Beint á leiđarkerfi vefsins

Frálsíţróttir

Frálsíţróttir - RSS

2.9.2010 | Frálsíţróttir

Sumarmót frjálsíţróttadeildar Selfoss

Sumarmót_2010Sumarmót Umf. Selfoss í frjálsum fyrir 11 ára og yngri fór fram í Þorlákshöfn fimmtudaginn 12. ágúst. Iðkendur frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss, sem koma víðs vegar af Suðurlandi, mættu fíldjarfir til leiks ásamt nokkrum krökkum frá Þorlákshöfn enda var mótið opið öllum. Mótið var það síðasta í sumar hjá þessum aldursflokkum og ríkti góð stemming á meðal keppenda. Rúmlega 20 krakkar mættu til leiks og stóðu sig með mikilli prýði.

Keppnisgreinar voru 60 m spretthlaup, langstökk, boltakast og 400 m hlaup. Allir keppendur fengu að móti loknu viðurkenningaskjal þar sem árangur þeirra í hverri grein kom fram. Grillaðar voru pylsur í keppendur og foreldra sem runnu ljúflega niður ásamt drykkjum. Frjálsíþróttadeildin þakkar kærlega öllum þeim fyrirtækjum sem styrktu okkur fyrir mótið, en það voru: SS Hvolsvelli, Hverabakarí Hveragerði, Guðnabakarí Selfossi, Bónus Selfossi og MS Selfossi.


Á nćstunni

11.2.2012 | Frjálsíţróttir
18.2.2012 | Frjálsíţróttir
25.2.2012 | Frjálsíţróttir
3.3.2012 | Frjálsíţróttir
13.3.2012 | Frjálsíţróttir
16.3.2012 | Frjálsíţróttir


Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta