Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum í fullorðinsflokki fór fram helgina 6.-7. febrúar í Laugardalshöllinni í Reykjavík. HSK/Selfoss sendi vaska sveit til leiks sem samanstóð af 16 einstaklingum. Ágætur árangur náðist, m.a. 8 verðlaun, 5 HSK-met og nokkrar persónulegar bætingar.
Fjóla Signý Hannesdóttir varð í 2.-3. sæti í hástökki með 1,61m og hljóp til bronsverðlauna í 60m grindahlaupi er hún kom í mark á tímanum 9.20 sek, í undanrásum bætti hún sig með tímanum 8.17 sek. Hún keppti í 400m hlaupi og hljóp það mjög vel, kom í mark á nýju HSK-meti í ungkvenna og kvennaflokki, 59,60 sek og bætti hún þar vikugamalt met Agnesar Erlingsdóttur um 3 sekúndur.
Þórhildur Helga Guðjónsdóttir varð í 3. sæti í 60m hlaupi á 8,19 sek (8,18 í undanrásum). Í 200m hlaupi var hún örstutt frá HSK-meti sínu (26,66 sek) er hún hljóp á 26,68 sek og í 400m hlaupi bætti hún sig um 5 sekúndur er hún kom í mark á tímanum 63,05 sek. Að lokum keppti hún í langstökki án atrennu og varð í öðru sæti með 2.44 m.
Ágústa Tryggvadóttir Selfossi varð 3. í kúluvarpi með 11,60 m.
Ólafur Guðmundsson Laugdælum náði í tvenn bronsverðlaun, varð 3. í þrístökki með stökk upp á 13,25 m og 3. í 60m grindahlaupi á 8,73 sek.
Kvennasveit HSK varð í 3. sæti í 4x400m hlaupi á 4:17,90 mín sem er nýtt HSK met í kvenna- og ungkvennaflokki. Gamla metið er síðan 2007; 4:18,41 mín. Þær Þórhildur Helga , Sólveig Helga og Fjóla Signý allar frá Selfossi og Agnes Erlingsdóttir frá Laugdælum skipuðu sveitina.
Haraldur Einarsson Vöku var nálægt verðlaunum, en hann er í stöðugri framför í spretthlaupum þessa dagana. Hann hljóp 60m hlaupið mjög vel og bætti sig um 1/100 hljóp á 7,31 sek og varð í 6. sæti. Hann hljóp 400m hlaupið mjög vel og var ekki langt frá sínum besta árangri sem hann náði á Stórmóti ÍR fyrir skömu, 51,26 sek, var núna á 51,67 sek. Halli rak svo endahnútinn á spretthlaupsþátttöku sína með því að bæta sig persónulega í 200m hlaupi á 23,15 sek og setja nýtt HSK met en hann átti sjálfur gamla metið 23,39 sek.
Silja Runólfsdóttir Laugælum bætti sig í 60m hlaupi á 8,77 sek úr 8,99 sek.
Þá keppti Sólveig Helga Guðjónsdóttir Selfossi, 13 ára gömul, í 200m hlaupi á persónulegri bætingu 27,89 sek. (átti 28,04 sek) Gott hjá henni.
Kristinn Þór Kristinsson Samhygð, var rétt við sinn besta árangur í 800m hlaupinu 1;57,29 mín og varð í 5. sæti. Aðrir stóðu vel fyrir sínu og náðu í dýrmæt stig fyrir félagið inn í stigakeppni MÍ.
HSK/Selfoss varð í 4. sæti í heildarstigakeppni mótsins með 13.396 stig, rétt á eftir FH. ÍR sigraði stigakeppnina.
