Beint á leiđarkerfi vefsins

Frálsíţróttir

Frálsíţróttir - RSS

26.1.2010 | Frálsíţróttir

Ţórhildur Helga og Fjóla Signý međ ţrenn gullverđlaun á Hérađsmót HSK

HSK_mót_jan10_200mHéraðsmót HSK í frjálsum íþróttum fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík þriðjudagskvöldin 12. og 19. janúar s.l. Lið Umf. Selfoss sigraði heildarstigakeppnina með 133 stig, en komu Laugdælir fast á hæla þeirra með 123,5 stig.

Þórhildur Helga Guðjónsdóttir stóð sig mjög vel á mótinu, hún hlaut gullverðlaun í þremur greinum, 200m hlaupi á 26,78 sek, 60m hlaupi á 8,23 sek og í 800m hlaupi þegar hún kom fyrst í mark á tímanum 2;40,3 mín. Hún krækti sér síðan í bronsverðlaun í langstökki með 4,58 m og í þrístökki með 9,31 m löngu stökki. 
Fjóla Signý Hannesdóttir
keppti eingöngu seinni dag Héraðsmótsins og stóð sig mjög vel. Hún sigraði í þremur greinum, 60m grindahlaupi á tímanum 9,33 sek, í þrístökki með 10,84 m stökki og í stangarstökki þegar hún stökk kvenna hæst eða 2,20 m. Fjóla Signý varð síðan önnur í 200m hlaupi á tímanum 27,22 sek.
Andrea Sól Marteinsdóttir, sem er aðeins 13 ára gömul, varð héraðsmeistari í langstökki þegar hún stórbætti sinn besta árangur og stökk 4,67 m og hún krækti sér einnig í silfurverðlaun í 60m hlaupi á tímanum 8,86 sek. 
Héraðsm_HSK_jan10_4x200Ágústa Tryggvadóttir gat eingöngu tekið þátt í kúluvarpi vegna þeirra meiðsla sem hún varð fyrir í haust og sigraði hún hana af miklu öryggi með 11,30 m löngu kasti.
Anna Pálsdóttir krækti sér í silfurverðlaun í kúluvarpi þegar hún bætti sinn besta árangur um 6 cm og kastaði 10,18 m og hún vippaði sér yfir 1,40 m í hástökki og vann til bronsverðlauna.
Guðrún Heiða Bjarnadóttir, 13 ára, varð í öðru sæti í langstökki þegar hún stökk 4,66 m.
Eyrún Halla Haraldsdóttir kastaði kúlunni 9,41 m og varð í þriðja sæti og bætti sinn besta árangur um 24 cm.
Sólveig Helga Guðjónsdóttir, 13 ára, lenti í 3. sæti í 200m hlaupi þegar hún bætti sinn besta árangur um 26 brot þegar hún hljóp á tímanum 28,24 sek.
Einar Ingi Jónsson keppti á sínu fyrsta frjálsíþróttamóti og hlaut silfur að launum fyrir að hlaupa 800m á tímanum 2:27,14 mín.
Ágúst Þór Guðnason varð í 3. sæti í sama hlaupi á tímanum 2:38,46 mín.
Sveit Selfoss sigraði örugglega í 4x200m hlaupi á tímanum 1:56,47 mín, en sveitina skipuðu þær Þórhildur Helga, Fjóla Signý, Sólveig Helga og Andrea Sól.


Á nćstunni


Brúarhlaup Selfoss 2010 - upplýsingar

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta