Beint á leiđarkerfi vefsins

Frálsíţróttir

Frálsíţróttir - RSS

30.12.2009 | Nýjustu fréttir

Sćvar Ţór og Ágústa íţróttamađur og íţróttakona Árborgar

Á uppskeruhátíð ÍTÁ sem haldin var í gærkvöldi í sal FSu var Sævar Þór Gíslason knattspyrnumaður útnefndur íþróttamaður Árborgar 2009 og Ágústa Tryggvadóttir frjálsíþróttakona íþróttakona Árborgar. Taekwondodeild Umf. Selfoss fékk hvatningarverðlaun ÍTÁ fyrir uppbyggingarstarf. Á hátíðinni voru veitt verðlaun og afreksstyrkir til einstaklinga og íþróttahópa fyrir góðan árangur á árinu. Meistaraflokkur karla fékk hæsta styrkinn eða eina milljón króna fyrir að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

28.12.2009 | Nýjustu fréttir

Uppskeruhátíđ ÍTÁ 2009 - ţriđjudaginn 29. des.kl. 20:00

Árborg_merkiHin árlega uppskeruhátíð Íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar verður haldin í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands þriðjudaginn 29. des. kl. 20:00. Þar verða afhentir styrkir úr Afreks- og styrktarsjóðum Árborgar og íþróttafélaganna, þ.e. Umf Selfoss, Íþf. Suðra og Íþr. FSu. Hvatningarverðlaun verða veitt, afhentir styrkir fyrir afburðaárangur og jafnframt tilkynnt um kjör íþróttakonu og íþróttakarls árborgar 2009. Boðið verður upp á skemmtiatriði og kaffiveitingar. Allir eru velkomnir.

28.12.2009 | Frálsíţróttir

Áramótamótiđ verđur á miđvikudaginn

Lógó SelfossMiðvikudaginn 30. desember verður Áramótamót frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss haldið í íþróttahúsi Vallaskóla og hefst keppnin klukkan 18. Keppt verður í kúluvarpi, langstökki án atrennu, þrístökki án atrennu, hástökki án atrennu og hástökki í flokkum karla og kvenna.  Einnig verður keppt í kúluvarpi pilta og telpna. Skráning fer fram á staðnum.

25.11.2009 | Frálsíţróttir

14 verđlaun, 1 HSK met og 6 Selfossmet á Silfurleikum ÍR

Silfurleikar_116732 keppendur frá Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss tóku þátt í Silfurleikum ÍR sem haldnir voru í frjálsíþróttahöllinni í Laugardalnum þann 21. nóvember sl. Í flokkum 11 ára og eldri var keppt til verðlauna en hjá 10 ára og yngri fengu allir sem tóku þátt verðlaun. Keppendur 8 ára og yngri fóru í gegnum þrautabraut sem samanstóð af 10 þrautum. Árangur Selfoss krakkanna var eftirfarandi:

24.11.2009 | Nýjustu fréttir

Hádegisfundur ÍSÍ - Ungt fólk 2009

ÍSÍ_merkiHádegisfundur ÍSÍ verður haldinn föstudagurinn 27. nóv. Jón Sigfússon framkvæmdastjóri og Álfgeir Logi Kristjánsson rannsóknarstjóri hjá Rannsóknum og Greiningu við HR munu fara yfir rannsóknina Ungt fólk 2009 og rýna í þá þætti sem snúa að íþróttum og/eða íþróttaiðkun. Fyrirlesturinn verður í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal frá kl. 12.00-13.00. Hann er ókeypis og öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.

5.11.2009 | Nýjustu fréttir

Ungmennaţing Árborgar verđur í Pakkhúsinu 8. nóvember

UngmennaþingSunnudaginn 8. nóvember kl. 14:00 verður ungmennaþing Árborgar haldið í Pakkhúsinu, ungmennahúsi Árborgar að Austurvegi 2b, (fyrir aftan bókasafnið). Þingið er ætlað öllum ungmennum í Árborg á aldrinum 13 - 30 ára. Markmið þingsins er að skoðanir ungmenna úr öllum byggðarkjörnum Árborgar komi fram. Niðurstöður þingsins verða síðan afhent bæjarstjórn Árborgar.  Yfirskrift þingsins er: "Ekki sitja heima og röfla, komdu þinni skoðun á framfæri". Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar og Gylfi Þorkelsson, bæjarfulltrúi og formaður íþrótta- og tómstundanefndar munu ávarpa þingið. Boðið verður upp á léttar veitingar. Allir velkomnir

23.10.2009 | Nýjustu fréttir

Góđur stuđningur úr Verkefnasjóđi HSK

HSK_merkiStjórn Verkefnasjóðs HSK tilkynnti nýlega úthlutun úr sjóðnum í ár. Alls bárust 63 umsóknir til sjóðsins og af þeim fengu 55 úthlutað styrk. Umf. Selfoss sendi inn 29 umsóknir og fengu 26 styrk. Góður fengur er í stuðningi verkefnasjóðsins sem kemur sér vel fyrir félög og einstakar deildir þegar kreppir að á auglýsinga- og styrkjamarkaði.

22.10.2009 | Frálsíţróttir

HSK og Selfoss međ sameiginleg liđ á meistaramótum

HSK_merkiLógó SelfossFrjálsíþróttaráð HSK hélt haustfund sinn í síðustu viku. Farið var yfir helstu málin sem varða framgang frjálsra íþrótta á sambandssvæðinu. Tilkynnt var um áframhaldandi ráðningu Ólafs Guðmundssonar íþróttafræðings sem verkefnisstjóra átaksverkefnis ráðsins. Fundurinn samþykkti einnig framlagða tillögu um sameiningu keppnisliða HSK og Umf. Selfoss á meistaramótum Frjálsíþróttasambands Íslands. Samþykkt var á fundinum að liðið skyldi keppa undir nafninu HSK - Selfoss.

16.10.2009 | Nýjustu fréttir

Fjarnám ÍSÍ í ţjálfaramenntun hefst 2. nóvember

ÍSÍ_merkiHaustannarfjarnám ÍSÍ hefst mánudaginn 2. nóvember næstkomandi. Um er að ræða 1. stig almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ sem gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið tekur 8 vikur og jafngildir íþróttafræði 1024 í framhaldsskólakerfinu. Námið er öllum opið 16 ára og eldri sem áhuga hafa á þjálfun í einhverri íþróttagrein. Hlé verður gert á náminu frá miðjum desember og fram í janúar.  Lokaverkefni verður ekki skilað fyrr en á nýju ári. 

24.9.2009 | Frálsíţróttir

Nýtt frćđslukerfi í frjálsum íţróttum í undirbúningi

FRÍ er með í undirbúningi að taka upp nýtt fræðslukerfi fyrir frjálsíþróttaþjálfara sem IAAF eða Alþjóða frjálsíþróttasambandið hefur innleitt. Þetta verkefni hefur verið í undirbúningi frá því á vordögum 2008. CECS er fimm þrepa fræðslukerfi þjálfara sem nefnist á ensku: IAAF Coaches Education Certified System eða CECS. Fyrsta skrefið við að innleiða þetta fræðslukerfi hér á landi er námskeið fyrir leiðbeinendur á 1. stigi, sem haldið verður 1.-6. október næstkomandi í Laugardal í Reykjavík. Stefnt er að því að halda fleiri námskeið hérlendis og að senda þátttakendur á námskeið erlendis í framtíðinni.

10.9.2009 | Frálsíţróttir

Úrslit í Brúarhlaupi Selfoss 2009

Úrslit í Brúarhlaupi Selfoss sem fram fór laugardaginn 5. september...

1.9.2009 | Frálsíţróttir

Ţórhildur Helga ţrefaldur Íslandsmeistari

Thorhildur_2009Meistaramót Íslands 15-22 ára fór fram í Kópavogi helgina 29-30  ágúst sl. Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss sendi vaskt lið til keppni sem stóð sig mjög vel og var afrakstur helgarinnar 4 gullverðlaun, 4 silfurverðlaun og 5 bronsverðlaun auk 10 persónulegra meta og HSK-mets í stúlknaflokki.

18.8.2009 | Knattspyrna

Miklar framkvćmdir á íţróttavallarsvćđinu á Selfossi

Sániang og vökvun 9Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir á íþróttavallarsvæðinu á Selfossi frá því í vor. Aðalvöllurinn og hluti af æfingasvæðinu voru tekin upp og skipt um undirlag ásamt því að völlurinn á æfingasvæði 1 var lagfærður og settar manir í kringum hann. Í aðalvöllinn voru settar draglagnir, hitakerfi og lagnir fyrir vökvunarkerfi. Ákveðið var að sá í völlinn til að fá þéttara og betra gras. Fengnir voru sérfræðingar í grasafræðum til annast framkvæmdina. Fengið var sérvalið grasfræ, sem hentar vel á knattspyrnuvöllum. Stefnt er að því að völlurinn verður tekin í notkun um mitt næsta sumar og verður hann þá með bestu knattspyrnuvöllum á landsins.

14.8.2009 | Nýjustu fréttir

Veglegir styrkir frá heiđursfélaga

Hafst_03Fimmtudagskvöldið 13. ágúst var haldið veglegt hóf í Tíbrá, félagsheimili Ungmennafélags Selfoss. Það var Hafsteinn Þorvaldsson, heiðursfélagi Umf. Selfoss, sem stóð fyrir hófinu. Hófið var m.a. haldið til að heiðra minningu eiginkonu hans Ragnhildar Ingvarsdóttur sem hefði orðið 80 ára þennan dag. Auk fjölskyldu Hafsteins mættu í hófið fulltrúar sjö deilda innan Umf. Selfoss, formaður Umf. Biskupstungna, formaður Umf. Vöku og formaður og framkvæmdastjóri HSK. Hafsteinn afhendi þessum aðilum, tíu talsins, peningastyrk að upphæð 100.000 kr. hver.

4.8.2009 | Nýjustu fréttir

Selfoss útifánar til sölu á skrifstofunni

Lógó SelfossFyrir nokkru kom upp sú hugmynd að bjóða til sölu Selfoss útifána. Þá gætu menn flaggað heima hjá sér á leikdögum eða þegar eitthvað er um að vera hjá félaginu. Nú höfum við komið hugmyndinni í framkvæmd. Hægt er að kaupa fána (1x1,5m) á skrifstofu félagsins. Hvítir fánar með vínrauðu Selfossmerki kosta 4.500 kr. og vínrauðir fánar með hvítu merki kosta 7.500 kr. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins s. 482 2477 eða hjá framkvæmdastjóra s. 897 6323.

6.7.2009 | Frálsíţróttir

Góđur árangur á aldursflokkamóti HSK 11-14 ára

MÍ_11-14_2008Laugardaginn 27. júní var haldið Aldursflokkamót HSK í frjálsum 11-14 ára á flotta frjálsíþróttavellinum í Þorlákshöfn í frábæru veðri s.s. við toppaðstæður. Krakkarnir frá Selfossi stóðu sig rosalega vel á mótinu, þau enduðu í öðru sæti í heildarstigakeppninni en það vantaði nokkra keppendur frá okkur sem munaði mikið um. Árangur einstakra keppenda var sem hér segir:

2.7.2009 | Nýjustu fréttir

Styttist í Landsmót UMFÍ á Akureyri

Landsmót_UMFÍ_2009Nú styttist óðum í Landsmót UMFÍ, en mótið verður haldið á Akureyri dagana 9.-12. júlí næstkomandi. Eyjafjörður mun væntanlega skarta sínu fegursta og verður án efa gaman að koma þangað. Undirbúningur fyrir mótið er á lokastigi. Heimamenn hafa lagt mikinn metnað í mótið og verður öll aðstaða til fyrirmyndar. HSK mun senda öflugt keppnislið á Landsmótið og tekur þátt í 16 af 20 keppnisgreinum. Margir Selfyssingar eru í liði HSK, en alls munu um 200 keppendur víðs vegar af Suðurlandi keppa fyrir sambandið. Í veglegu Landsmótsblaði HSK, sem fylgir með Sunnlenska fréttablaðinu í dag, má sjá lista yfir alla keppendur.

25.6.2009 | Frálsíţróttir

Ágústa bćtti sig um 181 stig í sjöţraut

Ágústa_kúla_Kýpur09Ágústa Tryggvadóttir keppti á sterku alþjóðlegu fjölþrautarmóti í Kaldo í Tékklandi dagana 23. og 24. júní. Alls kepptu 12 stúlkur í kvennaflokki og lenti Ágústa í 10. sæti með 4.848 stig sem er besti árangur sem hún hefur nokkru sinni náð og bæting um 181 stig. 

23.6.2009 | Frálsíţróttir

Ágústa međ bronsverđlaun í Sarajevo

Ágústa SmáþjóðaleikarÁgústa Tryggvadóttir stóð sig mjög vel í Evrópubikarkeppni landsliða, 3. deild, sem haldin var í Sarajevo helgina 20.- 21. júní sl. Hún stökk 1,68 m í hástökki í fyrstu tilraun og krækti sér í bronsverðlaun ásamt stúlku frá Lúxemborg sem stökk sömu hæð. Stúlka frá Ísrael stökk hæst allra þegar hún vippaði sér yfir 1,82 m, en alls kepptu 12 stúlkur í hástökkinu.

15.6.2009 | Frálsíţróttir

Fjóla Signý í 4. sćti á NM unglinga í fjölţrautum

Fjóla_SignÝ_HarladurFjóla Signý Hannesdóttir Umf. Selfoss keppti fyrir hönd Íslands á Norðurlandamóti Unglinga í fjölþrautum sem haldið var á Kópavogsvelli 13.-14.júní. Fjóla Signý stóð sig mjög vel í þrautinni og náði að bæta sinn besta árangur í fimm  greinum af sjö greinum þrautarinnar. Alls náði  hún 4236 stigum í þrautinni sem er persónulegt met og bæting um 323 stig.

15.6.2009 | Frálsíţróttir

Ágústa á faraldsfćti

Ágústa_MÍ_2008Ágústa Tryggvadóttir var valin til að keppa fyrir hönd Íslands á Evrópubikarkeppni félagsliða í frjálsum íþróttum sem haldin verður í Sarajevo helgina 20.-21. júní. Ágústa keppir þar í hástökki, en hún hefur verið í stöðugri framför í hástökki síðustu vikurnar. Hún bætti sinn persónulega árangur á Smáþjóðaleikunum þegar hún stökk yfir 1,72 m. Ágústa heldur síðan til Tékklands og keppir  þar í sjöþraut á sterku alþjóðlegu móti sem haldið verður dagana 23.-24. júní. Þar stefnir hún að bætingu í sjöþraut, en hún á best 4667 stig sem hún náði 2006. Að lokum keppir hún í þrístökki á Gautaborgarleikunum í Svíþjóð þann 28. júní. 

9.6.2009 | Nýjustu fréttir

Velferđarsjóđur barna styrkir Íţrótta- og útivistarklúbbinn

velferðarsjóður barnaÍþrótta- og útivistarklúbbur Umf. Selfoss hlaut í gær myndarlegan styrk úr Velferðarsjóði barna. Styrkurinn verður notaður til að niðurgreiða námskeiðin sem haldin verða í sumar. Er það m.a. gert til að tryggja börnum jafnan aðgang að námskeiðunum. Sveitarfélagið Árborg leggur verkefninu til fjármagn sem er liður í þjónustusamningi við Ungmennafélagið. Auk þess tengist það Vinnuskóla Árborgar. Klúbburinn er samstarfsverkefni allra deilda félagsins og veitir um 17 ungmennum vinnu í sumar.

2.6.2009 | Frálsíţróttir

Grýlupottahlaupiđ 2009 - heildarúrslit

Sjötta og síðasta Grýlupottahlaupið var haldið laugardaginn 30. maí. Verðlaunaafhending fór fram í Tíbrá 1. júní. Þar voru veitt verðlaun fyrir besta samanlagðan árangur í fjórum hlaupum í öllum aldursflokkum. Bestum tíma náðu Teitur Örn Einarsson 12:48 mín og Andrea Vigdís Victorsdóttir 13:01 mín. Heildarúrslit má sjá hér fyrir neðan.

25.5.2009 | Frálsíţróttir

Selfoss međ gull og silfur í sjöţraut kvenna á MÍ í Ţorlákshöfn

MÍ_Þorlákshönf_maí_2009Meistaramót Íslands í fjölþrautum var haldið í Þorlákshöfn helgina 23. - 24. maí sl. Ágústa Tryggvadóttir Umf. Selfoss varð Íslandsmeistari í sjöþraut kvenna með 4480 stig og sigraði með miklum yfirburðum. Fjóla Signý Hannesdóttir náði silfurverðlaunum naumlega en eingöngu munaði tveimur stigum á henni og þriðja sætinu. 

21.5.2009 | Frálsíţróttir

Ágústa međ Selfoss-met í spjótkasti

Þrír keppendur frá Umf. Selfoss tóku þátt í fyrsta frjálsíþróttamóti sumarisins, JJ-móti Ármanns, sem haldið var á Laugardalsvelli þann 16. mai. Ágústa Tryggvadóttir setti nýtt Selfossmet í spjótkasti þegar hún kastaði spjótinu 37,20 m og bætti eigið met um tæpan metra og náði þriðja sæti.

6.5.2009 | Frálsíţróttir

Úrslit úr 3. Grýlupottahlaupinu

Þriðja Grýlupottahlaupið var haldið 2. maí s.l. Úrslit urðu eftirfarandi:

30.4.2009 | Frálsíţróttir

Sex grunnskólamet slegin

Grunnskólamót_60Grunnskólamót Árborgar í frjálsum íþróttum fór fram í Iðu þann 2. apríl s.l. Grunnskólamótið var nú haldið í 11. sinn. Keppendur voru 178 og komu þeir frá  Sunnulækjarskóla, Vallaskóla og Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri. Sjá nánar...

30.4.2009 | Frálsíţróttir

Annađ Grýlupottahlaupiđ fór fram 25. apríl

Annað Grýlupottahlaupið fór fram laugardaginn 25. apríl s.l. Úrslit urðu eftirfarandi:

21.4.2009 | Frálsíţróttir

Grýlupottahlaupiđ - úrslit úr 1. hlaupi

Fyrsta Grýlupottahlaupið fór fram laugardaginn 18. apríl. Úrslit urðu eftirfarandi:

17.4.2009 | Frálsíţróttir

Grunnskólamót Árborgar - úrslit

Grunskólamót Árborgar í frjálsum íþróttum fór fram 2. apríl s.l. Úrslit mótsins má sjá hér...

7.4.2009 | Frálsíţróttir

Grýlupottahlaup Selfoss í 40. skipti

GrÝlupottahlaup 14.aprílGrýlupottahlaup Selfoss 2009 hefst laugardaginn 18. apríl næstkomandi. Er þetta jafnframt í fertugasta skipti sem hlaupið er haldið. Grýlupottahlaupið er 850 metra langt. Tveir og tveir hlaupa saman og er ræst með 10 sekúndna millibili. Þátttakendur eru á öllum aldri og er aðalatriðið að vera með. Hlaupið fer fram sex laugardaga í röð. Fyrsta hlaupið er 18. apríl, síðan 25. apríl, 2. maí, 9. maí, 16. maí og 23. maí. Skráning hefst kl. 10:30 í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, á íþróttavellinum. Hlaupið hefst svo kl. 11:00.

23.3.2009 | Frálsíţróttir

Grunnskólamót Árborgar í frjálsum verđur 2. apríl

Grunnskólamót Árborgar í frjálsum íþróttum verður haldið í 11. sinn fimmtudaginn 2. apríl næstkomandi.  Keppnin fer fram í Iðu (íþróttahúsi Fjölbrautaskóla Suðurlands). Keppni hefst kl. 16.30 í 1.-4. bekk og kl. 18.00 í 5.-10. bekk. Keppt er í eftirfarandi flokkum og greinum hjá stelpum og strákum...

6.3.2009 | Frálsíţróttir

Ágústa međ tvö HSK-met

Ágústa_MÍ_2008Fjölþrautarkonan Ágústa Tryggvadóttir Umf. Selfoss er í miklum ham þessa dagana. Hún keppti í 200m hlaupi á 5. Coca cola móti FH þann 26. febrúar sl og bætti 5 daga HSK-met Fjólu Signýjar Hannesdóttir um 12 sekúndubrot þegar hún hljóp á tímanum 26,76s. Fjórum  dögum síðar eða þann 2. mars keppti hún sem gestur á Reykjavíkurmeistaramótinu í frjálsum íþróttum og sló ársgamalt HSK-met Agnesar Erlingsdóttir um rúmar 2 sekúndur er hún hljóp 400m á tímanum 62,75s. Innanhúskeppnistímabilinu er nú lokið hjá Ágústu og stífar æfingar framundan og meðal annars æfingabúðir í Portúgal um páskana.

20.2.2009 | Frálsíţróttir

Ágústa Íslandsmeistari í fimmtarţraut kvenna

Ágústa_hástökkÍslandsmótið í fjölþrautum fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardalnum 14.-15. febrúar síðastliðinn. Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss sendi þrjár stúlkur til leiks sem allar stóðu sig frábærlega vel. Ágústa Tryggvadóttir varð hlutskörpust kvenna í greinunum fimm og varð Íslandsmeistari. Hún bætti sinn fyrri árangur um 253 stig er hún náði 3809 stigum og setti um leið glæsilegt HSK og Selfossmet. Fjóla Signý Hannesdóttir keppti við Ágústu í kvennaflokki og varð í öðru sæti. Franziska Jóney Pálsdóttir, 14 ára, keppti í meyjaflokki. Þetta var hennar fyrsta þraut og uppskar hún 2540 stig sem er Selfossmet í meyjaflokki.

10.2.2009 | Frálsíţróttir

Framúrskarandi árangur Selfoss á MÍ um helgina

MÍ_feb_2009Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum var haldið helgina 7.-8. febrúar í Frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík. Umf. Selfoss sendi  7 keppendur til leiks og stóðu þeir sig framúrskarandi vel. Afrakstur helgarinnar voru 6 verðlaun, 2 HSK-met og 7 persónuleg met. Lið Selfoss varð í 3. sæti í stigakeppni kvenna og í 6. sæti í heildarstigakeppni mótsins.

3.2.2009 | Frálsíţróttir

Hreinn Heiđar, Fjóla Signý og Aron Íslandsmeistarar

Fjóla SignýSíðastliðna helgi fór fram Meistaramót Íslands í unglingaflokkum. HSK og Selfoss sendu þangað vaskar sveitir  sem stóðu sig með ágætum. Keppendur voru 13 frá HSK og 7 frá Selfossi en Selfoss keppir undir eigin merki.  Alls unnu HSK og Selfoss 5 gull, 1 silfur og 5 brons. Í heildina varð Selfoss í 8. sæti með 48 stig og HSK í 9. sæti með 41 stig. Í einstökum flokkum voru Selfoss-ungkonur sterkar og urðu í 2. sæti í stigakeppninni.

27.1.2009 | Frálsíţróttir

Ágústa međ ţrenn verđlaun á Reykjavík International

Ágústa_MÍ_2008Sunnudaginn 18. janúar var alþjóðlegt boðsmót, Reykjavík International, haldið í nýju frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík. Ágústa Tryggvadóttir byrjaði keppnistímabilið með glæsibrag er hún vann ein silfurverðlaun og tvenn bronsverðlaun.

27.1.2009 | Frálsíţróttir

Eitt Selfossmet og 5 gullverđlaun á Stórmóti ÍR

Teitur_Stórmót_ÍRStórmót ÍR var haldið helgina 17.-18. janúar í frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík. Frá Umf. Selfoss mætti vaskur hópur til leiks og stóð sig mjög vel. Fjóla Signý Hannesdóttir keppti í kvennaflokki og vann til 3 gullverðlauna og fékk að auki eitt silfur og eitt brons. Teitur Örn Einarsson, 11 ára, vann gullverðlaun í 800m hlaupi og kúluvarpi.

26.1.2009 | Fimleikar

Fimleikastelpur í hlaupaţjálfun hjá Alberti Ţór Magnússyni

Stelpurnar í fimleikaakademíu FSU og Meistarahópur Selfoss í fimleikum HM1 eru á leið í hlaupaþjálfun hjá Alberti Þór Magnússyni, yfirþjálfara frjálsíþróttadeildar. Er þetta leinn liður í þjálfun innan akademíunnar, þ.e. að fá sérhæfða kennara til að taka einstaka þætti sem snerta fimleikana. Markmiðið með þessu er að bæta hlaupið á trampólínið. 

20.1.2009 | Frálsíţróttir

Hérađsmót HSK fer fram á fimmtudaginn

HSK_merkiHéraðsmót HSK í fullorðinsflokki í frjálsum íþróttum fer fram í íþróttahúsinu á Hvolsvelli fimmtudaginn 22. janúar og hefst kl. 19:00. Keppt verður í karla- og kvennaflokk í eftirtöldun greinum: Langstökk án atrennu, þrístökk án atrennu, hástökk með atrennu, hástökk án atrennu, kúluvarp  og stangarstökk. Engar hömlur eru settar á fjölda þátttökugreina einstaklinga á héraðsmótum innanhúss. Á héraðsmóti HSK er 15 ára og eldri heimilt að keppa í karla- og kvennaflokkum.

14.1.2009 | Nýjustu fréttir

Sýndu hvađ í ţér býr

NámskeiðsteikningMiðvikudaginn 21. janúar næstkomandi verður haldið félagsmálanámskeið í Tíbrá sem ber yfirskriftina "Sýndu hvað í þér býr". Farið verður í ýmsa þætti er tengjast ræðumennsku, fundahöldum og félagsmálastörfum. Námskeiðið er einungis ein kvöldstund þ.e. frá kl. 18:00-22:00. Framkvæmdastjórn Umf. Selfoss hefur ákveðið að bjóða öllum félögum í Umf. Selfoss frítt á námsekiðið. Sjá nánar... 

2.1.2009 | Frálsíţróttir

Tvö HSK-met sett á lokamóti ársins

Áramótamót Umf.Selfoss var haldið í íþróttahúsi Vallaskóla þann 30. des sl. Ágústa Tryggvadóttir Umf. Selfoss sigraði allar 5 greinarnar í kvennaflokki og náði besta afreki ársins í langstökki án atrennu þegar hún stökk 2,57 m og bætti sinn besta árangur um 2 cm. Ólafur Guðmundsson UMSS  sigraði einnig allar greinarnar í karlaflokki. Í hástökki deildi hann að vísu efsta sætinu með Bjarna Má Ólafssyni, Dímoni.

Á nćstunni

11.2.2012 | Frjálsíţróttir
18.2.2012 | Frjálsíţróttir
25.2.2012 | Frjálsíţróttir
3.3.2012 | Frjálsíţróttir
13.3.2012 | Frjálsíţróttir
16.3.2012 | Frjálsíţróttir


Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta