Unglingameistaramót Íslands 15 - 22 ára:
Góður árangur HSK/Selfoss
Íslandsmeistarar í ungkvennflokki.
HSK/Selfoss lið unglinga gerði góða ferð í Hafnarfjörðinn helgina 17.-18. júlí s.l., en þar fór fram Meistarmót Íslands 15 - 22 ára í frjálsíþróttum. Þrjátíu persónulegar bætingar litu dagsins ljós og liðið rakaði saman 11 gullverðlaunum, 9 silfurverðlaunum og 7 bronsverðlaunum auk þessa að verða Íslandsmeistari í ungkvennaflokki.
Ungkvennaflokkur 19 - 22 ára:
Fjóla Signý Hannesdóttir Selfossi fór fremst í flokki í Íslandsmeistaraliði HSK/Selfoss. Hún vann 3 gull, 2 silfur og 1 brons. Hún sigraði í 400m grindahlaupi á 65,36 sek, 100m grindahlaupi á 15,26 sek og í hástökki þar sem hún var nálægt því að vippa sér yfir 1,67 m og bæta sig um 1 cm en felldi naumlega, fór 1,64 m sem er góður árangur. Þá bætti Fjóla sig í langstökki um 19 cm er hún stökk 5,49 m, 1 cm á eftir gullsætinu, hún varð 2. í þrístökki með 10,27 m og þriðja í 200m hlaupi á bætingu, 26,87 sek. en átti áður 26,96 sek. Agnes Erlingsdóttir Laugdælum varð Íslandsmeistari í 800m hlaupi á 2:26,71 mín. Anna Pálsdóttir og Eyrún Halla Haraldsdóttir frá Selfossi voru duglegar í köstunum. Byrjuðu á því að bæta sig í sleggjukasti, Anna með 29,62 m úr 27,42 m og Eyrún Halla með 23,42 m úr 22,97 m. Í kúlunni varð Anna í 3. sæti með 10,19 m en í spjótkastinu sem er sterkasta grein Önnu varð hún að láta sér linda 2. sætið með 37,19 m. Eyrún Halla náði í bronssætið í síðasta kastinu með 2 metra bætingu, 28,05 m. Í kringlunni snérist dæmið við og Eyrún Halla varð í 2. sæti með 32,51 m en Anna í því 3. með 31,15 m langt kast. Guðmunda Ólafsdóttir Vöku keppti í spjótkasti en náði ekki að bæta sinn persónulega árangur að þessu sinni og endaði hún í 4. sæti.
Ungkarlaflokkur 19 - 22 ára:
Hér var vösk sveit stökkvara, kastara og hlaupara á ferð. Bjarni Már Ólafsson Vöku stóð sig vel, hann sigraði örugglega í þrístökki með því að svífa 13,46 m og bætti sig síðan í spjótkasti um 2 metra þegar hann kastaði spjótinu 48,90 m. Aron Kárason frá Laugdælum stóð fyrir sínu, tók silfur í hástökkinu þó hann væri tölvuvert frá sínu besta og fór 1,84 m. Ingólfur Guðjónsson er efnilegur kastari úr Laugdælum, hann keppti í 3 kastgreinum og bætti sig í þeim öllum. Hann vann silfur í kúluvarpinu er hann varpaði henni 13,49 m sem er bæting um 10 cm. Hann varð síðan fjórði í sleggjukasti með bætingu upp á 18 metra, 38,67 m og í kringlu þegar hann rauf 40 m múrinn og kastaði 41,67 m. Síðastan en ekki sístan skal minnast á framgöngu Kristins Þórs Kristinssonar Samhygð. Hann bætti sig í 400m hlaupi um 4 sek er hann hjóp á 52,43 sek og endaði svo mótið á að ná sínum besta árangri utanhúss í 800m hlaupi á 1,57,39 mín og fékk bronsverðlaun að launum.
Stúlknaflokkur 17-18 ára:
Þetta var fámennur flokkur, en Þórhildur Helga Guðjónsdóttir Selfossi, eini keppandi HSK/Selfoss stóð sig vel. Hún náði ársbesta árangri sínum greinum. Í 100m hlaupi kom hún 3. í mark á 12,67 sek sem er stutt frá hennar besta árangri. Í 200m hlaupinu tók hún örugglega 2. sætið á 26,44 sek.
Drengjaflokkur 17- 18ára:
Drengirnir komu sterkir inn. Anton Kári Kárason og Hreinn Heiðar Jóhannsson báðir úr Laugdælum tóku sinn hvorn íslandsmeistartitilinn. Anton í hástökki á persónulegri bætingu er hann vippaði sér yfir 1,90 m sem er bæting um 2 cm, en Hreinn Heiðar í langstökki þegar hann stökk lengst allra, 6,40 m. Hreinn keppti síðan í kringlukasti þar sem hann bætti sig með kasti upp á 38,32 m. En Dagur Fannar Magnússon frá Selfossi var engin eftirbátur félaga sinna. Hann bætti eldgamalt HSK met í sleggjukasti drengja um 16 metra með því að kasta 47,98 m og sigra örugglega. Dagur Fannarkeppti svo í kringlukasti þar sem hann bætti sig um rúmlega 9 metra og kastaði 33,92 M. En Dagur Fannar hefur æft mjög vel í vetur og sumar sem er að skila sér í frábærum árangri.
Meyjaflokkur 15 - 16 ára:
Fjórar stelpur héldu uppi heiðri HSK/Selfoss í þessum flokki. Eva Lind Elíasdóttir frá Þorlákshöfn keppti í kúluvarpi og spjótkasti. Hún gerði sér lítið fyrir og sigraði kúluvarpið með hálfs metra bætingu, kastaði 11,56 m. Hún bætti sig síðan í spjótkasti um nákvæmlega metra, kastaði 29,42 m. Theódóra Jóna Guðnadóttir frá Dímon bætti sig í 80 grindahlaupinu og jafnaði sitt besta í stangarstökkinu með því að skella sér yfir 2,20 en þar lenti hún í 3 sæti. Heiðrún Huld Jónsdóttir spretthlaupari og stökkvari frá Dímon keppti m.a. í 200m hlaupi og bætti sig hljóp á 29,59 sek. Karen Engilbertsdóttir frá Garpi keppti síðan í 100m hlaupi og kúluvarpi og stóð sig vel.
Sveinaflokkur 15 - 16 ára:
Hér var HSK/Selfoss eð ágæta sveit þrátt fyrir að það vantaði nokkra sterka einstaklinga. Fyrstan skal telja Jóhann Erlingsson frá Laugdælum, hann fór mikinn í köstunum, keppti í þeim öllum, fjórum að tölu. Hann sigraði kúluvarpið með 6 cm bætingu, kastaði 14,86 og kringlukastið með 44.95 m langt kast og bætti sig um nokkra metra, varð síðan þriðji í spjóti, kastaði 44,98m, og annar í sleggjukasti með 34,24 m. Hvoru tveggja er persónuleg bæting, allt eru þetta verulegar bætingar. Guðmundur Kristinn Jónsson frá Selfossi keppti í spjótkasti og bætti sig um 7 metra. Hann kastaði í fyrsta skipti yfir 50 metrana og mældist kastið 50,63 m og hlaut hann silfurverðlaun að launum. Guðmundur Helgi Eggertsson frá Dímon var skráður í margar greinar. Hann meiddist fljótlega á fyrri degi og gat þvi miður ekki verið mikið með. Hann náði þó að hlaupa 100m hlaup og bæta sinn besta tíma verulega, hljóp á 12,06 sek. Hann keppti í kúluvarpi þar sem hann bætti sig úr 9,52 í 10,32 m og komst í úrslit. Ástþór Hermannsson einnig frá Dímon keppti í 6 greinum og bætti sig í fjórum þeirra. Hann hljóp 100m á 12,42 sek sem er góð bæting, kastaði kúlu 11,34 m bætti sig í hástökki er hann fór 1,65 m og hljóp síðan 200m hlaupið á 26,59 sek sem er bæting úr 27,32 m. Að lokum var það hann Hafstein Davíðsson, kastaraefni frá Hveragerði sem bætti sig í kúluvarpi um 1,5 metra, kastaði 12,28 m.
Ungkvennaboðhlaupssveit HSK/Selfoss hljóp vel 4x100m boðhlaupið. Þær fengu tímann 52,21 sek. og urðu öruggar í 2. sæti.
Í Heildarstigakeppni mótsins varð HSK/Selfoss í 5. sæti með 182 stig. ÍR sigraði mótið með 523,5 stig. HSK/Selfoss vann stigakeppnina í ungkvennaflokki með 70 stig, en FH stelpurnar komu næstar með 68 stig.



