29.2.2012 | Handboltaakademía
Í gær unnu stelpurnar í meistaraflokki lið HK3 með 5 marka mun. Lokatölur urðu 27-32. Í hálfleik var staðan 11-16 fyrir Selfoss.
28.2.2012 | Frálsíţróttir
Meistaramót Íslands 11-14 ára fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal um síðustu helgi. Lið HSK/Selfoss varð í 3. sæti í heildarstigakeppninni. Liðið vann stigakeppni 13 og 14 ára pilta og 13 ára stúlkna og varð í 2. sæti í flokki 12 ára pilta. Alls unnust 10 gull, 8 silfur og 4 brons, sem verður að teljast góður árangur.
27.2.2012 | Handbolti
Selfoss náði ekki að tryggja sér bikarmeistaratitil í gær í
4. flokki. Liðið mætti FH-ingum sem voru beittari framan af og komust í 0-4.
Kom þá öflugur kafli hjá okkar mönnum sem komust 5-4 yfir. Jafnræði var með
liðunum það sem eftir var fyrri hálfleiks.
27.2.2012 | Sund
Selfossmeistaramótið í sundi fór fram sunnudaginn 26. febrúar sl. Alls voru keppendurnir 49 frá sunddeildum Umf. Selfoss og Hamars í Hveragerði og stungur í laugina 161. Keppendafjöldi skiptist nær því jafnt milli 10 ára og yngri og 11 ára og eldri. Sérstaka lukku vöktu þrír garpar frá Umf. Selfoss sem allir kepptu í 100 m skriðsundi. Höfðu yngri keppendur gaman að fylgjast með tilþrifum „gömlu mannana".
27.2.2012 | Frálsíţróttir

Fjóla Signý Hannesdóttir, frjálsíþróttakona úr Umf. Selfoss, stórbætti HSK-metið í 400 m hlaupi kvenna innanhúss á XL-Galan mótinu í Stokkhólmi sem fór fram sl. fimmtudag. Fjóla Signý hljóp á 57,21 sekúndu og bætti sig um um 0,7 sek. Tíminn er nýtt HSK-met í kvennaflokki, en Fjóla átti gamla metið sjálf.
26.2.2012 | Handbolti
Selfoss varð nú í kvöld bikarmeistari í 2. flokki í Eimskipsbikarkeppni HSÍ. Strákarnir eru vel að þessum titli komnir og hafa lagt mikið á sig til að landa honum. Flestir leikmanna Selfoss í kvöld voru að leika sinn fyrsta úrslitaleik og stóðust þeir álagið. Í hálfleik stóð 15 - 15, en lokatölur voru 32 - 29. Frekari umfjöllun er væntanlega með fleiri upplýsingum um leikinn sem og tölfræði. Áfram Selfoss!
23.2.2012 | Handbolti
Eins og fram hefur komið á síðunni hafa tvö lið frá Selfossi
tryggt sér sæti í bikarúrslitaleikjum yngri flokka sem fram fara í
Laugardalshöll næstkomandi sunnudag. 4. flokkur karla spilar klukkan 12:00 gegn
FH og 2. flokkur karla spilar klukkan 19:00 á móti Val.
Viljum við hvetja alla Selfyssinga til að mæta í Höllina og
styðja okkar lið áfram í þessum skemmtilegu leikjum.
22.2.2012 | Handbolti
Okkar menn í 2. flokki unnu FH í undanúrslitum hér á Selfossi í gærkvöld. Lokatölur urðu 25 - 24 eftir að gestirnir úr Hafnarfirði höfðu yfir 11 - 15 í leikhléi. FH-ingar komu betur stemmdir til leiks og voru fremri á öllum sviðum í fyrri hálfleik. Virtist sem spennustig okkar manna væri helst til hátt.
21.2.2012 | Handbolti
Stórleikur á Selfoss í kvöld!
Það verður sannkallaður stórleikur á Selfoss í kvöld er 2.flokkur mætir FH. Hefst leikurinn kl 19.00 í Vallaskóla og hvetur síðuritari sem og heimasíðan alla til að mæta og styðja strákana til sigurs. Leikurinn er liður í bikarkeppni HSÍ og er um að ræða undanúrslit. Liðið sem vinnur í kvöld fer í sjálfan úrslitaleikinn.
Áfram Selfoss!
20.2.2012 | Frálsíţróttir
Sjötta Bikarkeppni FRÍ í frjálsum íþróttum innanhúss fór fram í Laugardalshöllinni laugardaginn 18. febrúar s.l. HSK sendi sitt sterkasta lið til keppni sem náði góðum árangri. Það samanstóð af ungum einstaklingum sem þreyttu frumraun sína í bikarkeppni sem og reyndum jöxlum sem alltaf standa fyrir sínu.
20.2.2012 | Fimleikar
Selfoss átti tíu lið á Íslandsmóti unglinga í hópfimleikum sem fram fór á Selfossi 11. og 12 febrúar sl. Keppt var í fimm flokkum á mótinu.
20.2.2012 | Handboltaakademía
Strákarnir á yngra ári í 6. flokki drengja hafa nú þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í sínum aldursflokki eftir að hafa unnið þrjú fyrstu mótin í vetur. Keppnisfyrirkomulagið er þannig að úrslit úr þremur mótum af fimm telja til Íslandsmeistaratitils. Þetta er með eindæmum sigursæll flokkur. Þeir hafa aldrei tapað leik á Íslandsmóti, unna alla sína leiki síðustu ár líka. Guðmundur Sigmarsson íþróttakennari hefur verið þjálfari strákanna allt frá byrjun.
20.2.2012 | Handboltaakademía
Strákarnir í meistaraflokki unnu á föstudag Fjölni örugglega í Reykjavík, 28-19, eftir að hafa verið yfir 10-7 í leikhléi. Okkar menn voru alltaf með undirtökin í leiknum og létu aldrei af stjórninni. Mestur varð munurinn 11 mörk. Vörn liðsins var afar góð allan leikinn, en sóknarleikurinn fór í gang í síðari hálfleik. Ómar lék afar vel í leiknum og hefur verið að nýtast liðinu vel sóknarlega einnig. Þá léku Árni Felix Gíslason og Ketill Heiðar Hauksson sína fyrstu leiki með meistaraflokki.
19.2.2012 | Handbolti
Selfyssingar fóru slæma ferð á Ásvelli í dag í 4. flokki karla. Bæði lið töpuðu eftir slaka byrjun í báðum leikjum.
19.2.2012 | Handbolti
Strákarnir í 2. flokki gerðu góða ferð í Hafnarfjörð í gær og unnu þar heimamenn í Haukum 29 - 26. Mest náðu okkar menn átta marka forustu og leiddu í hálfleik 13 - 10. Smá klaufaskapur í lok leiks varð til þess að heimamenn náðu að laga stöðuna aðeins.
19.2.2012 | Handboltaakademía
Stelpurnar í 3. flokki töpuðu í gær fyrir liði Vals 27-33, en staðan í hálfleik var 12-18 fyrir gestina.
19.2.2012 | Handboltaakademía
Stelpurnar í B-liðinu í 4. flokki unnu góðan sigur í gær á liði Hauka. Lokatölur urðu 22-16 en staðan í hálfleik var 11-8.
19.2.2012 | Handboltaakademía
Á föstudagskvöldið náðu strákarnir í 3. flokki sigri á útivelli gegn Haukum 21-24. Staðan í hálfleik var 9-10 fyrir Selfoss.
17.2.2012 | Handbolti
Í gær sigraði 4. flokkur karla ÍBV, 27-26, í afar dramatískum leik í undanúrslitum bikarkeppninnar og tryggði sér þannig sæti í úrslitaleiknum sem fram fer í Laugardalshöllinni. Í annað skiptið á þremur dögum voru rúmlega 200 áhorfendur mættir á handboltaleik hjá yngri flokkum á Selfossi og gerðu þeir leikinn eftirminnilegan fyrir leikmenn.
15.2.2012 | Handboltaakademía
Engu munaði að stelpunum í 3. flokki tækist að framkalla annað kraftaverk í Bikarnum þegar þær töpuðu 24-28 fyrir Haukum í undanúrslitum í gær.
14.2.2012 | Frálsíţróttir
Helgina 11.-12. febrúar fór fram í Laugardalshöllinni aðalhluti Meistaramóts Íslands. HSK/S°elfoss átti þar öfluga fulltrúa sem stóðu sig vel að vanda. Í heildina fékk HSK/Selfoss tvö gull, tvö silfur og eitt brons. Í stigakeppni milli félaga varð HSK/Selfoss í 3. sæti í karlakeppninni og 4. sæti í heildina.
14.2.2012 | Handbolti
Í þessari viku fara fram tveir undanúrslitaleikir í bikarkeppni yngri flokka HSÍ. Leikirnir fara fram í íþróttahúsi Vallaskóla á þriðjudag og fimmtudag. Er rík ástæða til þess að hvetja fólk til að mæta á leikina og styðja okkar lið áfram því með sigri tryggja þau sér sæti í úrslitaleikjunum sem fara fram í Laugardalshöllinni. Þriðjudaginn 14. febrúar kl. 21:00 leika Selfoss og Haukar í 3. flokki kvenna og fimmtudaginn 16. febrúar kl. 17:00 leika Selfoss og ÍBV í 4. flokki karla.
14.2.2012 | Handboltaakademía
Selfyssingar sóttu ÍR-inga heim í Austurberg síðastliðinn föstudag og fengu úr þeim þeim leik eitt stig. Um hörkuleik var að ræða sem endaði 28 - 28, en í leikhléi var einnig jafnt, 13 - 13. Leikurinn var jafn og gat allt eins farið þannig að annað hvort liðið hefði heppnina með sér og næði fram sigri. Því má kannski segja að jafntefli hafi verið sanngjörn niðurstaða. Vörn Selfoss var góð í leiknum sem og markvarsla. Matthías átti góðan leik sem og Atli Kristins. Ómar stóð fyrir sínu og Trausti átti flotta innkomu. Þá lék Hörður afar vel í seinni hálfleik og skoraði mikilvæg mörk. Næsti leikur liðsins er svo á föstudaginn næsta úti gegn Fjölni.
13.2.2012 | Kraftlyftingar
Rósa Birgisdóttir gerir það ekki endasleppt í kraftlyftingum þessa dagana. Hún keppti á Íslandsmeistaramótinu í bekkpressu á Akranesi fyrir stuttu og setti enn eitt Íslandsmetið. Hún átti frábærar tilraunir sem allar tókust. Hún byrjaði á því að lyfta 100 kg. Síðan lyfti hún 110 kg, sem var nýtt Íslandsmet. Þriðja og síðasta lyftan var 120 kg og um leið bæting á Íslandsmetinu. Rósa keppir í þyngdarflokknum +84 kg og varð fjórða stigahæsta konan á mótinu.
13.2.2012 | Sund

Gullmót KR var haldið í 50m innilaug í Laugardal um helgina sem leið. Yfir 500 keppendur syntu á mótinu sem var í sex hlutum. Sundeild Umf. Selfoss sendi sex keppendur á mótið sem kepptu samtals í 12 greinum. Mikið var um persónulegar bætingar hjá okkar sundfólki enda var æft af kappi fyrir þetta fyrsta stóra mót ársins.
12.2.2012 | Handbolti
3. flokkur karla fór í gær til Vestmannaeyja og lék við heimamenn. Lið
ÍBV hefur verið að bæta sig mikið að undanförnu en í þessum leik mættu
þeir öflugum Selfyssingum sem voru greinilega staðráðnir í að koma sér
aftur í gang eftir tvö töp að undanförnu. Strákarnir léku á alls oddi
unnu 23-45.
12.2.2012 | Handbolti
Á föstudag léku bæði lið 4. flokks karla gegn ÍBV í íþróttahúsi Vallaskóla. A-liðið
reið á vaðið og sigraði 30-27 eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í
hálfleik. B-liðið sigraði 32-24 en þeir voru 15-11 yfir í hálfleik.
10.2.2012 | Handbolti
4. flokkur karla tekur á móti ÍBV í tveimur leikjum í dag. Leikirnir fara fram í Vallaskóla kl. 16:00 og 17:00 og hvetjum við alla til að mæta og fylgjast með strákunum.
9.2.2012 | Handboltaakademía
Strákarnir í 3. flokki töpuðu í gær 24-23 fyrir Fram í undanúrslitum Bikarkeppninnar. Staðan í hálfleik hafði verið 12-7 fyrir heimamenn.
7.2.2012 | Knattspyrna

Laugardaginn 28. janúar sl. fór fram hið árlega fótboltamaraþon hjá 5. flokki karla í knattspyrnu. Strákarnir spiluðu fótbolta með fjölbreyttu sniði í heila 8 klukkutíma, eða frá kl. 9-17. Þeir voru orðnir ansi dasaðir í enda dags, enda hellings púl að spila fótbolta samfleytt í svona langan tíma. Allir stóðu þeir sig eins og hetjur, bæði í maraþoninu sjálfu sem og í áheitasöfnuninni, en hún fór fram í vikunum tveimur á undan maraþoninu.
7.2.2012 | Fimleikar

Fimleikadeild Selfoss hélt um helgina Þorramót í hópfimleikum í 5. flokki landsreglna fyrir yngri kynslóðina og þá sem eru að stíga sín fyrstu spor í keppni. Þátttaka fór fram úr björtustu vonum. Níu lið mættu til keppni í yngri flokki og fimm í eldri. Í yngri flokknum fengu liðin viðurkenningu fyrir sitt besta áhald. Í eldri flokknum voru veitt verðlaun og viðurkenningar. Mótið fór fram í Baulu og fór keppnin vel fram þó þröngt væri.
6.2.2012 | Handbolti
Selfyssingar mættu FH í Kaplakrika í gær í 4. flokki karla. Seinast þegar þessi lið áttust við vann Selfoss í bæði A og B liðum með einu marki. Núna voru FH-ingar sterkari og unnu báða leikina.
6.2.2012 | Knattspyrna
Laugardaginn 4. febrúar sl. fór fram í Iðu og Vallaskóla minningarmót í knattspyrnu. Um kvöldið var svo slúttað frábæru móti með mögnuðum dansleik í Hvíta Húsinu, í ekta „Guðjóns Style". Mótið sem er firma- og hópakeppni er haldið af knattspyrnudeild Selfoss til minningar um frábæran félaga og vin Guðjón Ægi Sigurjónsson sem lést af slysförum langt um aldur fram.
6.2.2012 | Frálsíţróttir

Unglingameistaramót Íslands 15-22 ára var haldið í Frjálsíþróttahöllinni helgina 4.-5. febrúar sl. HSK/Selfoss sendi öflugt lið til leiks sem stóð sig mjög vel. Níu Íslandsmeistaratitlar komu í hús hjá HSK/ Selfoss, þrjú silfur og átta brons. Í einstökum flokkum varð lið HSK/ Selfoss í 2. sæti í tveimur þeirra, þ.e. hjá 16-17 ára stúlkum og 20- 22 ára piltum. Síðast en ekki síst voru tvö HSK-met slegin á mótinu.
5.2.2012 | Handbolti
Eftir tæplega tveggja mánaða hlé, vegna Evrópumótsins sem íslenska karlalandsliðið tók þátt í Serbíu, er 1. deildin hafin á ný. Það er greinilegt að lið Selfoss hefur unnið heimavinnuna sína í hléinu því þeir byrjuðu á því að vinna ÍBV í spennandi leik í Íþróttahúsi Vallaskóla, en leikurinn endaði 21-20.
4.2.2012 | Handboltaakademía
Í gærkvöldi tapaði A-lið 3. flokks karla sínum fyrsta leik á þessu tímabili. Gestirnir frá Mosfellsbæ voru betri og áttu sigurinn skilið. Lokatölur 20-24 eftir að gestirnir höfðu leitt í hálfleik 7-11.
2.2.2012 | Handbolti
Strákarnir í 4. flokki mættu Aftureldingu í Mosfellsbæ í gær. Selfoss
var með yfirhöndina allan leikinn og sigraði að lokum 23-31 eftir að
hafa leitt 10-16 í hálfleik.
2.2.2012 | Júdó
Afmælismót Júdósamband Íslands fór fram um síðustu helgi í sal Júdódeildar Ármanns. Alls tóku 45 keppendur þátt í mótinu frá öllum stærstu félögum landsins. Mótið var sterkt og mikil stemning á meðal áhofenda. Þór Davíðsson Umf. Selfoss staðfesti á mótinu að hann er einn af sterkustu júdómönnum landsins. Hann sigraði sinn þyngdarflokk (-90 kg) af öryggi án þess að tapa viðureign.
1.2.2012 | Handbolti
Með sigri 3. flokks kvenna á Fylki í gær urðu stelpurnar fjórða liðið frá Selfossi sem tryggði sér sæti í undanúrslitum bikarkeppni HSÍ. Áður hafði 3. flokkur karla sigrað Gróttu 32-20, 4. flokkur karla sigrað KR 25-14 og 2. flokkur karla sigrað Aftureldingu 28-26, en þeir sigrar voru einnig í 8-liða úrslitum.
1.2.2012 | Handboltaakademía
Í gærkvöldi gerðu stelpurnar í 3. flokki sér lítið fyrir og unnu Fylki, eitt af allra bestu liðum landsins, í 8-liða úrslitum Bikarsins á heimavelli 26-24. Staðan í hálfleik var 17-14 fyrir Selfoss. Hins vegar var sigurinn allt of dýru verði keyptur þar sem Þuríður meiddist illa í leiknum og óvíst hvort hún spilar meira í vetur.
1.2.2012 | Handboltaakademía
2. fl. vann í Hafnarfirđi
Strákarnir í 2. flokki unnu á FH á útivelli á mánudaginn var. Eftir að hafa leitt í leikhléi 15 - 12 unnu þeir að lokum 29 - 27 þar sem FH-ingar skoruðu tvö síðustu mörk leiksins. Okkar menn lögðu sig fram og léku sinn besta varnarleik það sem af er tímabils.