Beint á leiđarkerfi vefsins

Frálsíţróttir

Frálsíţróttir - RSS

2.2.2010 | Frálsíţróttir

8 gull, 9 silfur og 6 bronsverđlaun á MÍ 15-22 ára

MI_jan2010_028Síðastliðna helgi fór fram Meistaramót Íslands í unglingaflokkum. Sameiginlegt lið HSK og Selfoss gerði góða hluti á mótinu. 25 keppendur voru af Suðurlandinu í ár miðað við 20 í fyrra, sem er mjög jákvætt enda frjálsar í sókn á svæðinu.

Alls van lið HSK-SELFOSS 8 gull, 9 silfur og 6 brons og setti 8 HSK-met. Í heildina varð liðið í 3. sæti í stigakeppni milli félaga með 153 stig sem er mun betri árangur en í fyrra. Í einstökum flokkum þá vann HSK-SELFOSS sveinaflokkinn í stigakeppninni og eru því Íslandsmeistarar í sveinaflokki innanhúss 2010.

Góður árangur náðist í mörgum greinum og mörg verðlaun komu í hús. Jakob Alf Arnarsson frá Laugdælum stóð sig mjög vel þessa helgi. Hann keppti í 7 greinum og bætti sig í þeim öllum. Hann vann til þriggja Íslandsmeistaratitla, setti 3 HSK-met og var að öðrum ólöstuðum maður helgarinnar. Hann keppir í sveinaflokki 15-16 ára. Jakob sigraði í langstökki, stökk 5,81m. og bætti sig um 24cm., í þrístökki með 11,97m. og bætti sig um 77cm. og svo í 4x200m. boðhlaupi á nýju HSK-meti 1:42,82mín. Með honum í sveitinni voru Guðmundur Helgi Eggertsson og Ástþór Hermannsson báðir frá Dímon og svo Hafþór Ragnarsson frá Umf. Hrunamanna. Þá varð Jakob í 2. sæti í 200m. hlaupi á stórbætingu og HSK-meti í sveina- og drengjaflokki , 24,33sek., átti sjálfur gamla metið 25,20sek., í 60m. hlaupi á 7,54 sek., átti áður 7,71sek. Þá varð hann 3. í 60m. grindahlaupi á 9,33sek. sem er góð bæting en hann átti áður 9,81. Félagi Jakobs frá Laugdælum Jóhann Erlingsson kom sá og sigraði í kúluvarpinu í sveinaflokknum með því að þeyta kúlunni 14,80m. sem er 1,20m. bæting. Hafþór Ragnarsson frá Umf. Hrunamanna náði svo 3. sæti í langstökkinu þegar hann stökk 5,58m. og bætti sig um 11cm. En HSK-SELFOSS sveinar voru mjög sterkir á mótinu enda unnu þeir stigakeppnina í sínum flokki.

Bræðurnir Anton Kári og Aron Kárasynir, einnig frá Laugarvatni, mættu mjög uppstökkir í hástökkskeppnina. Anton Kári sigraði í drengjaflokki 17-18 ára með 5 cm. bætingu er hann stökk 1,88m. Aron bróðir hans tók svo gullið í ungkarlaflokki 19-22ára er hann vippaði sér yfir 1,92m., mikið hástökkvaraefni á ferð. Enn einn Laugvetningurinn, Hreinn Heiðar Jóhannsson tók svo bronsið í dengjaflokknum með stökki upp á 1,82m. Þá keppti Ingólfur Guðjónsson frá Laugdælum í kúluvarpi ungkarla og varð annar með 13,04m. kasti en þess má geta að Ingólfur kastaði 11,08 á sama móti í fyrra sem sýnir miklar framfarir hjá honum og það bara á einu ári.

Svo við höldum okkur áfram við Laugarvatn að þá varð Agnes Erlingsdóttir Laugdælum dugleg um helgina. Hún keppti í 4 greinum í ungkvennaflokki, bætti sinn persónulega árangur í þremur þeirra og setti þrjú HSK-met. Hún hljóp 800m. hlaup á 2;25,46mín. sem er nýtt HSK-met í ungkvennaflokki (2:28,86mín.) og svo endurtók hún leikinn í 400m. hlaupinu er hún bætti sitt eigið HSK-met úr 63,28sek. í 62,11sek í ungkvenna- og kvennaflokki. Agnes tók svo silfur í 60m. grindahlaupi á persónulegri bætingu.

Fjóla Signý Hannesdóttir, Umf. Selfoss, krækti sér í tvenn gullverðlaun á mótinu, hún sigraði í þrístökki, stökk 10.83m og bætti sig um 18 cm og í 60m grindahlaupi kom hún fyrst í mark á tímanum 9.33s. Silfurverðlaunum náði hún í langstökki þegar hún sveif 4.99m og í hástökki vann hún til bronsverðlauna með 1.58m og að lokum hlaut hún bronsverðlaun fyrir að hlaupa 200m á 26.98s. Þórhildur Helga Guðjónsdóttir, Umf. Selfoss hlaut tvenn silfurverðlaun. Hún hljóp 60m á 8,15s og 200m á 26,75s.  Franziska Jóney Pálsdóttir Umf. Selfoss bætti sinn besta árangur í langstökki um 4cm þegar hún stökk 4.77m og hún bætti sig einnig um 5cm í þrístökki er hún endaði í 4.sæti með 9.71m. Eyrún Halla Haraldsdóttir, Umf. Selfoss, bætti sig um 49cm í kúlu og kastaði 9.80m.

Kristinn Þór Kristinsson, Umf. Samhyggð, hljóp til silfurverðlauna í 1500m hlaupi ungkarla er hann kom í mark á tímanum 4:10,31m sem er nýtt HSK-met í ungkarla- og karlaflokki og bætti hann fyrra met Gunnlaugs Karlssonar um 26 sek. Eva Lind Elíasdóttir, Umf. Þór, vann til bronsverðlauna í kúluvarpi meyja þegar hún þeytti kúlunni 10.19m.

Bjarnir Már Ólafsson úr Umf. Vöku keppti í mörgum greinum í ungkarlaflokki og stóð sig með ágætum. Hann keppti meðal annars í einni af sínum sterkustu greinum, þrístökki þar sem hann nældi sér í silfurverðlaun, stökk 13,01m., efnilegur stökkvari hér á ferð. Aðrir keppendur frá HSK-SELFOSS stóðu sig einnig vel og voru mikilvægir í stigasöfnun fyrir liðið.

Þetta var skemmtilegur hópur frá HSK-SELFOSS sem keppti þessa helgi og gaman að sjá jákvæðnina og samheldnina í liðinu. Þetta veit bara á gott og er fínt veganesti fyrir komandi mót og misseri. En næsta mót er Meistaramót Íslands fullorðinna í Laugardalshöll um næstu helgi.

Með kv. Ólafur Guðmundsson verkefnisstjóri HSK í frjálsum.

MI_jan2010_003 MI_jan2010_018

MI_jan2010_007 MI_jan2010_026


Á nćstunni


Brúarhlaup Selfoss 2010 - upplýsingar

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta