Unglingameistaramót Íslands var haldið í Frjálsíþróttahöllinni helgina 29.-30.janúar sl. HSK/Selfoss sendi öflugt lið til leiks og stóð það sig frábærlega og varð í öðru sæti í stigakeppni mótsins. ÍR-ingar báru höfuð og herðar yfir aðra andstæðinga og sigruðu með 491,3 stigum, HSK/Selfoss lenti í öðru sæti með 164,7stig og UFA í þriðja sæti með 154,5 stig. Í einstökum flokkum varð HSK/Selfoss í 2. sæti í þremur þeirra: 15ára, 16-17ára og 20-22ára flokkum stúlkna. Þá komu í hús 8 gull, 8 silfur og 10 bronsverðlaun og síðast en ekki síst voru 8 HSK met slegin.
Bæði liðin í 4. flokki á léku á útivelli í gær. Leikir beggja liða voru slakir og töpuðust báðir. B-liðið gegn Fylkir 19-18 og A-liðið gegn FH2 21-16. Í báðum leikjunum byrjaði Selfoss illa og var það fyrst og fremst ástæðan fyrir slæmu gengi.
Í síðustu viku lék 2.flokkur tvo leiki gegn Val. Þann fyrri í bikarnum heima á Selfossi og hinn síðari að Híðarenda.
Eins og stelpurnar í 5. flokki kvenna þá unnu strákarnir efstu deildina í 5. flokki um helgina á þriðja móti vetrarins. Selfoss-1 átti mjög gott mót. Þeir unnu 4 af 5 leikjum, þrátt fyrir að vantað hafi í liðið vegna meiðsla, og unnu þannig deildina.
Um síðustu helgi keppti 5. flokkur kvenna á sínu þriðja móti í vetur. Selfoss-1 gerði sér lítið fyrir og vann alla sína leiki sannfærandi. Þær unnu því mótið og er það þriðja mótið sem þær vinna. Selfoss-2 spilaði í 3. deild og unnu tvo leiki en töpuðu einum og komust því ekki upp um deild.
Bæði liðin í 4. flokki karla léku í gær gegn Fram í Vallaskóla. Selfyssingar áttu góðan dag og náðu bæði liðin sigrum, fyrst B-liðið 25-22 (12-9 í hálfleik) og svo A-liðið 30-21 (11-11 í hálfleik).
Iðkendur meistaraflokks Selfoss stóðu sig mjög vel á Stórmóti ÍR sem haldið var í Frjálsíþróttahöllinni dagana 22. og 23.janúar sl. Deildin sendi keppendur til leiks í öllum flokkum. Þrettán keppendur tóku þátt í mismunandi greinum í flokki 15 ára og eldri. Í flokki 14 ára og yngri tóku fjölmargir þátt og verður þeirra árangur birtur á næstunni.
Nú er keppnistímabil yngri flokka í handknattleik um það bil rúmlega hálfnað. Þegar staða allra flokka er skoðuð kemur í ljós að Selfoss á lið í fremstu röð í öllum flokkum. Selfoss er með lið í efstu deild í öllum flokkum, ásamt því að tefla fram b-liði í 2.deild í öllum flokkum. Ljóst er að fá félög sem geta státað af viðlíka árangri. Auk þess urðu strákarnir í 5. flokki í öðru sæti á Norðurlandamóti félagsliða á dögunum.
4. flokkur karla lék í gærkvöldi við Fram 2 í 8-liða úrslit bikarkeppninnar. Selfoss var mun sterkara og kláraði leikinn á fyrstu 15 mínútum leiksins. Liðið komst 6-12 yfir og leiddi 9-16 í hálfleik. Í síðari hálfleik var aldrei spurning hvernig færi og lokatölur 19-25 sigur Selfoss.
Helgina 14.-16. janúar s.l. var Íslandsmót kvenna í 6. flokki haldið hjá Fylki. Lið Selfoss í 6. flokki kvenna yngra ár var að spila á sínu fyrsta móti í vetur, léku í 3. deild. Stelpurnar stóðu sig frábærlega, unnu þrjá leiki og gerðu eitt jafntefli. Þess má geta að í liðinu voru tvær stelpur úr 6. flokki yngra ár og fjórar úr 7. flokki.Flestar stelpurnar voru því að spila upp fyrir sig. Stelpurnar enduðu í 1.-2. sæti ásamt Gróttu.
Heimasíðan hafði samband við þjálfara mfl. varðandi stöðuna á liðinu og gengið á æfingum núna í aðdraganda seinni hluta Íslandsmótsins. Liðið er aðeins 2 stigum frá því að komast í umspilssæti og aðeins 6 stigum frá öruggu sæti. Hins vegar eru enn 20 stig í pottinum.
Héraðsmót HSK í frjálsum íþróttum var haldið í Frjálsíþróttahöllinni dagana 12. og 19. janúar sl. Lið Selfoss, sem var nokkuð vængbrotið vegna meiðsla þeirra Fjólu Signýjar og Þórhildar Helgu, mætti mjög kröftugt til leiks og sigraði örugglega með 132 stigum. Þjótandi varð í öðru sæti með 58 stig og lið Dímonar í þriðja sæti með 47 stig.
Ragnar var í heimsókn hjá þýska úrvalsdeildarliðinu Gummersbach um síðustu helgi og æfði þar með liðinu. Ragnar stóð sig það vel að þeir vildu fá hann aftur út til þess að skoða hann betur. Ragnar fer út í fyrramálið og mun um helgina spila með þeim 2 æfingaleiki í Frakklandi. Þetta eru góðar fréttir fyrir Ragnar og viðurkenning fyrir haldboltastarfið á Selfossi. Við óskum honum alls hins besta í ferðinni.
Aldursflokkamót HSK, 11-14 ára, var haldið í Laugardalshöllinni þann 10. janúar. Selfoss sigraði mótið með yfirburðum, fékk 365 stig. Næsta félag hlaut 175 stig. Krakkarnir unnu til fjölda verðlauna. Samtals fengu þau 28 gullverðlaun, 22 silfurverðlaun og 12 bronsverðlaun og mörg persónuleg met voru slegin
Æfingar hjá taekwondodeild eru byrjaðar á fullu á nýju ári. Enn er pláss fyrir fleiri krakka og fullorðna. Æfingatímana má sjá hér að neðan.
Afmælismót Júdósambandsins er eitt af sterkustu mótum ársins. Laugardaginn 15. Janúar fór fram fyrri hluti mótsins þ.e.a.s. yngri hlutinn, fyrir keppendur 11-20 ára. Sú nýbreytni var að mótið var haldið í samstarfi við RIG (Reykjavík International Games). Það voru átta keppendur sem mættu frá UMFS, ákveðnir í að gera gefa ekkert eftir.
Keppnislið Umf. Selfoss fór með sigur af hólmi á Unglingameistaramóti HSK sem haldið var í Frjálsíþróttahöllinni þann 9. janúar sl. Lið Umf.Selfoss hlaut 112,5 stig, Dímon varð í 2. sæti með 74 stig og Þór í 3. sæti með 65 stig
Seinni hluti Bikarkeppni JSÍ 2010 hjá U15 sem fram átti að fara í nóv. sl. en var frestað, var kláraður að loknu AM/RIG 2011 og voru það lið JR og Selfoss sem kepptu til úrslita. Eftir spennandi og jafna keppni voru það Selfyssingar sem fóru með sigur af hólmi og unnu með þremur vinningum og 25 tæknistigum gegn tveimur vinningum og tuttugu tæknistigum JR-inga.
Keppendum HSK/Selfoss gekk mjög vel á Reykjavíkurleikunum sem haldnir voru í Frjálsíþróttahöllinni þann 15. janúar sl. Þrjú HSK-met voru slegin á mótinu.
Selfoss-2 í 3. flokki (94-liðið) lék síðasta laugardag heima gegn Fjölnismönnum og unnu örugglega 37-24 en heimamenn leiddu í hálfleik 18-10.
4. flokkur karla lék gegn Stjörnunni í dag á þeirra heimavelli. Stjarnan er með eitt besta liðið í 4. flokki og mjög vel skipulagt. Það var því ljóst að um hörku leik yrði að ræða.
Keppnislið Umf. Selfoss fór með sigur af hólmi á Unglingameistaramóti HSK sem haldið var í Frjálsíþróttahöllinni þann 9. janúar sl. Lið Umf.Selfoss hlaut 112,5 stig, Dímon varð í öðru sæti með 74 stig og Þór í 3.sæti með 65 stig.
Síðastliðinn fimmtudag kom landsliðsmaðurinn Logi Geirsson í heimsókn á Selfoss og stjórnaði æfingu hjá 5. fl. drengja og stúlkna, ásamt því að halda fyrirlestur um hvað þarf til að ná árangri í handbolta. Logi brýndi fyrir krökkunum mikilvægi hollrar næringar, svefns, reglusemi og mikilvægi þessa að setja sér markmið og leiðir að markmiðunum. Það voru þau Soffía Pálsdóttir og Ásgeir Vilhjálmsson sem höfðu veg og vanda að komu Loga á Selfoss....
Íþróttaskóli barnanna hefst að nýju laugardaginn 15. janúar 2011. Kennt verður í Baulu í tveimur hópum. Sá fyrri fyrir börn fædd 2008 kl. 10:00-10:50 og sá seinni kl. 11:00-11:50 fyrir börn fædd 2007 og 2006. Kennarar eru sem fyrr Steinunn H. Eggertsdóttir og Heiðrún Heiðarsdóttir. Skráning fer fram á staðnum n.k. laugardag kl. 9:30-11:30 sem og næstu tvo laugardaga eftir það. Námskeiðsgjald fyrir 10 skipti er 7500kr.
Hlökkum til að sjá ykkur. Stjórn fimleikadeildar UMFS.
Í gær mætti 4. flokkur Selfoss liði Fram í 16-liða úrslitum bikars í Framhúsinu. Leikurinn var dramatískur og spennandi en hann þurfti að tví framlengja og var enn jafnt eftir síðari framlenginguna. Var þá gripið til vítakastkeppni þar sem Selfyssingar unnu hreint magnaðan sigur 40-41 og er liðið því komið í 8-liða úrslita bikarkeppninnar í 4. flokki.
Um helgina lék Selfoss-2 í 3. flokki alls þrjá leiki á norðurlandi um helgina, tvo á Akureyri og einn á Húsavík. Strákarnir unnu Þórsara og Völsunga á laugardeginum en þurftu að játa sig sigraða gegn KA-2 á sunnudeginum. Vissulega tók það mikið á að spila þrjá leiki á innan við sólarhring, sér í lagi þar sem leikirnir við Þór og Völsung voru grófir og tóku mikið á líkamlega. Áttu strákarnir því ekki mikla orku í leiknum gegn KA-2.
Um helgina æfa þeir Svavar Berg Jóhannsson og Pálmi Þór Ásbersson með unglingalandsliðum Íslands í knattspyrnu. Svavar er fæddur 1995 og æfir með u-17 ára landsliðinu og Pálmi er fæddur 1994 og æfir einnig með u-17 áraliðinu sem hefur tryggt sér sæti í milliriðli Evrópumótsins. Pálmi lék á dögunum sinn fyrsta æfingaleik fyrir meistaraflokki Selfoss.
3.flokkur Selfoss þetta tímabilið er afar fjölmennur. Rétt um 30 strákar æfa handbolta með þessum flokki og er því nóg um að vera er kemur að samkeppni, samheldni og dugnaði. Þessi hópur er skemmtilegur að mati síðuritara og hefur hann haft gaman af því að horfa á liðin leika.
Fimleikaæfingar hefjast í dag mánudaginn 3.janúar samkvæmt stundaskrá. Ekki þarf að skrá sig aftur í fimleika sama taflan heldur áfram. Ef iðkandi hættir þarf hinsvegar að tilkynna það. Gleðilegt ár!

