Beint á leiđarkerfi vefsins

Frálsíţróttir

Frálsíţróttir - RSS

26.1.2010 | Frálsíţróttir

Andrea Sól og Thelma Björk međ met á Stórmóti ÍR

Stórmót ÍR fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Reykjavík helgina 23.-24. janúar sl. Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss skráði 46 keppendur til leiks, þar af voru tvö 10 manna lið sem tóku þátt í þrautabrautinni. Keppendur stóðu sig mjög vel og uppskáru 9 gullverðlaun, 8 silfurverðlaun og 3 bronsverðlaun. Að auki voru sett þrjú Selfossmet og eitt HSK-met.

Stórmót_ÍR_jan10_50Harpa Svansdóttir, 11 ára , stóð sig frábærlega en hún vann til þrennra gullverðlauna og tveggja silfurverðlauna. Hún sigraði í hástökki með bætingu og 1,22 m, í langstökki með 3,92 m og í 60m grindahlaupi á tímanum 12,72 sek. Hún varð önnur í 60m hlaupi á tímanum 9,61 sek og í 800m hlaupi á tímanum 3:00,8 mín.
Halla María Magnúsdóttir, sem er einnig 11 ára, stóð sig mjög vel og vann til tveggja gullverðlauna, í 60m hlaupi er hún bætti sinn besta tíma og kom í mark á 9,56 sek og í kúluvarpi þegar hún þeytti henni 6,86 m.  Hún varð síðan í 2.-3. sæti í hástökki þegar hún stökk yfir 1,12 m.
Thelma Björk Einarsdóttir, 14 ára, sigraði í kúluvarpi þegar hún kastaði 11,05 m og bætti Selfossmetið um 4 cm í flokki 13-14 ára.
Andrea Lind Guðmundsdóttir, 13 ára, sigraði í stangarstökki þegar hún stökk 1,92 m í fyrsta skipti sem hún stekkur stangarstökk.
Teitur Örn Einarsson, 12 ára, sigraði kúluvarp með 10,67 m löngu kasti.
Dagný Lísa Davíðsdóttir, 13 ára, vann til silfurverðlauna í 200m hlaupi með tímann 30,94 sek og í 800m hlaupi þegar hún hljóp á 2:42,32 mín. Hún vann síðan til bronsverðlauna í 60m hlaupi með tímann 9,05 sek.
Sólveig Helga Guðjónsdóttir, 14 ára, vann til tveggja silfurverðlauna. Hún bætti sinn besta árangur í 60m hlaupi er hún kom í mark á 8.45 sek og hún bætti sig einnig í 200m hlaupi þegar hún kom önnur í mark á tímanum 28,02 sek.
Andrea Vigdís Victorsdóttir, 13 ára, bætti sinn besta árangur í hástökki um 2 cm þegar hún stökk 1,42 m og hlaut silfurverðlaun að launum.
Þórhildur Helga Guðjónsdóttir hlaut silfurverðlaun þegar hún kom önnur í mark í 60m hlaupi í kvennaflokki á tímanum 8,20 sek.
Andrea Sól Marteinsdóttir, 14 ára, varð í 3. sæti í kúluvarpi með 10,14 m. Þá setti hún HSK- og Selfossmet í 800m hlaupi í flokki 13-14 ára þegar hún hljóp vegalengdina á tímanum 2:37,28 mín og bætti fyrra metið um 0.1 sek og hún setti einnig Selfossmet í 60m grindahlaupi þegar hún hljóp vegalengdina á 10,27 sek og bætti fyrra metið um 0,42 sek.
Franziska Jóney Pálsdóttir, 16 ára, hlaut bronsverðlaun í kúluvarpi er hún kastaði 10,24 m.

Efsta mynd: Harpa Svansdóttir og Halla María Magnúsdóttir á verðlaunapalli.
Neðri myndir: T.v. Keppendur þrautabrautar fá afhent verðlaun. T.h. Keppendur í þrautabraut ásamt þjálfurum, þeim Jóhönnu Bríeti Helgadóttur og Degi Fannari Magnússyni.

Stórmót_ÍR_jan10_63 Stórmót_ÍR_jan10_67


Á nćstunni


Brúarhlaup Selfoss 2010 - upplýsingar

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta