Beint á leiđarkerfi vefsins

Frálsíţróttir

Frálsíţróttir - RSS

18.6.2010 | Frálsíţróttir

Glćsilegur árangur HSK/SELFOSS á MÍ 11 - 14 ára

Meistaramót Íslands 11 -14 ára fór fram á Kópavogsvelli helgina 12.-13.júní  sl. HSK/SELFOSS  sendi 40 keppendur til leiks í sameiginlegu liði og stóðu krakkarnir sig mjög vel. Þau lentu í 2. sæti í heildarstigakeppni mótsins með 522,7 stig, aðeins 17,6 stigum frá ÍR sem sigraði með 540,3 stig.

Lengi vel leiddu Sunnlendingar stigakeppnina en vantaði herslumuninn á að sigra. Þetta er met stigaskor hjá HSK/SELFOSS liðinu, en til að mynda  í vetur á MÍ innanhús, þar sem HSK/SELFOSS stóð sig mjög vel, fékk það 427 stig. FH varð svo í 3. sæti með 464,3 stig. Lið HSK/SELFOSS sigraði stigakeppnina í flokkum 14 ára telpna og 11 ára stelpna, lenti í 2. sæti hjá 13 ára telpum og í 3. sæti hjá 11 ára strákum. Mjög leiðinlegt veður var fyrri keppnisdaginn, rok og rigning, en keppendur og þjálfarar hjálpuðust að við að hvetja hvert annað áfram og stóðu krakkarnir sig frábærlega við þessar aðstæður. Mun betra veður var seinni daginn og var gaman að sjá keppnisgleðina í krökkunum enda  uppskera helgarinnar frábær.

Liðið vann til 15 Íslandsmeistaratitla, 11 silfurverðlauna og 8 bronsverðlauna auk þess sem 14 ára telpur settu nýtt HSK met í 4x100m boðhlaupi er þær hlupu á tímanum 53,61 mín. Sveitina skipuðu þær, Andrea Sól Marteinsdóttir, Sólveig Helga Guðjónsdóttir Guðrún Heiða Bjarnadóttir, allar í Umf. Selfoss og Elínborg Anna Jóhannsdóttir Laugdælum.  

Í flokkum 11 ára varð Halla María Magnúsdóttir fjórfaldur Íslandsmeistari og Harpa Svansdóttir þrefaldur Íslandsmeistari en þær eru báðar í Umf. Selfoss. Halla kastaði 7,19 m í kúluvarpi, hljóp 60m á 9,16 sek og kastaði spjóti 19,14 m. Auk þess að verða 2. í langstökki með 4,14 m. Harpa sigraði langstökk með 4,27 m og  og hljóp 800 m á 2:52,32 mín sem er bæting. Harpa náði að auki í silfurverðlaun í spjótkasti með 17,30 m og í 3. í hástökki með 1,10 m. Þær stöllur ásamt þeim  Ingibjörgu Andreu Laugdælum og Sunnu Skeggjadóttur Baldri  sigruðu í 4x100 m boðhlaupi. Hjá strákunum var Styrmir Dan Steinunnarson Þór öflugur, hann varð í 2. sæti í spjótkasti með 30,19 m, í 3. sæti í kúlu með 8,48 m auk þessa að vera mjög ofarlega í öðrum greinum. Hann ásamt Baldri úr sama félagi, Loga Long og Úlfi Þór úr Selfoss sigruðu í 4x100 m boðhlaupi á tímanum 70,03 sek.

Í strákaflokki 12 ára sigraði Jörundur Snær Hjartarson frá Selfossi kúluvarpið með 10,80 m kasti. Teitur Örn Einarsson var svo í 2. sæti í kúlunni rétt á eftir með 10,71 m. Hann tók svo silfur í spjótkasti með 30,69 m.

Í flokkum 13 ára var Sigþór Helgason Selfossi að gera mjög góða hluti. Hann varð tvöfaldur Íslandsmeistari, í kúluvarpi með 10,67 m og spjótkasti með 40,18 m sem er veruleg bæting. Hann tók svo silfur í langstökki með stökk upp á 4,70 m Kristófer Rúnar Ólafsson Laugdælum varð í 3. sæti í spjótkastinu með 35,93 m aðeins einum cm á eftir silfursætinu. Telpurnar stóðu sig einnig vel. Dagný Lísa Davíðsdóttir Selfoss hljóp frábært 800 m hlaup,bætti sig um 10 sek, hljóp á 2:30,91 mín. og tók 2. sæti, Dagný varð svo í 3. sæti í 80 m grindahlaupi á 14,75 sek. Guðrún Helga Ingvarsdóttir úr Vöku hreppti 3. sæti í spjótkasti með 27,72 m kasti. 13ára telpurnar gerð sér svo lítið fyrir og tóku silfur í 4x100 m boðhlaupinu á tímanum 56,90 sek. Sveitina skipuðu Andrea Vigdís, Dagný Lísa, Halldóra Ósk og Andrea Lind allar frá Selfossi.

Í flokkum 14 ára þá tóku telpurnar mörg verðlaunu unnu sinn flokk nokkuð örugglega. Andrea Sól Marteinsdóttir Selfossi varð  tvöfaldur meistari, varpaði kúlunni 10,96 m og kastaði spjótinu 31,53 sek. Hún varð svo önnur í 800 á 2:40,81 mín. Sólveig Helga Guðjónsdóttir frá Selfossi kom fyrst í mark í 100 m hlaupi á 13,68 sek. en 2/100 á eftir henni varð Guðrún Heiða Bjarnadóttir Selfossi. Guðrún Heiða varð svo 3. í langstökki með 4,21 m. Thelma Björk Einarsdóttir skilaði sínu og stóð sig vel  eins og venjulega, Hún varð 2. í spjótkasti með kast upp á 29,34 m og 3. í kúluvarpi varpaði 10,25 m. 14 ára telpurnar kórónuðu svo gott gengi með því að sigra örugglega 4x100 m boðhlaupið á nýju HSK meti 53,61 sek (gamla metið var 54,6 sek frá 1984). Piltarnir tóku svo brons í 4x100 m boðhlaupinu á tímanum 60,27 sek. Frábær uppskera að loknu góðu móti í Kópavogi og ljóst að ekki þarf að kvíða framtíðinni í frjálsum á Suðurlandi.

 Með frjálsíþróttakveðju,
 Ólafur Guðmundsson verkefnisstjóri HSK í frjálsum.


Á nćstunni

11.2.2012 | Frjálsíţróttir
18.2.2012 | Frjálsíţróttir
25.2.2012 | Frjálsíţróttir
3.3.2012 | Frjálsíţróttir
13.3.2012 | Frjálsíţróttir
16.3.2012 | Frjálsíţróttir


Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta