Frjálsíþróttadeild Selfoss sendi fjóra keppendur til leiks á JJ-mót Ármanns sem haldið var á Laugardalsvelli þann 25. maí. Anna Pálsdóttir bætti Selfossmetið í spjótkasti enn frekar er hún kastaði til bronsverðlauna með 39,44 m sem er bæting um 52 cm frá fyrra meti hennar.
Fjóla Signý Hannesdóttir Umf. Selfoss keppti á Afmælismóti Breiðabliks sem haldið var þann 17. maí s.l. á Kópavogsvelli. Fjóla Signý sigraði í langstökki þegar hún stökk 5,30 m í löglegum vindi og bætti sinn besta árangur um 19 cm. Hún hlaut silfurverðlaun í 100 m hlaupi á tímanum 13,64 sek. Hún hlaut einnig silfurverðlaun fyrir að hlaupa 300 m á tímanum 44,62 sek og setti persónulegt meti. Að lokum kastaði hún kúlunni 8,88 m og hlaut silfurverðlaun að launum.
Vormót HSK var haldið í Þorlákshöfn miðvikudaginn 19. maí sl. Anna Pálsdóttir sigraði spjótkast með 38,92 m og bætti Selfossmet Ágústu Tryggvadóttur um tæpa 2 metra. Hún kastaði að auki til silfurverðlauna í kringlukasti með 27,43 m.



