Unglingameistaramót Íslands var haldið í Frjálsíþróttahöllinni helgina 29.-30.janúar sl. HSK/Selfoss sendi öflugt lið til leiks og stóð það sig frábærlega og varð í öðru sæti í stigakeppni mótsins. ÍR-ingar báru höfuð og herðar yfir aðra andstæðinga og sigruðu með 491,3 stigum, HSK/Selfoss lenti í öðru sæti með 164,7stig og UFA í þriðja sæti með 154,5 stig. Í einstökum flokkum varð HSK/Selfoss í 2. sæti í þremur þeirra: 15ára, 16-17ára og 20-22ára flokkum stúlkna. Þá komu í hús 8 gull, 8 silfur og 10 bronsverðlaun og síðast en ekki síst voru 8 HSK met slegin.
Iðkendur meistaraflokks Selfoss stóðu sig mjög vel á Stórmóti ÍR sem haldið var í Frjálsíþróttahöllinni dagana 22. og 23.janúar sl. Deildin sendi keppendur til leiks í öllum flokkum. Þrettán keppendur tóku þátt í mismunandi greinum í flokki 15 ára og eldri. Í flokki 14 ára og yngri tóku fjölmargir þátt og verður þeirra árangur birtur á næstunni.
Héraðsmót HSK í frjálsum íþróttum var haldið í Frjálsíþróttahöllinni dagana 12. og 19. janúar sl. Lið Selfoss, sem var nokkuð vængbrotið vegna meiðsla þeirra Fjólu Signýjar og Þórhildar Helgu, mætti mjög kröftugt til leiks og sigraði örugglega með 132 stigum. Þjótandi varð í öðru sæti með 58 stig og lið Dímonar í þriðja sæti með 47 stig.
Aldursflokkamót HSK, 11-14 ára, var haldið í Laugardalshöllinni þann 10. janúar. Selfoss sigraði mótið með yfirburðum, fékk 365 stig. Næsta félag hlaut 175 stig. Krakkarnir unnu til fjölda verðlauna. Samtals fengu þau 28 gullverðlaun, 22 silfurverðlaun og 12 bronsverðlaun og mörg persónuleg met voru slegin
Keppnislið Umf. Selfoss fór með sigur af hólmi á Unglingameistaramóti HSK sem haldið var í Frjálsíþróttahöllinni þann 9. janúar sl. Lið Umf.Selfoss hlaut 112,5 stig, Dímon varð í 2. sæti með 74 stig og Þór í 3. sæti með 65 stig
Keppendum HSK/Selfoss gekk mjög vel á Reykjavíkurleikunum sem haldnir voru í Frjálsíþróttahöllinni þann 15. janúar sl. Þrjú HSK-met voru slegin á mótinu.
Keppnislið Umf. Selfoss fór með sigur af hólmi á Unglingameistaramóti HSK sem haldið var í Frjálsíþróttahöllinni þann 9. janúar sl. Lið Umf.Selfoss hlaut 112,5 stig, Dímon varð í öðru sæti með 74 stig og Þór í 3.sæti með 65 stig.



