Uppskeruhátíð íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar, ÍTÁ, verður haldin í kvöld þriðjudaginn 28. desember kl.20:00 við hátíðlega athöfn í hátíðarsal Fjölbrautaskóla Suðurlands. Hátíðin er eins og nafnið ber til kynna uppgjör íþróttafólks í Árborg á árinu 2010 en þar verður afreksíþróttafólk ársins heiðrað......
Sex keppendur úr keppnisliði HSK/Selfoss tóku þátt í 2. jólamóti ÍR sem haldið var í frjálsíþróttahöllinni þann 20. des sl. Eva Lind Elíasdóttir, 15 ára efnileg stelpa úr Þorlákshöfn, bætti sitt eigið HSK-met í kúluvarpi í meyjaflokki um 1,77 m er hún kastaði kúlunni 14,17 m og sigraði með yfirburðum. Þetta er annar besti árangur á Íslandi frá upphafi í hennar aldursflokki, aðeins Íslandsmet Helgu Margrétar Þorsteinsdóttir sem er 15,06 m er lengra, en Eva Lind hefur allt næsta ár til að reyna að ná Íslandsmetinu af Helgu Margréti.
Fallinn er frá, Kolbeinn Ingi Kristinsson, heiðursfélagi Ungmennafélags Selfoss og frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss. Kolbeinn var einn þeirra íþróttamanna sem bar hróður Ungmennafélags Selfoss hvað hæst á árunum, um og eftir seinna stríð. Hann keppti í frjálsum íþróttum fyrir Selfoss á árunum 1942 til 1954 og var á þessum árum landsþekktur hástökkvari og stangarstökkvari.
Iðkendur frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss gerðu mjög góða ferð á Silfurleika ÍR laugardaginn 16. nóvember s.l. Um 20 keppendur kepptu í þrautabraut og tóku þátt í 10 mismunandi þrautum þar sem allir fengu jafna viðurkenningu. Sautján keppendur 11 ára og eldri tóku síðan þátt í mismunandi greinum.
Fræðslunet Suðurlands í samvinnu við HSK mun halda námskeið um ungmennafélagshreyfinguna á Suðurlandi í 100 ár á átta kvöldum í október og nóvember í Iðu á Selfossi. Námskeiðið fer fram á mánudagskvöldum kl. 19:30 - 21:40.
Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss, eigandi og framkvæmdaraðili Brúarhlaups Selfoss, og Landsbankinn, undirrituðu nýverið samstarfssamning í tengslum við Brúarhlaup Selfoss. Í samstarfinu felst m.a. að Landsbankinn verður aðal styrktar- og stuðningsaðili hlaupsins. Að sögn Helga S. Haraldssonar, formanns frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss, skiptir þessi samningur miklu máli fyrir Brúarhlaup Selfoss og framkvæmd þess og styrkir frjálsíþróttadeildina við undirbúning og framkvæmd hlaupsins.
Sumarmót Umf. Selfoss í frjálsum fyrir 11 ára og yngri fór fram í Þorlákshöfn fimmtudaginn 12. ágúst. Iðkendur frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss, sem koma víðs vegar af Suðurlandi, mættu fíldjarfir til leiks ásamt nokkrum krökkum frá Þorlákshöfn enda var mótið opið öllum. Mótið var það síðasta í sumar hjá þessum aldursflokkum og ríkti góð stemming á meðal keppenda. Rúmlega 20 krakkar mættu til leiks og stóðu sig með mikilli prýði.
Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss, eigandi og framkvæmdaaðili Brúarhlaups Selfoss, og Vífilfell, söluaðili Powerade íþróttadrykkjarins, hafa undirritað samstarfssamning til þriggja ára. Í samstarfinu felst m.a. að Powerade íþróittadrykkurinn verður íþróttadrykkur Brúarhlaupsins næstu þrjú árin. Þessi samningur skiptir miklu máli fyrir Brúarhlaup Selfoss og framkvæmd þess og styrkir frjálsíþróttadeildina við undirbúning og framkvæmd hlaupsins, að sögn Helga S. Haraldssonar, formanns frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss.
Bikarakeppni 16 ára og yngri var haldin að Laugum í Þingeyjarsýslu, sunnudaginn 22. ágúst sl. HSK sendi harðsnúið lið til keppni sem samanstóð af unglingum frá 13-16 ára. Alls tóku 10 lið þátt í mótinu. Ágætur árangur náðist í mörgum greinum þrátt fyrir töluvert votviðri. Jóhann Erlingsson frá Laugarvatni varð bikarmeistari bæði í kúluvarpi, með 14,36 m og kringlukasti með 43,52 m. Þá varð Thelma Björk Einarsdóttir frá Selfossi bikarmeistari í kúluvarpi með 11,62 m auk þess sem hún vann brons í kringlukasti.
Fjóla Signý Hannesdóttir Umf. Selfoss náði þeim frábæra árangri í Bikarkeppni FRÍ að hlaupa 400m grindahlaup á tímanum 62,25 sek. Með þessum árangri náði Fjóla Signý keppnisrétti á Norðurlandameistaramót unglinga 20-22 ára sem fram fer í Svíþjóð 4.-5. September. Fjóla Signý bætti sig um rúma sekúndu í hlaupinu og fór vel undir lágmarkið sem var 63 sekúndur. Fjóla Signý stefnir að því að slá HSK-met Þuríðar Ingvarsdóttur á mótinu en til þess þarf hún að hlaupa á skemmri tíma en 61,35 sek.
Þrír drengir úr keppnisliði HSK/Selfoss voru á dögunum valdir í unglingalandslið Íslands í frjálsum íþróttum skipað keppendum 19 ára og yngri. Þetta eru þeir Dagur Fannar Magnússon, sem var valinn í sleggjukast, Bjarni Már Ólafsson, í þrístökk, og Hreinn Heiðar Jóhannsson, sem var valinn í hástökk. Þeir munu keppa á Norðurlandameistaramótinu 19 ára og yngri sem að þessu sinni fer fram á Akureyri helgina 28.-29.ágúst.
Frjálsíþróttlið HSK gerði frábæra ferð norður á Sauðárkrók þar sem bikarkeppni Frjálsíþróttasambandsins fór fram um liðna helgi. Miklar framfarir hafa orðið síðan í fyrra og sést það meðal annars á því að 19 persónulegar bætingar litu dagsins ljós. Eitt HSK-met var sett en það var Dagur Fannar Magnússon Selfossi sem bætti eigið sleggjukastsmet í drengjaflokki með kast upp á 41,29 m. Þá náði Fjóla Signý Hannesdóttir Selfossi lágmarki á Norðurlandamót Unglinga í 400m grindahlaupi er hún bætti sig um eina og hálfa sekúndu og kom þriðja í mark á 62,25 sek.
Mánudaginn 26. júlí sl. fór fram Unglingamót HSK í frjálsum íþróttum. Mótið var haldið á Laugarvatni í góðu veðri. Frekar fámennt var eða um 25 keppendur frá 6 félögum. Ástæðan er kannski sú að mótið er haldið í lok júlí þar sem sumarfrí eru í hámarki. Engu að síður náðist ágætur árangur í mörgum greinum eins og sést í upptalningunni hér á eftir. Selfoss sigraði stigakeppnina örugglega með 135 stigum
Það voru 24 þátttakendur sem mættu í frjálsíþróttaskóla UMFÍ á Laugarvatni vikuna 19. - 23. júlí s.l. en skóli þessi er starfræktur á 5 stöðum á landinu. Ólafur Guðmundsson og Fjóla Signý Hannesdóttir voru þjálfarar í skólanum.
Átta keppendur úr HSK/Selfoss kepptu á Akureyrarmótinu sem fram fór á Akureyri helgina 24.-25. júlí sl. Uppskeran var svo sannarlega frábær en samtals hlaut hópurinn 11 gullverðlaun, 1 silfurverðlaun og 1 bronsverðlaun, auk þess sem eitt HSK-met féll.
HSK/Selfoss lið unglinga gerði góða ferð í Hafnarfjörðinn helgina 17.-18. júlí s.l., en þar fór fram Meistarmót Íslands 15 - 22 ára í frjálsíþróttum. Þrjátíu persónulegar bætingar litu dagsins ljós og liðið rakaði saman 11 gullverðlaunum, 9 silfurverðlaunum og 7 bronsverðlaunum auk þessa að verða Íslandsmeistari í ungkvennaflokki.
Anna Pálsdóttir Umf. Selfoss bætti nokkurra daga Selfossmet sitt í spjótkasti um 1,42 m á Júnímóti FH sem haldið var þann 4. júní s.l. Anna kastaði spjótinu 40,86 m og sigraði með yfirburðum. Þessi árangur er HSK-met í aldursflokknum 19-20 ára auk þess að vera Selfoss-met í kvennaflokki og flokki 19-20 ára.
Fjóla Signý Hannesdóttir Umf. Selfoss bætti sinn besta árangur í sjöþraut um 46 stig og hlaut bronsverðlaun að launum á Meistaramóti Íslands í sjöþraut sem fram fór í Kópavogi helgina 29.-30. maí sl.
Frjálsíþróttadeild Selfoss sendi fjóra keppendur til leiks á JJ-mót Ármanns sem haldið var á Laugardalsvelli þann 25. maí. Anna Pálsdóttir bætti Selfossmetið í spjótkasti enn frekar er hún kastaði til bronsverðlauna með 39,44 m sem er bæting um 52 cm frá fyrra meti hennar.
Fjóla Signý Hannesdóttir Umf. Selfoss keppti á Afmælismóti Breiðabliks sem haldið var þann 17. maí s.l. á Kópavogsvelli. Fjóla Signý sigraði í langstökki þegar hún stökk 5,30 m í löglegum vindi og bætti sinn besta árangur um 19 cm. Hún hlaut silfurverðlaun í 100 m hlaupi á tímanum 13,64 sek. Hún hlaut einnig silfurverðlaun fyrir að hlaupa 300 m á tímanum 44,62 sek og setti persónulegt meti. Að lokum kastaði hún kúlunni 8,88 m og hlaut silfurverðlaun að launum.
Vormót HSK var haldið í Þorlákshöfn miðvikudaginn 19. maí sl. Anna Pálsdóttir sigraði spjótkast með 38,92 m og bætti Selfossmet Ágústu Tryggvadóttur um tæpa 2 metra. Hún kastaði að auki til silfurverðlauna í kringlukasti með 27,43 m.
Aðalfundur Ungmennafélags Selfoss var haldinn í gær í félagsheimilinu Tíbrá. Mjög góð mæting var á fundinum, en alls mættu 48 af 55 kjörnum fulltrúum, tveir heiðursfélagar, auk fleiri gesta. Lögð var fram vönduð ársskýrsla þar sem fram kom yfirlit yfir starf félagsins og deilda innan þess. Starfið 2009 var mjög öflugt og náðust margir frábærir árangrar bæði íþróttalega og félagslega. Rekstur félagsins gekk vel og voru flestar deildir reknar með rekstrarafgangi.
Aðalfundur Ungmennafélags Selfoss verður haldinn á morgun fimmtudaginn 29. apríl í félagsheimilinu Tíbrá. Fundurinn hefst kl. 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. Einnig verða veittar viðurkenningar til íþróttakarls og íþróttakonu Umf. Selfoss auk viðurkenninga fyrir góð störf í þágu félagsins. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa kjörnir fulltrúar skv. lögum félagsins. Allir félagsmenn og velunnarar eru velkomnir.
Aðalfundar Frjálsíþróttaráðs HSK verður haldinn í Tíbrá, félgsheimili Umf. Selfoss á íþróttavellinum á Selfossi miðvikudaginn 14. apríl nk. kl. 20:00. Til aðalfundar er boðið fulltrúum frá aðildarfélögum Frjálsíþróttaráðs HSK og stjórn HSK. Sautján aðildarfélög ráðsins eiga samtals rétt á að senda 41 fulltrúa á aðalfundinn. Dagskrá fundarins er hefðbundin, auk þess sem verkefnisstjóri átaksverkefnis ráðsins, Ólafur Guðmundsson mun kynna verkefnið.
Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss ætlar að halda böll fyrir börn í 4.-6. bekk og unglinga fædda 94-97 í Zelsíus föstudaginn 9. apríl. Ballið fyrir 4.-6 bekk verður kl. 17:00-19:00. Meðlimir frjálsíþróttadeildar munu halda uppi fjörinu, en það kostar 500 kr. inn. Unglingaballið verður kl. 20:00-23:00. D.J. Óli Geir mun skemmta þeim og þar kostar 1.000 kr. inn. Sjoppa verður á staðnum.
Aðalfundur frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss var haldinn í gærkvöldi. Í vandaðri ársskýrslu sem var lögð fram á fundinum kom fram að starfið hefur verið mjög öflugt á síðasta ári. Fleiri börn og unglingar æfa nú frjálsar á Selfossi en verið hefur í mörg ár og greinilegt að þjálfarar deildarinnar eru að vinna gott starf. Fjárhagsleg staða deildarinnar er góð og skilaði hún jákvæðri niðurstöðu.
Meistaramót Íslands 11 -14 ára fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardalnum helgina 13.-14. mars sl. HSK-Selfoss sendi 62 keppendur til leiks í sameiginlegu liði og stóðu krakkarnir sig mjög vel og lentu í 2. sæti í heildarstigakeppni mótsins með 427 stig. ÍR sigraði með 571 stig og FH lenti í 3. sæti með 289 stig. Lið HSK-Selfoss sigraði stigakeppnina í flokkum 14 ára telpna og 11 ára stelpna, lenti í 2. sæti hjá 13 ára telpum og 11 ára strákum og að lokum lenti lið 13 ára pilta í 3. sæti.
Hvert barn á aldrinum 6-18 ára sem á lögheimili í Sveitarfélaginu Árborg á rétt á svonefndum hvatagreisðlum til niðurgreiðslu á skipulögðu íþróttastarfi í Árborg. Þessi upphæð er kr. 10.000 á hvert barn fyrir viðurkennt námskeið eða æfingar sem standa í 10 vikur eða lengur. Mín Árborg er íbúagátt Sveitarfélagsins Árborgar og þar er hægt að sækja um hvatagreiðslurnar rafrænt. Farið er inn á íbúagáttina í gegnum heimasíðu Árborgar www.arborg.is eða ibuagatt.arborg.is. Til að fá aðgang að gáttinni er valin „nýskráning" og verður síðan lykilorð sent í heimabanka viðkomandi eða að náð sé í það í afgreiðslu Ráðhúss Árborgar.
Síðastliðna helgi fór fram Meistaramót Íslands í unglingaflokkum. Sameiginlegt lið HSK og Selfoss gerði góða hluti á mótinu. 25 keppendur voru af Suðurlandinu í ár miðað við 20 í fyrra, sem er mjög jákvætt enda frjálsar í sókn á svæðinu. Alls vann lið HSK-SELFOSS 8 gull, 9 silfur og 6 brons og setti 8 HSK-met. Í heildina varð liðið í 3. sæti í stigakeppni milli félaga með 153 stig sem er mun betri árangur en í fyrra. Í einstökum flokkum þá vann HSK-SELFOSS sveinaflokkinn í stigakeppninni og eru því Íslandsmeistarar í sveinaflokki innanhúss 2010.
Stórmót ÍR fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík helgina 23.-24. janúar sl. Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss skráði 46 keppendur til leiks, þar af voru tvö 10 manna lið sem tóku þátt í þrautabrautinni. Keppendur stóðu sig mjög vel og uppskáru 9 gullverðlaun, 8 silfurverðlaun og 3 bronsverðlaun. Að auki voru sett þrjú Selfossmet og eitt HSK-met.
Héraðsmót HSK í frjálsum íþróttum fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík þriðjudagskvöldin 12. og 19. janúar s.l. Lið Umf. Selfoss sigraði heildarstigakeppnina með 133 stig, en komu Laugdælir fast á hæla þeirra með 123,5 stig.
Aldursflokkamót HSK, 11-14 ára, í frjálsum íþróttum var haldið sunnudaginn 10. janúar s.l. í Frjálsíþróttahöllinni í Reykjvík. Selfoss sigraði heildarstigakeppnina nokkuð örugglega með 321 stig, en lið Þjótanda (Baldur, Samhygð, Vaka) varð í öðru sæti með 249 stig. Árangur keppenda Umf. Selfoss var eftirfarandi:
Ágústa Tryggvadóttir var valin íþróttakona Árborgar 2009 á uppskeruhátí ÍTÁ þann 29. desember s.l. Ágústa er vel að þessum titli komin enda verið ein fremsta íþróttakona á Suðurlandi um árabil. Hér á eftir fer smá pistill um afrek Ágústu á árinu.
Jólin verða kvödd á Selfossi með glæsilegri þrettándagleði miðvikudaginn 6. janúar. Farin verður blysför frá Tryggvaskála að brennustæði við tjaldstæði Gesthúsa þar sem kveikt verður í þrettándabálkesti. Glæsileg flugeldasýnig verður, jólasveinar kveðja og álfar og tröll mæta á svæðið. Gaman væri að sjá sem flesta í trölla-, álfa- eða jólasveinabúningum. Vinsamlegast fylgist með útvarpsfréttum ef veðurútlit er tvísýnd.



