Beint á leiđarkerfi vefsins

Frálsíţróttir

Frálsíţróttir - RSS

16.6.2010 | Frálsíţróttir

Nú mćta allar frjálsíţróttakempur - ungar sem aldnar - á Laugarvatn

Nú líður að Héraðsmóti HSK fullorðinna í frjálsum, en það verður haldið á Laugarvatni þriðjudaginn 22. og miðvikudaginn 23. júní n.k. eins og flestir ættu nú að vita. Þetta er 100 ára afmælismót HSK og þar af leiðandi mjög merkur áfangi. Gamlir keppendur HSK eru sérstaklega hvattir til að mæta og fagna þessum tímamótum. 

Eru félagar innan HSK hvattir til að mæta sem flestir til keppni og hvetja aðra „gamla" keppendur HSK (sem kepptu hér áður) og unga sem aldna til að mæta og taka þátt í þessum tímamótum með HSK. Fólk getur hvort sem er tekið þátt í keppninni eða starfað eða afhent verðlaun. Nú eða bara til að horfa á skemmtilegt mót. Nú þegar er búið að panta gott veður. Svo verður að sjálfsögðu afmæliskaka í lokin sem allir fá að smakka á sem koma á mótið.

„Gamlir" keppendur HSK eru hvattir sérstaklega til að mæta á Laugarvatn mótsdagana, sína sig og sjá aðra og fagna þessum merka áfanga okkar allra.

Eru allir beðnir að láta þetta berast sem víðast

Skráningarfrestur er til miðnættis sunnudagsins 20. kúní n.k.

Með kv. f.h. frjálsíþróttaráðs HSK
Óli Guðm. verkefnisstjóri HSK í frjálsum.
GSM 867-7755

Minnt er á afmælishátíðina sjálfa þ.e. 100 ára afmælishátíð HSK sem verðu laugardaginn 19. júní n.k.


Á nćstunni

11.2.2012 | Frjálsíţróttir
18.2.2012 | Frjálsíţróttir
25.2.2012 | Frjálsíţróttir
3.3.2012 | Frjálsíţróttir
13.3.2012 | Frjálsíţróttir
16.3.2012 | Frjálsíţróttir


Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta