Beint á leiđarkerfi vefsins

Frálsíţróttir

Frálsíţróttir - RSS

26.1.2010 | Frálsíţróttir

Harpa, Teitur Örn og Sigţór međ fern gullverđlaun á Aldursflokkamóti HSK

Aldursfl_HSK_jan10_2Aldursflokkamót HSK, 11-14 ára, í frjálsum íþróttum var haldið sunnudaginn 10. janúar s.l. í Frjálsíþróttahöllinni í Reykjvík. Selfoss sigraði heildarstigakeppnina nokkuð örugglega með 321 stig, en lið Þjótanda (Baldur, Samhygð, Vaka) varð í öðru sæti með 249 stig. Árangur keppenda Umf. Selfoss var eftirfarandi:

11 ára flokkur: Harpa Svansdóttir vann fern gullverðlaun, sigraði í 60m hlaupi á 9,60 sek, í 800m hlaupi á 3:02,71 mín, í langstökki með 3,94 m og í hástökki með 1,15 m stökki. Hún varð síðan í þriðja sæti í kúluvarpi með 5,80 m langt kast. Halla María Magnúsdóttir vann sér inn silfurverðlaun, bæði í 60m hlaupi er hún kom í mark á tímanum 9,80 sek og í kúluvarpi með 6,49 m löngu kasti. Valdimar Steinarson vann til bronsverðlauna í langstökki með 3,40 m stökki og hann vann einnig til bronsverðlauna í kúluvarpi þegar hann kastaði 6,19 m.

12 ára flokkurTeitur Örn Einarsson vann fern gullverðlaun, í kúluvarpi með 10,49 m, í 60m hlaupi á tímanum 9,49 sek, í 800m hlaupi á tímanum 2:50,30 mín og í hástökki þegar hann vippaði sér yfir 1,25m, hann vann síðan til bronsverðlauna í langstökki með 4,04 m.

Aldursfl_HSK_jan10_113 ára flokkurDagný Lísa Davíðsdóttir vann þrenn gullverðlaun, í kúluvarpi með 7,38 m, í 800m hlaupi á tímanum 2.48,72 mín og í 60m grind á tímanum 12,10 sek. Hún vann síðan til silfurverðlauna í 60m hlaupi á tímanum 9,42 sek. Halldóra Ósk Eiríksdóttir fékk tvenn gullverðlaun, í hástökki þegar hún flaug yfir 1,40 m og í 60m hlaupi þegar hún kom fyrst í mark á tímanum 9,39 sek. Hún vann til silfurverðlauna í langstökki með 3,80 m stökki og hlaut bronsverðlaun í 60m grindahlaupi á tímanum 13,38 sek. Andrea Vigdís Victorsdóttir vann til gullverðlauna í langstökki með 3,94 m. Hún fékk silfurverðlaun í 800m hlaupi þegar hún hljóp á tímanum 2:51,98 mín og vann til bronsverðlauna í 60m hlaupi á 9,44 sek, í hástökki með 1,35 m og í kúluvarpi með 7,04 m löngu kasti. Sigþór Helgason vann til ferna gullverðlauna, hann sigraði 60m hlaup á tímanum 9,08 sek, 60m grindahlaup á 12,42 sek, langstökk með 4,16 m og kúluvarp þegar hann þeytti kúlunni 9,77 m. Hann vann síðan til silfurverðlauna í 800m hlaupi á tímanum 2:49,94 mín og í hástökki þegar hann stökk yfir 1,30 m. Elvar Örn Jónsson sigraði hástökk þegar hann stökk yfir 1,35 m og fékk bronsverðlaun í langstökki með 3,83 m. Guðjón Óskar Steinarsson vann til bronsverðlauna í 60m hlaupi á tímanum 9,69 sek og Kalman Veigar Ingólfsson fékk bronsverðlaun fyrir 800m hlaup á tímanum 2:50,32 mín.

14 ára flokkur: Andrea Sól Marteinsdóttir vann til gullverðlauna í kúluvarpi með 10,76 m og í 60m grindahlaupi á tímanum 10,69 sek. Hún fékk silfurverðlaun í 60m hlaupi á tímanum 8,84 sek, í langstökki með 4,10 m og  í 800m hlaupi á 2:48,97 mín og að lokum vann hún til bronsverðlauna í hástökki með 1,35 m. Guðrún Heiða Bjarnadóttir fékk gullverðlaun í 60m hlaupi er hún kom fyrst í mark á tímanum 8,73 sek ogí  langstökki þegar hún stökk 4,56 m. Thelma Björk Einarsdóttir vann til silfurverðlauna í 60m grindahlaupi á 11,21 sek, í hástökki með 1,45 m og í kúluvarpi þegar hún kastaði kúlunni 10,76 m. Hún vann síðan til bronsverðlauna í langstökki þegar hún stökk 3,98 m. Hermann Snorri Hoffritz sigraði 60m hlaup á tímanum 8,69 sek og langstökk með 4,25 m. Hann vann til silfurverðlauna í hástökki með 1,35 m og bronsverðlauna í kúluvarpi með 10,34 m.  Ásgeir Karl Valdimarsson fékk bronsverðlaun  í langstökki með 4,06 m.

Efri mynd: Sigurlið Selfoss á aldursflokkamóti HSK 11-14 ára.
Neðri mynd: Dagný Lísa, Halldóra Ósk og Andrea Vigdís komust á pall í 60m hlaupi telpna, 13 ára.

SG


Á nćstunni


Brúarhlaup Selfoss 2010 - upplýsingar

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta