Fjölskyldumiðstöð Árborgar hefur ákveðið að bjóða börnum, sem þurfa að komast milli Sundhallar Selfoss/Vallaskóla og Sunnulækjarskóla vegna íþróttaæfinga eða annarra tómstunda, að nýta sér laus sæti í skólarútum sem eru á ferðum strax eftir hádegi. Sjá nánar tímaplan...
Hjá Umf. Sefloss er í gangi vinna sem miðar að því að fleiri deildir innan félagsins hljóti útnefningu sem fyrirmyndardeildir ÍSÍ. Handknattleiksdeild er komin langt á leið með vinnu við sína handbók og knattspyrnudeild og frjálsíþróttadeild hafa ákveðið að fara í sína vinnu. Fimleikadeild félagsins fékk fyrstu útnefninguna 2007, sem jafnframt var fyrsta útnefningin á Suðurlandi. Sunddeild Umf. Selfoss fékk síðan útnefningu á aðalfundi félagsins í vor.



