Ágústa Tryggvadóttir keppti á sterku alþjóðlegu fjölþrautarmóti í Kaldo í Tékklandi dagana 23. og 24. júní. Alls kepptu 12 stúlkur í kvennaflokki og lenti Ágústa í 10. sæti með 4.848 stig sem er besti árangur sem hún hefur nokkru sinni náð og bæting um 181 stig.
Ágústa Tryggvadóttir stóð sig mjög vel í Evrópubikarkeppni landsliða, 3. deild, sem haldin var í Sarajevo helgina 20.- 21. júní sl. Hún stökk 1,68 m í hástökki í fyrstu tilraun og krækti sér í bronsverðlaun ásamt stúlku frá Lúxemborg sem stökk sömu hæð. Stúlka frá Ísrael stökk hæst allra þegar hún vippaði sér yfir 1,82 m, en alls kepptu 12 stúlkur í hástökkinu.
Fjóla Signý Hannesdóttir Umf. Selfoss keppti fyrir hönd Íslands á Norðurlandamóti Unglinga í fjölþrautum sem haldið var á Kópavogsvelli 13.-14.júní. Fjóla Signý stóð sig mjög vel í þrautinni og náði að bæta sinn besta árangur í fimm greinum af sjö greinum þrautarinnar. Alls náði hún 4236 stigum í þrautinni sem er persónulegt met og bæting um 323 stig.
Ágústa Tryggvadóttir var valin til að keppa fyrir hönd Íslands á Evrópubikarkeppni félagsliða í frjálsum íþróttum sem haldin verður í Sarajevo helgina 20.-21. júní. Ágústa keppir þar í hástökki, en hún hefur verið í stöðugri framför í hástökki síðustu vikurnar. Hún bætti sinn persónulega árangur á Smáþjóðaleikunum þegar hún stökk yfir 1,72 m. Ágústa heldur síðan til Tékklands og keppir þar í sjöþraut á sterku alþjóðlegu móti sem haldið verður dagana 23.-24. júní. Þar stefnir hún að bætingu í sjöþraut, en hún á best 4667 stig sem hún náði 2006. Að lokum keppir hún í þrístökki á Gautaborgarleikunum í Svíþjóð þann 28. júní.



