Daníel Jens Pétursson og Ingibjörg Erla Grétarsdóttir, taekwondodeild Umf. Selfoss, hafa verið útnefnd taekwondomaður og taekwondokona ársins 2011 af Taekwondosambandi Íslands. Þetta verður að teljast einstakt afrek hjá taekwondodeild Umf. Selfoss. Þau hafa bæði staðið sig frábærlega á árinu og eru vel að þessu komin.
Föstudaginn 16. desember sl. var haldið jólabingó í Tíbrá fyrir 6. og 7. flokk kvenna í fótbolta. Full mæting var eða um 35 stelpur. Það var mikið fjör og allar stelpurnar skemmtu sér vel. Að loknu jólabingóinu fóru stelpurnar í jólafrí og munu hittast aftur á nýju ári, 4. janúar á sama tíma og venjulega.
Selfoss getraunir bjóða á lokahóf og jólamat haustleiks 2011. Lokahófið verður haldið í Tíbrá laugardaginn 17. desember. Matur verður borinn fram kl. 11:30 og stendur á borðum allt til kl. 13:00. Veittar verða viðurkenningar fyrir árangur vetrarins, dregið í happadrætti unglingaráðs, auk meiri skemmtunar. Hlökkum til að sjá ykkur.
Nú er búið að raða í Lengjubikarinn og eins var á dögunum dregið í Fotbolti.net mótinu. Í Lengjubikarnum erum við í riðli með KR, Breiðabliki, Fram, Haukum, Víkingi Ó., BÍ/Bolungarvík og Þrótti. Síðast vorum við líka með KR og Breiðabliki í riðli, töpuðum 2-1 fyrir KR og unnum Breiðablik 3-0. Í Fotbolti.net mótinu erum við í riðli með Grindavík, ÍBV og Stjörnunni. Hér að neðan kemur leikjadagskrá fyrir alla þessa leiki og ekki vitlaust að setja þá strax inn í dagbókina sína.
Hafsteinsmótið verður haldið sunnudaginn 18. des. í Iðu, íþróttahúsi FSu á Selfossi. Húsið opnar kl. 10 og keppni hefst stundvíslega kl. 10.15. Fólk þarf að gera ráð fyrir að taka upphitun úti ef það þarf lengri upphitun, því við höfum húsið bara í tvo tíma.
HSK-mótið í júdó var haldið í nýja júdósalnum í Sandvíkurskóla 8. desember sl. Um 40 keppendur tóku þátt í mótinu. Þeir yngstu voru 6 ára og sá elsti var 46 ára. Mótið gekk vel fyrir sig og sáust þarna margar flottar viðureignir. Gaman var að sjá yngstu keppendurna sem hafa náð að tileinka sé flotta tækni og þekkingu á júdó.
Það var mikil stemning og troðfullt hús á öllum þremur jólasýningum fimleikadeildar Selfoss laugardaginn 10. desember sl. Vel á annað þúsund manns sótti sýninguna sem tókst vel í alla staði. Sýningin, sem um fjögur hundruð börn tóku í, þótti fjölbreytt og fjörug enda litríkir búningar og skemmtileg sviðsmynd.
Á morgun, þriðjudag, fer fram stórleikur í Vallaskóla þegar 3. flokkur karla mætir liði Aftureldingar í 16-liða úrslitum bikarsins. Leikurinn fer fram klukkan 21:00 og hvetjum við fólk eindregið til þess að mæta á leikinn. Ljóst er að boðið verður upp á hörkuleik annað kvöld en Selfoss er í efsta sæti í 1. deildinni og Afturelding í 3. sæti.
FH-ingar sóttu ákveðna og grimma okkar menn í 2.flokki heim í gær. Fór svo að okkar menn höfðu sigur 32 - 27 eftir að hafa haft yfir í hálfleik 17 - 15.
Ragna Valdís Sigurjónsdóttir leikmaður meistaraflokks kvenna varð fyrir því óláni að slíta krossband í hné á æfingu á dögunum og verður ekkert meira með á þessu keppnistímabili. Þetta er mikið áfall fyrir Selfoss liðið sem er í harðari toppbaráttu í 2.deild Íslandsmótsins.
Yngra ár 4. flokks karla í handbolta, sem eru strákar fæddir 1997, tekur þátt í hinu geysisterka Norðurlandamóti félagsliða yngri flokka - Norden Cup, sem verður í Gautaborg milli jóla og nýárs eða dagana 26.-31. desember. Strákarnir verða með jólatréssölu fyrir framan Sportbæ við Austurveg, sem lið í fjáröflun vegna ferðarinnar. Salan verður eftirtalda daga í desember: 10., 15., 16., 17., 18. og 21. Seld verða úrvalstré frá Skógrækt ríkisins. Vonast strákarnir til að sjá sem flesta koma í heimsókn og versla sér jólatré.
Það ríkti mikil gleði hjá fimleikadeild Umf. Selfoss síðastliðinn fimmtudag þegar nýtt trampólín kom í Baulu, æfingaaðstöðu deildarinnar. Í haust var ákveðið að fara af stað með söfnun fyrir trampólíni og tók foreldraráð meistaraflokks að sér það verkefni. Ákveðið var að selja lakkrís og nota ágóðann í trampólínið góða. Þegar Íslandsbanki frétti af söfnuninni varð hann fyrri til og ákvað að styrkja deildina um eitt stykki trampólín. Er fimleikadeildin þeim ævinlega þakklát fyrir það.
Ungmennafélag Selfoss eignaðist sinn fyrsta Íslandsmeistara í kraftlyftingum á Íslandsmeistaramótinu í réttstöðulyftu sem haldið var í Iðu síðastliðinn laugardag er Stefán Blackburn lyfti 290 kg í -105 kg flokki karla. Rósa Birgisdóttir, Selfossi, átti þyngstu lyftuna í kvennaflokki er hún lyfti 188 kg í +84 kg flokki, en það er jafnframt nýtt Íslandsmet.
Beltapróf taekwondodeildar Umf. Selfoss voru haldin í íþróttahúsinu Iðu sunnudaginn 27. nóvember s.l. Alls voru 96 iðkendur skráðir til prófs og náðu flestir sínum markmiðum. Mikill fjöldi nýrra iðkenda voru að taka sín fyrstu beltapróf og stóðu sig einstaklega vel. Iðkendur komu víða að af Suðurlandi og má þar nefna, Selfoss, Hveragerði, Þorlákshöfn, Stokkseyri, Eyrarbakka, Hellu og ofan af Skeiðum.
Föstudaginn 2. desember verður 4. flokkur kvenna í handbolta með kökubasar í Kjarnanum frá kl. 13. Til sölu verða tertur, smákökur, lagkökur o.fl. Kökubasar þessi er liður í fjáröflun stelpnanna fyrir ferð á Norden Cup í handbolta nú um jólin.

