Hvert barn á aldrinum 6-18 ára sem á lögheimili í Sveitarfélaginu Árborg á rétt á svonefndum hvatagreisðlum til niðurgreiðslu á skipulögðu íþróttastarfi í Árborg. Þessi upphæð er kr. 10.000 á hvert barn fyrir viðurkennt námskeið eða æfingar sem standa í 10 vikur eða lengur. Mín Árborg er íbúagátt Sveitarfélagsins Árborgar og þar er hægt að sækja um hvatagreiðslurnar rafrænt. Farið er inn á íbúagáttina í gegnum heimasíðu Árborgar www.arborg.is eða ibuagatt.arborg.is. Til að fá aðgang að gáttinni er valin „nýskráning" og verður síðan lykilorð sent í heimabanka viðkomandi eða að náð sé í það í afgreiðslu Ráðhúss Árborgar.
Síðastliðna helgi fór fram Meistaramót Íslands í unglingaflokkum. Sameiginlegt lið HSK og Selfoss gerði góða hluti á mótinu. 25 keppendur voru af Suðurlandinu í ár miðað við 20 í fyrra, sem er mjög jákvætt enda frjálsar í sókn á svæðinu. Alls vann lið HSK-SELFOSS 8 gull, 9 silfur og 6 brons og setti 8 HSK-met. Í heildina varð liðið í 3. sæti í stigakeppni milli félaga með 153 stig sem er mun betri árangur en í fyrra. Í einstökum flokkum þá vann HSK-SELFOSS sveinaflokkinn í stigakeppninni og eru því Íslandsmeistarar í sveinaflokki innanhúss 2010.
Stórmót ÍR fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík helgina 23.-24. janúar sl. Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss skráði 46 keppendur til leiks, þar af voru tvö 10 manna lið sem tóku þátt í þrautabrautinni. Keppendur stóðu sig mjög vel og uppskáru 9 gullverðlaun, 8 silfurverðlaun og 3 bronsverðlaun. Að auki voru sett þrjú Selfossmet og eitt HSK-met.
Héraðsmót HSK í frjálsum íþróttum fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík þriðjudagskvöldin 12. og 19. janúar s.l. Lið Umf. Selfoss sigraði heildarstigakeppnina með 133 stig, en komu Laugdælir fast á hæla þeirra með 123,5 stig.
Aldursflokkamót HSK, 11-14 ára, í frjálsum íþróttum var haldið sunnudaginn 10. janúar s.l. í Frjálsíþróttahöllinni í Reykjvík. Selfoss sigraði heildarstigakeppnina nokkuð örugglega með 321 stig, en lið Þjótanda (Baldur, Samhygð, Vaka) varð í öðru sæti með 249 stig. Árangur keppenda Umf. Selfoss var eftirfarandi:
