Beint á leiđarkerfi vefsins

Frálsíţróttir

Frálsíţróttir - RSS

12.12.2008 | Frálsíţróttir

Vésteinn Hafsteinsson fćrđi frjálsíţróttadeildinni hálfa milljón

Vésteinn_110Fimmtudagskvöldið 11. desember síðastliðinn hélt gamall Selfyssingur, Vésteinn Hafsteinsson, skemmtilegan fyrirlestur í sal FSu. Vésteinn hóf íþróttaferil sinn á Selfossi og lagði þar grunninn að glæstum ferli sem kringlukastari og síðar sem þjálfari. Hann keppti á mörgum Ólympíuleikum, en hefur nú síðari ár starfað em þjálfari og verið að skila hverjum kastaranum á fætur öðrum á verðlaunapall á stórmótum. Toppurinn var í sumar þegar Gerd Kanter, lærisveinn Vésteins, varð Ólýmpíumeistari í kringlukasti í Peking. Í lok fyrirlestrarins afhenti Vésteinn frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss hálfa milljón að gjöf. Umf. Selfoss þakkar honum þennan rausnarlega stuðning og tryggð við uppeldisfélag sitt.

10.12.2008 | Nýjustu fréttir

Forvarnarheimsókn í Sunnulćkjarskóla

Í hádeginu í dag mætti vaskur hópur þjálfara og íþróttafólks ásamt Erni Guðnasyni framkvæmdastjóra í Sunnulækjarskóla og átti góða stund með krökkunum í 8. bekk. Markmið heimsóknarinnar var að ræða við krakkana um íþróttir og forvarnir. Tókst fundurinn mjög vel og hlustuðu krakkarnir af athygli og spurðu svo um ýmislegt sem þeim var hugleikið í fundarlok.

20.11.2008 | Nýjustu fréttir

Skilabođ til ţeirra sem starfa ađ íţrótta- ćskulýđs- og tómstundamálum

Í ljósi efnahagsástandsins og þeirrar óvissu sem ríkir nú í samfélaginu hefur menntamálaráðherra látið vinna samantekt varðandi möguleg úrræði um sálrænan stuðning við börn og ungmenni. Markmiðið með vinnunni er að styðja þá sem starfa að íþrótta- æskulýðs- og tómstundamálum til að veita börnum og ungmennum viðeigandi stuðning og stuðla þannig að velferð þeirra. Þessi samantekt fylgir hér með þegar fréttin er opnuð...

7.11.2008 | Nýjustu fréttir

Hvađ er EVRÓVÍSIR?

Ef þú ert á aldrinu 13-30 ára og þig langar t.d. að læra hárgreiðslu eða blómaskreytingar í öðru landi, læra nýtt tungumál, fara í sjálfboðavinnu, eða vinna í öðru landi í sumarfríinu þínu þá getur þú haft samband við Evróvísi á Íslandi. Þar getur þú fengið svar við þínum spurningum.

5.11.2008 | Nýjustu fréttir

Forvarnir og áhrif efnahagsástandsins rćdd á fundi ađalstjórnar

Lógó SelfossAðalstjórn Umf. Selfoss hélt fund í gærkvöldi í Tíbrá og var það 11. fundur aðalstjórnar á árinu. Fundir aðalstjórnar eru að jafnaði einu sinni í mánuði. Á fundinum var m.a. samþykkt ný fræðslu- og forvarnarstefna félagsins og ákveðið að halda sérstakan forvarnadag félagsins. Áhrif efnahagsástandsins voru rædd og ákveðið að hefja undirbúning að auknum systkynaafslætt sem mun nýtast barnmörgum fjölskyldum þar sem börn eru í fleiri en einni íþróttagrein...

17.10.2008 | Nýjustu fréttir

Akstur milli skóla vegna íţróttaćfinga

Árborg_merkiFjölskyldumiðstöð Árborgar hefur ákveðið að bjóða börnum, sem þurfa að komast milli Sundhallar Selfoss/Vallaskóla og Sunnulækjarskóla vegna íþróttaæfinga eða annarra tómstunda, að nýta sér laus sæti í skólarútum sem eru á ferðum strax eftir hádegi. Sjá nánar tímaplan...

2.10.2008 | Nýjustu fréttir

Fleiri fyrirmyndardeildir innan Umf. Selfoss

FyrirmyndarfelagHjá Umf. Sefloss er í gangi vinna sem miðar að því að fleiri deildir innan félagsins hljóti útnefningu sem fyrirmyndardeildir ÍSÍ. Handknattleiksdeild er komin langt á leið með vinnu við sína handbók og knattspyrnudeild og frjálsíþróttadeild hafa ákveðið að fara í sína vinnu. Fimleikadeild félagsins fékk fyrstu útnefninguna 2007, sem jafnframt var fyrsta útnefningin á Suðurlandi. Sunddeild Umf. Selfoss fékk síðan útnefningu á aðalfundi félagsins í vor.

29.9.2008 | Frálsíţróttir

Markverđur árangur í frjálsum

MÍ_Sauðárkróki_2008Nýlega lauk farsælu keppnistímabili í frjálsum íþróttum hjá Meistaraflokki Umf. Selfoss. Meistaramót Íslands 15-22 ára fór fram í lok síðasta mánaðar á Sauðárkróki þar sem framúrskarandi árangur náðist hjá liðinu sem vakti mikla athygli.

17.9.2008 | Frálsíţróttir

Myndasyrpa úr Brúarhlaupinu

Brúarhlaup Selfoss fór fram laugardaginn 6. september síðastliðinn. Hægt er að kaupa ljósmyndir úr hlaupinu á hlaup.is í fullum gæðum, annað hvort sem JPG skrá og/eða útprentaða. Nánari upplýsingar eru hér að neðan...

9.9.2008 | Frálsíţróttir

550 manns tóku ţátt í Brúarhlaupinu

Brúarhlaup_012Brúarhlaup Selfoss fór fram í 18. skipti, laugardaginn 6.september sl. Hlaupið fór fram við kjöraðstæður fyrir hlaupara, milt var í veðri en sólarlaust. Aukning var í þátttöku frá fyrra ári og hlupu og hjóluðu 550 manns í ár.  Það hefur löngu verið viðurkennt meðal hlaupara sem hlaupa lengri vegalengdir að brautin í Brúarhlaupi Selfoss sé með "hröðustu" brautum landsins, vegna  þess hversu flöt hún er.

26.8.2008 | Frálsíţróttir

Góđur árangur á MÍ 11-14 ára

Keppendur_MÍ_11-14Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum 11-14 ára var haldið helgina 16.-17. ágúst í frábæru veðri við bestu aðstæður að Laugum í Reykjadal. Á mótinu voru sjö krakkar frá Selfossi að keppa og stóðu sig öll mjög vel. Samtals unnu þau til 5 gullverðlauna, fengu 1 silfurverðlaun og 3 bronsverðlaun.  Í heildarstigakeppni mótsins urðu krakkarnir í 8. sæti næst á eftir FH sem telst nokkuð gott.  12 ára stelpurnar okkar náðu þeim frábæra árangri að verða íslandsmeistarar í sínum flokki með 89,5 stig og næsta félag kom svo með 37,0 stig, stórkostlegt hjá stelpunum sem voru bara þrjár.

21.8.2008 | Frálsíţróttir

Hérađsmót HSK í starfsíţróttum - fyrri hluti

HSK_merkiHéraðsmót HSK í starfsíþróttum - fyrri hluti, fram fer á Gaddstaðaflötum við Hellu laugardaginn 23. ágúst n.k. Mótið er hluti af Landbúnaðarsýningunni á Hellu. Að þessu sinni verður keppt í tveimur greinum starfsíþrótta, jurtagreiningu og dráttarvélaakstri. Báðar greinarnar hefjast kl. 14:20. Þar sem mótið er hluti af dagskrá Landbúnaðarsýningarinnar verður þátttaka opin almenningi og ræður fólk hvort það keppir undir merkjum einhvers félags innan HSK eða sem gestir.

3.7.2008 | Frálsíţróttir

Selfoss-stelpur unnu Hérađsmótiđ

HSK_merkiHéraðsmót HSK í frjálsum íþróttum fullorðinna var haldið að Laugarvatni 9. júní sl. Í heildarstigakeppni félaga varð Umf. Selfoss stigahæst með 193,5 stig. Dímon varð í öðru sæti með 156 stig og Vaka í þriðja sæti með 63 stig. Selfoss-stelpur stóðu sig frábærlega á mótinu og unnu samtals 186,5 stig sem hefði dugað til að vinna mótið og vel það. Í sjö greinum unnu þær þrefalt og í spjótkasti voru þær í fimm efstu sætunum. Ágústa Tryggvadóttir varð stigahæsta kona mótsins.

2.7.2008 | Frálsíţróttir

Selfoss vann HSK mót 12-14 ára

HSK_merkiHéraðsleikar 11 ára og yngri og Aldursflokkamót HSK 12-14 ára í frjálsum íþróttum voru haldin á Laugarvatni, laugardaginn 28. júní í rokbelgingi. Á þessi mót fórum við frá Selfossi með nokkra spræka krakka sem stóðu sig eins og hetjur. Krakkar 10 ára og yngri hlupu 60 m hlaup og langstökk og 11 ára kepptu einnig í kúluvarpi, hástökki og 800 m hlaupi. Að móti loknu fengu allir viðurkenningu og fóru sáttir heim.

24.6.2008 | Frálsíţróttir

Frjálsíţróttaskóli Ungmennafélags Íslands

Ungmennafélag Íslands mun starfrækja frjálsíþróttaskóla í Vík í Mýrdal vikuna 7. til 11. júlí fyrir ungmenni 11-18 ára. Frjálsar íþróttir eru frábær félagsskapur, hreyfing, skemmtun og útivera. Hér er spennandi tækifæri fyrir þá sem vilja efla sig í frjálsum íþróttum. Auk íþróttaæfinga verða kvöldvökur, varðeldur, gönguferðir og ýmsar óvæntar uppákomur. Þátttökugjald er 15.000 kr. Innifalð er kennsla, fæði og húsnæði. Nánari upplýsingar á www.umfi.is.

11.6.2008 | Frálsíţróttir

Ćfingatímar meistarahóps í frjálsum

SólSumaræfingatímar meistarahóps í frjálsum íþróttum (15 ára og eldri) hafa nú verið ákveðnir. Æfingar verða á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 19.00-20:30. Æfingar fara fram á íþróttavellinum við Engjaveg. Einnig verður farið reglulega á aðra velli með betri aðstöðu. Ráðinn hefur verið nýr þjálfari fyrir meistarhópinn og heitir hann Albert Þór Magnússon. Albert Þór hefur keppt og þjálfað hjá ÍR. Æfingatíma yngri flokka má sjá á síðu frjálríþróttadeildar.

5.6.2008 | Frálsíţróttir

Sumarćfingar í frjálsum byrjađar

thelma_franzeska_frjálsarSumaræfingar í frjálsum íþróttum hófust 2. júní s.l. hjá frjálsíþróttadeild. Boðið verður upp á fjölbreytt og skemmtilegt starf í allt sumar. Æfingahópar eru þrír: 10 ára og yngri, 11-14 ár og 15 ára og eldri. Æfingar fara fram á íþróttavellinum við Engjaveg. Einnig verður farið reglulega á aðra velli með betri aðstöðu. Skráning er á staðnum á fyrstu æfingu. Sjá nánar...

14.5.2008 | Frálsíţróttir

5. Grýlupottahlaup fór fram 10. maí

5. Grýlupottahlaupið var haldið 10. maí. Úrslit urðu eftirfarandi:

5.5.2008 | Frálsíţróttir

4. Grýlupottahlaupiđ - úrslit

Fjórða Grýlupottahlaupið fór fram við Tíbrá laugardaginn 3. maí. Úrslit urðu eftirfarandi:

1.5.2008 | Nýjustu fréttir

37.000 heimsóknir á heimasíđuna í apríl

Samkvæmt nýrri mælingur voru yfir 37.000 heimsóknir á heimasíðu félagsins umfs.is í aprílmánuði. Að meðaltali eru þetta 1.236 heimsóknir á síðuna á dag sem verður að teljast harla gott hjá íþróttafélagi eins og Umf. Selfoss. Samkvæmt tölfræðinni voru síðuflettingar yfir 95.000.

28.4.2008 | Frálsíţróttir

3. Grýlupottahlaupiđ

Þriðja grýlupottahlaupið fór fram laugardaginn 26. apríl. Úrslit urðu eftirfarandi:

21.4.2008 | Frálsíţróttir

Metţátttaka í Grunnskólamóti Árborgar

Grunnskólamót_067Alls tóku 225 keppendur í 1.-10. bekk frá Vallaskóla og Sunnulækjarskóla þátt í Grunnskólamóti Árborgar sem haldið var í Iðu í 10. sinn  þann 15.apríl s.l.  Keppni var hörkuspennandi og frábært  að sjá hvað mörg börn tóku þátt, en á síðasta ári tóku um 170 keppendur þátt þannig að aukningin er töluverð. Glæsilegur árangur náðist í mörgum greinum og voru 5 grunnskólamet  slegin á mótinu.

21.4.2008 | Frálsíţróttir

Frjálsíţróttaţjálfari óskast

Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss, óskar eftir að ráða þjálfara fyrir meistaraflokk deildarinnar. Spennandi og krefjandi starf í boði. Frekari upplýsingar gefur Sigríður Anna Guðjónsdóttir yfirþjálfari deildarinnar í síma 892-7052 eða á netfangið helgihar@simnet.is.

21.4.2008 | Frálsíţróttir

2. Grýlupottahlaup - úrslit

Annað Grýlupottahlaupið fór fram laugardaginn 19. apríl s.l. Úrslit urðu eftirfarandi:

14.4.2008 | Frálsíţróttir

12 ára stelpur Íslandsmeistarar í frjálsum

Helgina 5.-6. apríl fór fram Meistaramót Íslands 12-14 ára í frjálsum íþróttum í frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík. Skemmst er að segja frá því að krakkarnir okkar stóðu sig alveg frábærlega. 12 ára stelpurnar okkar urðu Íslandsmeistarar í sínum flokki með miklum yfirburðum og mörg met féllu á mótinu en flestir keppendur voru að bæta árangur sinn verulega í mörgum greinum.

14.4.2008 | Frálsíţróttir

Grýlupottahlaupiđ /1. hlaup - Úrslit

Fyrsta Grýlupottahlaupið var haldið á laugardaginn og tókst vel. Hlaupið var í góðu veðri og sluppu hlaupararnir við snjógusuna sem kom á sunnudaginn. Vonandi verða veðurguðirnir búnir að sjá til þess að allur snjórinn verði horfinn af hlaupaleiðinni fyrir næsta Grýlupottahlaup sem verður laugardaginn 19. april. Úrslit í 1. Grýlupottahlaupinu urðu eftirfarandi:

10.4.2008 | Frálsíţróttir

Grýlupottahlaupiđ hefst á laugardaginn

Grýlupottahlaup Selfoss hefst laugardaginn 12. apríl. Skráning hefst kl. 10:30 í félagsheimilinu Tíbrá við íþróttavöllinn. Grýlupottahlaupiðer 850 metra langt. Tveir og tveir hlaupa saman og er ræst með 10 sekúndna millibili. Allir hlaupa sömu leiðina. Þátttakendur eru á öllum aldri eða frá 3 ára og upp úr. Aðalatriðið er að vera með. Sjá nánar um hlaupið: Grýlupottahlaupið 2008

5.3.2008 | Nýjustu fréttir

Komum Selfossi á kortiđ í Lífshlaupinu

Lífshlaupiđ_lógóLífshlaupiđ er frćđslu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem höfđar til allra aldurshópa. Selfyssingar eru hvattir til ţess ađ huga ađ sinni daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er ţ.e. í frítíma, heimilisverkum, vinnu, skóla og viđ val á ferđamáta. Lýđheilsustöđ gefur í fyrsta skipti út ítarlegar ráđleggingar um hreyfingu nú í upphafi árs 2008. Börnum og unglingum er ráđlagt ađ hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorđnum í minnst 30 mínútur á dag. Inn á vef Lífshlaupsins er hćgt ađ velja um ţrjár leiđir.

11.2.2008 | Frálsíţróttir

Ágústa međ ţrenn verđlaun og Selfossmet

Ágústa-feb-2008Meistararmót Íslands í frjálsum íţróttum fór fram í Frjálsíţróttahöllinni 9.-10. febrúar s.l.  Ţrír keppendur frá frjálsíţróttadeild Umf. Selfoss tóku ţátt í mótinu. Mun fleiri voru skráđir til leiks frá deildinni en veđur hamlađi ţátttöku ţeirra. Ágústa Tryggvadóttir náđi góđum árangri á mótinu, en hún vann til tveggja silfurverđlauna og einna bronsverđlauna.

29.1.2008 | Frálsíţróttir

Frjálsíţróttakrakkar stóđu sig vel á Stórmóti ÍR

frjalsar_stelpur_janLaugardaginn 19. janúar fór vaskur hópur krakka 14 ára og yngri og keppti á Stórmóti ÍR sem haldiđ var í Frjálsíţróttahöllinni í Laugardal.  Ţátttakendur á mótinu voru tćplega 700 og komu alls stađar af landinu. Skemmst er ađ segja frá ţví ađ segja ađ krakkarnir okkar stóđu sig alveg frábćrlega, settu fimm Selfoss-met og jöfnuđu eitt, ţrjú HSK-met og eitt Íslandsmet var nćrri falliđ.

22.1.2008 | Frálsíţróttir

Ágústa og Ţórhildur Helga á Reykjavík International

Ágústa_MÍ_2008Ţann 20. janúar sl. var alţjóđlegt bođsmót í Frjálsíţróttahöllinni í Reyjavík. Ţangađ var bođiđ nokkrum erlendum keppendum og öllu besta frjálsíţróttafólki landsins, ţar á međal ţeim Ágústu Tryggvadóttur og Ţórhildi Helgu Guđjónsdóttur, en báđar keppa ţćr undir merkjum Umf. Selfoss.

22.1.2008 | Frálsíţróttir

2 brons og nokkur persónuleg met á Stórmóti ÍR

Ţórhildur_MÍ_2008Ţrír keppendur frá frjálsíţróttadeild Umf. Selfoss tóku ţátt í Stórmóti ÍR sem haldiđ var í frjálsíţróttahöllinni helgina 19.-20. janúar sl. Ţađ voru hin efnilega Ţórhildur Helga Guđjósdóttir, 15 ára, Agnes Erlingsdóttir, 17 ára og Dröfn Hilmarsdóttir 18 ára. Ţćr stórđu sig mjög vel, unnu tvenn bronsverđlaun og settu persónuleg met.

16.1.2008 | Nýjustu fréttir

Úthlutun barna- og unglingastyrks til deilda

Lógó SelfossÁ síđasta fundi ađalstjórnar Umf. Selfoss sem haldinn var 9. janúar var samţykkt úthlutun barna- og unglingastyrks til deilda félagsins. Úthlutunin byggir á ákveđnum reglum ţar sem tekiđ er miđ af iđkendum á grunnskólaaldri. Heildarupphćđ styrksins sem skiptist á milli átta deilda er 2.575.000 kr. Hefur sú upphćđ veriđ sú sama frá 2004.

4.1.2008 | Handboltaakademía

Helgarferđ ađ Laugum í Dalasýslu í bođi - Flott án fíknar

UMFÍ bíđur ungmennum á aldrinum 16 – 20 ára sem eru án tóbaks og vímuefna í skemmtigferđ ađ Laugum. Leikir, útvist, kvöldvökur og fleira ţar sem hinn eini sanni ungmennafélagsandi rćđur ríkjum. Ţátttakendum stendur til bođa ađ gerast sjálfbođaliđar í starfi Flott án fíknar í kjölfar ferđarinnar. Lagt verđur af stađ frá Ţjónustumiđstöđ UMFÍ, ađ Laugavegi 170, föstudaginn 18. janúar kl. 20.00 og komiđ til baka sunnudaginn 20. janúar kl. 16.00. Áhugasamir skrái sig á netfangiđ: gudrun@umfi.is  Allar nánari upplýsingar eru gefnar í Ţjónustumiđstöđ UMFÍ í síma 568-2929.

3.1.2008 | Nýjustu fréttir

Úthlutun styrkja Árborgar

Á uppskeruhátíđ ÍTÁ voru veittir styrkir úr Afreks- og syrktarsjóđum Árborgar. Veittir voru ţrír styrkir fyrir íţrótta- og tómstundastörf og tíu styrkir úr afreks- og styrktarsjóđi. Úthlutun var efirfarandi:

3.1.2008 | Frálsíţróttir

Ágústa Tryggvadóttir íţrottakona Árborgar 2007

Ágústa 2007Ágústa Tryggvadóttir, frjálsíţróttakona, var kjörin íţróttakona Árborgar 2007 á uppskeruhátíđ ÍTÁ. Sigursteinn Sumarliđason, knapi, vark kjörinn íţróttakarl Árborgar.  Hvatningaverđlaun hlaut knattspyrnudeild Umf. Selfoss og Jólasveinafjölskyldan fékk Menningarviđurkenningu 2007, fyrir mikiđ og gott starf sl. 30. ár.


Á nćstunni

11.2.2012 | Frjálsíţróttir
18.2.2012 | Frjálsíţróttir
25.2.2012 | Frjálsíţróttir
3.3.2012 | Frjálsíţróttir
13.3.2012 | Frjálsíţróttir
16.3.2012 | Frjálsíţróttir


Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta