Beint á leiđarkerfi vefsins

Nýjustu fréttir

Nýjustu fréttir - RSS

30.9.2011 | Nýjustu fréttir

Systkinaafsláttur á milli deilda og fyrir ţá sem ćfa fleiri en eina grein

Á fundi aðalstjórnar Umf. Selfoss sem haldinn var 7. september 2011 var ákveðið að félagið myndi veita systkinaafslátt á milli deilda fyrir tímabilið september - desember 2011 og janúar - maí 2012. Systkinaafsláttur er 1.000 kr. á mánuði fyrir fyrir 2. og 3. barn og gildir fyrir fjölskyldur þar sem börn æfa ekki öll sömu íþróttagrein. Afslátturinn gildir einnig fyrir börn sem æfa fleiri en eina íþróttagrein. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri á skrifstofu Umf. Selfoss.

30.9.2011 | Handbolti

Fyrsti leikurinn í handboltanum í kvöld í Garđabć

Fyrsti leikur meistaraflokks Selfoss í 1. deild karla í handboltanum verður í kvöld og er hann gegn Stjörnunni í Mýrinni í Garðabæ. Hefst leikurinn kl. 20:00. Auk Selfoss og Stjörnunnar eru í 1. deild karla Fjölnir, ÍBV, ÍR og Víkingur. Þar sem liðin eru aðeins sex verður leikin fjórföld umferð. Fyrsti heimaleikurinn er gegn ÍBV fimmtudaginn 6. okt kl. 18:30. Nú er um að gera að setja sig í rétta gírinn og fylgjast með handboltastrákunum.

30.9.2011 | Knattspyrna

Flokkaskipti og vetrarćfingatímar í fótboltanum

Núna í lok september fara fram flokkaskipti hjá yngri flokkum knattspyrnudeildar. Eldri árgangar færast þá upp um flokk. Nýjar æfingatölfur fyrir vetraræfingar taka einnig gildi. Hér á heimasíðunni, þ.e. í efnisflokkum á knattspyrnusíðunni, má finna æfingatíma allra flokka og upplýsingar um þjálfara. Á forsíðunni eru upplýsingar um æfingagjöld.

27.9.2011 | Sund

Ungbarnasund hefst í lok október

Ný námskeið í Guggusundi eða ungbarnasundi sunddeildar Selfoss hefjast 27., 28. og 29.október næstkomandi. Í boði er ungbarnasund 0-2 árs, barnasund 2-4 árs, sundhópar 3-6 ára og sundskóli fyrir börn fædd 2006 og fyrr. Kennt er seinni partinn á fimmtudögum og föstudögum og á laugardagsmorgnum. Skráning er hafi í síma 848 1626 eða á guggahb@simnet.is. Takmarkaður fjöldi er í hvern hóp. Sjá nánar á sundsíðunni Ungbarnasund.

27.9.2011 | Knattspyrna

Lokahóf yngri flokkanna fór fram á laugardaginn

slutt_11_6628Lokahóf unglingaráðs knattspurnudeildar Umf. Selfoss fór fram síðastliðinn laugardag. Hátíðin fór að þessu sinni fram á íþróttavellinum og tókst með ágætum. Óskar Sigurðsson, formaður knattspyrnudeildar, fór yfir árangur ársins og á eftir voru veittar viðurkenningar í öllum flokkum fyrir góðan árangur. Síðan fengu allir grillaðar pylsur og Svala. Hér að neðan má sjá verðlaunahafa 2011.

26.9.2011 | Knattspyrna

Nýr DVD-diskur međ Íslandsmeisturunum í 3. flokki kvenna 2010

Minjaverndarsjóður knattspyrnudeildarinnar hefur gefið út DVD- mynddisk um stelpurnar í 3. flokki sem urðu Íslandsmeistarar 2010. Myndin er listilega samsett af Gunnari Sigurgeirssyni í Filmsýn og kápan hönnuð af Gerði Óskarsdóttur. Kristinn M. Bárðarson hafði umsjón með gerð myndarinnar. Tónlistina völdu stelpurnar sjálfar. Myndin sem kostar 2.000 kr. er seld í Tíbrá hjá Sveinbirni Mássyni framkvæmdastjóra knattspyrnudeildarinnar og á Rakarastofu Björns og Kjartans.

23.9.2011 | Knattspyrna

Nýr hópleikur hefst á laugardaginn

Nýr hópleikur, haustleikur Selfoss getrauna, hefst laugardaginn 24. september. Hægt er að skrá sig til leiks í félagsheimilinu Tíbrá, Engjavegi 50, þar sem við erum með opið hús frá kl. 11:00-13:00 alla laugardaga í vetur. Einnig er hægt að skrá sig í hópleikinn á slóðinni www.tippleikur.is/selfoss. Eflum félagsandann og mætum í Tíbrá á laugardagsmorgnum. Þar er heitt á könnunni og bakkelsi á boðstólum frá Guðnabakaríi.

22.9.2011 | Knattspyrna

Góđur styrkur frá Sveitarfélaginu

Árborg_merkiÁ lokahófi knattspyrnudeildar Umf. Selfoss sem haldið var sl. laugardag færði Eyþór Arnalds deildinni afreksstyrki að upphæð samtals tvær milljónir króna frá Sveitarfélaginu Árborg í tilefni þess að báðir meistaraflokkar félagsins komust upp í efstu deild. Óskar Sigurðsson, formaður deildarinnar, tók við viðurkenningarskjali um framlagið á lokahófinu og þakkaði góðan stuðning. Styrkirnir eru viðurkenning á mikilvægi afreksíþrótta í Árborg og munu án efa nýtast vel í starfi deildarinnar.

21.9.2011 | Knattspyrna

Guđrún og Eva Lind valdar í U-17 ára landsliđshóp

Þær Guðrún Arnardóttir og Eva Lind Elíasdóttir voru valdar í 22 manna hóp u-17 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu. Stelpurnar æfa nú fyrir undankeppni EM sem fram fer í Austurríki í byrjun október. Guðrún er miðvörður og var lykilleikmaður í meistaraflokksliði Selfoss sem vann sér sæti í efstu deild í haust. Hún var svo valin efnilegust á lokahófi félagsins á dögunum. Eva Lind vann sér sæti í byrjunarliði Selfoss eftir mjög góða frammistöðu með 2. og 3. flokki í sumar. Heimasíðan óskar þeim stöllum góðs gengis á landsliðsæfingum.

20.9.2011 | Knattspyrna

Uppskeruhátíđ yngri flokka í knattspyrnu verđur á íţróttavellinum á laugardag kl. 12

Uppskeruhátíð yngri flokka knattspyrnudeildar Umf. Selfoss verður haldin laugardaginn 24. september. Hátíðin fer fram á íþróttavellinum og hefst kl. 12:00. Þar verður m.a. farið yfir árangur sumarsins og veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur. Á eftir verður boðið upp á grillaðar pylsur og Svala. Unglingaráð knattspyrnudeildar hvetur alla iðkendur og foreldra eindregið til að mæta.

20.9.2011 | Knattspyrna

Gumma skorađi eftir 20 sekúndur í landsleik gegn Kasakstan

Í gær fór fram á Selfossi landsleikur hjá stelpunum í U19 landsliði Íslands. Leikurinn sem var í milliriðli EM var gegn Kasakstan. Lokatölur urðu 3:0 fyrir Ísland og komu öll mörkin í fyrri hálfleik. Fyrsta markið kom eftir aðeins 20 sekúndur, en það gerði Guðmunda Brynja Óladóttir. Hildur Antonsdóttir bætti við öðru marki á 26. mínútu og fyrirliðinn Fjolla Shala skoraði þriðja markð mínútu fyrir leikhlé.

20.9.2011 | Frálsíţróttir

Halla María međ Íslandsmet í sleggjukasti á Haustkastmóti HSK

Haustkastmót HSK fór fram á Selfossvelli dagana 8. og 13. september sl. Fimmtudaginn 8. sept. var keppt í kringlukasti og spjótkasti í öllum flokkum hjá báðum kynjum. Þriðjdaginn 13. september var keppt í sleggjukasti og spjótkasti í öllum flokkum hjá báðum kynjum. Í sleggjukastinu náðist mjög góður árangur. Halla María Magnúsdóttir, Selfossi, gerði sér lítið fyrir og setti Íslandsmet í 12 ára flokki stúlkna er hún þeytti sleggjunni 30,09 metra, en gamla metið var 29,03 m. Þetta er að sjálfsögðu einnig HSK met.

19.9.2011 | Knattspyrna

Góđur 3:2 sigur á Haukum í lokaumferđinni

fotbolti_loka_1769Síðasti leikur strákanna 1. deildinni þetta árið fór fram á Selfossvelli á laugardaginn og var gegn Haukum. Úrslit leiksins skiptu engu máli um stöðu liðanna því Selfyssingar höfðu þegar tryggt sé annað sætið í deildinni og sæti í Pepsideildinni næsta sumar. Svo fór að Selfoss vann góðan 3:2 sigur sem var frábær endapunktur á góðu knattspyrnusumri.

18.9.2011 | Knattspyrna

Guđmunda Brynja skorađi í u-19 ára landsleik og landsleikur á Selfossi

KSI_logoÍslendingar unnu Slóvena 2-1 í fyrsta leik í undankeppni Evrópumótsins kvenna u-19. Gumma kom Íslendingum á bragðið með fallegu marki, er hún stakk sér inn fyrir vörn Slóvena og setti boltann örugglega í netið a´la Gumma. Slóvenar jöfnuðu svo leikinn, en Katrín Gylfadóttir úr Val skoraði sigurmark Íslands.

18.9.2011 | Knattspyrna

Sindri Rúnars, Svavar Berg og Birkir Péturs valdir í u-17 ára landsliđshóp

Þeir Sindri Rúnarsson, Svavar Berg Jóhannsson og Birkir Pétursson voru á dögunum valdir til æfinga með u-17 ára landsliði Íslands. Þessir strákar eru allir fæddir árið 1995. Birkir er nú valinn í hópinn í fyrsta sinn. Sindri hefur áður farið á æfingar, en Svavar hefur spilað nokkra leiki með landsliðinu. Birkir spilar sem hægri bakvörður, en Svavar og Sindri eru miðjumenn. Þetta landslið vann Norðurlandamótið á dögunum nokkuð örugglega og er óhætt að segja að þetta sé með efnilegustu árgöngum sem komið hafa upp á Íslandi. Nú eiga strákarnir fyrir höndum undankeppni Evrópumótsins sem fram fer um miðjan október, en þar er Ísland í riðli með Sviss, Grikklandi og Ísrael. Við óskum þeim að sjálfsögðu góðs gengi og óskum þeim til hamingju með þennan áfanga.

16.9.2011 | Knattspyrna

Strákarnir í 2. flokki komust upp í b-deildina

Strákarnir í liði Selfoss/Árborgar í 2. flokki léku síðari leik sinn í úrslitum c-deildar gegn Haukum á Selfossvelli föstudaginn 16. september sl. Selfyssingar tóku fyrri leik liðanna 4-1 og því var ljóst að þeir voru í nokkuð góðri stöðu. Haukar komu reyndar brjálaðir til leiks og gerðu allt sem þeir gátu til að vinna upp þriggja marka forskot. Svo fór að Haukar unnu leikinn 0-2 en samanlagt vann Selfoss/Árborg 4-3.

16.9.2011 | Knattspyrna

Mćtum á Haukaleikinn á morgun

Selfyssingar taka á móti Haukum í lokaumferð Íslandsmótsins á laugardag. Haukar eru það lið sem hefur veitt okkur hvað mesta eftirför á Íslandsmótinu. N er ljóst að þeir eiga ekki möguleika á að fara upp, þar sem Selfyssingar tryggðu sér Pepsídeildarsæti sl. laugardag með góðum 1-3 sigri á ÍR. Haukar gerðu á sama tíma jafntefli við Þrótt og eru 8 stigum á eftir Selfossi.

16.9.2011 | Handbolti

Hörđur Bjarnarson: Munum leggja okkur 100% fram

Höddi BÞað styttist óðum í að tímabilið hefjist í handboltanum. Undirbúningur Selfyssinga stendur nú sem hæst og menn að koma sér í sitt besta form fyrir veturinn. Heimasíðan tók viðtal við Hörð Bjarnarson fyrirliða Selfoss liðsins og kannaði stöðuna á liðinu. Hörður sagðist vera spenntur fyrir vetrinum og hafði trú á ungu liði Selfyssinga.

14.9.2011 | Knattspyrna

Knattspyrnuslútt Selfoss á laugardaginn

Lokahóf knattspyrnudeildar Umf. Selfoss "Slúttið" verður haldið á Hvíta húsinu laugardagskvöldið 17. september næstkomandi. Þar munu leikmenn meistaraflokkanna og 2. flokks karla og kvenna fagna góðri uppskeru sumarsins. Knattspyrnumenn og aðrir velunnarar eru hvattir til að mæta og enda frábært fótboltasumar saman á einu glæsilegasta slútti til þessa. Enn er hægt að kaupa miða í Blómavali á Selfossi.

14.9.2011 | Frálsíţróttir

Lokamót Umf. Selfoss fyrir 14 ára og yngri

Lokamót_2011_4962Iðkendur yngri flokka frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss komu saman á frjálsíþróttavellinum þriðjudaginn 23. ágúst og spreyttu sig í nokkrum  frjálsíþróttagreinum. Góð mæting var á mótið sem var nokkurs konar endapunktur á sumarstarfinu og stóðu krakkarnir sig með mikilli prýði.

14.9.2011 | Knattspyrna

Strákarnir komnir í Pepsi-deildina ađ nýju

Selfyssingar tryggðu sér sæti í efstu deild karla á nýjan leik eftir öruggan 1-3 sigur á ÍR á laugardaginn. Það voru ekki margir sem höfðu trú á því að Selfyssingar myndu gera eitthvað í 1. deildinni eftir að hafa fallið úr Pepsideild sl. haust og misst í kjölfarið 10 leikmenn. Einhugur var hjá stjórn, leikmönnum og þeim er starfa í kringum liðið um að gefa í og koma liðinu í efstu deild á nýjan leik. Viðar Örn Kjartansson skoraði öll mörk Selfoss og er í ágætis möguleika að tryggja ná í gullskóinn.

12.9.2011 | Frálsíţróttir

Fjóla Signý Íslandsmeistari í sjöţraut

Fjóla Signý í grindÍslandsmeistaramótið í fjölþrautum fór fram á Akureyri um síðustu helgi. Fjóla Signý Hannesdóttir náði þeim glæsilega árangri að verða Íslandsmeistari í sjöþraut með 4689 stig sem er bæting um 407 stig. Fjóla Signý náði að bæta sinn besta árangur í fjórum greinum af sjö þrátt fyrir að hitastigið væri einungis um 5 gráður þessa helgina á Akureyri.

12.9.2011 | Handboltaakademía

4. flokkur kvenna spilar í 1. deild í vetur

Á laugardaginn spilaði 4. flokkur kvenna í forkeppni fyrir Íslandsmótið í Vallaskóla. Andstæðingarnir voru KA/Þór og Fjölnir. Stelpurnar unnu báða leikina og spila því í 1. deild í vetur. KA/Þór fer í milliriðil og Fjölnir spilar í 2. deild.

12.9.2011 | Knattspyrna

Glćsilegur sigur hjá 2. flokki

Á sunnudag kepptu strákarnir í 2. flokki fyrri úrslitaleik sinn við Hauka um sigur í c-deildinni. Selfyssingar stóðu sig frábærlega í leiknum og unnu 1-4. Mörk Selfoss skoruðu þeir Reynir Óskarsson 2 og Sene Abdulha 2 mörk, en samvinna þeirra var til fyrirmyndar.

12.9.2011 | Handbolti

4. flokkur karla í efri deild

4. flokkur karla vann forkeppni sína sannfærandi um helgina. Liðið lék tvo leiki á sunnudag, fyrri gegn KR og sá síðari gegn Val. Gegn KR leiddi Selfoss frá byrjun en náði ekki að hrista KR-inga frá sér fyrr en eftir 15 mínútna leik þá jók liðið muninn úr einu marki í fjögur og leiddi 12-8 í hálfleik

9.9.2011 | Handbolti

Fyrstu leikirnir í 4. flokki

4. flokkur karla og kvenna leika um helgina í forkeppni fyrir veturinn en bæði lið halda sína riðla á Selfossi. Stelpurnar leika á laugardag og strákarnir á sunnudag. Leikir Selfoss liðanna fara fram báða daga klukkan 14 og 15 í Vallaskóla og er um að gera fyrir fólk að kíkja á leikina. Nánara leikjaplan er hér...

9.9.2011 | Handbolti

Sameiginlegur foreldrafundur hjá yngri flokkum í handbolta

JanusSameiginlegur foreldrafundur hjá yngri flokkum í handbolta verður miðvikudaginn 14. september kl. 18:00 í Iðu íþróttahúsi FSu.

9.9.2011 | Knattspyrna

Útileikur viđ ÍR á laugardaginn

Selfyssingar fara í Breiðholtið á laugardaginn kl. 16:00 til að sækja það stig sem vantar uppá til að tryggja sæti í efstu deild að ári. Nú þurfa allri að mæta í bæinn og hvetja strákana.

8.9.2011 | Handbolti

Viđtal viđ Arnar Gunnarsson meistaraflokksţjálfara

035Heimasíðan tók Arnar Gunnarsson nýráðinn meistaraflokksþjálfara í viðtal og spurði hann spjörunum úr. Arnar hefur starfað lengi í kringum handboltann á Selfossi og er nú á sínu fyrsta ári sem aðalþjálfari meistaraflokks. Hann segist m.a. vera stoltur að því að geta stillt upp liði sem einungis er skipað heimamönnum og að þeir muni leggja sig alla fram á komandi tímabili.

7.9.2011 | Fimleikar

Íţróttaskóli Barnanna haust 2011

Íþróttaskóli barnanna hefst að nýju laugardaginn 10.september.  Um er að ræða 10 skipti fyrir börn fædd 2009-2007.  Börn fædd 2009 mæta klukkan 10:00-10:50 en börn fædd 2008 og 2007 mæti klukkan 11:00-11:50.  Skráning fer fram á staðnum frá klukkan 9:30-11:30.  Gjaldið er krónur 7500 og skal það greitt við skráningu.  Með umsjón íþróttaskólans fer Steinunn H. Eggertsdóttir og Heiðrún Jóhanna Heiðarsdóttir.
Á sama tíma á laugardaginn mun fara fram skiptibolamarkaður þar sem fólk getur komið með notaða boli og skipt í stærri/minni boli eða selt á sanngjörnu verði.
Hlökkum til að sjá ykkur, Stjórn fimleikadeildar Selfoss

7.9.2011 | Nýjustu fréttir

Langar ţig á ráđstefnuna Ungt fólk og lýđrćđi?

Ungmennafélag Íslands heldur ungmennaráðstefnu sem ber yfirskriftina „Ungt fólk og lýðræði" á Hótel Örk í Hveragerði dagana 22. - 24. september næstkomandi. Ráðstefnan er ætluð ungu fólki á aldrinum 16-25 ára. Fjöldi þátttakenda verður takmarkaður við áttatíu manns.

6.9.2011 | Handbolti

Góđ ferđ til Noregs

Falk EliteStrákarnir fæddir 1997 í handboltanum sem fóru á Falk Elite Turnering mótið um seinustu helgi enduðu í 2. sæti. Liðið vann alla leiki sína í riðlinum örugglega og svo Norrköping í undanúrslitum 25-19. Í úrslitaleiknum mætti liðið Silwing/Troja sem kemur frá Stokkhólmi en Selfoss hafði unnið það lið áður í mótinu sannfærandi.

6.9.2011 | Knattspyrna

Jón Dađi leikmađur 20. umferđar 1. deildar

Jón Daði Böðvarsson, leikmaður Selfoss, var valinn leikmaður 20. umferðar í 1. deild karla af fótboltasíðunni fotbolti.net. Jón Daði átti frábæran leik er Selfoss vann BÍ/Bolungarvík 4:3 á Selfossi sl. laugardag. Frétt ásamt viðtali við Jón Daða má lesa á erftifarandi link: http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=114307 Þess má geta að fyrr í sumar var Jón Daði valinn leikmaður 6. umferðar.

6.9.2011 | Frálsíţróttir

Teitur Örn međ Íslandsmet í kringlukasti 13 ára

teitur_orn_6430Teitur Örn Einarsson gerði sér lítið fyrir og bætti 8 ára gamalt Íslandsmet í kringlukasti 13 ára drengja á kastmóti fyrir 12-14 ára sem haldið var á Selfossvelli 31. ágúst og 1. september sl. er hann kastaði 39,24 metra. Gamla Íslandsmetið var 38,92 metrar. Á sama móti kastaði Halla María Magnúsdóttir mjög vel í kúluvarpi eða 11,65 m og vantaði einungis um 20 cm upp á að setja einnig Íslandsmet.

5.9.2011 | Frálsíţróttir

Úrslit í Brúarhlaupi Selfoss 2011

Brúarhlaup Selfoss fór fram laugardaginn 3. september síðastliðinn. Úrslit í hlaupinu má sjá hér að neðan.

5.9.2011 | Handboltaakademía

3. flokkur karla spilar í 1. deild í vetur

hsi_logoÍ gær fór fram forkeppni í 3. flokki karla í Vallskóla. Selfoss var í B-riðli og fékk að halda keppnina á heimavelli vegna góðs árangurs í deildarkeppninni í fyrra. Önnur lið í riðlinum voru ÍR og frændur okkar úr ÍBV.

5.9.2011 | Handbolti

HK-ingar unnu Ragnarsmótiđ - Selfoss í 4. sćti

Ragnarsmótinu lauk með úrslitaleikjum á laugardaginn. HK-ingar báru sigurorð af Haukum í úrslitaleiknum 29:21. Fram vann Selfoss 28:24 í leik um 3. sætið og Afturelding vann Gróttu 32:30 í leik um 5. sætið. Úrslit og viðurkenningar á mótinu má sjá hér að neðan.

4.9.2011 | Handbolti

97 liđiđ í úrslit í Noregi!

Selfoss liðið sem leikur í 1997 keppninni á Falk Elite Turnering mótinu í Noregi er komið í úrslit eftir 6 marka sigur, 25-19, á Norrköping í undanúrslitum. Kl. 14:45 að íslenskum tíma mætir liðið Silwing/Troja í úrslitaleik. Selfyssingar unnu sama lið í riðlakeppninni í gær og stefna á sigur á mótinu.
Áfram Selfoss!

2.9.2011 | Handbolti

Sigur í fyrsta leik á Falk Elite Turnering

Strákarnir fæddir 1997 unnu í dag fyrsta leikinn á Falk Elite Turnerning mótinu í Noregi. Lokatölur urðu 22-18 sigur Selfoss. Liðið leikur tvo leiki á morgun í riðlakeppninni,
Á heimasíðu strákanna http://selfossnorden.wordpress.com/ er hægt að lesa nánar um leikina og ferðina almennt. Strax í hálfleik eru hálfleikstölur uppfærðar og eftir lokatölur koma inn um leið og leik líður.

2.9.2011 | Knattspyrna

Strákarnir eiga leik gegn BÍ/Bolungarvík á laugardaginn kl. 14

Selfyssingar taka á móti BÍ/Bolungarvík á Selfossvelli á morgun laugardag kl. 14:00 í 1. deild karla. Ástæða er til að hvetja alla stuðningsmenn Selfoss til að mæta á völlinn og hvetja liðið. Góður stuðningur getur skipt sköpum. Strákarnir eru í hörku baráttu um að fara upp í Pepsi-deildina með Skagamönnum. Selfoss er sem stendur í 2. sæti með 38 stig á meðan Haukar koma í humátt á eftir með 35 stig, en hafa leikið einum leik fleira. MÆTUM Á VÖLLINN OG HVETJUM SELFOSS. 

1.9.2011 | Handbolti

Haukar og HK međ sigra í fyrstu leikjum Ragnarsmótsins

Ragnarsmótið hófst í gær með tveimur leikjum. Í fyrri leiknum unnu Haukar Fram 28:22 og í þeim síðari unnu HK-ingar Aftureldingu 31:24. Í dag fimmtudag 1. sept eigast við HK og Selfoss í fyrri leiknum kl. 18:30 og síðan Haukar og Grótta kl. 20:00. Aðgangur að leikjunum er ókeypis og því um að gera að skella sér í íþróttahús Vallaskóla og sjá skemmtilegan handbolta.

Á nćstunni

18.5.2012 | Knattspyrna
22.5.2012 | Knattspyrna
24.5.2012 | Knattspyrna
31.5.2012 | Knattspyrna
2.6.2012 | Frjálsíţróttir
4.6.2012 | Knattspyrna


Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta