Frjálsíþróttaráð HSK býður til Vormóts HSK á Selfossi, sem um leið er fyrsta mótið af sex í Mótaröð FRÍ sumarið 2012. Vormótð verður haldið laugardaginn 19. maí á Selfossvelli og hefst það kl. 13:00. Keppt verður í 18 greinum á vormótinu.
Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss óskar eftir að ráða þjálfara fyrir meistaraflokk félagsins (15 ára og eldri). Meistaraflokkur félagsins æfir á nýjum glæsilegum frjálsíþróttavelli fjóra til fimm daga vikunnar. Möguleiki er á að þjálfa hluta æfinganna og vera í samstarfi við annan þjálfara. Mjög margir efnilegir unglingar æfa hjá deildinni og eru mjög mörg spennandi verkefni í sumar. Nánari upplýsingar veitir Sigríður Anna Guðjónsdóttir í síma 892-7052 og í netfangi helgihar@simnet.is.
90. héraðsþing Skarphéðins var haldið í Brautarholti á Skeiðum síðastliðinn laugardag. Góð mæting var á þingið sem tókst í alla staði mjög vel. Fjórtán fulltrúar frá Umf. Selfoss mættu á þingið. Fjöldi mála var tekinn fyrir og margar tillögur afgreiddar. Samþykktir þingsins má sjá á heimasíðu HSK.
ÍSÍ, KSÍ, HSÍ, KKÍ og BLÍ boða til málþings um íþróttadómara og þeirra mikilvægu störf í tengslum við íþróttirnar. Fulltrúar sérsambandanna munu fjalla um stöðu mála og framtíðarhorfur. Málþingið er öllum opið, endurgjaldslaust á meðan húsrúm leyfir. Allir sem áhuga hafa á þessum málum eru hvattir til að mæta, fræðast um stöðuna og leggja jafnvel orð í belg um málefnið.
Á héraðsþingi HSK sem haldið var um liðna helgi var Fjóla Signý Hannesdóttir, frjálsíþróttakona, útnefnd íþróttamaður HSK fyrir árið 2011. Fjóla Signý stóð sig frábærlega á síðasta ári og er vel að þessum titli komin. Hún býr nú í Svíþjóð þar sem hún stundar æfingar af kappi.
Meistaramót Íslands 11-14 ára fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal um síðustu helgi. Lið HSK/Selfoss varð í 3. sæti í heildarstigakeppninni. Liðið vann stigakeppni 13 og 14 ára pilta og 13 ára stúlkna og varð í 2. sæti í flokki 12 ára pilta. Alls unnust 10 gull, 8 silfur og 4 brons, sem verður að teljast góður árangur.
Fjóla Signý Hannesdóttir, frjálsíþróttakona úr Umf. Selfoss, stórbætti HSK-metið í 400 m hlaupi kvenna innanhúss á XL-Galan mótinu í Stokkhólmi sem fór fram sl. fimmtudag. Fjóla Signý hljóp á 57,21 sekúndu og bætti sig um um 0,7 sek. Tíminn er nýtt HSK-met í kvennaflokki, en Fjóla átti gamla metið sjálf.
Sjötta Bikarkeppni FRÍ í frjálsum íþróttum innanhúss fór fram í Laugardalshöllinni laugardaginn 18. febrúar s.l. HSK sendi sitt sterkasta lið til keppni sem náði góðum árangri. Það samanstóð af ungum einstaklingum sem þreyttu frumraun sína í bikarkeppni sem og reyndum jöxlum sem alltaf standa fyrir sínu.
Helgina 11.-12. febrúar fór fram í Laugardalshöllinni aðalhluti Meistaramóts Íslands. HSK/S°elfoss átti þar öfluga fulltrúa sem stóðu sig vel að vanda. Í heildina fékk HSK/Selfoss tvö gull, tvö silfur og eitt brons. Í stigakeppni milli félaga varð HSK/Selfoss í 3. sæti í karlakeppninni og 4. sæti í heildina.
Unglingameistaramót Íslands 15-22 ára var haldið í Frjálsíþróttahöllinni helgina 4.-5. febrúar sl. HSK/Selfoss sendi öflugt lið til leiks sem stóð sig mjög vel. Níu Íslandsmeistaratitlar komu í hús hjá HSK/ Selfoss, þrjú silfur og átta brons. Í einstökum flokkum varð lið HSK/ Selfoss í 2. sæti í tveimur þeirra, þ.e. hjá 16-17 ára stúlkum og 20- 22 ára piltum. Síðast en ekki síst voru tvö HSK-met slegin á mótinu.
Fjóla Signý Hannesdóttir frjálsíþróttakona gerði sér lítið fyrir og sigraði í 60 m grindahlaupi, á tímanum 9,04 sek, á Team Sportia Spelen, sem haldið var í frjálsíþróttahöllinni í Falun, þann 28.janúar sl. HSK-met Fjólu Signýjar sem hún setti á MÍ í fjölþrautum nýlega er 9,02 sek. Næstu helgi keppir Fjóla Signý í 60 m grindahlaupi og 400m hlaupi þar ytra og verður spennandi að sjá hvort metið falli.
Aðildarfélög HSK áttu 43 keppendur á Stórmóti ÍR sem haldið var Laugardalshöllinni um liðna helgi. Keppendur HSK stóð sig vel að vanda. Uppskeran var 15 gull, 12 silfur og 10 brons, eitt HSK-met og fullt af persónulegum metum. Keppt var í öllum aldursflokkum. Krakkar 10 ára og yngri kepptu í svokölluðum Krakkafrjálsum, en það er þrautabraut sem samanstendur af 6-10 þrautum þar sem líkt er eftir hreyfingum úr hefðbundnum frjálsíþróttagreinum. Keppt var í 10-12 krakka hópum og vann hópurinn saman í að safna stigum, þar sem allir fengu svo verðlaunapening í lokin. Selfoss átti þar tíu keppendur og Laugdælir einn.
Þau Guðmundur Kr. Jónsson og Hrafnhildur Guðmundsdóttir fengu afhentan heiðurskross ÍSÍ í sérstöku afmælishófi sem haldið var í Ráðhúsi Reykjavíkur í tilefni af 100 ára afmæli Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sl. laugardag. Bæði hafa þau starfað í áratugi innan íþróttahreyfingarinnar. Ungmennafélag Selfoss óskar þeim innilega til hamingju með þessa viðurkenningu.
Meistaramót Íslands í fjölþrautum innanhúss fór fram helgina 14.-15. janúar sl. í Frjálsíþróttahöllinni. Fjóla Signý Hannesdóttir Selfossi varð Íslandsmeistari í fimmtarþraut er hún náði 3792 stigum og bætti hún sig í öllum greinum þrautarinn-ar. Fjóla Signý átti best áður 3474 stig og bætti því sinn besta árangur um 318 stig. Fjóla Signý er í frábæru formi um þessar stundir og náði stórkostlegum árangri á fyrsta móti ársins.
Vorannarfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 6. febrúar nk. og tekur það átta vikur. Um er að ræða samtals 60 kennslustunda nám eða sem samsvarar öllu 1. stiginu,1a, 1b og 1c. Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.
Unglingamót HSK var haldið í Frjálsíþróttahöllinni 8. janúar sl. Frjálsíþróttadeild Selfoss sendi öflugt lið til leiks og var frammistaða keppenda mjög góð. Selfoss sigraði stigakeppni félaganna með 155 stig. Lið Dímonar kom næst með 122 stig.
HSK-mótin í frjálsum íþróttum í flokkum 11 ára og eldri fara fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardalnum í janúar. Er þetta í þriðja sinn sem HSK-mótin fara þar fram. Hér að neðan eru upplýsingar um mótin í aldursflokkum 11-22 ára. Nánari upplýsingar um héraðsmótið verða birtar síðar.
Áramót Fjölnis, sem jafnframt varr síðasta frjálsíþróttamót ársins 2011, fór fram fimmtudaginn 29. des. sl. í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. HSK/Selfoss átti þar sjö keppendur sem allir stóðu sig með ágætum og lofar árangurinn góðu fyrir komandi innanhússkeppnistímabil. Uppskeran var tvö gull, fimm silfur og fjögur brons, nokkrar persónulegar bætingar og tvö HSK-met.
Áramótamót frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss fór fram í íþróttahúsi Vallaskóla þriðjudaginn 27. desember sl. Örn Davíðsson FH sigraði í öllum fimm karlagreinum mótsins og Fjóla Signý Hannesdóttir Selfossi var atkvæðamest í kvennaflokki.



