Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss ætlar að halda ball fyrir börn í 4.-6. bekk í Zelsíus föstudaginn 9. apríl kl. 17:00-19:00. Meðlimir frjálsíþróttadeildar munu halda uppi fjörinu, en það kostar 500 kr. inn. Sjoppa verður á staðnum.
Frjálsíþróttadeild mun svo halda ball fyrir unglinga fædda 94-97 í Zelsíus föstudaginn 9. apríl kl. 20:00-23:00. D.J. Óli Geir mun skemmta hópnum. Það kostar 1.000 kr. inn. Sjoppa verður á staðnum.
Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss



