Það voru 24 þátttakendur sem mættu í frjálsíþróttaskóla UMFÍ á Laugarvatni vikuna 19. - 23. júlí s.l. en skóli þessi er starfræktur á 5 stöðum á landinu. Ólafur Guðmundsson og Fjóla Signý Hannesdóttir voru þjálfarar í skólanum.
Sjö frjálsíþróttaæfingar voru á dagskránni og eitt mót sem var nokkurskonar lokapunktur á skólanum. Þar fengu þátttakendur að reyna sig og um leið nýta sér það sem þeir höfðu lært í skólanum. Makmið frjálsíþróttaskólans var að kynna sem flestar greinar frjálsíþrótta fyrir krökkunum. Er skemmst frá því að segja að áætlanir stóðust og markmiðinu var fyllilega náð. Farið var m.a. í grindahlaup og stört, boðhlaup, langstökk, þrístökk, hástökk, kringlukast, kúluvarp og spjótkast, að ógleymdu stangarstökkinu sem sló rækilega í gegn. Fimm mismunandi viðburðir voru á dagskrá um miðjan daginn og á kvöldin til að hrista hópinn saman. Má þar nefna spilakvöld þar sem spiluð var félagsvist, videósýning, ratleikur, bátsferð á Laugarvatni og svo kvöldvaka þar sem krakkarnir komu öll með skemmtiatriði. Mældust þessir viðburðir mjög vel fyrir. Gist var í Grunnskólanum á Laugarvatni þar sem framreiddur var morgunmatur ásamt miðdegis- og kvöldhressingu af Írisi Önnu Steinarsdóttur. Hádegis- og kvöldverðir voru snæddir í Íþróttamiðstöð Íslands Laugarvatni.
Þátttakendur komu víða að af landinu; 7 frá Selfossi, 4 af Laugarvatni, 1 úr Þingvallasveitinni, 1 frá Þorlákshöfn, 2 úr Kópavogi, 1 frá Reykjavík, 1 úr Grímsnesinu, 1 frá Hvolsvelli, 1 frá Laugalandi í Holtum, 1 frá Höfn í Hornafirði, 1 úr Mosfellsbæ, 1 frá Vík í Mýrdal, 1 úr Flóanum og 1 frá Bíldudal. Tilgangur þeirra var að kynnast frjálsum meira, jafnvel með frekari þátttöku í huga. Undirritaður telur svona skóla einmitt góðan vettvang til að kynna og breiða út frjálsíþróttir á Íslandi sem jafnvel verður til þessa að þátttakendur fara að æfa frjálsar í framhaldi og draga fleiri með sér. Töluverð fjölgun var á þátttakendum frá í fyrra þar sem 14 tóku þátt en 24 í ár. Það má því draga þá ályktun að enn frekari fjölgun verði á næsta ári og að skólinn sé því kominn til að vera.
Sjáumst að ári
Ólafur Guðmundsson frjálsíþróttamaður og skólastjóri




