Iðkendur yngri flokka frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss komu saman á frjálsíþróttavellinum þriðjudaginn 23. ágúst og spreyttu sig í nokkrum frjálsíþróttagreinum. Góð mæting var á mótið sem var nokkurs konar endapunktur á sumarstarfinu og stóðu krakkarnir sig með mikilli prýði.
Íslandsmeistaramótið í fjölþrautum fór fram á Akureyri um síðustu helgi. Fjóla Signý Hannesdóttir náði þeim glæsilega árangri að verða Íslandsmeistari í sjöþraut með 4689 stig sem er bæting um 407 stig. Fjóla Signý náði að bæta sinn besta árangur í fjórum greinum af sjö þrátt fyrir að hitastigið væri einungis um 5 gráður þessa helgina á Akureyri.
Teitur Örn Einarsson gerði sér lítið fyrir og bætti 8 ára gamalt Íslandsmet í kringlukasti 13 ára drengja á kastmóti fyrir 12-14 ára sem haldið var á Selfossvelli 31. ágúst og 1. september sl. er hann kastaði 39,24 metra. Gamla Íslandsmetið var 38,92 metrar. Á sama móti kastaði Halla María Magnúsdóttir mjög vel í kúluvarpi eða 11,65 m og vantaði einungis um 20 cm upp á að setja einnig Íslandsmet.



