21. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ á Selfossi fer fram á sjálfan Kvennréttindadaginn 19. júní. Í ár er yfirskrift hlaupsins “ Konur eru konum bestar” og er unnið í samstarfi við Kvenfélagasamband Íslands sem fagnar 80 ára afmæli sínu á árinu.
Um þúsundir kvenna á öllum aldri starfa í undir merkjum Kvenfélagasambandsins og vinna eftir markmið þess en það er að stuðla að framfaramálum er varða velferð barna, kvenna og heimila í landinu og standa vörð um hag þeirra. Jafnframt að efla félagsleg tengsl og samvinnu kvenna, hvetja konur til áhrifa í þjóðfélaginu, veita kvenfélögunum stuðning og fræðslu og styðja mál er efla vináttu og frið meðal manna og þjóða nær og fjær. Kvenfélagasambndið starfar með ýmsum félögum og samtökum er láta sig varða markmið og hagsmunamál þess. Það er því við hæfi að tileinka hlaupið í ár krafti og elju íslenskra kvenfélaga.
Kvenfélagasamband Íslands, KÍ, var stofnað þann 1. febrúar 1930. Markmiðið með stofnun Kvenfélagasambandsins var að sameina kvenfélög landsins í eina heild. Innan KÍ eru 18 héraðs- og svæðasambönd með um 200 kvenfélög innanborðs. Fyrir utan fjölmörg samfélagsleg og mannúðarverkefni hefur Kvenfélagasambandið gefið út tímaritið Húsfreyjuna frá árinu 1949. Tímaritið er þar með eitt elsta útgefna tímarit landsins. KÍ rekur einnig Leiðbeiningarstöð heimilanna þar sem fólk getur leitað ráða í sambandi við allt mögulegt sem snertir rekstur heimilis og fjölskyldu.
Nánari upplýsingar um Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ má finna með því að smella hér eða á sjova.is, einnig er Kvennahlaupið á Face book.
Selfoss
Hlaupið er frá Byko í Langholti kl. 13:00.
Vegalengdir í boði eru: 2,2 km - 4,8 km og 5,7 km.
Forsala bola verður í Krónunni 16. júní kl. 14-18, 18. júní kl. 14-18 og í Byko á hlaupadaginn kl. 10-13.
Frítt er í sund í Sundhöll Selfoss í boði Árborgar.
Einnig verða grillaðar pylsur í boði BYKO eftir hlaup.



