Héraðsmót HSK í frjálsum íþróttum fullorðinna var haldið að Laugarvatni 9. júní sl. Í heildarstigakeppni félaga varð Umf. Selfoss stigahæst með 193,5 stig. Dímon varð í öðru sæti með 156 stig og Vaka í þriðja sæti með 63 stig. Selfoss-stelpur stóðu sig frábærlega á mótinu og unnu samtals 186,5 stig sem hefði dugað til að vinna mótið og vel það. Í sjö greinum unnu þær þrefalt og í spjótkasti voru þær í fimm efstu sætunum. Ágústa Tryggvadóttir varð stigahæsta kona mótsins.
Héraðsleikar 11 ára og yngri og Aldursflokkamót HSK 12-14 ára í frjálsum íþróttum voru haldin á Laugarvatni, laugardaginn 28. júní í rokbelgingi. Á þessi mót fórum við frá Selfossi með nokkra spræka krakka sem stóðu sig eins og hetjur. Krakkar 10 ára og yngri hlupu 60 m hlaup og langstökk og 11 ára kepptu einnig í kúluvarpi, hástökki og 800 m hlaupi. Að móti loknu fengu allir viðurkenningu og fóru sáttir heim.



