Uppskeruhátíð íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar, ÍTÁ, verður haldin í kvöld þriðjudaginn 28. desember kl.20:00 við hátíðlega athöfn í hátíðarsal Fjölbrautaskóla Suðurlands. Hátíðin er eins og nafnið ber til kynna uppgjör íþróttafólks í Árborg á árinu 2010 en þar verður afreksíþróttafólk ársins heiðrað......
Sex keppendur úr keppnisliði HSK/Selfoss tóku þátt í 2. jólamóti ÍR sem haldið var í frjálsíþróttahöllinni þann 20. des sl. Eva Lind Elíasdóttir, 15 ára efnileg stelpa úr Þorlákshöfn, bætti sitt eigið HSK-met í kúluvarpi í meyjaflokki um 1,77 m er hún kastaði kúlunni 14,17 m og sigraði með yfirburðum. Þetta er annar besti árangur á Íslandi frá upphafi í hennar aldursflokki, aðeins Íslandsmet Helgu Margrétar Þorsteinsdóttir sem er 15,06 m er lengra, en Eva Lind hefur allt næsta ár til að reyna að ná Íslandsmetinu af Helgu Margréti.
Fallinn er frá, Kolbeinn Ingi Kristinsson, heiðursfélagi Ungmennafélags Selfoss og frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss. Kolbeinn var einn þeirra íþróttamanna sem bar hróður Ungmennafélags Selfoss hvað hæst á árunum, um og eftir seinna stríð. Hann keppti í frjálsum íþróttum fyrir Selfoss á árunum 1942 til 1954 og var á þessum árum landsþekktur hástökkvari og stangarstökkvari.



