Fræðslunet Suðurlands í samvinnu við HSK mun halda námskeið um ungmennafélagshreyfinguna á Suðurlandi í 100 ár á átta kvöldum í október og nóvember í Iðu á Selfossi. Námskeiðið fer fram á mánudagskvöldum kl. 19:30 - 21:40.
Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss, eigandi og framkvæmdaraðili Brúarhlaups Selfoss, og Landsbankinn, undirrituðu nýverið samstarfssamning í tengslum við Brúarhlaup Selfoss. Í samstarfinu felst m.a. að Landsbankinn verður aðal styrktar- og stuðningsaðili hlaupsins. Að sögn Helga S. Haraldssonar, formanns frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss, skiptir þessi samningur miklu máli fyrir Brúarhlaup Selfoss og framkvæmd þess og styrkir frjálsíþróttadeildina við undirbúning og framkvæmd hlaupsins.
Sumarmót Umf. Selfoss í frjálsum fyrir 11 ára og yngri fór fram í Þorlákshöfn fimmtudaginn 12. ágúst. Iðkendur frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss, sem koma víðs vegar af Suðurlandi, mættu fíldjarfir til leiks ásamt nokkrum krökkum frá Þorlákshöfn enda var mótið opið öllum. Mótið var það síðasta í sumar hjá þessum aldursflokkum og ríkti góð stemming á meðal keppenda. Rúmlega 20 krakkar mættu til leiks og stóðu sig með mikilli prýði.
Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss, eigandi og framkvæmdaaðili Brúarhlaups Selfoss, og Vífilfell, söluaðili Powerade íþróttadrykkjarins, hafa undirritað samstarfssamning til þriggja ára. Í samstarfinu felst m.a. að Powerade íþróittadrykkurinn verður íþróttadrykkur Brúarhlaupsins næstu þrjú árin. Þessi samningur skiptir miklu máli fyrir Brúarhlaup Selfoss og framkvæmd þess og styrkir frjálsíþróttadeildina við undirbúning og framkvæmd hlaupsins, að sögn Helga S. Haraldssonar, formanns frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss.



