Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss ætlar að halda böll fyrir börn í 4.-6. bekk og unglinga fædda 94-97 í Zelsíus föstudaginn 9. apríl. Ballið fyrir 4.-6 bekk verður kl. 17:00-19:00. Meðlimir frjálsíþróttadeildar munu halda uppi fjörinu, en það kostar 500 kr. inn. Unglingaballið verður kl. 20:00-23:00. D.J. Óli Geir mun skemmta þeim og þar kostar 1.000 kr. inn. Sjoppa verður á staðnum.
Aðalfundur frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss var haldinn í gærkvöldi. Í vandaðri ársskýrslu sem var lögð fram á fundinum kom fram að starfið hefur verið mjög öflugt á síðasta ári. Fleiri börn og unglingar æfa nú frjálsar á Selfossi en verið hefur í mörg ár og greinilegt að þjálfarar deildarinnar eru að vinna gott starf. Fjárhagsleg staða deildarinnar er góð og skilaði hún jákvæðri niðurstöðu.
Meistaramót Íslands 11 -14 ára fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardalnum helgina 13.-14. mars sl. HSK-Selfoss sendi 62 keppendur til leiks í sameiginlegu liði og stóðu krakkarnir sig mjög vel og lentu í 2. sæti í heildarstigakeppni mótsins með 427 stig. ÍR sigraði með 571 stig og FH lenti í 3. sæti með 289 stig. Lið HSK-Selfoss sigraði stigakeppnina í flokkum 14 ára telpna og 11 ára stelpna, lenti í 2. sæti hjá 13 ára telpum og 11 ára strákum og að lokum lenti lið 13 ára pilta í 3. sæti.
