Hvert barn á aldrinum 6-18 ára sem á lögheimili í Sveitarfélaginu Árborg á rétt á svonefndum hvatagreisðlum til niðurgreiðslu á skipulögðu íþróttastarfi í Árborg. Þessi upphæð er kr. 10.000 á hvert barn fyrir viðurkennt námskeið eða æfingar sem standa í 10 vikur eða lengur. Mín Árborg er íbúagátt Sveitarfélagsins Árborgar og þar er hægt að sækja um hvatagreiðslurnar rafrænt. Farið er inn á íbúagáttina í gegnum heimasíðu Árborgar www.arborg.is eða ibuagatt.arborg.is. Til að fá aðgang að gáttinni er valin „nýskráning" og verður síðan lykilorð sent í heimabanka viðkomandi eða að náð sé í það í afgreiðslu Ráðhúss Árborgar.
Síðastliðna helgi fór fram Meistaramót Íslands í unglingaflokkum. Sameiginlegt lið HSK og Selfoss gerði góða hluti á mótinu. 25 keppendur voru af Suðurlandinu í ár miðað við 20 í fyrra, sem er mjög jákvætt enda frjálsar í sókn á svæðinu. Alls vann lið HSK-SELFOSS 8 gull, 9 silfur og 6 brons og setti 8 HSK-met. Í heildina varð liðið í 3. sæti í stigakeppni milli félaga með 153 stig sem er mun betri árangur en í fyrra. Í einstökum flokkum þá vann HSK-SELFOSS sveinaflokkinn í stigakeppninni og eru því Íslandsmeistarar í sveinaflokki innanhúss 2010.



