Beint á leiðarkerfi vefsins

Brúarhlaup Selfoss 2010

- Brúarhlaup Selfoss, laugardaginn 4. september 2010.

Staður og tími
Allir hlauparar og hjólreiðamenn verða ræstir á Ölfusárbrú. Hjólreiðar hefjast kl. 11:00, hálfmaraþon kl. 11:30 og aðrar vegalengdir kl. 12:00.

Vegalengdir
2,5 km, 5 km, 10 km og hálfmaraþon, allar vegalengdir eru með tímatöku. Einnig er keppt í 5 km hjólreiðum. Keppni í 5 km hjólreiðum fer fram á malbiki. Allar hlaupaleiðir eru löggildar og mældar upp af viðurkenndum aðila. Tímataka er í öllum vegalengdum, bæði hlaupa og hjólreiða.

Þátttakendur eru hvattir til að kynna sér vel hlaupaleiðir áður en hlaupið er af stað. Kort með hlaupaleiðunum er að finna á hlaup.is og einnig verða upplýsingar um þær aðgengilegar við upphaf hlaups og við skráningu.

Flokkaskipting
Flokkaskipting er í 10 km og hálfmaraþoni og í þeim flokkum eru veittir verðlaunapeningar fyrir 1.-3. sæti í hverjum aldursflokki. Íslandsmeistaramót í hálfu maraþoni fer fram í Brúarhlaupinu þetta árið á vegum Frjálsíþróttasambands Íslands.

Skráning
Allir þátttakendur fá við skráningu keppnisbol og verðlaunapening við komu í mark. Skráningargjöld í forskráningu eru 1.200 kr. fyrir 14 ára og eldri og 600 kr. fyrir 13 ára og yngri, í allar keppnisgreinar, nema í 10 km hlaup þar sem skráningargjald er 3.000 kr. og í hálf maraþon þar sem skráningargjald er 3.500 kr. Veittur er fjölskylduafsláttur þannig að hjón borga fullt gjald, fyrir sig og tvö börn, en ef um fleiri börn er að ræða fá þau frítt. Forskráningu líkur á netinu á hlaup.is, fimmtudaginn 2. september kl. 18. Eftir það eru skráningargjöldin 1.400 kr. fyrir 14 ára og eldri og 800 kr. fyrir 13 ára og yngri. Einnig hækkar skráningargjald í 10 km hlaupi í 3.500 kr. og í hálf maraþoni í 4.000 kr. eftir að forskráningu líkur.

Skráning fer fram á hlaup.is og í Landsbankanum á Selfossi, einnig á hlaupadag frá kl. 09:00 í Landsbankanum á Selfossi. Skráningu í hverja keppnisgrein,á hlaupadag, líkur klukkustund fyrir upphaf hennar. Afhending keppnisgagna, til þeirra sem hafa forskráð sig á netinu, er á hlaupadag í Landsbankanum á Selfossi frá kl. 09:00.

Verðlaun
Verðlaunapeningar eru veittir fyrir þrjú fyrstu sætin í hálfmaraþoni og 10 km hlaupi í öllum aldursflokkum, bæði kyn. Einnig eru veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hálfmaraþoni og 10 km hlaupi, bæði kvenna og karla. Einnig eru veittir verðlaunapeningar fyrir þrjú fyrstu sætin í öðrum vegalengdum óháð kyni. Að auki verða dregin út útdráttarverðlaun úr hópi allra keppenda. Verðlaunaafhending fer fram í garði Landsbankans á Selfossi kl. 14.00.

Allir keppendur fá frítt í sund eftir hlaup, í boði Sveitarfélagsins Árborgar, gegn framvísun keppnisnúmers.

Aðrar upplýsingar
Úrslit verða birt á hlaup.is. Frekari upplýsingar gefur Helgi Sigurður Haraldsson, helgihar@simnet.is og í síma 825-2130.


Á næstunni


Brúarhlaup Selfoss 2010 - upplýsingar

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta