Beint á leiđarkerfi vefsins

Frálsíţróttir

Frálsíţróttir - RSS

25.11.2009 | Frálsíţróttir

14 verđlaun, 1 HSK met og 6 Selfossmet á Silfurleikum ÍR

32 keppendur frá Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss tóku þátt í Silfurleikum ÍR sem haldnir voru í frjálsíþróttahöllinni í Laugardalnum þann 21. nóvember sl. Í flokkum 11 ára og eldri var keppt til verðlauna en hjá 10 ára og yngri fengu allir sem tóku þátt verðlaun. Keppendur 8 ára og yngri fóru í gegnum þrautabraut sem samanstóð af 10 þrautum. Árangur Selfoss krakkanna var eftirfarandi:

9-10 ára hnátur og hnokkar:
Harpa Svansdóttir var í geysilegu stuði, setti 3 Selfossmet og 1 HSK met. Hún bætti sig um 42 cm í langstökki þegar hún stökk 3,95 m og bætti eigið Selfossmet um 42cm og lenti í 2. sæti einungis 10 cm frá HSK-metinu.  Hún var einnig með stór bætingu í 60 m hlaupi þar sem hún varð í 3. sæti, hljóp á 9,66 s, en hún átti áður 10,39 s og jafnaði hún Selfossmet Sólveigar Helgu Guðjónsdóttur. Í 600 m bætti hún sig um 7 sekúndur er hún kom önnur í mark á tímanum  2:07,48 og bætti HSK met Evu Lindar Elíasdóttur um 5 sekúndur og Selfossmet Ástrósar Hilmarsdóttur um 6 sekúndur.
Halla María Magnúsdóttir var að keppa á sínu fyrsta móti og varð í 4. sæti í 60 m á 9,73 sek og  í 5. sæti í kúluvarpi þar sem hún kastaði 5,89 m.
Guðbrandur Nói Lyngþórsson var einnig að keppa á sínu fyrsta móti, keppti í 60 m, langstökki, kúluvarpi og 600 m hlaupi og stóð sig prýðisvel.

 11 ára strákar:
Teitur Örn Einarsson
stóð sig mjög vel í kúluvarpi er hann bætti sinn besta árangur  um 1,45 m með því að varpa kúlunni 10,93 m og sigraði hann í greininni. Hann jafnaði síðan sinn besta árangur í hástökki þegar hann stökk yfir 1.20m. 
Þorvaldur Júlíusson og Baldur Þór Bjarnarson voru að keppa á sínu fyrsta móti og stóðu sig mjög vel.

12 ára strákar: 
Sverrir Ómar Victorsson bætti sinn besta árangur í kúluvarpi þegar hann kastaði 8,48 m og bætti fyrri árangur sinn um 49 cm. Hann bætti sig einnig um 5 cm í hástökki er hann flaug yfir 1.10m.
Þeir Kalman Veigar Ingólfsson og Ívar Óli Sigurðsson kepptu á sínu fyrsta móti og stóðu sig mjög vel.

13 ára strákar:
Hermann Snorri Hoffritz
keppti á sínu 1. móti og stóð sig frábærlega. Hann hljóp 60 m á tímanum 8,82 s og náði 4. sæti og kastaði kúlunni til 6. sætis með 10,52 m löngu kasti.
Ásgeir Karl Valdimarsson keppti einnig á sínu 1. móti og stóð sig frábærlega, hann hljóp 200m á 31.05 og varð í 4. sæti og hann náði 6. sæti bæði í hástökki með 1,35 m og í þrístökki með 9,17m stökki.

12 ára stelpur:
Dagný Lísa Davíðsdóttir
setti Selfossmet í 800 m hlaupi í flokki 11-12 ára þegar hún kom þriðja í mark á tímanum 2;42,69 og bætti eldra met Andreu Vigdísar Victorsdóttur um 8 sekúndur. Hún náði einnig bronsverðlaunum í kúluvarpi með 8,50 m löngu kasti. Þetta var fyrsta innnahússmótið hjá Dagnýju Lísu.
Andrea Vigdís Victorsdóttir krækti sér í silfuverðlaun í kúluvarpi þegar hún bætti sinn besta árangur um 64cm með 8,58 m löngu kasti. Í hástökki bætti hún sinn besta árangur þegar hún fór yfir 1,35 m og hlaut bronsverðlaun að launum. Hún hljóp á tímanum 2.48,99 í 800 m hlaupi, varð í 5. sæti og bætti sig um 2 sek. Að lokum bætti hún sinn besta árangur í 60 m hlaupi og þrístökki.
Halldóra Ósk Eiríksdóttir tók þátt í sínu 1. móti og stóð sig mjög vel.

13 ára stelpur: 
Andrea Sól Marteinsdóttir var í miklu stuði á Silfurleikunum. Hún sigraði í þrístökki með 9.98 m og bætti Selfossmet Franzisku Jóneyjar Pálsdóttur um 85cm og sinn eigin árangur um 88cm. Hún vann einnig til þrennra silfurverðlauna, í kúluvarpi með 10,02 m og 41 cm bætingu, í 60 m hlaupi á tímanum 8,69 sek, en hún átti áður 8,95 og í 60 m grindahlaupi bætti hún sig um tæpar 2 sekúndur er hún brunaði í mark á tímanum 10,69 sek og varð önnur í mark ásamt Thelmu Björk Einarsdóttur og jöfnuðu þær stöllur Selfossmet Sólveigar Söru Samúelsdóttur. Andrea  Sól varð síðan nr. 5 í 800m hlaupi og nr. 8 í hástökki er hún stökk 1.35 m og jafnaði sinn besta árangur.
Thelma Björk Einarsdóttir gerði það gott í kúluvarpi þegar hún kastaði kúlunni 10,99 m og fékk gullverðlaun og var hún aðeins 2 cm frá Selfossmeti Ágústu Tryggvadóttur. Í 60m grindahlaupi náði hún silfurverðlaunum eins og áður er komið fram, hún vippaði sér yfir 1,40 m í hástökki og náði 5. sæti. Í þrístökki bætti hún sig um 4 cm er hún stökk 9.26m.
Sólveig Helga Guðjónsdóttir hljóp 200 m mjög vel  og bætti sig um ½ sekúndu er hún kom í mark á tímanum 28,50 og hlaut silfurverðlaun að launum. Hún hlaut einnig silfurverðlaun í 60 m hlaupi á tímanum 8,69 sek sem er bæting um 13 brot.

15-16 ára meyjar:
Franziska Jóney Pálsdóttir bætti sig um 3 cm í þrístökki þegar hún stökk 9,69 m og endaði í 4. sæti, sama sæti og hún fékk fyrir að stökkva 1,50 m í hástökki. Hún bætti sig síðan um ½ sekúndu í 200 m hlaupi er hún kom í mark á tímanum 28,44 sek og að lokum jafnaði hún sinn besta árangur í 60 m hlaupi.

Silfurleika_1166 Silfurleikar_1164

Silfurleikar heiðargæsir


Á nćstunni

2.6.2012 | Frjálsíţróttir
2.6.2012 | Frjálsíţróttir
30.6.2012 | Frjálsíţróttir
14.7.2012 | Frjálsíţróttir
28.7.2012 | Frjálsíţróttir
11.8.2012 | Frjálsíţróttir


Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta