Dagana 2.-4. júlí fóru átta krakkar á aldrinum 12-14 ára og kepptu í frjálsum íþróttum á Ullevi-leikvanginum í Gautaborg. Gautaborgarleikarnir eru opið mót fyrir 12 ára og eldri. Mótið er risastórt þriggja daga mót með 3.200 keppendum víða að úr heiminum og ljóst að krakkarnir koma reynslunni ríkari heim. Okkar krakkar stóðu sig rosalega vel og voru í alla staði til fyrirmyndar. Þrjú Selfoss- og HSK-met voru bætt þessa daga og fimm ný met skráð (ekki verið keppt í greinunum áður í þessum flokkum).
Thelma Björk Einarsdóttir, 14 ára, bætti sig þegar hún setti glæsilegt Selfoss- og HSK-met í kúluvarpi 11,67 m, en gamla metið var 11,11 m. Hún varð í 4. sæti aðeins 10 cm frá þriðja sætinu og 21 cm á eftir þeirri sem varð í öðru sæti.
Andrea Sól Marteinsdóttir, 14 ára, kastaði einnig lengra en gamla metið og bætti sig líka, en hún varð í 5. sæti með 11,49 m.
Guðrún Heiða Bjarnadóttir, 14 ára, stórbætti Selfoss- og HSK-metið í 300 m hlaupi er hún hljóp á 43,81 sek, en gamla metið var 47,4 sek. Hún bætti sig einnig í 100 m hlaupi er hún hljóp á 13,48 sek og í 80 m grind á 14,06 sek, en HSK-metið í grindinni er 14,00 sek. Hún komst einnig í átta manna úrslit í langstökki af 108 keppendum er hún stökk 5,09 m og er það mjög gott.
Andrea Vigdís Victorsdóttir, 13 ára, fékk tvö ný met skráð, í 60 grind sem hún hljóp á 12,45 sek og í 600 m hlaupi á 1:51,63 mín. Hún bætti sig einnig í spjóti með 23,31 m, í þrístökki með 8,89 m og í 200 m hlaupi á 29,56 sek.
Sigþór Helgason, 13 ára, stórbætti sig í hástökki úr 1,45 m í 1,61 m og endaði í 4. sæti með sömu hæð og sá sem var í 3. sæti. Hann varð svo 5. í þrístökki og bætti sig um rúmann metra og stökk 10,80 m. Í spjótinu bætti hann sig líka og endaði í 6. sæti með 43,91 m. Í 60 m grind fékk hann skráð nýtt met er hann hljóp á 10,41 sek.
Teitur Örn Einarsson, 12 ára, setti Selfoss- og HSK-met í 600 m hlaupi er hann varð áttundi á tímanum 1:48,64 mín, en gamla metið var 1:53,38 mín. Hann varð 7. í spjótkasti með 31,24 m og 8. í kúluvarpi með 8,29 m (3 kg). Í 60 grind var hann einu sæti frá úrslitum á 12,20 sek og nýtt met skráð. Einnig fékk hann skráð nýtt met í 80 m hlaupi en hann hljóp á 12,33 sek.
Aðrir keppendur frá okkur náðu ekki að bæta sinn árangur en stóðu sig engu að síður vel.
ÞI.



