Beint á leiđarkerfi vefsins

Nýjustu fréttir

Nýjustu fréttir - RSS

18.5.2012 | Sund

Sundnámskeiđ fyrir 5 og 6 ára börn

Selfoss_merki_2011_netÁrlegt vornámskeið Sunddeildar Umf. Selfoss verður haldið dagana 7.-20. júní í Sundhöll Selfoss. Námskeiðið er ætlað börnum fæddum 2006 og 2007. Einnig verður hópur fyrir börn sem byrjuð eru í skóla og vilja bæta kunnáttuna. Skráningu lýkur 4. júní. Kennari á námskeiðinu er Guðbjörg H. Bjarnadóttir íþróttakennari. Verð 10.000 kr. fyrir 10 kennslustundir. Skráning á guggahb@simnet.is eða í síma 848-1626.

16.5.2012 | Knattspyrna

Ćfingar hjá 8. flokki hefjast úti í dag

Í dag, miðvikudaginn 16. maí, hefjast úti æfingar hjá 8. flokki. Æfingar eru á gervigrasvellinum kl. 17.15-18.00 og eru fyrir stráka og stelpur fædd 2006-2007. Kv. Hafdís Jóna þjálfari.

16.5.2012 | Frálsíţróttir

Vormót HSK á Selfossvelli laugardaginn 19. maí

HSK_merkiFrjálsíþróttaráð HSK býður til Vormóts HSK á Selfossi, sem um leið er fyrsta mótið af sex í Mótaröð FRÍ sumarið 2012. Vormótð verður haldið laugardaginn 19. maí á Selfossvelli og hefst það kl. 13:00. Keppt verður í 18 greinum á vormótinu.

16.5.2012 | Frálsíţróttir

5. Grýlupottahlaupiđ

Hér koma úrslit úr 5. Grýlupottahlaupinu sem fram fór 12. maí.:

15.5.2012 | Handbolti

Lokahóf yngri flokka handknattleiksdeildar Umf. Selfoss verđur föstudaginn 18.maí

Lokahóf yngri flokka handknattleiksdeildar Umf. Selfoss verður haldið föstudaginn 18. maí  í
íþróttahúsi Sólvallaskóla frá  kl. 17-18. Á dagskránni er verðlaunaafhending, myndataka og grillveisla. Foreldrar og forráðamenn eru eindregið hvattir til að mæta með krökkunum.

15.5.2012 | Frálsíţróttir

Frjálsíţróttaţjálfari óskast

Selfoss_merki_2011_netFrjálsíþróttadeild Umf. Selfoss óskar eftir að ráða þjálfara fyrir meistaraflokk félagsins (15 ára og eldri). Meistaraflokkur félagsins æfir á nýjum glæsilegum frjálsíþróttavelli fjóra til fimm daga vikunnar. Möguleiki er á að þjálfa hluta æfinganna og vera í samstarfi við annan þjálfara. Mjög margir efnilegir unglingar æfa hjá deildinni og eru mjög mörg spennandi verkefni í sumar. Nánari upplýsingar veitir Sigríður Anna Guðjónsdóttir í síma 892-7052 og í netfangi helgihar@simnet.is.

14.5.2012 | Knattspyrna

Leik Selfoss og FH frestađ til morguns

KSÍ tilkynnti fyrir skömmu að búið væri að færa tvo leiki í Pepsi-deildinni til morguns og fara þeir því fram annað kvöld kl. 19:15. Þetta eru leikir Selfoss og FH annars vegar og Breiðabliks og Vals hins vegar.

10.5.2012 | Frálsíţróttir

Úrslit úr 4. Grýlupottahlaupinu

Úrslit í 4. Grýlupottahlaupinu sem fram fór 5. maí voru eftirfarandi:

9.5.2012 | Mótokross

Selfoss partur af bikarmótaröđ Suzuki í motocrossi - Fyrsta keppni 17. maí

Sett hefur verið á laggirnar ný bikarmótaröð í samvinnu við Suzuki umboðið á Íslandi sem verður í formi stigakeppni. Keppt verður í þriggja móta röð og eru glæsileg aðalverðlaun í boði. Má þar fyrst og fremst nefna keppnisstyrk frá Suzuki fyrir allt árið 2013

9.5.2012 | Júdó

Grímur og Úlfur frábćrir, en Egill stal senunni

judo_25Vormót Júdósambands Íslands var haldið laugardaginn 21. apríl s.l. hjá Júdofélagi Reykjavíkur í Ármúla 17a. Mjög góð þátttaka var í mótinu og fjöldi áhorfenda. Fimm keppendur frá júdódeild Umf. Selfoss tóku þátt í mótinu, þeir Egill Blöndal, Grímur Ívarsson, Úlfur Böðvarsson, Halldór Ingvar Bjarnason, Hrafn Arnarsson og Bjartþór Böðvarsson. Árangur keppenda var góður.

8.5.2012 | Mótokross

Góđ byrjun á sumarinu hjá Umf. Selfoss

Fyrsta umferðin á Íslandsmótinu í mótokrossi fór fram í Bolaöldum þann 5. maí s.l. Veðrið var upp á sitt besta fyrir keppendur og áhorfendur. Rúmlega 80 keppendur voru skráðir til leiks og þar af voru 5 meðlimir motocrossdeildar Umf. Selfoss sem stóðu sig mjög vel.

7.5.2012 | Handbolti

Myndir af Íslandsmeisturum 2012

Eins og fram hefur komið urðu tvö Selfoss lið Íslandsmeistarar um helgina í handknattleik. 4. flokkur kvenna B vann Fylki í dramatískum leik 11-12 og 3. flokkur karla vann Val 31-25. Við birtum hér myndir af þessu frábæra íþróttafólki okkar sem á svo sannarlega framtíðina fyrir sér.

7.5.2012 | Handboltaakademía

3 f. karla varđ Íslandsmeistari um helgina

Í lokaleik laugardagsins áttust við Selfoss og Valur. Leiknum lauk með sigri Selfoss 31-25 en staðan í hálfleik var 14-13 fyrir Selfoss. Þar með unnu strákarnir 2 af 3 titlum vetrarins. Til hamingju með það strákar.

7.5.2012 | Handboltaakademía

4 fl. kvenna A liđ fékk silfriđ

Á laugardaginn þegar keppt var um Íslandsmeistaratitlana þá urðu stelpurnar í A liðinu að lúta lægra haldi fyrir liði Fram. Leikurinn tapaðist 24-17 en staðan í hálfleik var 11-7 fyrir Fram.

7.5.2012 | Handboltaakademía

4 fl. kvenna B liđ Íslandsmeistari

Á laugardaginn gerðu stelpurnar sér lítið fyrir og unnu Fylki í úrslitaleiknum 11-12 og eru því Íslandsmeistarar. Staðan í hálfleik var 5-7 fyrir okkar stelpur.

7.5.2012 | Handboltaakademía

Tveir tiltar í hús um helgina

Selfyssingar urðu um helgina Íslandsmeistarar í handbolta í 3. flokki karla og í 4. flokki kvenna-B. Úrslitaleikir í yngri flokkunum fóru fram að Ásvöllum í Hafnarfirði. Leikurinn hjá 3. flokki karla gegn Valsmönnum var spennandi lengst um og jafn framan af. Staðan var 14-13 í hálfleik en Selfoss hafði betur undir lokin og landaði að lokum öruggum sigri, 31-25. Maður leiksins var valinn Gísli Axelsson leikmaður Selfoss en hann skoraði 7 mörk í leiknum ásamt því að leiða varnarleik liðsins.

2.5.2012 | Frálsíţróttir

Úrslit úr 3. Grýlupottahlaupinu

Þriðja Grýlupottahlaupið fór fram laugardaginn 28. apríl. Úrslit urðu eftirfarandi:

2.5.2012 | Handboltaakademía

Selfoss međ ţrjú liđ í úrslitum

Á laugardaginn fara fram úrslitaleikir yngri flokka á Íslandsmótinu í handbolta. Selfoss á fulltrúa í þremur leikjum af sjö. Selfoss átti lið í 8-liða úrslitum í öllum flokkum ásamt því að 6.flokkur varð Íslandsmeistari og 6.flokkur kvenna náði 2. sæti á Íslandsmótinu.

4.& 2. flokkur karla misstu naumlega af sæti í úrslitum en báðir þessir flokkar léku til úrslita í bikarkeppninni, þar sem 2.flokkur vann eftirminnilegan sigur.

Það er ástæða að hvetja alla að mæta á Ásvelli í Hafnarfirði og hvetja Selfoss til sigurs.

2.5.2012 | Handboltaakademía

4 fl. kvenna B liđ komst í úrslitaleikinn

Stepurnar í B liðinu fylgdu í kjölfarið á A liðinu og 3 fl. karla og tryggðu sér sæti í úrslitaleik Íslandsmótsins á laugardaginn með sigri á Fram í framlengingu 18-19.

30.4.2012 | Taekwondó

Selfoss međ 11 gull, 10 silfur og 10 brons á 3. bikarmóti TSÍ

tki3-april-302Á 3. og síðasta bikarmóti í TKÍ bikarmótaröðinni 2011-2012, sem fór fram 21.-22. apríl sl., sendi Selfoss 37 keppendur til leiks. Er skemmst frá því að segja að af þessum 37 keppendum fóru 31 á pall. Allir keppendur stóðu sig með stakri prýði og voru félagi sínu til mikils sóma.

30.4.2012 | Fimleikar

Hiđ árlega minningarmót um Magnús Arnar Garđarsson á laugardaginn

Hið árlega minningarmót um Magnús Arnar Garðarsson verður haldið á laugardaginn kemur þann 5. maí í íþróttahúsi Vallaskóla. Mótinu er tvískipt. Í fyrri hluta keppa iðkendur í byrjendareglum og landsreglum í 5. flokki, en í seinni hluta keppa eldri iðkendur í teamgym og 3. og 4. flokki landsreglna. Fyrri hluti hefst klþ 9:50, en seinni hlutinn hefst kl. 13:30. Aðgangur ókeypis.

29.4.2012 | Handboltaakademía

Strákarnir í 3. flokki A komnir í úrslit

Fyrr í kvöld unnu strákarnir í 3. flokki A sigur á Gróttu og eru því komnir í úrslitaleikinn á Íslandsmótinu. Leikurinn endaði 25-18 eftir að Selfoss hafði leitt í hléinu 14-8. Til hamingju allir Selfyssingar.

29.4.2012 | Handboltaakademía

Stelpurnar í 4. flokki A-liđa komnar í úrslit

Fyrr í dag unnu stelpurnar í 4. flokki A ótrúlega sætan sigur á ÍBV 18-17 þar sem sigurmarkið kom á lokaandartökum leiksins. Til hamingju allir Selfyssingar.

28.4.2012 | Nýjustu fréttir

Ólöf Eir međ besta afrekiđ.

Aldursflokkamót HSK í sundi fór fram á Hvolsvelli laugardaginn 28. apríl. Um er að ræðaBesta afrekið Ólöf
einstaklingskeppni svo og stigakeppni þáttökufélaga. Hamar í Hveragerði vann stigakeppnina í ár, 119 stig, Selfoss fékk 111 stig, Dímon á Hvolsvelli fékk 64 stig, Íþróttafélagið Garpur fékk 15 stig og UMFH fékk 5 stig. 

27.4.2012 | Nýjustu fréttir

Kristín Bára nýr formađur Umf. Selfoss

adalfundur_2012-124Aðalfundur Umf. Selfoss var haldinn í félagsheimilinu Tíbrá fimmtudaginn 26. apríl sl. Fundurinn var vel sóttur, en þess má geta að allir kjörnir fulltrúar, 51 að tölu, mættu á fundinn, auk gesta og velunnara félagsins. Kristín Bára Gunnarsdóttir var kjörin formaður félagsins, en Grímur Hergeirsson lét af embætti eftir tvö ár í formannsstóli. Mótokrossdeild félagsins fékk afhenta viðurkenningu sem  fyrirmyndardeild ÍSÍ og þau Fjóla Signý Hannesdóttir og Jón Daði Böðvarsson voru útnefnd íþróttamaður og íþróttakona Umf. Selfoss.

27.4.2012 | Handboltaakademía

Tveir undanúrslitaleikir í Vallaskóla á sunnudaginn

Heimasíðan vill vekja athygli á því að á sunnudag verða tveir leikir í undanúrslitum Íslandsmótsins í Vallaskóla og á þriðjudaginn 1. maí verður einn leikur á útivelli. Við hvetjum alla til að mæta og hvetja krakkana til dáða. 

27.4.2012 | Frálsíţróttir

Úrslit úr 2. Grýlupottahlaupinu 21. apríl

Hér að neðan má sjá úrslit í 2. Grýlupottahlaupinu sem fram fór 21. apríl. Næsta hlaup er laugardaginn 28. apríl. Mæting kl. 10:30 við félagsheimilið Tíbrá við Engjaveg.

25.4.2012 | Handbolti

Tímabiliđ búiđ hjá 4. fl. karla

Bæði liðin í 4. flokki karla féllu á dögunum úr leik í 8-liða úrslitum.

25.4.2012 | Sund

Nýtt námskeiđ hefst í maí í Guggusundi - Ungbarnasundi

Nýtt byrjendanámskeið í Guggusundi - Ungbarnasundi hefst í byrjun maí. Kenndir verða 9 tímar á 5-6 vikum.  Skráning er hafin á guggahb@simnet.is eða í síma 848-1626. Kennari á námskeiðinu er Guðbjörg H. Bjarnadóttir íþróttakennari sem hefur rekið sundskólann „Guggusund" í 20 ár í samstarfi við sunddeild Umf. Selfoss.

25.4.2012 | Fimleikar

Fimleikastelpur selja eplakökur 1. maí

Stúlkur á aldrinum 13-16 ára úr fimleikadeild Selfoss efla til fjáröflunar þann 1. maí nk. Þær ganga í hús og selja nýbakaðar eplakökur á 1.000 kr. stk. Stúlkurnar eru að safna fyrir sýningar- og æfingaferð á Eurogym 2012 sem haldin er í Portúgal í júlí nk.

24.4.2012 | Handbolti

Úrslitaleikur gegn Aftureldingu

Selfoss og Alfurelding eigast við í kvöld að Varmá í þriðja leik sínum í umspili um laust sæti í N1 deild karla. Hefst leikurinn kl. 19:30. Afturelding vann fyrsta leikinn 30:25, en Selfoss jafnaði metin í öðrum leik 26:25. Þriðji leikurinn er því hreinn útslitaleikur um hvort liðið leikur við Stjörnuna um sæti í N1 deildinni. Nú er um að gera að skella sér í Mosfellsbæinn og hvetja Selfoss-strákana. Áfram Selfoss!!!

23.4.2012 | Handboltaakademía

3. fl. kvenna úr leik í 8-liđa úrslitum

Á laugardaginn töpuðu stelpurnar í 3. flokki fyrir Bikar- og Deildarmeisturum Hauka í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Leikurinn endaði 28-20 fyrir Hauka.

20.4.2012 | Handboltaakademía

4. fl. kvenna A-liđ komnar í undanúrslit

Í gær unnu stelpurnar lið HK í 8-liða úrslitum 25-14 en staðan í hálfleik hafði verið 12-7. Þær eru því komnar í undanúrslit á Íslandsmótinu.

19.4.2012 | Handbolti

Hörđur Bjarnarson: „Erum búnir ađ vera bćta okkur jafnt og ţétt í allan vetur“

Heimasíðan heldur áfram að hita upp fyrir umspilsleikina gegn Aftureldingu. Í kvöld fer fram fyrsti leikurinn í einvíginu og verður leikurinn kl. 19:30 í Mosfellsbæ.
Það er fyrirliðinn Hörður Gunnar Bjarnarson sem situr fyrir svörum að þessu sinni.

19.4.2012 | Handboltaakademía

3 fl. karla kominn í undanúrslit

Í gær unnu strákarnir lið Stjörnunnar í framlengdum leik 39-36 en staðan að venjulegum leiktíma loknum var 32-32.

18.4.2012 | Handbolti

Matthías í viđtali fyrir einvígiđ gegn Aftureldingu

Matti

Á morgun, fimmtudag, leikur meistaraflokkur karla fyrsta leikinn í umspilinu um sæti í efstu deild. Kl. 19:30 mæta Selfyssingar liði Aftureldingar í Mosfellsbæ og er von á hörku einvígi. Hvetjum við alla Selfyssinga til að mæta og styðja við bakið á strákunum sem koma inn í umspilið í toppformi.
Í upphitun fyrir leikinn fékk heimasíðan Matthías Örn Halldórsson til að svara nokkrum spurningum um einvígið.

18.4.2012 | Frálsíţróttir

Úrslit í 1. Grýlupottahlaupinu 14. apríl

Hér að neðan má sjá úrslit í 1. Grýlupottahlaupinu sem fram fór 14. apríl. Næsta hlaup er laugardaginn 21. apríl. Mæting kl. 10:30 við félagsheimilið Tíbrá við Engjaveg.

18.4.2012 | Handboltaakademía

B-liđ 4. fl. kvenna komnar í undanúrslit

Stelpurnar unnu Gróttu í gær 23-11 og eru því komnar í undanúrslit Íslandsmótsins. Staðan í hálfleik var 9-6 fyrir Selfoss.

16.4.2012 | Handboltaakademía

Allir flokkar Selfoss í 8-liđa úrslitum

Frábær uppskera vetrarins í yngri flokkum Selfoss er að koma í ljós. Árangur félagsins í deildinni og bikarkeppninni var góður og nú eru allir flokkar félagsins komnir í 8-liða úrslit Íslandsmótsins.

16.4.2012 | Handboltaakademía

3. fl. kvenna vann Stjörnuna og eru komnar í 8-liđa úrslit

Stelpurnar spiluðu í umspili um laust sæti í úrslitakeppninni í gær og unnu lið Stjörnunnar á útivelli 23-24.

14.4.2012 | Fimleikar

Selfoss međ tvenn bronsverđlaun á Íslandsmótinu í hópfimleikum í dag

Úrslit í fjölþraut Íslandsmótsins í hópfimleikum fór fram í Ásgarði í dag.  Mótið verður sýnt á RUV á morgun laugardag klukkan 13:30.  Blandað lið Selfoss keppti við tvö önnur lið annað frá Gerplu sem er á leið á NM juniora í Svíþjóð og svo hinsvegar við blandað lið Stjörnunnar og Ármanns. Kvennalið Selfoss HM1 átti mjög góða keppni en þær fengu yfir 15 stig á öllum áhöldum sem er mjög gott.  Þær áttu fyrst dýnu og sýndu þar fínar æfingar en eiga aðeins inni í erfiðleika þar og ætla að bæta honum inn í úrslitum á morgun. Hvetjum alla til að leggja leið sína í Ásgarð á morgun laugardag kl:14:50 og horfa á glæsilega fimleika.

10.4.2012 | Frálsíţróttir

43. Grýlupottahlaup frjálsíţróttadeildar hefst laugrdaginn 14. apríl

Grýlupottahlaup Selfoss 2012 hefst laugardaginn 14. apríl næstkomandi. Er þetta í fertugasta og þriðja skipti sem hlaupið er haldið. Grýlupottahlaupið er 850 metra langt. Tveir og tveir hlaupa saman og er ræst með 10 sekúndna millibili. Þátttakendur eru á öllum aldri og er aðalatriðið að vera með. Hlaupið fer fram sex laugardaga í röð. Fyrsta hlaupið er 14. apríl, síðan 21. apríl, 28. apríl, 5. maí, 12. maí og 19. maí.

10.4.2012 | Handboltaakademía

Landsbankamótiđ í 7. flokki fer fram um helgina

handboltakallUm helgina fer fram á Selfossi hið árlega Landsbankamót í handbolta. Nú er í annað skipti keppt í 7. flokki drengja og stúlkna 10 ára og yngri. Handknattleiksdeild Umf. Selfoss heldur mótið sem er jafnframt hluti af Íslandsmeistaramótinu. Um 700 keppendur eru skráðir á mótið á Selfoss þessa helgi. Búast má við að annar eins fjöldi af foreldrum og liðstjórum heimsæki Selfoss. Alls eru 175 lið skráð til leiks, en leikið verður í íþróttahúsi Vallaskóla og Iðu. Liðin gista í Vallaskóla og eru þar í mat.

3.4.2012 | Handboltaakademía

A- og B-liđ 4. flokks kvenna unnu bćđi um helgina

A-liðið vann KA 21-27 fyrir norðan og B-liðið vann FH 19-16 á heimavelli um síðustu helgi.

3.4.2012 | Handbolti

Sautján Selfyssingar á ungalandsliđsćfingum HSÍ

HSI_logoSelfoss á 17 leikmenn á unglingalandsliðsæfingum á vegum Handknattleikssambands Íslands nú um páskana, fleiri en nokkurt annað félag. Þeir Ómar Ingi Magnússon, Sævar Ingi Eiðsson, Árni Guðmundsson og Guðjón Ágústsson æfa með U16 ára liðinu. Gísli Þór Axelsson, Jóhann Erlingsson, Sverrir Pálsson, Daníel Arnar Róbertsson og Janus Daði Smárason æfa með U18 ára liðinu sem undirbýr sig fyrir undankeppni Evrópumótsins sem fram fer í Tyrklandi um miðjan apríl.  Janus Daði var einnig valinn í U21 árs landsliðið en hann er aðeins 17 ára gamall, og því þremur árum yngri en flestir leikmenn liðsins. Þær Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Thelma Björk Einarsdóttir, Helga Rún Einarsdóttir, Harpa Brynjarsdóttir, Elena Birgisdóttir, Dagmar Öder Einarsdóttir, Katrín Magnúsdóttir og Þuríður Guðjónsdóttir æfa allar með unglingalandsliðum kvenna.

3.4.2012 | Júdó

Ţór og Egill börđust um 3. sćtiđ í opna flokknum

judo-mars12-25Íslandsbmótið í júdó var haldið laugardaginn 24. mars síðastliðinn í Laugardalshöllinni. Mjög góð þátttaka var í mótinu og fjöldi áhorfenda. Sex keppendur voru frá júdódeild Umf. Selfossi. Þór Davíðsson, Eyþór Óskarsson og Trostan Gunnarsson kepptu í -90kg flokki og Egill Blöndal, Árni Þór Þorsteinsson og Sævar Ingi Rúnarsson í -81kg flokki. Auk þess kepptu Þór Davíðsson og Egill Blöndal í opnum flokki. Þeir Þór og Egill vöktu verðskuldaða athygli fyrir árangur sinn og náði Þór bronsinu í sínum þyngdarflokki -90kg og opnum flokki. Egill Blöndal náði bronsi í -81kg flokki.

2.4.2012 | Handbolti

Frábćr leikur hjá 4. fl. B

Strákarnir í B-liði 4. flokks léku gegn Stjörnunni í dag og var leikurinn síðasti deildarleikur þessa keppnistímabils. Það er skemmst frá því að segja að Selfyssingar léku frábærlega í leiknum og unnu að lokum 32-26 sigur.

2.4.2012 | Mótokross

Nýtt fréttabréf mótokrossdeildar komiđ út

frettabref-forsidaMotocrossdeild UMFS hefur gefið út nýtt fréttabréf. Þar eru m.a. kynntar fyrirhugaðar framkvæmdir á félagssvæði deildarinnar við Hrísmýri ásamt æfingaplani sumarsins, félagsgjöldum, brautargjöldum og keppnum. Fréttabréfið er sent á alla núverandi og fyrrverandi meðlimi deildarinnar og er einnig aðgengilegt á heimasíðu deildarinnar www.umfs.is/velhjol. Stjórn deildarinnar hvetur foreldra/forráðamenn barna sem eiga hjól eða hafa áhuga fyrir íþróttinni að kynna sér fréttabréfið, einnig hvetjum við hjólara á Suðurlandi sem ekki hafa tengst deildinni að kynna sér starfið og hafa samband ef áhugi vaknar. Hægt er að skoða fréttabréfið með því að smella hér.

2.4.2012 | Knattspyrna

Jafntefli viđ Víking Ó. í Lengjubikarnum

Selfyssingar tóku á móti Víkingi frá Ólafsvík í Lengjubikarnum sl. föstudag á gervigrasinu á Selfossi í fínasta veðri. Víkingur komst yfir á 23. mín er Edin Beslija skoraði beint úr aukaspyrnu. Ólafur Karl Finsen jafnaði fyrir Selfoss undir lok fyrri hálfleiks. Skömmu áður fékk Elías Örn, markvörður Selfoss, að líta rauða spjaldið fyrir brot sem spekingunum á hliðarlínunni fannst full strangur dómur. Víkingar komust svo aftur yfir á 63. mín, en Ólafur Karl náði að jafna fyrir Selfoss á 85. mín og lokatölur leiksins urðu því 2:2.

1.4.2012 | Handbolti

Selfoss komst í umspiliđ!

Selfyssingar lögðu Víkinga á útivelli á föstudaginn síðastliðinn, 25-29, eftir að hafa yfir 9-16 í leikhléi, og tryggðu sér þar með sæti í umspili um laust sæti í N1 deildinni.

1.4.2012 | Fimleikar

Fjórar Selfoss-stelpur í landsliđsúrvali fullorđina í hópfimleikum

Nú á dögunum var tilkynntur fyrsti æfingahópur landsliðsins í flokki fullorðina fyrir Evrópumótið 2012. Selfyssingar eiga þar fjóra fulltrúa en það eru þær Helga Hjartardóttir, Hugrún Hlín Gunnarsdóttir, Rakel Nathalie Kristinsdóttir og Unnur Þórisdóttir. Næsti niðurskurður verður 1. september, en þá verða sjö stelpur og sjö strákar valdin til að vera fulltrúar blandaðs liðs Íslands í kvennaflokki. Stökkþjálfari liðsins verður Birgir Björnsson og dansþjálfari verður Alice Flodin. Fimleikadeild Selfoss vill koma á framfæri hamingjuóskum til stelpnanna með ósk um gott gengi í framhaldinu. 

1.4.2012 | Fimleikar

Blandađ liđ Selfoss hársbreidd frá deildarmeistaratitli

Undankeppni Íslandsmótsins í hópfimleikum fóru fram í húsakynnum Gerplu föstudaginn 30. mars. Selfoss sendi tvö lið til keppni en það voru lið Selfoss HM1, sem keppir í kvennaflokki, og lið Selfoss HM4, sem keppir í flokki blandaðra liða. Skemmst er frá því að segja að bæði lið tryggðu sér þátttökurétt í úrslitum sem fram fara föstudaginn 13. apríl og laugardaginn 14. apríl í Ásgarði í Garðabæ. 

30.3.2012 | Knattspyrna

Fyrsti leikur vorsins á heimavelli í kvöld

Lengjubikarinn_logoMeistaraflokkur karla tekur á móti Víkingum frá Ólafsvík í Lengjubikarnum á gervigrasvellinum á Selfossi í kvöld. Er þetta jafnframt fyrist opinberi leikur meistaraflokks á heimavelli á þessu ári. Það stefnir í hið besta veður og því ættu Selfyssingar að skella sér á völlinn og sjá strákana eiga við Ólafsvíkinga. Leikurinn hefst kl. 19:00.

30.3.2012 | Handboltaakademía

Titill á Selfoss eftir sigur á Víkingi í úrslitaleik

Handb_kv_utandeild_2012Stelpurnar í meistaraflokki urðu í gærkvöldi meistarar í næst efstu deild kvenna eftir sigur á Víkingi í framlengdum úrslitaleik sem var frábær skemmtun fyrir leikmenn og áhorfendur.

29.3.2012 | Fimleikar

Fimleikastelpur bjóđa kleinur og marengstertur

Meistarahópur Selfoss í fimleikum hafa undanfarið verið að safna fyrir nýjum keppnisgöllum. Stelpurnar hafa gengið í fyrirtæki á svæðinu og boðið myndarlegar nýsteiktar kleinur eða glæsilegar marengstertur sem starfsmenn fyrirtækjanna geta gætt sér á fyrir páskahátíðina. Vel hefur verið tekið á móti stelpunum en þær munu sækja pantanir á mánudag og afhenda baksturinn glænýjan á þriðjudagsmorgun. Keyrt er heim að dyrum. Kleinurnar eru seldar 15 saman í pakka og kostar pokinn 1000kr en terturnar kosta 3500kr. stk.  
Eins má senda pantanir á grenigrund@islandia.is Stelpurnar þakka kærlega fyrir stuðninginn.
Vert er að nefna að stelpurnar keppa í kvöld föstudag á undankeppni Íslandsmótsins í hópfimleikum og berjast um að komast í sex liða úrslit sem fram fara föstudaginn 13. arpíl. Mótið er haldið í Gerplu að Versölum og hefst kl. 18:00. Við hvetjum til að fjölmenna í stúkuna og horfa á flotta fimleika.
 

29.3.2012 | Handboltaakademía

Sigur á UMFA og úrslitaleikur í dag

Mfl. kvenna vann UMFA í gær 18-22 í undanúrslitum og eru stelpurnar komnar í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í næst efstu deild íslensks kvennahandbolta. Leikurinn er gegn Víkingi í Víkinni og hefst kl. 19:45. Óskum eftir öllum þeim stuðningi Selfyssinga á leikinn sem hægt er að fá.

28.3.2012 | Handboltaakademía

Sigur gegn Val í lokaleik 3. flokks karla

Strákarnir í 3. flokki settu punktinn yfir i-ið í lokaleik deildarinnar í gær þegar þeir unnu Val 26-30 á útivelli. Staðan í hálfleik var 11-14 fyrir Selfoss.

28.3.2012 | Taekwondó

Selfoss međ sex Íslandsmeistaratitla, fimm silfur og tvö brons

Sparring-2012-039Íslandsmótið í taekwondo fór fram á Ásbrú í Keflavík sunnudaginn 25. mars sl. Þetta var sannkölluð taekwondo-helgi því dagana fyrir mótið fór fram dómaranámskeið með yfirdómara frá Alþjóðlega taekwondosambandinu. Umf. Selfoss sendi 16 keppendur til leiks og komust 13 þeirra sá pall. Þau gerðu sér lítið fyrir og unnu 6 Íslandsmeistaratitla, 5 silfurverðlaun og 2 bronsverðlaun. Keflvíkingar reyndust hlutskarpastir, en þeir fengu 66 stig. Lið Selfoss varð í 2. sæti með 47 stig og Afturelding hafnaði í 3. sæti með 36 stig.

28.3.2012 | Frálsíţróttir

Vel heppnađ frjálsíţróttaţing á Selfossi

Tveggja daga þing Frjálsíþróttasambands Íslands var haldið í Fjölbrautaskóla Suðurlands 16.-17. mars síðastliðinn. Að þessu sinni var gestgjafi þingsins Sveitarfélagið Árborg og væsti ekki um þinggesti í rúmgóðum vistarverum Fjölbrautaskólans.

27.3.2012 | Handboltaakademía

Sigur gegn Fylki 3 í síđasta deildarleiknum

3. flokkur kvenna endaði deildarkeppnina með glæsibrag. Þær unnu KA/Þór á föstudag og í gær lið Fylkis 3. Bæði þessi lið voru í toppbaráttu deildarinnar og því eru þessir sigrar mjög góðir.

27.3.2012 | Fimleikar

Gćsla, fimleikar/parkour og leikir

Unglingaflokkur Selfoss HM2 er að safna sér fyrir nýjum keppnisgöllum. Þær ætla að vera með fimleika, leiki og fjör fyrir börn í 1.-4. bekk mánudaginn 2. arpíl og þriðjudaginn 3. apríl í íþróttahúsi Sunnulækjarskóla frá kl. 9-12. Ekki þarf að vera skráður í fimleika til að mega taka þátt heldur eru allir velkomnir. Skráning er óþörf heldur má bara mæta á staðinn. Þetta er tilvalið til að stytta stundir og prufa nýja íþrótt sér til ánægju og fá hreyfingu í leiðinni. 

26.3.2012 | Handbolti

4. flokkur tapađi gegn Fram

Strákarnir í 4. flokki léku gegn Fram á sunnudag í Safamýri. Heimamenn í Fram voru öflugri framan af og vor 3-4 mörkum yfir lengst af í fyrri hálfleik. Staðan var 15-10 í seinni hálfleik. Selfyssingar minnkuðu muninn aðeins í síðari hálfleik en að lokum unnu Framarar 26-22 sigur.

26.3.2012 | Fimleikar

Hérađsmótiđ í hópfimleikum 2012 - Allir titlar á Selfoss

Héraðsmótið í hópfimleikum var haldið í íþróttahúsi Vallaskóla laugardaginn 24. mars. Alls voru 24 lið mætt til leiks frá fimm félögum. Keppt var í 1. flokki kvenna og mix í teamgym en í 5.-3. flokki í landsreglum. Eins var keppt eftir 5. flokksreglum með undantekningum fyrir þau lið sem eru að stíga sín fyrstu spor í keppni.

26.3.2012 | Fimleikar

Ađalfundur fimleikadeildar 2012

Aðalfundur fimleikadeildar Selfoss var haldin í Tíbrá fimmtudaginn 22. mars. Á fundinum fóru fram hefðbundinn aðalfundarstörf og var fundarstjóri Þórir Haraldsson. Ekki er hægt að segja að fjölmennt hafi verið á fundinum þrátt fyrir gífurlegan fjölda barna sem stunda íþróttina hér í bæ. Tveir ætluðu að láta af störfum í stjórn á þessum fundi, þau Silja Sigríður Þorsteinsdóttir og Birgir Ásgeir Kristjánsson. Silja hætti sem gjaldkeri deildarinnar og í hennar stað var kosin Sigríður Erlingsdóttir. Birgir ætlaði að láta af formennsku deildarinnar en ekki náðist að finna formann í hans stað fyrir fundinn og því var ekki hægt að klára aðalfundinn þetta kvöld. Boðað hefur verið til framhaldsaðalfundar mánudaginn 16. apríl 2012 en fyrir þann tíma verður að vera búið að finna staðgengil fyrir Birgi. Hann situr því áfram í fromannsstólnum fram að 16. apríl.  

25.3.2012 | Handbolti

Meistaraflokkur vann Fjölni

Strákarnir í meistaraflokki unnu Fjölni örugglega, 28-16 á föstudaginn. Selfyssingar færðust upp í 4. sætið með sigrinum, en þurfa sigur í lokaumferðinni ætli þeir sér að halda sætinu. Selfyssingar voru mun betri aðilinn gegn Fjölni og leiddu 16-6 í hálfleik. Seinni hálfleikur var jafnari en sigurinn aldrei í hættu.

25.3.2012 | Handboltaakademía

Sigur hjá 3. flokki kvenna á móti KA/Ţór

Stelpurnar í 3. flokki gerðu sér lítið fyrir og unnu annað af tveimur bestu liðum deildarinnar á föstudagskvöldið 28-27 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 14-16 gestunum í vil.

22.3.2012 | Handboltaakademía

Jafntefli viđ Stjörnuna og Deildarbikarinn á loft

3ka_deild2012_025Í gær skildu strákarnir okkar og Stjarnan jöfn 31-31 og í leikslok fór Deildarbikarinn á loft. Strákarnir búnir að vera frábærir í vetur og eiga þennan titil algjörlega skilið.

20.3.2012 | Handbolti

Selfoss lagđi toppliđ ÍR

Selfoss vann um helgina ÍR hér á Selfossi, 31 - 25. Selfoss leiddi allan leikinn og léku afar vel í leiknum. Gaman var að sjá Sigurð Má koma sterkan inn í leik liðsins og þá kom Atli Kristins til baka eftir magurt gengi undanfarið. Vörn og marvarsla voru í góðum málum og áttu ÍR-ingar oft í vandræðum með að finna leið að markinu. Okkar menn leika næst hér á heimavelli gegn Fjölni á föstudaginn 23. mars.

20.3.2012 | Júdó

Tveir Íslandsmeistaratitlar og tvenn silfurverđlaun

judo-2012-23Íslandsmót ungmenna 15-19 ára, í flokkum U17 og U20, fór fram um síðustu helgi í sal Júdódeildar Ármanns í Reykjavík. Keppendur voru 49 frá öllum sterkustu félögum landsins og skiptust nokkuð jafnt í báða aldursflokka. Júdódeild Umf. Selfoss kom sterk inn og urðu þau Sturlaugur Eyjólfsson og Þórdís Böðvarsdóttir Íslandsmeistarar í sínum þyngdarflokkum eftir snarpar og skemmtilegar viðureignir

20.3.2012 | Handbolti

Jafntefli hjá 2. flokki

Akureyringar sóttu okkar menn heim um helgina í 2. flokki. Endaði leikurinn 25 - 25 en Selfoss fór illa að ráði sínu undir lok leiks er þeir voru þremur mörkum yfir og stutt eftir.

19.3.2012 | Handboltaakademía

Tap í síđasta deildarleik meistaraflokks kvenna

Stelpurnar í mfl. mættu Haukum í gær á Ásvöllum í leik sem tapaðist 37-29. Staðan í hálfleik var 19-18 fyrir Hauka.

19.3.2012 | Handboltaakademía

Sigur á KA í 3. fl. karla

Strákarnir í 3. flokki A unnu enn einn leikinn í deildinni á sunnudaginn. Að þessu sinni var það lið KA sem þeir unnu 36-30. Staðan í hálfleik var 17-17.

19.3.2012 | Handboltaakademía

3. fl. kvenna vann Fjölni

Á laugardaginn unnu stelpurnar í 3. flokki Fjölni örugglega 17-32 en staðan í hálfleik var 5-15. Góður leikur hjá stelpunum að þessu sinni.

19.3.2012 | Fimleikar

Skiplag HSK-mótsins í hópfimleikum 24. mars

HSK-mótið í fimleikum fer fram í íþróttahúsi Vallaskóla laugardaginn 24. mars næstkkomandi. Alls mæta 25 lið til keppni í nokkrum flokkum frá fimm félögum. Keppni í fyrsta hluta hefst kl. 9:40 og síðasta hluta lýkur kl. 16:50. Nánara skipulag má sjá hér fyrir neðan.

18.3.2012 | Handbolti

Selfoss og Grótta mćttust í 4. flokki

Á laugardag spilaði 4. flokkur á móti Gróttu í íþróttahúsi Sólvallaskóla. Í A-liðum voru Selfyssingar mun öflugri strax frá byrjun og komust t.a.m. í 8-3 eftir 9 mínútna leik. Grótta minnkaði muninn í 11-10 en Selfoss náði svo að skora seinustu tvö mörk hálfleiksins og fara með góða stöðu inn í leikhlé, 13-10.

14.3.2012 | Handbolti

4. flokkur sótti fjögur stig í Kópavoginn

Í 4. flokki karla léku bæði lið gegn HK á útivelli og náðu Selfyssingar sér í tvo sigra í ferðinni.

14.3.2012 | Handbolti

Selfoss 2 tapađi í 3. flokki karla

Selfoss 2 í 3. flokki lék gegn Fram um helgina. Fór svo að Framarar höfðu sigur 25-23 eftir að Selfyssingar höfðu verið öflugri framan af leik. Jafnt var í hálfleik 14-14.

14.3.2012 | Handboltaakademía

Góđur sigur í 4. fl. kvenna

Stelpurnar í A liði 4. flokks tóku á móti Aftureldingu í gær og unnu góðan sigur 23-12 en staðan í hálfleik var 12-8 fyrir Selfoss.

14.3.2012 | Handbolti

Tveir sigrar hjá meistaraflokki karla

Selfoss vann á föstudaginn síðastliðinn Stjörnuna heima 28 - 27 eftir að hafa verið undir 14 - 16 í hálfleik. Í gærkvöld gerðu svo okkar menn góða ferð til Eyja og unnu 21 - 23 eftir að hafa forustu 11 - 14 í leikhléi.

14.3.2012 | Fimleikar

Fimleikar falla niđur í Baulu fimmtudaginn 15.mars

Fimleikar falla niður allan fimmtudaginn 15.mars vegna árshátíðar nemenda Sunnulækjarskóla í íþróttasalnum. Vinsamlegast látið þetta ganga ykkar á milli.

 

13.3.2012 | Handboltaakademía

Tap fyrir UMFA í meistaraflokki kvenna

Stelpurnar í mfl. töpuðu á laugardaginn fyrir Aftureldingu á útivelli 28-25 en staðan í hálfleik var 12-12. Mikið vantaði í lið Selfoss að þessu sinni og hjálpaði það ekki til.

13.3.2012 | Handboltaakademía

Frábćr sigur á Fram í 3. flokki karla

Strákarnir í 3. flokki gerðu sér lítið fyrir og unnu Íslands- og Bikarmeistara Fram á þeirra heimavelli. Fram sló strákana út í undanúrslitum Bikarkeppninnar í febrúar og því var sigurinn sætur. Lokatölur 23-29 fyrir Selfoss. 

12.3.2012 | Nýjustu fréttir

Hérađsţing HSK var haldiđ í Brautarholti

hsk_2012-27990. héraðsþing Skarphéðins var haldið í Brautarholti á Skeiðum síðastliðinn laugardag. Góð mæting var á þingið sem tókst í alla staði mjög vel. Fjórtán fulltrúar frá Umf. Selfoss mættu á þingið. Fjöldi mála var tekinn fyrir og margar tillögur afgreiddar. Samþykktir þingsins má sjá á heimasíðu HSK.

12.3.2012 | Nýjustu fréttir

Málţing um íţróttadómara

ÍSÍ, KSÍ, HSÍ, KKÍ og BLÍ boða til málþings um íþróttadómara og þeirra mikilvægu störf í tengslum við íþróttirnar. Fulltrúar sérsambandanna munu fjalla um stöðu mála og framtíðarhorfur. Málþingið er öllum opið, endurgjaldslaust á meðan húsrúm leyfir. Allir sem áhuga hafa á þessum málum eru hvattir til að mæta, fræðast um stöðuna og leggja jafnvel orð í belg um málefnið.

12.3.2012 | Frálsíţróttir

Fjóla Signý íţróttamađur HSK 2011

mi_2012_inni_09Á héraðsþingi HSK sem haldið var um liðna helgi var Fjóla Signý Hannesdóttir, frjálsíþróttakona, útnefnd íþróttamaður HSK fyrir árið 2011. Fjóla Signý stóð sig frábærlega á síðasta ári og er vel að þessum titli komin. Hún býr nú í Svíþjóð þar sem hún stundar æfingar af kappi.

8.3.2012 | Knattspyrna

Ćfingaleikur viđ Víking frá Fćreyjum í Kórnum á laugardaginn

Selfyssingar leika á laugardaginn æfingaleik við Víking frá Færeyjum. Leikurinn verður spilaður á vetrar-heimavelli Selfyssinga, Kórnum Kópavogi, og hefst kl. 13.30 laugardaginn 10. mars. Víkingar frá Færeyjum hafa komið hingað til lands undanfarin ár og leikið við íslensk lið. Þeir hafa t.a.m gert jafntefli við Fram og Breiðablik og tapað 2-0 fyrir FH.

8.3.2012 | Handboltaakademía

Góđur sigur hjá 3 fl. kvenna

Í gær unnu stelpurnar lið Gróttu2 á útivelli 22-33 en staðan í hálfleik var 11-14 fyrir Selfoss.

7.3.2012 | Handboltaakademía

Mfl. kv. tapađi fyrir Víkingi í toppslagnum

Í gær mættust tvö efstu lið deildarinnar. Með sigri gátu okkar stelpur ennþá orðið deildarmeistarar en því miður þá náði Víkingur sigri 28-29 eftir að jafnt var í hálfleik 15-15.

6.3.2012 | Fimleikar

Fimleikadeild Selfoss á 11 flotta fulltrúa í Úrvalshópi unglinga FSÍ vegna EM 2012

Í janúar síðastliðnum sóttu nokkrir krakkar frá fimleikadeild Selfoss landsliðsúrtöku vegna Evrópumótsins í hópfimleikum sem fram fer í Danmörku haustið 2012. Nú hefur 35 manna stúlknahópur og 15 manna drengjahópur verið valinn í áframhaldandi hóp sem kallaður er úrvalshópur FSÍ í unglingaflokki 13-17 ára.

6.3.2012 | Fimleikar

Ţrenn silfurverđlaun á Bikarmóti FSÍ í hópfimleikum

Bikarmót í hópfimleikum var haldið hjá Stjörnunni laugardaginn 3. mars. Alls voru níu lið mætt til keppni.  Selfoss átti lið í þremur flokkum og stóðu liðin sig öll mjög vel. Öll liðin höfnuðu í 2. sæti í sínum flokki og var minnsti munurinn í 1. flokki. 

6.3.2012 | Handbolti

Selfoss-2 vann líka í 3. flokki

Selfoss 2 í 3. flokki sigraði Gróttu á sunnudaginn líkt og A-liðið gerði. Leikurinn endaði 23-22 en Selfyssingar voru með yfirhöndina allan leikinn.

5.3.2012 | Handboltaakademía

4. fl. kvenna B liđ vann Gróttu

Stelpurnar í B-liðinu í 4. flokki gerðu góða ferð á Seltjarnarnesið í gær og unnu 18-28. Staðan í hálfleik var 9-12 fyrir Selfoss.

5.3.2012 | Handboltaakademía

Tap hjá 4 fl. kvenna A liđi

Á laugardaginn mættu stelpurnar í 4 flokki liði ÍR á útivelli og töpuðu að þessu sinni 21-14 en staðan í hálfleik var 11-8 fyrir heimaliðið.      

5.3.2012 | Handboltaakademía

Sigur hjá 3 fl. karla

Í gær unnu strákarnir Gróttu á heimavelli 31-27 eftir að hafa verið undir í hálfleik 14-16. þeir halda því toppsætinu áfram núna þegar 4 leikir eru eftir.

5.3.2012 | Handboltaakademía

Selfoss bikarmeistari í 2. flokki áriđ 2012

Fyrir stuttu urðu okkar menn í 2. flokki bikarmeistarar er þeir lögðu Valsmenn að velli 32 - 29. Í hálfleik var jafnt 15 - 15.

5.3.2012 | Handboltaakademía

2. flokkur tapađi í sérstökum leik

Strákarnir í 2. flokki töpuðu heima í gær fyrir Gróttu 26 - 31, en okkar menn leiddu í hálfleik 16 - 11.

5.3.2012 | Handbolti

Grátlegt tap gegn Víkingum

Strákarnir í meistaraflokki töpuðu sínum fyrsta leik frá því í nóvember á síðasta ári er Víkingur höfðu sigur. Tapaðist leikurinn með minnsta mun, 22 - 23, eftir að okkar menn leiddu í hálfleik 13 - 12.

3.3.2012 | Handbolti

Öruggur sigur í 4. flokki

Selfyssingar mættu KR í 4. flokki karla í dag. Í Selfoss liðið vantaði tvo sterka pósta, þá Hergeir og Richard, sem voru frá vegna meiðsla en auk þeirra var Guðjón slappur og gat ekki beitt sér af fullu. Þrátt fyrir það vann Selfoss 10 marka sigur, 30-20, og var sigurinn aldrei í hættu. Það er því greinilegt að breiddin í flokknum er mikil.

29.2.2012 | Handboltaakademía

Mfl. kvenna vann aftur

Í gær unnu stelpurnar í meistaraflokki lið HK3 með 5 marka mun. Lokatölur urðu 27-32. Í hálfleik var staðan 11-16 fyrir Selfoss.

28.2.2012 | Frálsíţróttir

Góđur árangur HSK/Selfoss á Meistaramóti Íslands 11-14 ára

mi_11-14_2012Meistaramót Íslands 11-14 ára fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal um síðustu helgi. Lið HSK/Selfoss varð í 3. sæti í heildarstigakeppninni. Liðið vann stigakeppni 13 og 14 ára pilta og 13 ára stúlkna og varð í 2. sæti í flokki 12 ára pilta. Alls unnust 10 gull, 8 silfur og 4 brons, sem verður að teljast góður árangur.

27.2.2012 | Handbolti

Gekk ekki hjá 4. flokki

Selfoss náði ekki að tryggja sér bikarmeistaratitil í gær í 4. flokki. Liðið mætti FH-ingum sem voru beittari framan af og komust í 0-4. Kom þá öflugur kafli hjá okkar mönnum sem komust 5-4 yfir. Jafnræði var með liðunum það sem eftir var fyrri hálfleiks.

27.2.2012 | Sund

49 keppendur á Selfossmeistaramótinu í sundi

su_hlutilids-selfossSelfossmeistaramótið í sundi fór fram sunnudaginn 26. febrúar sl. Alls voru keppendurnir 49 frá sunddeildum Umf. Selfoss og Hamars í Hveragerði og stungur í laugina 161. Keppendafjöldi skiptist nær því jafnt milli 10 ára og yngri og 11 ára og eldri. Sérstaka lukku vöktu þrír garpar frá Umf. Selfoss sem allir kepptu í 100 m skriðsundi. Höfðu yngri keppendur gaman að fylgjast með tilþrifum „gömlu mannana".

27.2.2012 | Frálsíţróttir

Fjóla Signý međ nýtt HSK-met í 400 m hlaupi

fjola_jan_87Fjóla Signý Hannesdóttir, frjálsíþróttakona úr Umf. Selfoss, stórbætti HSK-metið í 400 m hlaupi kvenna innanhúss á XL-Galan mótinu í Stokkhólmi sem fór fram sl. fimmtudag. Fjóla Signý hljóp á 57,21 sekúndu og bætti sig um um 0,7 sek. Tíminn er nýtt HSK-met í kvennaflokki, en Fjóla átti gamla metið sjálf.

26.2.2012 | Handbolti

2. flokkur bikarmeistari 2012!

2.fl. bikarmeistarar 2012Selfoss varð nú í kvöld bikarmeistari í 2. flokki í Eimskipsbikarkeppni HSÍ. Strákarnir eru vel að þessum titli komnir og hafa lagt mikið á sig til að landa honum. Flestir leikmanna Selfoss í kvöld voru að leika sinn fyrsta úrslitaleik og stóðust þeir álagið. Í hálfleik stóð 15 - 15, en lokatölur voru 32 - 29. Frekari umfjöllun er væntanlega með fleiri upplýsingum um leikinn sem og tölfræði. Áfram Selfoss!

23.2.2012 | Handbolti

Bikarúrslit yngri flokka – Allir í Höllina!

Eins og fram hefur komið á síðunni hafa tvö lið frá Selfossi tryggt sér sæti í bikarúrslitaleikjum yngri flokka sem fram fara í Laugardalshöll næstkomandi sunnudag. 4. flokkur karla spilar klukkan 12:00 gegn FH og 2. flokkur karla spilar klukkan 19:00 á móti Val.
Viljum við hvetja alla Selfyssinga til að mæta í Höllina og styðja okkar lið áfram í þessum skemmtilegu leikjum.

22.2.2012 | Handbolti

2. flokkur kominn í bikarúrslit!

Okkar menn í 2. flokki unnu FH í undanúrslitum hér á Selfossi í gærkvöld. Lokatölur urðu 25 - 24 eftir að gestirnir úr Hafnarfirði höfðu yfir 11 - 15 í leikhléi. FH-ingar komu betur stemmdir til leiks og voru fremri á öllum sviðum í fyrri hálfleik. Virtist sem spennustig okkar manna væri helst til hátt.

21.2.2012 | Handbolti

Stórleikur á Selfoss í kvöld!

Það verður sannkallaður stórleikur á Selfoss í kvöld er 2.flokkur mætir FH. Hefst leikurinn kl 19.00 í Vallaskóla og hvetur síðuritari sem og heimasíðan alla til að mæta og styðja strákana til sigurs. Leikurinn er liður í bikarkeppni HSÍ og er um að ræða undanúrslit. Liðið sem vinnur í kvöld fer í sjálfan úrslitaleikinn.

Áfram Selfoss!

20.2.2012 | Frálsíţróttir

Fjóla Signý og Hreinn Heiđar bikarmeistarar í hástökki

frjalsar12_4607Sjötta Bikarkeppni FRÍ í frjálsum íþróttum innanhúss fór fram í Laugardalshöllinni laugardaginn 18. febrúar s.l. HSK sendi sitt sterkasta lið til keppni sem náði góðum árangri. Það samanstóð af ungum einstaklingum sem þreyttu frumraun sína í bikarkeppni sem og reyndum  jöxlum sem alltaf standa fyrir sínu.

20.2.2012 | Fimleikar

Fjögur silfur og eitt brons á Íslandsmóti unglinga í hópfimleikum

Selfoss átti tíu lið á Íslandsmóti unglinga í hópfimleikum sem fram fór á Selfossi 11. og 12 febrúar sl. Keppt var í fimm flokkum á mótinu.

20.2.2012 | Handboltaakademía

2001 árgangur stráka orđnir Íslandsmeistarar

Strákarnir á yngra ári í 6. flokki drengja hafa nú þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í sínum aldursflokki eftir að hafa unnið þrjú fyrstu mótin í vetur. Keppnisfyrirkomulagið er þannig að úrslit úr þremur mótum af fimm telja til Íslandsmeistaratitils. Þetta er með eindæmum sigursæll flokkur. Þeir hafa aldrei tapað leik á Íslandsmóti, unna alla sína leiki síðustu ár líka. Guðmundur Sigmarsson íþróttakennari hefur verið þjálfari strákanna allt frá byrjun.

20.2.2012 | Handboltaakademía

Öruggur 9 marka sigur á Fjölni

Strákarnir í meistaraflokki unnu á föstudag Fjölni örugglega í Reykjavík, 28-19, eftir að hafa verið yfir 10-7 í leikhléi. Okkar menn voru alltaf með undirtökin í leiknum og létu aldrei af stjórninni. Mestur varð munurinn 11 mörk. Vörn liðsins var afar góð allan leikinn, en sóknarleikurinn fór í gang í síðari hálfleik. Ómar lék afar vel í leiknum og hefur verið að nýtast liðinu vel sóknarlega einnig. Þá léku Árni Felix Gíslason og Ketill Heiðar Hauksson sína fyrstu leiki með meistaraflokki. 

19.2.2012 | Handbolti

4. flokkur tapađi fyrir Haukum

Selfyssingar fóru slæma ferð á Ásvelli í dag í 4. flokki karla. Bæði lið töpuðu eftir slaka byrjun í báðum leikjum.

19.2.2012 | Handbolti

Góđur sigur hjá strákunum í 2. flokki

Strákarnir í 2. flokki gerðu góða ferð í Hafnarfjörð í gær og unnu þar heimamenn í Haukum 29 - 26. Mest náðu okkar menn átta marka forustu og leiddu í hálfleik 13 - 10. Smá klaufaskapur í lok leiks varð til þess að heimamenn náðu að laga stöðuna aðeins.

19.2.2012 | Handboltaakademía

3. flokkur kvenna tapađi fyrir Val

Stelpurnar í 3. flokki töpuðu í gær fyrir liði Vals 27-33, en staðan í hálfleik var 12-18 fyrir gestina.

19.2.2012 | Handboltaakademía

B-liđ 4. flokks kvenna vann Hauka

Stelpurnar í B-liðinu í 4. flokki unnu góðan sigur í gær á liði Hauka. Lokatölur urðu 22-16 en staðan í hálfleik var 11-8.

19.2.2012 | Handboltaakademía

3. flokkur karla vann Hauka

Á föstudagskvöldið náðu strákarnir í 3. flokki sigri á útivelli gegn Haukum 21-24. Staðan í hálfleik var 9-10 fyrir Selfoss.

17.2.2012 | Handbolti

4. flokkur karla í bikarúrslit!

Í gær sigraði 4. flokkur karla ÍBV, 27-26, í afar dramatískum leik í undanúrslitum bikarkeppninnar og tryggði sér þannig sæti í úrslitaleiknum sem fram fer í Laugardalshöllinni. Í annað skiptið á þremur dögum voru rúmlega 200 áhorfendur mættir á handboltaleik hjá yngri flokkum á Selfossi og gerðu þeir leikinn eftirminnilegan fyrir leikmenn.

15.2.2012 | Handboltaakademía

3. fl. kvenna úr leik í Bikarnum eftir hetjulega baráttu

Engu munaði að stelpunum í 3. flokki tækist að framkalla annað kraftaverk í Bikarnum þegar þær töpuðu 24-28 fyrir Haukum í undanúrslitum í gær.

14.2.2012 | Frálsíţróttir

Tveir Íslandsmeistaratitlar, tvö silfur og eitt brons á MÍ

mi_2012_inni_63Helgina 11.-12. febrúar fór fram í Laugardalshöllinni aðalhluti Meistaramóts Íslands. HSK/S°elfoss átti þar öfluga fulltrúa sem stóðu sig vel að vanda. Í heildina fékk HSK/Selfoss tvö gull, tvö silfur og eitt brons. Í stigakeppni milli félaga varð HSK/Selfoss í 3. sæti í karlakeppninni og 4. sæti í heildina.

14.2.2012 | Handbolti

Önnur bikarvika í Vallaskóla

Í þessari viku fara fram tveir undanúrslitaleikir í bikarkeppni yngri flokka HSÍ. Leikirnir fara fram í íþróttahúsi Vallaskóla á þriðjudag og fimmtudag. Er rík ástæða til þess að hvetja fólk til að mæta á leikina og styðja okkar lið áfram því með sigri tryggja þau sér sæti í úrslitaleikjunum sem fara fram í Laugardalshöllinni. Þriðjudaginn 14. febrúar kl. 21:00 leika Selfoss og Haukar í 3. flokki kvenna og fimmtudaginn 16. febrúar kl. 17:00 leika Selfoss og ÍBV í 4. flokki karla.

14.2.2012 | Handboltaakademía

Selfoss náđi í stig í Breiđholtinu

Selfyssingar sóttu ÍR-inga heim í Austurberg síðastliðinn föstudag og fengu úr þeim þeim leik eitt stig. Um hörkuleik var að ræða sem endaði 28 - 28, en í leikhléi var einnig jafnt, 13 - 13. Leikurinn var jafn og gat allt eins farið þannig að annað hvort liðið hefði heppnina með sér og næði fram sigri. Því má kannski segja að jafntefli hafi verið sanngjörn niðurstaða. Vörn Selfoss var góð í leiknum sem og markvarsla. Matthías átti góðan leik sem og Atli Kristins. Ómar stóð fyrir sínu og Trausti átti flotta innkomu. Þá lék Hörður afar vel í seinni hálfleik og skoraði mikilvæg mörk. Næsti leikur liðsins er svo á föstudaginn næsta úti gegn Fjölni.

13.2.2012 | Kraftlyftingar

Rósa tvíbćtti Íslandsmetiđ

rosa_2010Rósa Birgisdóttir gerir það ekki endasleppt í kraftlyftingum þessa dagana. Hún keppti á Íslandsmeistaramótinu í bekkpressu á Akranesi fyrir stuttu og setti enn eitt Íslandsmetið. Hún átti frábærar tilraunir sem allar tókust. Hún byrjaði á því að lyfta 100 kg. Síðan lyfti hún 110 kg, sem var nýtt Íslandsmet. Þriðja og síðasta lyftan var 120 kg og um leið bæting á Íslandsmetinu. Rósa keppir í þyngdarflokknum +84 kg og varð fjórða stigahæsta konan á mótinu.

13.2.2012 | Sund

Góđur árangur á Gullmóti KR

Gullmót KR febrúar 2012Gullmót KR var haldið í 50m innilaug í Laugardal um helgina sem leið. Yfir 500 keppendur syntu á mótinu sem var í sex hlutum. Sundeild Umf. Selfoss sendi sex keppendur á mótið sem kepptu samtals í 12 greinum. Mikið var um persónulegar bætingar hjá okkar sundfólki enda var æft af kappi fyrir þetta fyrsta stóra mót ársins.

12.2.2012 | Handbolti

3. flokkur vann stórsigur í Eyjum

3. flokkur karla fór í gær til Vestmannaeyja og lék við heimamenn. Lið ÍBV hefur verið að bæta sig mikið að undanförnu en í þessum leik mættu þeir öflugum Selfyssingum sem voru greinilega staðráðnir í að koma sér aftur í gang eftir tvö töp að undanförnu. Strákarnir léku á alls oddi unnu 23-45.

12.2.2012 | Handbolti

4. flokkur sigrađi ÍBV tvívegis

Á föstudag léku bæði lið 4. flokks karla gegn ÍBV í íþróttahúsi Vallaskóla. A-liðið reið á vaðið og sigraði 30-27 eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik. B-liðið sigraði 32-24 en þeir voru 15-11 yfir í hálfleik.

10.2.2012 | Handbolti

4. flokkur leikur viđ ÍBV í dag

4. flokkur karla tekur á móti ÍBV í tveimur leikjum í dag. Leikirnir fara fram í Vallaskóla kl. 16:00 og 17:00 og hvetjum við alla til að mæta og fylgjast með strákunum.

9.2.2012 | Handboltaakademía

3. flokkur karla úr leik í Bikarnum

Strákarnir í 3. flokki töpuðu í gær 24-23 fyrir Fram í undanúrslitum Bikarkeppninnar. Staðan í hálfleik hafði verið 12-7 fyrir heimamenn.

7.2.2012 | Knattspyrna

Strákarnir í 5. flokki héldu fótboltamaraţon í 8 tíma

marathon2012Laugardaginn 28. janúar sl. fór fram hið árlega fótboltamaraþon hjá 5. flokki karla í knattspyrnu. Strákarnir spiluðu fótbolta með fjölbreyttu sniði í heila 8 klukkutíma, eða frá kl. 9-17. Þeir voru orðnir ansi dasaðir í enda dags, enda hellings púl að spila fótbolta samfleytt í svona langan tíma. Allir stóðu þeir sig eins og hetjur, bæði í maraþoninu sjálfu sem og í áheitasöfnuninni, en hún fór fram í vikunum tveimur á undan maraþoninu.

7.2.2012 | Fimleikar

Fjölmennt Ţorramót í fimleikum

fimleikar_5055Fimleikadeild Selfoss hélt um helgina Þorramót í hópfimleikum í 5. flokki landsreglna fyrir yngri kynslóðina og þá sem eru að stíga sín fyrstu spor í keppni. Þátttaka fór fram úr björtustu vonum. Níu lið mættu til keppni í yngri flokki og fimm í eldri. Í yngri flokknum fengu liðin viðurkenningu fyrir sitt besta áhald. Í eldri flokknum voru veitt verðlaun og viðurkenningar. Mótið fór fram í Baulu og fór keppnin vel fram þó þröngt væri.

6.2.2012 | Handbolti

Gekk ekki í Kaplakrika

Selfyssingar mættu FH í Kaplakrika í gær í 4. flokki karla. Seinast þegar þessi lið áttust við vann Selfoss í bæði A og B liðum með einu marki. Núna voru FH-ingar sterkari og unnu báða leikina.

6.2.2012 | Knattspyrna

Guđjónsdagurinn tókst frábćrlega

Laugardaginn 4. febrúar sl. fór fram í Iðu og Vallaskóla minningarmót í knattspyrnu. Um kvöldið var svo slúttað frábæru móti með mögnuðum dansleik í Hvíta Húsinu, í ekta „Guðjóns Style". Mótið sem er firma- og hópakeppni er haldið af knattspyrnudeild Selfoss til minningar um frábæran félaga og vin Guðjón Ægi Sigurjónsson sem lést af slysförum langt um aldur fram.

6.2.2012 | Frálsíţróttir

Sigţór Helgason fjórfaldur Íslandsmeistari

mi2012_15_22_067Unglingameistaramót Íslands 15-22 ára var haldið í Frjálsíþróttahöllinni helgina 4.-5. febrúar sl. HSK/Selfoss sendi öflugt lið til leiks sem stóð sig mjög vel. Níu Íslandsmeistaratitlar komu í hús hjá HSK/ Selfoss, þrjú silfur og átta brons. Í einstökum flokkum varð lið HSK/ Selfoss í 2. sæti í tveimur þeirra, þ.e. hjá 16-17 ára stúlkum og 20- 22 ára piltum. Síðast en ekki síst voru tvö HSK-met slegin á mótinu.

5.2.2012 | Handbolti

Strákarnir sigruđu Eyjamenn í hörkuleik

Eftir tæplega tveggja mánaða hlé, vegna Evrópumótsins sem íslenska karlalandsliðið tók þátt í Serbíu, er 1. deildin hafin á ný. Það er greinilegt að lið Selfoss hefur unnið  heimavinnuna sína í hléinu því þeir byrjuðu á því að vinna ÍBV í spennandi leik í Íþróttahúsi Vallaskóla, en leikurinn endaði 21-20.

4.2.2012 | Handboltaakademía

3. flokkur tapađi fyrir UMFA

Í gærkvöldi tapaði A-lið 3. flokks karla sínum fyrsta leik á þessu tímabili. Gestirnir frá Mosfellsbæ voru betri og áttu sigurinn skilið. Lokatölur 20-24 eftir að gestirnir höfðu leitt í hálfleik 7-11.

2.2.2012 | Handbolti

Útisigur hjá 4. flokki karla

Strákarnir í 4. flokki mættu Aftureldingu í Mosfellsbæ í gær. Selfoss var með yfirhöndina allan leikinn og sigraði að lokum 23-31 eftir að hafa leitt 10-16 í hálfleik.

2.2.2012 | Júdó

Ţór vann -90 kg flokkinn á afmćlismóti Júdósambandsins

judo_jan12_torAfmælismót Júdósamband Íslands fór fram um síðustu helgi í sal Júdódeildar Ármanns. Alls tóku 45 keppendur þátt í mótinu frá öllum stærstu félögum landsins. Mótið var sterkt og mikil stemning á meðal áhofenda. Þór Davíðsson Umf. Selfoss staðfesti á mótinu að hann er einn af sterkustu júdómönnum landsins. Hann sigraði sinn þyngdarflokk (-90 kg) af öryggi án þess að tapa viðureign.

1.2.2012 | Handbolti

Fjögur liđ frá Selfossi í undanúrslitum bikars

Með sigri 3. flokks kvenna á Fylki í gær urðu stelpurnar fjórða liðið frá Selfossi sem tryggði sér sæti í undanúrslitum bikarkeppni HSÍ. Áður hafði 3. flokkur karla sigrað Gróttu 32-20, 4. flokkur karla sigrað KR 25-14 og 2. flokkur karla sigrað Aftureldingu 28-26, en þeir sigrar voru einnig í 8-liða úrslitum.

1.2.2012 | Handboltaakademía

3. fl. kvenna kominn í undanúrslit i Bikarnum

Í gærkvöldi gerðu stelpurnar í 3. flokki sér lítið fyrir og unnu Fylki, eitt af allra bestu liðum landsins, í 8-liða úrslitum Bikarsins á heimavelli 26-24. Staðan í hálfleik var 17-14 fyrir Selfoss. Hins vegar var sigurinn allt of dýru verði keyptur þar sem Þuríður meiddist illa í leiknum og óvíst hvort hún spilar meira í vetur.

1.2.2012 | Handboltaakademía

2. fl. vann í Hafnarfirđi

Strákarnir í 2. flokki unnu á FH á útivelli á mánudaginn var. Eftir að hafa leitt í leikhléi 15 - 12 unnu þeir að lokum 29 - 27 þar sem FH-ingar skoruðu tvö síðustu mörk leiksins. Okkar menn lögðu sig fram og léku sinn besta varnarleik það sem af er tímabils.

31.1.2012 | Frálsíţróttir

Fjóla sigrađi í 60 m grindahlaupi í Svíţjóđ

fjola_jan_87Fjóla Signý Hannesdóttir frjálsíþróttakona gerði sér lítið fyrir og sigraði í 60 m grindahlaupi, á tímanum 9,04 sek, á Team Sportia Spelen, sem haldið var í frjálsíþróttahöllinni í Falun, þann 28.janúar sl. HSK-met Fjólu Signýjar sem hún setti á MÍ í fjölþrautum nýlega er 9,02 sek. Næstu helgi keppir Fjóla Signý í 60 m grindahlaupi og 400m hlaupi þar ytra og verður spennandi að sjá hvort metið falli.

31.1.2012 | Frálsíţróttir

Sex gullverđlaun í kúluvarpi til HSK á Stórmóti ÍR

stormot_ir12_2282Aðildarfélög HSK áttu 43 keppendur á Stórmóti ÍR sem haldið var Laugardalshöllinni um liðna helgi. Keppendur HSK stóð sig vel að vanda. Uppskeran var 15 gull, 12 silfur og 10 brons, eitt HSK-met og fullt af persónulegum metum. Keppt var í öllum aldursflokkum. Krakkar 10 ára og yngri kepptu í svokölluðum Krakkafrjálsum, en það er þrautabraut sem samanstendur af 6-10 þrautum þar sem líkt er eftir hreyfingum úr hefðbundnum frjálsíþróttagreinum. Keppt var í 10-12 krakka hópum og vann hópurinn saman í að safna stigum, þar sem allir fengu svo verðlaunapening í lokin. Selfoss átti þar tíu keppendur og Laugdælir einn.

31.1.2012 | Knattspyrna

Stjarnan vann A- og B-liđ Selofss í 2. flokki karla

Selfoss tók á móti A- og B-liðum Stjörnunnar í Faxaflóamótinu í 2. flokki karla á sunnudaginn. Stjarnan vann hjá A-liðunum 2:3 og hjá B-liðunum 1:6.

31.1.2012 | Nýjustu fréttir

Guđmundur Kr. og Hrafnhildur sćmd heiđurskrossi ÍSÍ

heidurskross isiÞau Guðmundur Kr. Jónsson og Hrafnhildur Guðmundsdóttir fengu afhentan heiðurskross ÍSÍ í sérstöku afmælishófi sem haldið var í Ráðhúsi Reykjavíkur í tilefni af 100 ára afmæli Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sl. laugardag. Bæði hafa þau starfað í áratugi innan íþróttahreyfingarinnar. Ungmennafélag Selfoss óskar þeim innilega til hamingju með þessa viðurkenningu.

30.1.2012 | Handbolti

Frábćr leikur hjá Selfoss 2

Selfoss 2 í 3. flokki mætti A-liði FH í gær í Kaplakrika. Fyrir leikinn voru FH-ingar lang efstir í 2. deildinni og höfðu unnið alla sjö leiki sína með minnst 10 marka mun. Selfyssingar léku frábærlega í leiknum og áttu góða möguleika á að vinna leikinn. FH-ingar kláruðu hins vegar leikinn á seinustu mínútunum og sigruðu 22-20.

30.1.2012 | Handboltaakademía

Sigur og tap í 4. flokki kvenna

Um helgina spiluðu stelpurnar í A- og B-liði 4. flokks við Fylki. Niðurstaðan varð sigur hjá Aliðinu á útivelli 14-20 en tap á heimvelli 13-20 hjá B-liðinu.

30.1.2012 | Handboltaakademía

3. flokkur karla vann Fjölni

Í gær fóru strákarnir okkar í A-liði 3. flokks í Grafavog og spiluðu við Fjölnismenn. Niðurstaðan 23-31 sigur en staðan í hálfleik var 13-17 fyrir Selfoss.

28.1.2012 | Nýjustu fréttir

Lífshlaupiđ, heilsu-og hvatningarverkefni ÍSÍ, hefst 1. febrúar

ÍSÍ_merkiLífshlaupið verður ræst í fimmta sinn miðvikudaginn 1. febrúar n.k. Um 16.400 manns tóku þátt í Lífshlaupinu á síðasta ári og fjölgaði þátttakendum um rúmlega 3000 á milli ára. Lífshlaupið höfðar til allra landsmanna og er hægt að skrá þátttöku á vefsíðu Lífshlaupsins www.lifshlaupid.is en þar gefst þátttakendum kostur á að taka þátt í: vinnustaðakeppni frá 1. - 21. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur), hvatningarleik fyrir grunnskóla frá 1. - 14. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur) eða einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið.

27.1.2012 | Taekwondó

Frábćr árangur á bikarmóti TKÍ

Bikarmót TKÍ var haldið í Íþróttamiðstöðinni Austurbergi í Breiðholti dagana 21.-22. janúar sl. Taekwondodeild Umf. Selfoss sendi 30 keppendur til leiks sem stóðu sig frábærlega. Af þeim voru tveir sem æfa með deildinni á Hellu (H). Selfosskrakkarnir skiluðu 26 verðlaunum í hús. Auk þess voru Lilja Hrafndís Magnúsdóttir og Þorvaldur Óskar Gunnarsson valin keppendur mótsins.

27.1.2012 | Handboltaakademía

2.flokkur áfram í bikarnum

Lið Selfoss í 2. flokki karla sótti Mosfellinga heim í gærkvöld í 8-liða úrslitum bikarkeppninar. Uppskáru okkar menn sigur 28-26 í hörkuleik eftir að hafa leitt í leikhléi 16-12.

27.1.2012 | Handbolti

4. flokkur karla í undanúrslit

Strákarnir í 4. flokki léku í gær gegn KR-ingum í 8-liða úrslitum bikarkeppni yngri flokka. Selfyssingar unnu þar sannfærandi sigur 25-14 og eru því komnir í undanúrslit bikarsins. Frábær varnarleikur Selfoss í leiknum skóp þennan sigur.

26.1.2012 | Handboltaakademía

3. flokkur karla áfram í Bikarnum

Í gærkvöldi unnu strákarnir í 3. flokki lið Gróttu 32-20 á heimavelli í Bikarkeppninni. Staðan í hálfleik var 14-7 fyrir Selfoss. Frábær sigur á góðu liði og nú eru strákarnir komnir í undanúrslit keppninnar.

24.1.2012 | Handbolti

Bikarvika í Vallaskóla!

Næstu tvo daga fara fram tveir æsispennandi leikir í 8-liða úrslitum bikarkeppni yngri flokka í handboltanum í Vallaskóla. Ástæða er til að hvetja fólk til að fjölmenna á leikina þar sem okkar lið fengu heimaleik í bikar í þetta skiptið.
Miðvikudagur 25. janúar - 21:00 - Selfoss - Grótta (3. flokkur karla)
Fimmtudagur 26. janúar - 20:00 - Selfoss - KR (4. flokkur karla)

24.1.2012 | Fimleikar

Selfoss međ gull og brons í fimleikum á Reykjavíkurleikunum

fimleikar_rig2012_49451Fimleikadeild Selfoss sendi tvö lið til keppni á Reykjavíkurleikana í hópfimleikum 21. janúar sl. Keppt var annars vegar í Teamgym í opnum flokki, þar sem allir kepptu við alla óháð aldri, og hins vegar var keppt aldurskipt í landsreglum. Selfoss sendi unglingaliðið sitt til keppni í Teamgym, en liðið reynir að ná inn á Norðurlandamót juniora. Liðið hafnaði í 3. sæti á eftir meistaraflokkum Gerplu og Stjörnunnar. Selfoss HL1, sem er 3. flokks lið Selfoss, keppti í landsreglum og sigraði með glæsibrag.

24.1.2012 | Frálsíţróttir

Fimm frjálsíţróttamenn HSK/Selfoss á Reykjavíkurleikunum

Reykjavíkurleikarnir eða Reykjavík International Games fóru fram um liðna helgi, laugardaginn 21. janúar. sl. í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Þetta er boðsmót þar sem aðeins þeim sem hafa náð tilskildum árngri er boðið að taka þátt. Flest besta frjálsíþróttafólk landsins var mætt til leiks ásamt átta erlendum keppendur frá Svíþjóð, Danmörku, Hollandi, Englandi og Togo. Frá HSK/Selfoss var níu keppendum boðið til keppni. Árangurinn lofar góðu fyrir komandi innanhússkeppnistímabil. Uppskeran silfur, tvö brons og persónulegar bætingar

23.1.2012 | Handboltaakademía

4. fl. kvenna vann bćđi í A- og B-liđum

Í gær vann A-liðið 4. flokks kvenna KA/Þór 19-17 og B-liðið strax á eftir lið Gróttu 23-21. Báðir sigrarnir voru mikilvægir fyrir framhaldið á Íslandsmótinu.

23.1.2012 | Handboltaakademía

3. flokkur karla vann KA fyrir norđan

Á föstudaginn fór 3. flokkur karla norður og náði góðum sigri á KA 26-35 eftir erfiðan fyrri hálfleik sem endaði 16-18. Lagt var af stað kl. 07:00 um morguninn.

23.1.2012 | Handboltaakademía

M.fl. kvenna úr leik í Bikarnum

Síðasta fimmtudagskvöld féllu stelpurnar úr leik í Bikarnum í 8-liða úrslitum fyrir ÍBV. Lokatölur voru 37-20 en hálfleik var staðan 16-8.

23.1.2012 | Kraftlyftingar

Rósa međ ţyngstu lyftu íslenskrar konu í réttstöđulyftu á RIG

kraftlyft_rig2012Réttstöðulyftumót Ármanns var haldið sl. laugardag í tengslum við Reykjavík International Games í Laugardalshöll. Fjórar konur frá Umf. Selfoss tóku þátt í mótinu. Rósa Birgisdóttir náði þeim frábæra áfanga að lyfta 190 kg sem er þyngsta lyfta íslenskrar konu í kraftlyftingum og setti þar með enn eitt Íslandsmetið í +84kg þyngdarflokki. Jóhanna Eivinsdóttir Christiansen varð stigahæst af okkar konum með 156,2 stig. Hún lyfti 175 kg og setti glæsilegt Íslandsmet í leiðinni í -84 kg þyngdarflokki.

22.1.2012 | Handbolti

Flottur sigur í 4. flokki

Strákarnir í 4. flokki fóru til Akureyrar á föstudaginn og léku gegn heimamönnum í KA. Ferðin var vel heppnuð og sigraði Selfoss 25-28 eftir að hafa leitt 10-16 í hálfleik. Leikurinn var jákvæður fyrir Selfyssinga sem fara nú að búa sig undir leik í 8-liða úrslitum bikarsins sem fer fram næstkomandi fimmutdag í Vallaskóla.

20.1.2012 | Knattspyrna

Knattspyrnukrakkar fylgist međ bloggsíđum í dag!

Vegna snókomu og kulda hefur hitakerfi gervigrasvallarins ekki undan við að þýða völlinn. Óvíst er því um æfingar í dag og líklegt að þær verði felldar niður. Eru iðkendur beðnir um að skoða bloggsíður sinna flokka þar sem nánari upplýsingar verða birtar.

18.1.2012 | Júdó

Selfoss í 3. sćti á Afmćlismóti JSÍ

Afmælismót Júdósambands Íslands fyrir 20 ára og yngri var haldið um síðustu helgi. Mótið var haldið hjá Júdófélagi Reykjavíkur og voru 60 keppendur mættir til leiks frá 8 félögum. Júdódeild Umf. Selfoss sendi sjö keppendur á mótið og komu  sex þeirra heim með verðlaun. Júdódeild Umf. Selfoss varð í 3. sæti á heildina litið.

17.1.2012 | Knattspyrna

Jafntefli viđ Stjörnuna í fyrsta leik

Selfyssingar tóku á móti Stjörnunni í fyrsta leik liðanna á Fotbolti.net mótinu, en leikið var á heimavelli Selfyssinga í Kórnum Kópavogi. Nokkra leikmenn vantaði í bæði lið, en þrátt fyrir það var leikurinn ágætur, Selfyssingar betri og margir ljósir punktar. Stjarnan komst í 0-2, en Selfyssingar jöfnuðu 2-2 í síðari hálfleik.

16.1.2012 | Frálsíţróttir

Fjóla Signý Íslandsmeistari í fimmtarţraut kvenna

Fjola_Signy_2244Meistaramót Íslands í fjölþrautum innanhúss fór fram helgina 14.-15. janúar sl. í Frjálsíþróttahöllinni. Fjóla Signý Hannesdóttir Selfossi varð Íslandsmeistari í fimmtarþraut er hún náði 3792 stigum og bætti hún sig í öllum greinum þrautarinn-ar. Fjóla Signý átti best áður 3474 stig og bætti því sinn besta árangur um 318 stig. Fjóla Signý er í frábæru formi um þessar stundir og náði stórkostlegum árangri á fyrsta móti ársins.

16.1.2012 | Fimleikar

Íţróttaskóli barnanna hefst 21. janúar 2012

Íþróttaskóli fimleikadeildar Umf. Selfoss hefst að nýju laugardaginn 21. janúar nk. Í boði eru tímar fyrir börn fædd 2010-2007. Íþróttaskólinn er í umsjón Steinunnar H. Eggertsdóttur og Heiðrúnar Heiðarsdóttur. Mikil fjölbreytni æfinga og leikja í skemmtulegu umhverfi skapa gott andrúmsloft fyrir börnin og fá þau útrás fyrir hreyfiþörfina ásamt því að eiga frábæra samverustund með foreldrum.

15.1.2012 | Handboltaakademía

4. fl. kvenna vann FH

Í gær unnu stelpurnar í 4. flokki FH á heimavelli 21-17. FH var þó yfir í hálfleik 9-10. Stelpurnar þurftu að hafa gríðarlega mikið fyrir þessum sigri enda FH liðið gott og náðu þær mjög góðum leik gegn Selfossi að þessu sinni.

15.1.2012 | Handboltaakademía

Tap hjá mfl. kvenna gegn Fylki

Stelpurnar spiluðu gegn Fylki á útivelli á laugardag (í gær) og töpuðu 21-20 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 11-6 fyrir Fylki. Slakur fyrri hálfleikur í sókn varð liðinu að falli að þessu sinni.

14.1.2012 | Handbolti

4. flokkur vann KA

Strákarnir í 4. flokki unnu góðan heimasigur á KA-mönnum í gærkvöldi 38-27. Norðanmenn leiddu framan af leik en um miðjan fyrri hálfleik náðu Selfyssingar tökum á leiknum og stjórnuðu honum alfarið eftir það. Gaman var að sjá að það sem liðið æfði og lagði áherslu á í vikunni skilaði sér svo um munaði í leiknum.

13.1.2012 | Handboltaakademía

19 unglingalandsliđsmenn

Fjölmörg ungmenni frá Selfossi voru í landsliðsverkefnum í lok desember. Öll yngri landslið Íslands voru með æfingabúðir og átti Selfoss samtals 19 þátttakendur í þessum verkefnum. Selfoss var með 15 ára lið stráka og stelpna á Norden-cup milli jóla og nýárs og gátu þeir krakkar því ekki tekið þátt í landsliðæfingum, en Norden-cup er óopinbert Norðurlandamót félagsliða.

13.1.2012 | Knattspyrna

Guđjónsmótiđ verđur 4. febrúar

Gudjonsmot_2011Laugardaginn 4. febrúar mun knattspyrnudeild Selfoss standa fyrir Guðjónsdeginum 3. árið í röð, en Guðjónsdagurinn er haldinn til minningar um frábæran félaga og vin, Guðjón Ægi Sigurjónsson. Guðjónsmótið hefst kl. 9:30 um morguninn í Íþróttahúsinu Iðu, Íþróttahúsi Vallaskóla og á skólavellinum við Vallaskóla. Guðjónsmótið í knattspyrnu er firma- og hópakeppni. Að móti loknu verður svo stanslaust stuð í Hvíta húsinu á styrktarballi knattspyrnudeildar. Þar mun hið magnaða Boltaband halda uppi fjörinu fram á nótt.

13.1.2012 | Frálsíţróttir

Selfoss vann aldursflokkamót HSK

Aldursflokkamót HSK 11-14 ára var haldið í frjálsíþróttahöllinni í Laugardalnum í Reykjavík sl. sunnudag. Mótshaldið gekk mjög vel og tímasetningar stóðust. Þrátt fyrir mikinn fjölda greina og verðlaunaafhendinga tókst að ljúka mótinu á tæpum fjórum tímum. Þökk sé frábæru starfsfólki frá þátttökuliðunum. Selfyssingar unnu stigakeppnina á aldursflokkamótinu, Dímon varð í öðru sæti og Garpur í því þriðja. Ágætur árangur náðist í fjölda greina, en engin HSK-met voru sett að þessu sinni. 

13.1.2012 | Handboltaakademía

3. flokkur karla vann Val

Í gærkvöldi kom 3. flokkur Vals í heimsókn á Selfoss og mætti okkar strákum í toppslag 1. deildar. Leikurinn endaði með 27-23 sigri Selfoss og halda strákarnir því toppsætinu áfram.

12.1.2012 | Handboltaakademía

2. flokkur áfram í bikarnum

Okkar menn í 2. flokki unnu í gær Fram í Safamýri í bikarkeppni HSÍ. Þurfti framlengingu til að ná úrslitum fram en sigurmarkið kom þremur sekúndum fyrir leikslok. Eftir venjulegan leiktíma stóð 30-30 en lokatölur urðu 36-35. Heimamenn höfðu yfir í leikhléi 15-13.

11.1.2012 | Nýjustu fréttir

Vorannarfjarnám ÍSÍ í ţjálfaramenntun

ÍSÍ_merkiVorannarfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 6. febrúar nk. og tekur það átta vikur. Um er að ræða samtals 60 kennslustunda nám eða sem samsvarar öllu 1. stiginu,1a, 1b og 1c. Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.

11.1.2012 | Handbolti

4. flokkur leikur heimaleik á föstudag

4.fl.A 2011-12Næstkomandi föstudag, 13. janúar,  taka strákarnir í A-liði 4. flokks á móti KA mönnum frá Akureyri. Leikurinn fer fram kl. 21:00 í Vallaskóla og verður væntanlega um hörkuleik að ræða. Strákarnir eru staðráðnir í að ná upp góðum leik og skorum við á sem allra flesta að mæta og horfa á liðið spila.

11.1.2012 | Sund

Guggusund - ungbarnasund hefst 12. og 13. janúar

ungbarnasundNý námskeið í Guggusundi (ungbarnasundi) hefjast 12. og 13. janúar næstkomandi. Umer að ræða ungbarnasund fyrir 0-2 ára, barnasund fyrir 2-4 ára, sundnámskeið fyrir 4-6 ára og sundskóla fyrir börn fædd 2006 og fyrr.

10.1.2012 | Frálsíţróttir

Selfoss sigrađi Unglingamót HSK í frjálsum

frjalsar-ung-HSK-2012Unglingamót HSK var haldið í Frjálsíþróttahöllinni 8. janúar sl. Frjálsíþróttadeild Selfoss sendi öflugt lið til leiks og var frammistaða keppenda mjög góð. Selfoss sigraði stigakeppni félaganna með 155 stig. Lið Dímonar kom næst með 122 stig.

10.1.2012 | Handbolti

Selfoss-strákar 97 unnu brons á Norden Cup

norden-cup-strakar-2011Tvö Selfosslið tóku þátt í Norden Cup sem fór fram í Gautaborg á milli jóla og nýárs. Var þar um að ræða strákalið og stelpulið úr árgangi 1997. Strákarnir gerðu sér lítið fyrir og unnu bronsverðlaun er þeir sigruðu Bakkelagets Sportsklub með einu marki í leik um þriðja sætið.

9.1.2012 | Handboltaakademía

Tap í hörkuleik hjá 3 fl. kvk.

Á laugardaginn mættu stelpurnar Fram2 í 2. deildinni. Fram hafði betur með sigurmarki á síðustu sekúndum leiksins og vann 27-26. Þetta var fyrsta tap stelpnanna síðan 6. nóvember.

8.1.2012 | Handboltaakademía

Góđur sigur hjá Selfoss 2

Selfoss 2 í 3. flokki karla vann KR-inga í dag 25-22 eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik. Sigurinn er sá þriðji hjá liðinu í fimm leikjum og liðið á góðri stefnu í deildinni.

8.1.2012 | Handbolti

Slćmur dagur hjá 4. flokki

A- og B-liðin í 4. flokki karla mættu toppliðunum í deildunum í gær. Bæði lið þurftu að sætta sig við töp eftir að hafa verið í ágætum möguleika á að ná meiru út úr leikjunum. Of mikið af þýðingarmiklum atriðum klikkuðu í leikjunum til að hægt væri að vinna leiki gegn sterkum liðum.

6.1.2012 | Handboltaakademía

2. flokkur byrjar áriđ vel

Stjörnumenn úr Garðabæ sóttu okkar drengi heim í gærkvöld og fóru tómhentir heim að lokinni heimsókn þeirri. Selfoss hafði yfir 16-15 í hálfleik og hafði að lokum öruggan sigur, 37-28.

5.1.2012 | Handboltaakademía

3. flokkur kvenna byrjađi áriđ á sigri

Stelpurnar í 3. flokki unnu í gærkvöldi lið Gróttu 2 á heimavelli 30-26 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 16-13 fyrir Selfoss.

5.1.2012 | Knattspyrna

Pistill um meistaraflokk kvenna

tora_margret_2011Þóra Margrét Ólafsdóttir, fyrirliði meistaraflokks kvenna, skrifar hér pistil um uppgang meistaraflokks kvenna á Selfossi. Liðið mun spila í efstu deild í sumar, í fyrsta skipti í sögu félagsins.

4.1.2012 | Taekwondó

Nýr taekwondosalur tekinn í notkun í dag kl. 18-20

Í tilefni þess að taekwondodeild er að taka í notkun nýjan taekwondosal er öllum sem vilja boðið að koma og skoða nýja salinn og fylgjast með fyrstu æfingunni, en hún verður miðvikudaginn 4. janúar kl. 18:00-20:00. Nýi salurinn er staðsettur á 2. hæð í Baulu (íþróttahúsi Sunnulækjarskóla). Gengið er inn að vestanverðu á sama stað og gengið er inn í íþróttahúsið. Taekwondodeild hvetur sem flesta til að láta sjá sig og sjá ört vaxandi deild við leik og störf. Þar verður m.a. myndasýning, sprell og fjör.

4.1.2012 | Júdó

Júdóćfingar hafnar

Júdóæfingar eru hafnar að fullum krafti samkvæmt stundaskrá. Æfingarnar fara fram í nýja júdósalnum í Sandvíkurskóla. Byrjendur á öllum aldri eru boðnir velkomnir. Nánari upplýsingar um æfingatíma má finna hér á heimasíðunni.

4.1.2012 | Knattspyrna

Knattspyrnućfingar hjá 8. flokki hefjast miđvikud. 11. jan

Knattspyrnuæfingar hjá 8. flokki hefjast aftur eftir jólafrí miðvikudaginn 11. janúar. Æfingar eru í Iðu kl. 17:15-18:00 fyrir stráka og stelpur fædd 2006 og 2007. Kv. Hafdís Jóna.

3.1.2012 | Knattspyrna

Knattspyrnukrakkar fylgist međ á bloggsíđum

Vegna kulda og jólafrís hefur ekki náðst að þýða klaka af gervigrasvellinum. Iðkendur í knattspyrnu eru því beðnir að fylgjast með á bloggsíðum sinna flokka varðandi æfingar næstu daga.

3.1.2012 | Frálsíţróttir

HSK-mótin í frjálsum framundan

HSK_merkiHSK-mótin í frjálsum íþróttum í flokkum 11 ára og eldri fara fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardalnum í janúar. Er þetta í þriðja sinn sem HSK-mótin fara þar fram. Hér að neðan eru upplýsingar um mótin í aldursflokkum 11-22 ára. Nánari upplýsingar um héraðsmótið verða birtar síðar.

2.1.2012 | Nýjustu fréttir

Jón Dađi og Guđmunda Brynja íţróttamađur og íţróttakona Árborgar 2011

ithr_arborgar_2011Á uppskeruhátíð Íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar, sem fram fór 28. desember sl. í hátíðarsal Fjölbrautskóla Suðurlands, voru þau Jón Daði Böðvarsson, knattspyrnumaður Selfossi, og Guðmunda Brynja Óladóttir, knattspyrnukona Selfossi, útnefnd íþróttamaður og íþróttakona Árborgar 2011. Þau stóðuð sig bæði frábærlega á árinu og léku m.a. með ungmennalandsliðum Íslands. Alls var 21 íþróttamaður tilnefndur, tíu konur og ellefu karlar.

2.1.2012 | Knattspyrna

Nýr samningur knattspyrnudeildar viđ Íslandsbanka

undirritun_isl_2011Þann 29. desember sl. var skrifað undir nýjan styrktarsamning Íslandsbanka við knattspyrnudeild Umf. Selfoss. Samkvæmt samningnum, sem er sá stærsti sem deildin hefur gert til þessa, verður Íslandsbanki aðalstyrktaraðili deildarinnar næstu tvö árin. Þess má geta að Íslandsbanki hefur verið einn af aðalstyrktaraðilum knattspyrnudeildar Umf. Selfoss undanfarin 25 ár.

2.1.2012 | Handbolti

HSK-mótiđ í handbolta haldiđ í 5. sinn

HSK-mótið í meistaraflokki karla fór fram í íþróttahúsi Vallaskóla fimmtudaginn 29. desember sl. Var þetta fimmta árið í röð sem mótið er haldið eftir að það var endurvakið. Handknattleiksnefnd HSK sá um undirbúning og framkvæmd mótsins, en leikmenn skiptust á að dæma leiki.

2.1.2012 | Frálsíţróttir

Fjóla Signý í feiknaformi á Áramóti Fjölnis í Laugardalshöll

bikar_fri_feb_2011Áramót Fjölnis, sem jafnframt varr síðasta frjálsíþróttamót ársins 2011, fór fram fimmtudaginn 29. des. sl. í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. HSK/Selfoss átti þar sjö keppendur sem allir stóðu sig með ágætum og lofar árangurinn góðu fyrir komandi innanhússkeppnistímabil. Uppskeran var tvö gull, fimm silfur og fjögur brons, nokkrar persónulegar bætingar og tvö HSK-met.

2.1.2012 | Knattspyrna

Björn Kristinn ţjálfar stelpurnar áfram

Í lok desember framlengdi knattspyrnudeild samning við Björn Kristinn Björnsson um að þjálfa meistaraflokk kvenna. Björn Kristinn náði frábærum árangri með liðið á síðasta ári. Liðið varð Lengjubikarmeistari í c-deild og í 2. sæti í 2. deild Íslandsmótsins, en sá árangur tryggði liðinu sæti íPepsi deildinni í fyrsta skipti. Í lok sumars var Björn kosinn þjálfari ársins í 1. deildinni.

2.1.2012 | Frálsíţróttir

Fjóla Signý og Örn Davíđs best á Áramótamóti frjálsíţróttadeildar

frjalsar_gts_2011Áramótamót frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss fór fram í íþróttahúsi Vallaskóla þriðjudaginn 27. desember sl. Örn Davíðsson FH sigraði í öllum fimm karlagreinum mótsins og Fjóla Signý Hannesdóttir Selfossi var atkvæðamest í kvennaflokki.


Á nćstunni

18.5.2012 | Knattspyrna
22.5.2012 | Knattspyrna
24.5.2012 | Knattspyrna
31.5.2012 | Knattspyrna
2.6.2012 | Frjálsíţróttir
4.6.2012 | Knattspyrna


Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta