Beint á leiđarkerfi vefsins

Frálsíţróttir

Frálsíţróttir - RSS

27.7.2010 | Frálsíţróttir

Ellefu gullverđlaun og eitt HSK-met á Akureyrarmótinu í frjálsum

Átta keppendur úr HSK/Selfoss kepptu á Akureyrarmótinu sem fram fór á Akureyri helgina 24.-25. júlí sl.  Uppskeran var svo sannarlega frábær en samtals hlaut hópurinn 11 gullverðlaun, 1 silfurverðlaun og 1 bronsverðlaun, auk þess sem eitt HSK-met féll.

Dagur_sleggjan_10Dagur Fannar Magnússon Selfossi stóð sig frábærlega þegar hann bætti eigið HSK-met í drengjaflokki  í sleggjukasti með 7,26 kg sleggju um 40 cm með því að kasta sleggjunni 41,01 m og sigra.
Hin fjölhæfa Fjóla Signý Hannesdóttir Selfossi krækti sér í þrenn gullverðlaun, hún sigraði 100m grindahlaup á tímanum 15,00 sek, langstökk með 5,33 m og hástökk þegar hún vippaði sér yfir 1,59 m.
Þórhildur Helga Guðjónsdóttir Selfossi sigraði bæði í 100m og 200m hlaupi. Hún hljóp 100m á 12,58 sek sem er undir gildandi HSK-meti hennar í stúlknameti sem er 12,62 sek, en vindur reyndist því miður aðeins yfir leyfilegum mörkum. Í 200m hlaupinu hljóp hún á sínum besta tíma á árinu þegar hún kom langfyrst í mark á tímanum 26,08 sek.
Haraldur Einarsson Vöku stóð sig mjög vel er hann sigraði bæði í 100m og 200m hlaupi. Hann kom fyrstur í mark á tímanum 11,50 sek í 100m hlaupi og á 23,31 sek í 200m hlaupinu. Að auki krækti hann sér í silfurverðlaun með því að stökkva 6,20 m í langstökki.
Agnes Erlingsdóttir Laugdælum nældi sér í tvenn gullverðlaun. Hún sigraði í 400m hlaupi á tímanum 61,99 sek sem er bæting um rúma sekúndu. Að auki sigraði hún 800m hlaupið á tímanum 2;32,83 mín.
Sólveig Helga Guðjónsdóttir Selfossi hljóp undir gildandi HSK-meti sínu í 200m hlaupi þegar hún hljóp á tímanum 27,62 sek sem er tæpri sekúndu betri tími en HSK-met hennar og sigraði hún í flokki 13-14 ára. Hún hljóp 100m líka mjög vel er hún varð í 4. sæti í kvennaflokki á tímanum 13,26 sek, en best hafði hún hlaupið áður á 13,50 sek. Því miður reyndist vindurinn vera yfir leyfilegum mörkum. Í 400m hlaupi bætti hún sig um 2 sekúndur er hún kom 4. í mark í kvennaflokki á tímanum 67,50 sek. Að lokum bætti Sólveig Helga sig í langstökki er hún stökk 4,55 m og hlaut bronsverðlaun að launum í flokki 13-14 ára.
Jóhann Erlingsson Laugdælum keppti í kúluvarpi og sleggjukasti í karlaflokki og stóð sig mjög vel þrátt fyrir að honum tækist ekki að bæta sig að þessu sinni hann kastaði kúlunni 10,40 m og sleggjunni 18,30 m.


Á nćstunni

11.2.2012 | Frjálsíţróttir
18.2.2012 | Frjálsíţróttir
25.2.2012 | Frjálsíţróttir
3.3.2012 | Frjálsíţróttir
13.3.2012 | Frjálsíţróttir
16.3.2012 | Frjálsíţróttir


Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta