmeistaratitlar í handbolta

Isl_4kv_310Selfoss vann um helgina þrjá Íslandsmeistaratitla í yngri flokkunum í handbolta. Stelpurnar í 4. flokki A unnu Fylki 21:15 í úrslitaleik og stelpurnar í 5. flokki og strákarnir í 5. flokki urðu Íslandsmeistarar eftir mót helgarinnar.

3.5.2011 | Frálsíţróttir

Úrslit í 1. Grýlupottahlaupinu

Fyrsta Grýlupottahlaupið fór fram laugardaginn 30. apríl s.l. Úrslit má sjá með því að fara inn í meðfylgjandi frétt (birt með fyrirvara). Næsta hlaup verður laugardaginn 7. maí. Mæting við Tíbrá kl. 10:30. Hlaupið hfs svo kl. 11:00.

2.5.2011 | Fimleikar

Íţróttaskóli fyrir börn fćdd 2009

Fimleikadeild Selfoss stendur fyrir stuttu námskeiði fyrir börn fædd 2009.Kennt verður á laugardögum í maí í íþróttahúsi Sunnulækjarskóla frá 10:00-10:50. Skráning fer fram á staðnum n.k. laugardag 7.maí. Námskeiðsgjald er 4000kr.  Námskeiðið byggist á hreyfiþjálfun og skemmtilegum leikjum.
Kennari er Steinunn H. Eggertsdóttir.  Stjórn Fimleikadeildar Selfoss

2.5.2011 | Knattspyrna

Öruggur 3-0 sigur á Ţrótti

Selfyssingar tóku á móti Þrótti á grasvellinum á Eyrabakka fyrr í dag. Selfyssingar sigruðu nokkuð örugglega 3-0 með mörkum frá Tillen, Ibrahima og Viðari Erni, en þetta var fyrsta mark Joe Tillen fyrir Selfoss. Þetta var síðasti leikur Selfoss fyrir fyrsta leik í Valitorbikarnum gegn ÍA og þetta var jafnframt fyrsti leikurinn á grasi, en grasvöllurinn var nokkuð góður þrátt fyrir rigningu allan tímann.

29.4.2011 | Nýjustu fréttir

Fjölmennur ađalfundur Umf. Selfoss

Aðalfundur_2011 008Aðalfundur Ungmennafélags Selfoss fór fram í félagsheimilinu Tíbrá í gærkvöldi. Mjög góð mæting var á fundinn, en 54 fulltrúar af 57 sem höfðu rétt til setu á fundinum mættu. Að vanda var lögð fram vönduð ársskýrsla þar sem fram kom að starfið hefur aldrei verið öflugra. Á fundinum var m.a. lýst yfir ánægju með uppbyggingu íþróttamannvirkja á Selfossi og bæjaryfirvöld jafnframt hvött til að halda því starfi áfram. Einnig voru samþykktar ályktanir um bann við hvers kyns áfengisauglýsingum og hvatt til að standa vörð um við tóbaksnotkun hvers konar.

29.4.2011 | Handbolti

4. flokkur karla úr leik

4. flokks lið Selfoss í karlaflokki lék gegn Gróttu í Vallaskóla á miðvikudag í undanúrslitum Íslandsmótsins. Fjölmargir áhorfendur voru mættir og studdu vel við bakið á okkar mönnum.

26.4.2011 | Knattspyrna

Selfoss - Fram miđvikudag kl. 20.00 á gervigrasinu

Stelpurnar í meistaraflokki Selfoss leika á morgun miðvikudag síðasta leik sinn í Lengjubikarnum er þær mæta Fram. Leikurinn verður spilaður á gervigrasinu á Selfossi og hefst hann kl. 20.00. Selfyssingar sitja í efsta sæti riðilsins með 7 stig og markatöluna kunnugu 14-2, en þær geta með sigri tryggt sér sigur í riðlinum. Fram er í 3. sæti riðilsins með 4 stig, en bæði lið hafa leikið 3 leiki.

26.4.2011 | Handboltaakademía

Ćvintýri 3. flokks lokiđ!

Þriðji flokkur Selfoss lék í gærkvöld í undanúrslitum gegn sterku lið Fram hér heima á Selfossi. Okkar menn gáfu sig alla í leikinn en því miður þá dugði það ekki til að þessu sinni. Leiknum lauk með 16 - 19 sigri gestanna í Fram eftir að hálfleikstölur voru 4 - 7.

26.4.2011 | Handbolti

Ofur-heimaleikjadagur í Vallaskóla

Úrslitakeppni yngri flokka stendur sem hæst þessa dagana. Á morgun, miðvikudag, fara fram þrír stórleikir í Vallaskóla en allir leikirnir eru í undanúrslitum.
Miðvikudagur 27. apríl - 18:00 - Selfoss - Grótta (4. flokkur karla A-lið)
Miðvikudagur 27. apríl - 19:15 - Selfoss - Grótta (4. flokkur kvenna B-lið)
Miðvikudagur 27. apríl - 20:30 - Selfoss - Valur (4. flokkur kvenna A-lið)

26.4.2011 | Knattspyrna

Myndatökumađur óskast

Knattspyrnudeild Selfoss óskar eftir einstaklingi sem hefur áhuga á myndbandsupptökum og jafnvel vídeóklippingum. Meistaraflokkur þarf einhvern til að taka upp leiki meðSelfossliðinu í sumar og eins þarf einhvern til að taka viðtöl fyrir fotbolti.net. (Þetta þarf ekki að vera sami maðurinn). Sá sem tekur þetta að sér þarf ekki að kunna að leikgreina, en getur, ef áhugi er fyrir hendi lært það í samvinnu við fagmenn. Starfið er ekki launað, en ýmisleg fríðindi fylgja því. Áhugasamir hafið samband við Tómas í síma 699-0660 eða Sævar í síma 863-8299. Eins er hægt að senda okkur mail í tommi@talnet.is eða korinn@simnet.is. Þeir sem þekkja einhverja áhugasama geta líka bent okkur á þá eða þeim á okkur.

 

21.4.2011 | Handboltaakademía

2. flokkur kominn í undanúrslit

2. flokkur sótti Framara heim í Safamýri í gærkvöld í 8-liða úrslitum. Heimamenn eru þar erfiðir heim að sækja og var því búist við hörkuleik. Það var svo sannarlega raunin sem endaði á þann veg að Selfoss hafði sigur 35 - 27. Í hálfleik leiddu okkar menn 16 - 15.

20.4.2011 | Handbolti

Tímar fyrir undanúrslitaleiki yngri flokka - Takiđ dagsetningarnar strax frá!

Þá eru komnar tímasetningar fyrir alla fjóra leiki Selfoss í undanúrslitum Íslandsmóts yngri flokka sem fara fram á heimavelli. Alls fara fjórir undanúrslitaleikir fram á Selfossi og er því ekki annað hægt en að taka dagsetningarnar frá tímanlega og stefna að því að mæta. Þetta eru seinustu heimaleikir Selfoss í öllum flokkum í vetur en með sigri komast liðin í úrslitaleiki sem fara fram á hlutlausum velli.
Mánudagur    25. apríl - 19:00 - Selfoss - Fram (3. flokkur karla)
Miðvikudagur 27. apríl - 18:00 - Selfoss - Grótta (4. flokkur karla A-lið)
Miðvikudagur 27. apríl - 19:15 - Selfoss - Grótta (4. flokkur kvenna B-lið)
Miðvikudagur 27. apríl - 20:30 - Selfoss - Valur (4. flokkur kvenna A-lið)

20.4.2011 | Knattspyrna

3-1 tap gegn Keflavík

Keflavík vann Selfoss 3-1 lokaleik liðanna í Lengjubikarnum þegar liðin áttust við í Reykjaneshöllinni á laugardaginn. Selfyssingar byrjuðu betur í leiknum og náðu yfirhöndinni strax á tíundu mínútu þegar Ingþór Jóhann sendi góða sendingu inn fyrir vörn Keflavíkur þar sem Ingi Rafn Ingibergsson potaði boltanum laglega yfir marklínuna. Eftir markið skiptust liðin á að sækja.

19.4.2011 | Handbolti

4. flokkur B endađi tímabiliđ međ tveimur sigrum

B-liðið í 4. flokki karla lauk keppni í gær með tveimur leikjum gegn ÍBV. Selfoss náði að sigra báða leikina. Fyrri leikurinn var frekar ójafn en þar leiddi Selfoss  17-6 í  hálfleik og vann svo 32-16. Síðari leikurinn var öllu jafnari en þar vann Selfoss 25-23 eftir að hafa leitt með fjórum mörkum í hállfeik.

19.4.2011 | Knattspyrna

7-0 sigur á Sindra

Daginn eftir jafnteflið við Fjölni voru stelpurnar í meistaraflokki Selfoss mættar aftur á völlinn og tóku á móti Sindra frá Höfn í Hornafirði. Þessi leikur hafði verið flautaður af vegna veðurs nokkrum dögum áður. En þá var Selfoss komið í 6-0 eftir 25 mínútur en ekkert vit var að spila fótbolta vegna veðursins. Leikurinn nú var þó ekkert mikið jafnari þrátt fyrir betra veður og endaði hann 7-0 fyrir Selfoss.

19.4.2011 | Knattspyrna

1-1 jafntefli viđ Fjölni

Selfyssingar kepptu á föstudag við Fjölni í Lengjubikar kvenna og var leikið í Egilshöll. Leikurinn sem endaði 1-1 var mjög dapur af hálfu Selfyssinga og komust þær einhvernvegin aldrei í takt við leikinn, langt á milli varnar og sóknar, engin þéttleiki í vörn og sóknarleikur hugmyndasnauður.

16.4.2011 | Handboltaakademía

3. flokkur kominn í undanúrslit!

3. flokkur Selfoss í handknattleik er kominn í undanúrslit eftir sigur í dag á Þrótti, 28 - 22. Í hálfleik hafði Selfoss yfir 13 - 10. Selfyssingar náðu sér seint og illa í gang sóknarlega og voru t.a.m. aðeins búnir að skora eitt mark eftir 10 mínútna leik. Vörn og markvarsla var hins vegar í afar góðum málum allan leikinn og lagði fyrst fremst grunninn að sigrinum.

15.4.2011 | Handboltaakademía

3.flokkur A liđ leikur á morgun í 8-liđa úrslitunum

Á morgun í Vallaskóla Selfossi fer fram leikur við Þróttara úr Reykjavík og er hann liður í 8-liða úrslitum HSÍ. Leikurinn hefst kl. 14:00 og hvetur heimasíðan alla sem gaman hafa af góðum handbolta að mæta og berja okkar menn augum. Sigur er miði í undanúrslit, leggjumst því öll á eitt og styðjum okkar lið. Þróttarar unnu 2.deildina sannfærandi og munu eflaust selja sig dýrt.

15.4.2011 | Fimleikar

Íslandsmótiđ í hópfimleikum í beinni útsendingu á RUV í dag kl. 17:30

SelfossHM1 bikarmot2011Úrslitin á Íslandsmótinu í hópfimleikum verða sýnd beint á RUV í dag kl. 17:30. Lið meistaraflokks Selfoss er á meðal keppenda og eiga þær keppnisröðina; gólfæfingar, dýnustökk og enda á trampólíni. Þær eru jafnframt fyrsta liðið til að hefja keppni. Við hvetjum að sjálfsöðgu alla til að fjölmenna í íþróttahús Gerplu í Kópavogi og láta í sér heyra. Við hvetjum jafnframt alla þá sem ekki komast til að fylgjast með þeim í sjónvarpinu í dag. Búast má við hörkukeppni sem mun ráðast á síðustu metrunum. ÁFRAM SELFOSS!!

15.4.2011 | Handboltaakademía

Selfoss-2 tapađi fyrir Val í umspilinu

Strákarnir í Selfoss-2 í 3. flokki, einnig þekktir sem 94-liðið, sóttu Valsmenn heim að Hlíðarenda í gærkvöld. Ljóst var að leikurinn yrði erfiður þar sem Valsmenn hafa leikið í 1. deild í vetur og staðið sig vel í erfiðri deild en okkar menn í þeirri neðri. Lokatölur urðu 36:24 eftir að Valsmenn leiddu 20:8 í hálfleik.

14.4.2011 | Handbolti

4. flokkur karla í undanúrslit

Strákarnir í 4. flokki léku í gær gegn Fjölni í 8-liða úrslitum Íslandsmóts 4. flokks. Leikurinn varð aldrei spennandi en Selfyssingar unnu leikinn 36-17 eftir að hafa komist í 17-1 forystu eftir um 20 mínútna leik.

14.4.2011 | Knattspyrna

KSÍ međ frćđslufund fyrir ađildarfélög

KSI_logoKSÍ stendur fyrir fræðslufundi laugardaginn 16. apríl kl. 11.00 þar sem farið verður yfir ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir stjórnendur aðildarfélaga KSÍ. Fræðslufundurinn er opinn öllum þeim er áhuga hafa á að kynna sér betur ýmis málefni er snúa að daglegum rekstri knattspyrnufélaga, samskiptum við KSÍ og fleira. Fyrst og fremst er þó horft til þeirra aðila sem nýlega hafa hafið störf innan aðildarfélaga, fulltrúa í barna- og unglingaráðum og stjórnenda sem vilja kynna sér ákveðin málefni betur.

13.4.2011 | Handbolti

Tímasetningar á úrslitakeppni yngri flokka

Við lofuðum tímasetningum á leikjunum í úrslitakeppninni hjá yngri flokkum í handbolta þegar þær væru komnar á hreint og stöndum auðvitað við það. 2. flokkur karla byrjaði á því að vinna leik sinn í gær og strákarnir komnir áfram í keppninni. Þá eru fimm lið enn eftir í 3. og 4. flokki karla og 4. flokki kvenna. Fjögur liðanna leika á heimavelli og því tilvalið fyrir fólk til að fjölmenna á leikina enda hægt að lofa mikilli skemmtun.

13.4.2011 | Knattspyrna

Olís, ÓB og knattspyrnudeildin í samstarf

Knattspyrnudeildin skrifaði í dag undir samning við Olís og ÓB um tvennukort, bensínkort sem býður upp á sérkjör fyrir félagsmenn knattspyrnudeildarinnar. Tvennukortið er staðgreiðslukort sem tryggir góðan afslátt af eldsneyti, vörum og þjónustu hjá Olís og ÓB.

13.4.2011 | Knattspyrna

3-0 sigur á Íslandsmeisturunum.

Selfyssingar gerðu sér lítið fyrir og unnu ríkjandi Íslandsmeistara úr Breiðablik 3-0 í Lengjubikarnum í gærkvöldi. Selfyssingar voru betriaðilinn í leiknum, sköpuðu sér fleiri og hættulegri færi. Blikar voru þó meira með boltann, en þéttur varnarleikur Selfyssinga gaf þeim fá marktækifæri og fyrir aftan vörnina var Jóhann Ólafur öryggið uppmálað.

12.4.2011 | Handboltaakademía

2. flokkur vann UMFA og mćtir Fram

Í kvöld vann Selfoss í 2.flokki lið UMFA 40 - 33. Staðan í hálfleik var 19 - 15 fyrir heimamenn í Selfoss. Selfoss náði sér ekki almennilega á strik varnarlega og markvarslan hefði einnig mátt vera ögn skárri að mati ritara. Þá kom ekkert út úr línuspilinu en þeir leikmenn er það leika fengu aðeins eitt færi allan leikinn. Margt jákvætt og gott var þó í leik okkar manna og er síðuritari alls ekki svartsýnn á framhaldið.

12.4.2011 | Handboltaakademía

3.flokkur í öđru sćti - tvisvar!

Bæði lið 3.flokks enduðu deildarkeppnina í 2. sæti. 93-liðið í 1.deild og 94-liðið í 2.deild. Bæði lið hafa staðið sig vel og eiga leik nú í vikunni í úrslitakeppninni. 93-liðið tapaði gegn FH síðastliðinn föstudag og missti þannig af deildarmeistaratitlinum. Lokatölur 27 - 22.

12.4.2011 | Knattspyrna

Selfoss - Breiđablik í Kórnum kl. 18.00 í dag

Búið er að færa leik Selfoss og Breiðabliks í Kórinn Kópavogi og hefst leikurinn kl. 18.00 í dag þriðjudag. Leikurinn er næst síðasti leikur Selfyssinga í Lengjubikarnum, en lokaleikurinn er gegn Keflavík kl. 12.00 á laugardaginn í Reykjaneshöllinni.

12.4.2011 | Knattspyrna

Gumma og Guđrún komnar í lokakeppni EM međ íslenska u-17 landsliđinu

Íslenska u-17 áralandsliðið í knattspyrnu er komið í lokakeppni Evrópumótsins eftir tvo frækna sigra á Englandi og Póllandi, en keppnin er haldin í Póllandi. Selfyssingarnir Guðmunda Brynja Óladóttir og Guðrún Arnardóttir leika með liðinu og verður heimasíða Umf. Selfoss að fá að byrja á að óska þeim til hamingju með þennan frábæra árangur.

 

12.4.2011 | Nýjustu fréttir

Ísland á iđi - Hjólađ í vinnuna

ÍSÍ_merkiÍþrótta- og Ólympíusamband Íslands vekur athygli á að dagana 4 - 24. maí n.k. mun fræðslu- og hvatningarverkefni ÍSÍ, Ísland á iði, standa fyrir vinnustaðakeppninni Hjólað í vinnuna í níunda sinn. Meginmarkmið Hjólað í vinnuna er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, hagkvæmum og umhverfisvænum samgöngumáta.

12.4.2011 | Handbolti

Úrslitakeppnin ađ hefjast hjá yngri flokkunum!

Úrslitakeppni yngri flokkanna í handboltanum er nú að hefjast en þar verða lið frá Selfoss í öllum flokkum í eldlínunni. Von er á mjög skemmtilegum leikjum, en 2., 3. og 4. flokkur karla sem og 4. flokkur kvenna eiga allir heimaleiki á næstu dögum. Dagskráin næstu daga er sem hér segir........

11.4.2011 | Knattspyrna

Íslandsmeistararnir mćta Selfyssingum á gervigrasinu

Selfoss og Breiðablik mætast á Selfossvelli næst komandi þriðjudag kl. 20.00. Leikurinn er 6. leikur Selfyssinga í Lengjubikarnum og hafa þeir fengið 5 stig úr þeim, á meðan Íslandsmeistarar Breiðabliks hafa leikið einum leik meira og hafa halað inn 10 stig.

8.4.2011 | Júdó

Ţormóđur og Axel í heimsókn hjá júdódeild

judoheimsokn-stelpurJudodeild UMFS fékk góða gesti í heimsókn í vikunni sem leið. Nýkrýndur íslandsmeistari Þormóður Jónsson og Axel I. Jónsson mættu þriðjudag og fimmtudag og stýrðu æfingum í unglinga- og fullorðinsflokki. Var þeim vel tekið og höfðu mikla visu fram að færa. Tæknin er mikilvæg í júdó og mikilvægt að fá tæknikennslu hjá þeim keppendum sem eru stóran hluta ársins erlendis við æfingar og keppni. Ljóst er að reynt verður að gera þetta oftar.

8.4.2011 | Handboltaakademía

Selfoss-2 vann HK-2 í 3. flokki

Okkar menn í 3. flokki B sóttu HK-inga heim í Digranesið og höfðu þar sigur 25 - 23. Í hálfleik leiddu heimamenn 13 - 10, en okkar menn komu til baka í síðari hálfleik.

7.4.2011 | Knattspyrna

Selfoss sigrađi ÍBV 3-1 í 4. flokki kvenna

Stelpurnar í 4. flokki spiluðu sinn annan leik í Faxaflóamótinu á móti ÍBV á Selfossvelli sl. sunnudag. Selfoss stelpur byrjuðu leikinn betur og fór leikurinn að mestu fram á vallarhelmingi ÍBV. Selfoss náði ekki að nýta færin sín en ÍBV komst yfir í leiknum eftir sitt fyrsta færi um miðjan fyrri hálfleik. Staðan var því 1-0 fyrir ÍBV í hálfleik. Inn í seinni hálfleikinn komu mun ákveðnari Selfoss stelpur sem létu boltann ganga vel á milli sín og kláruðu leikinn með 2 mörkum frá Sigrúnu Erlu og 1 frá Kareni Maríu. Lokatölur urðu því 3:1 fyrir Selfoss.

6.4.2011 | Handboltaakademía

Selfoss-2 tapađi í sérstökum leik

Selfoss-2 í 3.flokki tapaði gegn Þrótti í sérstökum handboltaleik í gærkvöldier leikinn var á þjóðarleikvangi okkar Íslendingar, Laugardalshöllinni. Tapaði liðið 32 - 16 eftir að hafa verið undir 15 - 8 í hálfleik.

5.4.2011 | Nýjustu fréttir

Ađalfundur taekwondodeildar í kvöld

Lógó SelfossAðalfundur taekwondodeildar Umf. Selfoss verður haldinn í Tíbrá í kvöld þriðjudaginn 5. apríl kl. 19:00. Á dagskrá eru venjulegaðalfundarstörf. Foreldrar, iðkendur og áhugamenneru hvattir til að mæta. Stjórn taekwondodeildar.

5.4.2011 | Knattspyrna

Knattspyrnudeild gerir samning viđ fjór efnilega leikmenn

2. flokkur undirskriftKnattspyrnudeild Umf. Selfoss gerði í síðustu viku samning við fjóra efnilega leikmenn 2. flokks félagsins. Undirskriftin fór fram á Kaffi Krús á Selfossi. Strákarnir, sem allir skrifuðu undir þriggja ára samning, eru: Markús Vernharðsson, Þorsteinn Daníel Þorsteinsson, Magnús Ingi Einarsson og Ingvi Rafn Óskarsson. Þessir efnilegu strákar hafa verið lykilleikmenn í 2. flokki og eins hafa þeir, ásamt þremur öðrum 2. flokks strákum verið að fá tækifæri í æfingaleikjum hjá meistaraflokki Selfoss undanfarið. Það verður  gaman að fylgjast með þessum strákum í framtíðinni, ef þeir halda áfram að bæta sig eins og þeir hafa gert.

5.4.2011 | Handboltaakademía

3.flokkur lá fyrir Valsmönnum

Selfoss-1 í 3.flokki sótti Valsara heim að Hlíðarenda í gærkvöld. Vitað mál var að um erfiðan leik yrði að ræða þar Valsmenn hafa öflugt lið og sterka einstaklinga. Fór það svo að Valur vann 31 - 27 eftir að hafa haft örugga forustu í hálfleik 21 -11.

5.4.2011 | Knattspyrna

Selfoss vann ÍA 7-1

Strákarnir í 3. flokk eru á mikilli siglingu í Faxaflóamótinu. Í síðasta leik unnu þeir Skagamenn 7-1 á Akranesi. Eftir góða sigra á Grindavík, Njarðvík og sameinuðu liði Snæfellsnes og Skallagríms sitja Selfyssingar á toppi riðilsins með 12 stig og markatöluna 23-3. Næsti leikur hjá strákunum er gegn Aftureldingu og fer hann fram á sunnudaginn 10. apríl kl 11.00 á gervigrasinu á Selfossi.

4.4.2011 | Handbolti

4. flokkur sigrađi Aftueldingu

A-liðið í 4. flokki karla lék sinn seinasta deildarleik á þessu tímabili gegn Aftueldingu í gær. Selfoss lék vel heilt yfir í leiknum og vann að lokum 31-20 sigur. Þetta er áttundi sigurleikur Selfoss í jafn mörgum leikjum á heimavelli í vetur. Úrslitakeppnin tekur við hjá þessu liði þar sem allt getur gerst en Selfoss drengirnir hafa unnið 6 af seinustu 7 leikjum og fara inn í hana í fínu formi.

4.4.2011 | Júdó

Ţór međ brons á Íslandsmeistarmótinu í júdó

Íslandsmeistaramótið í júdó var haldið 2. apríl í Laugardalshöllinni. Margt var um manninn og strax ljóst að þarna færi fram hörku mót þar sem allir bestu júdómenn landsins voru mættir til leiks. Þar á meðal voru þrír keppendur frá Júdódeild Umf. Selfoss. Á mótið komu einnig fjórir jiu-jitsu keppendur með Gunnar Nelson í fararbroddi.

3.4.2011 | Handboltaakademía

Glćsilegt Landsbankamóti

handboltakallUm síðastliðan helgi fór fram hið árlega Landsbankamót í handbolta á Seflossi . Nú var í fyrsta skiptið keppt í 7. flokki drengja og stúlkna 10 ára og yngri,  en áður hefður verið leikið í 6. eða 5.flokki.  Handknattleiksdeild Umf. Selfoss heldur mótið sem er hluti af Íslandsmeistaramótinu.

1.4.2011 | Handbolti

Selfoss falliđ úr N1 deildinni

Selfoss tapaði í gær fyrir Val 26:19 í N1 deildinni í handbolta í gær. Á sama tíma vann Afturelding Akureyri fyrir norðan. Þar með er ljóst að Selfoss mun ekki spila í deild þeirra bestu á næstu leiktíð.

31.3.2011 | Fimleikar

Íslandsmótiđ í hópfimleikum á laugardaginn

Fimleikadeild Umf. Selfoss vill koma á framfæri upplýsingum um Íslandsmótið í hópfimleikum sem fer fram í aprílmánuði nk. Framundan er spennandi keppni í úrvalsdeild á tvískiptu Íslandsmóti. Keppt verður í 1. og 2. og meistaraflokki og eru fjórir hópar frá fimleikadeild Umf. Selfoss skráðir til keppni. Selfoss HM1bikarm 2011

Laugardagurinn 2. apríl nk. verður undankeppni Íslandsmótsins í íþróttahúsi Gróttu á Seltjarnarnesi og hefst keppni í 1. og 2. flokki kl. 11.10. Á þann hluta mótsins mæta til keppni Selfoss mix og HM3, sem keppa í 2. flokki, og HM2 sem keppir í 1. flokki.  Kl. 15.00 sama dag hefst keppni í meistaraflokki og þar mætir HM1 til keppni. Þessi hluti mótsins er annað af þremur úrtökumótum fyrir Norðurlandamót seniora sem fram fer í Noregi í nóvember nk. Meistaraflokkur Selfoss stefnir á að ná inn á það mót sem annað af tveimur félagsliðum sem keppa mun fyrir Íslands hönd. Hópurinn náði áfanga að því markmiði á bikarmótinu 19. mars sl. þegar liðið lenti í 2. sæti í heildareinkunn á eftir Gerplu.

31.3.2011 | Handboltaakademía

Selfoss-2 vann UMFA-2 örugglega

Okkar menn í Selfoss-2 í 3.floki (94-liðið) vann UMFA-2 heima í gær 38 - 29 eftir að hafa leitt í hálfleik 19 - 16. Selfyssingar voru lengi í gang en gerðu marga góða hluti þegar leið á leikinn. Vörn liðsins var góð í síðari hálfleik og markvarsla Sölva mjög góð allan leikinn.

31.3.2011 | Handboltaakademía

Selfoss-1 gerđi jafntefli viđ UMFA í hörkuleik

Selfoss-1 (93-liðið) gerði í gærkvöld jafntefli við UMFA hér heima á Selfossi. Hvort lið skoraði 27 mörk en Selfoss leiddi með einu marki í hálfleik. 13 - 12. Lið UMFA er skipað hávöxnum leikmönnum er leika góða og þétta vörn og áttu okkar menn erfitt uppdráttar gegn henni í gær. Sér í lagi saknaði liðið Bjarnar Gíslasonar í gærkvöld.

29.3.2011 | Handbolti

Frábćr karakter gerđi gćfumuninn í jafntefli gegn FH

Selfyssingar sýndu mikinn karakter í kvöld þegar þeir sóttu jafntefli 30:30 gegn FH í N1 deildinni í handbolta. Þetta var fjórða jafntefli Selfyssinga í röð á heimavelli. Frábær mæting var á leikinn og var stemmningin til fyrirmyndar. FH-ingar hafa verið á fleygiferð í síðustu leikjum en voru mjög sáttir með stigið í Vallaskóla í kvöld.

29.3.2011 | Handboltaakademía

Hanna stóđ sig vel međ unglingalandsliđinu.

Kvennalandslið Íslands skipað leikmönnum 16 ára og yngri tók þátt í undankeppni fyrir Evrópumeistaramótið í handbolta um síðastliðna helgi. Líðið var grátlega nálægt því að tryggja sér þátttöku en var að láta sér lynda 3.sæti á markamun. Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir fyrirliði hins sigursæla 4.fl. kvenna hjá Selfoss var í landsliðinu og stóð vel fyrir sínu. Annar Selfyssingur Kristrún Steinþórsdóttir lék einnig með landsliðinu en hún er í láni hjá Fylki í vetur.

28.3.2011 | Handbolti

4. flokkur lék um helgina

Selfyssingar léku við Gróttu á Seltjarnarnesi í 4. flokki karla um helgina bæði í A og B liðum. Leikirnir voru afar mismunandi.

28.3.2011 | Sund

Ólöf Eir međ besta afrekiđ á Selfossmeistamótinu

Selfossmeistaramótið í sundi fór fram sunnudaginn 27. mars s.l. Þetta mót var með þeim stærri sem haldin hafa verið á Selfossi nú hin seinni ár en keppendur voru alls 63, sem skiptist í 42 keppendur 10 ára og yngri og 21 keppanda 11 ára og eldri. Stungur í laugina voru u.þ.b. 200.
Úrslit mótsins eru komin á úrslitasíðuna hjá okkur en besta afrek mótsins vann Ólöf Eir Hoffritz sem hlaut 523 FINA-stig fyrir að synda 100m skriðsund á tímanum 1:10,81.

28.3.2011 | Knattspyrna

Ibrahima skorađi í fyrsta leik međ Selfossi

Selfyssingar léku á laugardaginn gegn Gróttu í Lengjubikarnum. Leikurinn endaði 1-1, þrátt fyrir mikla yfirburði Selfyssinga. Senegalanir Ibrahim og Babakar léku sinn fyrsta leik fyrir Selfoss og stóðu sig mjög vel.

28.3.2011 | Handbolti

Fjögurra marka tap fyrir Fram

Selfyssingar töpuðu s.l. fimmtudag með 4 marka mun 35:31 í Safamýrinni á móti Fram í N1 deild karla í handbolta. Lokatölur gefa þó ekki rétta mynd af leiknum því hann var í járnum síðustu mínúturnar en Fram skoraði 3 síðustu mörk leiksins þegar sigurinn var í höfn.

27.3.2011 | Handboltaakademía

3.flokkur A liđ vann HK

Selfoss-1 í 3.flokki vann HK fyrr í dag með fimm mörkum. 33 - 28 en heimamenn í Selfossi leiddu í hálfleik 17 - 13.

27.3.2011 | Handboltaakademía

3.flokkur B vann A liđ Ţórsara

Selfoss-2 í 3.flokki vann A lið Þórs öðru sinni í tímabilinu í fjörugum leik í gær á Selfossi. Lokatölur 29-24 en selfoss leiddi í hálfleik 15-14. Mestur varð munurinn átta mörk.

24.3.2011 | Handboltaakademía

Sigur hjá 94 liđinu

Selfyssingar í 94-liðinu unnu í gær HK2 hér heima á Selfossi 46 - 26 eftir að hafa haft yfir 26 - 15 í hálfleik. Aldrei var spurning hvoru megin sigurinn endaði.

24.3.2011 | Handboltaakademía

Fram - Selfoss í kvöld

Selfoss leikur í kvöld útileik við Fram í íþróttahúsinu við Safamýri í Reykjavík. Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir okkar menn í baráttunni í N1-deildinni. Leikurinn hefst kl 19:30 og við hvetjum alla til að fjölmenna á leikinn, fyrir þá sem heima sitja verður leikurinn í beinni útsendingu á www.sporttv.is

22.3.2011 | Handboltaakademía

Tap í síđasta deildarleik 2.flokks

Fram úr Reykjavík sótti okkar menn heim um helgina og vann 38-41 eftir að hvort lið hafði skorað 18 mörk eftir fyrri hálfleik, Varnarlega náðu okkar menn sér aldrei á strik í leiknum og því fór sem fór,

22.3.2011 | Handboltaakademía

Selfoss-2 vann Fjölni

Selfoss-2 í 3.flokki vann á sunnudaginn síðastliðinn Fjölni á útivelli 25-29 eftir að staðan hafi verið 14-16 fyrir okkar menn í hálfleik. Léku okkar strákar ekki nægjanlega vel lengstum í leiknum en síðustu 20 mínútur leiksins voru afar góðar og vann Selfoss þær mínútur 10-4.

21.3.2011 | Júdó

Ţrír Íslandsmeistarar í júdó

Íslandsmótið í júdó 11-14 ára var haldið á Akureyri laugardaginn 19. mars. Selfyssingar stóðu vel fyrir sínu og komu heim með þrjá Íslandsmeistaratitla og einn bronspening. Þessi árangur iðkenda úr júdódeild Umf. Selfoss verður að teljast mjög góður og eiga strákarnir hrós skilið fyrir góða framkomu og árangur.

21.3.2011 | Kraftlyftingar

Rósa bćtti sinn persónulega árangur á Íslandsmeistaramótinu í kraftlyftingum

rosa_2010Laugardaginn 12. mars síðastliðinn hélt Kraftlyftingadeild Massa í Njarðvík Íslandsmeistaramótið í kraftlyftingum. Vel var að mótinu staðið og tóku 30 keppendur frá 7 aðildarfélögum Kraftlyftingasambands Íslands tátt. Rósa Birgisdóttir tók keppti fyrir hönd UMFS og stóð sig með miklum ágætum. Hún keppti í +84 KG flokki og lyfti 125 kg í hnébeygju, 67,5 kg í bekkpressu og 165 kg í réttstöðulyftu. Rósa bætti sinn persónulega árangur í öllum lyftunum.

21.3.2011 | Knattspyrna

6-1 sigur á ÍR

Stelpurnar í Selfoss léku sinn fyrsta leik í Lengjubikarnum í dag er þær mættu ÍR. Leikurinn var í meira lagi ójafn og unnu Selfyssingar Íþróttafélag Reykjavíkur 6-1. Selfyssingar byrjuðu mun betur og kom t.d. fyrsta sókn ÍR eftir 20 mínútur. Þrátt fyrir það nýttu Selfyssingar sér ekki yfirburðina, heldur létu ÍR jafna með þeirra fyrsta skoti, en staðan var þó 2-1 í hálfleik. Selfyssingar áttu svo nokkrar mjög góðar sóknir í leiknum og unnu að lokum 6-1.

20.3.2011 | Fimleikar

Selfoss-stúlkur sigruđu Evrópumeistara Gerplu í gólfćfingum á bikarmóti FSÍ

Stelpurnar í mfl. Selfoss í hópfimleikum keyrðu gott Bikarmót á laugardaginn þegar þær gerðu sér lítið fyrir og sigruðu lið Gerplu í gólfæfingum. Þær hafa æft stíft frá Evrópumótinu í Svíþjóð og eru þær æfingar án efa að skila góðum árangri stúlknanna í hús. Á meðfylgjandi mynd má sjá stúlkurnar í pressu sem er erfiðleikaæfing inn í dansinum. Stúlkurnar  enduðu í öðru sæti samanlagt af fimm liðum og voru kátar með úrslitin.  Heildarúrslit mótsins má sjá hér á síðunni.

20.3.2011 | Handbolti

Stórsigur í 4. flokki B

B-lið Selfoss í 4. flokki karla mætti ÍR-ingum í dag og unnu þar stórsigur 44-24. Selfyssingar voru í miklu stuði og flest allt gekk upp allan leikinn. Selfyssingar voru 24-10 yfir í hálfleik eftir að hafa komist 6-0 yfir í byrjun leiks.

20.3.2011 | Sund

Ólöf Eir Hoffritz sundmađur HSK 2010

Sundnefnd HSK valdi Ólöfu Eir Hoffritz úr röðum Sunddeildar Selfoss, sundmann ársins 2010. Ólöf Eir er vel að þessum titli kominn en val íþróttamanna ársins í einstökum greinum hjá HSK var tilkynnt á héraðsþingi þess á Hellu 13. mars s.l.

Ólöf Eir æfði vel á árinu og náði meðal annars þeim árangri að synda 50 metra flugsund á 36,16 sek. og 100 metra fjórsund á tímanum 1:22,34. Ólöf Eir synti í þremur greinum á Aldursflokkameistaramóti Íslands. Á mótum HSK vann hún allar þær greinar sem hún tók þátt í á árinu

19.3.2011 | Fimleikar

Úrslit á bikarmóti FSÍ í hópfimleikum 2011

Bikarmót fimleikasambands Íslands var haldið á Selfossi helgina 18. og 19.mars 2011.  Á föstudaginn var keppt í 1.flokki og 2.flokki og urðu Gerpla bikarmeistarar í 2.flokki kvk, Selfoss HM3 hafnaði í 3.sæti. Í 2.flokki mix varð Selfoss bikarmeistari í 2.flokki mixliða og í 2.sæti í 1.flokki en þar varð lið Stjörnunnar Bikarmeistari. 
Alls mættu fimm kvennalið til keppni í meistaraflokki og varð Gerpla Bikarmeistari í mfl. kvenna og karla.  Selfoss HM1 varð í 2.sæti og lið Gerplu 2 varð í þriðja sæti. 
Meðfylgjandi eru heildarúrslit.

19.3.2011 | Sund

Ađalfundur Sunddeildar

Aðalfundur Sunddeildar Umf. Selfoss verður haldinn í Tíbrá fimmtudaginn 31. mars n.k. kl. 19:00.

Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.

Foreldrar, iðkendur og sundáhugamenn eru hvattir til að mæta.

Stjórn Sunddeildar

19.3.2011 | Handbolti

Flottur sigur hjá 4. flokki

4. flokkur karla mætti KA í gær í deildinni. Okkar menn voru gífurlega vel stemmdir þrátt fyrir að leikmenn vantaði í liðið. Selfyssingar kláruðu leikinn strax á upphafsmínútunum og lauk leiknum með 12 marka sigri Selfoss, 32-20 en Selfoss var 18-8 yfir í hálfleik.

18.3.2011 | Handbolti

Sprćkir Selfyssingar náđu jafntefli gegn toppliđi Akureyrar

Selfyssingar mega vel vera svekktir með að gera jafntefli 31:31 gegn Akureyri í N1 deild karla í handknattleik, eftir að hafa verið rændir sigrinum á lokasekúndum leiksins af mistækum dómurum leiksins. Leikurinn fór fram í Vallaskóla í gærkvöldi.

17.3.2011 | Handboltaakademía

Selfoss-1 vann Stjörnuna

Strákarnir í 3.flokki A liði halda áfram að standa sig með prýði. Í gærkvöld unnu þeir Stjörnumenn er sóttu okkar drengi heim. Endaði leikurinn 32-29 eftir að gestirnir úr Garðabæ leiddu í hálfleik 10-17. Því er óhætt að segja að kúvending hafi orðið á leik okkar manna í síðari hálfleik.

17.3.2011 | Handboltaakademía

94-liđiđ tapađi í Heimaey

Selfoss-2 í 3.flokki atti kappi um síðustu helgi við heimamenn í ÍBV. Eftir jafnan fyrri hálfleik þurftu okkar menn að játa sigraða með átta marka mun. Liðið á þó enn möguleika á að komast í úrslitakeppnina en deildin er afar jöfn og spennandi.

15.3.2011 | Knattspyrna

Olís og ÓB í frekara samstarf viđ knattspyrnudeildina

Knattspyrnudeildin skrifaði í dag undir samning við Olís og ÓB um tvennukort, bensínkort sem býður upp á sérkjör fyrir félagsmenn knattspyrnudeildarinnar. Tvennukortið er staðgreiðslukort sem tryggir góðan afslátt af eldsneyti, vörum og þjónustu hjá Olís og ÓB.

15.3.2011 | Knattspyrna

Tuttugu og fjórir á dómaranámskeiđi knattspyrnudeildar og KSÍ

Rétt í þessu var dómaranámskeiði KSÍ að ljúka í fræðslusalnum í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi. Alls sátu 24 einstaklingar á aldrinum 14 til 29 ára námskeiðið, þrjár stúlkur og tuttugu og einn strákur. Þátttakendur fengu námsefni með sér heim og verður síðan próf fimmtudaginn 24. mars. Þátttakendur á námskeiðinu fá klárlega betri leikskilning og frekari innsýn í knattspyrnuna, auk þess að geta unnið sér inn ágætis aukapening með dómgæslunni. Leiðbeinandi á námskeiðinu var Magnús Már Jónsson.  

15.3.2011 | Fimleikar

Fimleikar falla niđur fimmtudaginn 17. mars

Allar fimleikaæfingar falla niður fimmtudaginn 17. mars vegna árshátíðar Sunnulækjarskóla en þá er íþróttasalurinn undirlagður allan daginn og fram á kvöld.

15.3.2011 | Handboltaakademía

2. flokkur vann ÍR

Okkar  menn í 2. flokki unnu í gærkvöld lið ÍR úr Breiðholtinu. Lokatölur voru 29-26 eftir að Selfoss leiddi 17-11 í leikhléi. ÍR-ingar náðu að minnka muninn í síðari hálfleik og komust næst heimamönnum í stöðunni 20-19 en þá skiptu okkar menn aftur um gír og náðu að knýja fram sigur.

14.3.2011 | Júdó

Góđur árangur á fyrsta hluta Íslandsmeistaramótsins í júdó

Um helgina var haldið fyrsti hluti Íslandsmeistaramótsins í júdó. Það voru aldurshóparnir 15-16 ára (U17) og 15-19 ára (U20) sem kepptu og eins kepptu sömu aðilar í sveitakeppni. Mótið fór fram í júdósalnum í Ármula í Reykavík.

14.3.2011 | Sund

Selfosskrakkar á Vormóti Fjölnis í sundi

sundmot_fjonis_2011Vormót Fjölnis var haldið helgina 5.-6. mars s.l. Mótið var haldið í tvískiptri Laugardalslauginni sem þýðir að keppendur keppa í 25 metra laug ásamt því að hafa aðra 25m braut til þess að synda sig niður. Mótið var fyrir keppendur 14 ára og yngri. Fimm krakkar frá Selfossi tóku þátt í mótinu og stóðu sig vel.

11.3.2011 | Fimleikar

Toppliđ í hópfimleikum keppa á Selfossi

Bikarmót FSÍ í hópfimleikum 18.-19. mars nk. í Iðu
Fimleikadeild Umf. Selfoss hvetur Sunnlendinga til að fjölmenna á áhorfendapallana í Iðu helgina 18.-19. mars nk. Keppni í meistaraflokki hefst kl. 13.55 laugardaginn 19. mars. Meðal keppenda verða Evrópumeistarar í hópfimleikum 2010, meistaraflokkur Gerplu. Auk þeirra keppa meistaraflokkar Selfoss, Stjörnunnar og Keflavíkur og annað kvennalið frá Gerplu.

9.3.2011 | Knattspyrna

Unglingadómaranámskeiđ í Iđu 15. mars

KSI_logoUnglingadómaranámskeið verður haldið í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi þriðjudaginn 15. mars. Námskeiðið er haldið af KSÍ en í samvinnu við knattspyrnudeild Umf. Selfoss. Námskeiðið hefst kl. 17:30 og stendur í um tvær og hálfa klukkustund. Námskeiðið er ókeypis.

8.3.2011 | Handboltaakademía

93-liđiđ vann Fram á útivelli

Selfoss-1 í 3. flokki vann topplið deildarinnar, Fram, í gærkvöld 24-22 eftir að okkar menn leiddu 10-9 í hálfleik. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann en Selfyssingar reyndust sterkari á lokakaflanum og skoruðu þrjú síðustu mörk leiksins.

7.3.2011 | Nýjustu fréttir

Beltapróf og ćfingabúđir í Iđu

æfingabudir2Helgina 5.-6. mars sl voru æfingabúðir og beltapróf í taekwondo í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi. Mikill fjöldi iðkenda þreytti þar beltapróf og stóðu sig frábærlega og náðu sínum beltum. Samhliða beltaprófinu voru æfingabúðir, en þær eru fyrir þá sem eru að taka rautt belti og hærra, og eru þær mun erfiðari en hefðbundin beltapróf og mun meiri kröfur gerðar til iðkenda.

7.3.2011 | Handbolti

Sigur og tap í 4. flokki karla

Um helgina léku bæði liðin í 4. flokki karla. B-liðið mætti HK í Digranesi og tapaði þar eftir slakan leik 29-25 þrátt fyrir að hafa verið yfir framan af. A-liðið mætti FH1 í Vallaskóla. Selfoss var þar með undirtökin allan leikinn og vann sannfærandi sigur 34-23.

4.3.2011 | Frálsíţróttir

10 Íslandsmeistaratitlar einstaklinga á MÍ 11-14 ára

Keppendur frá HSK/Selfoss stóðu sig rosalega vel á Meistaramóti Íslands í frjálsum 11-14 ára sem haldið var um síðustu helgi. Þau unnu til 10 gullverðlauna, 8 silfurverðlauna og 6 bronsverðlauna. Einnig settu þau 5 HSK-met og 5 Selfossmet.

3.3.2011 | Sund

Hrafnhildur Guđmundsdóttir sćmd gullmerki Sundsambandsins

Í afmælishófi SSÍ í tilefni af 60 ára afmæli sambandsins var Hrafnhildur Guðmundsdóttir, fyrrum þjálfari hjá Sunddeild Umf. Selfoss, sæmd gullmerki SSÍ. Við það tækifæri sagði formaður SSÍ m.a. eftirfarandi:
"Hrafnhildur kom fram á sjónarsviðið sem afrekskona í sundi aðeins 14 ára gömul með því að setja Íslandsmet í 100m bringusundi. Þetta var árið 1958. Hún hefur komið víða við í sundíþróttinni síðan þá og sett tugi Íslandsmeta í bringusundi, skriðsundi, flugsundi og fjórsundi á löngum sundferli. Hrafnhildur keppti á tvennum Ólympíuleikunum í Róm 1964 og Mexico City árið 1968, auk þess að taka þátt í fjölmörgum alþjóðlegum sundmótum og landskeppnum.

3.3.2011 | Handbolti

HK - Selfoss í beinni á SportTV í kvöld í N1 deild karla

Það verður boðið upp á hörkuleik í beinni útsendingu á SportTV.is í kvöld úr N1 deild karla þegar viðureign HK og Selfoss verður sýnd beint. Útsending hefst kl. 19:20 en leikurinn hefst kl. 19:30. HK á í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni og Selfoss þarf á öllum mögulegum stigum að halda í harðri fallbaráttu við Aftureldingu.

28.2.2011 | Handbolti

Myndir frá bikarúrslitaleikjunum

A1Hér kemur myndaveisla frá sigrum Selfoss í 4. flokki karla og kvenna í bikarúrslitum yngri flokka í gær. Selfoss vann FH 26-22 í karlaflokki og ÍBV 33-22 í kvennaflokki.

28.2.2011 | Handbolti

Selfoss tvöfaldur bikarmeistari!

Í gær fóru fram bikarúrslitaleikir í bæði 4. flokki karla og kvenna í handbolta. Í báðum leikjum átti Selfoss lið í úrslitum. Strákarnir hófu leik gegn FH og unnu þar sigur 26-22 . Stelpurnar fylgdu í kjölfarið með annan sigur, 33-22 gegn ÍBV. Þetta er í fyrsta skipti sem Selfoss vinnur Bikarmeistaratitil í handbolta.

26.2.2011 | Handbolti

Bikarúrslit á morgun hjá okkar liđum

Á morgun fara fram úrslitaleikirnirnir í bikarkeppni yngri flokka þennan veturinn. Selfoss á tvö lið þar en bæði 4. flokkur karla og 4. flokkur kvenna mun leika þar til úrslita. Leikirnir fara fram í Laugardalshöllinni og hvetjum við fólk eindregið til að mæta á leikina og styðja við bakið á okkar liðum.
Strákarnir ríða á vaðið og spila gegn FH klukkan 12:00
Stelpurnar fylgja í kjölfarið og spila gegn ÍBV klukkan 13:30

25.2.2011 | Knattspyrna

Fullt í gangi hjá 6. flokki karla

6. flokkur karla í knattspyrnu hefur haft í nógu að snúast núna eftir áramótin. Ægismenn komu til dæmis í heimsókn á Selfossvöll og spiluðu við þá æfingaleiki þar sem Selfoss hafði betur í öllum liðum. Svo fóru strákarnir á æfingamót í Fífunni þar sem þeir spiluðu við HK, ÍR og Breiðablik. Þeir fóru einnig á Vetrarmót ÍA sunnudaginn 20. febrúar síðastliðinn og spiluðu þar við ÍA, ÍBV, Aftureldingu, Skallagrím og Kormák. Strákarnir hafa staðið sig með prýði á þessum mótum. Meðal annars má nefna að A-liðið hefur unnið alla sýna leiki það sem af er vetrar.

24.2.2011 | Handbolti

Tvö liđ frá Selfossi í bikarúrslit! (Myndir)

5Í gærkvöldi fóru fram undanúrslitaleikir í bikarkeppni yngri flokka í handboltanum. Bæði í 4. flokki karla og 4. flokki kvenna lenti Selfoss gegn Gróttu á útivelli og voru leikirnir spilaðir hvor á eftir öðrum. Selfoss liðin spiluðu frábærlega í leikjunum og unnu sannfærandi sigra. Stelpurnar fyrst 17-25 og strákarnir næst 24-29. Bæði liðin eru því komin í sjálfan bikarúrslitaleikinn sem fer fram í Laugardalshöll næstkomandi sunnudag.

24.2.2011 | Knattspyrna

Selfoss vann Skallagrím 7:3 í 4. flokki kvenna

Stelpurnar í 4. flokki spiluðu fyrsta leikinn í Faxaflóamótinu sunnudaginn 20. febrúar við Skallagrím. Staðan var 3-1 í hálfleik fyrir Selfoss en leikurinn endaði með 7-3 sigri Selfoss stelpna. Mörkin skoruðu: Karen María 4, Signý 1, Katrín 1 og Sigrún 1.

24.2.2011 | Knattspyrna

Fjórđa flokks strákar Selfoss unnu Grindavík 3:0

Strákarnir í 4. flokki spiluðu fyrsta leik sinn í Faxaflóamótinu við Grindavík á Selfossi í gærkvöldi. Þar vannst góður sigur 3:0. Mörk Selfoss skoruðu Hergeir 1, Freyr 1 og Bjarni Ófeigur 1. A-lið Selfoss leikur í B deild Faxaflóamótsins ásamt Breiðabliki 2, HK, Njarðvík, Reyni/Víði, Skallagrími, Snæfellsnesi og Grindavík.

24.2.2011 | Knattspyrna

Flottur sigur hjá stelpunum í 3. flokki gegn HK

Fyrsti leikurinn hjá stelpunum í 3. flokki í Faxaflóamótinu fór fram á sunnudaginn en þá tóku stelpurnar á móti HK. Leikurinn endaði 7-1 fyrir Selfoss eftir að staðan var 1-1 í hálfleik. Mörkin skoruðu Katrín 3. Erna 2, Sara Björk 1 og Eva Lind 1. Flottur sigur hjá stelpunum sem eru á fullu í undirbúningi fyrir Íslandsmótið.

22.2.2011 | Júdó

Ţór Davíđsson stóđ sig vel á júdómóti í Danmörku

Matsume Cup fór fram á Helsingör í Danmörku um síðustu helgi. Um er að ræða sterkt alþjóðlegt júdómót en alls kepptu þar 164 júdóiðkendur. Tíu íslenskir keppendur mættu á mótið og stóð Þór Davíðsson frá Selfossi sig best af íslensku sendinefndinni. Þór keppir í -90 kg flokki fullorðinna þannig að þarna var engin miskunn.

21.2.2011 | Handbolti

Selfoss mćtir Haukum í kvöld

Lokasprettur deildarkeppninnar í N1 deild karla í handbolta hefst í kvöld þegar Selfoss tekur á móti Haukum í íþróttahúsi Vallaskóla og hefst leikurinn kl. 19:30.

21.2.2011 | Frálsíţróttir

Liđ HSK/Selfoss í 3. sćti í Bikarkeppni FRÍ

Fimmta Bikarkeppni FRÍ í frjálsum íþróttum fór fram laugardaginn 19. febrúar s.l. í Laugardalshöllinni. HSK/Selfoss sendi harðsnúið lið til keppni sem náði frábærum árangri. Eitt gull, átta silfur og fjögur brons komu í hús, miðað við fjögur silfur og þrjú brons í fyrra ásamt því að nánast hver einasti keppendi HSK-liðsins bætti sig ýmist persónulega eða náði sínum besta árangri á keppnistímabilinu. Í kjölfar allra þessara bætinga litu þrettán HSK-met dagsins ljós, en þau voru tvö á þessu móti í fyrra.

21.2.2011 | Knattspyrna

Selfoss tapađi 2:1 fyrir KR í fyrsta leik í Lengjubikarnum

Meistaraflokkur Selfoss lék fyrsta opinbera leik sinn á þessu ári er liðið mætti KR-ingum í Egilshöllinni í Lengjubikarnum laugardaginn 17. febrúar s.l. Selfoss leikur í A deild 1. riðli Lengjubikarsins ásamt Gróttu, KR, Breiðabliki, ÍA, Keflavík, Þór og KA. KR-ingar fóru með sigur af hólmi 2:1.

21.2.2011 | Handbolti

Selfoss-2 náđi ekki sigri

Selfoss-2 í 4. flokki karla lék gegn toppliði Fjölnis í gær. Leikurinn var ágætlega leikinn af Selfossi lengst af en tapaðist þó 19-21.

21.2.2011 | Handboltaakademía

2. flokkur vann ÍBV heima

2.flokkur er á hinu ágæsta róli þessa dagana sér í lagi ef meiðsli og ýmiskonar sirkus, sem birtist í hinum ýmsu myndum, er tekinn með í reikninginn. Strákarnir hafa lagt sig gríðarlega mikið fram og hafa bætt sig í hverjum leik. Liðið byrjaði reyndar illa í gær gegn ÍBV og lenti undir eftir 11 mínútna leik 2-6 en eftir það var aldrei spurning hvoru megin sigurinn endaði. Selfossi hafði yfir 14-13 í hálfleik og vann á endanum 32-23.

21.2.2011 | Handboltaakademía

Tveir góđir leikir viđ sterka norđanmenn

Selfyssingar í 3.flokki mættu KA-mönnum síðastliðinn laugardaginn og var vitað mál að um hörkuleiki yrði að ræða. KA er afar vel þjálfað og er A lið þeirra sem dæmi komið í bikarúrslit. Einvarður Jóhannsson þjálfari er svo sannarlega að gera frábæra hluti enda vandaður og góður maður. Svo fór að A liðin skildu jöfn þar sem hvort lið gerði 33 mörk en í hálfleik var einnig jafnt, 16-16. B lið Selfoss náði að hafa sigur 25-24 en var undir eftir vægast sagt dapran fyrri hálfleik, 8-12.

19.2.2011 | Fimleikar

Gull og tvö brons á Selfoss á fyrsta keppnisdegi Unglingamóts í hópfimleikum

Í kvöld fór fram keppni í fyrsta hluta íslandamóts unglinga í hópfimleikum.  Keppt var í 2.flokki mixliða, 2.flokki kvenna og 1.flokki kvenna.  Selfyssingar áttu eina mixliðið í keppninni og eru þau að standa sig mjög vel og vekja mikla aðdáun áhorfenda.  Þau áttu góðar æfingar á öllum áhöldum og hefur dansinn aldrei verið samhæfðari.  Þau uppskáru 33,35 stig samanlagt fyrir öll áhöldin.  Í 2.flokki kvenna keppti Selfoss HM3 en þær sýndu heldur betur framfarir frá haustmóti og stóðu sig mjög vel og enduðu í þriðja sæti með 37,40 stig samanlagt. 

18.2.2011 | Frálsíţróttir

Fjóla Signý Íslandsmeistari í fimmtarţraut

Fjóla Signý í grindFjóla Signý Hannesdóttir, Umf. Selfoss, náði þeim glæsilega árangri að verða Íslandsmeistari í fimmtarþraut á Meistaramótinu í Höllinni.  Meistaramótið fór fram helgina 12. og 13. febrúar sl. Fjóla Signý krækti  sér í 3.377stig og sigraði með rúmlega 500 stiga mun. Fjóla Signý hljóp 60m grindahlaup á 9,36 sek, stökk 1,60 m í hástökki, kastaði kúlunni 8,69 m, stökk 5,17 m í langstökki og að lokum hljóp hún 800m á 2:25,14 mín. 

17.2.2011 | Handboltaakademía

93-liđiđ vann drekkhlađiđ Gróttuliđ af landsliđsmönnum

Selfoss-1 í flokki vann í gærkvöld Gróttu frá Seltjarnarnesi og það nokkuð örugglega 33-24. Heimamenn höfðu yfir 14-12 í hálfleik en Selfoss var alltaf sterkara í leiknum og náðu Gróttumenn aldrei að ógna okkar mönnum í síðari hálfleik.

16.2.2011 | Nýjustu fréttir

Langar ţig ađ prófa eitthvađ nýtt?

umfi_merki_netHvernig væri að skella sér aðeins burt yfir helgina 11.-13. mars með hressu ungu fólki og prufa eitthvað öðruvísi og skemmtilegt? Ungmennaráð UMFÍ hefur skipulagt helgi í Vík í Mýrdal sem verður troðfull af skemmtilegum uppákomum. Helgin er ætluð ungmennum á framhaldsskólaaldri sem hafa áhuga á samveru og skemmtun án allra vímuefna. Dagskráin hefst föstudagskvöldið kl. 20:00 í Laufskála, Vík í Mýrdal.

14.2.2011 | Fimleikar

Unglingamót FSÍ í hópfimleikum 18.-20. febrúar

Unglingamótið í hópfimleikum fer fram í Ásgarði í Garðabæ um næstu helgi 18.-20. febrúar. Keppt verður í tveimur deildum og alls fimm flokkum. Á föstudaginn verður keppt í úrvalsdeild í 1. flokki 13-18 ára og 2. flokki 11-15 ára. Selfoss sendir eitt lið til keppni í 1. flokk og 2 lið í annan flokk. 
Á laugardag og sunnudag verður svo keppt í 1. deild en þar er keppt eftir landsreglum. Á laugardaginn verður keppt í 4. flokki þar sem Selfoss á eitt lið og í 3. flokki þar sem Selfyssingar eiga einnig eitt lið. Á sunndaginn verður svo keppt í 5. flokki sem er yngsti aldursflokkurinn 9-12 ára. Þar senda Selfyssingar fjögur lið til keppni.  Þetta verður spennandi keppni að vanda og verður gaman að sjá hvernig liðin koma undan undirbúningastímabilinu. Nánari dagskrá er hér fyrir neðan.

14.2.2011 | Handboltaakademía

2. flokkur tapađi fyrir Stjörnunni

Strákarnir í 2. flokki töpuðu í hörkuleik fyrir Stjörnunni í Garðabæ í gær. Lokatölur 28-27 eftir að heimamenn höfðu yfir 15-10 í hálfleik.

14.2.2011 | Handboltaakademía

3. flokkur vann toppliđiđ á útivelli

Strákarnir í 93-liði Selfoss gerðu góða fer til Hafnarfjarðar í gærkvöld er þeir unnu þar heimamenn í Haukum 34-30 eftir að hafa leitt í hálfleik 15-13.

14.2.2011 | Handbolti

Sigur í 4. flokki

Selfoss-2 í 4. flokki sigraði KR-inga í gær í leik á Íslandsmótinu. Okkar menn voru öflugri allan tímann og unnu að lokum 19-16 sigur. Í hálfleik leiddi Selfoss 8-7.

10.2.2011 | Fimleikar

Raftćkjasöfnun Fimleikadeildar Umf. Selfoss

Nú í febrúar leggur Fimleikadeild Umf. Selfoss í græna fjáröflun með þinni hjálp. Gömul og ónýt smáraftæki liggja víða á heimilum og hjá fyrirtækjum og koma fáum að gagni þar. Málið snýst um að gefa gamla og ónýta raftækið, leggja þar með umhverfinu lið og styrkja fimleikadeildina í leiðinni. TRS og Árvirkinn hafa ákveðið að leggja þessu verkefni lið og taka á móti raftækjum fyrir deildina. Þeir verða með kassa í búðunum sínum og fá þeir bestu þakkir fyrir það.

9.2.2011 | Frálsíţróttir

Fjóla Signý međ HSK met í 200 og 400m hlaupum á MÍ

mi_feb_2011_022Meistaramót Íslands aðalhluti var haldið í Frjálsíþróttahöllinni helgina 5. - 6. febrúar  sl. HSK/Selfoss sendi sprækt lið til leiks og stóð það sig vel og varð í öðru sæti í stigakeppni mótsins með 8.456 stig, en gefin eru árangursstig eftir alþjóðlegri stigatöflu. HSK/Selfoss konur náði svo öðru sæti í stigakeppni kvenna. ÍR-ingar sigruðu með 30.696 stigum. Sunnlendingar unnu í 4 silfur og 4 brons og settu einnig sex glæsilegt HSK-met þessa helgi.

7.2.2011 | Handbolti

Sigur og tap hjá 4. karla gegn Haukum

Selfoss lék gegn Haukum á sunnudag í 4. flokki karla í Vallaskóla, bæði A- og B-lið, en þessi lið mættust snemma í vetur og hafði þá Selfoss sigur í báðum leikjunum með einu marki. Allt annað var uppi á teningnum núna og vann Selfoss 41-19 í A-liðum, en tapaði 19-23 í B-liðum.

7.2.2011 | Handboltaakademía

Stađan í 2. - 5. flokki karla og kvenna

Hér fyrir neðan er staðan í 2. - 5. flokki karla og kvenna á Íslandsmótinu í handbolta.

7.2.2011 | Handbolti

Fyrsta stigiđ í fjóra mánuđi

Eftir að hafa haft fjögurra marka forskot þegar átta mínútur voru eftir af leiknum voru Haukar stálheppnir að fara með eitt stig burt frá Selfossi sl. fimmtudag. Selfoss jafnaði 25-25 á lokamínútunni og náði í sitt fyrsta stig í N1 deildinni síðan í 2. umferð.

7.2.2011 | Knattspyrna

Myrra vann Guđjónsmótiđ annađ áriđ í röđ

Myrra_Guðjónsmótið_2011Snyrtistofan Myrra endurtók leikinn frá því í fyrra og sigraði árlega firmakeppni meistaraflokks Selfoss, sem haldin er í minningu Guðjóns Ægis Sigurjónssonar. Myrra sigraði lið Rakarastofu Björns og Kjartans í framlengdum úrslitaleik 3:2 og er það líklega einsdæmi í sögunni að Snyrtistofa og Rakarastofa leika til úrslita í fjölmennri firmakeppni.

6.2.2011 | Handboltaakademía

Góđur sigur hjá 2. flokki í hörkuleik

Strákarnir í 2. flokki unnu sinn fyrsta heimaleik á tímabilinu og það í sjöttu tilraun. Haukar úr Hafnarfirði sóttu okkar menn heim en fóru sem betur fer fyrir Selfyssinjga tómhentir heim. Lokatölur 30-29, en í hálfleik stóð 16-14.

4.2.2011 | Handboltaakademía

94 vann HKR heima

Selfoss-2 í 3.flokki vann HKR í gær 37-24 og leiddu okkar menn jafnframt í hálfleik 19-9.

4.2.2011 | Knattspyrna

Guđjónsmótiđ fer fram á morgun laugardag 5. febrúar

fótboltateikning5Þá er allt orðið klárt og spennan farin að magnast fyrir Guðjónsmótið 2011 sem fram fer laugardaginn 5. febrúar. Um að ræða Styrktarmót sem meistaraflokkur karla heldur, en mótið er haldið í minningu Guðjóns Ægis Sigurjónssonar. Líkt og í fyrra er um að ræða stærsta firmamót ársins og sést það vel á því að mótið tekur allan daginn og um morguninn, en spilað er í tveimur íþróttahúsum. Búið er að skipta í riðla og allt að verða klárt fyrir mótið. Riðlaskiptingu og tímaseðil má sjá hér að neðan.

2.2.2011 | Handboltaakademía

93-liđiđ vann Víking heima

Selfyssingar í 93-liðinu unnu Víkinga örugglega hér heima á Selfossi fyrr kvöld. Lokatölur urðu 35-21 eftir að heimamenn leiddu í hálfleik 19-10. Okkar menn náðu fljótlega öruggri forustu, 6-2 og 13-6 og varð leikurinn aldrei jafn.

1.2.2011 | Handboltaakademía

Stórsigur 4. fl. kvenna á Fylki

Stelpurnar í 4. flokki tryggðu sér sæti í undanúrslitum bikarkeppninnar með stórsigri á Fylki 22-11 í íþróttahúsi Sólvallaskóla í kvöld eftir að staðan í hálfleik hafði verið 11-4 Selfoss í vil. Selfoss hóf leikinn af krafti og náði strax öruggri forustu. Fylkisstelpurnar virtust yfirspenntar í byrjun og liðið átti engin svör við frábærum varnarleik Selfyssinga og var leikur Fylkis mjög vandræðalegur allan tímann.

1.2.2011 | Handbolti

Góđur liđsstyrkur til meistaraflokks

hallur_sprellar_utlendingarSelfyssingar hafa bætt við sig tveimur erlendum leikmönnum fyrir lokasprettinn í N1 deild karla í handbolta. Þarna eru á ferðinni Serbinn Milan Ivancev og Litháinn Andrius Zigelis. Báðir eru þeir 25 ára gamlir, Ivancev er miðjumaður og Zigelis vinstri hornamaður. Þeir fengu leikheimild með Selfossliðinu í gær og munu leika sinn fyrsta leik fyrir félagið þegar Selfoss tekur á móti Haukum í N1 deildinni nk. fimmtudagskvöld.

1.2.2011 | Handbolti

Frábćr sigur ungmennaliđsins

runar_hjalmarssonUngmennalið Selfoss vann frábæran sigur á ÍR í 1. deild karla í handbolta í gærkvöldi, 33-31. Það var ekki að sjá að þarna væru að mætast liðin í 2. og 6. sæti deildarinnar en Selfyssingar tóku leikinn strax í hendur sér og leiddu nær allan leikinn.

31.1.2011 | Taekwondó

Góđur árangur Selfoss á sparringmóti í Iđu sl. sunnudag

SigurjónMót í sparring (bardaga) var haldið í íþróttahúsinu Iðu sl. sunnudag. Þar kepptu 5 lið frá aðildarfélögum ÍSÍ  í taekwondo og er óhætt að fullyrða að Selfyssingar hafi staðið sig einstaklega vel. Taekwondodeild UMFS náði þar þeim glæsilega áfanga að vinna til 9 gullverðlauna , 6 silfurverðlauna og  10 bronsverðlauna og verða stigahæsta félagið á mótinu með samtals 73 stig.

31.1.2011 | Frálsíţróttir

HSK met og Íslandsmeistaratitill í 800m hlaupi hjá Kristni og Agnesi

mi_2011-064Unglingameistaramót Íslands var haldið í Frjálsíþróttahöllinni helgina 29.-30.janúar sl.  HSK/Selfoss sendi öflugt lið til leiks og stóð það sig frábærlega og varð í öðru sæti í stigakeppni mótsins.  ÍR-ingar báru höfuð og herðar yfir aðra andstæðinga og sigruðu með 491,3 stigum, HSK/Selfoss lenti í öðru sæti með 164,7stig og UFA í þriðja sæti með 154,5 stig. Í einstökum flokkum varð HSK/Selfoss í 2. sæti í þremur þeirra: 15ára, 16-17ára og 20-22ára flokkum stúlkna. Þá komu í hús 8 gull, 8 silfur og 10 bronsverðlaun og síðast en ekki síst voru 8 HSK met slegin.

31.1.2011 | Frálsíţróttir

Fjórtán verđlaun á Stórmóti ÍR og 2 HSK met

Umfjöllun um yngri aldurshópa er tóku þátt í Stórmóti ÍR

30.1.2011 | Handbolti

Tvö töp í 4. fl. karla

Bæði liðin í 4. flokki á léku á útivelli í gær. Leikir beggja liða voru slakir og töpuðust báðir. B-liðið gegn Fylkir 19-18 og A-liðið gegn FH2 21-16. Í báðum leikjunum byrjaði Selfoss illa og var það fyrst og fremst ástæðan fyrir slæmu gengi.

28.1.2011 | Handboltaakademía

94 - liđiđ vann ÍR2 á heimavelli

Selfoss-2 í 3.flokki hélt sigurgöngu sinni áfram í gærkvöld er liðið fékk ÍR2 í heimsókn. Selfoss hafði yfir 20-9 í hálfleik en hafði sigur 36-18.

27.1.2011 | Handboltaakademía

93-liđiđ vann ÍR á heimavelli

Í gærkvöld sóttu Breiðhyltingar okkar menn í 3.flokki A liði heim. ÍR-ingar höfðu ekki erindi sem erfiði og unnu okkar menn 41-18 eftir að hafa leitt í hálfleik 21-8.

26.1.2011 | Handboltaakademía

Góđur sigur 91-liđsins á Akureyri

Í gær sótti 2.flokkur Selfoss Akureyringa heim. Þar eru heimamenn ávallt erfiðir viðureignar og sú varð raunin í gær. Hafðist þó sigur hjá okkar mönnum 34-31 eftir að liðin hafi verið jöfn í hálfleik, 18-18.

26.1.2011 | Handboltaakademía

94 vann FH2 á útivelli

Á föstudaginn síðasta lék Selfoss-2 í 3.flokki gegn Hafnfirðingum. Vannst sá leikur 24-19 en í hálfleik stóð 9-9.

26.1.2011 | Handboltaakademía

2.flokkur lék tvo leiki gegn Val

Í síðustu viku lék 2.flokkur tvo leiki gegn Val. Þann fyrri í bikarnum heima á Selfossi og hinn síðari að Híðarenda.

25.1.2011 | Taekwondó

Norđurlandamót í Vejle

Íslenska landsliðið í taekwondo náði sínum besta árangri frá upphafi á Norðurlandamótinu um helgina.  Mótið var haldið í Vejle í Danmörku og sendi Ísland fjóra keppendur. Meisam Rafiei, þjálfari á Selfossi, keppti m.a. á mótinu.

25.1.2011 | Handbolti

5. flokkur karla vann gull um helgina

97-3motEins og stelpurnar í 5. flokki kvenna þá unnu strákarnir efstu deildina í 5. flokki um helgina á þriðja móti vetrarins. Selfoss-1 átti mjög gott mót. Þeir unnu 4 af 5 leikjum, þrátt fyrir að vantað hafi í liðið vegna meiðsla, og unnu þannig deildina.

25.1.2011 | Handbolti

Flott helgi hjá 5. flokki kvenna í handbolta

5kv_handb_jan2011Um síðustu helgi keppti 5. flokkur kvenna á sínu þriðja móti í vetur. Selfoss-1 gerði sér lítið fyrir og vann alla sína leiki sannfærandi. Þær unnu því mótið og er það þriðja mótið sem þær vinna. Selfoss-2 spilaði í 3. deild og unnu tvo leiki en töpuðu einum og komust því ekki upp um deild.

24.1.2011 | Handbolti

4. flokkur karla međ tvo sigra í gćr

HópmyndBæði liðin í 4. flokki karla léku í gær gegn Fram í Vallaskóla. Selfyssingar áttu góðan dag og náðu bæði liðin sigrum, fyrst B-liðið 25-22 (12-9 í hálfleik) og svo A-liðið 30-21 (11-11 í hálfleik).

24.1.2011 | Frálsíţróttir

Fjögur HSK-met á Stórmóti ÍR

frjalsar_jan2011_1969Iðkendur meistaraflokks Selfoss stóðu sig mjög vel á Stórmóti ÍR sem haldið var í Frjálsíþróttahöllinni dagana 22. og 23.janúar sl. Deildin sendi keppendur til leiks í öllum flokkum. Þrettán keppendur tóku þátt í mismunandi greinum í flokki 15 ára og eldri. Í flokki 14 ára og yngri tóku fjölmargir þátt og verður þeirra árangur birtur á næstunni.

24.1.2011 | Handboltaakademía

Selfoss í toppbaráttu í öllum flokkum

22Nú er keppnistímabil yngri flokka í handknattleik um það bil rúmlega hálfnað. Þegar staða allra flokka er skoðuð kemur í ljós að Selfoss á lið í fremstu röð í öllum flokkum. Selfoss er með lið í efstu deild í öllum flokkum, ásamt því að tefla fram b-liði í 2.deild í öllum flokkum. Ljóst er að fá félög sem geta státað af viðlíka árangri. Auk þess urðu strákarnir í 5. flokki í öðru sæti á Norðurlandamóti félagsliða á dögunum.

20.1.2011 | Handbolti

4. flokkur í undanúrslit í bikar

4. flokkur karla lék í gærkvöldi við Fram 2 í 8-liða úrslit bikarkeppninnar. Selfoss var mun sterkara og kláraði leikinn á fyrstu 15 mínútum leiksins. Liðið komst 6-12 yfir og leiddi 9-16 í hálfleik. Í síðari hálfleik var aldrei spurning hvernig færi og lokatölur 19-25 sigur Selfoss.

20.1.2011 | Handbolti

6. fl. kvenna, yngra ár, á sínu fyrsta móti í vetur

6fl-yngra-ar-2011Helgina 14.-16. janúar s.l. var Íslandsmót kvenna í 6. flokki haldið hjá Fylki. Lið Selfoss í 6. flokki kvenna yngra ár var að spila á sínu fyrsta móti í vetur, léku í 3. deild. Stelpurnar stóðu sig frábærlega, unnu þrjá leiki og gerðu eitt jafntefli. Þess má geta að í liðinu voru tvær stelpur úr 6. flokki yngra ár og fjórar úr 7. flokki.Flestar stelpurnar voru því að spila upp fyrir sig. Stelpurnar enduðu í 1.-2. sæti ásamt Gróttu.

20.1.2011 | Handboltaakademía

Stađan á meistaraflokki í handboltanum

Lógó SelfossHeimasíðan hafði samband við þjálfara mfl. varðandi stöðuna á liðinu og gengið á æfingum núna í aðdraganda seinni hluta Íslandsmótsins. Liðið er aðeins 2 stigum frá því að komast í umspilssæti og aðeins 6 stigum frá öruggu sæti. Hins vegar eru enn 20 stig í pottinum.

20.1.2011 | Frálsíţróttir

Selfoss sigrađi Hérađsmót HSK međ yfirburđum

solveig-helga-2010Héraðsmót HSK í frjálsum íþróttum var haldið í Frjálsíþróttahöllinni dagana 12. og 19. janúar sl. Lið Selfoss, sem var nokkuð vængbrotið vegna meiðsla þeirra Fjólu Signýjar og Þórhildar Helgu, mætti mjög kröftugt til leiks og sigraði örugglega með 132 stigum. Þjótandi varð í öðru sæti með 58 stig og lið Dímonar í þriðja sæti með 47 stig.

19.1.2011 | Handboltaakademía

Ragnar aftur út til Gummarsbach

Ragnar var í heimsókn hjá þýska úrvalsdeildarliðinu Gummersbach um síðustu helgi og æfði þar með liðinu. Ragnar stóð sig það vel að þeir vildu fá hann aftur út til þess að skoða hann betur. Ragnar fer út í fyrramálið og mun um helgina spila með þeim 2 æfingaleiki í Frakklandi. Þetta eru góðar fréttir fyrir Ragnar og viðurkenning fyrir haldboltastarfið á Selfossi. Við óskum honum alls hins besta í ferðinni.

19.1.2011 | Taekwondó

Sparring-mót í Iđu 30. janúar

Sparring-mót (bardaga) verður haldið í íþróttahúsinu Iðu sunnudaginn 30. janúar. Allir sem komnir eru með gula rönd eða hærra mega keppa.

19.1.2011 | Frálsíţróttir

Eitt HSK-met og eitt Selfoss-met á aldursflokkamóti HSK 11-14 ára

frjalsar_grind-jan11Aldursflokkamót HSK, 11-14 ára, var haldið í Laugardalshöllinni þann 10. janúar. Selfoss sigraði mótið með yfirburðum, fékk 365 stig. Næsta félag hlaut 175 stig. Krakkarnir unnu til fjölda verðlauna. Samtals fengu þau 28 gullverðlaun, 22 silfurverðlaun og 12 bronsverðlaun og mörg persónuleg met voru slegin

18.1.2011 | Taekwondó

Ćfingar í taekwondo komnar á fullt

Æfingar hjá taekwondodeild eru byrjaðar á fullu á nýju ári. Enn er pláss fyrir fleiri krakka og fullorðna. Æfingatímana má sjá hér að neðan.

18.1.2011 | Júdó

Afmćlismót JSÍ/RIG yngri en 20 ára

judo_jan11_1982Afmælismót Júdósambandsins er eitt af sterkustu mótum ársins. Laugardaginn 15. Janúar fór fram fyrri hluti mótsins þ.e.a.s. yngri hlutinn, fyrir keppendur 11-20 ára. Sú nýbreytni var að mótið var haldið í samstarfi við RIG (Reykjavík International Games). Það voru átta keppendur sem mættu frá UMFS, ákveðnir í að gera gefa ekkert eftir.

18.1.2011 | Frálsíţróttir

Selfoss sigrađi á Unglingamóti HSK

frjalsar_jan11_1860Keppnislið Umf. Selfoss fór með sigur af hólmi á Unglingameistaramóti HSK sem haldið var í Frjálsíþróttahöllinni þann 9. janúar sl. Lið Umf.Selfoss hlaut 112,5 stig, Dímon varð í 2. sæti með 74 stig og Þór í 3. sæti með 65 stig

18.1.2011 | Júdó

Sveit Selfoss vann Bikarkeppni JSÍ U15

judo_jan11_2146Seinni hluti Bikarkeppni JSÍ 2010 hjá U15 sem fram átti að fara í nóv. sl. en var frestað, var kláraður að loknu AM/RIG 2011 og voru það lið JR og Selfoss sem kepptu til úrslita. Eftir spennandi og jafna keppni voru það Selfyssingar sem fóru með sigur af hólmi og unnu með þremur vinningum og 25 tæknistigum gegn tveimur vinningum og tuttugu tæknistigum JR-inga.

18.1.2011 | Frálsíţróttir

Ţrjú HSK-met á Reykjavíkurleikunum

frjálsar_jan11_1925Keppendum HSK/Selfoss gekk mjög vel á Reykjavíkurleikunum sem haldnir voru í Frjálsíþróttahöllinni þann 15. janúar sl. Þrjú HSK-met voru slegin á mótinu.

17.1.2011 | Handboltaakademía

Tap hjá 2. flokki gegn FH

2. flokkur tapaði heima gegn FH í gær en liðið náði sér aldrei almennilega á flug í leiknum. Selfyssingar léku afar slaka vörn og því fór sem fór. Í hálfleik leiddi FH 21-14 og loktölur voru 41-32. FH-ingar gerðu reyndar sjö síðustu mörk leiksins.

17.1.2011 | Handboltaakademía

94-liđiđ vann Fjölni heima

Selfoss-2 í 3. flokki (94-liðið) lék síðasta laugardag heima gegn Fjölnismönnum og unnu örugglega 37-24 en heimamenn leiddu í hálfleik 18-10.

16.1.2011 | Handbolti

Fínn sigur hjá 4. flokki í Garđabć

4. flokkur karla lék gegn Stjörnunni í dag á þeirra heimavelli. Stjarnan er með eitt besta liðið í 4. flokki og mjög vel skipulagt. Það var því ljóst að um hörku leik yrði að ræða.

14.1.2011 | Frálsíţróttir

Selfoss sigrađi á Unglingamóti HSK

unglingamot_HSK_jan11Keppnislið Umf. Selfoss fór með sigur af hólmi á Unglingameistaramóti HSK sem haldið var í Frjálsíþróttahöllinni þann 9. janúar sl. Lið Umf.Selfoss hlaut 112,5 stig, Dímon varð í öðru sæti með 74 stig og Þór í 3.sæti með 65 stig.

13.1.2011 | Handboltaakademía

Logi Geirsson kom í heimsókn

logi3Síðastliðinn fimmtudag kom landsliðsmaðurinn Logi Geirsson í heimsókn á Selfoss og stjórnaði æfingu hjá 5. fl. drengja og stúlkna, ásamt því að halda fyrirlestur um hvað þarf til að ná árangri í handbolta. Logi brýndi fyrir krökkunum mikilvægi hollrar næringar, svefns, reglusemi og mikilvægi þessa að setja sér markmið og leiðir að markmiðunum. Það voru þau Soffía Pálsdóttir og Ásgeir Vilhjálmsson sem höfðu veg og vanda að komu Loga á Selfoss....

12.1.2011 | Fimleikar

Íţróttaskóli barnanna

Íþróttaskóli barnanna hefst að nýju laugardaginn 15. janúar 2011. Kennt verður í Baulu í tveimur hópum. Sá fyrri fyrir börn fædd 2008 kl. 10:00-10:50 og sá seinni kl. 11:00-11:50 fyrir börn fædd 2007 og 2006. Kennarar eru sem fyrr Steinunn H. Eggertsdóttir og Heiðrún Heiðarsdóttir. Skráning fer fram á staðnum n.k. laugardag kl. 9:30-11:30 sem og næstu tvo laugardaga eftir það. Námskeiðsgjald fyrir 10 skipti er 7500kr.
Hlökkum til að sjá ykkur. Stjórn fimleikadeildar UMFS.

12.1.2011 | Handbolti

4. flokkur karla áfram í bikar eftir maraţon leik

4. flokkur A-liðÍ gær mætti 4. flokkur Selfoss liði Fram í 16-liða úrslitum bikars í Framhúsinu. Leikurinn var dramatískur og spennandi en hann þurfti að tví framlengja og var enn jafnt eftir síðari framlenginguna. Var þá gripið til vítakastkeppni þar sem Selfyssingar unnu hreint magnaðan sigur 40-41 og er liðið því komið í 8-liða úrslita bikarkeppninnar í 4. flokki.

11.1.2011 | Handboltaakademía

Góđur sigur 93-liđsins á Akureyri

Selfoss-1 (93-liðið) fór einnig norður um helgina en lék aðeins einn leik, gegn KA á sunnudeginum. Vitað var að um hörkuleik yrði að ræða þar sem Akureyrarliðið er vel mannað og vel þjálfað. Selfyssingar náðu að vinna 27-23 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 15-14.

11.1.2011 | Handboltaakademía

B-liđ Selfoss vann A-liđ Ţórs í 3.flokki

Um helgina lék Selfoss-2 í 3. flokki alls þrjá leiki á norðurlandi um helgina, tvo á Akureyri og einn á Húsavík. Strákarnir unnu Þórsara og Völsunga á laugardeginum en þurftu að játa sig sigraða gegn KA-2 á sunnudeginum. Vissulega tók það mikið á að spila þrjá leiki á innan við sólarhring, sér í lagi þar sem leikirnir við Þór og Völsung voru grófir og tóku mikið á líkamlega. Áttu strákarnir því ekki mikla orku í leiknum gegn KA-2.

10.1.2011 | Júdó

Júdóćfingar komnar á fullt

Æfingar júdódeildarinnar hófust af fullum krafti í síðustu viku. Nýir iðkendur eða byrjendur eru ávallt velkomnir. Frekari upplýsingar um æfningatíma og fleira er að finna hér á heimasíðunni.

8.1.2011 | Knattspyrna

Svavar Berg og Pálmi Ţór ćfa međ landsliđum um helgina

Um helgina æfa þeir Svavar Berg Jóhannsson og Pálmi Þór Ásbersson með unglingalandsliðum Íslands í knattspyrnu. Svavar er fæddur 1995 og æfir með u-17 ára landsliðinu og Pálmi er fæddur 1994 og æfir einnig með u-17 áraliðinu sem hefur tryggt sér sæti í milliriðli Evrópumótsins. Pálmi lék á dögunum sinn fyrsta æfingaleik fyrir meistaraflokki Selfoss.

8.1.2011 | Nýjustu fréttir

Ţrettándabrennan á Selfossi verđur í kvöld laugardag

Jólin verða kvödd með glæsilegri flugeldasýningu á Selfossi í kvöld laugardaginn 8. janúar 2011. Blysför verður farin frá Tryggvaskála kl. 20:00 og gengið að brennustæði við tjaldstæði Gesthúsa við Engjaveg. Jólasveinarnir koma og kveðja krakkana ásamt álfum og tröllum. Fólk er beðið um að fylgjast með veðurfréttum ef veðurspá er slæm.

7.1.2011 | Handbolti

Myndir frá Svíţjóđarferđ 5. flokks

14Heimasíðan fékk sendar þónokkrar myndir frá ferðalagi 1997 liðs Selfoss í handbolta til Svíþjóðar milli jóla og nýárs þar sem liðið keppti á Norden Cup. Við birtum þær hér .

6.1.2011 | Handboltaakademía

Góđur sigur hjá 93-liđinu í gćrkvöld

Fh-ingar sóttu okkar menn heimi í 1. deild í 3. flokki. Mikil handboltahefð er í Hafnarfirði og er saga FH afar glæsileg og er um mikið stórveldi að ræða. Vissu okkar menn því að um erfiðan leik er að ræða, sem er reyndar raunin með alla leiki í þessari sterku deild. Fór svo að okkar menn höfðu sigur 33-30 en gestirnir leiddu þó í hálfleik 17-18.

6.1.2011 | Nýjustu fréttir

Ţrettándabrennu á Selfossi frestađ

Ákveðið hefur verið að fresta þrettándabrennu og flugeldasýningu sem vera átti á Selfossi í kvöld vegna veðurs. Stefnt er á að brennan verði annað hvort á föstudag eða laugardag. Verður það tilkynnt hér á síðunni um leið og ákvörðun liggur fyrir. Bestu kveðjur frá jólasveinanefnd.

4.1.2011 | Handboltaakademía

3.flokkur hefur stađiđ sig afar vel

3.flokkur Selfoss þetta tímabilið er afar fjölmennur. Rétt um 30 strákar æfa handbolta með þessum flokki og er því nóg um að vera er kemur að samkeppni, samheldni og dugnaði. Þessi hópur er skemmtilegur að mati síðuritara og hefur hann haft gaman af því að horfa á liðin leika.

3.1.2011 | Handboltaakademía

Misjafnt gengi 2.flokks

2.flokkur telur tvö lið þetta tímabilið líkt og í fyrra. Gengi liðanna hefur verið misjanft. Selfoss-1 hefur valdið vonbrigðum það sem af er tímabils en Selfoss-2 hefur komið á óvart og unnið sem dæmi alla sína útileiki.

3.1.2011 | Fimleikar

Fimleikar hefjast í dag mánudag 3.janúar

Fimleikaæfingar hefjast í dag mánudaginn 3.janúar samkvæmt stundaskrá.  Ekki þarf að skrá sig aftur í fimleika sama taflan heldur áfram. Ef iðkandi hættir þarf hinsvegar að tilkynna það. Gleðilegt ár!

1.1.2011 | Handbolti

Selfoss endađi í 2. sćti á Norden Cup

Strákarnir í Selfoss liðinu náðu ekki að sigra heimamenn í Kärra í úrslitaleiknum á Norden Cup í Gautaborg. Leikurinn var æsispennandi allan tímann og jafnt 15-15 þegar lítið var eftir. Fá þá Selfyssingar brottvísun og skora Svíarnir næstu tvö mörkin. Selfoss náði ekki að jafna eftir það og endaði leikurinn með 21-18 sigri Kärra.

Á nćstunni

18.5.2012 | Knattspyrna
22.5.2012 | Knattspyrna
24.5.2012 | Knattspyrna
31.5.2012 | Knattspyrna
2.6.2012 | Frjálsíţróttir
4.6.2012 | Knattspyrna


Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta