Fjóla Signý Hannesdóttir Umf. Selfoss er einnig í mjög góðu formi þessa dagana og bætti hún sinn besta árangur í 60m grindahlaupi um 0,08 sek er hún kom önnur í mark á tímanum 9,18 sek. Hún nálgast nú óðum HSK met Bryndísar Evu Óskarsdóttur sem er 9.09 sek. Fjóla Signý varð einnig í öðru sæti í hástökki er hún vippaði sér yfir 1.61m.
Ágústa Tryggvadóttir keppti í kúluvarpi þrátt fyrir að vera ekki enn búin að ná sér að fullu eftir að hún varð fyrir því óláni að fótbrotna í haust. Hún kastaði kúlunni 11.73m og varð í 3. sæti.
Mynd: Sveit HSK sem keppti á Landsmóti UMFÍ á Akureyri s.l. sumar. Frá vinstri: Ágústa Tryggvadóttir, Þórhildur Helga Guðjónsdóttir, Franziska Pálsdóttir og Fjóla Signý Hannesdóttir.
