![]()
Frjálsíþróttaráð HSK hélt haustfund sinn í síðustu viku. Farið var yfir helstu málin sem varða framgang frjálsra íþrótta á sambandssvæðinu. Tilkynnt var um áframhaldandi ráðningu Ólafs Guðmundssonar íþróttafræðings sem verkefnisstjóra átaksverkefnis ráðsins. Fundurinn samþykkti einnig framlagða tillögu um sameiningu keppnisliða HSK og Umf. Selfoss á meistaramótum Frjálsíþróttasambands Íslands. Samþykkt var á fundinum að liðið skyldi keppa undir nafninu HSK - Selfoss.
Haustannarfjarnám ÍSÍ hefst mánudaginn 2. nóvember næstkomandi. Um er að ræða 1. stig almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ sem gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið tekur 8 vikur og jafngildir íþróttafræði 1024 í framhaldsskólakerfinu. Námið er öllum opið 16 ára og eldri sem áhuga hafa á þjálfun í einhverri íþróttagrein. Hlé verður gert á náminu frá miðjum desember og fram í janúar. Lokaverkefni verður ekki skilað fyrr en á nýju ári.



