Beint á leiđarkerfi vefsins

Frálsíţróttir

Frálsíţróttir - RSS

22.3.2010 | Frálsíţróttir

Öflugt starf frjálsíţróttadeildar

Aðalfundur frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss var haldinn í gærkvöldi. Í vandaðri ársskýrslu sem var lögð fram á fundinum kom fram að starfið hefur verið mjög öflugt á síðasta ári. Fleiri börn og unglingar æfa nú frjálsar á Selfossi en verið hefur í mörg ár og greinilegt að þjálfarar deildarinnar eru að vinna gott starf. Fjárhagsleg staða deildarinnar er góð og skilaði hún jákvæðri niðurstöðu. Munar þar mikið um hefðbundnar fjáraflanir eins og Brúarhlaupið, 17. júní kaffisöluna og bingóin. Þá naut deildin góðra styrkja frá Sveitarfélaginu og einstaklingum.

Á fundinum var kosin ný stjórn, en hana skipa Helgi S. Haraldsson formaður, Páll Leó Jónsson gjaldkeri, Sólveig Guðjónsdóttir gjaldkeri og fjórir meðstjórnendur, þau Þuríður Ingvarsdóttir, Íris Sigrid Guðmundsdóttir, Guðjón Sigfússon og Anna Pálsdóttir sem kemur inn sem fulltrúi iðkenda.

Á aðalfundinum voru veittar eftirfarandi viðurkenningar:
Framfarabikar: Andrea Vigdís Victorsdóttir
Afreksmaður 14 ára og yngri: Thelma Björk Einarsdóttir
Afreksmaður meistaraflokks: Ágústa Tryggvadóttir
Framfarabikar meistaraflokks: Fjóla Signý Hannesdóttir
Besta mæting 11-14 ára sumarið 2009: Teitur Örn Einarsson
Besta mæting 10 ára og yngri sumarið 2009: Harpa Svansdóttir

Frjálsíþróttafólk lítur björtum augum til framtíðarinnar, ekki síst í ljósi þess að nú hyllir loks undir nýjan frjálsíþróttavöll á Selfossi. Áformað er að taka hann í notkun í sumar.


Á nćstunni

11.2.2012 | Frjálsíţróttir
18.2.2012 | Frjálsíţróttir
25.2.2012 | Frjálsíţróttir
3.3.2012 | Frjálsíţróttir
13.3.2012 | Frjálsíţróttir
16.3.2012 | Frjálsíţróttir


Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta