Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss, eigandi og framkvæmdaaðili Brúarhlaups Selfoss, og Vífilfell, söluaðili Powerade íþróttadrykkjarins, hafa undirritað samstarfssamning til þriggja ára. Í samstarfinu felst m.a. að Powerade íþróittadrykkurinn verður íþróttadrykkur Brúarhlaupsins næstu þrjú árin. Þessi samningur skiptir miklu máli fyrir Brúarhlaup Selfoss og framkvæmd þess og styrkir frjálsíþróttadeildina við undirbúning og framkvæmd hlaupsins, að sögn Helga S. Haraldssonar, formanns frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss. Vífilfell hefur á undaförnum árum tekið virkan þátt í verkefnum tengdum hlaupum og styður m.a. við Reykjavíkurmarþon og einnig Powerade vetrarhlauparöðina, sem hlaupin verður í vetur.
Á myndinni handsala samninginn, þeir Helgi S. Haraldsson, formaður frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss, og Björgvin Magnússon, svæðisstjóri Vífilfells á Suðurlandi.



