Selfyssingar eru stórhuga fyrir komandi knattspyrnutímabil, en þeir leika eins og flestir vita í fyrsta sinn í efstu deild. Í næstu viku verða hafnar framkvæmdir við 700 sæta stúku við aðalvöllinn við Engjaveg. Nýja stúkan verður um 50 metra löng og með 10 sætaröðum. Í fyrsta áfanga verður stúkan steypt upp og 700 sæti sett í hana, blaðamannaaðstaða verður fullbúin ásamt salernisaðstöðu fyrir áhorfendur. Í öðrum áfanga verður byggt þak yfir stúkuna, auk búningsherbergja sem verða undir stúkunni, ásamt dómaraherbergi, skrifstofu- og fundaraðstöðu og herbergi fyrir lyfjapróf og læknisaðstöðu. Tómas Ellert Tómasson, fyrrum leikmaður Selfyssinga og annar eiganda Verkfræðistofu Árborgar á Selfossi, sá um hönnun stúkunnar.
Stúkan verður staðsett vestan megin við aðalvöllinn, á milli aðalvallar og gervigrasvallar og mun því öll innri aðstaða nýtast fyrir báða velli. Aðalvöllurinn verður eingöngu knattspyrnuvöllur því hlaupabrautir eru við frjálsíþróttavöllinn sem er fyrir sunnan aðalvöllinn. Fljótlega verður farið í útboð fyrir uppsteypu stúkunnar ásamt uppbyggingu frjálsíþróttavallarins. Þar verður boðin út vinna við frárennsli, malbikun og yfirlagningu gerviefnis á hlaupabrautir.
Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir á íþróttavallarsvæði Selfoss síðastliðin ár og verður þegar líða fer á sumarið hægt að spila á fimm stórum knattspyrnuvöllum. Aðalvöllurinn var tekinn upp síðastliðið vor og unninn upp samkvæmt ýtrustu kröfum KSÍ um framtíðarknattspyrnuvelli. Á frjálsíþróttavellium er einnig sams konar grasvöllur. Ákveðið var að sá í vellina, en það er talið mun betra varðandi framtíðargæði þeirra, þó það taki oftast lengri tíma að taka þá í gagnið.
Áætlað er að knattspyrnuvöllurinn verði tilbúinn um mitt sumar eða um svipað leiti og stúkan verður tilbúin. Fram að þeim tíma mun Selfoss spila á gervigrasinu þar sem bráðabirgðastúku verður komið upp. Blaðamannaaðstaðan verður þó tilbúin fyrir fyrsta leik í deild, en hún mun nýtast fyrir báða velli. Ánægja og skilningur ríkir á meðal allra aðila sem að málinu koma, með að leika fyrstu leiki tímabilsins á gervigrasvellinum. Við gervigrasvöllinn er aðgengi eins og best verður á kosið. Stefnt er að því að frjálsíþróttavöllurinn verði tilbúinn um mitt sumar.
